Ísafold


Ísafold - 01.06.1906, Qupperneq 3

Ísafold - 01.06.1906, Qupperneq 3
Mikið skal til mikils vinna. Mikið er um dýrðir í dag í Madrid, bruð- auP konung8 og Enu konungsfrænku frá Englandi. Hún er systurdóttir Játvarð- ar konungs. En mikið skal til mikils vinna. Hún varð að ganga af trúnni, veslings drotning- arefnið, til þess að hljóta happið það, að Verða Spánardrotning. kirkjan lætur svo sem ekki að Ser ^etta varð Dagmar Kristjánsdóttir Dana- ^oniings að gera forðum, er hún gekk að e,f>a keisaraefni Rússa, er siðan varð Alex- anáer III, Hún var að kasta lútersku tr“nnii aem hún varð skirð og staðfest i, e‘ns og foreldrar hennar og systkin, og játast undir grisk-kaþóÍ3ka trú. — Mikið ®kal til mikils vinna. Það var j frásogur fært i vetur skömmu eftir þaö, er Ena þessi var föstnuð Alfons konungi, að tveir biskupar spænskir voru raðnir til að veita henni fræðsiu i hinni eina réttu sáluhjálplegu trú, kaþóiskunni. ^^ð mun hafa staðið á því vikutíma eða 8V0' ®g gvo var frá þvi sagt i blöðunum, að • nu> þann og þann dag væri hún. drotn- Ingarefnið, orðin sannfærð um það og það atrjði i kaþólsku trúarjátningunni: að það V*ri miklu réttara en hitt, er henni hafði aðUr kent verið. Gekk svo koll af kolli, þar tlf er þau voru öll upp tind. Þetta voru þeir ®njallir, hiskuparnir, og hún eftir því næm a sannleikann. Loksins var hún orðin að vikunni lið- lnn* staðfestingarfær i kaþólskum kristin- dómi og gat með góðri samvizku játast undir sina nýju tr£ meg 8VOfeidum formála, er vera lnu*r hin fyrirskipaða trúarjátning kaþólsku ^irkjunnar: hér með hönd á helga bók, og Se8* það og sver, að eg veit, að enginn 8etur hólpinn orðið utan þeirrar trúar, er heilög rómversk kirkja, kaþólsk ogpostulleg, hsfir, trúir og kennir, og að það hryggir ^ig, að eg hefi stórlega vilst gegn henni ah þvi leyti sem eg hefi trúað kenningum, 8em henni eru gagnstæðar; og játa eg nú tyrir guðs náð, að eg trúi þvi, að heilög riimversk kirkja, kaþólsk og postulleg, er hm eina sanna kirkja, stofnuð hér á jörðu af Jesú Kristi, og fel eg mig henni á vald &f öllu mínu lijarta. Eg trúi fastlega öllu ^v*> sem hún heldur fram, og eg hafna öllu iordæmi alt það, sem hún hafnar og tor,i®mir; er eg og boðin og húin til að tla8a mér eftir öllu því, sem hún leggur fJrir mig. Og sérstaklega játa eg, að eg trui á einn guð í þremur persónum, sem er hver frá annari greinauleg og hver annari Þfa — þag er. föður, son og heilagan anda; att eg trúi kaþólsku kenninguuni sem hold- fehiu, piuu, dauða og upprisu Jesú Krists; e8 trúi persónulegri einingu tvennrar náttúru hans> guðdómlegrar og mannlegrar; eg trni guðdómlegu móðerni háheilagrar Mariu meyjar, ásamt alfiekklausum meydóm henn- ar' °g semuleiðÍ8 óflekkuðum getnaði henn- &r > sannri og verulegri návist likama drottins Vors Jesú Krists, ásamt sál hans og guð- 'lómseðli, i háheilögu kvöldmáltíðarsakra- ^entr; sjö sakramentum stofnuðum af Jesú r*8ti mannkyninu til hjálpræðis, en það er 8kirn, staðfesting, heilög kvöldmáltið, 8Jndalau8n, siðasta smurning, kennimannleg Igsla og hjúskaparvigsla. í' t j(rig trúi einnig á hreinsunareld, upprisu i. óauðum og eilift lif; á æðsta prestskap ^8 rómverska höfuðprests ekki einungis ^ trgn heldur og að valdi, eftirmanns ^e*Iags péturs postula, er æðstur var post- ^ Dna, jarls Jesú Krists; göfgun helgra **a og mynda þeirra; i gildi postullegrar rft k'rhjufe8rar erfikenningar og heilagrar lngar, er vér verðum að þýða og skilja i þeirri merkingu, sem heilög móð- ^ r aaþólsk kirkja hefur haldið fram og dce ^ tratD' en henn* e*nn* l*eyr*r það, að ^ ma Um sh*l**i**g þeirra! og eins sérhverju j, U’ 8e*** til hefir verið tekið og yfirlýst * 8n*** kirkjurétti og af almennum kirkju- fundum, sérstaklega heilögum kirkjufundi i Trient og almennum kirkjufundi i Vatikani. Fyrir þvi hef eg af einlægu hjarta og fölskvalausri trú viðbjóð á sérhverri skekkju, villutrú og sértrú, sem er andstæð áminstri kaþólskri, postullegri og rómverskri kirkju. Svo hjálpi mér guð og hans heil- laga orð, er eg snerti við með hönd minni. Hátíðarmessur. Hvitasunnumorgun kl. 8: sira Jón Helgason; á hádegi dóm- kirkjupr. (altarisganga); kl. 5 cand. Sigurhj. Á. Gíslason. Aannan í hvítas. á hádegi sira Bjarni Hjaltested (altarisg.); kl. 5. síra Lárus Halldórsson. Fórn Abrahams. (Frh X ■— Hvað nú, neitið þér að lilýða? — Bg er einkis megnugur. — Eruð þér eigi einn af öldungum safnaðarina? — Herra, það eru landar mínir, Bem hafa aett mig 1 þá stöðu. Meðan eg vil það eitt aem allir sjá að þeim er til gagns, þá hlýða þeir mér víst, en takist eg á hendur erindi fjandmanna vorra, sem aldrei verður, þá munu þeir hrækja á eftir mér, og það væri rétt gert af þeim. Bg er bráðum dí- ræður að aldri, herra. Eg er of gam- all til þess að ganga yfir í annan flokk. Farið þér, Mtiller; þvaður yðar um- breytir engu. Og komi eigi allur söfn- uðurinn saman við kirkjuna hinn dag- inn, þá getið þér búíst við öllu hinu versta. Hrukkótt andlitið á Piet Miiller lýsti hvorki ótta né von. Hann fór svo hæglátlega sem hann var kominn. í vagninum spenti hann greipar og baðst fyrir auðmjúklega, meðan öku- sveinninn keyrði hestana á brokk. Lögregluhöfuðsmaðurinn stappaði niður í gólfið sem óður væri og gekk að herberginu á bak við. Haon lauk upp hurðinni og kallaði reiður : — Komið þér Blenkins eða Jenkins, eða hvern dj. þér heitið. Sisyfus Blenkins, herra hersir! svar- aði ísmeygileg rödd; og sami maður sem van der Nath hafði rekið út úr húsi sínu, steig inn yfir þröskuldinn. Hann var klæddur í eins konar tötur- legan skrautbúning, sem auðsjáanlega hafði eigi veriö saumaður á hann, held- ur hafði verið keyptur í búð þar sem seldur er brúkaður karlmannafatnaður. Á hendurnar hafði hann sett svarta hanzka, sem þó voru eigi betri en svo, að fingurgómarnir gægðust út um þá. í hendinni hélt hann á lélegum hatti uppstroknum og ódýrum göngu- staf. Hann mjakaði sér nær borðinu líkur hundi, sem er hræddur við að verða barinn. f>ar nam hann staðar og setti sig í stellingar eftir upphugsuðu lagi með hægra fótlegginn yfir um hinn vinstri, og studdi hattinn laus- lega á borðröndinni. Allur maðurinn bar hörmulegaD vott um siðferðilega og líkamlega hnignun; hryggurinn bog- inn augun í skjálg og runnu í vatni, og göngulagið kindarlegt. Hann var í stuttu máli ólánsræfill. Vaninn við að þola lítilsvirðingu barðist við viss- una um að eiga ekki betra skilið. Lögregluhöfuðsmaðurinn virti hann fyrir aér frá hvirfli til ilja með fyrir- litningarsvip og mælti þurrlega: — |>að var gott ráð sem þér gáfuð mér! þór hafið náttúrlega hlustað á samtal mitt við gamla manninn. — Herra hersir! — |>ér vitið mjög vel að eg er höf- uðsmaður. — Eg veit einnig mjög vel að herra höfuðsmaðurinn hefði átt að verða hersir fyrir löngu. Mannræfillinn sleikti út um, eins og hanu hefði bragðað á einkar gómsætum drykk og glotti út af því, hvað honum hafði tekist vel að koma fyrir sig orði. þótt smjaðrið væri Iélegt, lét höfuðs- maðurinn það þó eiga sig, og mót- mælti ekki titlinum frekar; en viss* þó svo vel, hvað sómdi, að hann sýndi á eér enga þakklátsemi fyrir það. — Svarið mér upp á spurningu mína, mælti hann byrstur. Hlustuð- uð þér á? — Herra hersir — fyrirgefið — herra hötuðsmaður; rödd yðar er óvenjulega hljómmikil. — þér heyrðuð þá, hvað gamli mað urinn sagði. — Leyfið mér að taka það fram, að eg sagði fyrir þessar málalyktir. Eg sagði einnig, að allri vægð væri á glæ kastað við þessa mentunarlausu menn. feir sjá eigi málefni og hluti með sömu augum sem vér, er notið höfum hlunninda siðraenningarinnar. — Ekkert bull, tók höfuðsmaður byrstur fram í fyrir honum. IieDnið mér gott ráð, ef þér getið, en ef þér getið það eigi, þá farið þér til fj. burtu. Eg kæri mig ekkert um návist yðar. Herra hersir — fyrirgefið — herra höfuðsmaður, en þér kannist víst við að gleymska mín í þfessu efni er af- sakanleg? Eg þekki þetta bygðarlag eins og hendurnar á mér. Hann hélt annari hendinni fyrir framan sig og hristi höfuðið, er hann leit á götótta hanzkana. — Eg hefi verið hér tvö ár áður en ófriðurinn hófst, ófriðurinn sem gamli þverhöfðinn í Prætoríu og hans fylgi- fiskar neyddu ættjörðina mína dýr- mætu til að fara í. Eg hafði áreið- anlega stöðu og naut — það þori eg að segja rauplaust — mikillar virð- ingar hjá nágrönnum mínum, og hefði að líkindum dvalið hér til dauðans, ef þessar hernaðardeilur hefði eigi meinað mér það, svo mjög sem eg unni ættjörð minni. j?ar að auki var þjóðerni mitt, sem ég hefi alla tíð ver- ið hreykinn af hver sem heyrði til, það spilti fyrir mér hjá þessum skræl- ingjum; því á þá hefir orðið Englend- iugur lík áhrif eÍDs og rauð dula á mannýgt naut. Eg neyddist til að halda burt, til að koma eigum mínum í peninga fyrir hlægilega lágt verð, og stóð svo eftir efnalaus sakir þeirrar rangsleitni, sem beitt var við mig. Mér var af öllum sýnt ranglæti — hann gleymdi nú sínu ísmeygilega háttalagi og lamdi hattinum í borðið — í þessu bölvaða landi, en eg er hróðugur af þessu, því að eg er Eng- lengur, herra höfuðsmaður. Höfuðsmaðurinn ypti öxlum. Hann sá að maðurinn var að ljúga. En hann hirti eigi um að ranDsaka, hve miklu hann laug. Hann gerði ekki nema spurði: — Og nú viljið þér eflaust koma fram hefnd við óvini yðar! Mannræfillinn komst jafnskjótt aft- ur í sínar sárauðmjúku undirgefnis- stellingar, tók batt sinn af borðinu og hneigði sig djúpt og mælti: — f>ér misskiljið mig algerlega, herra höfuðsmaður. Eg fyrirgef óvinum mínum og vil eigi framar hugsa um glæpafullar aðfarir þeirra við mig sem einstakling; það er fjarri mér. Nei, það eru beinlínis aðrar hvatir, sem hafa, fyrir yðar aðstoð, herra höfuðs- maður, komið mér til að bjóða minni ógleymanlegu ættjörð að gera henni greiða. Hann teygði úr staurslegum skrokkn- um og barði sér á brjóst, svo að vegar rykið þyrlaðist út úr blettóttri treyj- unui hans. — Eg þykist af því að vera eins mikill ættjarðarviuur og hver af þeim mönnum, er ráða fyrir hinum sigur sælu hersveitum hennar hátignar. Hann hneigði sig djúpt og stalst um leið til að líta á höfuðsmanninn til að sjá, hver áhrif þetta skrum hefði á hann haft. En það var ekki að sjá, að höfuðsmaðurinn hefði orðið snortinn af mælsku hans. Andlits- drættir raannsins bóru vott um svikna von og hann hélt áfram í heldur óhá- tíðlegri róm: — Nú, okkar á milli viðurkenni eg, herra höfuðsmaður, að eg er einnig að hugsa um hefnd. Rangindi þau, sem hafa verið frammi höfð við mig, eru svo mikil, að þeirn verður eigi gleymt. f>að var auðséð, að hanu heimtaði eigi að sér yrði trúað; hann stefndi að vissu marki og hirti lítið um, hvern- ig við hann væri breytt, ef hann að eins kæmist þangað. ctfœsta 61. midviRuéag G.Júni. Hyer sá er borða vill gott Mar garíne fær það langbezt og ödýrast eftir gæðum hjá Guðm. Olsen. Telefon nr. 145. Kvenslifsa- og kramYöruverzlunin í Ingólfsstrœti nr. 6 hefir ávalt til nægar birgðir af kvenslifsum, svuntuefnum úr ull, silki og taui, kvenbrjóstum, prjóna- fötum, tilbúnum nærfötum, barnafötum og margs konar kramvöru, alt vandað og ódýrt. — Það borgar sig að lita þar inn áður en annar staðar er keypt. Tækifæriskaup á húsi á góðum stað með stórri lóð, borgunarskilmálar ágætir; mjög lágt verð ef samið er strax. Ritstj. visar á. Geymsluhús gott við Ingólfsstræti nr. 5 fæst til leigu nú þegar. íslenzkt fæst bezt á Hverfisgötu 19, hjá Guðbj. Torfadóttur. Kaupendur Isafoidar sem skifta um bústaði núna um kross- messuna eða í næstu fardögum, eru vinsamlega beðuir að láta þess getið sem fyrst í afgreiðslu blaðsins.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.