Ísafold


Ísafold - 02.06.1909, Qupperneq 1

Ísafold - 02.06.1909, Qupperneq 1
Kemui út ýmist einu sinni eða tvisvar í viku. Yerö árg. (80 arkir minst) 4 kr., er- lendis 5 kr. e7)a 1V* dollar; borgist fyrir mibjan júl (erlendis fyrir fram). ISAFOLD Uppsögn (skrifleg) bundin viö Aramót, er ógild nema komin só til útgefanda fyrir 1. okt. og aaupandi skuldlaus vib blabiö. Afgroibsia: Austurstræti 8. XXXVI. árg. Iteykj avík miðvikudaginn 2. júní 1909 33. tðlublað I. O. O. F. 906119. Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—3 í spítal Porngripasafn opib á mvd. og ld. 11—12. íslandsbanki opinn 10—2 */* og öJ/a—7. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til 10 siöd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 x/a siðd. Landakotskirkja. öubsþj.ðVt og 6 á helgidögum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10ljt—12 og 4—5 Landsbankinn 101/*—21/*. B^akastjórn við 12—1. Landsbókasafn 12—8 ogr £ -ð, Landsskjalasafniö á þt«t., fmd. og Id. 12—1. Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12. Náttúrugripasaín (i landsb.safnsh.) á sd. I1/*—21/*. Tannlækning ók. i rósthússtr. 14, l.ogð.md. 11- * Iðnaðarmenn I Munið eftir að ganga i Sjúkrasjóð iðnaðarmanna — Sveinn Jónsson gjk. — Heima kl. 6 e. m. — Bókhlöðustlg 10. Pétuf 1. Thoisteinsson Lækjartorg R ey kj avík kaupir gegn peningum íslenzkar vör- ur, svo sem gotn, sundmaga og salt- fisk nr. 1 af öllum tegundum, ýmist fullverkaðan eða upp úr salti, einnig dún, selskinn o. fl. FaxaflóaMturil IHGOLFUR fer til Borgarness júní io., 18., 20., 27. Akra og Búða júní 3. Keflayíkur og Garðs júní 7., 16.,23.,30. Grindavíkur júní 7. Garðs júní 14. Sandgerðis júní 23. Stokkseyrar júní 30. Heilsuhælið á VífLlssteðum. Hornsteiiin að því lagður 31. maí 1009, Meira en 3,000 manns þar saman komin. Annan í hvítasunnu, mánudaginn 31. maí, var lagður hornsteinninn að því mikla og merkilega stórhýsi, Heilsuhælinu. Þar var saman kominn slikur mannsafnaður, að fáséður er jafnmikill í höfuðstað landsins sjálf- um, þegar mest er um að vera, enda að kominn úr öllum nærsveitunum, auk Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, sem lögðu til mestan rnannfjöldann: sjálf- sagt nokkuð á fjórða þúsund manns, er sumt hafði farið sjóleiðis á Ingólfi um morguninn til Hafnarfjarðar, en gengið þaðan, en sumt ríðandi, ak- andi, hjólandi eða gangandi alla leið. Veður var gott urn daginn: svalt með sólu. Hælisstæðið skein alt í fánum um daginn. Athöfnin hófst kl. 4 síðdegis uppi á fánaskreyttum ræðupalli við útsuður- hornið hleðslunnar, hófst á því, að sungið var kvæði það, er Guðm. Guð- mundsson hafði gert og prentað er hér á öðrum stað í blaðinu, sungið undir forstjórn hr. Sigfúsar Einars- sonar og af söngsveit hans, karlakór. Þá fluttu ræður hver eftir annan, þær er hér eru prentaðar í blaðinu, þeir Klemens Jónsson landritari, formaður Heilsuhælisfélagsins, G. Björnssonland- læknir og Björn Jónsson ráðgjafi, er las að lokum upp bókfellsskrá, þá er á var ritin frásögn um stofnun Heilsu- hælisfélagsins og um það, er lagður var hornsteinninn að hælinu, hverir nú eru æðstu embættismenn landsins, hverir í framkvæmdarstjórn Heilsu- hælisfélagsins, hverir verkstjórar að hælinu m. fl. Þetta skjal var lagt í blýhylki, er var síðan lóðað aftur, og lagt í þar til gerða hola undirstöðu- hleðslu, er ráðh. múraði yfir. Þá var sungið að lokum kvæði Þorsteins Erlingssonar. Athöfnin stóð nær U/2 tíma. Heilsuhælisljóðin. I. Yér heyrðnm oft þá erfikenning, að enginn fresti dauðastnnd! En obs er vaxið vit og menning og vofum slikum lokuð sund. — Er heim oss sótli »svarti dauði«, hér sat að völdum þessi trú. En skelfir heimsins, hviti dauði, þér hjálpar ekki kenning sú. Þeim fjölgar hratt, þtim grænn gröfum, sem geyma lands vors æsknþrótt, og ljósum tárum leiðin höfnm vér laugað bæði dag og nótt, og yfir dánum vonnm vakað hjá vorum kærstu langa hrið og — getað okkur sjálfa sakað um sýking þeirra og dauðastrið. Hér sjást nm vit og mannúð merki: að mýkja þjániog krossberans, og guð er með í góðu verki, að glæða ljósin kærleikans. Hér skal sá helgi huliðskraftur oss hefja og bera ljósi mót, og gefa dauða-dæmdum aftur hið dýra frelsi og meinahót. Hér streymir heilnæmt loft nm lindir, sem líða fram með hægum nið; á ijóssins öldnm svannr syndir, af söngvnm himinn kveður við; á kvöldin þýtnr þröstnr glaðnr með þýðum klið um viðihól; já, hér er góður griðastaður og gott er sjúkum loft og sól. Guðs kraftur, ljós og Hknarandi hér líði nm hvern, er kemur inn, svo fækki tár og leiði i landi, en ljúfar brosi framtíðin ! Vér reisnm þetta þjóðarvlgi við þúsund vona geislaskraut, svo færri af landsins hetjum hnigi i hvita dauða kalda skaut. 6r. G. II. Hér hopar þó ein okkar hörmnng nm fet, og hér ætti’ að koma’ á hann sári þann óvin, sem blóðtíund lúka sér lét af lifsstofni vorum á ári; hans fall væri sigur, sem munaði’ oss mest; hann markar hér ótæpt, og heimtir það flest. Hjá óbeit á lærdómi og ástleysi’ á sól við alls-nægtir sat hann að stóli: með rignegldu gluggunum aldur hann ól hjá aumingjans vonleysis bóli; og »ósvikna« röðin með a, b, c, d var ábyrgðarsjóður hans, verðlannafé. En kveðju þess vinar var kastað 4 glæ, sem kom af þeim viðbláu leiðum með heimboðin inn i hvern einasta hæ frá angandi túnum og heiðum að baðast þar, drekka þar dagroðans höf, nnz dauðinn sat eftir með hálftekna gröf. En hér skal hann búa, sá hláfjallason, og blessa hér mildur og fagnr i kirkjunni fyrstn, sem vermist af von, og vigð er þér himinn og dagur. Og hrjóstunum þjökuðu bjóðið þið inn að hlessa hér daggeislann, lifgjafa sinn. Þú morgunsól, læknirinn, littn bér heim með lífsvon, er byrjarðn daginn, og hlúðu með geislunum hugunum þeim, unz hnigurðu’ brosandi í sæinn. Og fylgdn loks heim til sin hverjnm um sig með hatur 4 draugum og lofgjörð um þig. Þ. E. Kæða landritara. 13. nóvbr. 1906 og 31. mai 1909 verða jafnan taldir merkisdagar í sögu þessarar þjóðar. Hinn fyrnefnda dag var Heilsuhælisfélagið stofnað, og i dag er lagður hyrningarsteinninn undir þá bygging, sem félagið var stofnað tii að iá komið upp. Það er ekki svo ýkja langt síðan að sú trú rikti jafnvel meðal lækna hér, að tæring væri óþekt hér á landi og gæti eigi þrifist hér, og þetta þótti svo merkilegt, að erlendir vísinda- menn gerðu fyrirspurn um það, hvort þetta væri svo í raun og veru. En hafi svo verið, sem víst er meira en vafasamt, þá er það víst, að tæringin hefir gert vart við sig síðustu ára- tugina, og það að marki, því hún hefir fengið leyfi til að leika lausum hala, hún hefir fengið leyfi til að taka hvert ungmennið af öðru og leggja það í gröfina. Það má segja, að hún hafi farið sigurför um landið, án þess reynt hafi verið til að hefta hana á þann hátt, sem farið er að tíðkast með góðum árangri í útlöndum. En loks vöknuðu þó íslendingar, og það varð þann 13. nóvbr. 1906. Það var Oddfellowfélagið, það félag, sem mörgu góðu hefir til leiðar komið, sem vakti þá, og hafi þeir sofið áður, þá er vist, að þeir vöknuðu þá vel, og hafa verið vel vakandi siðan. Það er ekkert nýtt, þegar slegið er til hljóðs fyrir einhverju nytsemdarfyrir- tæki, að þá er því vel tekið fyrst í stað, en því miður er það oft ekki annað en bóla, sem hleypur upp, en hjaðnar svo fljótt aftur. Öðru vísi hefir þessu máli farið. Allir urðu gagnteknir af því, og það svo, að það er víst eins dæmi, tillögin svo að segja streymdu inn alstaðar frá af land- inu fyrst í stað, og líka barst tals- vert frá löndum vorum vestan hafs. Eg þekki ekkert fyrirtæki, sem hefir vakið eins mikla eftirtekt, ekkert, sem hefir eins gripið hugi manna, og það var heldur engin furða; þau eru svo mörg heimilin hér á landi, sem hafa séð »hinn hvíta dauða« leggja ást- vinina í gröfina, og það á örstuttum tíma, og yfir öllum heimilum vofir sama hættan, enginn veit hvenær sjúk- dómurinn er kominn inn á heimilið, og það alt i voða, af því að sýkingar- hættan er svo mikil. En þrátt fyrir það, þó meira hefði mátt gera af hendi stjórnarnefndarinnar, það skal eg fúslega játa, þá hefir bólan þó eigi enn hjaðnað, hún hefir að sönnu runnið dálítið, en aldrei hjaðnað til fulls, og þegar vér erum nú komnir svo langt, aó leggja hyrningarstein- inn undir þá byggingu, sem á að verða sannnefnt heilsuhœli hinum sjúku, og huggun ástvinanna, þá þykist eg þekkja illa hugsunarhátt manna, ef eg ekki má fullyrða það, að þessi bóla hjaðnar ekki í bráð. Forðum gáfu menn fé til kirkna og klaustra fyrir sálu sinni; engri sálu verður betur borgið, það er trú mín, en með því að heita á og gefa til þessarar líknarstofnunar, þessa heilsuhælis. Dagurinn i dag er sann-nefndur merkisdagur fyrir hina íslenzku þjóð. Hann er vottur um það, að þjóðin er vöknuð til fullrar meðvitundar á því, hve hættulegur þessi sjúkdómur er, og að hún þekki skyldu sína gagnvart honum, en hann á líka að vera endur- minningardagur fyrir hana, og hann er það sérstaklega fyrir alla yður, sem hingað eruð komnir, til þess að vera viðstaddir hina merku athöfn, sem innan skamms á fram að fara. Hann á að vera upphvatning fyrir alla þjóð- ina að halda við þessu heilsuhæli og láta það fæða af sér annað og hið þriðja, ef þess gerist þörf, því þetta mál varðar alla jafnt, það er ekk- ert flokksmál, það sundurdreifir ekki, heldur dregur saman. Um leið og eg sem formaður heilsuhælisfélagsins segi þessi orð, sný eg máli mínu sérstak- lega til yðar, hinnar yngri kynslóðar, til yðar, sem framtið landsins byggist á, og bið yður, takið að yður þessa stofnun, styrkið hana og hvetjið aðra til þess að gera hið sama, takið hönd- um saman til að yfirstíga óvininn til fulls; það má ef vill. Með þessum upphvatningarorðum, semegvildi óska að yrði að áhrínsorðum; bið eg yður alla að vera velkomna hingað, hingað á þennan staðíhina sólbjörtu hvamma hér fyrir sunnan, og skógivöxnu hlíð- ar, sem vér búumst við, að sjúkling- arnir muni elska og gera enn þá fegurri, en þær eru af náttúrunnar hendi. Vér höfum eigi að þessu sinni upp á annað að bjóða, en innan skamms vonum vér að geta með yðar hjálp boðið sjúkum hæli og heilsu eða það sem er dýrmætast fyrir alla. Guð gefi þeim orðum sigur. Kæða iamHæknis. Mikli mannfjöldi; Allar frændþjóðir okkar hafa reist heilsuhæli handa brjóstveikum mönn- um, meira að segja Færeyingar, fá- mennasta þjóðin — þeir hafa nýlega eignast vænt og vandað brjóstveikra- hæli. Við íslendingar erum einir eftir. Og þó er þörfin engu minni hér á landi en annarstaðar. í öðrum löndum er fyrir löngu leitt í lög að heimta vottorð, dánarvottorð, um dauðamein hverrar manneskju. Þar hefir komið í ljós, að 7. hver manneskja deyr úr berklaveiki, flestir úr lungnatæringu og flestir á bezta aldri. Hér á landi verður ekki vitnað í dánarskýrslur. Vér íslendingar erum einir eftir. Alþingi hefir margneitað að lögleiða dánarskýrslur, þótt minkun sé frá að segja. Þess vegna vitum við ekki, hversu margir landsmanna deyja úr berkla- veiki — ekki með neinni vissu. En allar skýrslur læknanna bera þess vott, að berklaveikin hafi stór- um ágerst undanfarinn mannsaldur, og eg þykist þess fullviss, að hún er nú orðin jafn-algeng hér sem i öðr- um löndum; það er þvi óhætt að gera ráð fyrir, að hér á landi deyi árlega 200—230 manneskjur úr berkla- veiki og þar af 150—200 úr lungna- tæringu. Svarti dauði er útlægur úr Norður- álfu heims; því valda öflugar sótt- varnir. Bólusóttin er að deyja út; hún vofði áður yfir hverju manns- barni; forfeður okkar sögðu um efni- leg sveinbörn: »Hann verður ein- hverntíma að manni, ef bólan tekur hann ekki«. Stóra bólan 1707 drap 18000 manns af 50 þús. Nú eru liðin 70 ár síðan bólan gekk hér síð- ast; hana þarf ekki að óttast framar; því veldur bólusetningin. Nú á dögum er berklaveikin, »hviti dauðinn*, voðalegust allra farsótta. Hún ein verður jafnmörgum að bana, eins og allir aðrii næmir sjúkdómar samantaldir. Hún er í hverri sveit. Hún vofir yfir öllum; það er hvers dags viðburður, að ungar manneskjur koma til okkar læknanna og biðja að hlusta sig; óttinn skín úr augum þeirra, brjóstveikisóttinn; það er sízt að furða. Berklaveikin er langtiðasta banamein þeirra, sem deyja á unga aldri. Við getum ekki gert berklaveikina útlæga í einni svipan, eins og svarta dauðann. Hviti dauðinn er miklu langvinnari og rótfastari og þess vegna verri viðureignar. Og ekki getum við bólusett börnin gegn berklaveiki; við höfum litla von um, að það lánist nokkurn tíma. Þó er berklaveikin ekki ósigrandi. Það er vinnandi verk, að stemma stigu fyrir henni, og höfuðatriðið — það er að koma upp sérstökum sjúkra- húsum, heilsuhælum, handa brjóst- veikum mönnum. Fyrir því er feng- in heimsreynsla. Englendingar urðu fyrstir til;- þar hefir lika berkladauðinn þverrað um fullan helming síðastliðin 50 ár. Nú keppist hver þjóðin við aðra að koma upp heilsuhælum; og al- staðar sjást skjót umskifti; árið 1883 dóu 344 manneskjur úr lungnatær- ingu af hverjum 100,000 íbúum bæjum á Þýzkalandi; en siðan heilsu- hælin komu til sögunnar — þau eru afarmörg þar i landi — hefir mann- fallið minkað ár frá ári; 1906 dóu ekki nema 202 úr brjóstveiki af hver- jum 100,000; þar hefir þá brjóst- veikisdauðinn þverrað um 40°/0 á ein- um 20 árum. Brjóstveikin var áður talin ólækn- andi. Af hverjum too manneskjum, sem toma í gott heilsuhæli með veikina byrjun, fara 60 heim aftur albata eftir fárra mánaða dvöl, 13 með mik- inn bata og 15 nokkru hressari. Allir íafa þeir lært, hvernig varast má, að iessi fárnæmi sjúkdómur berist mann i:rá manni; þeir verða hver í sinni sveit ljós og liýandi leiðbeining um varnir gegn berklaveikinni. Heilsuhælin frelsa fjölda manns frá bráðum bana. Þau eru þar að auki sóttvarnarskólar fyrir allan landslýð. Af þessum tveimur ástæðum eru leilsuhælin orðið helzta vopnið í bar- áttunni gegn berklaveikinni. Nú megið þið líta hér umhverfis sandhauga, marga og mikla, og malar- byrgi. Þar er komið efnið, íslenzkt efni, í fyrsta íslenzka heilsuhælið. Það eru ekki liðin full 3 ár siðan heilsuhælisfélagið var stofnað (13. nóv. 1906) og nú er þó svo langt komið, að undirstaðan rétt er fundin. Félagið hefir dafnað, svo að engin dæmi eru til slíks; það á deildir úti um alt land; þær eru 114 að tölu; félagsmenn eru samtals 6154; árstil- lög þeirra nema samtals um 19 þús. kr., ef allir halda loforð sín; þar að auki hafa félaginu hlotnast gjafir úr ýmsum áttum, margar og miklar; það hefir lika orðið fyrir áheitum; gjafafé nemúr samtals um 7 þús. kr.; í sjóð félagsins hefir goldist að samanlögðu 32,466 kr. Það hrekkur ekki langt, en þörfin er bráð. Þess vegna hefir alþingi heitið félaginu ábyrgð á 130 þús. kr. láni til að koma upp húsinu og þar að auki veitt 10 þús. kr. árs- styrk. Þetta hvorttveggja var sam- þykt á alþingi í einu hljóði; í nafni félagsins færi eg þingi og stjórn inni- lega þökk fyrir þessa höfðinglegu hjálp. Það er nú afráðið, að vanda húsið eftir itrustu föngum. Þess vegna verður það dýrara en hugað var í fyrstu. Húsið verður alt úr steinsteypu, öll gólf lika steypt, hvergi tré nema í gluggum, hurðum og þaki. Það verður 64 álnir á lengd, 13 álnir á breidd; álmur ganga aftur úr báðum endum, 20 áln. á lengd, 16 á breidd; og þar að auki útskot á miðri bak- hlið, 9 álnir út og 13 álna breitt; húsið verður þriloftað og kjallari undir þvi öllu; í honum verður eldhús, þvottahús, baðhús, vermivél og mörg forðabúr. í stofubygðinni er gangur með norðurhlið 3V4 al. á breidd; þar verða móti suðri dagstofa handa sjúk- lingunum 9X:43/4 alin, 2 borðstofur handa sjúklingunum, alin hvor þeirra, þá matreiðsluherbergi; i austurálmu stofubygðarinnar er íbúð læknis, en í vesturálmu 2 sjúkrastofur, hvor fyrir 6 sjúklinga, og herbergi handa hjúkrunarkonu. A miðbygðinni verða 10 einbýlis- stofur, fyrir 10 sjúklinga, og 6 sam- býlisstofur, sem rúma að samanlögðu 30 sjúklinga; á þessari bygð er íbúð fyrir 2 hjúkrunarkonur og rannsókna- stofa læknis. Á efstu bygð er starfsfólki ætluð íbúð; þar verður mikið rúm afgangs, sem deila má í stofur siðar handa sjúklingum, og mun þá mega rúma þar um 20 sjúklinga, í viðbót við þá 52, sem ætlað er rúm í neðri bygð- unum. Lofthæðir eru: í kjaliara 4^/2 al., i stofubygð og miðbygð 5 4/4, í efstu bygð lakar 5 álnir. Þakið er portlaust. Þessi efsta bygð úr steini verður engu dýrari en brotið þak með porti og kvistum, en miklu notasælli til frambúðar. Þetta mikla og vandaða hús mun,

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.