Ísafold - 13.04.1907, Síða 2

Ísafold - 13.04.1907, Síða 2
80 Landsbankinn veitinga-hj áleiga Hr. ritstjóri! Eg er yður mjög þakk- látur fyrir þetta sem ísafold minnist á í síðasta bl. um nýja nytsemdarbrúkun á einni meiri háttar þjóð-stofnun vorri, Landsbank- bankanum. Sama heyri eg hvern mann segja, nema einhverja skynlitla kunningja-stráka hinna ungu, efnilegu, heldri og helztu manna sona (og dætra ?), sem notað hafa bankann i vet- ur þann veg, sem þar er frá skýrt. Sjálfum geri eg ráð fyrir að þeim líki það miðlungi vel, að afrek þeirra eru höfð i hámælum. En það er nú ekkert tiltöku- mál. Og hefði þó mátt hafa þá sögu miklu lengri og enn fróðlegri. T. d. að sést hefðu þrásinnis ljós inni í bankanum i vetnr um hánótt og fáir skilið i, hvað þar væri verið að starfa; að áminst- ir næturgestir i bankanum hafa sést moka flöskubrotahrúgu út úr honum um leið og þeir fóru siðari part nætur og ætlað að skilja hana eftir á gangstéttinni, en. mynd- ast við að koma henni út i rennuna, er að þvi var fundið; að bankastiórnin (eða bankastjórinn) hefir að skilorðra manna sögn fundið bæði tómar flöskur og hálf- tæmdar inni í bankaherbergjucum, og enn fremur brotna stóla þar, — og sizt i þvi skilið. Það er fjör i hinu unga fólki við vin! Veit eg það vel, að ekki er hlaðamál að segja frá hátterni fólks i privat-húsum. Enda sneiðir »Þjóðvinurinn« sýnilega alveg hjá þvi. En notkun þjóðstofnana á almenningur vissulega heimting á að fá vitneskju um, ekki sizt ef sú brúkun er fágœt eða merki- leg að einhverju leyti. Það þykir mér vanta i frásögn »Þjóðvin- ar«, hvort næturbrúkun sú á Landsbankan- um, er hann segir frá, er frammi höfð í fullu leyfi bankastjórnarinnar eða ekki. Lykil hafa næturgestirnir sýnilega að bankanum. En getur nokkur haft lyklaráð hans öðru visi en með bankastjórnarinnar leyfi? Það finst mér óhugsandi. Og getur hún, ef hún lætur frá sér lykla að honnm, trúað öðrum fyrir þeim en þeim mönnum, sem eitthvað starf hafa við bank- ann ? Mér skilst, að svo muni ekki vera. Blað yðar nefnir nú alls ekki á nafn, hverir séu næturgestirnir i bankanum. Það telur blaðið sjálfsagt almenningi óviðkom- andi. Og má vera, að það sé rétt gert, þótt með þvi lagi geti grunur lagst á sak- lausa. En það verður nú ekki við ráðið. Eg býst við, að flestir geri ráð fyrir, að forsprakkar næturbúskaparins í bankanum að minsta kosti muni vera einhverjar undir- tyllur í bankanum; en þeir hafi aftur með sér einhverja knnningja sina, karla og kon- ur. Hinir eldri starfsmenn þar hugsar sér enginn liklega til þess. Enda þykir mér fyrir mitt leyti rétt, þeirra vegna og annarra hluta, að láta þess getið, sem eg veit að skilrikir menna voru heyrnarvottar að daginn eftir að ísafold kom út, að bankastjórinn sló upp á kompán- legt gaman við einn hinna yngri og óæðri þjóna bankans, og sagði, að nú væri hann kominn í Isafold! Mér þótti þetta merkilegt fyrir margra hluta sekir. Eg dáðist enn einu sinni að þjóðkunnum skarpleik bankastjórans, er hann getur lýst því yfir, að tiltekinn maður sé »kominn i« blað, þó að það (blaðið) geri hvorki að nefna hann á nafn nó gefi nokkura hina minstu bendingu um, hvar hans sé aðleita: í hverjum mannflokki, hvaða stétt eða stöðu o. s. frv. Það kalla eg skarpleika! Það er þeSSu næst, að svo vel lætur banka- stjórinn auðheyrt yfir margnefndri nætur- brúkun bankans, að hann getur ekki að sér gert að fara nærri því að brúka gælur við piltinn út af þvi, i annarra manna áheyrn og viðurvist. Enn þyki mér það bera fagran vott um þann mannkost bankastjórans, sem kalla mætti háleita hugarrósemi, að hann kvíðir alls engri eldsvoðahættu af ekki gætilegra framferði inni í bankanum um hánótt en tæmdar og hálftæmdar flöskur og brotnir stólar virðast benda til. Þetta fær mér alt mikillar aðdáunar, og vona eg að þar taki aðrir undir með mér. En eitt dettur mér í hug, er eg lít á mál þetta »frá almennu sjónarmiði«. í S A F 0 L D Það er, hvort ekki má gera sér tekjugrein úr þeBsari nýtizkunotkun alþjóðlegra stofn. ana. Landsbankinn mun að vísu eiga sig sjálf- ur i orði kveðnu og vera svo »múraðnr« þar að auki, að ekki þurfi hann á að halda þeirri litilfjörlegú tekjugrein, sem áminst notkun hans hálfan sólarhringinn eða svo kynni af sér að gefa með venjulegum leigu- mála. Hann er þó ekki tiltakanlega vægur á leigunni við Forngripasafnið. Eg er nú að vísu ekki nærri þvi eins skarpur maður og bankastjórinn, og má vera fyrir því, að eg fari rangt með það, að Landsbankinn 8é landssjóðseign svona hálft i hvoru eða í aðra röndina, og því sé það umhyggja fyrir landsins gagni, er eg hallast að þeirri skoðun, að óþarfi væri að slá hendi við þeirri fjárhæð, er kynni að bjóðast fyrir hjáleigunotkun bankans, —■ hjáleigu við landsins aðal-áfengisveitingahöfuðból. Og svo dettur mér annað i hug. Mætti ekki hagnýta t. d. Alþingishúsið á svipaðan hátt? Það, sem er alls ekki notað, alþi.igishúsnæðið sjálft, nema v» hluta af tímanum, 2 mánuði af 24, og það hvorki nótt né dag? Það húsnæði er þó landsins órengd eign. Og það er húsnæði sem um munar! Þá mætti enn fremur nefna stjórnarskrif- stofurnar, miklar og margar. Ekki eru þær notaðar nema á daginn, og það varla mikið meira en hálfan daginn einu sinni. Miklu fleiri alþjóðleg stórhýsi eru til vit- anlega, og engin hér um bil notuð nema eitthvert brot af timanum, — engin að nóttu til, það eg minnist, nema sjúkrahús. En eg vil heyra, hvern byr þessi hug- leiðing mín og tillaga fær, áður en eg færi mig lengra upp á skaftið. Annar Þjóðvinur. Reykjavikur-annáll. Oagsbrún heitir bin nýja kaffistofa og mat- sölu hér í íslandshótelli, þar sem áður var »Svinastian«, sem nú sjást engar menjar eftir, heldur er alt þar nýjað upp innan stokks og mjög þokkalegt. Kaffi og svip- likar veitingar, með brauði, mjólk og fl., alt tiltakanlega ódýrt og vel framreitt. Ætti að vera mun fýsilegra ferðamönnum, sjómönnum og öðrum þar að koma en i áfengiskjallarann. Þrjár eru kaffiveitingastofur aðrar i ís- landshótelli, og 4 þó, að meðtalinni hinni almennu veitingastofu, 3 matsalir, funda- salur og dansleika, knattborðssalur m. m,, alt snoturt og vel um gengið, auk fjölda gistiherbergja uppi. Dánir. Guðjón Eiríksspn, sjómaður (Berg- staðastr. 25), hefir dáið annan i páskum, milli bæja. Jón öuðmundsson, f. útvegsbóndi i Hlið- arhúsum, tengdafaðir Gunnars kaupm. Gunn- arssonar, dó 8. þ. m., 78 ára. Oddfríður Halldórsdóttir, gift kona í Grettisg. 43, hálffertug, dó 9. þ. m. Svanborg Þorláksdóttir, sjötug ekkja, dó 10. þ. m. Þuríður Jónsdóttir, ekkja Eiríks Eiríks- sonar frá Hoffelli, dó 8. þ. m., nær hálf- níræð. Fasteignasala. Þinglýsingar frá i fyrra dag: Arni ‘prestur Þórarinsson á Rauðamel sel- ur Þorsteini Sigurðssyni kaupm. húseign nr. 68 við Laugaveg á 12,000 kr. Guðmundur Hallsson trésmiður selur H S. Hansson og S. Sæmundsson kaupmönn- um húseigo nr. 29 við Laugaveg á 22,000 kr. Jóhannes Pétursson kaupm. á ísafirði selur smiðunum Halldóri Ólafssyni og Þorsteini Jónssyni erfðafestuland við Sauðagerði á 2,300 kr. Oddur Guðmundsson selur Friðrik Hans- syni hálfa húseign nr. 33 við Skólavörðu- stíg með 350 ferálnalóð á 3000 kr. UppboðBafsal til handa Þorsteini Sigurðs- gyni kaupm. fyrir húseign nr. 16 við Bar- ónsstig á 1920 kr. Skipafregn. Hér kom 4. þ. m. gufuskip Hörda (373, A. Larsen) frá Kristjánssandi með viðarfarm til Bjarna Jónssonar (í kon- ungsskálana á Þingvöllum og við Geysi). Enn fremur 11. gufuskip Jenny (476, R. Christiansen) frá Frederikssstad með viðar- farm til Völundarfélags. Loks 12. seglskip Equator (486, J. A, Johansen) frá Halmstad með viðarfarm í timburverzlun B. J. & Co. Tídarfar. Vorblíða alla þessa viku. Logn og sólskin eða hægð dag eftir dag, með 6—8 stiga hita að jafnaði. Nokkur froststirðningur þó um nætur. Líkt er að frétta um land alt. Aflabrögð. Mokfiski í Garðsjó þessa viku, alveg óminnilegur landburður, alt í net. Tómur þorskur að kalla, óvenjuvænn og feitur. Einn var búin að fá í miðri viku 500 hlut, eftir 10 daga. Sömuleiðis góður afli í Leiru, og farið að fiskast vel á Miðnesi og i Höfnum. En ekkert í Grindavík, og lítið austan fjalls. Botnvörpungurinn Jón forseti hafn- aði sig hér í gær með um 25,000 af fiski. Mestalt vænn þorskur. Hafði 4000 á þiljum uppi. Var orðinn salt- laus. Maður fanst örendur hér milli bæja í gær, við Arnarnes- vog, lá þar í flæðarmáli. |>að var sjó- maður hér úr bænum, Guðjón Eiríks- son, milli þrítugs og fertugs, kvæntur. Hann hafði róið suður í Grindavík, kom heim á páskunum, og lagði á stað aftur annan í páskum. Konan fylgdi honum nokkuð á leið. Hann kom að Arnarnesi, stóð þar við 2—3 stnndir, ráðgerði að hverfa heim aftur til Eeykjavíkur, með því hann kvartaði um lasleika. Honum var vísað á veg- inn, með því hann virtist vera eitt- hvað ringlaður, sem hann átti stund- um vanda til. Nú í vikunni kom 8endimaður frá formanni hans í Grinda- vík að spyrjast fyrir um hann. f>á var farið að leita hans, og fanst hann brátt sem fyr segir. Hefir líklega lagst fyrir í fjörunni, þar sem heitir Kárs- nes, ef til vill liðið í ómegin og sjór fallið yfir hann, Fjárkládi er sagður fyrir víst á 1 bæ í Ölfusi, í mörgu fé nokkuð. far verður vonandi tekið röggsam- lega í taumana, með skoðunum og böðunum, svona rétt undir handarjaðri sjálfar landsstjórnarinnar. Slátrunarhúsið fyrirhugaða- Úr Arnessýslu er skrifað : Hinn 15. þ. m. ætlar slátrunarbúsnefndin að koma saman í Eeykjavík. f>ar á með- al annars að velja forstöðumann slátr- unarhússins. f>að kjör er harla mik- ils um vert. 8á, sem það starf tekur að sér, þarf að vera ötull og ein- beittur ráðdeildarmaður, með viti og áhuga á verzlun, maður, sem þekkir bændur og getur t a 1 a ð við þá um alt, sem að slátrunarhúsinu lýtur. Hann v e r ð u r því aðvera íslending- ur. DanBkur maður, sem þekkir ekki staðháttu hér, kann ekki málið, þekk- ir ekki fólkið, getur naumast veitt slátr- unarhúsinu forstöðu, hversu vel sem hann væri annars að sér ger. Fjórir botnvörpungar liöndlaöir i einu. Hreystiles inálsvörn ! Valurinn danski (Islands Falk) hremdi fyrir fám dögum í einni lotu 4 land- helgisseka botnvörpunga, 3 austur í; Meðallandsflóa, og hinn 4. undan Hjör- leifshöfða, og kom með þá alla hingað í fyrradag. Tveir þeirra eru enskir og og 2 þýzkir. Hinir ensku heita annar Liberia (A. Bales) frá Grimsby (G. Y. 159) og hinn Eegal (Woollis) sömul. frá Grims- by (G. Y. 158). En hinir þýzku Merkur (Theodor Dirkes) frá Bremerhafen (B. X. 60) og Carstens (G. Biirgeleit) frá Geeste miinde (P. G. 121). Englendingarnir játuðu brot sitt, ann*- ar viðstöðulaust og hinn von bráðara og 8ættust á að greiða 1000 kr. sekt og að afli og veiðarfæri skyldi upp» tækt vera. En |>jóðverjarnir höfðu það öðrui vísi, og hafa þeir þó ella það orð á sér, að vera miklu betri viðureignar fyrir rétti hér en Bretar, bæði óþrætn- ir og kurteisir. |>eir áttu hér hauk í horni þar sem.; er þýzki konsúllinn. f>ví sá Iætur ekkí> sinn hlut og keisarans fyr en í fulla hnefana. Hann hélt uppi þrætnisbar- daga með þeim og fyrir þá á annan> sólarhiing, af mikilli hreysti og harð- fengi, fklæddur skínandi einkennis- skrúða. Hann rengdi alt: mælingar liðsforingja á Valnum, kortin, sem þeir höfðu farið eftir, kvað þau vitlaus og úrelt — þau voru frá 1906, landsupp- drátturinn eftir landmælingadeild her- stjórnarráðsins Danska og sjóbréfiu; eftir alveg nýjum mælingum. Sjón- aukar Valsmanna mun hann og hafn fullyrt að væru vitlausir; því aldrei vildi hann kannast við, að skjólstæð- ingur sinn, hinn sekari, hefði haft botnvörpuna útbyrðis, þótt horft hefðu. þeir á það margir. |>eim hafði, Vals mönnum, mælst hann vera 400 föðm- um fyrir innan landhelgismark, er þeir höndluðu hann, og höfðu þó horft á hann áður 19 mínútur fullar á hraðri ferð beint undan landi! En konsúll- inn vildí alt um það láta hann hafa- verið tekinn saklausan fyrir utan land- helgismark ! Svo lauk, að þeir urðu að vinna eið að skýrslu sinni, yfirmennirnir (2) af Valnum og Mattías þórðarson skip- stjóri hinn 3. Síðan var dómur uppkveðinn í morg- un, og fekk verri sökudólgurinn, Biirge- leit, 1200 kr. sekt, auk málskostnaðar,. og afli og veiðarfæri alt upptækt; ert hinn 600 kr. og málskostnað, en ekk- ert upptækt, með því að hann hafði verið tekinn utan landhelgi, en sýnL lega nýkominn út fyiír markið. Uppboð er verið að halda í dag á aflanum, því sem komið er á Iand, en það er ekki helmingur úr skipunum. Tvö skipin höfðu fullfermi, 20—30 þús. af fiski, en hin kringum hálffermi. Hátt er boðið, um 25 kr. til jafnaðar í 100; því skemdur er fiskurinn orð- inn til muna, tekinn úr ísnum fyrir sólarhring eða meira, og marinn í með- ferðinni. Málareksturstöfin bitnar því meðal annars á landssjóði. Hinn nýi yfirmaður á herskipinu, H. Amundsen sjóliðshöfuðsmaðurr hefir riðið rösklega á vaðið, enda er maður vasklegur að sjón og einbeittur.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.