Ísafold - 17.03.1906, Síða 2

Ísafold - 17.03.1906, Síða 2
62 ÍS AFO LD nýja konungs vors í sambandi við þetta mál. Sumir eigna honum frum- kvæðið, hver svo sem á sjálfa hug- myndina. Eu hann veit ekki, sem ekki er von, hvernig högum horfir hér því viðvíkjandi. þessa ganga flestir danskir menn alveg duldir, hann «kki síður en aðrir. það er og fleiri en hann Potemkin heitinn, sem leikið hafa þá list að dylja fyrir drotni sínum mis- fellurnar á högum ríkisins og hugum þegnanna. því má og aldrei gleyma, að sama er að segja um þessa gerð konungs sem aðrar stjórnarathafnir og ályktanir, að aðrir bera ábyrgð á henni, en hann alls enga. Fyrir því er og fullheimilt að segja ekki síður löst á henni en kost. Knn er eitt óathugað í þessu máli, og það er sú sjálfsagða skyldukvöð á oss íslendingum, e f þetta boð er þegið, að bjóða síðan hingað í móti nokkrum dönskum ríkisþingmönnum. þeir geta varla orðið færri en 20—30. það mundi kosta landssjóð jafnmargar þúsundir sjálfsagt. Hvað mundi þjóðin segja um þá fjárveitingu? Valdhafinn mikli og lallar hans, meiri hlutinn á þingi, mundu að vísu kalla það »goluþyt«, og að slíkt komi þjóðinni ekkert við, með- an þingfararumboðið stendur. En eiga mega þeir víst, að einhvern tíma kem- ur að skuldadögunum fyrir þeim sem öðrum. Aniei ikitpistiil. Winnipeg 20. febr. 1906. Herra ritstjóri! Ekki ósjaldan fær maður séð í blöðunum hér vestan hafs, Lögbergi og Heimskringlu, ýmsar hetju- og hreystÍ8ögur frá íslendingum í Ame- ríku, sumar sannar, en þó margar til- hæfulausan ansamsetníng. Vesalings blöðin sjá ekkert utan tóma ljósgeísla, og landarnir neyta meira af líkamlegri og andlegri fæðu en ,sál og líf fær móci tekið. Annars er undravert, hve blöð þessi endast til að slá Ameríku gullhamra, og leitast við að fegra hana á allar lundir. JBaldvin ritstjórí sagði sjálfur víð undirritaðan ekki alls fyrir löngu, að eign íslendinga í Ameríku næmi full komlega eignum allra Islendinga á Islandi, og svo sannfærður var hann um það mál, að hann gat ekki leitt hjá sér að birta það í blaðinu litlu síðar. Lögberg biður í 7. tbl. sínu þ. á. íslendinga á íslandi að varpa af sér dofahjúpnum og færa sér í nyt gæði lands og sjávar með starfsþoli, þreki og verkhygni Vestur-íslendinga. Miklir menn erum við, Hrólfur minn. Má eg spyrja: hvar sést þetta þol, þrek og verkhygni Vestur-íslendinga? Hvar sjást þeir miklu yfir-burðir, sem hylja með öllu kosti íslenzku þjóðar- innar heima? Eða er það mikilmenska, að flýja sitt föðurland fyrir hræðslu sakir, og gjör- ast illeppur í enskum skóm í Ameríku? Eins og allir vita, þá er fjöldinn af íslendingum sem að heiman koma með öllu mállaust og mentunarlaust fólk, og fær ekki þegar hér kemur ann- að að starfa en alt hið versta sem landið hefir að bjóða, svo sem járn- brautavinnu, skógarhögg, eða, ef þeir vinna í bæjum, að standa með bogið bakið í vatnaveitu- og saurrennuskurð- um frá morgni til kvölds fyrir afarlítið kaup. Sumir hafa húsgerðarvinnu, þó að eins hið versta og erfiðasta, sem sé að aka grjóti og múrsteini, og þykir ágætt, ef þeir fá vinnu við kalk- og sementsblöndun. það er í einu orði sagt, bvar sem maður sér landa hér við vinnu sína, þá hafa þeir ávalt rekuna milli hand- anna, þar eð öll betri vinna er í hönd- um hinnar ensku og annarra mentaðra þjóða. 011 þessi verri vinna stendur að eins yfir blá sumartímann, en að vetrinum hafa þeir ekkert að gera, og verður þá endirinn sá, að þeir verða að fá að láni alt það sem útheimtist til að draga fram lífið, upp á væntanlega vinnu næsta sumar. Allir geta nú séð, hvaða líf þetta er, og að enginn getur orðið efnaður á tómri daglaunavinnu, og þar sem hún stendur þá ekki yfir nema hálft árið. það mun því vera sannleikanum næst, og er óbifanleg sannfæring mín, að s/4 hlutum Islendinga í Ameríku muni líða meira og minna illa fyrir fátæktar sakir. Ef ungur Islendingur sem að heim- an kemur ber þá hugmynd í brjósti að verða raaður, má hann sætta sig við að búa fyrir utan sína þjóð, því þótt hinn ísienzki flokkur hér eignist slíkan mann út af skólunum með fullkomnum kröftum og hæfilegleikum, þá er sá flokkur svo fámennur ogvalda- lítíll, að hann getur ekki boðið þess- um unga manni þá stöðu, sem samboð in 8é lærdómi hans og mentun, og verður hann þá að leita sér atvinnu inn á starfsvið hinnar ensku þjóðar. En þegar svo er komið, taiar hann varla né skrifar íslenzkt orð, og er þá um leið að mestu dauður sinni þjóð. En hinir, sem ekki hafa áræði til að verða menn, kúldast hver með öðrum, sjáandi ekki neitt, og farandi alls á mis sem mentaður maður telur sig alls ekki getað án lifað. þeir lífa því hér íendalausuhörmung- ar- og dauðastríði og í alt öðrum heimi. Ofanskráða Iýsingu ætla eg eiga við meginhluta þeirra íslendinga sem í Winnipeg búa. Af hvaða ástæðu er það, að sumir Islendingar yfirgefa hina amerísku sælu og flytja sig heim til íslands? Hvað var það sem dró þá heim, Sigurjón og Sigurð Sumarliða- syui, eftir 8—10 ára veru þeirra hér, og lét þá gerast bændur norður í Eyja- firði? Sannleikurinn er sá, að flest af því fólki sem kemst til fulls þroska á íslandi, fær sín engan veginn notið í Ameríku. En það er einmitt það, sem margir dugandi menn, sem hvarflað hafa beim aftur, hafa rekið augun í. Sumir landar vorir leita sér atvinnu hjá bændum; en sú vinna er bæði erf- ið og ófrjálsleg, enda leiðist ’nún flest um þegar til lengdar lætur, þar eð þeir fá lengi vel ekkert að gera utan hið versta úr vinnunni, eins og að mjólka kýr, bera vatn og saga við til eldsneytis, milli þess sem þeir berjast úti alla daga gegn óblíðu náttúrunnar á vetrum við gripa- og svínahirðingu fyrir 8—10 dollara á mánuði, sem er all8 eigi meira en fyrir fatasliti. Sá sem til Ameríku kemur frá Is- landi, hversu mentaður sem hann kann að vera, má ef til vill sætta sig við einhverja þá vinnu sem að ofan er tal- in, nema því að eins, að hann sé því vaxinn, bæði að þekkingu og fjárhags lega, að taka jörð og búa. Stjórnin í Canada lætur svo heita, sem hún gefi hverjum karlmanni, er þangað kemur eldri en 18 ára, 160 ekrur af landi, og sama ekrufjölda kvenmanni sem getursannaðaðhún hafi fyrir ómaga aðf sjá, ef hún er ekkja eða ógift. En þess ber að gæta, að þetta er að eins eyðiland, eins og að líkindum lætur, sem þarf mikilla um- bóta áður en hægt sé að hafa arð af því. Honum eða henni er gert að skyldu, að búa á landinu 6 mánuði í 3 ár. Á þeim tíma er honum ætlað að koma upp kofa yfir sig og hjú sín, gera sér fjós, girða landið að miklu leyti og plsegja á því tilekinn ekru- fjölda. Nú þó hann hafi brotist fram úr öllu þessu, þá kemur honum það að litlu haldí, ef hann hefir engar skepnur, því ekki lifir hann á tómum kofunum; hann getur því að mínu viti tæpast notað þennan rétt sinn, nema hann hati höfuðstól, sem nemi 9—11 hundruð dollurum, til að framkvæma skyldurnar og lifa sómasamlngu lífi. Én þá fjárhæð tekst honum með dag launavinnu að draga saman á 10—lð árum, þó því að eins, að hann neiti sér um flest það, sem til þess þarf að lifa þægilegu lífi. Ekkert finst mér eins tilfinnanlegt í þessu landi eins og skortur á góðu vatni. Hér fæst óvíða vatn á minna en 40 feta dýpi og þar yfir, hvítskol- ótt á litinn, viðbjóðslegt á bragð og nær því ódrekkandi mönnum og skepn- um. Víða er það brimsalt, og þar við bætist, að í því er mergð af lifandi pöddum, sem sjást þó varla með ber- um augum. Hestar veikjast, ef þeir drekka meira en 3—4 potta af því i einu. En þetta er þó það sem heilar sveitir og héruð verða að sætta sig við. Enda fullyrða læknar hér, að hir. mikla og skæða taugaveiki sem hér geisar í fólki jafnt vetur sem sumar, sé mest runnin frá þessu skæða vatui. Engum er meiri hætta búin að falla fyrir þessum og mörgum öðrum skaðræðis8júkdómum en einmitt því fólki, sem frá Islandi kemur, og nálega hvert manusbarn, sem þaðan kemur, veikist eftir tveggja til þriggja daga veru sina hér. Sumir koma að eins til að deyja, en það er þó ekkí það versta, því aðrir mega sætta sig við að missa 3/4 parta úr árinu til að komast á fæt- ur aftur. Flestir munu geta sett sig í spor þeirra, sem svona fer fyrir, hversu erfitt þeir muni eiga uppdráttar, kom- andi að úr annari heimsálfu með nýja von í brjósti fyrir áhrif hinna mjúk- málu agenta, sem fela sig fyrir því fólki það sem þeir geta, þegar hingað er kornið og það á sem erfiðaBt, vinnu- laust og al slaust. Enda væri margt af þess konar fólki illa komið, ef ýms- ir mannvinir skærust þá ekki í leik til að rétta því hjálparhönd. f>að er mín óbifanleg sannfæring, að enginn sá íslendingur, karl eða kona, ætti til Ameríku að flytjast, sem sér frarú á þolanlega framtíð sína á Islandi. Og margur íslendingur hefði hingað aldrei kotnið, ef hann hefði vitað í tíma, hvað við mundi taka hér, en getur nú með engu lifandi móti kom ist heim aftur. Virðmgarfylst Sigurður Sigurðason. Skipbrotsmennirnir hvorirtveggja, þeir er getið var um hér um daginn eru nú hingað komnir fyrir, nokkru, eftir langa ferð og stranga, austan úr Oræfum. Botnvörpungurinn, sem strandaði á Breiðamerkursandi,hét Southcoates, frá Hull. Skipverjar voru 13 og björg- uðust allir, meðfram fyrir frábæran vaskleik stýrimannsins, Bem er Færey- ingur. í för með þessum skipbrotsmönnum hingað að austan voru 5 menn af öðru botnvörpuskipi ensku, Gloria frá Grims- by. J>að hafði verið statt þar nærri, er Southcoates fór upp, og sent 5 menn á bát á land til að reyna að bjarga. En þeir komust ekki út í skíþ sitt aftur vegna brims. Mó í kola staö í ofna væri harla mikilsvert, ef nota mætti alment hér á landi, eins og bent hefir verið á áður í þessu blaði. Nú býður Mýrafélagið danska fúslegar leið- beiningar í því hverjum sem þess leit- ar, sjá augl. frá hr. Ásg. Torfasyni. Veitt brauð. Ráðgjafinn hefir veitt Skeggjastaði 28. f. m. sira Jóni Forsteins- syni, áðnr aðstoðarpresti á Sauðanesi. Bændur og stjörnarblöðin- Bréfkafli íír sveit, dags. 12. marz. Lítið er minst hér á landsstjórnar- mál um þessar mundir. Afleiðingum ritsímans kvíða menn^ bæði vegna þess, hvernig samningur- nn er lagaður í sumum greinum, og svo vegna þess, hve margt er ógjört, sem fyr og betur gat aukið gjaldþol almennings. Verst líkar mönnum það, að hraðskeytamálinu fekst ekki frestað, því að skaðlausu, svo að samkepni hefði getað fengið að komast að. En nú er komið sem komið er, og hug- sjónin hlýtur því að verða sú, að gera ólánið sem léttbærast. Ríkisráð88etumálið, sem undirskrift- armálið er að líkindum bein afleiðing af, er orðið býana bágborið. Auðvitað kann að mega segja með sanni, að vér bændur berutn lítt skyn á það mál. En ekki ætla eg að hægt verði nokk- urn tíma að láta okkur trúa því, að stjórnskipuleg réttindi þjóðarinnar, hvort heldur er í smáum stíl eða stór- um, séu ekki annað eða meira eu »form« eða »firrur«, o. fl., o. fl., sem 8umir skíra þau nú. Menn trúa betur þeirra fyrri um- mæluro, sem komu fram þegar þeir vóru óháðari málunum en nú. Ekki tökum vér bændur okkur nærri álit stjórnarblaðanna á okkur, eða óþverrayfirausturinn) á okkur fyrir að sækja fundinn í Reykjavík í sumar er leið. Vér áttum ekki að hafa haft vit á að gera greinarmun á vöxtum og höfuðstól; og margt fleira höfðu þaa hjákátlegt og aulalegt eftir okkur. En hvað sem um þetta er, mun hitt sönnu næst, að öllu meiri ógreiða gátu þau tæplega gjört stjórninni en að leggjast í móti okkur á þann hátt, sem þau gerðu. Vér, sem áttum þátt í fundinum, vissum vel, að væri um nokkraábyrgð að tefla, kom engum í hug að skjótast undan heiini. því til sönnunar eru nöfnin okkar, sem vér létum fúslega birta á prenti. J>að varð þó til þ -ss, að hægra var að lengja þau með spottstitlum eða smánarnöfuum. Að stjórnarblöðin hafi fengið ein- hverja sína menn til að brosa að þessu í svipinn, þykir oss all líklegt. Hitt er ef til vill vandsénara, hvað sú gleði verður langgæð eða endingargóð; og víst er um það, að ekki var brosað að því, þegar Austri fór að fræða menn um það, hvað ferðum danska herskips- ins leið í sambandi við bændafundinn, ásamt fleira af liku tægi úr þeirri átt. |>á fóru menn þó alment að átta sig á því, hvað stjórnarblöðin voru að haf- ast að. J>á rann blóðið til skyldunnar. f>á hafði blaðið gengið lengra en menn höfðu nokkurn tíma átt að venjast hér á sfðari tímum. f>á fór að rifjast upp eldri saga, og allra næst varð fyr- ir mönnum öxin með danska stimplin- um, sem smeygt var innan í þingboð- ið, o. fl. o. fl. því líkt; og þá fóru menn líka að átta sig á ýmsu fleira. f>að er ósk mín og fleiri manna, að afleiðingin verði ekki sú, að margur gjaldi saklaus. En einu hafa menn þegar veitt eftirtekt, og það er því. hve blöðin látast vera óháð stjórninni- Af hverju skyldi það stafa? Að minsta kosti eitt stjórnarblað ætti ttð vera nokkuð alment lesið, og slíkt blað ætti að vera yfirfarið af henni, svo að ekki birtist í því annað en það, sem mætti reiða sig á að vsert hennar skoðun. En eins og nú stend- ur, er ástandið mjög slæmt. Sum

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.