Ísafold - 21.03.1906, Síða 1
Kemur út ýmist einn sinni eBa
tvisv. i vibu. YerB árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
1*/, doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Dppsögn (skrifieg) bundin v 8
áramót, ógild nema komiu sé til
dtgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi skuldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Austumtrœti 8.
XXXIII. árg.
Ileykjavík miövikudaginn 21. marz 1906
17. tölublað.
I. 0. 0. F. 873238‘/s.
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—8 i spítal.
í'orngripasafn opiö A mvd. og ld. 11—12.
Hlntabankinn opinn 10—21/* og u1/*—7.
K.. F. U. M. Lestrar- og skrilstofa frá 8 Ard. til
10 sibd. Alm. fundir fsd. og sd. 81/* siod.
tiandakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á helgidögum.
handakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—6.
tjandsbankinn 101/»—2 ^/a. Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—H og 6—8.
t<andsskjalasafnið á þrdn fmd. og ld. 12—1.
kœkning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
ííáttúrugripasafn á sd. 2—8.
Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.og3.md. 11—1
Tf A ..*vi \ er skorað á þá, sem
Uermeo eiga óborguð kirkju-
garðs- og orgelgjald, að borga þau
tofarlaust; að öðrum kosti verður kraf-
iat lögtaks á gjöldunum.
Kristján Þorgrimsson.
Kiinrmgleikiim nauðatæpur
Der er en uhyre Mængde
Ting, hvorom Islænderne
savner alt Begreb.
(Ekstrabl. 5. marz).
pað er Khafnarblaðið, aem hér hefir
Verið minst á nokkrum einnum og
tebið fram um það, að það sé lang-
vinsamlegast í vorn garð allra blaða
þar. pessi klausa steudur þar í grein
heimboð alþingismanna vorra til
^ninerkur. þar er verið að lýsa þvf,
t>ve margt nýtt og merkilegt þeir fái
sjá, er þeim muni finnast mikið
Qtn- það þylur langa runu af því,
^aðfram í skopi þó; því lízt ekki neitt
tiltakanlega vel á þessa heimboðshug-
^yod nema í aðra röndina. Bnda ber
í>að brigður á, að Friðrik konungur
e’8i hana, heldur hvggur hana hafa
^ðst í höfði þeirra J. C. Christensen
°ís8etisráðgjafa eða Alberti, en þeir
. 'ð H. Hafstein gína við henni fegins
atuhi .— nema hvað!
þetta er nú ekki mikillar frá-
Sa8na>- vert.
Hitt er öllu eftirtektarverðara, hvaða
unnug|eik hér þetta blað hefir til að
^jalda, þetta blað, sem er svo vinalegt
vorn 0g virðíst að öðru leyti
afa aflað 8ér nokkurrar þekkingar á
því sem þag er ag ræða, skilnaðar-
ugtnyndinni og þingmannaheimboðinu.
tvent er vitanlega tvinnað saman.
~>au iara ekkert dult með það, hin
Uu8kn blöð, er á þessi mál minnast,
a hsimboðið 8é til þess gert, að eyða
8 'l’taðar-hugarslangrinu f íslendingum.
f>að segir þá, að þorri þingmann-
a°na íslenzku hafi fráleitt nokkurn
Danmörku séð og viti fráleitt
^®'tt um það af eigin sjón, hvernig
ba^ ^ma mennin8arrlki 1141 út eða
sér, þótt meðal hinna minni sé.
i, bætir því næst við ofanskráðri
k*ausu
Það l6ynir g^r 0]j^í £ þe8sum til-
^tnunum, að höf. greinarinnar — það
le *'tsti<irnargrein — hugsar sér ís-
an*ka alþingismenn, úrval þjóðarinn-
Mgi Ve§ eina komna út úr hólum.
an n Wuti Þeirra sé alls ókunnugur
t-e.r þ6kki
smærn sem
varla annað
en
Bezt sköfatnaðarkaup i Rvík
er hægt að fá i
verzluninni EDINBORG
♦
4 Til þess að rýma fyrir nýjum skófatnaði, sem keyptur
4 hefir verið i ýmsum hinum beztu mörkuðum heimsins, býð-
4 ur verzlunin kjörkaup á skóm og stígvélum:
4 14 króna skór h kr. 10,50 t 6 króna skór á kr. 4,50
4 13 8/4 kr. skór h kr. 10,30 ■ 5 króna skór k kr. 3,75
4 10 króna skór k kr. 7,50 4 4 króna skór k
hundaþúfuna, sem þeir hfma á hver
um síg.
Nú er sannleikurinn sá, sem blaðið
órar ekki fyrir, að af 39 þingmönnum
vorum, sem sæti eiga á þingi sem
stendur — eitt konungkjörna sætið
stendur autt, »sannsöglÍ8«-sætið — hafa
fyrir víst 32 komið út fyrir pollinn.
Meiri hluti þeirra er sæmilega bunn-
ugur í Danmörku; sumir dvalist þar
langdvölum, jafnvel 10—20 ár. Og
meiri háttar meutaþjóðunum hafa þeir
þó nokkrir töluverð kyuni af, ekki sízt
Englendingum og Ameríkumönnum.
Hinna 7, sem eftir eru, er ineíri hlut-
inn skólagengnir menn, og meira og
minna handgengnir dönskum ritum,
bókum og blöðum. þeir vita sæmi-
lega deili á, hvernig til hagar í Dan-
mörku að flestu leyti. En vitaskuld
er meira varið í að s j á það með eigin
augum.
Mikið af þeim dönskum hnossum og
hlunnindum, sem blaðið þylur upp,
hafa hinir 32 séð flestir, svo sem:
»hermenn, fallbyssur, kastalavirki, lög-
reglumenn, geheime konferenzráð, port-
konur, Tivoli, leikhús, samsöngva
(h i r ð i n a, hallirnar, auðvitað, það
hefði átt að standa fremst: rauðir
skósveinar og ökumenn, hirðfólk af öllu
tægi), því næst allmikinn fjölda af öðru
dóti, sem of laugt yrði upp að telja,
þar á meðal einnig gistihallir með raf-
ljósi og vatr.s-salernum (W. C.) og
veizlum með 14 réttum matar«.
Blaðið segir, að margt af þessu sé
nú ekki mikilsvirði hvað fyrir sig. En
í einu, heilu lagi tekið sé mikið í það
varið. Mikið í það varið, að helztu
menn landsins eignist mælikvarða til
meta og bera saman alt sem löndin
snertir bæði, ísland og Danmörku.
En til þess sé engin leið öðruvisi en
að sjá það sjálfir.
Én ef mikill meiri hluti þingmanna
hefir séð þetta sjálfur og er því
sæmilega kunnugur?
Jú, aldrei er góð vísa of oft kveðin,
má segja um þá. Og eins hitt, að
gott só fyrir h i n a að sjá það líka. þó
er hætt við, að gróðinn yrði minni en
látið er í orði, meðal annars og ekki
sízt vegna tímaleysis fyrir átveizlum
og margvíslegum fagnaði öðrum. Sýnt
yrði þeim aðallega eða nær eingöngu
það sem glæeilegast er álitum, og áhrif-
in væntanlega þau helzt þá, að hinir
lítilsigldari að minsta kosti—margir full-
yrða að til séu jafnvel einfeldningar með-
al þingmanna vorra—fyltuBt takmarka-
lausri lotningu og aðdáun fyrir dönsk-
um mikilleik, og könnuðust, þegar heim
kæmi, naumast við kljádýr það, er
hrífa nefnist.
f>eim mundi e k k i verða sýnt inn
í öreigahíbýlin í smágötunum í Khöfu
og víðar. þeir mundu ekki verða látn-
ir kynna sér aðbúnaðinn þar. f>að
mundi ekki verða farið að trana fram-
an í þá aumingjunum, sem þar er
kasað saman í miklu þreugri híbýli,
loftminni, loftverri og óþrifalegri en
dæmi eru til í kotbæjum hér á landi.
En eigi þeir að eignast réttan mæli-
kvarða til að meta eftir hagi og háttu
þjóðanna.beggja, þá mætti þetta ebki vel
missa sig. f>eir þyrfu helzt að vita það,
að dýrðarinnar og auðlegðarinnar og alls
nægtanna nýtur ekki nema minni hluti
hinnar dönsku þjóðar, lítill minni hluti
jafDvel, þótt margir séu bjargálna.
Vitaskuld væri fjarstæða og heimska
að bera á móti því, að um margt nyt-
samt má fræðast á því að heimsækja
Dani. En kynnin þurfa að verða nán
ari og almennari heldur en hægt er
veita sér á fám dögum, innan um
veizluglaum og járnbrautarþeysing land-
ið af enda og á.
f>að e r og ólíku saman að jafna,
hve Dönum er margfalt meiri þörf á
að kynnast högum og háttum vorum,
ef þeir vildu láta svo lítið, og ef þeim
þætti nokkur þörf að verða færir um
að tala um oss og vora hagi af nokk-
uru viti. Málsmetandi Dönum og
mikils megandi.
En það gerist hvorki með því að
eiga kost á að sjá í svip framan í
nokkra þÍDgmenn héðan, né heldur
þó að þeir, danskir þjóðarleiðtogar
nokkrir, kæmi hingað snöggva ferð.
f>að á vissulega ekki síður heima um
Dani andspænis oss en oss andspænis
þeim, þetta um ósköpin öll, sem enga
hugmynd hafi menn um; það væri
ekki neinar ýkjur, þótt vér svöruðum
og segðum:
Der er en uhyre Mængde
Ting, hvorom Danskerne
savner alt Begreb.
Talsínii til Reyðarfjarðar.
Skrifað er hingað af Seyðisfirði 16.
þ. m :
Fullráðið kvað vera, að leggja tal-
síma héðan til Reyðarfjarðar í sumar,
eða réttara sagt frá Egilsstöðum, og
hefir ráðgjafinn lagt svo fyrir af þeirri
ástæðu, að aka skuli nokkuð fleiri
staurum héðan upp á Fjarðarheiði en
áður var til tekið.
f>að mun vera Thor E. Tulinius
stórkaupmaður, er fengið hefir leyfi til
að leggja talsíma þenna og selur síð
an landinu, segir bréfritarinn.
Brlend tíðindi.
Marconiskeyti
20. marz.
Til þessa hafa náðst 232 lík alls
upp úr C o u r r i e r e s-n á m u n u m,
þrátt fyrir hinn mikla óþef. Nýr eld-
ur og loftbrestur á laugardaginn tók
fyrir leitina að Iíkunum. Nú hafa
26,000 uámumanna gert verkfall. f>að
lítur út fyrir, að verkfallið muui taka
til 80,000 námumanna í Calais-sunds-
námunum. Yfirvöld við Courrieres-
námurnar hafa nú afráðið að hlaða 18
feta þykka veggi til þess að halda eld-
inum í skefjum innan þeirra endimarka,
er nú tekur hann yfir. f>að er líka
búist við, að þau muni einnig girða
námugöng með líkum í, sem eru að
rotna, og gera þar með úr þeim stór-
an grafreit.
Oldungadeildin í Washington
hefir samþykt þingsályktun, þar sem
krafist er nákvæmrar skýrslu um, hvað
miklu herinn í Filippseyjum hafi ban-
að af konum og börnum.
Gufuskipið British King frá Liver-
pool 8 ö k k í Atlanzhafi 11. marz,
fyrir það, að margar tunnur af olíu,
sem höfðu skolast útbyrðis, brutu gat
á skipið. Af 56 manns innanborðs,
varð ekki bjargað nema 28.
Ráðuneytið nýja á Frakklandi
lýsir því yfir, að það sé einráðið að
brjóta á bab aftur alla mótspyrnu gegn
skilDaðarlögunum ríkis og kirkju.
Stórglæpamaðurinu Henning í Ber-
lin, sem er sakaður um mörg morð,
hefir verið höndlaður, eftir að hann
hafði smeygt sér undan öllum lögreglu-
mönnum á f>ýzkalandi heilan mánuð.
Tvær troðfullar hraðlestir r á k u s t
á nærri Portland í Colorado í Banda-
ríkjum. Síðan kviknaði í öllu samau,
og var hörmung að sjá það, er þar
gerðist. f>ar týndust 40 manns, þar á
meðal 15, er brunnu kvikir, og marg-
ir urðu sárir.
Marokkofundurinn í Algeciras kom
aftur saiuan á laugardaginn. Enn er
ofurlítill vonarneisti um samkomulag.
Fimm menu hefir frézt að fengið
hafi kýlapest í Sydney (í Ástralíu).
Bandaríkin senda 63 aflraunamenn
til að reyna fræknleik sinn í Ólympíu-
leikunum f Aþenu í maímánuði í vor.
Mjög alvarlegt ástand á Ungverja-
landi. Stjórnin hefir bælt niður með
valdi framkvæmdarnefnda- sambandið
(stjórnarandstæðinga) og ber fyrir, að
það æsi til uppreistar.