Ísafold - 30.05.1908, Side 2

Ísafold - 30.05.1908, Side 2
-118 ISAFOLD andi orðum um enskan höfðingjalýð, fyrir margvíslega spillingu, er auður- inn væri undirrót að; allsnægtirnar gætu af sér taumlausa eyðslu, leti og ómensku m. fl.; hann (Fr. N.) hefði ekki getað haldist við innan um allan þann óþverra. Hann þrætti harðlega fyrir, að hann hefði nokkurn tima látið sér slik orð um munn fara eða þvi lik. Einhvern tíma í sumar kváðu þeir ætla að hittast, Játvarður konungurog Nikulás Rússakeisari. Hafa lagt með sér stefnu á sjó nærri Reval við Riga- flóa á skemtiskipum sínum. Keisari á ekkiundiraðhafa slikasamfundi á landi. Þar sítja flugumenn um hann og gesti hans hvar sem er. Heimsblaðið Times í Lundúnum, heimsins frægasta og veigamesta blað, 123 ára gamalt, er nú orðið eign hlutafélags, með nál. 13^/2 milj. kr. höfuðstól og i4/5 milj. kr. varasjóð. Sá hét John Walter, er það stofnaði (1785), og hafa niðjar hans, sonur og sonarsonur, ráðið fyrir þvi alla tið, ýmist haft ritstjórn beint á hendi eða verið alvaldir ráðsmenn yfir því. Fyr- ir hinu nýja hlutafélagi ráða 9 for- stjórar, og er formaður þeirra John Walter hinn fjórði; sú staða er áskil- in þeitn langfeðgum alla tíð, meðan til vinst. Frá Danmðrku. Þingi ólokið þar enn. Verið að herða sig að reyna að koma af réttarfarsnýmælinu marg- þvæida, stórskemdu og orðnu mjög kákkendu hjá Alberti. Toll-laganýmælið hafðist fram í önd- verðum þessum mánuði. Tillagan um rannsóknar-þingnefnd á hendur Alberti ótekin á dagskrá enn, en átti þó að gerast fyrir þinglok. Meiri háttar gjaldþrot komst maður í þar í Khöfn nýverið. Hann heitir A. N. Petersen og er málfærslumað- ur. Skuldir 800,000 kr. og reyndist hann eiga upp í það heilar 13,000 kr.l Hann hafði verið flæktnr mjög við húsagerðarbrall með tómu lánsfé. Nýlega eru dánir 2 merkismenn danskir: Paul la Cour prófessor, kenn- ari við lýðháskólann í Askov, og II. Frederik Ewald sagnaskáld og prófessor að nafnbót, maður rúml. hálfníræður, faðir Carls Ewalds skálds, er lézt í vetur. Paul la Cour var all-nafntog- aður vísindamaður, og eru eftir hann margar náttúrufræðibækur, en mestan orðstír gat hann sér fyrir töluvert á- rangursmiklar tilraunir að breyta vind- afli i rafmagn til lýsingar og vinnu- vélahreyfingar. Hann var ástsæltljúf- menni. E. Suenson kommandör, er verið hefir 34 ár framkvæmdastjóri Ritsima- félagsins mikla norræna í Khöfn og aflað því mikils gengis, lét af því embætti fyrir skemstu. Félagið hefir haft síðari árin 10 milj. kr. tekjur, þar af 8 milj. í gróða. Allmikið af höfuðstólnum eigaaðrarþjóðir, einkum Frakkar. Tíðarfar. Fyrsta laugardag í sumri (26/4) var blindbylur um Frakk- land og Þýzkaland og olli töluverð- um skemdum, en á Englandi eða í Ermarsundi fylgdi svo mikið fárviðri, að meira hefir ekki þar komið 27 'ár. Fellibylur gekk yfir nokkuð af Louisianaríki í Ameríku einu sinni um sumarmálin. Borg heitir þar Amite. Þar sat í einu húsi heima- fólk undir borðum, 7 manns. Einn forðaði sér út i tíma. Hinir 6 skriðu inn undir borðið. Veðrið reif upp 2 útihurðir hvora gegnt annari. Vind- strokan feykti þar í gegn um þvert öllum ósköpum, dauðu og lifandi, fyrst dauðum kálfi, þá hestskrokk o. s. frv. Rétt fyrir krossmessuna var svo mikilihiti á Spáni (40° C.), að kviknaði í húsum i Madrid eða því sem í þeim var, líkt og þegar kviknar í heyi, og urðu úr púðursprengingar; urðu 30 manns sárir, en 400 húsnæðislausir. Illvírki. Um konu eina, ekkju, í bænum Laporte í Indiana-ríki í Am- eríku, hefir komist upp i vor hroða- jeg illvirki, morð á 8—9 mönnum smámsaman á mörgum árum til fjár, og hafði hún dysjað líkin í húsagarðisínum. Loks kveikti hún í húsinu og gildr- aði svo til, að allir héldu að hún hefði brunnið inni ásamt dóttur sinni. Hinn siðasti, er hún kom fyrir, var unnusti hennar, og ritaði hún bróður hans bréf um, að hann hefði ekki, elskan sú arna, komið að heimsækja sig um hríð; hann væri farinn eitt- hvað, svo hún vissi ekki, og bar sig hörmulega. Þetta dygðum prýdda sómakvendi er norskt að uppruna, og hét þá Brynhildur Pálsdóttir, en nefn- ist nú frú Belle Gunnes. Hinn 7. þ. m. voru liðin éo ár frá því Franz Jósef Austurríkiskeis- ari tók þar ríki, þá 18 vetra. Sá fá- gæti afmælisdagur var hátíðlegur hald- inn í Vín og um ríkið alt með mik- illi viðhöfn. Níu þýzkir þjóðhöfð- ingjar heimsóttu hann og fyrir þeim Vilhjálmur keisari, er flutti honum fagnaðarkveðju í þeirra nafni allra. Þar kom Friðrik konungur VIII í sömu erindum. — Manúel konungur hinn ungi í Portúgal hefir gefið upp sakir öllum þeim þegnum sínum, er dæmdir hafa verið fyrir landstjórnarmála-afbrot, nema þeim er voru riðnir við aftöku föður hans og bróður í vetur. — Kínverjar eru langt komnir að koma sér upp óvigum her og vel tömdum að hætti Norðurálfuríkja. Þetta hafa þeir látið sér segjast á því að horfa á gengi nágranna sinna Japana, er peir gerðu þá breytingu á sínum háttum. Herinn verður 800,000 manna á friðartímum, en 4 milj. í ófriði. — Svíar eru að hugsa um að fara að keppa við Dani um stórskipaútgerð til Ameríkuferða. Félag eitt í Gauta- borghefirsótt um til þess um 10 milj. króna ríkissjóðsstyrk. Það ætlar að láta smíða sér 4 heimshafs-gufuskip, er eiga að kosta 21 milj. kr. For- maður félagsins eða framkvæmdar- stjóri heitir Lundgren. — Fyrir skömmu stóð í Péturs- borg með miklutn veg brúðkaup Vil- hjálms konungssonar frá Svíþjóð og frændkonu keisarans, er heitir María Pálsdóttir (Paulowna) föðurbróður Nikul. II og Alexöndru Georgsdóttur Grikkjakonungs. V élarbátarnir eru hið mesta þing til fiskiveiða, þeg- ar fiskur gengur eigi nógu grunt til þess að hægt sé að ná honum á opn- um bátum. Það ber kunnugum saman um, að lítið mundi aflast hafa í Vestmann- eyjum þessa nýliðnu vertíð á opna báta, og að sama muni vera að segja um ísafjarðardjúp. Eitt dæmið um mokfiskið í Vest- manneyjum er 22,000 fiska afli á 1 bát með 3 mönnum á. Búðarmaður einn í Vestm.eyjum (assistent) kvað hafa lagt inn að sínum hlut þessa ver- tíð 2000 kr. í fiski. Meðalhlutur á ísafirði á motorbáta þar 40 kr. á dag í allan vetur. Líklega enginn afli þar án þeirra, motorbátanna, er haft eftir kunnugum. Vestanmenn komu 12 á s/s Laura um daginn, alfluttir hingað, þessir: Arnór Árnason gullhreinsari, frá Chicago, með konu og dóttur. Hallur Ólafsson, áður bóndi (20 ár) á Grýtáreyri i Seyðisfirði. Hefir ver- ið 5 ár vestra, í Narrows-bygð í Manitoba, bjó þar búi sínu. Hann kom með konu sina, son og fóstur- dóttur. Helgi Þórðarson, ekkjumaður, upp- runninn úr Hrútafirði; 5 ár vestra. Þorsteinn Jóhannesson, Vopnfirð- ingur, rúmlega sjötugur. Hefir verið 32 ár vestra, lengst í Bandarikjunum. Þórður Halldórsson, úr Biskups- tungum, sextugur. Maria Johnsen, einhleyp yngisstúlka, fráSuðureyri í Tálknafirði; hefir verið 8 ár vestan hafs, alt af í Winnipeg. Gengimi af trúnni. Svo er að sjá, sem seyðfirzka stjórn- arblaðið Austri sé gengið alveg af trúnni. Blaðið tekur svo til orða 15. þ. m.: Það mun óefað mega telja það víst, að þessu frumvarpi milli- landanefndarinnar mun verða tek- ið með almennum óhug hér á landi og ekki likindi til annars en að þjóðin muni hafna því með miklum meiri hluta atkvæða og þá að sjálfsögðu fulltrúar hennar á alþingi. Vér getum eigi betur séð, en að hér sé stórt spor stigið aftur á bak frá sjálfstæði voru. Að ísland skuli vera ætíð og æfinlega hluti úr »alríkinu danska« og láta Dani jafnframt hafa á hendi utanríkismál vor — það er óhafandi, og hneisa fyrir oss, að binda slíkan klafa um háls vorn. Og vér teljum sennilegt, að eigi verði mikill flokkadráttur um þetta mál og að menn verði að mestu samtaka og lítið 'njáróma í þvi að hrópa hér: Vér mót- mælum allir. — — Það sem nú liggur fyrir er að fella frumvarpið, og það mun veitast létt. Grein sína endar blaðið á hinu nafnkunna erindi Stgr. Th.: Svo frjáls vertu, móðir, 0. s. frv. og undirstrikar: Og aldrigi, aldrigi bindi þig bönd, Nema bláfjötur Ægis um klettótta strönd. Undir greininni stendur »Ritstj«, til þess að ekki sé um að villast, hvers rödd hér mælir. Það voru almenn munnmæli hér i höfuðstaðnum í gær, að verið væri þá að reyna af öllum mætti að kristna aftur trúníðing þenna, í talsímanum, og að kristniboðinn við enda símans hérna megin væri hvorki meiri né minni maður en sjálfur hinn veraldlegi erki- biskup landsins, öðru nafni landsins sál. Sveitarstjórnarlaga-breyting. Þau eru nú á þriðja árinu, sveitar- stjórnarlögin nýju, frá 1905. En breytingar finst henni þurfa að gera á þeim, skattamálanefndinni. Þær eru þessar helztar: Niðurjöfnun sýslunefnda á hrepps- félög gerist eftir matsverði allra skatt- skyldra fasteigna og skipa, að einum þriðjungi, að öðrum þriðjungi eftir samanlagðri skuldlausri eign og tek- jum af eign og atvinnu, og loks að einum þriðjungi eftir tölu verkfærra karlmanna í hverjum hreppi. Gjald þetta alt greiðir oddviti sýslumanni úr sveitarsjóði á næsta manntalsþingi. Hreppsgjöldum sjálfum vill nefndin breyta þann veg, að fátækratíund af fasteign og lausa- fé sé af numin frá fardögum 1911; að sveitargjöld verði upp frá því þessi 6: 1. Fasteignarskattur af jörðum, hús- um og lóðum 8/10 af hundraði; 2. Tekjuskattur af eign og atvinnu, 4/2 af hundraði af fyrstu 1000 kr., er tekjurnar nema, en aukist eftir það um V2 á hverju þúsundi, sem þær hækka, alt að 6 af hdr.; 3. Eignarskattur af skuldlausri eign, Vio af hdr.; 4. Hreppsvegagjald D/4—3 kr. á hvern verkfæran mann, 20—60 ára; 5. Sýsluvegagjald annað eins, eftir því sem sýslunefnd til tekur; 6. Aukaútsvar eftir efnum og ástæð- um, eins og nú. Heimilt er hreppsnefnd með já- kvæði lögmæts sveitarfundar og sam- þykki sýslunefndar að hækka og lækka fasteignarskatt, tekjuskatt og eignar- skatt um eitt ár i senn eða tiltekið árabil. Hreppskilaþingin skal halda, þótt tiund hverfi úr sögunni, með því að á þeim er haust og vor framkvæmd ýms lögboðin störf, svo sem skatt- skrárframtal og hagfræðisskýrslna, hreppsnefndarkosning m. m., birting laga og stjórnarráðstafana o. fl. — Um þetta er eitt frv. nefndarinnar. Hreppsstjóralaun skulu vera 1 kr. fyrir hvern fullan tug hreppsbúa, minst 30 kr. Erl. ritsímafréttir til ísafoldar. Kh. 29. maí kl. 9,20 árd. Harden og Eulenburg. Dómurinn gegn Maximiian Harden ónýttur i rílcisrétti. Eulenberg fursta snarað í gœzluvarð- hald; sakaður um meinsœri. Friðrik konungur heimkominn úr Vinarför sinni á mið- vikudaginn. Sambandsmálið. Skúli Thoroddsen ritar í Politiken í dag aðfinslur við nefndarfrumvarpið. Stúdentar (isl.) halda fund bráðum. Þar talar Skúli. * * * Maximilian Harden, ritstjóri títna- ritsins Zukunýt, vann í haust meiðyrða- mál við Kuno Moltke greifa nokkurn, einn hirðgæðing Vilhjálms keisara og virktavin, er H. hafði dróttað að and- styggilegum saurlífisglæp, en inn í það mál hafði flækst annað stórmenni frá keisarahirðinni í Berlín og enn meiri alúðarvin keisarans, Eulenburg fursti, áður sendiherra í Vín. Því næst var höfðað sakamál gegn M.-H., út af sama efni, er féll á hann ; var dæmdur eftir nýárið í vetur i 4 mánaða fangelsi. Þeim dómi hefir því næst verið áfrýjað fyrir æðsta dómstól ríkisins, ríkisréttinn í Leipzig, og segir hrað- frétt þessi í dag, að sá dómur hafi verið ónýttur, og það með, að Eulen- burg hafi verið varpað í fangelsi fyrir meinsærisgrun. Hann hafði svarið þess dýran eið, að hann hafi ekkert unnið það, er á hann var borið, en það var hlutdeild í glæp þeim, er Kuno Moltke greifi hafði verið um sakaður. Keisari hafði vísað þeim báðum frá hirðinni, er að þeim bárust böndin um hið glæpsamlega athæfi, og viljað sízt láta hlífa þeim minstu vitund. Hann er sjálfur ntaður rnjög siða- vandur. Svo segja heimkomnir sambands- nefndarmeun, að það hafi ekki verið Kárafélagið, er fyrir fundarhaldi gekst um daginn út af sambandsnefndarálit- inu, heldur almenna stúdentafélagið íslenzka í Khöfn. Eftir þessu hrað- skeyti á þá að taka málið upp aftur þar. Má- vera, að þá lykti því öðru vísi í þann hóp. Reykjavíkur-annáll. Dánir. Friðsemd Ingibjörg Aradóttir, ekkja á Tóttum, sjötug, dó 16. þ. m. Guðmundina Jónina Jakobsdóttir yngis stúlka á Austur-Brekku, 27 ára, dó 20. Guðmnndur Einarsson, f. bóndi á Nýja- bæ í Meðallandi 40 ár, 78 ára,faðir Guðm. fátækrafulltrúa, dó 25. Hanna Sumpstead, ensk (kona vélmeistara á Geraldine), 45 ára, lézt 18. Katrin Ögmundsdóttir (Brekkust. 14), ekkja, 56 ára, dó 12. mai. Ragnheiður Ingimundardóttir Olsen, ekkja Jóh. Olsen og móðir Guðm. kauprn. Olsen, lézt 28., hálfáttræð. Ferming. Uppstigningardag voru fermd hér i frikirkjunni 53 börn, 33 piltar og 20 stúlkur. Þá eiga 80 börn að fermast á morgun i dómkirkjunni, fleiri en nokkuru sinni áður. Hjúskapur. Jóbannes Kristinsson i Arn- arholti og ym. Vilborg Steingrímsdóttir, 12. mai. Jón Ágúst Jónsson (Vg. 30) og ym. Mar- grét Gisladóttir, 16. maf. Jón Jónsson og ym. Þórunn Eyólfsdóttir (Brekkust. 3) 23. þ. m. Magnús Einarsson og ym. Helga Helga- dóttir (Lindarg. 28), s. d. Pétur Þórðarson (Glasgow) og ym. Elín Teitsdóttir, 29. maí. Sólberg Guðjónsson (Lindarg. 14) og ym. Þorsteinina Þorkelsdóttir, 16. mai. Valdemar Vilhelm Petersen bakari og ym. Luise Hansen, 24. mai. Þórður Sigfús Vigfússon skipstjóri frá Skildinganesi og ym. Þuríður Ólafsdóttir, 14. mai. Allar kaupakonar geta nú fengið leigða söðla hjá Sam. Olajssyni. Fjármark Boga A. Þórðarsonar, Lágafelli í Mosfellssveit, er biti ajtan hægra, gat vinstra, biti ajtan. Barnavagn til sölu. Rstj. visar á. Nýr fjórhjólaður erfiðisvagn með fjöðrum fæst mjög ódýr hjá Matthiasi Matthíassyni.________ Útsalaánýjum og gömlum reið- týgjuni með miklum afslætti, Lauga- veg 11. Smjör frá Ólafsdal nýkomið á Laugaveg 11. Jarðarför móður minnar, Ragnheiðar I. Olsen, sem andaðist aðfaranótt 28. þ. m., er áformað að fari fram, að forfallalausu, fimtu- daginn 4. juní, og hefst kl. ll‘/2 frá heimili minu. Guðm. Olsen. Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum að faðir okkar elskulegur, Guðm. Einarsson lést að heimili sínn, Grettisgötu 28, þ. 25. þ. m. Jarðarför hans fer fram 3. júni kl. II f. h Einar Guðmundsson. Guðrún Guðmundsdóttir. Guðm. Guðmundsson. Margrét Guðmundsd. Dánarfregn. Dáinn er 10. þ. m. merkisbóndinn Jón Árna- son á Eyjarhólum i Mýrdal í Vestur-Skafta- fellssýslu. Hans verður minst siðar. Saltað kjöt fæst i verzl. Jóns Þórðarsonar á 2/ aura pundið ef keypt eru minst 25 pd. í einu. Ennfremur fæst reykt kjöt og kæfa og óþrá tólg, íslenzkt smjör frá beztu heimilum o. m. fl. Stofiiplöntur fást hjá undirrituðum: Aralia 2,00 Aspedistra, grænar 2,50 — mislitar 3,00 Araucaria 3,00 Aucuba 2,00 Asparagus 2,00 Burknar, Adianthum 0,75 — Pteris 0,73. Einar Helgason. SamkYæmt askornn * sýnir norski skemtarinn Axel Böe aftur list sina 1 Bárubúð laugardaginn 30. þ. m. kl. S1/^ síðdegis og sunnu- dag 31. þ. m. kl. 8 síðd. Sjá götuauglýsingar. SkúfatYinninn er kominn aftur til Guðrn. Olsen. I fjarm bdí annast herra cand. juris Mag/nus Guðmundsson, hér í bænum, öll málfærslustörf fyrir mína hönd. Hann verður venjulega að hitta á skrifstofu minni kl. 5—8 e. h. Reykjavík, 25. maí 1908. Eggert Ciaessen, yfirréttarmálfærslumaður. Toiletpappír hvergi ódýrari ei.. 1 bókverzlun ísa- foldarprentsmiðju. Ibúð. 4—5 herbergja-ibúð, óskast til leigu 1. október næstkomandi. Tilboð merkt: 1 október, sendist afgr. ísa- foldar sem allra fyrst. Fermingargjafir. L. Wallace: Ben Hur, og fleiri góðar bækur í fallegu bandi. Guðm. Gamalíelsson, Lækjargötu 6 A. Sigurður Magnússon lœknir fluttur í Suðurgötu 8.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.