Ísafold - 26.06.1907, Page 3
ISAFOLD
175
Erlendar ritsimafréttir
til ísafoldar frá R. B.
Khöfn 25. júní 5 ‘/2 sd.
Uppreisnir í Kin a er niður bœld.
Sir Campbell-Bannerman lagði fram
í gœr d þingi frumvarp um að veita
lagafrumvörpum lagagildi, þótt efri
mál-stofan hafni þeim, eftir að þau
hafa verið samþykt þrívegis í neðri
málstofunni.
Vínyrkjuhéruðin á Frakklandi
tekin til að spekjast. Hermannasam-
blásturinn niðar bœldur.
Vilhjálmur k ei s ar i heimsœkir
Játvarð konung i haust.
Umboðsmenskumálið.
jpeirra .P, J. Thorsteinssons gegn
Salomon Davidaen var dæint; 1
verzlunardónai í Khöfn 10. þ. mán.
þann veg, að S. D. var dæmdur
til að viðlagðri 25 kr. dagsekt að gera
greinileg og vandlega rökstudd (í smáu
og stóru) reikningsskil fyrir sölu á 9
tilteknum fiskförmum. Svo var hann
dæmdur í 400 kr. málskostnað.
f>að sem þeir P. J. Thorsteinsson
telja dæmda hafa af sér haft nemur
rómum 90,000 kr.
Heimspekislegat
Hannesar Árnasonar hefir cand. mag.
Guðm. Finnbogason fengið,
2000 kr. ársstyrk 4 ár samfleytt.
Druknan.
Lausafrétt að austau í gærkveldi
segir síra Svein Eiríksson í
Ásum hafa drnknað í Hólmsá (eða
Kúðafljóti?) í vikunni sem leið, á
heimleið sunnan ór Yík.
í»ingvallafundaríulltrúar.
Árnesingar hafa kosið 15 fulltrúa á
fjingvallafund, sinn úr hverjum hreppi,
nema 2 fyrir einu hreppinn, Stokks
eyrar, og eru þeir áður nefndir, ásamt
fleiri. f>ar að auki hafa
Hreppameun ytrí kosið síra Kjart-
an prófast Helgason í Hruna.
Biskupatungnamenn síra Eirík Ste-
fánsson a Torfastöðum.
Laugardælir Böðvar hreppstjóra
Magnússon á Laugarvatni.
Grafningsmenn Kolbein Guðmunds-
son á Villingavatni.
þingvallasveitarmenn Halldór Sig*
urðsson oddvita á Kárastöðum.
Skeiðamenu síra Brynjólf Jónsson á
Ólafsvöllum.
Villingaholtsmenn Einar Brynjólfs-
son organista á f>jótanda.
Sandvíkurhreppur Sigurð Ólafsson
sýslumaun í Kallaðarnesi, og Símon á
Selfossi til vara.
Grindvíkingar Einar J. Einarsson
hreppstjóra.
Njarðvíkingar Ágúst Jónsson amts-
ráðsmann í Höskuldarkoti.
Álftnesingar Ingvar Gíslason á Skóg-
tjörn. (f>eir skutu saman um leið á
kjörfundinum 20—30 kr.í ferðakostnað).
Peykhyltingar í .Borgarfirði Árna
bónda þorsteinsson á Brennistöðum.
Hálaasveit Nikulás bónda Gíslason
á Áugastöðum.
Norðurárdalshreppur síra Gísla Ein-
arsson í Hvammi.
Stafholtstungnamenn þorst. Hjálms-
son á Hofsstöðum.
Alftaneshreppur á Mýrum Jón Sam-
úelsson á Hofsstöðum.
Hraunhreppingar Benedikt |>órðar-
arson í Hólmakoti. _
Staðsveitungar (Sfiæf.) síra Vilhjálm
Briem á Staðastað.
Neshreppingar innri Einar kaupm.
Markús8on í Ólafsvík.
Eyhreppingar á Breiðafirði Guðmund
kaupmaun Bergsteinsson í Flatey.
Beykhólasveitungar síra Jón f>or-
valdsson á Stað.
Dýrfirðingar Sighvat Grímsson Borg-
firðing.
Önfirðingar síra f>órð Ólafsson á
Söndum.
Súgfirðingar (ekki Kristján Kristjáns-
son, heldur) Harald Níelsson cand.
theol. í Beykjavík.
Bolvíkingar m. fl. (Hólshreppur)
Pétur kaupmann Oddsson.
Lýtingsstaðahreppur í Skagaf. Björn
bónda f>orláksson í Kollgröf.
Austur-Landeyingar síra Jporstein
Benediktsson.
Tala aðalfulltrúa á fúngvallafund,
sem hér er kunnugt um að svo stöddu,
er nú 100. Um nokkra er ófrétt.
Jóns Sigurðssonar afmælið,
17. þ. m., var hátíðlegt haldið á
ísafirði með fánaviðhöfn og fyrirlestri,
er Jónas Guðlaugsson ritstjóri ílutti
um J. S. f>ar voru um 500 manns
saman komnir. f>ann dag voru 26
íslandsfánar dregnir í stöng þar í
kaupstaðnum, og 7 dauskir.
Skipafregn. Hingað kom 24. þ. mán.
gnfuskip Vigsnæs (411, G. Holgersen) frá
Ardrossan með saltfarm til H. P. Duus.
Ennfremur i gær (25.) gufuskip Alekta
(335, B. G. Bellesen) frá Methill meö kola-
farm til Godthaabsverzlunar.
Fyrir fám dögum kom frá Leith gufuskip
B.jörgvin, leiguBkip þeirra G. Gislasons &
Hay, og á því hr. Garðar Gíslason sjálfur,
sem fer norður um land á Vestu 2. júli.
Synodus er haldin hér í dag, allfjöl-
sótt.
Farþegar hingað með s/s Ceres á
sunnudaginn 23. þ. m. frá Khöfn voru
prófessorarnir Einnur Jónsson og Þorvald-
ur Thoroddsen (með frú sinni), sira Mattias
Jochumsson skáld, sira Guðm. prófastur
Helgason frá Reykholti með dóttur sinni
eftir 9—10 mánaða dvöl erlendis (á Jót-
landi), sira Hafsteinn Pétursson frá Khöfn,
frú Sigríður Helgadóttir frá Odda, Olafur
Johnsen f. yfirkennari (frá Oðinsvé), frú
Ragnheiður Helms, Sigurður Pétursson
fangavörður væntanlegur (hér i Rvik), Gutt-
ormur Pálsson skógræktarmaður, Sigurgeir
Stefánsson trésmiður frá Vesturheimi, stú-
dentarnir Björn Þórðarson, Guðmundur
Guðmundsson, Jóhannes A. Jóhannesson,
Jón Kristjánsson, Jón Siiíurðsson, Pétur
Jónsson, Sigurður Sigurðsson og Stefán
Schev. Thorsteinsson. Enn fremur 5 danskir
smiðir, sem eiga að fara að vinna að Við-
eyjarbryggjunni.
Erá Leith kom stórkaupmaður Copeland
og 10—12 enskir ferðamenn og laxveiða-
menn.
Amtmaður og hnefast.æling. Svo
vænn og greiðvikinn er f. amtmaður J.
Havsteen igarð Isafoldar,að hann staðfestir
sjálfur frásögn hennar um daginn af sjálf-
um honum og fánanum afmælisdag Jóns
Sigurðssonar i öllnm atriðum utan einu,
— meðþví\að mótmæla þvi eina atriði, að
hann hafi stælt hnefana framan i stúlkuna,
sem hann átti við. En mótmælin styðjast
að eins við hans vísindalegan skilning og
útlistun á þvi, hvað það sé, að stæla hnefa
eða steyta. Hann segist ekki hafa hreyft
hnefana lárétt, heldur upp og ofan! En lá-
rétta hreyfingin ein sé rétt nefnd hnefa-
stæling, samanber að herja saman hnefun-
um.
Það er ekki litillar þakkar vert og lof-
semdar, þegar menn nota ótilkvaddir elli-
árin, hvildartímanu eftir langt og erfittæfi-
dagBverk, við lítið i aðra hönd, til mikils-
verðra vísindalegra athugana og útlistunar.
Amerískur prestur kaþóiskur, Willi-
am Stephens Kress frá Oeveland, hefir
flutt hér enska fyrirlestra vikuna sem leið
i Landakotskirkju um ýms trúaratriði, af
meiri mælskulist en hér mun heyrst hafa
nokkurn tima innan kirkju eða utan. Enda
kvað hann vera talinn stórmikill mælsku-
maður i sínu landi, svo vandfýsnir sem
menn eru þar. Fjöldi manna hefir hlýtt á
hann, þeirra er eitthvað skilja i ensku.
Hann heldur eitthvað áfram hér enn.
Fórxi Abrahams.
ÍFrh.í.
Af þessum stað hafði van der Nath
og félagi hans svo gott útsýni, að ekk-
ert minsta atvik duldist þeim. þeir
sáu að óvenjumikill asi var á þeim,
sem eftir sóttu og næstir þeim voru.
Bíðandi herflokkar og aðrir gangandi
þutu með flughraða niður hallann, og
á flatneskjunni skipaði herinn sór í
skotmannaraðir, sem þustu áfram með
miklum hraða gegnum kafgresið á
sléttunni og stefndu norður að háls-
unum. Stórskotariðli var fylkt og
sendi hann nokkrar sprengikúlur í
áttina þá, en með þvl að þær drógu
ekki nógu langt, tók hann sig upp
aftur og ók áfram. f>egf r komið var
hálfa leið út á sléttuna, varð fyrir
óvæntur farartálmi. Liðsmennirnir
þutu til og frá eins og mauraflugur,
er eiga þúfuna sína í stórhættu; en
þá var eykjum beitt frá, liðsmennirn-
ir gripu í hjólin og kerrurnar og fall-
byssurnar ultu hver á fætur annari
niður bratta brekku, sem fól þær sýn-
og þá sem þeim fylgdu.
— |>að rennur lækur þarna niður
frá, mælti Westhuizen og bætti siðan
við í bæðnisrómi:
— Hann er mjög stríður á þessum
tíma -árs.
Van der Nath kinkaði kolli. Hann
hafði um stund verið að hugleiða eitt-
hvað; honum fanst hann kannast við
sig þarna og var að reyna að rifja
það upp fyrir sér. Jú, honum skjátl-
aðist ekki; það var sami staðurinn
þar sem hann hafði eigi alls fyrir löngu
varist bak við yfirgefinn búgarðinn
hans Koopmanns. Lækurinn, sem fall-
byssurnar áttu að fara yfir um, var
sama vatnsfallið, sem eitt óvinaher-
fylki hafði leynst við, til þess að ginna
hann í fyrirsát. f>á hafði hepnin
bjargað flokki hans, og nú gerði læk-
urinn de Vlies mikinn greiða, með því
að tefja fyrir fjandmönnum hans. Að
hann kannaðist ekki undir eins við stað
inn kom af því, að þá hafði hann komið
að sunnan á sléttuna, eu nú var hann
staddur mörgum mílum vestar og kom
úr gagnstæðri átt. Minnið hjálpaði
honum og hann fann á sér, hvað gerst
hafði. Harn kinkaði kolli ánægður,
þegar bakliðsflokkur Búa valt sér inn í
skarðið á meðan Bretar voru að bjástra
við að komast yfir lækinn. Hann sá
nú glögt, hvernig farið hafði. Bretar
höfðu mist sjónar á síkvikum andstæð-
ingum sínum, höfðu þeyst tvo sólar-
hringa í áttina, sem þeir sáu þá halda
siðast, og því næst, er þeir urðu þess
varir, að Búar hefðu tekið nýja stefnu,
höfðu þeir sjálfir breytt til og rembst
við sem mest þeir gátu að vinna upp
aftur tímann, sem þeir höfðu mist;
loks höfðu þeir komist á snoðir um,
hvar þá var að hitta og ætlað sér að
koma þeim í opna skjöldu.
Hefði alt farið eins og til var ætlast,
heði orustau orðið Búum mjög skæð.
En de Vlies var var um sig að vanda.
Hann hafði notað tímann og farið
dagfari og náttfari, og þegar fjand-
mannaherinn kom loks á hæla honum,
hafði hann ekkert af því.
— Nú ríður á að komast til hans,
tautaði Westhuizen, þegar hann sá á
eftir síðustu Búunum norður rrr skarð-
inu.
Van der Nath svaraði engu, en sneri
he8ti sínum í austur og keyrði hann
sporum. |>að sem hann hafðí séð
gerði hann aftur stæltan og öruggan.
Og hann var samstundis viss um, hvað
sér bæri að gera. þeir urðu að kom-
ast fram hjá hernum, sem á eftir
sótti, ef til vilk eyða hálfum degi f
það, en tveir menn einir sér fara á
sama tíma þrisvar sinnum annan eins
veg og heilt herfylki á hergöngu, og
ef þeir yrðu eigi fyrir ófyrirsjáan-
legu farartáhni, gátu þeir verið vissir
um að komast til vina sinna síðari
hluta dagsinp. Hefðu þeir riðið í vest-
ur, mundu þeir hafa lent á braut
fjandmanna sinna, sem taka mundi
yfir allstórt svæði. þær liðsveitir, sem
3áu8t niðri á sléttunni, voru að eins
framliðið af Btórri herfylkingu, en
meginherinn sá hélt einnig í austur,
til þess að halda förinni áfram til
norðurs jafnskjótt sem færi gæfist að
sjá, í hverja átt de Vlies stefndi.
Ágizkun van der Naths stóð alveg
heima. þegar þeir Westhuizen voru
komnir að læknum, fundu þeir vað,
eftir að þeir höfðu leitað fyrir sér
stundarkorn, og voru brátt komnir yfir
um. þeir riðu gætilega út á sléttuna,
hina sömu sem þeir van der Nath
höfðu fengið eldskírnina á, gerðu dálitla
lykkju á leið sína norður á við, þótt
þá lentu þeir heldur nærri stórskota-
liðinu, er margir stóðu í vatni upp í
axlir og voru að fást við fallbyssurnar,
sneru þeir aftur til hægri handar og
lögðu leið sína að bæ Koopmanns, til
þess að reyna til að laumast þar að
húsabaki fram hjá óvinahernum.
Hversu vel sem þeir notuðu tímann
var þó brátt komið hádegi, enda máttu
þeir til að æja hestunum eina klukku-
stund.
Næsta blað
miðvikudag 3. júlí.
Til heimalitunar viljum vér
sérstaklega ráða mönnum til að nota
vora pakkaliti, er hlotið hafa verðlaun,
enda taka þeir öllum öðrum litum
fram, bæði að gæðum og litarfegurð.
Sérhver, sem notar vora liti, má ör-
uggur treysta því að vel muni gefast.
— I stað hellujits viljum vér ráða
mönnum til að nota heldur vort svo
nefnda Castorsvart, því þessi litur er
miklu fegurri og haldbetri en nokkur
annar svartur litur. Leiðarvísir á ís-
lenzku fylgir hverjum pakka. — Lit-
irnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á
íslandi.
Buchs Farvefahrik.
ALFA
margarine
ber nafn með
rentu:
hið fyrsta.
Brúkið því Alfa margarine.
Unglingspiltur
laghentur og hneigður tyrir smíðar
getur nú þegar fengið atvinnu; bezt
að pilturinn hefði numið eitthvað lít-
ið eitt í járnsmiði. Lysthafendur snúi
sér til verzl. Godthaab.
Stúlka
sem fær er um að taka að sér for-
stöðu við álnavöruverzlun, getur feng-
ið góða atvinnu nú þegar við stóra
verzlun á Vesturlandi. Tilboð og með-
mæli sendist á skrifstofu blaðsins fyr-
ir lok þessa mánaðar, merkt: X X y.
Heimiliskennari
óskast frá næstk. i. október. Æski-
legt að hann kunni að leika á hljóð-
færi. Menn snúi sér til Einars kaup-
manns Markússonar, Olafsvík.
NáttánifræðisféSasið
heldur aðalfund laugardag 29.
júní næstk., kl. 8 síðd., í húsi safns-
ins. Reikningar verða lagðir fram,
stjórn kosin og félagsmúl rædd.
Stjórnin.