Ísafold - 09.02.1907, Blaðsíða 3

Ísafold - 09.02.1907, Blaðsíða 3
ISAFOLD 27 SunlightSápa L Peir sem nota blaut- asápu til þvotta kvíða einlægt fyrir þvotta- deginum. Notið Sunlight sápu og hún mun flýta þvottinum um helming. Preföld hagsýni— ■ tími, vinna og penin- úgar- FariO eftir fyrirsögninni, sem er á öllum Sunlight sápu umbúOum. ^Jafnaéarvöruvarzíun Th. Thorsteinsson’s aö Ingólfshvoli. Nýfengið úrval af prjónlesi t. d. karlmaimanærfatnad, úrval af sokkum, m. m. Margar tegundir af teppum, — m.jög lientug fyrir s.jómenn. Erlendar ritsimafréttir til ísatoldar frá R. B. Kh 7. febr. 7 sd. Sveu H e d i n. kominn til Ngangsto í Thibet eftir frámunalega miklar þrautir á ferðalaginu. Mikill vísindalegur ár- augur. Ríkisþingskosningunum þ/zku lauk svo að síðustu, að jafnaðar- menn mistu 36 sæti og Welfar 3. Frjáls- lyndisflokknum græddust 10 sæti, íhalds- mönnum 6, þjóðfrelsismönnum 4, Pól- verjum 4 og miðflokksmönnum 2. * * * Sven Hedin er stórum frægur Austur- álfulandkönnuður sænskur. Hann hefir ferðast áður um Thibet, háfjalla- ríkið fáþekta í miðri álfunni, og komst þá í miklar kröggur og mannraunir. Nú er svo að heyra sem hann hafi ratað í enn meiri þrautir, en árangur- inn einuig orðið enn meiri. Aðalfiéttirnar af ríkiaþiiigekosningum á Þýzkalandi er ósigur jafnaðarmanna eða sósíalista. En þeim var mest að kenna niðurfærsla sú á nýlendumálafjár- veitingunni, sem keisari reiddist svo, að hann brá fyrir sig þingrofi, á miðri jólaföstu. Þeini hafði blöskrað, jafnað- armönnum og fleiri frjálslyndum þing- mönnum, fjáreyðsluósómi sá, með mútum og öðrum óknyttum, er upp komst um suma þá, er höfðu á hendi stjórn ný- lendumála, ofan á margfalda óspilun áður og ómegð þá, er ríkið hefir lengi átt undir að rísa í nýlendnabúskap þess. Keisari og hans menn mæltu því enga bót. En hitt töldu þeir vítaverðan þjóðræknisskort, að vilja binda hendur á stjórn ríkisins, er það væri að reyna að færa út kvíarnar með land- námi í öðrum álfum, nú er hreinsað væri til í nýlendumálastjórninni og þeir reknir úr embættum, er lineyksli hefði af sér goi't þar. — Svo er að sjá á þessum kosningaúrslitum, að þjóðin hafi heldur hallast á skoðun keisara og ríkiskanzlara. Þýzkalantl — Island. Nýrri málaleitan frá þýzka konsúln- um. um hafnargjaldfrelsi fyrir milli- landaskip hingað á þessu ári með fastri áætlun hefir stjórnarráðið (senat) í Liibeck svarað viðstöðulaust með rit- símann, að það vilji það gjarnan veita, til þess að fá megi dálitla reynslu um árangur af slíkri tilraun áður en Liibeck er tekin inn í fasta áætlun næsta fjár- hagstímabil. Það er mjög gott og þakkarvert, að liafa komið þessu á. En nú er eftir að vita, hvort Sam- ein.félag fæst til að sinna þessu styrk- aukalaust. Glímufélagið Ármann hafði' opinbert glímumót í Breiðfjörðs- leikhúsi 6. þ. m. undir forustu Péturs blikksmiðs Jónssonar, sem er formaður félagsins. Aðsókn var svo mikil að 'þessari sjaldgæfu skemtun, að húsið tók ekki líkt því alla, er horfa vildu á. Um 20 röskir unglingar glímdu og þótti skemtunin góð, — hin bezta af því tagi, er liór hefir farið fram. — Verð- laun hlutu: 1. Guðmundur Stefánsson, Egilssonar múrara. 2. Sigurjón Pétursson verzlunar- maður. 3. Pétur Gunnlaugsson, Péturssonar á Framnesstíg. Auk þeirra þóttu glíma einna fimleg- ast þeir Hermann Stefánsson, fóstur- sonur Jóns frá Múla, og Guðmundur Sigurjónsson, Þingeyingur. Reykjavikur-annáll. Dáin 5. þ. m. Þorsteinn Jónsson þbm. i Bergst.str., 61 árs; Sigrún Samáelsdóttir Jónssonar trésmiðs (Njg. 22) 13 ára. Barnaskólann er nú i ráði að stækka, þótt tkki sé hann nema 8 ára gamall, frá því 1898, og þá væri ætlast til að hann endist svo sem hálfa öld. Bæjarstjórn leyfði i fyrra kveld skólanefndinni að gera kostnaðaráætlun nm stækknn hans. Brunabótavirðing samþykti hæjarstjórn i fyrra dag á þessum húseignum, i kr.: Edinhorgar i Hafnarstræti 12 . . 25,360 Sigriðar Sigurðardóttur i Kirkjustr. 18,950 Edinborgar í Hafnarstræti 11 . . 9,653 Völundar á Klapparlóð .... 7,665 Vilhjálms Gíslasonar í Vesturg. . 3,956 Sigmundar Mattiassonar í Vesturg. 3,010 Gisla Jónssonar í Nýlendugötu . . 1,326 Bæjarstjórnartilskipuninni, frá 1872, er nú verið að hugsa um að breyta og koma á hana líku SDÍði og er á bæjarstjórnarlögum hinna kaupstaðanna: hætta við tviskifting kjósenda eftir efnum, kjósa til 3 ára og endurnýja þriðjung fulltrúanna á hverju ári. Nefnd var sett í það mál í fyrra dag: Kristján Jóusson, Jón Magnússon, Tryggvi Gunnarsson. Erfðafestulönd. Guðmundi Jafetssyni leyfði bæjarstjórn i fyrra dag að breyta erfðafestulandi hans í Norðnrmýrarbietti i byggingarlóð með venjulegnm skilmálum. Jón Guðmundsson i Sauðagerði bauð for- kaupsrétt á erfðafestuhlettum sínnm fyrir 17,997 kr. En bæjarstjórn bafnaði. Sömuleiðis hafnaði hún forkaupsrétti að erfðafestulandi þvi, er ntvísað hefir verið Stnrlu kaupmanni Jónssyni heggjamegin Eúlutjarnarlækjar, með þeim skildaga, að greitt yrði það sem ógoldið kynni að vera af erfðafestugjaldi frá f. árnm. Beiðni frá Edv. Brand am land til rækt- nnar við Elliðaár var synjað áheyrnar. Fasteignasala. Þinglýsingar frá í fyrra dag: Jóh. Hafliðason trésm. selnr Helga Helga- syni hálfa húseign nr. 44 við Grettisgötu með 165 ferálna lóð á 4500 kr. Páll Árnason lögregluþjónn selur Árna Jónssyni hálfa húseign nr. 3 við Lindarg. Sigurður Þórðarson selur ekkjufrú Mar- gréti Magnúsdóttur húseign nr. 31 við Skólavörðustig með 3 0 ferálna lóð á 4100 kr. Sveinn Einarsson stéinsm. selur Jóni Vig- fússyni húseign nr. 35 við Njálsgötn á 3300 kr. Hjúskapur. Jón Hermannsson skrifstofu- stjóri og yngismær Asta Thorsteinsson, gefin saman í gær í Viðey. Næturvarzla. Bæjarstjórn veitti í fyrra dag þriðja nætnrvarðarstarfið Guðmundi Stefánssyni fyrrum skipsíjóra, og ákvað Friðrik Ólafssyni, fráfarandi næturverði, 240 kr. eftirlauna-ársþóknun í 5 ár. Skipafregn. Gnfnskip Urania (Petersen, 300) kom hingað 26. f. mán. með kolafarm frá EDglandi til Bj. Gnðmundssonar. Og 5. þ. m. gufuskip Eros (Andersen, 263) með kolafarm til H. P. Dnns frá Burntisland. Tónandi, >fónandi<, gónandi. Ak- nreyrar-yfirvaldið, stjórnarnýgræðingurinn nafnkunni, sem er á sifeldum þönum með »ávörp« og »fagnaðarkveðjur« og hósianna- hróp til »húshóndans« fyrst og fremst og þvi næst annarra minni háttar stærða, dansandi ýmist solo kringnm valdasólina nýju eða með stntt eða langt skott aftan i sér, si-»fónandi«, tónandi og gónandi upp á tignartindinn, hefir >yfirgengið sjálfan sig« i vikunni sem leið og minst með klökkum huga dagsins mikla, er »húsbóndinn« hljóp af stokkum fyrir 3 árum. Hann þakkar þar i nafni Akureyrarbúa (allra?) ekki færri en þremur valdastærðum: »ráðherra, landritara og stjórnarráði*, fyrir »happa- sælt(!) og dáðríkt(!) starf fyrir land og þjóð siðan hið nýja stjórnarfyrirkomnlag gekk i gildi 1. febr. 1904«. Undir þetta tjáist hann hafa fengið 160 nöfn með sér, en lætur þess ógetið, hvað margt i þeim hóp ern hörn eða fullorðnir, karlar eða konnr, og eins hins, hve margir þeirra viti, hvað stjórnarráð er, allrahelzt er þeir teljast hvorugur þar með, rk'fí-herra né landritari. Það er annars enginn smá- ræðishópur, 160 manng af 1700 alls á Ak- ureyri! Og ekki verður »stjórnarráðinu« meira flökurt af þessu sætmeti en svo, að það lætur sitt hjartans málgagn, Lögréttu, segja frá þessum ósköpum. Skemtun heldur Hringurinn í Good-Templar- húsinu flmtudaginn 14. f>. mán.; s j ó n 1 e i k a o. fl. Til ágóða fyrir berkla- veika. Nánar á götuauglýsingum. DPPBOÐ á bókasafni Hallgríms Mel- steðs bókavarðar byrjar næsta mánudag, n. þ. mán., i Good- Templarhúsinu. Öllum þeim, sem við húskveðjuna í Reykja- vik eða við jarðarförina sjálfa i Álftártungu sýndu móður okkar Sigriði Sveinsdóttur vott eisku ng virðingar með návist sinni eða á annan hátt og okkur ættingjum, vottum við innilegt þakklæti. Guðný Níelsdóttir. Marta Níelsdóttir. Sveinn Níelsson. Hállgrimur Níelson. Sesselja Níelsdóttir. Haraldur Níelsson. Þuríður Níelsdóttir. Það tilkynnist vinum okkar og vanda- mönnum nær og fjær, að hinn 3. þ. m. andaðist okkar ástkæra dóttir, Sigrún. Jarðarförin fer fram næstkomandi miðvikudag 13. þ. m. frá húsi okkar nr. 22 við Njálsgötu. — Húskveðjan byrjar kl. II f. m. Margrét Jóusdóttir, Samúel Jónsson, trésmiður. JZaiRfálag JZviRur: Sherlock Holmes verður leikinn sunnudag- 10. þ. m. kl. 8 síðdegis. Munið eítir U tsölunni hjá Birni Kristjánssyni. 10—40°|0 afsláttur. Stéttarsteinar. Veganefnd Reykjavíkur þarf að fá alt að 1200 hlaup. álnir af stéttar- steinum, 10X15 þml. Þeir sem vilja selja henni þetta alt, eða nokkum hluta þess, geri um það tilhoð fyrir 20. þ. mán. til formanns nefndarinnar, Jóns Þorlákssonar, Lækjargötu 12 B, og má fá nánari upplýsingar hjá hon- um eða bæjarverkfræðingnum. GÓÍIIT IlltfiilV (þorskur, smáflskur, ýsa) og hnakkakúlur til sölu í verzlun H. P. Duus. Órónir vetlingar eru keyptir hæsta verði í Liverpool. Fundist heíir nýlega karlmanns-úr. Vitja má til Sveinbjarnar Kristjánssonar, Laugaveg 67.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.