Ísafold - 17.04.1909, Blaðsíða 1

Ísafold - 17.04.1909, Blaðsíða 1
Kemui út ýmist einu sinni eða tvisvar i viku. Yerð árg. (80 arkir minst) 4 kr., er- lendis 5 kr. efca l1/* dollar; borgiat fyrir mibjan júl (erlendis fyrir fram). ISAFOLD Uppsöfrn (akrifleg) bundin viö áramót, er ógild nema komán sé til útgefanda fyrir 1. okt. og KAupandi skuldlaus viö blabib. Afgreiösla: Austurstrœti 8. XXXVI. árg. Keykjavík laugardaginn 17. apríl 1909. 22. tölublað í. O. O. F. 89423 sy,. Vtignlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—8 l spítal ^orngripasafn opiö á mvd. og ld. 11—12. íslftndsbanki opinn 10—2 V* og ö*/*—7. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. t.il 10 siöd. Alm. fundir fsd. og sd. 81/* síöd. Uandakotskirkja. Guösþj.91/* og 6 á helgidögum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—6 Landsbankinn KM/a—21/*. F-síkastjórn við 12—1. Landsbókasafn 12—8 og £ -6. Landsakjalasafnið á þtvt., fmd. og Id. 12—1. Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12, Nátti'irugnpasain (i landab.safnsh.) á sd. I1/*— S.1/*. Tannlækning ók. í Pósthússtr. 14, l.ogB.md. 11— I Iðnaðarmenn I Munið eftir að ganga í Sjúkrasjóð iðnaðarmanna — Sveinn Jónsson gjk. — Heima kl. 6 e. m. — Bókhlöðustig 10. Nýtt sambandsniáls-íleipur. Svo lagað símskeyti barst oss í gær frá Kaupmannahöfn. Berlín getur þess, að sitji hann í sambandslaganefnd einhvern tíma síðar meir, muudi hann geta hugsað til að samþykkja stórum meira sjálfstæði til handa íslandi en gert só í Uppkastinu, og jafn- vel fullan skilnað. ÞaS er hvorttveggja, að maður þessi, dr. Knud Berlin, hefir ekki getið sór neinn fyrirtaks-orðstír til þessa fyrir afskifti sin af sambandsmáli voru, euda munu fáir taka mikið mark á þessari ráðagerð hans um, hvað hann mundi til málsins leggja, ef hann sæti í millilandanefnd um það síðar meir. Hann var að eins ritari í nefndinni þeirri í fyrra, en alls ekki nefndar- maður. Hvað hann hefir fyrir sér um það, að hann mundi vera skipaður í nýja nefnd, ef hún hlypi af stokkum, — um það er ekki hægt neitt að vita eða segja hér eða að svo stöddu. Því síður er hægt. neitt um það að segja, hvort hann mundi þá standa við það sem hann segir nú, nó hitt, hvort hann mundi þá ráða miklu í nefndinni eða litlu sem engu. Hann þótti koma miður vel fram í ritarastörfunum, vilja láta vel mikið til sín taka og að nefndarmennirnir dönsku færu sem mest eða nær eingöngu að hans ráðum, en þau þótcu vera lítt vinsamleg í vorn garð. Hann þóttist hafa vit á þeim fram yfir nefndarmenn alla, sögulegt og stjórnarfarslegt vit, og hafði það verið alt á þá eina bók lært, að vór hefðum ekkert fyrir oss, íslend- ingar, um tilkall til þess sjálfstæðis, er vór höldum fram, heldur mættum verða fegnir því, er Danir vildu oss miðla í þá átt, hvort heldur er það væri smátt eða stórt. Hann á sórstak- lega að hafa stappað stálinu í formanu nefndarinnar, J. C. Christensen yfirráð- gjafa, um að vera ekki að slaka til við íslendinga. Hann hefir síðan brugðið upp rödd- inni öðru hvoru í dönskum blöðum og verið þá jafnaðarlega eindreginn tals- maður hins danska meiri hluta í nefnd- inni, en brugðið fyrir sig öðrum þræði lausmælgi um það, hvar legið hafi fisk- ur undir steiui lijá meiri hlutanum, þótt dult hafi átt að fara. Eu það á að hafa verið flest oss til óþurftar. Loks kveður hann upp úr um það, löngu, löngu eftir að kosningar voru um garð gengnar hór á landi og forlög frumvarpsins fyrirfram sýnileg orðin, að alveg rétt höfum vór (ísafold) haftfyrir oss um þýðing frumvarpsins, ósamræmi komi við frumiitið f mjög svo áríðandi atriðum, og að sá munur hafi horft til blekkingar við oss íslendinga. Þessi frammistaða virðist vera öll held- ur kátleg, og eins og maðurinn só ekki við eina fjöl feldur. Fyrir því virðist forsjálla miklu, að iesta sem minstar vonir við leiðrótting vors máls í sambandsafstöðunni við Dani við þessi nýjustu ummæli þessa danska doktors. Nýr ráðg'jafi. Sjaldan hefir annar eins manngrúi komið saman á götum Reykjavíkur eins og á páskadagskvöldið, þegar Björn íónsson steig á land. Eg var ekki hér í bænum, þegar konungur kom í hittiðfyrra; en mér hefir verið sagt, að mannfjöldinn muni ekki hafa verið öllu meiri þá. Það hefir yfirleitt ekki leynt sér undanfarnar vikur, að Reykjavík hefir fundið til þess, að eitthvað óvenjulegt hafi verið að gerast, þó að fráleitt hafi allir gert sér jafn-ljósa né sömu grein þess. Aldrei hafa menn hér slokað í sig fregnir af meiri þorsta en meðan forsetarnir voru í ferð sinni. Og aldrei rætt þær af meiri áhuga. Vafalaust er það i augum margra manna líkast einhverju æfintýri, að Björn Jónsson skuli vera orðinn ráð- gjafi. (Hann hefir óbeit á ráð/zerm- titlinum; og það er auðvitað mein- fangalaust að hlífa honum við þeim titli í þessum línum.) Fyrir fáum árum var vilji alþingis í ómerkilegum smámálum að engu hafður, ef hann reið með einhverjum hætti bág við einhverjar danskar laga- venjur eða einhverja velþóknun danskr- ar stjórnar. Nú þarf meiri hluti alþingis ekki annað en að benda á þann mann, sem hann vill að verði æðsti maður þjóðarinnar og ráðgjafi konungs. Hann bendir á þann manninn, sem mest hefir verið rægður við Dani. En bendingin er viðstöðulaust tekin til greitia. Það mál hafði í raun og veru verið með öllu útkljáð áður en forsetarnir komu til Kaupmannahafnar. Fyrir einum fjórum árum þótti meiri hluta alþingis ekkert athugavert við það, að forsætisráðgjafi Dana skrif- aði undir skipun ráðgjafa vors. Lang- ar ræður voru um það fluttar á alþingi og ályktanir samþyktar því til varnar. Frá sjónarmiði ríkisheildarinnar þótti það alveg sjálfsagt. Og í því efni átti að meta ríkisheildina meira en íslenzka þjóð. Nú er Björn Jónsson skipaður ráð- gjafi með úhdirskrift sjálfs sin. Hann hefir sömuleiðis skrifað undir hina rökstuddu tillögu til konungs um, að hann yrði skipaður ráðgjafi. Og eins og til enn frekari áréttingar hefir ver- ið ákveðið, að íslenzk mál, sem leggja verður fyrir konung í frávist ráðgjafa, skuli islenzka skrifstofan í Kaupmanna- höfn afgreiða til konungs, en ekki dönsk skrifstofa (Kabinetssekretariat) eins og áður. Konungur hefir yfir því lýst, að hann vilji enga milliliði milli sín og íslenzkrar þjóðar aðra en íslenzka menn. Óneitanlega eru menn að komast langt út úr dönskum hugmyndum frá Nellemanns-árunum. En þó að skipun Björns Jónssonar í ráðgjafasessinn sé merkilegur at- burður, þegar litið er til Dana, er hún engu ómerkari, þegar litið er til vor íslendinga. Björn Jónsson er ekki að eins gagn- ólíkur þeim mönnum, sem verið hafa hingað til æðstu valdsmenn þjóðar- innar. Hann er gagnólíkur þeim mönnum, sem fyrir skömmum tíma mundu, að áliti flestra, hafa getað komið til mála i æðstu valdastöðu landsins. Mér er mjög fjarri skapi að gera lítið ú{ landshöfðingjum vorum. Þeir hafa verið nýtir og góðir menn, þjóð- ræknir og alþýðlegir. ísland á þeim mikið að þakka. En þeir hafa fram- ar öðru verið skrifstofumenn. Kanselí- stíllinn hefir ekki eingöngu verið á embættisbréfum þeirra. Hann hefir að nokkuru leyti verið á lífi þeirra. Gætnin hefir verið sú dygðin, sem mest hefir á borið. Ekki hefi eg heldur minstu tilhneig- ing til þess að gera lítið úr Hannesi Hafstein. Eg get vel trúað því, að dómur sögunnar um hann verði væg- ur. Og eg get vel unt honum þess. Eg get líka vel hugsað mér, að enti hafi ekki komið fram helmingurinn af þeim hæfileikum og kostum, sem hann sé í raun og veru gæddur, og að hann eigi enn eftir mikla sögu í lífi þjóðarinnar. Eg sé lika mikinn mun á honum og landshöfðingjunum. Skáldsins gætir altaf öðru hvoru. Og lýðforingjans til mikilla muna. En eg veit, að eg geri engum undangenginna, æðstu valdsmanna vorra rangt með því að segja, að þeir hafi hvorki verið líklegir til þess að gerast brautryðjendur nýrra, mis- skilinna, óvinsælla hugsjóna, né held- ur hafi þeir gerst það. Eg hygg, að þeir hafi miklu fremur litið svo á, sem það væri brýn skylda sín að var- ast vandlega alla þá útúrdúra hug- sjónalífsins, sem varpað gætu yfir þá einhverju skringiljósi — þótt ekki væri í augum annarra en fáfróðra og óviturra manna. Þeir hafa svo sem ekki verið einir þeirrar skoðunar hér á landi. í þá átt hefir almenningsálitið áreiðanlega til skamms tíma farið. Þeir eiginleikar, sem menn í flest- um löndutn sérstaklega eigna skrif- stofumönnum, eru mjög fjarri eðlisfari Björns Jónssonar. Ekki þarf annað en að líta á orðfæri hans. Lengra verður ekki komist. frá hugsjón kan- selístílsins. Hann orðar naumast svo hvað fáar línur sem er, að hann sé ekki auðþektur á þeim. Og með margra ára starfsemi sem öllum óháður blaðamaður hefir hann ekki að eins vanist á að láta hugsanirnar uppi eins og honum sýnist, heldur og að segja það, sem honum sýnist. Hann er þess æfinlega albúinn að taka að sér sókn og vörn sérhverrar hugsjónar, sem honum skilst að sé sannleikur. Og þegar hann leggur út í þær orrahríðir, er eins og hann telji sig það engu skifta, hvort margir eða fáir eru hans megin. Hans verk er ekki að telja mótstöðumennina, heldur að sannfæra þá, sem á móti mæla —, eða að minsta kosti sanna öðrum það, að andmælendur hans eigi á röngu að standa. Meira karlmenni í þeim efnum hefir víst enginn kynst, hvorki vinir hans né mótstöðumenn. Og í viðbót við þessa karlmensku- lund er auga Björns Jónssonar óvenju- 'lega glögt og eyra hans óvenjulega næmt á nýja hluti. Allir höfum vér meira og minna af nýbreytni-fælninni. Öllum veitir oss meira og minna örð- ugt að átta oss, þegar sannleikurinn kemur til vor í einhverri nýrri mynd. Björn Jónsson hefir minna af ný- breytni-fælninni en flestir menn, sem eg hefi þekt — áreiðanlega miklu minna en títt er um menn á hans aldri. Nýjungarnar vekja fögnuð í sál hans miklu oftar en tortrygni og mót- spyrnu. Þessi tvenn lundareinkenni, sem eg hefi nú minst á, hafa komið fram i öllu hans starfi. Eg læt mér nægja að víkja að tveimur málum. Annað er bindindismálið. Hann tek- ur það að sér, þegar það er fyrirlitið af öllum þorra landsmanna, smánað af þeim mönnum, sem einkum ráða almenningsálitinu með þjóð vorri. Að engum einum manni hefir verið beint meiri vonzku en honum út af því máli. Engum einum manni á það mál meira að þakka en honum. Nú er hann að leiða það til sigurs á fyrsta þinginu, sem hann hefir völdin. Hitt málið er rannsókn dularfullra fyrirbrigða. Enginn maður hér hefir tekið þeirri nýjung með hjartanlegri fögnuði en hann. Enginn maður hér hefir unnið því ósleitilegra gagn út á við en hann. Enginn maður hér hefir teflt jafn-miklu í hættu út afþví máli eins og hann. Og enginn mað- ur hefir verið meira rægður og smán- aður fyrir það mál en hann. Geta má nærri, að ýmsir vinir hans hafa lagt kapp á að aftra honum frá því að leggja sæmd sína í sölurnar fyrir annað eins mál. Björn Jónsson hefir svarað: Fyrst Englendingar láta sér sæma að þola slikt mönnum eins og Gladstone og Balfour, þá ætti ís- lendingum ekki að vera of mikið boð- ið með því að stjórnmálamenn þeirra leiti sannleikans í þessum efnum eins og öðrum. — En íslendingar eru ekki jafn-þroskuð þjóð eins og Eng- iendingar, hafa vinirnir sagt. — Þá verða þeir að öðlast þann þroska, segir Björn Jónsson. Og við það hefir setið hjá honum, eins og kunnugt er. Hann hefir aldrei látið sér skiljast, að hans verk sé að lúta hleypidómunum og vitleysunni, en hlaupast frá sannleikannm. Hans verk hefir verið, eftir þvi sem hann hefir litið á, að standa þar sem hann hyggur sannleikann vera, hvað þétt sem örvarnar hafa að honum drifið. Og a n n a r r a verk hefi það verið í hans augum að læra að virða sann- leikann. En þétt hefir örvaregnið verið. Rógurinn og smánanirnar hafa verið kafþykt mcddviðri. Svo þykt, að nú finst manni það eins og eitthvert æf- intýri, að Björn Jónsson skuli vera orðinn æðstur valdsmaður þessa lands, eftir kjöri meiri hlutans á þingi og samkvæmt vilja mikils meiri hluta þjóðarinnar. Það er æfintýrið um karlmenskuna, sannleiksástina, einurðina og dreng- skapinn, sem vinna sigur. Gott er, þegar þau æfintýri gerast með þjóð vorri I '-Um breytingarnar, sem gerast muni með þjóð vorri fyrir þá sök, að þessi ráðgjafaskifti hafa nú orðið, ætla eg ekki að fjölyrða. Fæst orð hafa þar að sjálfsögðu minsta ábyrgð, þó að eg væri miklu kunn ugri fyrirætlun u m ráðgj afan s en eg er. Enda eru þær breytingar ekki síður á valdi flokks hans og þjóðarinn- ar i heild sinni en hans. En bent get eg á einstök atriði í skoðunum hans, sem mér er kunnugt um, og eg tel víst að hafi áhrif á stjórnmála-atferli hans. Hann hefir hið mesta traust á kven- þjóðinni. Hann trúir því, að hrein- leikur, samvizkusemi og ást á hug- sjónunum mundi eflast til mikilla muna í stjórnmálum vorum, ef kon- urnar koma þar til sögunnar. Fyrir því virðist mér annað óhugsandi en að hann muni af mikilli alúð vinna að því, að fá framgengt á stjórnar- árum sinum þeirri mikilsverðu breyt- ingu, að konur fái fult jafnrétti við karla í málum þessa latids. Hann hefir alveg óvenjulega rnikihn samhug með og traust á æskulýð landsins, enda er hann sjálfur svo ungur í anda, að líkara er manni á tvítugsaldrinum en á sjöunda ára- tugnum. Eg gæti trúað því, að ekk- ert hans áhugamála sé honum hjart- fólgnara en það, að geta stuðlað að því að hjálpa sem flestum æskumönn- um þessa lands út úr þoku gjálífisins og hugsunarleysisins út í sólskin hug- sjónalífsins. Leiðirnar út úr þokunni eru vitanlega margar. Eg skal láta ósagt, hverjar þeirra hann hyggur greiðfærastar. En hitt veit eg, að hann ann þeim öllum. í hinum almennu framfaramálum landsins veit eg, að það er fram- leiðslan, sem hann vill leggja mest kappið á. Hann vill láta önnur fyrir- tæki, svo sem brautir og síma, bíða, að svo miklu leyti, sem unt er, hent- ugri tíma — þess, að eitthvað hægist um fjárhagiun — ef ekki verður séð, að þau efli framleiðsluna i bráð að verulegum mun. Hann vill ekki ein- göngu stuðla að aukinni ræktun lands- ins og efling fiskiveiðanna, heldur jafnframt að því, að afurðir landbún- aðarins og sjávarútvegarins verði unnar hér á landi með þeim hætti, sem út- lendur markaður vill hafa þær. Til þeirra framkvæmda og allra annarra framfara vill hann nota aðstoð og þekkingu útlendra manna, ef þess gerist þörf, en með þeim hætti ein- um samt, að völd og eignir séu í höndum hérlendra manna. Slíkar framkvæmdir telur hann með undir- stöðuatriðunum undir sjálfstæði þjóð- arinnar. Og vitanlega er sjálfstæði þjóðar- innar aðalhugsjón hans í stjórnmál- unum. Honum er það ef til vill að þakka meira en nokkurum einum manni öðrum, að þingið, sem nú er háð, er svo skipað, að það er ófáanlegt til að tortíma sjálfstæðisvonum þjóðar- innar með því að játast inn í inn- limun alríkisheildarinnar. Danir viður- kenna nú sjálfir, að til þess hafi verið stofnað með Uppkastinu, og að sögu- sagnir hér á landi á undan kosning- unum og fortölur, sem því voru gagnstæðar, hafi verið markleysa ein. Skipun Björns Jónssonar í ráðherra- sessinn er tákn og innsigli þess, að þjóðin reis öndverð gegn þeirri ráða- gerð. Ljóst er honum það að sjálfsögðu, að þjóðin getur ekki látið við það lenda að hrinda af sér þeirri hættu. Húu verður að leggja út á leiðiaa að sjálfstæðistakmarkinu. Hann hefir þegar í utanför sinni látið uppi við Dani, sem sina sannfæring og stefnu- skrá, þær hugsjónir íslendinga, sem lengst fara í sjálfstæðisáttina, — hvað sem rógberar íslendinga segja um það mál. Hann hefir gert það með góðum orðum og afneitun allrar óvildar hér á landi í Dana garð, eins og líka var sjálfsögð skylda hans. En hann hefir gert það svo ljóst, að sum afturhaldsblöðin dönsku hafa ausið hann illmælum fyrir það, eftir er þau fengu tóm til að átta sig á, hvað í orðum hans var fólgið. Hann vill leggja alt kapp á að sannfæra Dani með góðum orðum og »skynsamlegu viti«, eins og Snorri sagði, um það, að kröfur vorar séu rétt- mætar og þeim með öllu hættulausar. En hann veit það, sem allir skyn- samir menn vita, að það gerist ekki fyrsta daginn. Og hann veit líka, að uadir sjálfstæði voru verða fleiri stoðir að standa. Skilji eg hann rétt, ætlast hann til þess, að störf þessa þings beri þess óræk merki, áður en lýkur, að sjálf- stæðisbarátta vor sé hafin af góðri fyrirhyggju, ekki eingöngu með um- ræðum og ályktunum um sambands- málið sjálft, heldur og á öðrum svæðum. Einar Hjörkijsson,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.