Ísafold - 20.02.1909, Page 2
42
ISAFOLD
Seyðisfjarðar-kosnmgin.
Síðari þáttur þeirrar gjörðar á al-
þingi fór fram í fyrra kveld, á sam-
einuðu þingi, — um það, hvort taka
skyldi keppinaut dr. Valtýs um Seyð-
isfjarðarkjördæmið gildan á þing, eða
honum skyldi frá vísað og efnt til
nýrrar kosningar svo bráðlega sem
lög leyfa.
Málalok urðu þau, að honum var
frá vísað með 30 atkv. gegn 8.
Og er því kjördæmi það þing-
mannslaust að svo stöddu.
Hér kom þá að því, sem ísafold
taldi við búið, eftir hina meingölluðu
kosning á Seyðisfirði í haust, að kjör-
dæmið yrði þingmannslaust, nema dr.
V. G. vildi fallast á heilræði blaðsins
og leggja niður þingmensku svo
snemma, að hægt væri að kjósa af
nýju fyrir þing.
Þessi málalok mælast sjálfsagt vel
fyrir. Þau sýna mjög greinilega, að
meiri hlutinn á þ e s s u þingi notar
ekki vald sitt til þess að dæma sér í
vil. Allir vita, að hans flokksmaður
er það eindreginn, sem hún vísar frá
með þessum úrskurði. Og þykir mörg-
um vafasamt, hvort eldri meiri hlutinn
hefði gert það.
Röksemdir með og móti sjást bezt
á eftir farandi nefndaráliti, og er
meiri hluta álitið frá þeim Kristjáni
Jónssyni, }óni Magnússyni og Lárusi
H. Bjarnasyni, en minni hl. eftir þá
Bjarna frá Vogi og Skúla Thoroddsen.
Umræður urðu talsverðar um mál-
ið, og lauk með þeim atkvæðamun
sem fyrir segir.
Þessir 8, sem atkv. greiddu m ó t i
þvi að vísa síra B. Þ. heim, voru
Benedikt Sveinsson
Bjarni Jónsson frá Vogi
Björn Sigfússon
Hannes Þorsteinsson
Jens Pálsson
Jón Þorkelsson
Sigurður Hjörleifsson
Skúli Thoroddsen
Álit meiri hlutans.
Undirritaður meiri hluti nefndarinn-
ar hefir komist að þeirri niðurstöðu,
er nú skal greina.
Það er engum efa undirorpið, að
alþingi sjálft hefir fullnaðarúrskurð-
arvald um það, hvort taka skuli
kosning þingmanns gilda eða eigi;
um hitt er aftur deilt, hve víðtækur
þessi réttur sé. Mál þetta virðist
verða að vera komið undir því fyrst
og fremst, hvernig skilja beri 29. gr.
stjórnarskrárinnar. »Alþingi sker sjálft
úr, hvort þingmenn þess séu löglega
kosnir«, og nánara virðist það atriði,
sem hér ræðir um, vera komið undir
því, hvað eigi að skilja hér við orðið
»þingmenn«. Meiri hluti nefndarinn-
ar virðist að við »þingmenn« í þessu
sambandi sé átt við þá menn, sem
eftir þann undirbúning, sem við á,
hafa verið úrskurðaðir af yfirkjörstjórn
viðkomandi kjördæma, þingmenn kjör-
dæmanna (sjá 48. gr. kosningarlag-
anna). Eftir nýafstaðnar almennar
kosningar koma þessir menn saman
á alþingi og dæma um kosningu hver
annars, og sem sönnun þess, að þeir
séu »þingmenn þess« (alþingis) eiga
þeir að hafa skírteini frá yfirkjörstjórn,
kjörbréf. Að þeir séu þingmenn áður
en kosning þeirra er tekin gild af al-
þingi, það sést berlega af 1. gr. þing-
skapanna, meðal annars og af kosn-
ingalögunum (t. a. m. 52. gr. »að eins
eigi lýsa neinn þingmann kosinn«,
o. s. frv.). Á hinn bóginn verður
eigi fundin, hvorki í þessum nefndu
lögum eða öðrum, nein bending um
það, að neinir aðrir en þeir, er úrskurð
kjörstjórnar hafa fyrir því, að þeir
séu þingmenn, geti orðið »þingmenn«
alþingis. Þingsköpin gera ekki ráð
fyrir því, og það eitt út af fyrir sig
er í rauninni nóg sönnun fyrir því,
að það megi ekki eiga sér stað, því
að þau lög eru svo nákvæm, að álíta
verður að þau tæmi efnið að þessu
leyti. Þegar kosning þingmanns því
er ógilt, liggur eigi annað fyrir en
uppkosning.
Tillaga meiri hluta nefndarinnar
verður því sú, að krafa síra Björns
Þorlákssonar um að verða viðurkend-
ur þingmaður Seyðisfjarðarkaupstaðar,
verði ekki tekin til greina.
Álit minni hlutans.
Við höfum eigi orðið á sama máli
sem hinir þrír nefndarmennirnir.
Alþingi feldi þann úfskurð ié. þ.
m., að Valtýr háskólakennari Guð-
mundsson sé eigi rétt kjörinn þing-
maður fyrir Seyðisfjarðarkaupstað.
Eftir málavöxtum liggur það eitt í
þessum úrskurði, að keppinautur hans,
Björn prestur Þorláksson, hafi fleiri
gild atkvæði en hann. Nú er enginn
sakaður um neina lögleysu eða yfir-
sjón þeirra manna, er kosningunni
stýrðu, en það eitt var deilt um,
hverja seðla skyldi telja ógilda. Af
þessu leiðir, að sá er rétt kjörinn,
sem fleiri gild atkvæði fekk. Nú taldi
kjörstjórn Valtý fleiri atkvæði og gaf
honum því kjörbréf, en eftir dómi al-
þingis, æðsta úrskurðarvalds í málinu,
hefir Björn haft fleiri atkvæði og er
því kjörbréf Valtýs ónýtt frá þeirri
stund, er sá úrskurður kom. En kosn-
ingin sjálf fór að öllu löglega fram
og hlýtur þvi að vera gild engu síður
en aðrar kosningar. Það eitt breyt-
ist, að annar maður hefir orðið fyrir
kjöri en sá, er kjörstjórnin taldi. Og
atkvæðamat hennar, sem nú er dæmt
og felt, getur í engu raskað rétti hins
kjörna manns eða kjósenda hans. En
hann er sá, að alþingi skeri úr, hvort
hann sé löglega kosinn, svo sem fyrir
er skipað í 29. gr. stjórnarskrárinnar.
Getur enginn vafi á því leikið, að
hann sé »þingmaður þess«, er hann
hefir fengið meiri hlut atkvæða, þótt
hann hafi eigi kjörbréf. Því að rangt
atkvæðamat kjörstjórnar var því til
fyrirstöðu, en annað ekki. Réttur al-
þingis er því skýlaus að úrskurða um
kosning Björns eins og hverja aðra
kosningu.
En vilji þingið nú ógilda þessa
kosningu, þá virðir það eigi anda lag-
anna, gætir eigi réttar hins kjörna
manns, Björns Þorlákssonar, né kjós-
enda hans, og afsalar sér valdi sínu
í hendur kjörstjórna, ef það þykist
eigi hafa heimild til að samþykkja
kosningu Björns. En slíkt getur leitt
til hins mesta háska. Þvi að ef kjör-
stjórn legst fast í móti þingmanns-
efni, þá þarf hún eigi annað til þess
að bægja honum frá en að gera svo
marga af seðlum hans að vafaseðlum, að
hún geti gefið keppinaut hans kjör-
bréf. Ef alþingi telur sér þá eigi
fært að viðurkenna kosning hins of-
sótta manns, þótt hann hafi meiri hlut
atkvæða eftir þess eigin dómi, en legg-
ur til að kosið sé aftur, þá má enn
leika sama leikinn, og svo koll af
kolli.
í fám orðum sagt: Kosningin á
Seyðisfirði fór löglega fram, og er sá
því rétt kjörinn, sem fleiri gild at-
kvæði hefir fengið. — Kosning fer
eftir atkvæðatölu, en ekki eftir hinu,
hvorum eða hverjum kjörstjórn fær
kjörbréf, og er því Björn Þorláksson
rétt kjörinn, úr því alþingi hefir úr-
skurðað svo sem það gerði. — Hann
er því þingmaður, og á því 29. gr.
stjórnarskrárinnnar hér við.
Alþingi á því að okkar dómi það
eitt óunnið í þessu máli, að gjalda já-
kvæði við að Björn prestur Þorláks-
son sé rétt kjörinn þingmaður Seyðis-
fjarðarkaupstaðar.
Ýmsar nefndir.
Aðflutningsgjaldshækkun til bráða-
birgða (Nd): B. Kr., fóh. Jóh, J. Ól,
Jón Sig, Magnús Blöndahl og ÓI.
Briem.
Byggingarsjóður (Ed): Sig. Hjörl.,
Jens P, Júl. H.
Dánarskýrslur (Ed): Ág. Flyg,
Gunnar Ól, Sig. Hjörl.
Ellistyrkur (Ed); Eir. Briem, Jósef
Bj, Kr. Dan.
Fiskimat (Ed): Ág. Fl, Sig. Hjörl,
Sig. Stef.
Háskóli og háskólakennaralaun, 2
frv. (Ed): Ari Jónss, Jens P, Lárus,
Sig. Hjörl, Stef. Stef. (kgk.).
Prestalaun (Ed): Eir. Briem, Jens
P, Jós. Bj, Sig. H, Stgr. J.
Skóga meðferð (Ed): Jós. Bj, Júl.
H, Kr. Dan.
Varabiskup (Nd): Eggert P, Jón
Þork, Sig. Gunn.
Stjórnar8krármálið.
Frumvarpið það, að mestu leyti
dilkur við sambandsmálið, var á dag-
skrá í Nd. í gær.
Ráðgjafinn rakti nokkuð breyt-
ingarnar og taldi rök fyrir þeim. Um
afnám konungkjörinna þingmanna
kvaðst hann fara eftir því, sem hann
vissi vera orðinn almennan þjóðarvilja.
Björn Jónsson kvað það allrar
viðurkenningar vert, enda mál til
komið, að sú stofnun sykki i sög-
unnar, ef ekki gleymskunnar djúp;
sú sveit hefði nú verið meðan vært
var og setið meðan sætt var.
Þá taldi hann og þakkar vert, að
hér væri gert ráð fyrir jafnrétti karla
og kvenna um afskifti af lögum og
landstjórn, en hefði heldur kosið, að
fyrirmæli um það, um kosningarrétt
og kjörgengi kvenna til alþingis, væri
nú beint fyrirskipuð í stjórnarskránni,
heldur en að draga það þangað til ef
þinginu þóknaðist að veita þau rétt-
indi með sérstökum lögum einhvern
tíma og einhvern tima. Loks kvaðst
hann hafa búist við, að nú hefði
verið sætt færi að afnema tvískifting
þingsins, sem hefði alla tið haft lítið
við að styðjast, en nú ekki neitt, er
konungkjörnir þingmenn yrði úr lög-
um teknir. Benti á þingtilhögun Finna,
sem hefði tviskiftingarkostina alla, þar
sem nokkur ástæða væri til hennar,
svo sem gagnger stétta munur, en
væri laus við ókosti hennar hina
miklu og mörgu.
Ráðgjafi taldi konungkjörna þing-
menn marga hafa reynst mjög nýta
menn á þingi [sem er sitt hvað, eða
að mæla með stofnuninni, — þeir hinir
sömu mundu hafa verið engu miður
nýtir þjóðkjörnir], þótti kvenfólkinu bet-
ur henta að hafa tíma til að búa sig
undir hin nýju, miklu réttindi, og
kvað undarlegt, að vilja nú afnema
tvískiftinguna, en hafa ekki nefnt það á
nafn við hinar fyrri stjórnarskrár-
endurskoðanir.
Björn Jónsson kvað þá mundu
hafa verið gert sér að reglu að miða
mest við, hvað fáanlegt mundi hjá
Dönum eða fyrir þeim, en allir gengið
að því vísu, að slíkt mætti þeir ekki
heyra nefnt á náfn, úr því að tví-
skiftingin er í lögum hjá þeim. Ilt,
að kvenþjóðin yrði lengi vonbiðlar
að auknum réttindum, sem hefði verið
haldið fyrir þeim af tómum rangind-
um; en svo gæti farið, ef veiting
þeirra réttinda yrði látin vera komin
undir lögum frá þinginu siðar, sem
enginn vissi, hvernig þá kynni að
verða skipað, auk þess að svo g æ t i
farið, e f þessi stjórnarskrárbreyting
yrði látin standa og falla með fyrir-
huguðum sambandslögum, að þar yrði
nokkurra (8—10) ára bið á.
Ræðum. tók það fram, að hann
takði hér eingöngu í sínu nafni sjálfs,
en ekki þingflokks þess, er hann fylti.
Þar hefði mál þessi ekki borið á góma
enn.
Eftir fáeinar athugasemdir frá þeim
ráðgj., B. Sigf. og J. Ól. var frv. vísað
til sambandslaganefndarinnar og 1.
umr. frestað.
Veðrátta
vikuna frá 14,—20. febrúar 1909.
Rt. íf. BI. Ak. 0r. Sf. Þh.
Sunnd. 1.6 1,8 0,0 0,6 -2,0 8,7 6,1
Mánud. 0.4 -6.2 -0,8 -1,0 -6,8 -0,6 0.2
Þriöjd. 5.1 4,4 3,8 3,6 -2,4 -8,2 1,5
Miðvd. -1,0 -*,5 -Mj 1,0 2,0 4,0 5,2
Fimtd. —8.0 -3,0 -8,6 -1,0 —6.0 —0.1 7,7
Föstd. -8,0 -4,6 -H,5 -26 -7,3 — 1,7 8,0
Laagd. B,0 8.6 1,5 -2,6 8,2 4,8 6,8
Sambandslaganefnd.
Umræðunni um það mál lauk svo
í gær, að skipuð var í það 9 manna
nefnd, þeir Bjarni Jónsson, Björn
Jónsson, Jóhannes Jóhannesson, fón
Magnússon, Jón Ólafsson, }ón Þor-
kelsson, Ólafur Briem, Sig. Gunnars-
son og Skúli Thoroddsen. Fyrstu
umr. því næst frestað.
Formaður í nefndinni var kosinn
Björn Jónsson og skrifari Jón Þor-
kelsson.
Ráðgjafaskifti í nánd.
Ráðgafinn gat þess í síðari ræðu
sinni í gær, þeirri er hér er ekki
hermd (sakir rúmleysis), að ef meiri
hluti þings lýsti yfir þeirri ákveðinni
skoðun sinni, að ekki gæti úr þessu
orðið landsheillavænleg samvinna milli
hans og þingsins að sinni, mundi
hann taka þá yfirlýsing til fullra greina
og beiðast lausnar frá embætti.
Þingsályktunartillaga um það var
því næst lögð fram á þingi í dag í
báðum deildum, og eru flutningsmenn
að henni í neðri deild þeir Skúli
Thoroddsen, Björn Jónsson, Ólafur
Briem, Sigurður Gunnarsson og Bjarni
Jónsson frá Vogi, en í efri Sigurður
Stefánsson, Ari Jónsson og Jens Páls-
son.
Tillagan er svo orðuð, sem hér
segir:
RáOherra Islands hefir laprt alt
kapp á að koma fram >frv. til laga
um ríkisréttarsamband Danmerk-
ur og íslands., sem mikill meiri
hluti þjóðar og þings telur lög-
festa fsland í danska ríkinu. Hann
leggur frv. þetta fyrir þingið nú
og mælir enn fastlega með þvi
óbreyttu. Hann hefir og gengið
þvert í móti vilja íslenzkra kjós-
enda, er hann valdi síðast kon-
kjörna þingmenn. Enn er það, að
þjóð og þing telur ýmsar stjórn-
arráðstafanir hans vítaverðar.
Fyrir því ályktar deildin að lýsa
yflr því, að vegna samvinnu ráð-
herrans við þingið og eftir sjálf-
sögðura þlngræöisreglum vænti
hún þess. að hann biðjist þegar
lausnar.
Búist ei við, að hún verði rædd i
báðum deildum á þriðjudaginn.
Þingmalafandur.
Reykvíkingar tróðust á fund
í Iðnaðarmannahúsinu laugardagskveld-
ið 13. þ. m., líklega x/4 hluti kjós-
enda, með því að standa flestir. Þar
var langmest og lengst talað um
sambandsmálið, og gerðu það,
auk Rvíkur-þingmannanna beggja, þeir
Bjarni frá Vogi og Þorsteinn Erlings-
son m ó t i frv., en m e ð þvi (af
stjórnarliðinu) Guðm. Björnsson landl.,
Jón Þorláksson og Lárus Bjarnason. Með
um 200 atkv. gegn um 150 var samþ.,
að óþarft væri að ganga nú til gtkv.
um sambandsmálið, með því að vilji
kjósenda í því hefði komið greinilega
fram 10. sept.
Með öllum atkv. gegn 5 var skorað
á alþingi að samþykkja nú þegar á
þessu þingi aðflutningsbann
á áfengi.
Þá vildi fundurinn láta bæta sem
fyrst úr peningavandræðunum, komast
að sem haganlegustum strandferðum
og millilandaferðum, afnema öll eftir-
laun, flytja kjördag til 10. okt., endur-
skoða stjórnarskrána með afnámi kon-
ungkjörinna þingmanna og sem mestri
rýmkun á réttindum kvenna; en var
á móti löggilding hafnar í Viðey.
----9se-----
Stjórnarskrárnefnd
í Nd. Stjórnarskrárbreytingarfrv.
var að lokinni umræðu í gær vísað
til nefndarinnar í sambandslagamálinu.
Fyrstu umr. því næst frestað.
Landsreikninganefnd
í Nd. Ólafur Briem (skrif.), Ste-
fán Stefánsson Eyf., Hálfdan Guðjóns-
son (form.).
Ný kosning á Seyðisfirði.
Landsstjórnin hefir fyrirskipað nýja
kosning á Seyðisfirði 9. marz þ. á. og
að framboð þingmannaefna skuli vera
kotnin í hendur kjörstjórninni fyrir 3.
tnarz.
Búskapnr landssjóðs
tiu ár (1901—1911).
Athugasemdir aftan við frumvarpið>
um bráðabirgða-tollhækkun, sem stjórn-
in leggur fyrir þetta þing, hefir meðal
annars þennan samanburð á útgjöld-
um landssjóðs eftir fjárlögum 1900/01
og fjárlagafrumvarpinu 1910/11.
1900/01 1910/11
kr. kr.
Æðsta stjórn og umboðs-
stjórn 80 102
Alþingi 40 62
Rentur og afborgun lána 90
Dómgæzla og lögreglu-
stjórn m. m. . . . 193 219
Læknaskipun og spítalar 197 283
Samgöngumál .... 470 1078
Kirkjumál 47 91
Mentamál 205 381
Vísindi og bókmentir . 59 122
Verkleg fyriræki og bún-
aðarmálefni . . . . IIO 595
Fyrirframgreiðslur . . 5 5
Eftirlaun og styrktarfé . 90 125
Óviss útgjöld . . . . -> 6
Áætlaður tekjuhalli . . 99 348
1598 3307
Þar við bætist enn hálfrar miljónar
lántaka i þ. á. byrjun.
Tekjur landssjóðs hafa að vísu vax-
ið mikið á þessu tímabili, en ekki
nándanærri að sama skapi; og hefir
því búskap landsins stórhnignað þessiár.
-----sse-----
Aðalfundur
Búnaðarfélags Islands
var haldinn í Reykjavík laugardaginn
13. febr.
Forseti mintist látins starfsmanns
félagsins Guðjóns búfræðiskandidats
Guðmundssonar, taldi félaginu og land-
inu eftirsjá mikla að honum. Tóku
fundarmenn undir það með því að
standa upp.
Fram voru lagðir þessir reikningar
fyrir árið 1908:
Búnaðarfélags íslands.
Sjóðsleifa Búnaðarfél. Suðuramtsins.
Gjafasjóðs C. Liebe.
Búnaðarskólasjóðs Austuramtsins.
Búnaðarsjóðs Austuramtsins.
Reikingur sá, er fyrst er talinn,
var lesinn upp, og í sambandi við
hann skýrði forseti frá framkvæmd-
um félagsins árið sem leið og fyrii-
ætlunum þess.
Þar sem frá hinu sama verður skýrt
í Búnaðarritinu, eru hér að eins talin
fáein atriði.
Til ræktunarfyrirtækja hafði verið
varið alls kr. 23443,33, þar af styrkur
til f]órðungsbúnaðarfélaganna 16000
kr., til ýmislegra fyrirtækja kr. 3644,88,
til gróðrarstöðvar í Reykjavík og sýnis-
stöðva ki. 3103.03, til Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur 200 kr. og til efna-
rannsókna kr. 445.42. Af því sem
varið var til ýmislegra ræktunarfyrir-
tækja gengu til samgirðinga rúmar
1100 kr. (þar af til rúmra 3 mílna
girðingar í Glæsibæjarhreppi rúmar
600 kr.), til sjávargarða rúmar 1400
kr., til plægingarkenslu í Brautarholti
og á Mýrum 320 kr., til fram-
moksturs Kúðafljóts 150 kr., til að
gera áætlun um Skeiðaáveituna 17 5 kr.
o. s. frv. Mörg fyrirtæki eru á leið-
inni, þau er búnaðarfélagið hefir heitið
styrk til. Stærst þeirra er áveitan í
Austur-Landeyjum úr Álunum, sem
gert er ráð fyrir að rnuni kosta 5000
kr. Svæðið sem áveitan á að ná til
er um 3000 dagsláttur og eiga um
30 búendur þar hlut að máli. Til
þessarar áveitu hefir verið heitið alt
að 1000 kr. styrk. Þá er samgirðing
í Fljótshlíðinni rúmra 3 mílna löng, er
heitið hefir verið alt að 650 kr. styrk.
Alls hvíla nú á félaginu loforð um
um fullra 4000 kr. styrk til jarðabóta.
Stofnaðar voru árið sem leið 2 nýjar
gróðrarstöðvar, á Selfossi í Árnessýslu
og í Deildartungu í Borgarfirði með
styrk héraðanna. Félagsstjórnin vill
að komið verði upp í sumar sýnisstöð
í Rangárvallasýslu, sem boðist hefir
til að styrkja hana, og enn einni stöð
annarstaðar ef ástæður leyfa og hérað
vill styrkja. llannsökuð voru efna-
fræðislega 6 sýnishorn af heyi, þurk-
uðu og súrheyi, 18 tegundir af mýra-
jörð og 16 rófnategundir, skyr, súr-
mjólk og rúgmjöl (4 sýnishorn úr
verzlun hér í Reykjavík). Skýrslur