Ísafold - 10.11.1906, Síða 3
ISAFOLD
295
Bismarck og Mlhjálmnr II.
Því víkur þann veg við, þessu, sern
hraðskeyti skyrði frá eigi alls fyrir löngu,
að Vilhjálmur keisari hefði stórreiðst
birtingu æfiþátta Hohenlohe fursta, að
yngsti sonur furstans, Alexander Hohen-
lohe, amtmaður í Elsass efra, hafði léð
þ/zkum rithöfundi minnisblöð eftir föð-
ur sinn, þar sem harin hafði ritað jafn-
óðum það er gerðist um hans daga og
almenningur vissi ekki, einkum við keis-
arahirðina þ/zku .og meðal þ/zkra stjórn-
arhöfðingja. Maðurinn mátti hagn/ta
það sem honum þótti fallið. En varð
heldur djarftækur og birti /mislegt,
sem kom sér ekki vel eða lét miður
vel í eyrum keisara. Helzt var það um
áskilnað milli Bismaroks og hins unga
keisara þau fáu missiri, er hann hélt
embætti eftir höfðingjaskiftin, árin 1888
—1890. Keisara er þar að vísu borin
betur sagan en Bismarck, meðal annars
um það, að haun hafi ekki viljað beita
tómum harðræðum við jafnaðarmenn og
ekki hafa undirmál við Rússa um lið-
veizlu gegn Austurríkismönnum, ef í
harðbakka slægi í deilum um Balkans-
skagalöndin; en Austurríkismenn voru
þá og eru enn bandamenn Þjóðverja
(þríveldasambandið). Slíka örmælgi tel-
ur nú keisari skaðræðisóhæfu og horr'a
til að spilla góðu samkomulagi við aðra
þjóðhöfðingja. Hitt mun honum þó
hafa komið engu betur, að Hohenlohe
fursti segir frá /msu öðru, er þeim fór
í milli, Bismarck og keisara, og keisara
horfir síður til lofs en ámælis. Hann
segir, að einu sinni, er þeir óku saman
f vagni, keisari og Bismarok, hafi keisari
reiðst svo einhverju, er Bismarck lót
sér hrjóta af munni, að hann rak karl
niður úr vagninum, þá hálfáttræðan.
Hann segir og svo um Vilhjálm keisara,
að hann hafi verið ærið ófyrirleitinn í
æsku, og samist lítt við foreldra sína,
Friðrik keisara hinn spaka og gæflynda,
og Victoríu hina brezku, enda voru fá-
leikar milli þeirra mæðgina alla tíð með-
an hún lifði, eftir það er Vilhjálmur
var orðinn keisari. — Hohenlohe fursti
var þriðji ríkiskanzlari keisaradæmisins
þ/zka. Bismarck var fyrstur, járnkanzl-
anna, 1870—1890. Þá Caprivi til 1894.
ÞáHohenlohe til 1901 — hann dó það ár.
Þá Bullow fursti, sem enn hefir það
embætti á hendi.
Alexander fursti Hohenlohe sá er
hneykslinu olli, varð að fara frá embætti
fyrir tiltækið.
Heldur þykir Hohenlohe gamli hafa
hallað sögunni á Bismarck yfirleitt, og
er fyrir það hálfbúist við, að frásaga
hans muni draga þanti dilk eftir sér,
að birt verði innan skamms III. og
síðasta bindi af æfiþáttum Bismarcks
gamla. En handritið að þeim er geymt
í Englandsbanka í Lundúnum, með
þeifn fyrirmælum, að eigi skuli það
birta á prenti fyr en þeir eru allir
komnir undir græna torfu, er mest koma
þar við sögu, en þar er Vilhjálm keis-
ara II. fremstan að telja, og tekur þetta
þriðja bindi einkum til þess, er þeir
áttu saman, og segir meðal annars, að
menn ætla, frá því, er keisari rak karl
frá embætti. Eftir það greri aldrei um
heilt með þeim, þótt sáttir yrðu að kalla
nokkrum árum eftir. Sá Fyrirvari á þó
að hafa fylgt áminstri ráðstöfun, að birta
mætti niðurlag æfiþáttanna fyr eri ella,
ef nauðsyn bæri til, svo sem að hann
væri ófrægður í gröfinni af merkum
mönnum og því nákunnugum, er þar
segir frá. Því skyldu synir Bismarcks
ráða eður aðrir niðjar. En synir hans
eru nú báðir dánir og eiga ekki upp
komin börn. Dottir Bismarcks er á
lífi, María v. Rantzau greifafrú. En
búist við, að hún muni naumast hafa
kjark til að ganga í berhögg við keis-
ara um birting æfiþáttanna eða þá hafa
naumast umboð til þess.
Fórn Abrahams.
(Frh.I.
— Eg fekk hana hjá honum Símoni
Flick, raælti hann í hálfurn hljóðum.
Hann hafði hana með sér frá Tellenboch.
— Um hvað er hún?
Van der Nath gaf bókinni hornauga
í höndum sveinsins. En hann var
feginn hverri stundinni, er töf mundi
valda, og þröngvaði því sjállum sér til
að koma með þ68sa spurningu.
— Æfisögur mikillamanna
og góðra kvenna, þetta )as ísak
upp af titilblaðinu. Hefirðu heyrt
talað um móður Grakkanna, pabbi?
Van der Nath hristi önugur höfuðið.
— Eða um Hanníbal og Scipio?
— Nei!
— En um haDn Vilhjálm Tell og
son hans?
— Tell, greip van der Natb fram í.
það var þjóðverji, sem bjó —
— Nei, nei, sagði Isak, hann er
dauður fyrir mörgum hundruðum ára.
Og því næst fór hann að segja sög-
una gömlu af föðurnum, er skaut eplið
af höfði sonar síns. Hann sagði nana
með þeirri upphrópana gnægð, sem
unglingum er títt, og ’fléttaði inn í
hana athugasemdum frá sjálfum sér,
þar sem því varð viðkomið, og notaði
óspart einkunnirnar: mikill og dýrleg-
ur.
— H’m, h’m! hóstaði van der Nath
þegar hinn hafði lokið sér af. það
skot skal eg taka að mér að gera eft-
honum.
En ísak gerði grein fyrir, hve sér-
staklega hafði staðið á; og því næst
rökræddu þeir feðgar alvarlega, hve
hæfinn lásbogi gæti verið. Van der
Nath lét heillast af því; það var svo
unaðslegt að mega gleyma. þeir komu
sér niður á, hve stórt eplið hefði verið,
og fjarlægðin tiltók maður, er vissi á
hverju það atriði veltur, og það lá við
að þeir færu að kýta, með því van
der Nath gerði alt sem hann gat til
að Iáta verða sem minst úr afreki
Tells. Honum var ekki lagið að láta
hrífast af hugarsveims-kendri aðdáun
ísaks, og sveininn tóku sárt mótmæli
hans Og þegar pilturinn fann, að eng-
inn leið var að því að sannfæra föður
sinn um það, að aðrir hefði á undan
honum ráðist hiklaust í langtum meira,
þá skelti hann bókinni aftur og lét
hana inn í skápinn.
Van der Nath horfði á son sinn
gegn um raka móðuna, er lagði hlíf-
arblæju yfir augu hans. það var
sami pilturinn, sem hann hafði yfirgef-
ið fyrir nokkru, og þó eigi hinn sami.
Hann tók eftir breytingunni, en skildi
ekki hvenær eðahvernig hún hefðikomið.
En hann var eigi að velta þvf fyrir sér;
þrek hans var eins og vax, sem er að
bráðna; það gat jafnvel barn ráðið
við það. Og þótt hann gæti ekki
greint nema fáeina liði í hinni löngu
festi smárra atvika og stórra, er ofist
höfðu utan um hann, þá lét hann
samt undan; það var eigi hanD, heldur
annar, Bem átti að ráða, og hanD miklu
máttkari. tJt í einverunni á flatneak-
junni miklu, þar sem stormarnir ham-
ast og regDÍð grætur strórfeldum straum-
um mánuðum saman, verða hugirnir
harðir og ósveigjanlegir; og karlar og
konur, sem spyrja í öllum hlutum
biflíuna sína eina ráða, vægja hvorki
sjálfum sér nó öðrum, þegar fólk þetta
þykist alveg sannfært um, að eitthvað
hljóti að verða og eigi að verða.
— Ekki hérna, sagði van der Nath,
eftir ömurlega þögn, heldur þar sem
eg sór eiðinn.
ísak kinkaði kolli til samþykkis.
Hann bar lotningu fyrir þeim stað,
þótt ekki hefði hann séð hann.
— Á eg að leggja á bestinn? spyr
hann.
— Já, gerðu það!
Pilturinn gekk út rólegur og sæll á
svip, en faðir hans horfði á eftir hon-
um og gerði þó hvorki að skilja eða
skynja.
í hálfdimmu hesthúsinu handlék
ísak reiðverið. Hann brosti blítt og
hugsandi; það var barnabros fullorð-
ins manns með alvöru á bak við, og
minst af öllu hugsaði hann um það,
sem fram átti að fara.
Aö símslitum
eru allmikil brógS öðru hvoru, ekki
meira en verið hefir um frost eða
kafaldshríSar það sem af er. NorSurl.
segir, aS tepst hat'i sambarid þaSau viS
Reykjavík frá því á miSvikudag 24. til
föstud. 26. f. m.
Dagfari segir 13. f. mán., aS oft hafi
átt aS símtala frá SeySisfirSi til Reykja-
víkur þá undanfariS, en verið oftast
ómögulegt. Einu sinni var til dæmis
að taka manni frá Eskifirði svarað frá
SeyðisfirSi, aS talsamband fengist ekki
við Rvík þaðan þá sem stæði, en að
það mundi tást eftir hálfa stund.
Maðurinn beiS. En sama svar aS þeim
tíma liðnum. Og svo liðu t v e i r
d a g a r , að ekki fekst talsambandið við
Reykjavík.
Fádæma óþokkabragS er það, að
drótta að þjóSinni, og þá sérstaklega
auSvitað stjórnarandstæðingum, ásetn-
ings-skemdum á þræðinum, landsímanum.
Enda hefir ekki til þessa nokkurt það
atvik að boriS, er veiti nokkra hina
minstu átyllu til að ímynda sér slikt.
Töluverðum slitum í fyrstu frostum
var fyrir fram spáð af þeim sjálfum, er
þráðinn lögðu. Og hafi eitthvaS af
honum verið svikin vara, sem nokkur
grunur er sagður um, er það eitt ærin
skyTing á biluninni.
TalaS er um einna mesta bilun í einu
á Dimmafjallgarði síðast í f. mán. En
þar vill svo til, aS varla munu fyrir
hittast á tvær hendur nema eintómir
stjórnarfylgifiskar. Auk þess hefir nú
sjálfur eftirlitsmaðurinn á þeim kafla
landsímans sk/rt frá, að þráðurinn hafi
slitnað af klakaþyngslum, er hlaðist
höfðu utan um hann, og einangrarar
(10) sömuleiðis sprungið af þeim.
Þannig vaxin fjandskaparbrigzl við
ritsímann á hendur stjórnarandstæðing-
um, að þeir vilji hann óny'ttan, er
hneykslanleg vandræðavörn af hálfu
stjórnarliða fyrir þá óráðs-ósvinnu, að
hafna öðru vísi löguSum hraðskeyta-
sendingum, bæði miklu kostnaðarminni
og oss hagfeldari. En úr því ritsíminn
er á kominn, kemur stjórnarandstæðing-
um alveg eins illa og öðrum, ef hann
verður ekki að tilætluðum notum. Ekki
léttir það byrðina að honum. Hlunnindi
eru stórmikil að honum, það sem hann
nær; það vita allir og vissu fyrir fram
löngu. Og þau hlunnindi viljum vér sízt að
ekki komi að haldi, það sem frekast
verður við ráðið.
P r j ó n.
Undirritað teknr a(T sér allskonar prjón
nú þegar og leysir það fljótt og vel hendi.
Olina Eysteinsdóttir,
f húsi Kristins Vigfússonar, Hafnarfirði.
Ungur og reglusamnr piltur rúmlega
20 ára, óskar eftir atvinnu nú þegar við
eitthvað starf. Ritstj. ávísar.
Þakkarávarp. Hérmeð votta eg
mitt innilegasta þakklæti öllum þeim, sem
veittu mér hjálp og hnghreystu mig í sorg-
inni, út af missi mins elskaða eiginmanns,
Hannesar Ólafssonar, er druknaði í mann-
skaðaveðrinu 7. apríl þ. á. Sérstaklega
vil eg tilnefna þær kærleiksfullu gjafir, er
mér og börnum mínum hafa verið færðar
af mannskaðasamskotunum. *
Alt þetta hið eg allgóðan guð að launa
með tímanlegri og andlegri blessuni
Sólmundarhöfða á Akranesi 4. nóv. 1906.
Helga Jónsdóttir.
Úrfesti (millu-), hefir fundist. Eigandi
vitji í Skólabæinn.
REYKIÐ
aðeins vindla og tóbak frá
B. D, Kruseniann
tóbakskonungi
í Amsterdam (Holland).
Et fortræffeligt Middel mod Exem er
KOSMOL
Virker helbredende, giver en klar, ren
Hud og Hænderne et smukt Udseende,
er tillige et udmærket Middel mod al
Slags daarlig Hud og röde eller rev-
nede Hænder. Koster 2 Kr. 50 Öre
-j- Porto 50 Öre pr. Flaske og for-
sendes mod Efterkrav eller ved Ind-
sendelse af Belöbet. (Frimærker mod-
tages).
Fabrikken „Kosinol“
Afdeling 11 Köbenhavn.
Umboð
Undirskrifaður tekur að sér að kaupa
útlendar vörur og selja fsl. vörur gegn
mjög sanngjörnum umboðslaunum.
G. Scli. Thorsteinsson.
A B C
Teleg'r aphic Code,
ómissaudi handbók fyrir þá, sem mik-
ið þurfa að símrita, fæst í bókverzlun
ísafoldarprentsmiðju.
Kaupið
margarine
með
Fálka-markinu
er aðeÍDB fæst í *
Liverpool.
Ágætt og ódýrt
segja þeir sem reynt hafa.
Teiknibestik
eru ódýrust í bókverzlun ísaf.prentsm.
Wm. Crawford & Son
ljúffenga BISCUITS (smákökur) til-
búið af CRAWFORDS & Son
Edinborg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
F. Hjorth & Co.