Ísafold - 07.07.1906, Blaðsíða 3

Ísafold - 07.07.1906, Blaðsíða 3
IS AFOLD 174 Mannalát. H e1g a S o f f í a Vigfúsdóttir frá Asi í Holtum andaöist eftir holskurö á Landakotsspítala hér í bænum 24. f. m. Hún var dóttir hinna nafnkunnu hjóna Vigfúsar Eiríkssonar dannebrogsmanns í Asi og Katrínar Bjarnadóttur frá Sand- hólaferju, en systir Guðrúnar konu Páls Stefánssonar búfræðings í Ási, er nú er ein á lx'fi af 10 systkinum. — Hin láttia varð fullra 47 ára að aldri og ól hún allan sinn aldur ógift í Ási. Eigi að síður munu þeir margir, er nú sakna hennar og minnast hennar góðu mann- kosta, því hún var fyrirmynd annarra kvenna að háttpryði, stillingu og grand- varleik í orði og verki. P. Hinn mikla mannskaðadag 7. apríl þ. á. druknaði ásamt fl. á skipinu Sophia Wheatley G í s 1 i H a 11 s s o n úr Reykjavík, 35 ára, kominn af merk- um bændaættum í Gullbr.sýslu, og voru þeir systkinasynir Guðm. læknir Hannes- son og Gísli heitinn, en hann var fóstur- son Guðm. bónda Guðmundssonar á Áuðnum og bróðursouur konu hans. Kvæntur var hann fyrir nokkrum árum Sigríði Ólafsdóttur, og áttu' þau ,eitt barn á lífi. — Gísli heitinn Hallsson var með ötulustu sjómönnum við Faxaflóa, sórstaklega á opnum skipum, og stund- aði hann sjó á Austfjörðum mörg ár með miklum vaskleik; var þar talinn einhver með allra beztu formönnum og fiskimönnum, sem þangað hafa komið af Suðurlandi, og er hans víst víða þar getið með virðingu og söknuði. Hann var stiltur maður og háttprúður, og unnu honum allir, er honum kyntust. Kona hans, barn, fósturforeldrar, aldrað- ur faðir, bræður og vinir hins látna sakna lians mikið, sakir mannkosta hans, atorku og atgervi. Einn af vinum hins látna. Kristín Björnsdóttir ekkja Gísla Sigui-ðssonar frá Neðra-Ási í Skaga- firði andaðist í gær úr taugaveiki á heimili sonar síns Sigurbjarnar Á. Gísla- sonar kandidats, eftir 2 ára dvöl þar. Hún varð 59 ára gömul. Auk þessa sonar sins á hún 3 dætur á lífi: Sigur- línu, sem er gift kona á Ingveldarstöð- um á Reykjaströnd, Lilju, rjómabústýru við Kálfárbúið í Eystrihrepp, og Sigur- björgu hjá bróður sínum hór í Iivík, báðar ógiftar. Jarðarförin fer fram laugard. 14. þ. m. og byrjar kl. 11 í Þingholtstræti 11. Marconiskeyti heldur ófréttnæm þessa viku. Sagt frá samblæstri 16 tyrkneskra herfylkja í Yernen og að þau hafi gefist upp fyrir kastalaskothríð eftir mikið mann- fall. Lögregla liafði fundið sprengikúlna verksmiðju í Moskva og vopnabúr. Tuttugu manns fangelsaðir fyrir það. Fyrir kvitt um áformuð mergðarvíg á lögreglumönnum í Varsjá var þeim öllum komið burt þaðan og fótgöngu- lið látið hafa þar löggæzlu á hendi í þeirra stað. Mikill stormur gerður á fulltrúa- þinginu í Pétursborg á miðvikudaginn út af því, að ráðgjafarnir sögðu, að morðingja væri sjálfsagt að láta sæta líflátshegning. Skæð kólera í Filippseyjum. Eldur eyddi Mikaelskirkju í Ham- borg og mörgum húsum. Fjórir menn biðu bana og margir fengu meiðsl. Meiri hluta embættismanna í ný- lenduráðaneytinu í Berlín á að reka úr embætti fyrir uppljóstun stjórnar- leyndarmála. Keisarinn er lagður á stað frá Kiel til Norvegs. Strand. þýzkur botnvörpungur strandaði ný- lega á Skeiðarársandi. Menn björguð- ust allir, 10 á land beint, en 4 á ann- an botnvörpung, sem misti 4 menn af sér í þeirri björgun. Páll bóndi Ólafs- son frá Höfðabrekku kom með skip- brotsmennina 10 hingað á sunnudag- inn. Landlækniseml>ættið er að losna, fyrir uppgjöf landlækn- is dr. J. Jónassen, sem er orðinn tölu- vert ellihrumur. Emb ættispr ófi í lögfræði við Khafnarháskóla hefir lokið nýlega Einar Arnórsson með mjög góðri I. einkunn. Læknaskólinn. Fyrri hluta embættisprófs leystu þeir af hendi þar seint í f. m. Guðmundur Tómasson með I. eink. og Valdimar Steffensen með II. betri aðaleinkunn. 858'"' Vegxxa flutnings á prentvélum Isafoldarprentsniiðju kom ísafold ekki út á miðvikudaginn 4. þ. m. Aðkonxandi eru hér í hæ um þessar mundir meðal annarra þeir Hjörleifur pró- fastur Einarsson frá Undirfelli (sér til heilsuhótar) með frú sinni, sira Hatthías Jochumsson og Júlíus læknir Halldórsson með sinni fx-ú. Vel er gefið íyrir vorull í Liverpool. F e r ii i s o 1 í a hjá Jes Zimsen. Óskilahestur er nýlega fundinn í Krisuvíkurfjöllum, rauðtoppóttur að lit, skáhlesóttur, sokkóttur og hringeygður á öðru auga. Vitja má til undirritaðs gegn því að horga þessa auglýsingu og áfallinn kostnað. Reykjavik 7. júli 1906. Hjörtur Fjeldsted. Lambskinn kaupir H. P. Duus. Frem fæst í bókverzlun ísafoldarpr.sm. Passíusálniar fást altaf í bókverzlun ísafoldarpr.sm. Verðið er I kr-, 1,50 og 2 kr- Ostar eru beztir í verzlun Einars Árnasonar Telefón 49. Vorull livíta og mislita, saltfisk, sundmaga og aðrar ísl. vörur kaupir hæsta verði Æ. <3*. %)uus. Útdráttur á Lotteríseðlum er út- gefnir voru af nefnd þeirri er stóð fyr- ir tombóluhaldi til ágóða fyrir: þurf- andi eftirlifendur sjódruknaðra og til bjargráða, hefir farið fram í dag undir umsjón lögreglustjóra Páls Eiuarsson. ar og hafa eftirfarandi númer hlotið munina, sem um var dregið. Nr. 1079 myndina Kvöld við Rvík, — 47 do. St.Paul að stranda — 572 do. Hekla, — 801 Borðstofuskáp. Munirnir verða afhentir réttum hlut- aðeigendum í verzluninni Edinborg. Reykjavík 3. júlí 1906. Ásgeir Sigurðsson form. nefndarinDar. Á g' æ 11 margarine fæst í verzlun Kristins Magnússonar. L j á b 1 ö ð með fílnum, 3 lengdir. Brýni. Brún- spónn o. s. frv. í verzlun H. P. Duus. Meöan eg er erSendis, gegnir embættisverkum, sem fyrir kunna að koma, síra Ingvar Nikulás- son Laugaveg 48. Samkvæmt álykt- un á safnaðarfundi verður ekki mess- að í Fríkirkjunni, meðan eg er í burtu. — Á morgun verður messað á venju- legum tíma. Reykjavík 7. júlí 1906. Ólafur Ólafssou. Rokkar nýkomnir í vei'zlun H. P. Duus. Siðari ársfundur Reykjavíkurdeildar Bókmentafél. verður haldinn í Iðnaðarmannahúsinu (í salnum uppi á Iofti) mánudaginn 9. þ. mán. kl. 5l/2 síðdegis. Rvík, 5. júlí 1906. Kristján Jónsson (p. t. forseti). Vorul 1 kaupir Jes Zimsen. Klæðaverksm. Alatoss tekur að sér: að kemba ull, spinna og tvinna, að búa til tvíbreið fataefni úr ull, að þæfa heima-ofin einbreið vaðmál, lóskera og pressa, að lita vaðmál, band, ull, sokka, sjöl ofl. ÁLAFOSS kembir ull hvers eiganda út af fyrir sig, vinnur alls ekki úr tuskum, vinnur einungis sterk fataefni úr ísk ull, notar einungis dýra og haldgóða liti, gerir sér ant um að leysa vinnuna fljótt af hetrdi, vinnur fyrir tiltölulega mjög lág vinnulaun. Utanáskrift: Álafoss pr. Reykjavík. Cacaopulver er bezt hjá Jes Zimsen. Hðtee STJtRNl ★ ★ STJERNI * * w riargars m # t, er aftið óen SeósL B L a m b s k i n u er bezt að selja Jes Zimsen, Reykjavík. Konan mín hafði hálft ár þjáðst af taugaveiklun, sem einkum kom fram í örðugleikum í göngu, máttleysi og þess konar. Eftir að hafa brúkað 2 flöskur af Waldemars Petersens ekta KÍDa-Lífs-Elixfr fór henni að batna og af því að hún hefir haldið áfram að neyta lyfsins, er hún nú al- bata. Borde pr. Herning 13. sept 1904. J. Ejby. Kína-Lífs-Elixír er því að eins ekta, að á einkennismiðauum aé vörumerkið, Kínverji með glas í hendi og nafn verksmiðjueigandans: Waldemar Pet- ersen, Frederikshavn — Kóbenhavn, og sömuleiðis innsiglið i grænu lakki á flöskustútnum. Hafið ávalt flösku við hendina innan og utan lieimili8. Fæst hvarvetna á 2 kr. flaBkau. hjá Jes Zimsen. Ritstjóri B.iörn Jónsson. Isafoldarprentsmiðja.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.