Ísafold - 06.10.1906, Qupperneq 3
IS AFOLD
259
ætli að leggja stöðinni til nokkrar
dagsláttur af landi (við fiyrarbakka?)
°g skuldbinda sig til að leggja talsíma
frá, Eyrarbakka til Reykjavíkur.
Hér í höfuðstaðnum hefir verið orða-
sveimur um þetta undanfarnar vikur.
En hafi einhver stjórninni nákominn
Verið spurður um það, hefir þar verið
rammger lás fyrir —■ sjalfsagt eftir
strangri fyrirskipun húsbóndans. Efafi
Norðurland rétt að mæla, er því lík-
ast sem aðgengilegra hafi þótt að láta
fréttina úti í talsíma en hins vegar;
þá sér ekki, þótt mælandi roðni.
því undir það munu flestir taka
með Norðurlandi, er það spyr, hvort
þessi fregn varpi ekki einhverri undar-
legri birtu á einurð þeirra manna, er
háværast níddu loftskeytasamböndin
Um síðasta þing og töldu þau að engu
trýt?
Og er ekki sem manni finnist, að
þeir menn hafi haft nokkuð til síns
máls, er fresta vildu fullnaðaraamning-
Um um hraðskeytasambandið á síðasta
þingi ?
Vestfjarðaritsíminn.
Einn hinna norsku landsímayfirmanna,
Halvorsen, hefir verið látinn ferðast
í sumar áliðið um Vestfirði og skoða
sírnaleiöina þar fyrirhugaða, hve nær
sem í það verður nú ráðist að bæta við
þeirri miklu álnm og afar-dýru, ef hún
á að ná svo langt sem nauðsyn krefur.
Hann kvað leggja það til, að síminn
verði fyrst lagður úr Hrútafirði suður
að Búðardal við Hvammsfjörð, þaðan
vestur Svínadal og inn með Gilsfirði, þá
norður Steinadalsheiði í Kollafjörð, þá
inn með Steingrímsfirði og vestur Stein-
grímsfjarðarheiði vestur í Langadal, það-
an út með Djúpi vestanmegin um alla
firðina þar þvera og út í kaupstað
(ísafj.), þá Breiðadalsheiði og um vest-
urfirðina þvera alt til Bíldudals eða
jafnvel Patreksfjarðar.
Talað er um álmu frá Búðardal út í
Stykkishólm einhvern tíma.
Dáinn er
í g æ r, 5. okt., að heimili sínu Reykja-
hlíð við Mývatn raerkisbændaöldungur-
inn Pétur JónBSon,88ára gam-
all, f. 18. apríl 1818 að Vogum, næsta
bæ við Reykjahlíð, en fluttist 2 ára að
Beykjahlíð og átti þar heima alla æfi
slðan, 86 ár samfleytt. Hann var
einn af 13 börnum síra Jóns þorsteins-
sonar, lengst í Reykjahlíð (f 1862),
þeim er á legg kæmist og urðu mörg
tterkileg, þar á meðal síra Hallgrímur
prófastur á Hólmum, síra Sigfús á
Tjörn o. fl. þeirra lifa nú þrjú: Bene-
dikt (blindur), frú Jakobína Thomsen
og frú Hólmfríður, ekkja síra Jóns
beit. á Mælifelli Sveinssonar.
Ein dætra hans, 4 alls, var Solveig,
kona Jóns heitins á Gautlöndum alþm.,
ttóðir Kristjáns yfirdómara og þeirra
Bystkina.
Af Vestfjörðum.
þaðan er nýkominn heim hingað úr
iO vikna ferðalagi Guðjón Guðmu í
fionráðunautur. Hann fórfyrst Stranda-
Sýalu nær af enda og á, þá úr Ofeigs-
firði yfir á Langadalsströnd, inn fyrir
faafjörð og norður með Djúpi vestan,
alla firðina þar út á Skutulsfjörð,
Þ^ðan Breiðadalsheiði og um þvera
Vesturfirðina og út á Rauðasand, þá
8uður Barðastrandarsýslu endilanga og
utt Dali.
Aðalerindið var að undirbúa búnað-
&rfélagasamband fyrir vesturkjálkann
ftllan, frá Gilsfirði og Bitru, allra bún-
aðarfélaga, sem þar eru, og að koma
uPp nýjum félögum þar, sem þau eru
engin. það yej( 0g £ að halda
stofnunarfund að vori á ísafirði. —
Samband þetta á að vera með sama
sniði og Austfjarða búnaðarsambandið.
Norðurland hefir þess ígildi þar sem
er Ræktunarfélagið.
T í ð a r £ a r segir hr. G. G. hafi
verið gott í sumar um Vestfirði, alt
fram undir réttir, að lagðist í rosa og
rigningar, eins og hér syðra. Hey-
skapur í meðallagi. Nýting ágæt.
Tómar heiðríkjur allan ágvrstmánuð.
það nær þó ekki til endanna beggja
á Strandasýslu ; þar gengu hafísþokur
með vætusudda.
Verkafólksekla tilfinnanleg um hey-
annir þar vestra sem annarstaðar, nema
fremur sé, með því að nú er nýr land-
vinnuspillir þar sem eru vélarbátarnir,
er ganga til fiskjar hvað helzt um
sláttinn og fólki þykir fýsilegra að
sitja í en að standa við heyskapar
stritvinnu. En mjög reyndist það
misráðið í sumar, því bátarnir öfluðu
nauðalítið.
Kartöflugarðar brugðust mjög í sumar
þar alstaðar, nema á sjálfri Barða-
ströndinni. Eins var um Dali og
Borgarfjörð. f>ví valda kuldarnir, ekki
sízt hretið mikla um miðjan júlímán
uð.
Efnahag bænda segir kr. G. G. all-
góðan eða sæmilegan yfirleitt í þessum
landsfjórðungi. f>ar er og víðast stund-
aður sjór með landbúnaðinum, beinlínis
eða óbeinlínis: vinnumenn gerðir út í
ver, þar sem langt er til.
Skepnuhöld höfðu verið góð í vor
þar víðast hvar; lambadauði enginn.
— Sauðfé vænt á hold; rýrara á ull
og mör.
llppboð á Élverkum
verðu haldið í Goodtemplarahúsinu
á mánudaginn kemur (8. þ. m.) kl. 12
á hád.
Langur gjaldfrestur.
Málverkin verða til sýnis á morgun
kl. 11-3.
þór. B. þorláksson.
Fæði.
Fæði fæst keypt í Báruhúsinu. A
sama stað geta 2 stúlkur fengið tilsögn
í matreiðsfustörfum. Nánari upplýsing-
ar gefur ráðskonan í Báruhúsinu.
Húsvarðarstörf.
f>eir sem kynnu að vilja sækja um
húsvarðarstarfið við Báruhúsið sendi
skriflegt umboð til hr. Einars þorsteins-
sonar Lindarg. 12 fyrir 25. þ. m. (til-
boðum síðar ekki sint), starfið veitist
frá 1. nóv. n. k. fækking á mótor og
meðferð rafljósa útheimtist.
Stúlka
sem er vön að sauma, getur fengið
pláss nú þegar hjá
H. Andersen & Sön.
Uppboðsauglýsing-
Eftir beiðni Guðmundar Brynjólfs-
sonar trésmiðs, í umboði Ágústs Sig-
urðssonar prentara, samkvæmt skulda-
bréfi dags. 30. des. f. á. verður húseign
hins síðarnefnda nr. 26. við Grettisgötu
seld við opinbert uppboð, sem haldið
verður þar í húsinu laugardaginn 27.
þ. mán. á hódegi.
Uppboðsskilmálar verða til sýnis hér
á skrifstofunni degi fyrir uppboðið.
Bæjarfógetinn f Reykjavík, 5. okt. 1906
Halldór Daníelsson.
Til Yiðtals við sjúklinga
verð eg framvegis heima kl. 10—11
árdegis.
G. Björnsson
læknir.
Búnaöarfélag Islands.
Efnafræðingur Ásgeir Torfason tekur að sér rannsóknir á jarð-
veg’i og heyi, og kostar rannsóknin á jarðvegssýnishorninu alt að 20 kr.
og á heyinu alt að io kr.
Búnaðarfélagið vill fyrst um sinn kosta að hálfu þessar rannsóknir
fyrir menn sem óska þess, á þeim stöðum, þar sem slík rannsókn virðist
hafa almenna þýðingu. Menn athugi leiðbeiningar Ásgeirs Torfasonar í
Búnaðarritinu XX 3, hvernig taka eigi sýnishornin.
Reykjavík, 4. október 1906.
Þórh. Bjarnarson.
I IHDM 1SSI T eftir MATTHÍAS JOCHUMSSON, I.—V., eru
II 11 IIII111 IMj 1 til sölu hjá öllum bóksölum, og kostar hvert
bindi 3 kr. í skrautbandi, en 2 kr. heft. — Eftir nýár 1907 hækkar
verð hvers bindis um 50 aura, þannig að hvert bindi kostar kr. 3,50
í skrautbandi, en kr. 2,50 heft. Notið því tækifærið, meðan verðið er lágt.
Útg.
I klæðasöluhúöinni i
Liverpool
og hvergi annarstaðar eigið þér að kaupa yður föt og fatefni. Þar er nú
nýkomið:
Vetraryfirfrakkar 24 kr. til 40 kr.
Vetrarjakkar
Alfatnaðir
Erfiðisbuxur
Sparibuxur
Erfiðisjakka
9 kr. til 22 kr.
12 kr. til 40 kr.
2kr. til 5 kr.
5 kr. til 12 kr.
2^/2 kr. til 7 kr
Ennfremur er þar mesta úrval af peisum, nærfatnaði, hálslíni,
slifsum, höfuðfötum, skófatnaði, regnkápum o. fl. auk margs-
konar fataefnis.
Þarna eigið þér að kaupa og hvergi annarstaðar, því þarna afgreiðir út-
lærður og þaulvanur klæðskeri, sem þarf ekki annað en sjá manninn til þess
að vita undir eins hvað honnm er mátulegt og fer vel. Og vilji menn láta
búa sér til föt, úr hinum sérlega fallegu fataefnum, þá er hann ekki lengi
að sníða hverjum einum stakk eftir vexti.
Aldan
Fundur næstkomandi miðvikudag
kl. 8 e. h. í Iðnaðarmannahúsinu.
Áriðandi að allir félagsmenn mæti.
Stlórnin.
Stúlku
vantar í vetrarvist
Jón Eyvindsson
Liverpool.
Strokleður
er langbezt og ódýrast eftir gæðum í
bókverzlun ísafoldarprentsmiðju. Mjög
mörgum tegundum úr að velja nú þeg-
ar og fleirum í næstu viku.
Teiknibestik
eru ódýrust í bókverzlun ísaf.prentsm.
Skólabækur
allflestar fást í bókverzlun ísafoldar-
prentsmiðju.
Vefnaður
Enn þá geta nokkrir nemendur
komist að í vefnaðardeild Kvenna-
skólans.
Rvík, 6. okt. 1906.
Ingibjörg H. Bjarnason.
Fæði
fæst i Bókhlöðustíg 8.
Steingr. Matthíasson
settur héraðslæknir
býr í Miðstræti 8. Heima kl. 2—3.
2 herbergi
til leigu fyrir einhleypa.
Sjómannaskólastig nr. 9.
Jón Eyvindsson.