Ísafold - 01.06.1906, Blaðsíða 2

Ísafold - 01.06.1906, Blaðsíða 2
ingu), mjög fjölsóttan fyrirlestur í Lundúnum, þar sem við voru Btaddir margir biskupar og fjöldi kennimanna, um meira en 30 ára reynslu sína um þessi sömu dularfullu fyrirbrigði, sem hér hafa gerst, og þau þaðan af miklu furðulegri og fágætari, án þess að það hneykslaði nokkurn lifandi mann þar viðstaddan, svo getið sé, né heldur að nokkrum manni flygi 1 hug önnur ein8 vitfirrings-fjarstæða og það, að maðurinn væri óhæfari eftir en áður til að gegna sínu mikilsverða embætti, þótt uppvíst yrði að hann hefði séð og heyrt og rannsakað þesai fyrirbrigði, og að hann þyrði að segja frá því sjálfur og standa við það hvar sem væri. Auðvitað hefir virðing hans vax- ið fyrir það, en ekki rénað. Eða þá loks það, að hin merkustu blöð annara þjóða (u t a n Danmerk- ur vitanlega) minnast nú orðið ekki á hér um ræddar rannsóknir öðru vísi en með fylstu virðingu. — Yður þykir eg orðinn nokkuð lang- orður, býst eg við. En mér fanst al- veg nauðsynlegt að mál þetta væri skoðað »frá ýmsum hliðum«, sérstak- lega — frá almennu sjónarmiði. Yðar með mjög mikilli viiðingu FilaleÞes. * * * % Höf. framanritaðrar greinar hefir margt rétt fyrir sér; og getur ísafold meðal annars vel fallist á það, að vera ekki í algerðu bindindi fyrir lít- ils háttar athugasemdir áhrærandi þetta mikilsverða mál, þegar avo ber undir, þ ó a ð því verði upp frá þessu ætlað sérstakt málgagn. Með því lagi fá þeir einir yfirleitt fræðslu um það, er hana girnast. Hinum er gagnslaust að bjóða hana. f>að skiftir litlu, hvernig á ímugust þeirra stendur. Hitt er nóg, að hann er til. Hann á vitaskuld fyrir sér að hverfa smám- saman, alveg eðlilega, nærri því af sjálfu sér, með vaxandi þroska og óhræðslu við palladóma misviturra manna og hégómlegra. Samvinnukaupfélög. Kaupfélagsskapurinn íslenzki virðist vera að taka þeirri hollu stefnubreyt- ing, að hverfa frá pöntunartilhögunínni og að samvinnu-kaupfélagsskap, eins og haft er á því lagið í öðrum lönd- um og bezt hefir reynst þar. Nefnd, sem skipuð var í kaupfélags skaparmálið á þjórsárfundinum í vetur, hefir nú birt álit sitt. — f>eir eru í nefndinni: Eggert Benediktsson óðals- bóndi í Laugardælum (form.), Kjartan prófastur Helgason í Hruna, þorsteinn Thorarensen óðalsbóndi á Móeiðar- hvoli, Eyólfur Guðmundsson oddviti í Hvammi á Landi, og Guðm. þorbjörns- son óðalsb. á Hvoli í Mýrdal. Nefndin gerir þá grein fyrir munin- um á sameignarkaupfélögum og pönt- unarfélögum, eins og þau hafa verið tíðust hér á'landi, a ð pöntunarfélögin kaupa allar vör- ur fyrir lánsfé, lána þær alt af út og eiga því alt af á hættu, að bíða tjón af vanskilum; en kaupfélögin láta hönd selja hendi í öllum viðskiftum; að pöntunarfélögin hafa sem allra- lægst útsöluverð á vörum sínum; en kaupfélögin vilja hafa vaðið fyrir neð- an sig og selja vöruna með líku verði og kaupmenn, en útbýta síðan ágóð- anum af verzluninni i árslokin; a ð í pöntunarfélögunum njóta menn þegar í stað alls ágóðans af vörukaup- unum og gera hann jafnóðum að eyðslu- eyri; en í kaupfélögum leggur hver félagsmaður upp nokkuð af ágóðanum og safnar sér þann veg nokkurs konar fasteign. Svona hefir þess kyns félagsskapur verið á Englandi langalengi, eins og sjá má meðal annars á ágætri grein eftir Torfa í Ólafsdal fyrir mörgum árum í Andvara. Og svona er hann í Danmörku, bæði kaupfélagsskapur og annar samvinnufélagsskapur. Af því að til er áður í fyrnefndum sýslum og hefir lengi verið allmikið bænda-verzlunarfélag, Stokkseyrarfé- lagið, lízt nefndinni bezt á, að ekki sé hugsað um að stofna þar nýtt samvinnukaupfélag, heldur gamla félag- inu breytt eða lögum þess, horfið frá pöntunartilhöguninni og tekin upp kaup- menskan. Helzt er nefndin á því, að félögin ættu að vera tvö á svæðinu, sem hún ber fyrir brjósti aðallega, en það er Árnessýsla og Rangárvalla og Vestur- Skaftafelk; og ætlast nún þá til, að austurhluti Rangárvallasýslu og Vestur- Skaftafellssýsla öll verði í eystra fé- laginu og hafi tvo útsölustaði, annan í Vík, en hinn í Hallgeirsoy. Um útsölustað í hinu félaginu eða útsölustaði hefir nefndin ekki lagt neitt til. Hugsar sér líklega Stokks- eyri áfram, eins og verið hefir. Henni hefir boðist Lefolii-verzlun á Eyrar- bakka með öllum hennar verzlunar- hÚ8um, lóðum og jörðum, verzlunar- áhöldum, skipsfestum og öðrum eign- um á Eyrarbakka, Stokkseyri og í þorlákshöfn; en hefir þótt ísjárvert að byrja á þvf að leggja út í svo mik- il fasteignakaup, enda vanséð vegna hafnleysisins á Eyrarbakka, hvort þar yrði hentugt að hafa útsölustað til frambúðar. Nefndin hefir samið fyrirmyndar- sýnishorn af lögum fyrir samvinnu- kaupfélög, og lætur tilgang þeirra vera: a ð safna stofnsjóði eða veltufé með tillögum frá félagsmönnum, til þesB að geta ávalt keyp útlendan varning fyrir borgun út í hönd; a ð safna varasjóði til að tryggja framtíð félagsins; a ð [fækka svo sem auðið er öllum óeðlilegum milliliðum í verzlunarvið- skiftum ; a ð útvega félagsmönnum sem bezt- ar vörur og með svo góðu verði sem unt er; a ð auka þekking félagsmanna, eink- um í því, er snertir samvinnufélags- skap og verklegar framfarir. Um Möðruvelli í Hörgárdal sækja aðeins þeir síra Jón Þorsteinsson, fyrv. aðstoðarprestur á Sauðanesi, og prestaskólakand. Lárus J. Thorarensen. Brauð veitt. Bjarnanes hefir ráðgj. veitt 18. þ. m. síra Benedikt Eyólfssyni á Berufirði, eftir kosningu safnaðanna. Laust brauð. Berufjörður í S- Múlasýslu. Metið kr. 967,39. Fekk 800 kr. embættislán 1903, með 50 kr. ársafborgun. Umsóknarfrestur til 12. júlí. Veitist frá þ. á. fardögum. Höfðinglega gjöf hefir stórkaupm. Sigurður Jóhannesson (r. af dbr.) i Khöfn sent f MannskaðaeamBkotaejóðinn: 1000 kr. { peningum. Höfuövirkiö unnið. f>að þykja vera og eru mikil tíðindi, að landsins langstærsti áfengisveitinga skáli, hótel Ísland í Reykjavík, dett- ur úr sögunni á næstu áramótum. Goodtemplarareglan hér í bænum hefir keypt húsið eins og það er fyrir 90,000 kr., og með því skilyrði, að seljandi, J. G. Halberg, noti þá eigi framar áfengisveitingaleyfi það, er hann hefir. Reglan hugsar sér að nota nokkuð af húsinu handa sjálfri sór til fundar- halda m. fl., nokkuð ef ,til vill jundir búðir (hliðina út að Aðalstræti niðri) og hitt til gistinga, matsölu og hvers kyns veitinga án áfengis. Reglan hefir von um að geta selt gamla fundarhúsið, við Vonarstræti. f>að eru 5 stúkurnar hér af 7, sem kaup þessi hafa gert. — Hinar 2 geta vel orðið með síðar. Féð á að fá saman með hlutabréfa sölu, það sem andvirði gamla hússins hrekkur ekki, ef það selst. þá er alls e i 11 veitingahús eftir hér í bæ, hótel Reykjavík. Og ein- hvern tíma legst það niður, að minsta kosti þegar eigandinn fellur frá, en hann er roskinn maður; — ef til vill miklu fyr. En að ný áfengisveitinga- hús rísi hér upp, er alveg óhugsandi með þeim ströngu skilyrðum, sem lög setja fyrir því, og svo fjölment sem bindindisliðið er hér í bæ, og á fyrir sér að fjölga enn. f>að mun ekki ótítt erlendis hingað og þangað, að þar komi áfengisveit- ingahús á hvert 1000 manns eða færri jafnvel. f>au ættu þá að vera 10 hér í bæ, eftir þeirri tiltölu, í stað 1. Alls var tala veitingahúsa á landinu í fyrra 4—5. Tvö eru á Akureyri. það er satt, að ekki er alt fengið með þessari miklu fækkun löglegra veitingahúsa. f>au g e t a risið upp ólögleg í hinna stað og eru til nú nokkur slík, bæði í kaupstöðum eða kauptúnum, og utan þeirra, ef til vill ekki sízt hér í nánd við höfuðstaðinn; í bænum alls ekki eða sama sem alls ekki. f>ar er enn mikið verkefni fyrir bindindisliðið, að fáþau afmáð og fyr- ir það girt, að ný rísi upp. f>au eru smávægiieg, þar sem þau eru, og því hægra ætti þá að veraað ráða niðurlögum þeirra. Bakkusarvinir eru og lágsigld- ari orðnir nú miklu en áður gerðist, raeðan andstæðingar þeirra áttu minna undir sér. En andvara þurfa þeir þó að hafa á sér enn, sem áfengisbölinu vilja útrýma, og hann mikinn. f>eir mega ekki leggjast á koddann eftir unninn sigur þar og þar, t. d. þennan núna með hótelkaupin. Bakkusarlið- ið er máttdregið orðið sem stendur. En það er ekki lengi að magnast aft- ur og eflast, ef það er ekki látið hafa hitann í haldinu. f>vf býr hefndar- hugur f brjósti ura þessar mundir, er höfuðkastalÍDn einn er niður brotinn. f>ví 8pá sumir, að spilla muni þetta aðsókn feröamanna hingað frá öðrum löndum og gera landinu skaða þann veg. En ekki þykir sú vera reynsla annarsstaðar. Ferðamenn sætta sig yfirleitt mjög vel við áfengisleysið; þykir það kostur meira að segja mörg- um, þótt það hafi um hönd ella í hófi sem kallað er. En að ofdrykkjumönn- um er lítil eftirsjá, þótt einhver þeirra hætti við ferðalag hingað, er hann fréttir, að hér fáist ekki áfengi í gist- ingarstöðum. Ekki hefir á þvi borið, að dregið hafi áfengisleysið á þingvöllum úr að- BÓkn þangað. f>eir höfðu frammi þá ósvinnu, er skýlið reistu þar fyrir nokkrum árum, að sækja um áfengis- veitÍDgaleyfi. En sýslunefnd Árneæ sýslu var svo hyggin og sóma síns gætin, að hún synjaði þess. Nú minn- ist varla nokkur maður svo á gisting- UDa í Valhöll, að ekki telji hann það kost- miklu fremur en ókoet, að þar er ekki áfengi um hönd haft. f>eir fara nærri um meðal annats, hve svefn- vært mundi hafa verið þar fyrir drykkjulátum, ef þar hefði mátt veita áfengi. Brlend tíðindi. Marconiloftsk. 2íl/&. Alfons konungur kom í móti konœ- efni sínu Enu prÍDzessu við landa- mærin. f>au ferðuðust saman suður í Madrid og komu þar á föstudaginn. Ferðin var eins og sigurhrósför. Mik- ill mannmúgur þyrptist að á járnbraut- ar8töðvum. Konungsbrautarlestin var- öll full af blómum. Madrid er nærri full af aðkomumönnum. Ellefu hundruð' gestir bafa verið boðnir í brúðkaupið. — Játvarður konungur hélt, drotningar- efninu skilnaðarveizlu á miðvikudag- inn. — Prinzinn og prinzessan af Wales lögðu á stað frá Lundúnum á laugar- daginn. Falliéres forseti tók á móti þeim í París. f>aðan héldu þau suður í Madrid. þau sitja brúðkaupið þar fyrir hönd Játvarðar koDungs. Rodjestvenzky admíráll hinn rúss- neski hefir sagt af sér forstöðumaDns- embætti fyrir flotamálastjórninni. Búist er við að ráðuneytið rússneska muní segja af sér bráðum. þjóðþingið rússneska hefir lokið við fyrstu umræðu mannhelgislagafrum- varpsins. Óstjórnarliðar í Varsjá hafa rænt þar banka og komust undan á flóttar er þeir höfðu vegið og sært 9 banka- starfsmenn og marga viðskiftamenn. Banatilræði veitt landshöfðingja og lögreglustjóra í Tíflis af byltingar- mönnum með sprengikúlu. f>eir kom- ust óskaddir undan. En einn kósakki beið bana. ötjórnatíðindi rússnesk segja, að þingi rnuni verða slítið þar í miðjum júnímánuði. Járnbrautarlest, sem var á ferð i Kansas með Söru Bernhardt, frönsku leikkonuna frægu, og hennar föruneyti, hlektist á. Hún var að lauga sig, er slysið bar að. Hún slasaðist ekki, ea hurð skall mjög nærri hælum. Bróðiirleg kveð.iuseiiding. Sent hefir ísafold verið nylega eitt eintak af íslenzku blaði, er kemur út i Ameríku og nefnist Vínland, með da- lítilli vinsamlegri athugasemd eða bróð- urlegri kveðjusending út af því, að ísa- fold hafi flutt í vetur ('%) grein, U m 1 o f t r i t u n í B a n d a r í k j u m, er staðið hafi áður í því blaði (Vínl.), látið þess ógetið. Blaðið bætir því við, að grein þessi hafi víst verið þar að auki í einu höfuðstaðarblaðinu hér, sem sé sjálfu eigineignar-málgagni ráðgjafans. En það er eins og getið var í athuga' semd við greinina, að hún var send Isa' fold í h a n d r i ti ofan úr sveit, með þeim ummælum, að henni hefði verið snúið á ÍS' lenzku (að mér skildist) úr amerískublaði- Það gerði maður, sem verið hefir leng1 í Ameríku, en á nú heima hér fyr,r norðan. Nafni hans hefi eg nú sagt V í n 1 a n d s-ritstjórninni frá bróflega' Eg breytti nokkuð orðfæri á handritii'1! hingað og þangað; þótti það vera ekk1 góð íslenzka alstaðar. Eigi að gera þetta að glæp, þa hann sá, að eg held hvorugt málg^, það, er hér á hlut að máli, og veit P sjaldnast hvað þar stendur. En a . margir munu þeir glæpamennnj1^ vera hér á landi og verður þá ritstj0 ^ ísafoldar líklegast sætt sameiginle® skipbrot. B. J.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.