Ísafold - 23.06.1906, Síða 2

Ísafold - 23.06.1906, Síða 2
162 í S AFOLD Erlend tíðindi. Markonisk. 21/6 Kyrt orðið aftur í Bielostok. En nýjar róstur í bæjunum þar í kring. Fimtíu Gyðingar vor brytjaðir niður í Starosheki. Helziu Gyðingar á þing inu í Pétursborg hafa símritað til Lundúna ákafa áskorun um að skor- ist sé í málið þaðan til þess að fyrir- girða tilstofnuð almenn hrannvíg á Gyðingum ; þessi í Bielostok væri ber- sýnilega uppbaf þeirra. Prinzinn og prinzessan af Wales eru farin á stað til þess að vera við kon- ungskrýninguna í Niðarósi. Noregskonungur og drotning héldu hátíðlega krýningar-innreið í Niðarós. Hátíðarglaumur um land alt. Farþegalest á vesturbrautinni í Kína bar út af vegarspöngunum. j?ar fengu 100 manns bana eða meiðsl. ' Landbúnaðarnefndin í fulltrúadeild- inni i Washington er að bera sig sam- an um að breyta kjötsöluumsjónar- frumvarpinu eftir óskum Boosevelts forseta. Síðari frétt segir, að þingdeild- in hafi fallist á þær breytingar. Svo er frá skýrt í stjórnar nafni, að 23 menn hafi bana beðið af sprengi- kúlu-tilræðinu við konungshjónin í Madrid og 99 sárir eða meiddir. Kolanámuverkfallsmenn í Ohio hafa komist að samningum við námueigend- ur og 35,000 tekið til að vinna aftur. Til að glæða vináttusamdráttinn með Bretum og jpjóðverjum komu 50 þýzkir ritstjórar til Englands í dag kynnisför og fá hinar höfðinglegustu viðtökur. Kappsigling var haldin leiðina milli Dover á Englandi og Helgolands, og var þar fyrir að vinna verðlaunabikar keisarans. Ensk skúta, Betty, varð hlutskörpust. Þingmannaheimboðið. Dagskrá um viðtökurnar og dvölina í Danmörku hafa þeir samið og birt 15. þ. m. með ráði konungs, ráðuneytis- forsetinn og þingforsetarnir (fólksþings og landsþings). |>að er búist við alþingismönnum til Khafnar 18. júlí. Daginn eftir á að fagna þeim hátíðlega í viðhafnarsal háskólans. f>að gera ráðgjafarnir og ríkisþingmennirnir. f>ar verður kon- ungur viðstaddur. Um kveldið sama dag veita rikisþingmenn þeim kveld- verð með sér í þing-garðinum. (Aukaþingseta ríkisþingsins verður 16, —23. júlí.) Daginn þar eftir, föstudag 20. júlí, býður konungur þingmönnum til dóg- urðar hjá sér í sumarhöll sinni, Fredens- borg. Laugardaginn 21. verður haldið með þá til Óðinsvé. f>ar er gripasýning mikil í þann mund. f>ar veitir bæjar- stjórnin í Óðinsvé þeim dögurð, en búnaðarfélög miðdegisveizlu. Sunnudaginn, 22., heldur ríkisþingið þeim miðdegisveizlu í Oddfellow-höll- inni í Khöfn, og fer með þá um kveldið norður í Skodsborg við Eyrarsund. Mánudaginn verður farið með þá um Sjáland sunnanvert og þeim sýnd sér staklega samvinnu-rjómabúin þar. Lýð- samkoma mikil um kveldið hjá Kage eða í skóginum hjá Billesborg. f>aðaD haldið til Kros8eyrar og síðan vestur um Beltin til Kolding. f>á er haldið til Askov og Bkoðaður lýðháskóliun þar, og hinar og þessar verksmiðjur eða iðnaðarstofnanir þar í grend. f>á vestur í Esbjerg. f>ar verða þeim sýnd hin miklu útflutning8látrunai'hús og höfnin m. m. f>aðan er förinni heitið norður á Jótlandsheiðar að skoða ræktun þeirra. f>á verður og komið við í Vé björgum. Frá Árósum verður haldið aftur til Khafnar föstudag 27. júlí að morgni. f>á veitir Oddfellowreglan þingœönnum dögurð í höll sinni, og AtlaDzhafseyjafélagsstjórnin miðdegis- veizlu á Skydebanen. Laugardaginn 28. á að fara með þá til Hróarskeldu, að sýna þeim dóm- kirkjuna þar, um kvöldið heldur kon- ungur þeim veizlu í aðseturshöll sinni Amalienborg. Síðustu veizluna heldur þeim bæjar- stjórn Khafnar sunnudag 29. júlí. Mánudaginn 30. létta þeir akkerum hingað á Ieið. — f>eir eiga þá að vera orðnir óneyddir til næsta bæjar, sem kallað er. Kennaraheimsóknin. Um ferö'ina þá, þessara 50 kennara frá Norvegi, Svíþjóð og Danmörku, karla og kvenna, er Isafold skrifað (fráNorvegi) 12. þ. m., að þeir byrji ferðina frá Kristjáns- sandi 7. júlí, komi við í Færeyjum og Vestmanneyjum, og hingað til Rvíkur á að gizka 15.—16. júlí. Héðan ætla þeir sjóveg upp í Borgarnes, þá upp að Reykholti og ef til vill að Gilsbakka, þaðan að Þingvöllum, þá austur að Geysi og Gullfossi og síðan til Reykjavíkur. Frá Reykjavík er búist við að einhverir bregði sér austur á Rangárvelli, að sjá Hlíðarenda og Bergþói’shvol; en aðrir verði kyrrir á meðan í Reykjavík, 5--6 daga. Héðan halda þeir aftur 29. júlí og koma þá við í Leith. f>eir g e t a verið á nóttum í skipinu hér á höfninni þann tima, sem þeir standa við hér í bætmm. En engin mynd væri á að láta þá gera það. Bæ- jarmenn ættu endilega að skifta þeim á milli síti til hysingar þá fáu daga, sem þeir standa hér við. Þá munar ekkert um það, og þeir m e g a ekki rýra gest- risnisorð þjóðarinriar með því að legg- jast það undir hofuð. Gestir þessir verða langflestir Norðmenn; og er það kunn- ugra en frá þurfi að segja, hve þar, í Norvegi, er hér um bil hver íslendingur borinn á höndum sér, er þar ber að garði. Danir og Svíar eru oss og eigi síður velkomnir. Vér kunnum vel að gera greinarmun á stjórnmálafæð, er á bryddir stundum við suma þá, er með völdin fara eða hafa farið í Khöfu, os- vinsemdarþeli til þjóðarirtnar dönsku. Það höfum vér og alla tíð sýnt, er til- efni hefir verið, t. d. í stúdentaleiðangr- inum, búnaðarkandídataheimsókninni í fyrra o. s. frv. Háskólapróf. Tveir landar hafa í þ. mán. lokið em- bættisprófi við Khafnarháskóla, báðir í lögttm: Magnús Sigurðsson (Magnús- sonar í Bráðræði) með mjög góðri I. eink., og Bjarni Þ. Johnson með II. eink. Konungiir yfir íslaiidi. Khafnarblað eitt, miður merkilegt raunar (Kl. 12), kveðst hafa heyrt, að Friðrik konungur ætli sér að gæða þingmönnum vorum á því í sumar, að bæta íslandi inn í konungstitilínn — kalla sig konung yfir Danmörku og íslandi o. s. frv. J>etta á að hafa verið afráðið og samþykt á ríkisráðs- fundi, og haldið, að annað eins dálæti mundi landinn fá alls ekki staðist. Konungur á að hafa komið sjálfur upp með þetta. — Dýrt er fréttin þessi ekki seljandi að svo stöddu. Fórn Abrahams. í Frh I. Hjörtu fundarmannanna börðust harðara en þau áttu að sér, eldur brann úr augum gamalmennanna og unglingarnir stundu við með rámri röddu. — Já, já! æptu þeir. Alt þetta hefir borið við áður og getur borið við enn. — En einkum og sér í lagi fór ræðu- maður mörgum orðum um Júdas Makkabeus: Júdas hamar. Öll hin hjartgróna bifiíutrú hinnar litlu lýðveldisþjóðar komst í logandi bál. FundarmenD komust allir á loft. þeir köstuðu fram út í bláinn máls- greínum og sundurlausum köflum úr bænum sínum, og þarna í bókinni sem pilturinn hélt á — það var öll- um þeim bersýnilegt — mátti lesa sögu sjálfra þeirra. Prestaskólastú- dentinn komst i trúaruppnám, fléttaði sigurfyrirboðum inn í feigðarspádóma og dró áheyreDdurna með sér burtu frá uppgjafarhug til eldlegs hugrekkis, og kom þeim til að gleyma þrautum sínum og magnleysi. Hinum harð- leiknu og köldu örlögum var sem sóp- að burt; allir trúðu, af því að allir vonuðu af Dýju. Og er hann hafði lokið ræðu sinni, þyrptust þeir utan um hann til að taka í höndina á hon- um. Enn höfðu Assyríumenn og Babíloníu eigi fótum troðið Júdaland, enn gat þjóðin reist sig við af uýju; það sem bognað hafði gat orðið beint aftur. Das war schön! tautaði Zimm- er og tárin runnu niður eftir kinnun- um á honum. Til orrustu vinir, til sigurs! vorwárts, immer vor- Wárts! (áfram, ávalt áfram!). — Bíðið við, sagði prestaskólastú- dentinn. Nú er eftir það sem síðast er og mikilverðast. Vér erum hing- að komnir til þess að dæma svikara, sem er hér á meðal vor. Nú sló í dauðaþögn; fundarmenn hengdu höfuðin mður, Simeon Flick talaði áfram og herti jafnframt að sér til að veita óþroBkaðri raust sinni há- tíðlegan blæ. Engir aðrir en öldungar safnaðar- ins vÍ8su, hvar fallbyssurnar 8 voru geymdar. Fjendur vorir hafa náð þeim. Svikræði! æpti hann og sló ritnmgunni hart aftur. — Svikræði! tautuðu fundarmenn. — Slíkt tilvik sem þetta getur haft áhrif á gervallan hernaðinn; það verður að hegna fyrir það svo, að slíkt verði eigi leikið aftur. — Hegna! sögðu fundarmenn, eins og þeir hefðu aliir einn munn. — J>ess vegna bið eg yður sam kvæmt valdi þess embættis, sem eg á brátt að vígjast til, að leggja hægri hönd á heilaga ritningu drottins, með þeim alvarlegum ásetningi, að halda eið yðvarn og heimta vægðarlausa hefnd. Bönd frændseminnar mega engin áhrif hafa; ást og vinátta eigi heldur. Ef sonur kemst að því, að faðir hans hafi gert það, verður hann að lífláta hann með eiginni hendi og þvo af í blóði aökudólgsins þá smán, að vera í ætt við svikara. Hafi sonur gert það, þá skal faðir hans taka hann af lífi, og glæpamaðurinn má þakka guði almátt- ugum fyrir, að vér eigum ekki kost á að gera hegningu hans harðari. Hafi bróðir manns gert það, þá deyi hann, og bölfuð sé minning hans að eilífu. Verði það. AmeD. |>ví að næst guði á himnum er jarðnesk fósturjörð vor það sem oss er helgast. Sjáið: hér, hér er ritningÍD; gangi nú allir fram hver um sig og vinni eiðinn. Hrifnir af ákafanum í orðum pilts- ins og skjálfandi af helgum móð sem hrísla í stormi, gengu nú allir nær til að gera það sem hann hafði fyrir þá lagt. Fyrat kom Piet Miiller skjögrandi, en prestaskólastúdentinn hratt fram- réttri hönd hans frá og mælti: — Eg veit ekkert, en ekki skalt þú sverja; það gæti verið meinsæri. f>á fór gamli maðurÍDn loks að skilja og féll til jarðar yfirkominn. En fund- armenn létu sem þeir sæju hann eigí. Hatrið gerði þá harðlynda; þeir gengu á sig krók til þess að þurfa eigi að koma við hann. — Faðir mÍDn, Rúben og Davíð l kallaði stúdentinn, er hann hafði svarið sjálfur. Faðir hans og bræður sóru, styð- jandi tveim fingrum á biblíuna, og á eftir þeim komu allir hinir. Abraham van der Nath gekk fram, er að honum kom, og sór sama hátíð- legan eiðinn sem binir. Hann hafði að vísu einu sinni heitið sjálfum sér því, að hann skyldi eigi úthella manns- blóði framar, en þetta var annað, langtum meira; og andstygð hans var svo mikil, að hann fór langan bug fram hjá Piet Múller, sem lá á grúfu og var að sjá sem dauður væri. — Ættjörðin mín! mælti hann, frá sér numinn; þigðu heit mitt, og eg bið þess, að nafn mitt og sonar míns sé bölfað, ef eg rýf eiðinn. Honum hitnaði um hjartarætur, er hann bætti þessu við.og hann leit glaður kringum sig á hópinn, þar sem orðum. hans var tekið með ánægjuklið. — Og de Vlies? spurði einhver, er hinn síða8ti hafði svarið. — Vér höfum hugsað um hann,. sagði Erasmus Flick, sem stóð þar fagnandi yfir frammistöðu sonar síns. Synir mínir leggja á stað annað kveld. — Hví eigi undir eins? Hann getur þurft bráðlega að halda á fréttinni um -----um fallbyssurnar. — Hina nóttina verður eflauat tungls- Ijós, og þá er hægra að laumast fram hjá næturvörðum þeirra rauðálfanna;, þeir ugga þá ekki að sér. Fundarmenn kinkuðu kolli til sam- þykkis og tókust allir í hendur að skilnaði. Enginn skifti sér af Piet Múller, og. þegar þeir skildu, sagði prestaskólastú- dentinu: — Gætum þe8s, að muna vel. — Vér skulum engu gleyma. Raust van der Naths kvað hæst við og hann krepti fastast hnefaön, er þeir sögðu þetta. En gamli Múller Iá eftir raeð and- litið á grúfu. Hesturinn hans beið nokkra stund og hneggjaði, þegar hin- ir fóru burt. Siðan sneri hann við höfðinu forviða, dró tjóðurhælinn upp, gekk að hinum einmana manni og^ rak flipann í herðar honum gætilega. það gerði hann nokkrum sinnum, þar til er húsbóndinn raknaði úr roti og leit ruglaður í kring um sig. — f>eir halda, að eg — — að eg hafi gert það! mælti hann og fálmaði út í loftið, utan við sig. Hann fann biblíuna, sem prestaskólastúdentinn hafði lagt hjá höfðinu á honum. J>á mundi hann eftir öllu og grét eins og barn. Hesturinn hneggjaði og rak snopp- una í hann. Piet Múller stóð upp, baslaðist nauðu- lega upp í hnakkinn og reið hsim- leiðis. Hann kom heim með morgn- inum og gekk inn, með biblíuna í hend- inni. Hann reisti stiga við loftsgatið og skreið upp á loftið. Hann leitaði lengi í reiðtýgjadóti sínu, þangað til hann fann langa og mjóa ól. |>á brosti hann einkennilega, þótt tárin rynnu niður magrar kinnarnar á hon- um.------- Fyrra hlut dagsins átti tengdadótt ir hans erindi upp á loftið, og þar fann hún tengdaföður sinn stirðan og kaldan með snöru um hálsinn, en opna biblíuna fyrir framan hann. Blöðin

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.