Ísafold - 14.03.1909, Page 3

Ísafold - 14.03.1909, Page 3
I8AF0LD 63 Guðmundur Hjaltason Og æskulýður Islauds. Styrkbeiðni U. M. F. í. Fimm vetur hefir nii Guðmundur kennari Hjaltason starfað í norsku ungmennafélögunum, haldið þar mörg hundruð fyrirlestra um fjölbreytt efni, og alstaðar hefir honum verið tekið tveim höndum. Fjöldi norskra blaða hefir skýrt frá fyrirlestrastarfi hans og lokið á það einróma lofsorði. Hann heíir hvi- vetna aflað sér vinsemdar og virð- ingar ágætra manna með þekking sinni og fádæma fróðleik. Enda stendur hann óefað framar flestum íslending- um um vora daga að djúpskygnri hugsun og víðtækri þekking á íjöl- breyttum efnum. Eg skal til dæmis nefna nokkur efni fyrirlestra þeirra, er hann hefir haldið víðs vegar i Nor- egi og Danmörku og hlotið almenn- ings-hrós fyrir: Köllun Norðurlanda. Til œskulýðsins. Trúmenska í líjsstarfi voru. Trúarbrógð í Kína og Japan. Wergeland og Byron. Kristni og trúleysi d vorum dögum., o. m. fl. Auk fjölda fyrirlestra um íslenzk efni. Það er mín hyggja, að færri mundu vera þeir lýðkennarar á Norðurlöndum, erkysu sér slíkræðuefni á erlenda tungu og gengju sigri hrósandi af hólmi. Vor sem leið hélt Guðm. Hjaltason frá Noregi suður til Danmerkur og starfar þetta ár meðal dansks æsku- lýðs. Hann fær þar sömu góðar við-l tökur og í Noregi, og befir nú flut: um eða yfir ioo fyrirlestra. Hann verður i Danmörku fram á sumar 1910 og býst þá við að hverfa heim aftur eftir 6 ára »útlegð«. í Skólablaðinu hefir verið skýrt litillega frá æfi og starfi G. Hj., og er það einnig kunnugt fleztum eldri mönnum og mörgum hinna yngri hér á landi. G. H. var' vorboði sinnar aldar, er flutti nývaknaðar lýðháskólahugsjónir frá Danmörku og Noregi heim á skammdegisgaddinn íslenzka, þar serö svo margt vorblómið og margatt vorboðann hefir kalið til bana. G. H. starfaði hér 22 ár að lýðfræðslu í likum kringumstæðum og álíka lifs- kjörum og útigangsklárinn, sem etrg- an á að nema guð og gaddinn. Upp- haflega voru árslaun hans 450 kr., eo að lokum 40—60 kr., og mátti hann þá í tilbót þakka fyrir að fá að haldá skóla, og hafði þó reist sér hús sjálf- ur til þess að geta starfað að kenslu. Misskilinn, hæddur og hrjáður 22 ár, en elskaður og virtur af þeim, er nutu fræðslu hans. Þann veg hefir verið æfi þess mann^ er bar þá þrá heitasta í brjósti, af menta og fræða íslenzkan æskulýð. Og er honum að lokum var eigi lífvænt lengur, fór hann utan að hitta fornvini sína í Noregi og Dan- mörku, og eru margir þeirra merkir og nafnkuntiir fræðimenn. Og f>A alt í einu var íslenzki lýðkennarinP! »sérvitringurinn«, »draumsjónamaður- inn« orðinn hámentaður ræðuskör- ungur, er vinnur sér alþýðuhylli með mörg hundruð fyrirlestrum, er bera vott um óvenju-mikla og víðtæk(a þekking og fjölbreyttar og þroska^ar gáfur. — — Heyrt hefi eg merka tnenn pað roæla, að alþingi ætti að veita G. H. styrk til að ferðast um land og fræða íslenzkan æskulýð. Og víst er um það, að vel á hann það skilið, og væri því fé vel varið. Eg hefi ajll- mikið um þetta mál hugsað og tal- fært það við G. H., svo að mér er það kunnugt, að hans heitasta ósk er enn hin sama: að starfa að vakning og fræðslu íslenzks æskulýðs. Sem formaður U. M. F. í. hefi eg hugsað mér, að æskilegt væri, ef vér gætum tekið G. H. í vora þjón- ustu, er hann kemur heim að sumri. Gera hann að föstum starfsmanni vorum. Þá bættum vér æskumenn- irnir úr misrétti því, er hann hefir orðið fyrir af hálfu feðra vorra — enda veit eg engan þann íslending, er betur sé fallinn til að fræða æsku- lýð vorn og vekja og glæða alt það, sem gott er, en Guðm. Hjaltason. — Nú hefir U, M. F. í sótt um styrk til alþingis. Og er vonandi, að það mál fái góðan byr á þingi, og að styrkur sá verði eigi skorinn við nögl sér. — Með það fyrir augum hefi eg ritað línur þessar. Vilji alþingi sýna sóma manni þeim, er lagt hefir alt lifsstarf sitt, afl og áhuga i skaut þjóðarinnar, og þegið vanþakklæti og ilt eitt að launum, — manni þeim, er síðustu 5—6 ár hefir getið oss góðan orðstír erlendis og starfað að því af kappi, að vekja og glæða réttan skilning og þekking á þjóð vorri, — þá liggur beinast fyrir að gera það með þeim hætti, að U. M. F. í. sé veittur sem rifleg- astur styrkur, svo það getiráðið G. H. til sín sem fastan starfsmann sinn. Starf það, er U. M. F. í. hefir unmð, verður alls eigi metið til fjár, og hefir það þó alt verið aukastörf einstaklinga. Mun því eigi ofborgað með nokkrum þús. krónum framtíðar- starfið, er mörg hundruð áhugasamra ungmenna taka höndum saman við leiðtoga sina og forgöngumenn og vinna með eldmóði og einhuga að því að verða drengir góðir, með hrausta sál í hraustum líkama, og góðir íslendingar. Islandi alt\ Þau orð hafa vakið æskulýðinn eins og heróp. Og sé þeirri hugsun fylgt fram þannig, að hún festi djúpar rætur hjá æskulýðn- um, munu af þeim rótum renna máttarviðirnir í skóla þann, er hýsa mun framtíðarhamingju íslands. Helgi Valtýsson. Dagur. Þér lýtur heimur, fagri sólar son! þig sveipar ljómi’ af huliðsdýrðarveldi, — þú fer um löndin ósigranda eldi, þú endurlifgar hverja dána von. Hvert árbros þitt á austurhimins brá er ástarkveðja guði sjálfum frá. Er fyrsta bjarma bregður yfir fjöll af brá þér, allir sktiggar leggja’ á flótta, — og allar vondar vættir skjálfa’ af ótta og verða’ að steini íorynjur og tröll. Ifið góða þráir alt og elskar þig, hið illa skríður burt og felur sig. Þú ert bins sterka átrúnaðargoð, sem afli slnu’ í Ijósi þinu beitir. Og nýjan þrótt og von þú mæddum veitir, hins veika ert þú traustust máttarstoð. En hver sem ná í þegnrétt vill hjá þér, 'má þrótt sinn ekki spara’ og hlífa sér. * * * Sjá, dagur ljómar, ungi Islands son! Á öllum fjöllum þúsund vitar brenna! Finst þér ei blóð í æðum örar renna, er áttu’ að berjast fyrir göfgri von ? Með heiða brá og hreinan skjöldinn þinn sem hetja dagsins berstu, vinur minn! Það fylgir sigur sverði göfugs manns, er sannleiksþráin undir rendur gelur og frelsisást i djarfri drenglund elur, — það drepur enginn beztu vonir hans: hann veit, þótt sjálfur hnigi hann i val, að hugsjónin hans fagra sigra skal. Og vertur slíkur, — horfðu djarft og hátt á hámark lífs þins: frelsi þinnar móður, og sýndu’ í verki’ að sértu drengur góður og sonur tryggur, stefndu’ i rétta átt, — i átt til ljóssins, — eftir liðinn dag þá áttu’ i vændum fagurt sólarlag. Guðm. Guðmundsson. Reynið Boxcalf-svertuna Sun; þér brúkið ekki aðra skósvertu úr því. Hvarvetna i íslandi hjá kaupmönn- um. Buchs litarverksmiðj a, Kaupmannahöfn. THE NORTH BRITISH ROPEWORK Co. K i r k c a 1 d y Contractors to. H. M. Government búa til rússncskar og italskar fiskilínur og færi, alt úr bezta efni og sérlega vandað. Fæst hji kaupmönnum. Biðjið þvi ætið um K i r k c a 1 d y fiskilínur og færi, hjá kaupmanni þeim er þér verzlið, því þá fáið þér það sem bezt er. Stœrri og smærri í búðir hefir Guðm. Egilsson til leigu frá 14. maí. Heima kl. 3 — 4. Laugaveg nr. 40. Guðm. Egilssoii. Ibúðin á Laugaveg 20 B 5 herbergi, eldhús og geymsla fæst til leigu frá 14. maí næstkomandi; ennfremur herbergi fyrir einhleypa eða minni íjölskyldu, á sama stað. Upplýsingar gefa, Björn Þórðarson, Laugaveg 20 B og Guðm. Magnússon, Hverfisgötu 30 B. Þar fæst einnig ágæt búð og skrifstofa. Yerzlunarmaður 21 árs, er verið hefir við verzlun á íslandi og útskrifast í lok aprílmán. úr Den jydske Handelshojskole i Ar- ósum, óskar eftir góðri stöðu við stærri verzlun á íslandi. Vel heima í einf. og tvöf. bókfærslu. Einfær um allskonar bréfaviðskifti á dönsku og ensku og allvel heima í þýzku. Tilboð með tilgreindum launakjörum sendist til Björns Kristjánssonar, Rvík. J urtapottar í verzlun Einars Arnasonar. Peiiiiigíir fundust í verzlun Einars Arnasonar. Margarínið eftirspurða er aftur komið í verzlun Jóus Þórðarsonar. Öllum þeim sem sýndu okkur hjálp og hluttekningu i sorg okkar við fráfall elsku litla drengsins okkar, Óskar Guðna, vottum við innilegt hjartans þakklæti. Sveinbjörg Jónsdóttir, Árni Jósefsson. Innilegt hjartans þakklæti vottum við þeim: Guðmundi Magnússyní læknuj Þuríði Sigurð- ardóttur, Maríu GuðmundsdóTtur, Bergsstöð- um, sira Runólfi og frú hans, Snæbirni Jakobssyni og konu hans og börnum, Odd- björgu Pálsdóttur og börnum hennar, og öll- um öðrum, sem á ýmsan hátt glöddu okkur og sýndu okkur hluttöku við fráfall okkar elskuðu dóttur, Magneu Þorsteinsdóttur. Sömuleiðis þökkum við öllum þeim, sem heiðruðu útför hennar með návist sinni og biðjum við af hjarta góðan guð að launa öllum þessum af náð sinni og miskunn. Þorsteinn Rögnvaldsson, Guðrún Jónsdóttir. Roglusamur maður, sem verið hefir mörg ár pakkhúsmað- ur við eina af hinum stærri verzlun- um norðanlands og hefir góð með- mæli, óskar eftir atvinnu sem um- sjónarmaður við einhvern opinberan starfa hér í bænum nú þegar eða frá 1. apríl næstk. Upplýsingar í afgr. ísafoldar. í verzlun Jóns Þórðarsonar fæst vel verkaður porskur, ísa, upsi, skata, harðfiskur, riklingur; ennfremur reykt kjöt, ísl. smjör og sauðskinn. Nokkrar íbúðir á góðum stöðum í bænum, sömuleið- is sérstök herbergi, fást til leigu nú þegar og frá 14. maí næstk. Upp- lýsingar í verzlun Jóns Þórðarsonar. Hálf skólajörðin Suðurkot í Brunnastaðahverfi á Vatns- leysuströnd er laus til ábúðar frá næstkomandi fardögum 1909. Sömu- leiðis er laus konnarastaðan við sama skóla. Þeir sem vilja sækja um kenslu- starfið og fá ábúðina á jörðinni semji við skólastjórn hreppsins Jyrir ij. april p. á. heldur skemtisamkomu í Goodtemplarahúsinu laugardag og sunnudag 20. og 21. þ. mán. til ágóða fyrir berklaveika fátæklinga. Nánara á götuauglýsingum. Matreiðslubók eftir frú í>óru |>. Grönfeldt fæst hjá bóksölum: Verð 1 kr. Innlendur brjóstsy kur í heildsölu, fæst í Hatnarstræti 16. Sigurður Guðmuudsson. Herbergi til leigu í Ingólfsstræti 8. Hlutabréf í Telefónfélagi Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar, þau er enn eigi hafa verið send gjaldkera til innlausnar, verða að vera komin í hans hendur fyrir lok marzmánaðar næstkom. Hluthaf- ar, sem ekki hafa afhent hlutabréf sín á tiiteknum tima, hafa fyrirgert rétti sínum til andvirðisins og ráðstafar þá stjórn félagsins því. — Hafi einhver hluthafi glatað hlutabréfi sínu, verður það eigi að síður útborgað, þó með skilyrði, sem honum verður tjáð við afhendingu andvirðis bréfsins. Stjórnin. Eftir kröfu Sveins Björnssonar yfir- réttarmálsfærslumanns og að undan- gengnu fjárnámi '6. þ. m. verður fiski- skipið Jón selt við opinbert uppboð til lúkningar skuld að upphæð kr. 1888.00 auk kostnaðar. Uppboðið verður haldið hér á skrif- stofunni föstudagirn 19. marz 1909 kl. 12. á hádegi. Skipið liggur á Hafnarfjarðarhöfn og geta þeir, er kaupa vilja skipið, skoðað það þar áður. Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu 12. marz 1909. Lárus Fjeldsted, settur. Til leigu 14. maí 2 herbergi, eldhús og geymslupláss hjá Steingrími Guðmundssyni, Amtmannsstíg 4. Silfurprjönn fundinn í Iðnaðar- mannahúsinu. Tvö kames eða stofa með eldhúsi óskast til leigu á góðum stað í bænum. Ritstjóri vísar á. Peningabudda, með um 12 kr. 0. fl í, hefir tapast á götunum 1. þ. m. Finnandi er beðinn að skila henni í afgr. ísaf. gegn fundarlaunum. Lítil íbiíö til leigu 14. maí með geymslu og matjurtagarði. Ritstj. ávísar. 3 herbergi og eldhús (niðri) til leigu 14. maí í Ingólfsstræti 18. 3 herbergi með eldhúsi, til leigu 14. maí nk. — Jón Lúðvíks- son, verzlunarm., Þingholtsstræti 1. Stulka óskar eftir innivist á góðu heimili hér í bænum frá 14. maí. Upplýsingar í Lækjargötu 10. Teiknipappír í örkum og álnum fæst i bókverzlun Isafoldarprentsmiðju. Viöskiftabækur (kontrabækur) nægar birgðir nýkomnar i bókverzkr, ísafoldarprentsmiðju. Verð: 8, 10, 12, 15, ao, 25 og 35 aurar. • BKANDINAVI8K Hxportkaffl-Surroitst Kebenhavn. — F- Hjorth & Co Nýir kaupendur ad ÍSAFOLD þetta ár (1909) sem verður full 80 tbl. og kostar eins og áður að eins 4 kr. (i Ameríku 1 V2 dollar fyrir fram), fá í kaupbæti sögurnar Fórn Abrahams rúmar 700 bls. og Herragarðssöguna eftir Selmu LagerlöJ sem er einhver hin indœlasta saga, sem sést hefir á íslenzku, 230 bls., eða þá, ef þeir vilja beldur, Her ra garðs söguna Og Davíð skygna eftir Jónas Lie, söguna, sem nú er á leiðinni í blaðinu. Þessi kaupbætir er úti látinn undir eins og blaðið er borgað og hans vitjað. ÍSAFOLD er landsins langstærsta blað og eigulegasta í alla staði. Fyrir geysimikla stækkun í siðustu á’ramót er hún orðin fjölbreyttari að efni en áður. ÍSAFOLD er þó ekki dýrari en önnur hérlend blöð, sem eru ekki helmingur á við hana árgangurinn að stærð eða leturmergð. Annað stærsta blað landsins flytur að kalla má rétt- um helmingi minna lesmál um árið en ísafold, og kostar pó jafnmikið. Þar með er engan veginn sagt, að það blað sé of dýrt sett. En eftir þvi hlutfalli ætti lsajold að kosta 8 kr. um árið. Helmingi lægra verði, 4 kr., er ekki hægt undir að rísa öðruvísi en með geysimiklum kaupendafjölda. ÍSAFOLD er því hið langódýrasta blað landsins. ISAFOLD gefur þó skilvísum kaup- endum sínum miklu meiri og betri kaupbæti en nokkurt hérlent blað annað. ÍSAFOLD gerir kaupendum sínum sem allra-hægast fyrir með því að lofa þeim að borga í innskrift hjá kaup- mönnum hvar sem því verður kom- ið við. ÍSAFOLD er og hefir lengi verið kunn að því, að flytja hinar vönduð- ustu og beztu skemtisögur. ÍSAFÖLD styður öfluglega og ein- dregið öll framfaramál landsins. ÍSAFOLD stendur djarflega á verði fyrir réttindum landsins, og heldur sérstaklega fram og berst fyrir pjóð■ ræðiskröjum almennings hvort heldur er við útlenda valdhafa eða innlenda. Hún leggur nú eindregið móti ailri innlimun, í hvaða búningi sem hún birtist. ÍSAFOLD er fús til góðrar sam- vinnu við hvaða landstjórn sem er, þá er rækir skyldn sína og vinnur dyggilega að framförum landsins. ÍSAFOLD vítir hins vegar mjög einarðlega og skörulega hvers konar misferli í stjórn landsins, hvort held- ur er af þingsins hálfu eða umboðsstjórn- arinnar, æðri embættismanna eða lægri. Til heimalitunar viljum vér sérstaklega ráða mönnum til að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa verðiaun, enda taka þeir öllum öðrum litum fram, bæði að gæðum og litarfegurð. Sérhver, sem notar vora liti má ör- uggur treysta þvi að vel muni gefast. — í stað hellulits viljum vér ráða mönnum til að nota heldur vort svo nefna Castorsvart, þvi þessi litur er miklu fegurri og haidbetri “n nokk- ur annar svattur litur. Leiðarvísir á íslenzku fylgir hverjum pakka. — Lit- irnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á íslandi. Buchs Farvefabrik.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.