Ísafold - 18.08.1909, Blaðsíða 1

Ísafold - 18.08.1909, Blaðsíða 1
Kemui út ýmist einu sinni eða tvisvar l viku. Yerö árg. (80 arkir minst) 4 kr., er- lendis 5 kr. eða 1 x/a dollar; borgist fyrir miftjan júli (erlendis fyrir frara). ISAFOLD Uppsögn (skrífleg) bundin viö áramót, er ógild nema komm só til útgefanda fyrir 1. okt. og Kaupnndi skuldlaus viö blaöiö. Afgreiösia: Austurstrœti 8. XXXVI. árg. Reykjavík miðvikudaginn 18. ágúst 1909. 54. tölublað Landsbankinn setur niður diskonto og útlánsvexti fyrst um sinn í 5 V4 % P* »• og greiðir af 6 mánaða innlánsskírteinum 4 »/* % p. a. Sparisjóðsvextir 4% eru óbreyttir. Reykjavík 17. ágúst 1909. Landsbanki Islands Tryggvi Gunnarsson. I. O. O. F. 908209. Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—3 í spítal Forngripasafn opiö á v. d. 11—1. íslandsbanki opinn 10—2 x/s og 5»/a—7. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til 10 siÖd. Alm, fundir fsd. og sd. 8 */* síöd. LB-ndakotskirkja. Guösþj. 9s/a og 6 á lielgidögum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10 V*—12 og 4—5 Landsbankinn 10 */a—2 */a. IVjikastjórn við 12--1. Landsbókasafn 12—S og 6 -8. Landsskjalasafnið á þtxt., fmd. og Id. 12—1. Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12, Náttúrugripasafn (i landsb.safnsh.) á sd. I1/*—21/*. Tannlækniug ók. i Tósthússtr. 14, l.ogS.md. 11- ' Iðnaðarmenn I Munið eftir að ganga i Sjúkrasjóð iðnaðarmanna — Sveinn Jónsson gjk. — Heima kl. 6 e. m. — Bókhlöðustíg 10. Fanaflöattnii IHGOLFUR fer tiJ Borgarness ág. 19., 29.; sept. 2., 8., 12. Akra sept. 5., 12. Garðs og Keflav. ág. 16., 25. Sandgerðis ág. 16., 25. Erlend tíðindi. Berlín 27. júlí. Ráðaneytisskiftin á Frakklandi. Fall Ciemencoau. 20. júli, seint um kvöldið, gerðust þau óvæntu tíðindi, að Georges Cle- menceau, yfirráðgjafi - Frakka, beið ósigur í þinginu og sagði af sér þá samstundis. Fregnin flaug strax á símþráðum um allan heim og alstað- ar urðu menn forviða og ætluðu ekki að trúa fregninni, því að menn áttu siður en ekki von á slíku. Clemen- ceau hefir við og við þótt standa á völtum fótum, en aldrei jafn-fastur í sessi sem nú. Skömmu áður hafði hann haldið meiri háttar stjórnmála- ræðu í þinginu. Fanst öllum vegur hans fara vaxandi og því var spáð í heimsblöðunum, að hann mundi verða langlífari en allir ráðaneytisforsetar hins þriðja Frakklandslýðveldis, þeir er komnir eru enn. En þetta fór nokkuð á annan veg. Tildrðg. Franska þingið hafði til umræðu undanfarna daga álit nefndar þeirrar, er skipuð var í þinginu til þess að rannsaka útgerð herflotans og stjórn hans. Rannsóknin leiddi i ljós marg- ar misfellur hjá flotamálastjórninni og amlóðaskap á ýmsan hátt. Flota- málaráðgjafinn Picard þótti hafa geng- ið slælega fram, en einkum þó fyrir- rennarar hans í embættinu, þeir Pelletan og Thornson. Þriðjudaginn 20. júlí var kvöldfund- ur haldinn í þinginu til þess að ræða þetta mál og í sambandi við það frum- varp stjórnarinnar um fjárveitingu til flotans. Þá reis upp Delcassé, fyrv. utanrikisráðgjafi, og ávítaði harðlega háttalag flotamálastjórnarinnar, og kendi slóðaskap hennar ýms slys, er orðið hafa í flotanum á síðustu árum. Vildi hann að þingið frestaði allri f]ár- veitingu til flotans, þangað til stjórnin hefði sett einhverja tryggingu gegn því að slik slys kæmi fyrir oftar. Þá stóð Clemenceau upp og jós yfir Delcassé óbótaskömmum. Kvað hann utanríkisstjórn hans hafa orðið Frakklandi til skammar og að slíkur maður ætti ekki að dirfast að setja út á flotamálastjórnina, né ásaka stjórn landsins um, að hún hafi engu til leiðar komið i landvarnaráttina. Þingmenn urðu allir hissa á þessu á þessu athæfi Clemenceau og þótti slíkur þjösnaskapur allólikur mannin- um og málfimi hans. Engum flokks- manna hans datt í hug að klappa fyr- ir honurn eða láta í ljósi samþykki sitt. Þingmenn fóru að fussa í saln- um. En Clemenceaus lét sem hann heyrði það ekki og herti æ á fúkyrð- unum. Delcassé spratt upp rauður af reiði og náði sér nú verulega niðri á forn- um fjandmanni sínum. Hann varði sig og utanríkisstjórn sína með rök- um, en réðst á stjórn Clemenceau alla og framkomu hans i stjórnmálum yfirleitt með mörgum beiskyrðum og mikilli mælsku. Clemenceau hreytti enn í hann ónotum úr sæti sínu, en síðan var gengið til atkvæða um rökstudda dag- skrá frá einum stjórnarliða, þess efn- is, að þingið lýsti yfir trausti sínu á stjórninni. Sú tillaga ýéll með 212 atkvaðum gegn i-/6. »Eg fer«. Eftir atkvæðagreiðsluna beiddi Cle- menceau sér strax hljóðs og sagði: »Eg ýer«. Að svo mæltu gekk hann snúðugt út úr þingsalnum með aila ráðgjafana á eftir sér og beina leið til hallar Falliéres Frakklandsforseta, barði hann upp og tók lausn fyrir sig og alt ráðaneytið. Þessi orð Clemenceau munu verða geymd i sögunni fyrir það, hve stutt þau eru og laggóð, og eins mun hitt þykja dæmafátt í sögu þingræðisins, með hve skjótri svipan þetta gerðist, vantraust þingsins og lausnarbeiðni stjórnarinnar svo að segja um hánótt. Þykir Clemenceau hafa þar sýnt þing- ræðinu óvenjulega virðingu, hvað sem annars verður um hann sagt. Bardagi á gðtunum. Blöðin. Þegar fregnin barst út um Parísar- borg og menn fóru að trúa henni, komst alt á tjá og tundur. Aukaút- gáfur blaðanna voru eins og fjaðra- fok á götunum og þeir er háttaðir voru og sofnaðir vöknuðu við hávað- ann og þutu á fætur. Ræðumenn allra stjórnmálaflokka börðust um götu- bekkina til þess að geta haldið ræður, hver fyrir sinu máli. Af sumum bekkjum töluðu oft margir í senn. Loks fóru menn að berjast og iög- reglan gat við ekkert ráðið. Er sagt, að bardaginn hafi staðið mestalla nótt- ina og á öllum strætum var glym- jandi og gauragangur. Svo að segja öll frönsk blöð hafa vítt atferli Clemenceau og flokksblöð hans hafa flest yfirgefið hann. Öll- um þykir honum hafa farist hrana- lega og sum segja, að svo hafi hann ófrægt sig i þetta skifti, að hann muni aldrei eiga afturkvæmt í valda- sessinn. .Fólitískt sjálfsmorð ?« Það er mál manna, að Clemenceau hafi vitað vel, hvað hann gerði þetta kvöld. Menn segja, að hann hafi ver- ið orðinn þreyttur á langvinnu stjórn- arstriti og viljað feginn losna, enda er maðurinn allhniginn að aldri, 68 ára. Hann hafði sagt við einn fylgis- mann sinn í þinginu um kvöldið áð- ur en fundurinn hófst: Nú hreyti ég úr mér nokkrum hnútum og svo er ég farinn. Við blaðamenn hefir hann sagt, að þessi ágjöf lenti eingöngu á sér, en ekki hinum ráðgjöfunum né flokknum yfirleitt. Vantraustinu sé beint ein- göngu til sín eins. Sjálfur hefir hann ráðið Falliéres forseta til þess að taka Briand, dómsmálaráðgjafa, í sinn stað, þann er nú er orðinn yfirráðgjafi. Ráðaneytið er því nefnt: »Clemen- ceau-ráðaneyti án Clemenceau*. Nýja ráðaneytið. Briand ráOaneytisforseti, Nýja ráðaneytið var fullmyndað á laugardaginn var. Eins og getið var, fól Falliéres forseti Briani, þáverandi dómsmálaráðgjafa, forustuna. Hér fer á eftir skrá yfir alla ráðgjafana: 1. Briand, yfirráðgjaíi, innanríkis- ráðgjafi og menningarráðgj. 2. Viviani, vinnumálaráðgjafi. 3. Doumergue, kenslumálaráðgjafi. 4. Pichon, utanríkisráðgjafi. 5. Dupuy, verzlunarráðgjafi. 6. Millerand, samgöngumálaráðgjafi. 7. Ruau, landbúnaðarráðgjafi. 8. Trouillot, nýlenduráðgjafi. 9. Barthou, dómsmálaráðgjafi. 10. Brun, hermálaráðgjafi. 11. Boué de Lapeyrére, flotamálaráðgj. 4 þessara manna voru áður í ráða- neyti Clemenceau, nr. 1, 2, 4 og 9. Hinir eru allir nýir, en eru þó allir kunnir menn og hafa flestir verið ráð- gjafar einhvern tíma áður. Merkast- ur þeirra er Millerand, sem eitt sinn var verzlunarráðgjafi og fyrsti jafnað- armaður, er komst í ráðaneytið franska. Artistide Briand er 47 ára að aldri. Hann var áður málflutuingsmaður. Hann var snemma kosinn á þing- ið af jafnaðarmönnum. Sjálfur er hann jafnaðarmaður, þó að hann þyki hafa slakað nokkuð á þeirri skoðun síðan hann komst til vaida, eins og oit vill verða, að hægra er að kenna heilræðin en halda þau. Jafnaðar- menn eru honum fráhverfir fyrir löngu, en sjálfur telur hann sig til þess flokks. Hann komst ínn í Combes-ráðaneytið (næst á undan Clemenceau) og var þá kirkju og kenslumálaráðgjafi. Þá kom hann á lögunum um skilnað rik- is og kirkju á Frakklandi. 1 Saniens- ráðaneytinu var hann og síðar, og þegar Sanien sagði af sér í október 1906 og Clemenceau varð ráðaneytis- forseti, bætti hann við sig dómsmála- ráðaneytinu og því hefir hann haldið til þessa. Briand þykir maður harðvítugur og fylginn sér. í ræðum sínum er hann allur við efnið og þó verður honum aldrei orðfátt. Hann getur svarað öllu út í yztu æsar og enginn hefir séð koma á hann hik í nokkru máli. Hitt er annað mál, að skoðanir hans hafa linast síðan hann komst í valda- sessinn, eins og getið var áður. Það hefir og þótt um Georges Clemenceau, ekki síður. Eftir að hann var hafinn i þá tign, sem öðrum veittist torvelt að halda fyrir honum, meðan hann var þingmaður og stórbótaskörungur, féllu af honum lengstu flugfjaðrirnar. Annars þótri hann fara nokkuð í krákustígum, meðan hann var við stjórn, ýmist í framfaraáttina eða aft- ur á bak. Fylgismenn hans voru oft á nálum um, hvernig hann snerist í þessu og þessu máli. Hann er mað- ur snarráður og skjótleikinn og fylgdi þvi fram, er datt í hann fyrst. En mörgu hefir hann þörfu til leiðar kom- ið í Frakklandi á þessum 3 árum, sem hann hefir setið í ráðuneytinu, og rökfimi hans og málsnilli er við brugðið. Hann hefir staðið í mörg- um stórræðum, og verið jafn-fær í vörn sem sókn áður, þótt gamall sé. Það er annars einkennilegt um öld- unginn, að hann verður að hröklast úr völdum fyrir gapaskap! Briand er Clemenceau að flestu frá- brugðinn. Hann fer nokkurn veginn fasta og ákveðna braut og skopar það- an hvergi. Við mótstöðumenn sína er hann hinn hlífnasti og kurteisasti í orðum. Enginn sér honum renna svo í skap, þó að illa sé að honum farið, að hann gæti sín ekki. Hann kemur sínu fram með hægðinni, seigl- unni og festunni. Annars eru gjörbótamenn i þing- inu allóánægðir með nýja ráðaneytið. Finst þeim sinn flokkur vera alifá- skipaður í stjórninni, þó að hann sé fjölmennasti flokkurinn á þingi. Briand hefir lýst yfir því, að hann muni halda við stjórnmálastefnu Cle- menceau og halda áfram ýmsu því, er hann hefir byrjað á, svo sem lög- um um ellistyrk fyrir verkamenn.1 Enn- fremur kveðst ráðuneytið vilja bæta úr misfellum þeim, er verið hafa á flota- málastjórn landsins. Friðinn vill hann styðja af alefli og vináttu- og stuðn- ingsbönd milli rikjanna. Ófarir Neergaards. Ráduneytisskifti. Neergaard hefir gert síðustu samn- ingstilraun, stungið upp á að una við landgirðingu þá sem nú er í 8 ár enn, en leggja siðan landvirkjamálið undir atkvæði þjóðarinnar. Þessa miðlun hefir Christensen og hans menn neitað harðlega að sam- þykkja og því er nú úti um alla samn- inga. Búist er við að þingi verði slitið þá og þegar og að Neergaard biðjist lausnar. Lofttíðindi. Tflr Ermasund. Flugmeistarinn Bleriot. Vér gátum þess fyrir skömmu að loftskipunum fleygði fram svo að segja á hverjum degi. Þessi ummæli ætla ekki að verða sér til skammar. Loftskipin eru að umturna öllum samgöngum. Loftið er að verða fram- tíðarbrautin. Innan fárra ára sést ekki snekkja á sjó. Alt verður flutt á flug- drekum og sjálfsagt verður farið að fiska ofan úr loftskipum. Hernaður allur gerbreytist, ef hann hverfur þá ekki úr sögunni. Vagnar fækka og loftbrautir koma í stað járnbrauta. Ef maður ætlar að bregða sér bæjar- leið, þá setur hann á sig vængina í stað þess að fara ríðandi. Þáð kem- ur líklega að því, að við gleymum að ganga af óvananum eða förum að vappa eins og endur. Hvar eruð þið nú skáld, sem kváð- uð: Vængjum vildi’ eg berast í vinda léttum blæ djarft um fjöll og dali og djúpan reginsæ, o. fl. þess háttar? Ef ykkur er nokkur alvara með þetta, þá skuluð þið bregða ykkur »suður í Frans« á næstunni. Þar getið þið látið draum ykkar rætast. Það er að vísu engin grágæsamóðir, sem ljær ykkur þar vængi, heldur menskir menn. Farið þið og til Frakklands, sem fornir eruð í skapi. Þar getið þið séð gandreið og mér er næst að halda, að þeir ríði þar eins hart eins og þeir riðu forðum yfir Reykjum á Skeiðum ellegar Klaufi úr Svarfaðar- dal. Frakkinn Blériot lét í loýt á sunnudagsmorguninn, 2/. p. m., ýrá Calais á Frakklandi og jlaug yfir Ermasundið og yfir til Dover á Englandi á 27 mínútum og 21 sékúndu. Þetta þykir hinn mesti viðburður í sögunni, þvi að slíkt hefir enginn leikið fyr. Blériot lagði af stað snemma morg- uns í bezta byr og átti tundurbátur einn, hraðskreiður, að fylgja honum á sjónum til þess að vera til taks, ef slys bæri að höndum. En flugvélin fór með 68 rasta hraða á klst., en tundurbáturinn kemst ekki nema 42 rastir og varð því langt á eftir. Fögnuður er hinn mesti á Frakk- landi og um ailan heim. Blériot var samstundis sæmdur heiðursfylkingunni frönsku og þar á að reisa stóran minnisvarða, sem hann lenti á Eng- landi. Blériot er á bezta skeiði. Hann tók að fást við loftskipagerð fyrir nokkrum árum og þykir ofurhugi hinn mesti. Fyrir mörgum áföllum hefir hann orðið, en ekki látið á sig fá. Þetta skifti var hann draghaltur eftir slysalega lendingu skömmu áður. Eitthvað hafði hann og komið óhönd- uglega niður á Englandi og laskaðist flugvélin hjá honum lítið eitt. Landi hans Latham að nafni hafði gert sömu tilraun nokkrum dögum áður í loftskipi einu með Wrights- laginu, en sú för mistókst. Þegar hann var kominn miðja vega út á sundið, bilaði vélin og alt fór i sjó- inn. Maðurinn bjargaðist þó vegna þess að skipið var í nánd, sem átti að fylgja honum. Hann er nú að ná sér í nýja vél og ætlar að reyna aftur. Þegar hann frétti um för Blériots, gat hann eigi tára bundist. Enn munu og margir fleiri ætla að reyna sig á þessu. Margir loftfarar hafa farið lengri veg í einu á þessum stýranlegu flug- vélum, en enginn lagt út á sjóinn fyr. Bretar eru allsárir út af því, að horfa upp á aðra þjóð fara svo fram úr þeim sjálfum. Þó er þeim léttir í að Blériot er ekki Þjóðverji. Oft hefir verið farið yfir sundið áður í loftbátum, sem ekki hefir verið hægt að stýra og því alt undir hagstæði vindarins komið. Morlan fór fyrstur manna á loftbát yfir hafið árið 1883, 3. júlí. Hann lagði af stað frá Courtrai í Belgíu og lenti í Bromley á Englandi eftir 26 tíma ferð. Síð- an fóru margir yfir sundið á eftir honum á þessum gömlu loftbátum. Þjóðverjinn Wegener komst lengst. Hann fór í' loftbát frá Leipzig 19. apríl 1907 og fór á 19 klt. til Leicester á Englandi, en sú vegalengd nemur 930 röstum. En þetta var alt undir hepni komið. Blériot hefir stýrt sinni flugvél og ráðið sjálfur, hvert hún fór, upp á hár og það er það sem mest er í varið. Eini maðurinn, sem tekist hefir að synda yfir Ermasund er Webb skip- stjóri. Hann synti á 22 kl.stund- um milli Englands og Frakklands 24. ágúst 1875. Öll samgöngufæri stíga risaskref í framfaraáttina. Nú eru menn farnir [Niðurl. & 1, Biðu]

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.