Ísafold - 03.10.1906, Page 2
254
ÍS AFOLD
lausu stórum aukinni útgjalrlabyrði á
áður beygðar og þróttlitlar herðar al-
þyðu þessa lands. En þar mun þó
vera sætt súru blandið: samvizkan í
ekki sem allra beztu standi.
En hvernig ættu þeir samt, úr því
þeir gerðu sig ráðgjafanum samseka í
fyrra um ritsímahneykslið, börðu það
fram með honum þvert ofan í eindreg-
inn þjóðarvilja, — hvernig ættu þeir
nú að bregðast honum og láta sig vanta
í tilstofnað hundraðsblót til að mykja
goðagremi kolmórauðrar samvizku ?
Reykjavíkur-annáll.
Aökomandi hafa verið hér þessa langt að
sira Helgi Arnason frá Óiafsvík, sira Skúli
Skúlason í Odda, Eyólfur oddviti i Hvammi
á Landi, þeir bræðnr Sigurður i Helli og
Yigfús i Haga Gnðmundssynir, Olafur í
Lindarbæ, m. fl.
Dánir engir frá því síðast.
Hjúskapur. Ágúst Bjarnason mag. art. og
yngismær Sigriðnr (Jónsdóttir) Ólafsson
25. sept. — borgaraleg hjónavigsia.
Bergur Einarsson sútari og yngism. Anna
Eiriksdóttir (Lindarg. 34) 30. s. m.
Ketill Þorsteinsson smiður og ekkja Krist-
laug Gunnlaugsd. (Helgast.) 29. s. m.
Stefán Guðnason skósmiður og yngism.
Yigdis Sæmnndsd. (Njálsg. 53) 29. s. m.
Kaupskipafregn. Gufuskip Isafold kom i
gærmorgun frá Khöfn og Yestmanneyjnm
til Brydes-verzlnnar.
Ritsímavigsla og ritsíma-át fór fram hér
laugardag 29. f. mán. Ritsimastöðin (þ.
e. pósthúsið) og grindurnar þar á móti
m. fl. var blómum skrýtt, og veifum girtur
pallurinn upp yfir pósthúsalmenningnum.
f>að stóð ráðgjafinn uppi og Kristján Þor-
grimsson ásamtýmsu stórmenni hæjarins öðru_
Ráðgjafinn flutti tölu, og lýsti landsimann
opinn og frjálsan til almenningsnota upp frá
þeirri stundu. Kvaðst hafa símritað kon-
ungi það og fengið náðarsamlegt svar hans
þá samstundis. Guðm. Guðmundsson skáld
hafði ort, kvæði, óvenju-lélegt þó og hon-
nm ólikt; það var samt sungið. Allmikill
mannfjöldi horfði og hlustaði á.
Þá var haft sam-át um kveldið í hótel
Reykjavik. Þar var nær allur emhættalýður
bæjarins (nema yfirdómarar og hæjarfógeti),
skrifstofulið ráðgjafans og ritsima, hanka-
liðið alt með tölu (mun hafa verið), all-
mikið af verzlunarlýð bæjarins og ýmsir
aðrir, alls um 100 manns. Stjdrnarand-
stæðingar engir þó. Tölur fluttu þar: fyrir
kongi Jnlius f. amtm. (sömu tölu og hann
er vanur), fyrir íslandi Halldór Jónsson,
fyrir ráðgjafa Þórhallur lektor, fyrir For-
herg Guðm. Björnsson, fyrir Fálka-mönnum
(sem hoðnir voru nokkrir) D. Thomsen
konsúll. En vngin rœða fyrir ritsíman-
um. Og sungið var þar aftur kvæði
G. G.; annað ekki. — Þegar hálfstaðið var
upp frá horðnm, reis upp »Sannsöglis«-rit-
stjórinn og flutti langt eriudi, en ekki þar
eftir snjalt, kreisti kjúkur að því sem h o n-
u m fanst sjálfum vera fyndið hjá sér, en
engum öðrum, — þeir sátu bnipnir og þoldu
önn fyrir manninn, þvi að svo miklu leyti
sem samhengi beyrðist í því sem hann
sagði, átti það að vera skammir um stjórn-
arandstæðinga, og það kunnu þeir ekki við
þ á, jafnvel hinir ákveðnustu stjórnarfylgi-
fiskar; jafnvel »húsbóndinn« sjálfur, ráð-
gjafinn, gerði tilraun til að klippa sundur
lesturinn i miðjum klíðum með því að stinga
npp á að láta e i 11 h v a ð »lifa«, hann mun
ekki hafa vitað hvað; en ræðum. hélt ótrauð-
ur áfram rásinni; hann ætlaði sér ekki
að láta neitt »lifa« nema sjálfan sig og sina
miklu mælsku og fyndni.
Til þess er tekið, hve dauft hefði verið
yfir þessu sam-áti.
Samein. félag. S/s Yesta komst loks á
stað í fyrrakveld. Farþegar tii Skotlands
kaupm. Berrie, til Khafnar kand. Árni Páls-
son og hans frú, frk. Laurá Indriðadóttir
og sumir segja Snæfellinga-yfirvaldið (að
stúdiera).
Thorefélagsskip. Tryggvi kongur (Em.
Nielsen) kom í fyrra dag, 2 dögum á u n d a n
áætlun, frá Khöfn og Engl., með fullfermi
af vörum, en fátt farþega. Von á auka-
skipi, 8/s Elizabeth, þessa daga með það
sem Tr. kongnr varð að skilja eftir.
Eítir tíu ár.
Úr ferð nm landskjálftasvœðið frá 1896
IV.
Bú á 3 Hátt upp í 1000 fjár. Frá
hdr. koti. 15—20 í fjóai. UmáOhross.
Seld frá búinu í einu lagi
í vor 20 hross hingað til Eeykjavíkur
(e k k i til útflutnings) á 106 kr. að með.
altali. Snemma í ágústmánuði rekið
til Reykjavíkur frá búinn tíl slátrunar
230 fjár, þar á meðal 100 sauðir 2—3
vetra, sem seldust á 15 kr. Heyfyrn-
, ingar í vor 7—800 hestar. Hjálpað
þó um nokkur hundruð. Boðið að
taka rúma 20 nautgripi úr einni sveit
í annari sýslu, þegar harðast var.
þegið fyrir 4 að eins og þeim haldið
fram í græn grös. Tíund hátt upp í
100 hundraða.
það heitir Hellir, 3 hdr. kotið, sem
þetta bú ber, og bóndinn Sigurður
Guðmundsson. f>að er í hverfinu of-
an til við Safamýri, Vetleifsholtshverfi
í Ásahreppi. þ>að er afbýli frá Vetleifs-
holti, heldur en hjáleiga. það er 3
hdr. að fornu mati, en ekki sérstakt
mat á því í nýju jarðabókinni.
En það á slægjur í — Safamýri, þó
ekki meiri að mér skilst en hin býlin
sum við mýrina. Reitt þaðan á 20
hestum í sumar 5—10 ferðir á dag.
LTm 20 ár hefir Sigurður búið þar.
Hann er að vísu sonur Guðmundar
ríka á Keldum, ermun hafa átt nær 100
hdr. í jörðu er hann lézt, fyrir rúmum
20 árum, en líka 24 börn, með 3 kon-
um, og komu því að eins 8—900 kr.
í erfðahlut hvers barns, þótt dáin
væri nokkur á undan honum.
Sigurður í Helli er þjóðkunnur af
mörgum blaðagreinum, Búreikninga-
bók sinni, búuaðarþingssendiför til Dan-
merkur o. fl.
Pening8hús hefir hann hin beztu á
jörð sinni, er eg hefi séð. |>ar á með-
al sauðahús, sem er 42 álnir á lengd
og 14 á breidd, að hlöðu meðtalinni
í miðju húsi fyrir 400 hesta; hún er
14 álna löng og fjárhúsin eins hvort um
sig, með 2 jötubálkum að endilöngu
og jötu við veggi að auk; stendur því
féð þar í 6 röðum, er það étur.
Veggir lágir, graslægir utan, en ris ail-
mikið, með járnþaki. Ekki kostaði
kofi þessi nema 1200 kr.
Bæjarhús hefir hann haft út undan,
með því hann hefir lengi ætlað sér
burt af kotinu, að jörð,semhannáaustan
Rangár ytri, Selalæk. j?ar búa háöld-
ruð hjón, er hann hefir ekki viljað
hrekja burt. Nú þoka þau-fyrir hon-
um af mestum hluta jarðarinnar. Og
þar reissir hann sér undir eins að
vori mjög myndarlegt íbúðarhús, úr
steinsteypu og og timbri. J>að er vatn-
ið í Safarmýri og vosbúðin, sem því
fylgir, fyrir menn og skepuur, sem
fælir han burt frá Helli. Haun ætlar
sér þó að hafa þar bú með áfram.
Formaður er hann fyrir stærsta rjóma-
búinu á landinu, Rauðalækjar, sýslu-
nefndarmaður o. s. frv.
Safamýri. jpað er frægasti slægju-
bletturinn á landinu, 4,400
dagsláttur, og fengust úr henni einu
sinni í manna minnum 30—40,000
hestar. f>að var grasleysissumanð 1881.
|>á var heyjað í henni úr rneiri hluta
sýslunnar vestan Markarfljóts.
Ekki sér út yfir mýrina úr henni
miðri fremur en staddur væri maður
úti á rúmsjó.
J>etta heyskapar-Gósen liggur undir
skemdum úr {>verá (jpykkvabæjarvötn-
um) og víðar að. Fyrir meira en 20
árum var varið 4—5 þús. kr., mest úr
landssjóði, til að hlaða nær 3000 fðm.
langan flóðgarð fyrir fykkvabæjarvötn.
En svo óforsjállega var gengið frá við-
haldsskyldunni, að garðurinn er nú
löngu ónýtur orðinn. Hann var hafð-
ur meðal annars fyrir stórgripagötu í
haga og úr í öllu Bjóluhverfi; gengu
eftir honum og tróðu alla vegu 60—70
nautgrjpir á hverju máli.
Sigurður í Helli var frumkvöðull og
forgöngumaður annarar mikils háttar
umbótar á Safamýri nú um aldamótin.
J>að er um 3,600 fðm. langur skurður
með öllum norðurjaðri mýrarinnar, frá
Bjólu vestur í Frakkavatn. f>að gerðu
14 bændnr í Vetleifsholtshverfi og á
Bjólujörðum með styrk frá jarðeigend-
um, Búnaðarfélaginu o. fl. f>að voru
1200 dagsverk. Sá skurður hefir bætt
mýrina stórum og er honum vel við
haldið.
Ekki Ijá- Meira en helmingur af
berandi. Safamýri var í óslægju nú í
20. viku sumars og mun
ekki hafa verið slegið í henni eftir það
svo neinu nemi. Grasið var ekki þá
nema 1—2 álna hátt. Það náði sam-
an yfir herðakambinn á hestinum, en
ekki nema sumstaðar. f>ótti því ekki
Ijáberandi! — Onei, gamanlaust talað
ber enginn á móti því, að slíkt gras
sé Ijáberandi. En því valda ó
kleifir örðugleikar á hirðingunni, að
ekki þykir tilvinnandi að slá það. f>að
er gizkað á, að tæpur þriðjungur af
Safamýri hafi verið sleginn í sumar.
f>ví 8umarið var þurkasamt. ílitt er
skilið eftir. f>ó er alls ekki svo blautt
í rót þar alstaðar, að ekki megi vel
þurka heyið, en það er óbindandi öðru-
VÍ8Í en að það blotni alt og útverkist
af for. En eigi aðreiða það burtu blautt,
nýslegið, fer svo sem ekkert í bagga.
f>atta bera þeir fyrir, sem kalla mikið
af Safamýri ekki ljáberandi, þótt töðu-
gæft sé heyið og þetta loðið, sem nú
var sagt.
Töluvert af engjaveginum frá Helli
niður í Safamýri er örmjó vatnslæna
á borð við fjárgötuslóða, og sér þar í
hálffúin heystrá eða heyfúlgur niðri í
vatninu. f>etta þræða hrossin, ef kunn-
ug eru. En ókunnug vilja heldur fara
Utau hjá, leirmóinn hálfgrösugan. f>að
gerði reykvískur ferðahestur f minni
för í sumar og sökk
Brýr óðara í taglhvarf. Hin
af heyi gervar. ir þræddu einstigið,
heimahestarnir frá
Helli, er okkur höfðu verið lánaðir í
Safamýrarkönnunarferð þá, og lá ör-
sjaldan neitt í. Bæri það til, spratt
leiðsögumaður (frá Helli) af baki, tíndi
saman nokkur hálffúin strá í visk og
lagði ofan í pyttinn. f>á fleyttist þeim
sem á eftir fór og þyngstur var. f>etta
er sem sé þrautreynd brúunaraðferð:
lagt að upphafi fang við fang af heyi
í brautina; það sekkur alt, en veitir
þó það viðnám, að skepnum fleytist
yfir, hvort heldur er með menn á baki
eða klyfjar. Um sjálfa mýrina er ann
ars víðast reitt, jafnvel þar sem hún
er blautust. Hún er öll gljúp og kvik
undir, en rótgóð víðast: hesturinn
sekkur f miðjan legg, en lengra sjald-
an. Liggur i aðeins á stöku stað.
Kunnugir sjá það nokkuð á graslagi
og lit. Blástör merkir sökkvandi fen.
Við vorurn meira en 3 stundir að svamla
um hana síðla dags (31. ágúst). Kven
maður, sem í förinni var, var látinn
hafa hestaskifti og reiðtýgja við fylgd-
armanninn. Hún settist í hnakkinn;
það er hættuminna, ef í liggur og reið-
skjótinn brýzt um ; en hann í söðulinn.
Leiðsögumaður ætlaði skemstu leið
heim að Helli, er við höfðum kannað
mikið af austurmýrinni; en þá var
farið svo að skyggja, að ilt var að sjá
graslitinn, og fór þá að liggja mjög í.
Við áttum því ekki annað undir en
að snúa við og þræða alla hÍDa sömu
leið og við höfðum farið, slóðann eftir
hestafæturna.
Hálfum mánuði eftir þetta kom svo
mikið vatn í mýrina úr f>verá (þykkva-
bæjarvötnum) með aftakastormi (13.
sept.), að burt sópaðist hvert strá,
sem í mýrinni var þá laust, á annað
þúsund hesta, og var svo hreint eftir
sem rakað væri mjög vandlega. f>að
er ein hættan, sem yfir vofir þeim, er
þar heyja. En ber þó sjaldan við.
Aths. Þorsteinn á Móeiðarhvoli hsfði
ekki orðið fyrstar manna á Suðurlands-
undirlendi að fá sér skilvindu, heldur var
það Signrður sýslumaður í Kallaðarnesi.
En þá komu næstir þeir sira Skúli í Odda,
Sigurður í Helli, Grímur í Kirkjubæ og þá
Þorsteinn bróðir hans.
Landeyingar sækja í Hofs-rjómabú, en>
ekki Rauðalækjar. B. J.
Ritsímafróttir erlendar,
Kböfn 29. sept. kl. 10 árd.
Rússakeisari afar-taugaveiklaSur,-
Hættir líklega stjórn um tíma.
Bandaríkjamenn sett bráðabirgðaher-
valdstjórn á Kuba.
Friðrik konungur kemur til íslauds í
júlílok.
Sameinaða félag lætur smíða 2 Is-
landsskip með kæliklefa.
Kböfn 3. okt. kl. 8‘/2 árd.
Ríkisþingsförsetar endurkosnir.
K o n u n g u r sagði svo í þingsetn-
ingarræðu sinni, að hann hefði í áformi
að gera ráðstafanir til að v e r ð a v i ð
óskum íslendinga um umbæt-
ur á löggjöfir.ni um stjórnarstöðu ís-
lands í ríkinu.
Borin upp á þingi tillaga um að
styðja ráðuneytið.
Þingmannaförin hefir kostað ríkissjóð'
85,000 kr.
Tíðarfar
segja símafréttir í d a g og í gær"
hið bezta austanlands og norðan,-
Hefir verið öndvegistíð frá því í önd-
verðum septbr.
Skipströndin austanfjalls. Hr.
kaupm. Olafur Árnason á Stokkseyri óskar
þess getið, út af fréttum i Isafold 15. f. m.r
að skipin 3, sem strandað hafa fyrir honum
i sumar, hafi ekki strandað öll þar á Stokks-
eyri, heldur eitt þeirra, miðskipið (Union)'
austur i Landeyjum. Um siðara skipið,
sem sleit upp á Stokkseyri, vill hann láta
þess getið, að slysið bafi ekki orsakast af
þvi, að slitnað hafi aðalfestarnar, sem skipin
eru bundin i, heldur hafi þær runnið út af
vindunni hjá skipverjum | ella mundi það
hafa hvergi haggast. Sömuleiðis segir hanDf
að ekki hafi neinir hátar slitnað upp á
Stokkseyrarhöfn. Að eins fokið og brotnað
opin skip á landi.
Vélarbát allvænan hafa Kjósarsýsluhúar
haft hér i milliferðum í sumar. Það el
hlutafélag, sem á hann og heidur honum
úti. Báturinn heitir B ú i. Þeir eru í félags'
stjórn, Jón Jónatansson hústjóri í Brautar'
holti, Eggert á Meðalfelli og Halldór á Ál&'
fos8Í. Báturinn hefir haft svo mikið að
gera i sumar, að nú er verið að hugsa utf
að auka hlutaféð og fá sér stærri bát. AF
mennur fundur um það i Brautarh. 13. þ-1®''
i