Ísafold


Ísafold - 04.05.1909, Qupperneq 2

Ísafold - 04.05.1909, Qupperneq 2
98 ISAFOLD — Það er að segja hljóðin í lands- búum, því að drotningin er á íótum enn. Alt til þessa hefir illa tiltekist með drotninguna, eins og flestir vita, en nú hefir það blessast, og Hollend- ingar kváðu vera viti sinu fjær af kviðablöndnum fögnuði. Fara kynja- sögur miklar af gauraganginum þar, mannsöfnuði, óhljóðum og skotbún- aði. Fæði drotningin sveinbarn, á að skjóta 102 fallbyssuskot, en 51 ella. Sagt er að Hinrik prins, maður drotningarinnar, sé milli vonar og ótta, því að Hollendingar hafa lagt fæð á hann undanfarið vegna slysni drotn- ingar og nú er sagt að þeir muni skella á hann allri skuldinni ef illa gengur, og sjálfsagt þykir þeim við hann, ef drotningin fæðir meybarn. Sagt er að það þyki nú »hæst- móðins* í Hollandi hjá konum, að vera þungaðar, og kvað úa og grúa af óléttu kvenfólki á götum Haag- borgar. Blaðamenn streyma að úr öllum álfum heims til þess að vera viðstaddir þenna mikla atburð. [Síðan hefir þetta frézt frá Khöfn: Nú er fjölgað hjá drotningunni í Hollandi. Barnið er — s t ú 1 k a]. Mannalht. Hammershaimb, fyrv. pró- fastur í Færeyjum, lést nýlega hér í Höfn, fjörgamall. Honum eiga Fær- eyingar mikið upp að inna, hann hefir skapað færeyska ritmálið, gefið út Færeyingasögu, sýnishorn færeyskra bókmenta o. fl. Hann er einn af þjóðhetjum eyjar- skeggja — Eggert Ólafsson Færey- inga, ef ekki meira. Snemma i þessum mánuði andað- ist Guðrún Ragnhildur Lambertsen, Hjálmarsen, ekkja eftir (Guðmund?) Lambertsen kaup- mann í Reykjavík og móðir Níels Lambertsens heitins læknis. Hún lézt hjá syni sínum í Kaupmannahöfn, Þorsteini Lambertsen úrsmið, og dætrum sínum, Sigríði og Hólmfríði. Svipall. Lög frá alþingi. 15. Um almennan elli- sty rk. 1. gr. í hverjum kaupstað og hreppi á landinu skal stofna styrktarsjóð handa ellihrumu fólki. í sjóð þennan renn- ur styrktarsjóður handa alþýðufólki, sem til er í kaupstaðnum eða hreppn- um. Sjóðir þessir skuli styrktir með ár- legu tillagi úr landssjóði, er nemur 50 aurum fyrir hvern gjaldskyldan mann til sjóðsins það ár. 2. gr. Gjaldskyldir til ellistyrktar- sjóðsins eru allir, karlar og konur, sem eru fullra t8 ára og ekki yfir 60 ára, nema þeir, er nú skal greina: a. Þeir, sem njóta sveitarstyrks. b. Þeir sem fyrir ómaga eða ómög- um eiga að sjá, sem og þeir, er fyrir heilsubrest eða af öðrum ósjálfráðum ástæðum eigi geta unnið fyrir kaupi, ef þessir menn hvorirtveggja að áliti hrepps- nefndar eru fyrir fátæktar sakir ekki færir um að greiða gjaldið, enda greiði ekkert aukaútsvar. c. Þeir, sem sæta hegningarvinnu. d. Þeir, sem hafa tryggt sér fé til framfærslu eftir 60 ára aldur, að upphæð 150 kr. á ári að minsta kosti. 3. gr. Hver gjaldskyldur karlmað- ur greiðir í styrktarsjóðinn 1 kr. 50 a. á ári en kvenmaður 75 aura. 4. gr. í ellistyrktarsjóð rennur gjald fyrir leyfisbréf til lausamensku samkv. x. gr. í lögum nr. 3, 2. febr. 1894 um breytingu á tilskipun um lausamenn og húsmenn á íslandi 26. mai 1863 og viðauka víð hana. 5. gr. Hreppsnefndir skulu fyrir lok janúarmánaðar ár hvert semja skrá um alla þá, er gjaldskyldir eru í hreppn- um til styrktarsjóðsins. I kaupstöð- um semja 3 menn, er bæjarstjórnin kýs úr sínum flokki, skýrslur þessar. Á skrána skulu þeir settir, er lögheim- ili hafa í kaupstaðnum eða hrepnum hinn 1. janúar; sé vafi um heimilis- fang manns, skai hann settur á skrá í þeim kaupstað eða hreppi, þar sem hann dvelur um áramótin. Á skrána skulu þeir settir, sem eru fullra 18 ára hinn 1. janúar, og sömuleiðis þeir sem ekki eru fullra 60 ára hinn sama d;ig. Skráin skal rituð á prentuð eyðublöð, er stjórnarráðið útbýtir. Lögreglustjórinn í Reykjavík og hver prestur, að því er prestakall hans snert- ir. er skyldur til að láta nefndum þessum í té skýrslur þær, er nauðsyn krefur, úr manntalsskýrslum í Reykja- vík og sálnaregistri annarstaðar. 6. gr. Auk þess, sem gjaldendur eiga að greiða gjöld sín til ellistyrkt- arsjóðsins hver fyrir sig þá eru menn og skyldir til að leggja fram gjöldin fyrir aðra svo sem nú segir: a. Kvongaðir menn eiga að inna af hendi styrktarsjóðsgjald fyrir konur sínar, meðan hjónaband- inu er ekki slitið með lögum, enda séu þau til heimilis í sama hreppi. b. Foreldrar og fósturforeldrar eiga að inna af hendi styrktarsjóðs- gjald fyrir börn sín og uppeld- isbörn, sem vinna hjá þeim, eru á þeirra vegum éða þeir kosta til náms. c. Húsbændur eiga að greiða styrkt- arsjóðsgjald fyrir hjú sín og annað þjónustufólk sitt. d. Iðnaðarmenn eiga að greiða styrktarsjóðsgjald fyrir starfsmenn sína (iðnnema og sveina). e. Kaupmenn verzlunarstjórar og aðrir verkabændur eiga að greiða styrktarsjóðsgjald fyrir þá, sem eru í fastri þjónustu hjá þeim, ef þeir eiga ekki sjálfir heimili forstöðu að veita. f. Húsráðendur eiga að greiða styrktarsjóðsgjald fyrir lausamenn og lausakonur, sem hjá þeim hafa lögheimili síðasta vistarár, svo og fyrir húsmenn, sem ekki hafa húsnæði út af fyrir sig. Nú eru þessir menn öreigar að á- liti hreppsnefndar eða bæjarstjórnar, og fellur þá niður skylda þeirra til að greiða styrktarsjóðsgjöld fyrir aðra, sem þá skulu sjálfir greiða gjaldið. Þeir, sem greiða styrktarsjóðsgjöld fyrir aðra, hafa rétt til þess, að telja þau þeim til skuldar, sem gjaldskyldir eru, svo og til að halda gjaldinu eftir af kaupi þeirra eða launum. 9. gr. í kaupstöðum skulu bæjar- fógetar, en í sveitum sýslumenn, inn- heimta gjaldið á manntalsþingum og koma því á vöxtu í aðaldeild Söfnun- arsjóðsins. Innheimtumenn fá 2% fyrir innheimtuna. 10. gr. í kaupstöðum skulu bæjar- fógetar, en í hreppum sýslumenn, hafa á hendi reikningshald sjóðanna og geyma eignarskilríki þeirra. Reikning- ar sjóðanna fyrir hvert ár skulu fyrir lok janúarmánaðar sendir hlutaðeigandi bæjarstjórn eða sýslunefnd og kýs bæjarstjórnin eða sýslunefndin 2 menn til að endurskoða þá, en bæjarstjórnin eða sýslunefndin úrskurðarreikningana. í kaupstöðum sendir bæjarstjórnin stjórnarráðinu árlega skýrslu um hag ellistyrktarsjóðanna; samskonar skýrslu sendir sýslunefudin stjórnarráðinu. í stjórnartiðindunum skal árlega birta skýrlu um hag styrktarsjóðanna í hver- jum kaupstað og hverri sýslu. 11. gr Árgjöld til ellistyrktarsjóð- anna má taka lögtaki samkvæmí lög- um 16. desbr. 1885 um lögtak eða fjárnám án undanfarins dóms eða sátt- ar, og hafa styrktarsjóðsgjöld sama forgangsrétt í dánar- eða þrotabúi gjald- enda, eins og skattar eða gjöld til landssjóðs. 12. gr. í hverjum kaupstað og hreppi skal á ári hverju að jafnaði, ef verð- ugir umsækjendur hafa gefið sig fram, úthluta 2/3 hlutum af gjaldi því, er það ár ber að greiða til ellistyrktar- sjóðsins í kaupstaðnum eða hreppnum, og enn fremur hálfum styrk þeim, er lagður er til styrktarsjóðsins úr lands- sjóði á árinu, svo og hálfum vöxtun- um af styrktarstjóðnum fyrir næsta ár á undan. 13. gr. Sýslumaður skal fyrir lok júlímánaðar ár hvert skýra hrepps- nefndunum frá því, hve mikil fjár- hæð komi til úthlutunar á árinu úr styrktarsjóðum hreppanna, og hin sama skylda hvílir á bæjarfógetanum gagnvart bæjarstjórn, en hreppsnefnd- ir og bæjarstjórnir skulu síðan birta þetta í hreppnum eða kaupstaðnum á venjulegan hátt fyrir lok ágústmán- aðar. 14. gr. Styrk þann, er árlega skal úthluta, veita bæjarstjórnir og hrepps- nefndir ellihrumum fátæklingum, sem eru fullra 60 ára að aldri eða þar yfir, og heima eiga í hreppnum eða kaup- staðnum, án tillits til þess, hvar þeir eru sveitlægir, svo framarlega sem umsækjandi á framfærslurétt hér á landi og hefir ekki þegið sveitarstyrk 5 síðustu árin; þó er sveitarstjórn heimilt að veita elltstyrk konu, er skilið hefir við mann sinn að borði og sæng eða að lögum eða orðið ekkja, þótt maður hennar hafi þegið sveitar- 'styrk meðan þau voru saman og eigi séu liðin 5 ár frá því hann þá af sveit. Þegar sérstakar, knýjandi ástæður eru fyrir hendi, er sveitarstjórn enn fremur heimilt að veita styrk þann, er hér um ræðir, heilsubiluðum fá- tæklingum, þótt ekki séu þeir orðnir sextugir að aldri. Styrkur til lækninga, borgun fyrir meðul, sjúkrahúsvist, umbúðir og slíkt, telst eigi sveitarstyrkur, þá er um elli- styrk er að eiga. Við úthlutun styrksins skal einkum hafa það fyrir augum, hve mikil og brýn þörf umsækjanda er og hvort hann er reglusamur og vandaður mað- ur. 15. gr. Þeir, er vilja fá styrk úr ellistyrktarsjóði, skulu fyrir lok sept- embermánaðar ár hvert senda skrif- lega beiðni um styrkinn til hlutað- eigandi bæjarstjórnar eða hreppsnefnd- ar, og á umsóknarbréfið að fela í sér þær upplýsingar, sem með þarf til þess að geta dæmt um verðleika um- sækjanda. Beiðninni skulu fylgja vottorð ein- hvers málsmetandi manns um það, að upplýsingar þær, er í beiðninni standa, séu sannar. 16. gr. Styrkurinn veitist fyrir lok októbermánaðar. Hann veitist fyrir eitt ár í senn, og má ekki vera undir 20 krónum og ekki yfir 200 kr. Landsstjórnin setur nánari reglur um úthlutun styrksins. 17. gr. Ef engin umsókn um styrk úr ellistyrktarsjóði berst til bæjarstjórn- ar eða hreppsnefndar eða aðrar gildar ástæður valda því, að eigi þykir rétt 1 að úthluta öllu því fé, sem um er rætt í 11. gr., skal það, sem afgangs verður, lagt við innstæðu sjóðsins. 18. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1910 og ber að innheimta elli- styrktarsjóðsgjöld samkvæmt þeim í fyrsta skifti á manntalsþingum 1910. 19. gr. Lög um styrktarsjóði handa alþýðufólki 11. júlí 1890 og lög um breyting á lögum um styrktarsjóði handa alþýðufólki 18. desbr. 1897 eru úr lögutn numin. 16. Um breytingálögum um kosningar til alþingis frá 3. okt. 1903. 1. gr. Aukakjörskrá þá, sem um' er iætt í 12. gr. laga um kosningar til alþingis 3. okt. 1903, skal semja í maímánuði, svo að hún sé fullbúin 15. dag þess mánaðar, og skal hún þann dag lögð fram til týnis á sama eða sömu stöðum og aðalkjörskrá og liggja frammi næstu 7 daga. Á auka- kjörskrá skulu þeir settir, er ekki hafa kosningarrétt, er kjörskrá gengur í gildi (1. júlí), en vitanlegt þykir að fullnægja muni skilyrðum þeim, sem til kosningarréttar þurfa, einhvein tíma á árinu, er kjörskrá gildir fyrir, svo og þeir, sem ekki var vitanlegt um, er aðalkjörskrá var samin, að mundu fullnægja þessum skilyrðum fyrir 1. júlí. Enn fremur skal setja á auka- kjörskrá þá kjósendur, er fallið hafa burt af aðalkjörskrá og einhverra or- saka vegna hafa ekki átt kost á að koma fram með aðfinslur við kjör- skrána í tæka tíð. 2. gr. Með kærur og aðfinningar við aukakjörskrá skal fara sem við að- alkjörskrá, en þó svo, að frestir allir séu Vs styttri og að samrit aukakjör- skrár skuli sent oddvita yfirkjörstjórn- ar fyrir 1. júli. 3. gr. Frestur sá, sem er ætlaður yfirkjörstjórn í 21. gr. kosningarlag- anna_ til að fullgera kjörseðla, skal vera 10 dagar. 4. gr. Nú deyr frambjóðandi, áður en kosning fer fram, en eftir að fram- boðsfrestur er liðinn eða á næstu 3 sólarhringum fyrir það tímamark. Þá má annar maður innan 8 daga bjóða sig fram til þingmensku, ef fullur helmingur meðmælenda hins látna eru meðai meðmælenda hans. Ef fresta þarf kosningu í kjördæm- inu af þessum ástæðum, stofnar stjórn- arráðið til nýrrar kosningar þann veg, sem fyrir er mælt í 54. gr. kosningar- laganna. 5. gr. Almennar reglulegar kosn- ingar til alþingis, sem ákveðið er að fari fram 10. dag septembermánaðar, með 25. gr. kosningarlaganna, skuln hér eftir fram fara fyrsta vetrardag. 6. gr. Ef kjósandi skýrir kjörstjórn frá því, að hann sé eigi fær um að kjósa á fyrirskipaðan hátt, og færir sérstakar ástæður til, er kjörstjórn metur gildar, skal sá úr kjörstjórninni, er kjósandi nefnir til, veita honum aðstoð til þess í kjörherberginu. Þetta skal bókað í kjörbókinni að tilgreind- um ástæðum. 7. gr. Þá er kosning þingmanns er ógilt samkvæmt 29. gr. stjórnar- skrárinnar, sbr. 41. og 48. gr. kosn- ingarlaganna, skal stjórnarráðið skipa fyrir um nýja kosningu svo fljótt sem verða má. 8. gr. Nú ferst kosning fyrir í ein- hverjum hreppi á hinum ákveðna degi sökum óveðurs eða af öðrum óvið- ráðanlegum orsökum, kveður þá undir- kjörstjórn til kjörfundar af nýju þann veg, sem mælt er fyrir um í öðrum málslið 51. gr. kosningarlaganna. 17. Um aðleggja jörðina Naust í Hrafnagi 1shreppi í Eyjafjarðarsýslu undir lögsagnarumdæmi og bæjar- félag Akureyrarkaupstaðar. 18. Um breyting á lögum nr. 3, 4. febr. 1898 umað- greining holdsveikra frá öðrum mönnum og flutn- ing þeirra á opinberan spí- t al a. HafnarpÍ8tiil. Jóhannes Jósefsson & Co. í Cirkus. Fyrsta kvöltlið. Vesturbrú heitir einn hluti Kaup- mannahafnar. Þar eru hallir miklar og kvennafar — eins og Gröndal seg- ir í Heljarslóðarorustu. Vændiskon- ur eru þar eins og mý á mykjuskán — seiðskrattar, sitjandi úti á kross- götum. Þar er, með öðrum orðum, miðstöð bæjarins, sá hlutinn, sem mestan hefir á sér stórbæjarbraginn. Ein af þessum höllum er Cirkus. Þar eru saman komnir menn af öll- um þjóðum, karlar konur og börn, til þess að sýna sig fyrir peninga og íþróttir sínar. Þar eru sýndar alls- konar glímur og aflraunir, hopp, stökk, hlaup, leikar, dansar og aðrir fimleikar. Þar er og látið öllum illum látum og þar striplast karlar og konur feimn- islaust. Þar eru þeir félagar, Jóhannes Jós- efsson og glímumennirnir fjórir, ráðn- ir frá 16. apríl til mánaðarloka, til þess að sýna íslenzka og japanska glímu. Er íþrótt þeirra nefnd á leik- skránni íslenzk víkingaglíma og er auglýst drjúgum í blöðum og á gatna- mótum. A tilteknum degi, 16. þ. m., sýndu þeir sig fyrsta sinn og voru þá margir íslendingar viðstaddir eins og vænta mátti. Cirkus er opnaður kl. 8 síðdegis og standa leikarnir yfir nærri fjórar stundir. Húsinu er fyrir komið sem leikhúsi að mestu leyti og tekur það mörg hundruð manna, þar er alloftast fullsetinn bekkur og svo var þetta kvöld. Leikskráin er venju- lega hin sama heilan mánuð í einu, frá fyrsta til síðasta dags í hverjum mánuði. Þó ber við, að út af er breytt og svo var þetta sinn. Glímunni var bætt inn i um miðjan mánuðinn og svo til hagað, að hún skyldi sýnd síðust á skránni, næst á undan kvik- myndum, en þær reka altaf lestina. Það þykir venjulega bezt að vera síð- astur á skránni, en svo fór í þetta skifti, að komið var töluvert los á fólkið og menn teknir að tínast burt um það leyti, er glímurnar hófust. Á tólfta tíma komu kapparnir inn, búnir sem fornmenn í litklæðum. Danskur maður, Erikstn að nafni, stallmeistari, hafði orð fyrir þeim, skýrði frá íþróttum þeirra i fám orð- um og sagði fyrir um glímuna. Tókust þeir siðan á og glímdu nokkra stund tveir og tveir. Jón Pálsson og Jóhannes Jósefsson sýndu brögðin, en hinir tveir, Jón Helgason og Kristján Þorgilsson, glímdu kapp- glímu. Sjá mátti þegar, að mennirnir voru ekki svo vanir leiksviði sem skyldi og kunnu engan veginn að sigra áhorfendur eins og þeir hefðu getað. Misráðið var að sýna íslenzk glímu- brögð öðru visi en i kappglímu og það dró úr öllum áhrifum og spenn- ingi meðal áhorfenda, að Jón Páls- son datt þegar við hvert bragð, er Jóhannes lagði á hann. Raunar bætti það nokkuð úr að hinir tveir glímdu kappglímu, en hún fór ekki eins vel og skyldi. Mennirnir notuðu ætið sörnu brögðin — héldu hvor öðrum uppi á bringunni á víxl. Þetta varð æði einhliða, og þeim, er séð hafa vel glímt heima, þótti lítið til koma. Síðan glímdu þeir all-lengi japanska glímu (Tiu-Jitsu), þeir Jóhannes og Jón Pálsson. Voru þar á sömu ann- markarnir — Jón féll undir eins við fyrsta bragð og síðan aftur og aftur, eins og hann mætti sér enga vörn veita. Því næst réð Jón Pálsson á Jóhannes með slaghanzka á höndum sem hnefa- leikamaður og seinna með hnífi, all- mikilli sveðju, og reyndi ýmist að berja hann, eða Ieggja með kutanum, en Jóhannes varðist fyrst með íslenzk- um glímubrögðum, en seinna með japönskum. Ekki fór þetta heldur eins vel úr hendi eins og vera átti. Jón kunni sýnilega lítt til hnefaleika og urðu því aðfarirnar fremur slittislegar, þegar hann slæmdi höndunum til Jóhannesar. Eins fór með banatilræðin með hnífn- um. Þó að Jón gerði sig allgeigvæn- legann á svipinn, var hann eigi nógu snar í snúningum og miðaði hnífn- um venjulega fyrir ofan höfuð Jó- hannesi. Gat þetta því vel litið út sem látalætis-sjónhverfingar,þó að sann- leikurinn sé sá, að nái Jóhannes eigi að afstýra laginu, getur Jón eigi stöð- vað hnífinn. En þetta kom eigi nógu vel í Ijós. Allir áttu að vera milli vonar og ótta. Líkt fór og þegar þeir réðu allir þrír á Jóhannes einan og hann þurk- aði sig af þeim öllum. Hreyfingar urðu of seinar og sleifaralegar, ham- farir eigi nógu miklar af beggja hálfu, verjanda og áhlaupsmanna. Með meiri iðkun og meiri fimleika hefði þetta átt að verða miklu áhrifameira. Loks sýndi Jóhannes afl sitt með því að leggjast nærri nakinn upp í loft með hendur og fætur L tveim háum grindastokkum, en skrokkinn annars á lofti, og lét síðan leggja 500 enskra punda (ca. 450 pd.) þungan steðja úr járni oían á kvið sér og berja á hann með þungri sleggju nokkr- um sinnum. Stóðst Jóhannes þetta án þess að kikna hið mináta eða láta undan. Þessu var fagnað með mikl- um lófaskellum. Áhorfendur. Viðtökur. Þrátt fyrir þessa ágalla, er sjálfsagt má bæta úr flestum eða öllum með tímanum og æfingunni, og þ átt fyrir losið og þysinn á bekkjunum, varð eigi annað séð en að áhorfendum hefði líkað vel, íramar öllum vonum. Var klappað allmikið fyrir glímumönn- um, einkum upp á síðkastið. Sýnir þetta ljóslega, að íslenzk glíma getur átt mikla framtíð fyrir höndurn á út- lendu sjónarsviði, ef vel er fyrir komið og fimlega og kænlega hagað hreyf- ingum öllum og brögðum, hraðari tök og lengri sviftingar. Þetta hljóta glímu- mennirnir að sjá og læra smám sam-

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.