Ísafold - 15.04.1909, Page 2
88
ISAFOLD
Swinburne dkinn.
Englands mesta sknld
nú á dðgum.
Hann lézt í fyrra dag, Englands mesta
nútíðar skáld, Algernon Charles
S w i n b u r n e, 72 ára gamall, fædd-
ur í London 5. apríl 1837, en óx
upp langt þaðan, í óbundinni náttúru
Englands-stranda, við sólskin og særót
og ofviðri, það er seint og snemma
lýsir sér í öllum hans skáldskap.
Hann stundaði nám í Oxford, og
ferðaðist eftir það suður um Sviss
og ítaliu. ítalia verður hans önnur
ættjörð; móðir hans var fædd i Flór-
enz, og hafði snemma innrætt syni
sínum ást á landinu þvi, og fegurð
landsins sjálf greip hann töfratökum,
þeim er það slepti aldrei af honum.
Mörg hans beztu ljóð eru ort við
itölsk áhrif, og eitt ljóðasafn hans
kent við landið: A Song oj Italy.
Fyrsta skáldverk hans er athygli
vakti mjög mikla kom út 1865:
Atalanta in Calydon, drama í grískum
stil. Þar kemur það fram, er þó
gerir enn betur síðar í ljóðmælum
hans, hve hann ann listinni frjálsri,
en hatar fyrirmæla-kreddurnar. Hann
er ákafur frelsishugi. Eitt Ijóðmæla-
safn hans heitir Songs bejore Sunrise.
Eldþrungið listaverk. Þar er hann
vægaðarlaus flutningsmaður algers
stjórnmála frelsis og trúarbragða.
Hann er meira ljóðskáld en leik-
rita, miklu meira. Stórfenglegasta
dramað hans er þríleikurinn um
Maríu Stuart (Chastelard; Bothwell;
Mary Stuart), en ekki fallin til leiks,
meðal annars of löng.
Þá hefir Swinburne fengist mjög
mikið við gagnrýnis-störf, ritað margt
um höfunda frá tímum Elísabetar
drotningar, meðal annars um þá
Shakespeare og Ben íonson, sitt ritið
um hvorn.
Enska tungu hafa fá skáld farið
jafn meistaralega með og Swinburne;
rímfallið sérkennilega öflugt og hljóm-
mikil lyfting í orðfærinu.
Hann er eitt hið mesta náttúru-
skáld Englands, annar en S h e 11 e y,
sá er mikil áhrif hafði á hann þar:
sama hjartanleg unun af náttúrunni
hjá báðum, en lýsingar Swinbume’s
raunréttari, átakanlegri.
Deila má um það, hvort Bretar
eiga nokkuð fegra í ljóðum en það
sem Swinburne hefir kveðið um frels-
ið og náttúruna. En í tignarröðina
kemst það alt.
Þegar lesin eru Ijóð hans sum, þá
er eins og hér yrki söngskáld, er
kjósi til þess orð en ekki tóna. Þá
er eins og hann sé enskur Sveinbjörn.
Danskt blaðamannsviðtal
við
íslandsráðgjafann.
Af viðtalsfréttum danskra blaða eftir
nýja ráðgjafanum ganga margar sögur
misjafnar, og ekki um skör fram raun-
ar. En rangt væri að láta viðtalsmenn
þá og skýrslur þeirrá eiga óskilið mál.
Hér er t. d. grein úr einu þeirra,
Dannebrog, daginn sem ráðgjafi var
skipaður. Hann (ráðgj.) er.látinn taka
til máls á þessa leið:
— Þegar sambandslagafrumvarpið
var komið til íslands og lagt fyrir
kjósendur, þótti oss ósæmilegt, hvern-
ig Hafstein og hans menn komu fram:
eingöngu svo sem málflutningsmenn
fyrir þessu frumvarpi, ekki talsmenn
fyrir þeim kröfum, er fram komu af
hendi þjóðarinnar. En mest hneyksl-
uðumst vér á þvi, er vér skildum
hvernig var háttað íslenzka textanum.
Vér sáum þá þegar, að hann var al-
veg ósamhljóða í mikilsverðum atrið-
um d a n s k a textanum, þeim er
e i n n batt við borð undirskrift Dana
í nefndinni. Það var oss alveg óskiljan-
legt, að nokkur sá maður, sem kann
bæði dönsku og islenzku, gæti haldið
fram samræmi textanna. En það gerði
hr. Hafstein og hans menn. Svo að
vér gátum ekki betur skilið en að
þeir leituðust við að láta sjást, að frá
Dana hálfu væri oss veitt sú tilhliðr-
un í frumvarpinu, er þar var ekki
t i 1 í raun og veru. Út af því reis
vitanlega megn gremja, e k k i við
dönsku nefndarmennina eða Dani yfir-
leitt, heldur við landa vora í nefnd-
inni, er virtust vilja dylja oss sann-
leikann, íslenzkum kjósendum.
Vér kváðumst meira að segja skyldu
taka við þeim tveim höndum, ef þeir
vildu leggja niður málflutningsmensk-
una fyrir Uppkastinu. Svarið við þvi
var ekki annað en hroki og rembing-
ur svo sem værum vér ekki annað
en skynlausar skepnur. Það kveikti
vitanlega upp megnt ógeð og átti sök
á hörðum atgangi í kosningabardag-
anum.
— Svo að þér eruð þarna að mestu
leyti á sama máli og Dr. jur. Knud
Berlin í greinum hans hér í Danne-
brog?
— Já, fullkomlega. Þær greinar
hafa stutt mikið að því að skýra af-
stöðuna svo sem þurfti. Ekkert að
nema það: að þær hefði átt að koma
fyr, f y r i r kosningar, en ekki núna
fyrst eftir á, þegar vér h ö f ð u m
sigrað.
— En nú er þá líklega deilunni
um textana lokið. Hver er þá skoð-
un meiri hluta þings á þeim textan-
um er gildir, og hvað hefir hann að
honum að finna?
— Það get eg sagt yður í fám orð-
um. Vér sjáum að það ástand, sem
oss er þar boðið, er ekki annað en
grímubúin innlimun undir því yfir-
skini, að vér verðum sjálfstætt ríki.
Krafa vor er sú, að vér verðum sjálf-
stætt riki í konungssambandi við Dan-
mörku. Það kann ef til vill að þykja
fjarstæða, en svona hugsum vér nú.
Þær kröfur vorar reisum vér ekki svo
mjög á gömlum stjórnlagalegum samn-
ingsskjölum vorum, þótt vér teljum
þau styðja mikið málstað vorn, heldur
á því mest, að þenna litla blett af
jarðarhnettinum hafa forfeður vorir
numið og haft á honum óslitið eign-
arhald æ síðan. Og einkum sakir
hinnar miklu fjarlægðar milli landanna
sjálfra, Islands og Danmerkur, og
nærri enn meiri þó milli dansks og
íslenzks hugsunarháttar, teljum vér
það vera bæði eðlilegt og réttmætt,
að vér höfum sjálfir ásamt konungs-
valdinu einir fullræði yfir landi voru
og landhelgi.
— Með hverju haldið þér að þess-
ari sjálfstæðiskröfu verði fullnægt?
— Með því, að sambandslagafrum-
varpið geri sér það ekki að reglu, að
forðast að kalla ísland sjálfstætt ríki;
oss nægir ekki þótt sagt sé í athuga-
semdum við frumvarpið, að það sé
tilgangurinn; það verður að standa i
sjálfum lagagreinum frumvarpsins. Og
þar næst yrði þessi meginregla að
koma fram í því, að sameiginlegu
málin svo nefnd, utanríkisstjórn, her-
varnir o. s. frv., sem Danmörk ann-
aðist fyrst um sinn, þau væri farið
með a ð e i n s eftir umboði því, er
ísland veitti Danmörku.
— Er þetta svo að skilja, að með-
ferð Dana á þessum málum skuli þá
lokið, er ísland eitt krefst þess, svo
að sameiginleg mál geta orðið að lok-
um ekki annað en konungur einn?
— já, fyrirmælin eiga að vera ský-
laus I — Það eru kröfur meiri hluta
þings, að vér getum sagt upp einu
eða fleiri þessara sameiginlegu mála
á tilteknum fresli, t. d. eftir 20—30
ár, annast þau sjálfir úr því. En því
skal eg undir eins bæta við, að eng-
inn ei óánægður með umsýslu Dan-
merkur um þessi mál, og enginn
hugsar sér víst að málunum verði
sagt upp alt i einu, fyrirvaralaust. Því
kjósum vér heldur ríki voru hinalitla
að vera í frjálsu konungssambandi, að
oss þykir sem mikilsverð siðferðisleg
trygging á rikiseignarhelgi vorri sé
fólgin þar, sem konungsvaldið er og
ekki sízt konungsætt sú, er nú situr
að völdum. Stefna vor verður að
vera sú, að vér höldum fram réttar-
kröfu vorri til uppsagnar á sameigin-
legu málunum, þvi að með öðrum
hætti getur ekki sjálfstæði vort lýst
sér. Og vér fáum ekki séð, að Dan-
mörk hafi nokkurn hag af að þver-
skallast við þeirri kröfu frá lítilli þjóð,
ekki stærri en stór hreppur í Dan-
mörku, þeirri, er lifir ein sér nærri
norðurhjara heims.
— Svo að þér haldið ekki, að Upp-
kastið verði samþykt af þinginu öðru
vísi en með gagngerðum breytingum
á þessu ?
— Nei, það hygg eg ekki. Fáist
þær ekki, kjósum vér heldur að sitji
við sama, þar til er málið alt nær
meiri þroska, og munum lifa í þeirri
vissu, að þar komi áður en lýkur, að
kröfum vorum verði sint hér í Dan-
mörku
-----9S6-----
Island og vísindin.
---- Kh. */,
Friðpjójur Nansen og Roald Am-
mundsen heimskautsfarar koma við á
íslandi í sumar í fyrirhuguðum leið-
angri norður í höf.
Undarleg er heimska og fáfræði
sumra danskra blaða. Þegar þessi fregn
barst hingað fyrir nokkru, fluttu mörg
þeirra langlokur um, að þetta mundi vera
nokkurs konar stjórnmálaleiðangur í
dulargervi og að reynt mundi vera að
ráða ísland undan Dantnörku og
tengja það Noregi aftur!
Af dönskum vísindamönnum, er
til íslands halda í sumar, er víst um
Daniel Bruun og Paul Harder, jarð-
fræðing. Harder nýtur styrks af
Carlsbergssjóði og ætlar að ganga á
Vatnajökul. Hann var og á þeim
slóðum í fyrra ásamt flugnafræðingi
nokkrum dönskum.
Skemtiför til Islands.
Blaðið Politiken gengst fyrir.
----- Kh. */4-
Stórblaðið danska, Politiken, er að
unirbúa skemtiferð til íslands bæði
fyrir karla konur. Ferðafólkið leggur
á stað 6. júlí á Sterling og kemur
til Reykjavíkur 15. s. m. Daginn
eftir verður lagt af stað í 6 daga ferð
til Þingvalla, Geysis og Gullfoss, og
22. verða ferðamenn að vera komnir
aftur, því að Sterling fer þann dag
aftur til útlanda.
Thomsen konsúl! hefir lofað að
annast um landferðina.
Ekki á ferð þessi að kosta meira
en 295 kr. á mann, auk skytnings-
eyris, og má það heita ódýrt.
Albertí-rannsóknir.
Rikisdómskröfur hvaðanæfa.
Tengdasonur Albertis.
---- Kh. %
Nú um hríð hefir rannsókn staðið
gegn Albertí útaf embættisfærslu hans
í ráðgjafastöðunni. Eftir ótal próf og
vitnaleiðslur í málinu berast nú mjög
að honum böndin. Þykir nú auð-
sætt, að hann hafi misbeitt valdi sínu
hérfilega sér og sínum í vil og heimta
nú flest blöð harðlega, að Alberti
fari fyrir ríkisdóm. Sjálfur spyrnir
hann á móti í lengstu lög, því að
eigi þykir manninum árennilegt að
vera dreginn fyrir opinberan dóm
augliti til auglitis við alþjóðu.
Eigi þótti fullvíst, að úr ríkisdómi
yrði eftir rannsóknir í lóða- og lotterí-
málum, Miðdagspóstsmálinu og fleiri
klækjum Albertís, en nú síðustu daga
hefir svo mikilsvert atriði komið fram
í málinu, að eigi verður hjá komist
ríkisdómi.
Það hefir sannast, að leikfélag nokk-
urt hefir leitað til Trepka Blochs, mála-
flutningsmanns, tengdasonar Albertis,
og mútað honum með ærnu fé til
að útvega félaginu leikleyfi hjá tengda-
föðurnum, dómsmálaráðgjafanum, og
að Albertí var kunnugt um, að tengda-
sonur sinn Jengi margar púsundir, ef
hann gœti útvegað leyjið. Albertí veitti
leyfið þegar í stað, og er mælt að
hann hafi sagt, að meinlaust væri þó
að tengdasonur sinn fengi þenna bit-
ling. Um líkt leyti synjaði hann öðr-
um leikfélögum um sams konar leyfi,
og hefir Trepka Bloch borið það fyr-
ir dómi, að það hafi verið því að
kenna, að hann (Tr. Bl.) hafi eigi ver-
ið milligöngumaður.
Tjáir nú þinginu eigi að færast
undan ríkisdómskröfunni, því að hér
er stórvítaverð hlutdrægni deginum
ljósari. Ríkisdóm skipa 12 hæstarétt-
ardómarar og jafnmargir landsþingis-
menn. Formaður er dómstjórinn í
hæstarétti.
Albertí liggur um þessar mundir
sjúkur í íangaspítala og er ókunnugt
um þessi nýju og óvæntu gögn i
málinu.
Hiisbruni í Reykjavík.
Kona brennur inni.
Aðfaranótt páskadags brann hús við
Skólavörðustíg, nr. 35, að köldum
kolum, tvíloftað hús, einkar-snoturt,
spánnýtt, er átti Samúel Jónsson
snikkari (frá Eyrarbakka).
Eldsins varð fyrst vör gömul kona,
er uppi svaf á efsta lofti hjá dóttur
sinni. Þakskonza var sín hvoru meg-
in svefnstofunnar. Gamla konan vakn-
ar við eitthvert þrusk í annari; fer
fram. Þá snarkaði eldur í þekjunni.
Það var kl. 3 um nóttina. Hún vek-
ur dóttur sína, taka vatnsfötu og
ætla að slökka eldinn. En sjá að er
of seint. Þá fer móðirin niður að
vekja piltana, og biður dóttur sína
að koma. Þegar hún kemur aftur
með fleira fólki, kalla þau á stúlkuna;
en hún anzar ekki. Þeim dettur ekki
annað í hug en að hún sé komin út,
og forða sér út og undan eldinum.
En þegar farið var að grenslast
eftir stúlkunni úti, fanst hún hvergi.
Hafði veri hætt við öngviti, og ómeg-
in visast runnið á hana í reykjarsvæl-
unni, enda kafnað sjálfsagt áður eld-
urinn náði henni.
Húsið brann á tveim tímum;
efri tazían orðin alelda þegar slökkvi-
liðið kom, hálftíma síðar en kviknaði
í, svo að ekki varð bjargað. Upp-
tök eldsins talin stafa frá lampa, er
piltur hafði farið frá logandi á kvist-
inum.
Stúlkan sem inni brann hét E 1 í n
Einarsdóttir, ógift kona um fer-
tugt, ættuð úr Skaftafellssýslu vestri.
Ullarverksmiðian á Akureyri
Hún er eitt af þeim fyrirtækjum,
sem fjárlaganefndin leggur til að lán-
að sé fé úr viðlagasjóði og hefir neðri
deild samþykt þá tillögu.
Vafalaust er stofnun þessi eitt hið
þarfasta fyrirtæki, og öll líkindi til, að
hún gæti borið sig, ef hún kæmist
sæmilega af stað. Eftir skýrslum, er
fyrir þinginu liggja, er verksmiðjan
nálega fullger, að húsum og áhöldum;
en hana vantar aðallega rekstursfé.
Hús eru vönduð og vélar af nýjustu
gerð, og kostuðu um 120 þús. kr.
Fjárskorturinn stafar af því, að áætl-
anir um stofnkostnaðinn reyndust of
lágar, einkum sökum þess, að járn
hækkaði mjög í verði, um það leyti,
sem efni og áhöld voru keypt. Af
því leiddi, að bæði vélar og vélaskál-
inn, sem gerður er úr járni og steini,
urðu miklum mun dýrari en áætlað
var. En þrátt fyrir þetta hefði verk-
smiðjan þó getað tekið til starfa, ef
peningaeklan hefði ekki dunið yfir,
einmitt þegar verst gegndi, svo hluta-
fjársöfnunin stöðvaði, og samstundis
tók fyrir öll lán í bönkunum, hvað
sem i boði var.
Bæjarstjórn Akureyrar og sýslu-
nefnd Eyjafjarðarsýslu hafa tekið til
íhugunar hvernig landsstjórnin gæti
komið fyrirtækinu að sem beztu liði.
Þær líta svo á, að hér sé um að tefla
þjóðþarfa fyrirtæki, sem ekki megi
með nokkuru móti niður falla.
Arlega hverfa úr vösum manna hér
á landi svo hundruðum þúsunda skiftir
til Noregs og Danmerkur upp í vinn-
laun á ullina okkar.
Klæðaverksmiðjurnar innlendu eru
fyrstu tilraunirnar til að stifla þann
fjárslaum, og þjóð, þing og stjórn
mega ekki horfa á það aðgerðarlaust,
að tilraunir þeirra ónýtist, og þeir
menn bíði stórtjón, er sýnt hafa þá
þjóðrækni, framtakssemi og áræði, að
ríða hér á vaðið.
Bæjarstjórn og sýslunefnd líta svo
á, að hyggilegast og tryggilegast fyrir
landið og hagkvæmast fyrirtækinu væri
að taka forréttishluti í félaginu, og
gerðu ráð fyrir, að bærinn og sýslan
tæki X/B af fjárhæð þeirri er félagið
þarfnaðist, gegn ®/s landssjóði.
Svo telst til, að lyrirtækinu sé vel
borgið, ef það fær 60 þús. kr., og
þyrfti þá landssjóður að leggja fram
40 þús. kr. í hlutafé. Af þessum 60
þús. yrði helmingurinn eða rúmlega
það notaður til þess, að fullkomna
verksmiðjuna, en hinn helmingurinn í
rekstursfé. Verksmiðjan stæði þá í
150—160 þús. kr., og þó að alt gengi
sem verst, ætti fé landssjóðs að vera
vel borgið. Að sjálfsögðu ætti landið
að eiga þátt í stjórn félagsins, og svo
ætti að vera um hnútana búið um
eftirlit, að þar gæti ekkert ráðleysi
komist að, og því síður féglæfrar eða
prettir.
Með þessu lagi yrði stofnunin að
miklu leyti þjóðareign, en er að því
leyti vænlegri til þrifa en hreinar
þjóðeignir, að sveitafélögum þeim,
sém næst henni standa, og fjölda
mörgum einstaklingum, er það fjár-
hagslegt áhugamál, að hún þrifist sem
bezt. Sjálfs sín vegna eru þeir því
knúðir til þess, að hlynna að henni
á alla lund.
Hér er um að tefla mikilvægan
þátt í sjálfstæðisbaráttu vorri. Hvernig
má sú þjóð sjálfstæð kallast, er verð-
ur að láta aðra vinna utan á sig spjar-
irnar?
Þinginu er treystandi til, að ráða
svo fram úr þessu máli, að fyrirtæk-
inu sé borgið, landinu til ómetanlegs
gagns og sóma. S.
Uppstytta á Balkan
Ríkisafsal konungsefnis.
Khöfn 6. apríl 1809.
Eftir margar flækjur og vafninga
má nú heita að greiðst hafi úr flóka
þeim, er vofað hefir yfir Iöndunum á
Balkan um síðustu mánuði. Serbar
hafa farið þar með öllu halloka og
orðið að hverfa frá öllum kröfum til
Austurríkis. Austurriki færðist fast-
lega undan að selja stórveldunum
sjálfdæmi um deilu þessa, og svo
fór, að þeir fengu sinu framgengt.
Serbum var nauðugur einn kostur að
láta undan siga, því að' einir höfðu
þeir ekki bolmagn á við Austurrikis-
menn, en liðsinnis gátu þeir hvergi
vænst nema frá Svartfellingum. Nú
afvæðast þeir óðum og varaflokkum
öllum, er kvaddir voru til herþjón-
ustu, hefir verið vísað heim aftur.
Serbar treystu liðveizlu Rússa, en
þegar hæst stóð herblásturinn, brugð-
ust þeir algerlega. Utanríkisráðgjáf-
anum rússneska, Csvolsky, var boðið
að segja af sér sökum vináttu hans
við Serba og annar skipaður í hans
stað.
Ríkisafsal Georgs Serba-konungs-
efni, sem getið var um í simskeyti
hér fyrir skömmu, er kent misþyrm-
ingu hans á þjóni sínum, en hitt
mun þó sannara, að þetta hafi orðið
að tilhlutun stórveldanna til þess að
tryggja friðinn í Serbiu og sefa hugi
manna; en Georg konungsefni var,
sem kunnugt er, aðalhvötuður ófriðar-
sinna. Sumir segja, að kóngsmorð-
ingjarnir gömlu, þeir er vógu Alex-
ander konung og Drögu drotningu,
hafi komið til ieiðar afsalinu, því að
konungsefni kvað hafa heitið því
að láta taka þá alla af lífi jafnskjótt
sem hann væri kominn til valda.
Þeim hefir því litist óvænlegt að
eiga hann yfir höfði sér.
Síðustu fregnir segja konungsefni
ekki farið úr landi, heldur dveljist hann
í nágrenni við Belgrad. Búast menn
við, að hann sé ekki af baki dottinn
enn, þrátt fyrir afsalsbréfið, undir
skrifað af sjálfum honum. Mælt er
að hann eigi í makki við ýmsa her-
foringja og að fjöldi hermanna fylgi
honum að málum.
Pétur faðir hans, morðvargajöfur
er sagður valtur í sessi.
Gufusklpiu. S/s Sterling kom páska-
dagskvöld með fjölda farþega, nær 30 i efra
farrými, innlenda og útlenda. Me?lal út-
lendinga vora hæstaréttarmálf'utnin ,smaðnr
Sam. Jhonson frá Kristjaniu og skozkur
námuverkfræðingur, Thomas Arnatt.
Ráðgrjaflnn
nýi og förunautar hans hinir for-
setarnir komu heim aftur á Sterling
páskadagskveld um náttmál. Skipið
var alt fánum prýtt og var hleypt af
nokkrum viðhafnarskotum, er það
hafnaði sig. Mannmergð var meiri
en dæmi eru til hér á landi á bryggj-
unum og þar nærri upp um strætin,
og kváðu við fagnaðaróp lengi eftir,
þar til ráðgjafinn gekk fram á þak-
svalirnar hjá sér og varpaði fáorðri
kveðju á mannfjöldann.