Ísafold - 20.06.1906, Blaðsíða 2
158
ÍS AFOLD
Laiidsreikmnga-eítirlit
Fyrirkomulagi á landsreikninga-eft-
irlití er fjarri því að vera hagfelt eða
tryggilegt, eina og það er haft hér á
landi. |>að er lapið eftir Dönum, eins
flest annað í stjórnarskrá vorri, eftir
flýtisverkinu þeirra frá 1849. Meiri
hluti þings velur meonina, sem eiga
að endurskoða alla reikninga landssjóðs.
Nærri má geta, að hann fari ekki að
velja aðra en s í n a menn, og þá helzt
hina allra dyggustu sér og fylgispök-
ustu. Starfið verður jafnaðarlega að
bitling, sem kept er um og beitt ótæp-
um atkvæðasníkjum til að ná í hann.
Alt er undir því komið, að koma sér
vel við meiri hlutann. Sé þá meiri
hlutinn í vasa stjórnarinnar, sem dæmi
eru tíl, fer að verða lítið um trygging
fyrir hlífðarlausum aðfinslum að því
S3m við3jált er í fjárráðsmensku henn-
ar. En sleppum því. |>að er vita-
skuld ekki vanalegt, að meiri hluti
þings hagi sér eins og ófrjálsar undir-
tyllur þeirra sem völdin hafa. Hitt
er þó bersýnilegt, að sjaldnast þarf
að búast við mikilli gagnrýni af slík-
um mönnum við fjárbrúkun þingsins
sjálfs ; og getur hún þó verið engu síð-
ur athugaverð en hjá umboðsstjórninni.
Meðferðin á stjórnarvalda-auglýsinga-
málinu núna er glögt dæmi þess, þótt
smátt sé, hvernig fara m á með mis-
fellur í reikningsráðsmenskunni yfir
reitum landssjóðs. Annar endurskoð-
andi þingsin8 er einmitt maðurinn, sem
lét gefa sér upp ólöglega helming aug-
lýsinga árgjaldsins. Hann hefir sér al-
veg samhentan hinn endurskoðand-
ann, mann af sama sauðahúsi. f>eir
minnast hvorugur minstu ögn á fúlg-
una þá. fúngmenn láta sér ekki detta
neitt í hug. f>eir hafa ekki tíma né
tækifæri til að skifta sér af öðru en
því sem yfirskoðunarmennirnir benda
þeim á. f>eir eru þess trúnaðarmenn,
eða e i g a að vera það. Svo er alt
búið.
Vitaskuld er hér lítilræði um að tefla.
En mundi svo sem ekki hafa mátt
beita sama lagi, þótt miklu meira hefði
verið í húfi ?
Víða um lönd er alt öðru vísi búið
um þetta eftirlit og miklu tryggilegar.
Fullnaðar-úrskurður um reikningskil
landsins eða ríkisins liggur að sjálf-
sögðu undir löggjafarvaldið 1 heild sinni
og er hann víðast upp kveðinn með
Iögum.
En undirbúningurinn er í höndum á
alveg óháðri stofnun, reikningsrétti eða
endurskoðunarnefnd. Dómendur í þeim
rétti eru skipaðir ýmist æfilangt, eða
til svo margra ára í senn, að óháðir
eru alveg breytilegum skoðunum og
skapsmunum meiri hluta á þingi.
Sumstaðar velur þá neðri deild þings.
Sumstaðar skipar stjórnin þá, eins og
hún skipar aðra dómar'a, ýmist afskifta-
laust af þingsins hálfu, eða með þeim
hætti, að neðri deild þings hefir til-
lögurétt um 3 í hvert dómarasætið, og
er stjórnin bundin við að taka ein-
hvern þeirra.
f>ann veg eða þessu líkt er reikn-
ingsmála-eftirlitinu komið fyrir í Aust-
urríki og á Ungverjalandi, í Belgíu, á
Hollandi, á Prússlandi, á Ítalíu og víðar.
f>ví fer fjarri, að nauðsyn beri til
eða takandi væri í mál að fara að
setja hér á laggir nýja stofnun til að
leysa þetta hlutverk af hendi, með
nýjum, föstum embættismönnum, 2—3
líklegast. f>að væri heldur mikið í lagt
fyrir ekki stærri reikningsveltu en
meðalverzlun hefir í hinum smærri
löndum mörgum.
Landsyfirréttinum væri alveg vor-
kunnarlaust, að bæta á sig svona verki.
Sömu aukaþóknun mætti greiða dóm-
urum þar, sem hafa ekki undirgengÍ3t
kvöðina með embættinu. Nýjum dóm-
urum má leggja hana á herðar með
émbættisveitingunni. Starfið er mjög
svo vel samrýmanlegt annarri iðju
dómaranna. Og óháðari mönnum eftir
stöðu sinni eigum vér ekki völ á.
f>að sannast, að ekki verður langt
að bíða nýrrar endurskoðunar á stjórn-
arskránni, í stað káksins frá 1903. Og
ætti nú að vera engin fyrirstaða, að hún
gæti gengið baráttulaust eða baráttu-
lítið. f>á ætti ekki að gleyma þessari
umbót, sem hér hefir nefnd verið.
Snæfellsnesi 12. júni: Héðan er fátt
að frétta neœa yfirleitt mjög slæma v e ð-
uráttn það sem liðið er af þessu ári, og
slys á sjó og landi, og þar afleiðandi erf-
iðar kringnmstæður hjá mörgum. Frá ný-
ári fram i góulok mjög óstöðug veðrátta,
skiftust sifelt á snjókomur, þó oftast með
vægu frosti, og kalsa-rigning og bleytukaf-
ald á milli, sem endaði með frosti og áfreð-
um.
1 góulok kom mjög hagfeldur bati i
bálfan mánuð; varð aiauð jörð í bygð og
klakalaus viða undan snjónum, og fór
þá í stöku stað að sjást gróður kringum
b*i. Sumir bændur voru iarnir að byrja á
jarðabótum. En í miðjan einmánuð skifti
snögglega um veðráttu; upp úr stórrigningu
gerði einbverja mestu norðansnjókomu, svo
heita mátti ófært bæja milli; þessi norðan-
átt bélzt stöðugt þar til er liðin var hálf
sjötta vika af sumri. Þenna tima allan
komu að eins einar tvær regnskúrir, en
sifeld næturfrost og oft líka á daginn með
kafalds-kófi, en hægur og bjartviðri á milli,
og tók upp snjóinn á daginn. Nokkru eftir
sumarmál gerði snögglegt norðan-áhlaup
með byl; þá fórst Krintján i Látraröst.
Hinn 14. mai var svo mikið kafald, að
varla var fært bæja milli, og tók sumstað-
ar fyrir jörð, og komn ekki upp aftur
snöp fyr en eftir 5 daga, þar sem mestur
var snjórinn i bygð. Síðan hefir ekki
komið kafald til muna.
Fyrstu 6 vikur sumarsins var ekki frost-
laust að nóttu nema 9 nætur alis, enda
alveg gróðurlaust fram til fardaga, og útlit
var að skepnur mundu alveg visna upp
af gróðurleysinu.
Ekki er þó gert orð á miklum vanhöld-
um á skepnum, þó að margir væri heylaus-
ir. Margir fengu lika til láns rúg og mjöl
í verzlunum, og gerðu kaupmenn það með
sóma, að hjálpa mönnum um það. Ella
mundu snmir hafa mist töluvert af skepn-
um sinum. Svo befir það líka hjálpað, að
skepnur hafa verið í góðum boldum á sum-
armálum. Þó munu sumir bafa mist nokk-
uð af unglömbum, og' einn bóndi, Jón
Jóhannesson i Hraunfirði í Helgafellssveit,
misti 4o fjár í sjóinn.
Siðan i fardögum hefir verið sunnanátt,
oft hvöss, og rigning mikil.
Thorefélagsskipin. Tryggvi kong-
ur (E. Níelsen) fór i gær héðan áleiðis til
útlanda 19. þ. m., og með honum 20 far-
þegar, þar á meðal: prestarnir Jóhann
Þorkelsson, Jón Helgason docent og Sig-
tryggur Guðlaugsson, prestaskólakand. Björn
Stefánsson, allir áleiðis til Finnlands;
frú Flora Zimsen; frú Anna Stephensen og
frk. Maria Stephensen frá Akureyri; Mr.
Newman (Marconi) og frú hans (Inga f.
Zoéga); danskur dýralæknir Corneliussen;
danskur lautinant Johnsen; fröken Júlíana
Sigurðardóttir; ennfremur 8 útl. sjómenn, 5
franskir, 2 enskir, 1 norskur.
S/s Perwie (F. Clausen) kom hingað i
nótt frá Khöfn og Leith, fullfermd vörum
og með 6 farþega, þar á meðal: Egill
Jacobsen verzlunarstj. og unnusta hans frk.
Sigríður Zoéga; fröken Áslaug Johnsen o.fl.
Skipið fer héðan til vesturlands 22. júní.
Póstgufuskip Laura (Aasberg) hélt
á stað í gærkveldi til Austfjarða og út-
landa. Margt sjómanna og annars kaupa-
fólks á henni austur.
Erlend tíðindi.
i.
Markonisk. 19/6
Ostjórnarliði af Oyðingakyni fleygði
sprengikúlu í rniðja þvögu nianna í
Kristlíkatna-göngu í bænum Bielostok á
Póllandi, og fengu margir bana eða sár.
Því fylgdu hrannv/g á Gyðingum; þeir
voru vegnir eða særðir hundruðum sanmn.
Síðari fróttir herma, að bardagi haldi
áfram í Bielostok. Byltingarmenn af
Gyðingakyni halda uppi látlausri skot-
hríð á stjórnarhíbýlin og er þar brugðið
fyrir sig herstjórnarlögum. Mannfall er
ókunnugt um, en i sjúkrahúsunum ein-
göngu eru 100 lík og 200 sárra manna.
Byltingarmenn róðust í gær á löggæzlu-
riðla í Varsjá og særðu 7 metin.
Frózt hefir, að Rússakeisari hafi
frestað fundum ríkisþingsins til 28. júní
og leggur því næst á stað í skemtiferð
sjóleiðis. Því er lcviðið, að bregða nntni
til mannskæðrar ófriðar-viðureignar, er
hann er farinn.
Voðaleg sprenging var á Atlanzhafs-
farþegaskipinu Haverford í Liverpool.
Þar létust 8 menn og 40 urðu sárir.
Það bar til skamt frá Tantah á Egipta-
landi, að ráðist var á nokkra brezka
liðsforingja af þorpsbúum. Einn liðs-
foringinn féll og 2 urðu sárir.
í Asaba í Nigritíu (Afriku) gerðu
þarlendir ntenn alvarlega uppreisn;
brezkur embættismaður myrtur og særðir
2 brezkir liðsforingjar.
Wellmann norðurheimskautsfari er
lagður á stað frá París norður á Spíts-
bergen; þaðan leggur hatin upp í heim-
skautsigling sína á loftfari.
Japanskt flutningaskip, OyotomeMaru,
rakst á sprengidufl í Kóruhafi og sökk.
Þar tyndust 50 manns.
II.
Jarðarför Hiuriks Ibsens 1. þ. m.
í Kristjaníu var hin veglegasta og fjöl-
mennasta, sem þar eru dæmi til. Þar
var Hákon konungur viðstaddur og f[est
landsiris stórmenuí, sendiherrar annarra
ríkja og sérstakir fulltrúar frá sumum
erlendum þjóðhöfðingjum. Christofer
Bruun prestur flutti líkræðutia í kirk-
junni.
Konungs krýningin í Niðar-
ósi á föstudaginn (22.) verður ákaflega
fjölsótt. Von á meðal annars 14,000
Norðmönnum frá Ameríku. Vilhjálmur
keisari sendir Hinrik bróður sinn þang-
að í sinnstað, og Friðrik áttundi Harald
son sinn. Þóknun fyrir aðjmega horfa út
um glugga þar sem sést til krýningar-
skrúðgöngu konungshjónanna var kom-
in upp í 360 kr.
Hann hét Mateo Morales, illvirkinn,
sem banatilræðið voðalega veitti kon-
ungshjónunum spænsku á brúðkaups-
degi þeirra. Hann náðist á leið heitn
til sín í Barcelona í þorpi ttokkru skamt
frá Madrid. Lögregla þóttist/þekkja
hann á lýsingu á honum, og tók hann
höndum. Hann lézt fús að fara með á
lögregluskrifstofu, en dró að lítilli stundu
liðinni marghleypu upp úr vasanum og
skaut lögregluþjóninn til bana, en síðan
sjálfan sig. Húsráðandi þar, er hann
hafði hafst við í Madrid, bar kensl á
líkið. Eftir illvirkið unnið rakst Morals
á vinnukonu í stiganum, er hann gekk
burt, og spurði hana í grandleysi,
hvað væri um að vera. Hún sagði hon-
um það. En það hrakmenríi og bófi!
anzaði hann. Hamingjan gæfi að hann
næðist!
Morðsamsærið á að hafa verið sett á
stofn í Lundúnum. Eftir morðið á kou-
ungshjónunum átti að rísa upp bylting
í 17 helztu borgum á Spáni og hafði
verið búið að tilnefna menn í bráða-
birgðastjórn; skyldi lýsa ríkið þjóðveldi.
Tilræðið jók mjög á lýðhylli konungs-
hjónanna. Drotningin unga ekki enn
jafngóð á skapsmunum eftir.
Þeir höfðu verið miklu fleiri en fyrst
fróttist, er bana liðu við tilræðið, 35—
40 alls. En um 70 meiddust.
Jarðarför
Þorláks heit. Guðmundssonar f. alþm.
fór fram í fyrra dag hór frá dómkirk-
junni. Síra Olafur Olafsson fríkirkju-
prestur flutti húskveðju, en dómkirkju-
prestur síra Jóhann Þorkelsson talaði í
kirkjunni.
Þessi ljóð hefir Steingr. Thorsteinsson-
ort eftir hann, í grafskrift:
Hér borinn til hvílunnar síðustu er sá,
Er sannur var ættjarðar niður,
Því burði hann átti því berginu frá,
Sem bezt vora þjóðgæfu styður.
Sem viður úr hrjóstruga vanginum nær
Að vaxa til signaðra vænda,
Oft sjálfmentun óstudd og einslega grær
Við íshret í stéttinni bænda.
Það reyndist á honum : af hyggjunni sjálfs
Að hafði’ hann hvað drjúgast sig mannað,
Og þorinn og snjallur á þingunum máls
Hann það lét í verkinu sannað.
Og þai var ei vitsmuna afburður einn,
Hann átti og luudina þótta,
Og viljinn var sterkur og vammlaus og
hreinn,
Hann vildi’ hið góða og rótta.
Hið forna hann rækti með festu og trygð,
í fari hans duldist það eigi;
Hið nýja hann rækti með dáðum og dygð
Og djörfung á nútíðar vegi.
Þá hljómar: »Fram, bændur ogbúendalið!
Og bregðist ei framtíðarvonum«,
O, lifi þá andinn og lengst haldist við,
Sem lifði og starfaði’ í honum!
Og vel sé þér, skrautlausa, skrumlausa
sál,
Sem skeyttir um fordild ei neina;
Því meiri þinn heiður, sem minna var
prjál,
Og minuing því ártu svo hreina.
Og heiðra þá minning, þú lýður vors
lands!
Hann langaði’ að bættist þin þörfin,
Og signuð só hvílan hins sanndyggva
manns,
Er sefur hér lífs eftir störfin!
Stgr. Th.
Leiðangursíjóð
nefnist ljóðaflokkur, sem síra Valde-
mar Briem hefir ort út af mannskaðan-
um mikla í vor og eru prentuð í síðasta
tbl. Nýja kirkjublaðsins, en sórprentun
af þeitn seld til ágóða fyrir mannskaða-
samskotin.
Það slys varð
hér í bæ í fyrra dag, að 16 vetra
piltur druknaði, er hann var að
fara í sjó, niðan undan Seli. Piltur-
inn var syndur vel, en hafði fengið
sinadrátt. Hafði verið óhraustur und-
ir. Bróðir hans var með honum yngri
og þróttminni. Haun gat enga björg
veitt.
Halldór Daníelsson
bæjarfógeti er væntanlegur heim aft-
ur úr utanför BÍnni 15. júlí, á Tryggva
kongi. Hann kvað hafa fengið góða
heilsustyrking og er nú á ferð um Sví-
þjóð og Norveg sér til frekari hressing-
ar. Ætlaði þá til Jótlands og því
næst á stað frá Khöfn hingað 6. júlí.