Ísafold


Ísafold - 22.07.1908, Qupperneq 3

Ísafold - 22.07.1908, Qupperneq 3
ISAFOLD 175 Vikursveitungum þann vitnisbur'ð, að þar í sveit finst enginu maður ómerkari til orðs eða æðis Guðjóni Guðlaugssyni sjalfum. Hólmavík, 20. júni 19^8. G. B. Scheving béraðslæknir. Með þvi að V e s t r i neitar mér um að taka þetta svar, neyðist eg til að leita því annarrar gistingar, og hennar margfalt betri að vísu; en fyrir þvi þykir mér þó vegna þess, að eg veit, að þar er jafnan húsfyllir, þótt búsakynni sé þar stórum meiri og betri en á nokkuru sams konar búi á landinu. G. B. S. Opið bréf til safnaðanna i Nesþingaprestakalli. Áður en eg fiyt mig frá yður alfar- inn, kœru safnaðarmenn, má eigi minna vera en að eg svari að einhverju leyti 3 bréfum yðar til min, dags. i síðastl. marzmánuði og undirrituðum af 500 safnaðarmönnum. Það var mér meiri en lítil gleði að verða þess áskynja af bréfum þessum, að eg eftir 26 ára veru á meðal yðar hafi áunnið mér það traust og vakið hjá yður þær velvildartilfinningar mér til handa, að þér svona margir skyld- uð finna ástœðu til að skora alvarlega á mig, að hálda áfrarn veru minni og starfsemi á meðal yðar, og láta með skýrum orðum i Ijósi, að þér munduð endurkjósa mig, hverir sem kynnu að verða í kjöri. Eg hlýt að vera yður innilega þakk- látur fyrir þann heiður, sem, þér þann- ig hafið sýnt mér og eg met miklu meira en alla titla og tignarnöfn. Þó að eg alls eigi efi, að áskoranir yðar og tilmæli til min séu fram kom- in af hreinum og einlœgum hvötum, slœr það nokkrum skugga á gleði mína, að mér finst eg ekki hafa lifað og starfað svo á meðál yðar, að eg sé verðugur þess trausts yðar og velvildar, sem kemur fram i bréfum yðar. Eg hefði þvi reynt að afstýra því, að bréf þessi yrðu samin, ef mér i tima hefði verið kunnugt um áform yðar. Manninum, sem liafði sagt í Reykja- vik, að eg vœri í pukri að safna undir- skriftum undir áskoranir til mín um að verða hér kyrr, skal verða það kunn- ugt, að liann hefir farið þar m.eð al- gerlega ósatt mál, því eg þori óhrædd- ur að vitna til hvers einasta á meðal yðar, að eg hafi ekki með nokkuru ein- asta orði gefið tilefni til samningar bréfanna, sem eg liafði ekkert hugboð um fyr en þau bárust mér í hendur. Eg minnist þess að eins i þessu sam- bandi, að einn mikilsvirtur maður í Hellnasókn spurði mig í vetur, hvort það mundi hafa áhrif á áform mitt að fiytja mig héðan, ef' almennar áskor- anir kæmu til min um að gera það ekki. Kvað eg skýrt nei við þvi og bað manninn sjá um, að það yrði ekki gert, enda hefir mér engin áskorun borist þaðan i þessa átt. Það yrði hér of langt mál, að skýra frá öllum ástæðum fyrir þvi, að eg gat ékki orðið við tilmœlum yðar að sœkja aftur um Nesþingaprestakall. Með vaxandi aldri hafa erfiðleikarn- ir á að þjóna þessu fólksmarga og víð- áttumikla prestakalli aulcist í augum minum, og eins og þér vitið, hefi eg flest embœttisár mín á meðal yðar haft að gegna öðrum umfangsmiklum störf- um og sumum alls ekki prestslegum. En þar sem þér hingað til hafið eigi getað treyst öðrum en mér til að liafa þau á hendi, sá eg mikla erfiðleika á þvi að losna við þau á annan hátt en að ftytja mig héðan. Eg verð einnig að játa, að hin mikla sorg, sem eg varð fyrir fyrir 4 árum, hefir dregið ur kjarki minum og áræði til að beitast fyrir ýmsum málum, sem eg vann að áður með ánœgju og gleði. Vonin um, að tilbreyting á verksviði muni geta hrest svo huga minn, að eg geti unnið eitthvert gagn í minni verka- hring, og mjög hlýlegar viðtökur þess nýja safnaðar, sem kosið hefir mig fyr- ir sóknarprest, sinn, hafa mikið ráðið úrslitunum, í sambandi við þá von mina, að það verði yður til góðs, að eg fari héðan, að eftirmaður minn verði mér miklu fœrari til að vinna yður gagn og efia heill yðar bœði andlega og lík- amlega. Hins vegar veit eg með vissu, að eg muni jafnan að mörgu legti sákna þessa héraðs og þessa safnaðarfólks. Hjá yður er eg fæddur og hjá yður hefi eg dvalið meiri hluta lifdaga minna, og römm er sú taug, er rekka dregur föðurtúna til. Eg skil við yður með þeirri hugljúfu vissu, að eg eigi meðat yðar marga góða vini, sem eg mun aldrei gleyrna. Eg kveð yður með innilegu þakklœti fyrir samveruna, og með þeirri hjartans ósk, að góður guð, sem blessað hefir okkar löngu sambúð, styrki yður, gleðji og farsœli um alla tíma. Ólafsvik, 8. júlí 1908 Helgi Arnason. Háskólapróf, Heimspekisprófi við Khafnarháskóla iauk í f. m. um fram þá, sem neftidir voru í síðasta blaði: Magnús Jónsson frá Bjarnarhöfn, með ágætiseinkun. í»ey tisp.j al diö. Ekki vaið úr, að ráðgjafi þeysti norður Sprengisand eftir Rangárvalla- förina. En i gærkveldi lagði fylgdar- rnaður hans, landsdyravörðurinn (M. V.) á stað norður fjöll með reiðhest- ana hans, til Aknreyrar; þeir eiga að vera til taks til nýrrar yfirreiðar um kjördæmi hans og líklega nálæg kjör- dæmi norðanlands, er hann stigur þar á land af Fálkanum danska, sem kvað ætla að skjóta honum þangað í næstn viku eða fyr, — til framhalds hinu fyrra ferðalagi með hann landshorn- anna í milli, þessu sem lauk á Isa- firði í f. mán. við lítirin orðstír. Af Hjói’sárbrúaf fumlimim 14. þ. mán. hafa komist í blöð fleiri en stjórnar-sannsöglistólin skrök- sögur um atkvæðasigur þar fyrir ráð- gjafann eða Uppkastsmenn: 2X13 með stjórninni, en 1 j á móti. Undir- rót þess samsetnings er líklega sú, að við atkvæðagreiðslutilraunirnar um tillöguómynd fundarstjóra taldist fund- arstjórninni koma upp 20 [ekki 26) hendur með henni, af um 120 kjós- endum á fundi. En er þar í reynd- ust vera einhverir utanhéraðsmenn (Arnesingar), var hún lýst ógild. Gagn- atkvæði tnldist sumum færri, en sum- um fleira. Og er ný tilraun til at- kvæðagreiðslu lenti í enn meiri glund- roða, lýsti sjálfur fundarstjóri, sem var þó allur á bandi fneð Uppkasts- mönnum, alt það atkvæðagreiðslu- brask markleysu og lét bóka, að eng- in atkvæðagreiðsla hefði orðið. — Fundarmönnum fanst auk annars sjálf tillagan vera lokleysa. Kyeðjurnar vestan um haf. Innilegasta fagnaðarefni eru oss hin- ar ásthlýju og drengilegu kveðjur landa vorra vestan hafs, hinar djarfmannlegu uppörvanir þeirra og áskoranir um, að láta hvetgi bugast né blekkjast, er verið er að freista vor á alla lund til að láta leggja á oss fjöturinn geigvæn- lega, Gleipni hinn nýja. Allra manna fyrstir urðu þeir, Vest- ur-íslendingar, til þess að sjá í gegn- um blekkingarmóðuna, sem var ætlast til að glepti oss sýn, er tekið var til að hampa framan í oss Uppkastinu al- ræmda. Þeir sáu á augabragði, að hér var í boði innlimun og annað ekki, rammariv og hættulegri innlimun en nokkuru sinni áður. Blöð þeirra hafa einum rómi kveðið við þann tón og tekið í þann sama streng. Þar hafa þau bælt niður alla misklíð og sundr- ung sín i milli. Orðið öll samróma, er svo mikið lá við. Það átakanlega hefir blóðið runnið til skyldunnar. Samdrátturinn vor í milli, þjóðar- hlutanna beggja megin hafs hin síðustu missiri, hefir verið öllum sönnum ís- lendingum mikið gleðiefni. Maklegar þakkir höfum vér vottað vestanmönn- um fyrir það, að þeir höfðu upptökin að þeim samhug, er fyrnefndur sam- dráttur hefir af runnið. Vinarhótin komu fyrst frá þeim. En nýjustu kveðjurnar snertahjörtu vor enn innilegar en nokkurt skeyti áður. Það eru hraðskeytin um fundina, sem landar hafa haldið þar vestra, annan i Bandaríkjum, en hinn í Can- ada, og hafa liklega verið allsherjar- fundir meðal landa á báðum stöðum. Skilnaðaráskorun þeirra fær vafalaust góðan j.arðveg hér mjög víða, ef leit- að er inst í hjartarótum góðra íslend- inga hérnamegin hafs. Hitt er annað mál, hvern árangur hún ber í verki. Að svo stöddu er hugsun Sjálfstæðis- manna sú, að leita hófanna langt um betur en gert hefir verið um samkomu- lag við Dani, meðal annars og ekki sízt vegna þess, að skilnaðarráða- brugg að þeim nauðugum munu þeir þykjast geta farið með eins og upp- reistartilraun, er þeim beri að bæla niður með valdi. Og í þann streng má búast við að allmargir landsmenn verði til að taka, einkum þeir, er völdin hafa í landi voru, alt frá ráðgjafanum og niður til hinnar lítil mótlegustu hreppstj óranefnu, þóttþar frá megi nefna margar og mjög mik- ilsverðar undantekningar. Þar er það sem gerir ástandið vor á meðal svo hryggilegt, að þjóðin er tviklofin, og það svo jafnt, að varla má í milli sjá. Fyrrum voru fylgismenn hins er- lenda valds ekki nema örlítið brot af þjóðinni. Það var hið konungkjörna lið á þingi og örfáir aftaníhnýtingar þess, helzt danskir kaupmenn og þeirra þjónar. En nú er konungkjörni flokkurinn í raun réttri meira en helmingur al- þingis eða var á síðasta þingi, og þar með ef til vill hátt upp í helming kjós- enda í landinu. Sá hefir orðið ávöxturinn af »heima«- stjórn þeirri, er vér höfum haft síðan 1904, — heimastjómar-afskræmi því, er þá komst á laggir, en er og hefir verið alla tið öllu magnaðri Hafnar- stjórn en nokkuru sinni áður. í þeim raunum eigi hvað sízt eru kveðjurnar nýjustu vestan um haf ó- metanleg huggun og hressing. Stykkishólmsbryggj an. Sumpart að láni og sumpart að gjöf tókst fyrv. þingmanni Snæfell- inga að hafa út úr landssjóði að nauð- synjalitlu 15 ,000 kr. tii hafskipabryggju í Stykkishólmi. Hann mun hafa tal- ið sér það byrvænlegt til kjörfylgis, og gert sér von um, að síður mundu augun á því fest af almenningi innan héraðs, hver böggull fylgdi því skamm- rifi: að stórfé þyrfti að leggja til fyrir- tækisins annarstaðar frá, bæði að láni og gjöf. Landsstjórnin lét síðan lands- v^rkfræðing Þorv. Krabbe mæla og segja fyrir um tilhögun á verkinu. Hann vildi Iáta bryggjuna liggja fram yfir Stykkið svo nefnt á höfninni og gera hafskipaklöpp framan við end- ann á bryggjunni þar, gegnt Súgandis- ey. Kostnað til þess áætlaði hann 38—40 þús. kr. Eftir það tók íslenzk- ur hafnarmannvirkjasmiður, Guðm. Guðmundsson (ættaður úr Rvik, en hefir verið 20—30 ár erlendis) að sér bryggjugerðina fyrir 38 þús. kr. En eftir að hann er langt kominn með töluvert af henni, frá landi, er farið að inna eftir við skipstjóra á gufu- skipum þeim, er búist er við að bryggjuna mundi nota eða haískipa- klöppina, hvernig þeim lítist á hana þann veg gerða. Þeim bar þá öllum sam- an um það, Aasberg á Láru, Gott- fredsen á Vestu og Em. Nielsen á Sterling, að ekki væri nokkurt viðlit að leggja skipum þeirra né öðrum hafskipum í sund það hið örmjóa, milli Stykkisins og Súgandiseyjar, er hafskipaklöppin á að liggja við öðrum megin eftir fyrirsögn Krabbe; þau hefðu þar ekkert svigrúm. Eigi því verk þetta að koma að nokkurum notum, verður að láta bryggjuna beygja þvert úr leið, er að Stykkinu kemur úr landi, og vestur fyrir oddanti á því, og gera par hafskipa- klöpp mót vestri. Þar er nóg dýpi og nægilegt svigrúm fyrir stórskip. En í hornunum, sem verða innan eða austan við hafskipaklöppina með þess- ari tilhögun, má leggja smáskipum, sinu í hvort horn, til fermingar og affermingar. En 15 þús. kr. er ætlað á, að breyting þessi muni kosta, — hvaðan sem það fé verður tekið. Þá kemst bryggjan upp í 50—60 þús. kr., í stað 10—15, er gert var ráð fyrir upphaflega. Svona reiðir af pessu glappaskoti stjórnar vorrar: að bera eigi málið undir þá menn, er hafskipaklöppina skyldu nota og skyn bera á, hvort slíkt mannvirki kemur að tilætluðum notum, fyr en langt um seinan. Það annað finna skynbærir Hólm- verjar og aðrir Breiðfirðíngar að bryggju- gerð hr. Þ. Krabbe, að hann hafi óþarflega mjótt milli stöpla undir bryggjunni og langt nm of þröngt fyrir hið mikla ísrek úr Hvamms- fjarðarstraumunum alræmdu. Bryggjan verði fyrir það vonargripur. Kaupskipafregn. Hér kom 10. þ.m. gufuskip Norröna (354, R. Langeland) frá Leith með kofafarm til Ól. Johnson & Kaaber. Ennfremur s. d. gufusk. Atlantis (734, Nielsen) frá Leith með kolafarm til Bj. Guðmundssonar kaupmanns. Þá kom 16. þ. m. gufuskip Tryg (478, T. 0. Falck) frá Burntisland með kolafarm til Thomsens Magasín. 20. þ. m. gufuskip Suldal (265, Elling- sen) frá Leith með ýmsar vörur til Edin- borgarverzlunar. Loks kom 22. þ. m. gnfuskip Modesta (308, Röjenæs) frá Ardrossen, með saltfarm til h/f Thorsteiusson & Co. Þeir, sem hafa hugsað sér að fara með Ingólfi skemtiferð til Vestmann- eyja næstkomandi föstudag, eru beðnir að segja til þess í afgreiðslu bátsins og kaupa sér farseðla fyrir kl. 8 á fimtudagskvöld (á morgun). I»Ú sem tókst sjalið í forstof- unni í Aðalstræti 9 ættir að hafa vit á að skila því tafarlaust, að öðrum kosti verður þess vitjað af lögreglunni. Peningabudda með nál. 12 kr. týndist nýlega í Hafnarstræti. Sá er skilar henni til J. Aall-Hatisen í Þing- holtsstræti 28 fær rífleg fundarlaun. Enskar húfur. Stærsta úrval í bænum — mörgum hundruðum úr að velja í Vesturgötu 11. Harmoiíiumskdli Ernst Stapfs, öll 3 heftin, f bókverzl- un ísafoldarprentsm. Viðskiítabækur (kontrabækur) nægar birgðir nýkomnar í bókverzlun ísafoldarprentsmiðju. Verð: 8, io, 12, 15, 20, 25 og 35 aurar. THE NORTH BRITISH ROPEWORK Co. K i r k c a 1 d y Contractors to. H. M. Government búa til rússneskar og ítalskar fiskilínur og færi, alt úr bezta efni og sérlega vandað. Fæst hjá kaupmönnum. Biðjið þvi ætíð um Kirkcaldy fiskilínur og færi, hjá kaupmanni þeim er þér verzlið, því þá fáið þér það sem bezt er. SKANDINAVISK Exportkaffi-Surrognt Kebenhavu. — F. Hjorth & Co. 148 loið! Hún gat ekki hugsað sér hann neitt öðruvísi en hann var. í sömu svipan sá hún bregða fyrir við hliðina á sér andliti, sem henni hefði einhvern tíma þótt vænt um. |>að leið fram með hlið hennar vinstra megin, yndislega skýrt. |>etta skifti brosti ekki andlitið. Varirnar vipruðust eins og i kvölum, og hún bú ómælanlegar þjáningar í svípnum kring um munninn. Ingiríður staldraði við á forstofu- riðinu og horfði á andlitið. f>arna sá hún það fyrir sér á sifeldu hviki, og ekki hægra að höndla það en sólar- geisla, sem leika frá skygðum glerfleti á kertahjálmi, en jafn-sýnilegt, jafn- verulegt. Henni varð hugsað til þess, sem húu hafði séð áðan; en þetta var ekkert svipað því. jpetta var veruleiki. þegar hún hafði horft stundarkorn á andlitið, tók það til að hreyfa var- irnar; það talaði, en hún heyrði ekk- ert hljóð, ekki hið minsta. f>á fór hún að vita, hvort hún gæti ekki sóð, hvað það sagði; hvort húu gæti ekki lesið orðiu á vöruuum, eius og heyru- I4d arleysingjai1 gera, — og það tókst. — Láttu mig ekki fara, sögðu var- irnar, láttu mig ekki fara I En skelfingin í orðunum, röddinni, augunum! |>að hefði ekki haft meiri áhrif, þó að maður hefði legið fyrir fótum hennar og grátbænt hana að gefa sér líf. Hún var svo gagn* tekin, að hún nötraði eins og hrísla. Sárbitrari skelfingarorð hafði hún ald- rei heyrt, aldrei á æfi sinni. Aldrei hafði hún haldið að bænarkvak nokk- urs manns gæti verið svona þrungið af ofboðslegri angist. þrásinnis báðu varirnar; Láttu mig ekki fara. Ug alt af jókst angistin meir og meir. Ingiríður skildi það ekki; hún Btóð grafkyr og var gagntekin af meðaum- kun, meiri en avo, að orðum verði að komið. Henni fanst, að þegar svona væri beðið, þá væri um miklu meira en lífið að tefla; sálin sjálf væri í veði. Varirnar voru hættar að hreyfast; örvæntiugarangistin á andlitinu tekin að sljófgast, munnurinn var hálf-opinn. jpegar húu sá þeuna sljóleikasvip á m hún við og brosti eins ög píslarvotfcút. Meira sagði hún ekki. Hún gekk út, f>ær jústizráðsfrúin og Stafa horfðu undrandi hvor á aðra. f>ær tóku að ráðgast um, hvar henni yrði komið fyrir. En þegar jómfrú Stafa kom niður í herbergi sitt, sat Ingiríður þar með gítarinn i kjöltunni. Hún söng með gítarleiknum. Og beiut á móti henni sat Gunnar og hlustaði á með sól- skinsljóma um alt andlitið. Áttundi kapltuli. Upp frá því er Ingiríður hafði þekt aftur stúdentinn, að hann og enginn annar var vitfirringurinn, upp frá því hafði hún ekki um annað hugaað en að reyna að lækna hann. En erfitt var það; það vissi hún. Og erfiðast af þvf, að hún hafði enga hugmynd um, hvernig hún ætti að fara að þvf. Fyrst um sinn ætlaði hún sér ekki rneíra en það, að fá hann til að vera heima. Og það tókst henui furðu-hæg- lega. |>oliumóður þreyði hann ogbeið frá 145 borðinú. farna hafði hún Setið inni og fundist svo glögt, að alt þetta væri að gerast, að hana furðaði mest á því, að frúin skyldi vera þarna alein, og enginn svartur ökusleði við dyrnar. Jiistizráðsfrúin hafði hringt á jómfrú Stöfu, en hún kom ekki inn. f>á bað hún Ingirfði að fara fram og kalla á hana; hún væri víst inni hjá Bér. Ingiríður fór fram, og inn í herberg- ið hennar. f>að var lítið og blátiglótt — og tómt. f>á ætlaði hún fram í eldhúsið, að spyrja stúlkurnar að henni, en áður en hún bafði lokið upp hurð- inni heyrði hún til Gunnars. Hún staldraði við, en langaði ekki tii að sjá hann, hafði ekki skap til þess. Og þó reyndi hún að fá það af sér. Ekki var það honum að kenna, þó að hann væri ekki sá, sem hún hafði vonast eftir. Hún varð að reyna að gera eitthvað fyrir hann. Hún varð að tala við hann og reyna að fá hann til þess að vera heima. Ekki hafðt hún borið neina óvild til hans framan af. Ekki fyr en vonbrigðin komu til, — en ekki voru þau honum að kenna. Og hann sem hafði verið svo góður.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.