Ísafold - 11.04.1906, Blaðsíða 2
82
ÍSAFOLD
Sláturfélagsskapurinn
á Suðurlandi.
Hugmyndin um að koma sér upp
samlagssláturhúsum hefir lengi vakað
fyrir bændura. Henni var hreyft á
þingi fyrir eitthvað 10 árum af f>órði
Guðmundssyni í Hala og aftur fyrir
nokkrum árum af landbúnaðarmála-
nefndinni. Almennur fundur var um
málið í sumar er leið úr Árnessýslu
og Rangárvalla við þjórsárbrú 29. júlí
og 8. jan. þ. á. fyrir fulltrúa úr hrepp-
um sömu sýslna. Sams konar fundir
voru síðan haldnir í öðrum sýslum
sunnanlands, Vestur-Skaftafells, Gull-
bringu- og Kjósar, Borgarfjarðar og
Mýra, til að kjósa nefnd, er skyldi
kynna sér málið sem rækilegast, safna
skýrslum þar að lútandi og láta uppi
álit sitt.
|>að er sú nefnd, er getið var um í
síðasta bl. að hér hefði haldið fund
fyrri viku.
Margt ber til þess, að mál þetta
hefir komist í hreyfingu :
1. Bændur hafa oftast orðið að
reka fénað sinn til Reykjavíkur og
neyðst til að selja hann einnngis
þ a r, hvernig sem gengi, vel eða illa.
2. fótt keypt hafi verið heima í
sveitum, þá hefir engín regla eða lag
verið á því. Sumir hafa selt miklu
dýrara en nokkurt vit var í eða sann-
girni, en aðrir sér í stórskaða.
3. Ýmsir hafa fjárkaup sér að auka-
atvinnu, og ganga misjafnlega frá þeim.
4. Stundum hrúgast svo margt fé
til Reykjavíkur í einu, jafnvel alt að
10,000 á 1 viku, að geyma verður það
þar svo vikum skiftir. f>ví fylgir geysi-
kostnaður fyrir fjáreigendur, en hitt
þó margfalt meira tjón, að féð horast
niður.
5. Sé litið á málið frá dýravernd-
unarhlið og siðferðislegrar skyldu, rek
ur maður óðara augun í þessi hróp-
legu misferli: féð er tekið úr ágæt-
um högum, þrautrekið, sársvangt orð-
ið, sárfætt og nær uppgefið, flækist
fram og aftur um götur höfuðstaðar-
ins, alt af á grjóti, sem það er óvant
við í högunura; oft er því haldið inni
í réttum eða portum á grjóti 12—18
stundir í sólarhring, en þess í milli
úti á litlum og lélegum haga, ýmist
liggjandi þá eða standandi aðgerða
Iaust, jarmandi af heimþrá og leiðind-
um.
6. þeir fást margir við slátrun
fjárins, sem hvorki kunna það eða
geta með viðunanlegri vandvirkni eða
hreinlæti.
7. Hér í Reykjavík gæti verið jafn
og góður markaður fyrir alt kjöt eða
mestalt úr fyrnefndum sýslum, ef féð
kæmi sœám saman eftir þörfum.
8. Bændur eru sannfærðir um, að
gærur o. fl. megi selja betur en verið
hefir.
f>etta alt er nú hugmyndin að reyna
að laga með samvinnufélagsskap og með
stóru, nýju slátrunarhúsi í Reykjavik,
er samsvari að öllu leyti kröfum og
þörfum tímans, svo vel, sem kostur er
á; takmarka rekstra, taka fénaðinn
eftir niðurlagi, svo að hver fái sitt.
Höfuðatriðin eru : j ö f n u ð u r
verðsogvöruvöndun, enallseng-
in óeðlileg hækkun verðs í Reykjavík.
Flutníng kjöts út úr landinu er
áformið að reyna jafnframt, í smáum
stll.
Um alt þetta á að reyna að vera í
samráði og samvinnu við bæjarbúa og
kaupmenn.
En vilji þeir ekki þýðast það, held-
ur veiti þessu fyrirtæki öllu saman
óhyggilega mótspyrnu, má auðvitað
búast við, að bændur taki til sinna
ráða.
Mælt er, að láta muni nærri, að
Reykjavík þurfi fyrir sig að minsta
kosti 20—30 þús. sauðfjár á ári og
3000 nautgripi. Og það fær bærinn.
En þó er hann oft kjötlaus, og kjöt
fæst ekki, þótt mikið sé í boði. En
stundum úldnar kjötið eða þá að féð
horast rétt í kringum bæinn, og eng-
inn vill kjöt á 20 a. pundið.
Ef bæjarbúar vildu panta kjöt fyrir
fram hjá stóru sláturhúsi, gætu þeir
oftast fengið hæfilegt eftir þörfinni,
bæði nýtt og saltað niður í ílát.
Nefndin samdi á fundi sínum um
daginn frumvarp til laga fyrir svona
lagað félag og sendir það prentað með
athugasemdum í hverja sveit í fyr-
nefndum 6 sýslum. J>að er eitt í lög-
unum, að stofnfé skuli vera m i n s t
10 kr. frá hverjum félagsmannni og
greiðist hálft um leíð og félagið er
stofnað. f>að er óuppsegjanlegt 5
fyrstu árin og af því greiðist 5 °/° leiga.
Félagsmenn eru skyldir að skifta við
slátrunarhúsið 5 ár í minsta lagi.
Stjórn félag8Íns sé skipuð 9 mönn-
um, forstjóra í Reykjavík, og 2 fuíl-
trúum úr Arnessýslu og Rangárvalla
hvorri um sig, og úr hinum sýslunum
4. Aðalfundur stjórnar hefir úrskurð-
arvald, en framkvæmdarvald stjórnar-
nefnd : forstjóri og 2 kjörnir menn úr
stjórninni. Deild í hverjum hreppi.
Deildarstjórar kjósa stjórnarmenn á
sýslnafundum. þeir hjálpa til sam
vinnu milli deilda, stjórnar og forstjóra.
Brlend tíðindi.
Marconiskeyti
10. marz.
Hraun vellur upp um n/jan gíg í
V e s ú v í u s. Fólk flýr í kring. Aska
fellur yfir Neapel. Gígurinn sp/r bráð-
inni leSju 1500 fet í loft npp. Hús
hristast í Neapel. Margir flýja út á
torgin.
Hernaðarreglur vilja Rússar aðallega
láta ræða á friðarfundinum, en
ekki minnast neitt á að draga úr her-
búnaði. Þ/zkir bankar vilja ekki leggja
neitt í lán handa Rússum.
Enn fundinn maður með lífi í C o u r-
r i é r e s-námum. Hafði nærst á brauði
og konjaki, er hann fann á dauðum
mönnum í námunum. Námuverkfræð-
ingar urðu að fl/ja í jörðu niður undan
tryldum konum við námuopin. Játvarð.
ur konungur' hefir gefið 200 pd. ( =
3600 kr.) í Courriéres-hjálparsjóðinn.
Biilow fursti leið í ómegin á ríkis-
þinginu í Berlín eftir langa ræðu, er
hann flutti, og raknaði ekki við fyr en
eftir margar stundir. En er nú að
hressast.
Roosevelt hélt Grey Canadajarli d/r-
lega veizlu í Hvítahúsi og mörgu stór-
menni.
Dáinn er Blanco hershöfðingi, f. lands-
höfðingi Spánverja á Cuba.
Verkfall hafa 5000 hafnarerfiðismenn
gert í Odessa.
Sátt komin á með Austurríkiskeisara
og stjórnmálaflokkum á Ungverjalandi;
tilslökun á báðar hliðar.
Lokafundur í Algéeiras á laugar-
daginn. Fundarmenn skildu með vin-
mælum.
Nefnd í neðri deild á Washingtonþingi
vill hækka nefskatt á innflytjendum
og gera þeim enn meiri tálma.
Bandaríkjastjórn er að hugsa um að
hafa Panamaskurð víggirtan.
Mikið v e r k f a 11 hófst á laugardag-
ir,n í bómullarmylnum (í Bandaríkj.?),
meira en 12 þús. m. hættu vinnu.
Stórslysið á Yiðeyjarsundi.
Tuttugu menn druknað.
þilskipið, sem getið var um í síðasta
blaði að borist hefði á i Viðeyjarsundi,
hét I n g v a r og var eign Duus verzl-
unar hér í bæ, keypt fyrir 2 árum að
Sveini kaupmanni Sigfússyni, er hafði
látið smíða það þá fyrir 2—3 árum.
Daginn þann, 7. þ. m., var hér af-
spyrnurok af útsuðri með foráttubrimi,
með því mesta er hér kemur.
Fiskiskútur lágu hér margar á höfn-
inni og voru að smátínast inn, undan
veðrinu.
J>ar á meðal sást til einnar aðeins
skamt fyrir hádegið, inn sundið milli
Engeyjar og Viðeyjar, — og þar með
mjög brátt, að hana bar af leið inn í
Viðeyjarsund. Skifti það engum tog
um, að hún var föst orðin þar á skeri,
norður og út af Skarfakletti.
þykjast menn vita, að bilað hafi
stýri eða stjórn að einhverju leyti.
Enn þar með hefir fylgt annað
slyBÍð, til bjargar gert, en varð að
tjóni: varpað akkerum til þess að
skipið bæri ekki upp á sker. En
akkerin ekki fest botn fyr en um
seinan, en þá svo rammlega, að skip-
ið hreifðist hvergi úr því, heldur sat
blýfast á skerinu þar til, er það var
hlutað í þrent og sokkið. Ella gat
það hafa borið upp á eyna og einhver
mannbjörg orðið.
f>etta var fiskiskútan Ingvar, 77
smál. að stærð, skipstjóri Tyrfingur
Magnússon.
Varla gecur átakanlegri hörmungar-
sjón en skipverja hanga á reiða eða á
öldustokk tímunum saman og smátín-
ast þaðan í opið dauðans gin; og fá
enga björg veitt. það sást raunar
ekki nema með höppum og glöppum,
fyrir særokinu.
Gufuskipið Gambetta (Edinborgar
verzlunar) sera lá hér á höíninni, kynti
undir hjá sér og lagði á stað að reyna
að bjarga; en þá gerði svarta ól, og
sneri Gambetta við það aftur. Énda
má alveg fullyrða það, að bjargað
hefði hann engu mannslífi, þótt kom-
ist hefði á véttvang. Til þess var eng-
in ieið öðru vísi en með flugtólum,
sem hér eru hvergi til, eins og allir
vita.
Lögskráðir á skip þetta hér í febrú-
arlok höfðu verið 21 alls. þeirra
hafði 1 verið hleypt á land í Keflavík,
sakir sjósóttar; það varð honum til
lífs. Hann heitir TómaB Tómasson,
vinnumaður frá Vælugerði í Flóa.
Hinir 20, sem druknuðu, voru:
1. Tyrfingur Magnússon, skipstjóri,
bróðir Bjarna bónda Magnússonar í
Engey, ókvæntur maður og barnlaus.
2. Júlíus Arason, stýrimaður, héð-
an úr bænum, 27 ára, kvæntur og
átti I barn. Og þessir hásetar:
3. Albert Eiríksson, vinnum. frá
Árbæ í Ölfusi, 16 vetra.
4. Geir Hildibrandsson, vinnum. frá
Vetleifsholtí í Rangárv.s., 26 v.
5. Guðjón Gestson, bóndi frá Vet-
leifsholtsparti í Rangv.s., 32 ára; 3 börn.
6. Guðjón Kr. Jónsson, vinnum.
af Akranesi, 17 v.
7. Guðmundur f>órðarson, vinnum.
frá Seljadal í Kjós, 20 v.
8. Jóhannes Teitsson, þbm. í Rvík,
ekkjum., 61 árs.
9. Kláus Jósson, vinnum. frá Ausu
í Borgarf., 23. v.
10. Ólafur Einarsson, vm. frá Ár-
bæ í Árn. 18 v.
11. Ólafur Sveinsson, þbm. í Rvík,
28 v., ókv., en átti 2 börn.
12. Sigmundur Hildibrandsson vm.
frá Vetleifsholti, 32 v., bróðir nr. 4.
13. Sigurbjörn Jónsson, vm. af Akra-
nesi, 35 v.
14. Sigurður Jóhannesson, vm. ór
Rvík, 16 v., sonur nr. 8.
15. Stefán Gestsson vm. frá Vet'
leifsholtsparti, 25 v., bróðir nr. 5.
16. Tímoteus Ól. Guðmundsson, vff'
af Akranesi, 16 v.
17. TómasTómasson, þbm. af Akr»’
nesi, 41 árs; 4 börn.
18. jporsteinr. Jónsson (Illugasonar)
þbm. úr Rvík, kvæntur og átti 3 börD>
19. —20. Tveir Norðmenn : Jakob
Hovstad(19v.) og Sigurd M. Larsen (30)’
Ellefu lík rak upp í Viðey aðfara-
nótt sunnud. og sunnudaginn. Ekkert
síðan.
Vátrygðir kváðu skipverjar hafa verið
allir (í hinum ísl. sjóvátryggingarsjóði)1
Skipið var og vátrygt í Faxaflóa-
þilskipaábyrgðarfólaginu fyrir 12 þúS'
En var miklu meira virði.
ASþýöiiblaðið —
stefna of>- þess starfssvið.
II.
Hafa ekki allir heyrt hörmnngasög'
urnar úr flestum rfkjum heimsins, uDJ
æsingarnar, verkföllin og hungursneyð'
ina, spellvirkin, manndrápin og all®
svívirðinguna, sem slíku er samfara?
Eða er nokkur sá hér á landi, að
ekki vilji hann varast slíka afleiðiDg
athafna sinna?
Með þessum línum ætla eg ekki ®ð
fara lengra út í verkefni blaðsins, eð»
verkefnisgrein skáldsins, þó mér þýk'
hún um of einhliða.
Eg vildi bara grípa nokkur orð
greininni: »Kjör vinnufólks í sveituDfl11'
til að sanna orð mín og benda á, að
hún er bæði einhliða og illa rökfærð-
Alþýðublaðið segir: »J>að ef
ekkert smáræði, sem þingið skipa11
landssjóði að skamta í aska bænda úí'
lega. Búnaðarfélögin eru orðin bsB&
mörg og megandí«. Engin neitar því>
að þingið fyrirfarandi ár hefir viljað
styrkja landbúnaðinn, og veitt drjúg6
viðurkenningu fyrir d u g n a ð °%
framtak8semi í biinaði ^
ýmsan háttt. Hygg eg því, að
framsýnir menn og einlægir ættjarðar'
vinir telji þessu fé á glæ kassað, eða
sama sem látið í aska bænda>
þótt þeir séu kvattir til að nema lancfi^
af nýju, að bæta ábýlisjörð þjóðarinnah
að auka og margfalda verðmæti heuD'
ar, notagildi og afurðir, eða breytft
framleiðslunni, bæta hana og auka. ,
|>egar svona lítið er gert úr slíkrl
fjárveiting og virðíst talin eftir í al'
þ ý ð u b 1 a ð i, þá er von að meuD
spyrji: Eru bændur þá ekki í flokk1
alþýðunnar? Eða, ætlar blaðið a,
kafna undir nafni, og skifta alþýðu 1
tvo andvíga flokka ?
Hvað verður nú um styrk búnaðar'
félaganna, sem blaðinu mun einna bí{'
ast um ? f>ar sem eg er kunnugastur
— og svo mun víða vera á landmu
gengur haun beinlínis allur til d a &
launamannanna, þeirra manUD'
er eg bjóst sízt við, að Alþýð0'
b 1 a ð i ð vildi telja krónur eftir.
ekki gengur einungis landssjóðsstytk'
urinn til daglaunamannanna, heldur
leggja bændur 8—10 sinnum meira
(styrkur er oftast 25—30 a. á dagsVJ(
er kosta kr. 2,25 til 3,00), einmitt 8
meira leyti eða minna fyrir þenDD11
styrk, til þ e i r r a jarðabóta einnDj
sem styrk hljóta. Mikill hluti af Þe0Sc
fé gengur einnig til verkamanna í kaDr
°g fæðÍ- Uflg'
f>á talar blaðið einnig um, að nae,
sýnir bændur og íramfaramenn %e
mikið og geti mikið árlega bætt ma
aðinn fyrir vöru sína, svo atvinnUV®
ur þeirra gefi míkinn arð, a ð b®D ^
uni þó ekki betur hag sínum, og ^
mörgum þeirra þyki samt óþarfi ■
bæta kjör vinnufólksins. |>að & »
þakka fyrir að kaupgjaldið sé bsek
um helming frá því sem áður V»r>
j