Ísafold - 04.09.1909, Page 2

Ísafold - 04.09.1909, Page 2
226 ISAFOLD ■MMBlii ♦ StliSÍliiiiÍlMlÍllÍílll Afar-stór haustsala 1 Til þess að rýma fyrir nýjum haustvörum verður gefinn 101 -50 5 afsláttur af alls konar vefnaðarvöru frá 1.—15. september, t. d. kjólaefni, silki, léreftum, baðmullardúkum, gardinuefni, sjölum, saumavélum, nærfatnaði, sokkum, handklæðaefni o. fl. Hvergi kemst vöruverð og vörugæði í hálfkvisti við þetta. Ennfremur fá kaupendur 12 póstkort i kaupbæti, ef þeir kaupa fyrir 4 kr. í einu. Notið tækifærið. — Allarvörur sendar til kaupenda. Egill Jacobsen, vefnaðarvöruverzlun. Talsími 119. Talsími 119. vinnuleysi víða enn — og eftir því, sem síðast hefir til frétst, verða núna á næstunni gerðar öflugar tilraunir til þess að koma á sættum. Verkfallið kostar landið um 3 miljónir króna á dag. Verkamenn missa um eina miljón, en vinnuveitendur 2 milj. á hverjum degi, sem verkfallið stendur. Verkfallsmönnum er annars sent ærið fé vikulega úr flestum löndum Evrópu, frá vinum þeirra og skoðanabræðrum, jafnaðarmönnum. A Krít er enn alt i uppnámi. Fyrir skömmu var eins og þar væri að hægja eða rofa til, en nú er eins og syrt sé aftur og aldrei hefir Tyrkinn verið vígamannlegri en nú. Ný stóruppgötvun. I»urar rafhleðsluvélar. Rafmagnsfræðingar hafa nú um langan aldur verið að spreyta sig á að reyna að finna upp litlar, léttar og þurrar rafhleðsluvélar án þess að í þeim þurfi að vera brennisteinssýra eða rafvökvi (elektrolyt). Meðal ann- ars hefir Edison verið að fást við þetta nú í 6—8 ár, en lítt orðið ágengt. Hefir hann þó haft sér til aðstoðar e'kki færri en 80 verkfræð- inga. Hann hefir að vísu búið til þurra rafhleðsiuvél, en ekki getað feng- ið úr henni meira en 1,7 volta afl. Aðrir hafa og reynt sig á þessu, en enginn komist lengra en upp í 2*/2 volt. Nú hefir Þjóðverji einn, Curt Gross að nafni, hljóðfæraleikari, búsettur í Noregi, leyst þessa þraut. Hann hefir fundið upp þurra rafhleðsluvél sem ekki vegur meira en 2% pund, en hefir þó 60 volta afl. Annars vegur venjulegur 60 volta rafgeymir um 100 pund. Curt Gross er ekki nema 25 ára að aldri og hefir fengist við þetta og uppgötvað einn á 8 vikum. Hann býst við að komast bráðlega upp í 100—110 volt með þessari sömu vél. Reynist þetta annað en skrum, verður þetta einhver mesta og víð- tækasta uppgötvun, sem gerð hefir verið á síðarí árum. Vér skulum að eins nefna það sem dæmi, að alt til þessa hefir rafmagni ekki orðið við komið I flugvélum í loftinu, fyrir það hve þungir rafhlaðningarnir hafa ver- ið. Nú er ekkert þvi til fyrirstöðu að koma rafmagninu upp í loftið — ef þetta reynist satt. Alt veltur á því. Hreppstjóri í 50 ár. í vor hafði Jóhann P. Pétursson bóndi á Brúnastöðum í Skagafirði verið hreppstjóri í 50 ár. Sveitarbúar hans héldu honum þá rausnarlegt samsæti. í því tóku þátt á annað hundrað manns. Við þetta tækifæri var hon- um gefin forláta klukka í heiðurs og þakklætisskyni fyrir vel unnið starf. Gufaskipasanrnmgurinn. Aðalatrlðin úr honuin. Harrn var undirskrifaður í Kaupmanna- höfn 7. ágúst. Við Thórefélagið samdi ráðgjafi Islands einn. Við Sameinaða fólagið sömdu ís- lenzki ráðgjafinn og innanríkisráðgjafinn danski, Klaus Berntsen í félagi. Sameinaða fólagið tekur að sór 25 reglubundnar tnillilandaferðir með skipunum Botníu, Ceres og annaðhvort Vestu eða Láru. Kælirúm svo gott, að varðveitt geti óskemt smjör, ket, fisk o. s. frv. landa á milli. verður sett í Botníu. Auk þess boðið að setja kælirúm í Ceres fyrir 5000 króna aukaþóknun. Félagið áskil- ur sór, að afnot kælirúmanna sóu bundin við minsta kosti 50 kr. farmgjald Farmgjald má aldrei fara fram úr nú- gildandi taxta. Kostnaðinn við umskipun úr millilandaskipunum í strandbátana ber félagið sjálft. Eins og hingað til er fargjald fært niður fyrir stúdenta, iðnaðarmenu, inn- flytjendur o. s. frv. Til ferðanna fær sameinaða félagið danska styrkinn, 40,000 kr. á ári Thórefélagið tekur að sór strand- ferðirnar og minsta kosti 20 reglubundnar millilandaferðir, þar af fer fólagið minsta kosti 4 ferðir til Hamborgar. í eitt af millilandaskipunum (líklega Ingólf) verður sett samskonar kælirúm sem í Botníu. Auk þess verða sett kælirúmí 2 af strandbátun- um, austan og vestanlandsbátinn. Strand- ferðaskipin verða 3 eins og alþingi gerði ráð fyrir. Tvö af þeim ný. Skipin mega ei að neinu leyti vera eftirbátar Hóla og Skálholts. Farþega og farmgjöld milli Hamborgar og Islands mega ei fara fram úr sömu gjöldum milli Kaupmannahafuar og Is- lands. Stúdentar, iðnaðarmenn og innflytjend- ur fá sömu kjör á skipum Thórefélags, sem á skipum Sam.fól. Það er áskilið í samningnum, að eigi megi láta vörur til Túliníusarverzlana hór á landi ganga fyrir vörum annara. Thórefólagið skuldbindur sig til að skipa skip sín íslenzkum yfirmönnum og hásetum, eftir því, sem frekast er unt. Það er áskilið, að gestaréttur Reykjavíkur skuli vera varn- a r þ i n g í málum þeim, er rísa milli fé- lagsins og manna búsettra á íslandi. Fyrir ferðir sínar fær fólagið íslenzka styrkinn, 60,000 kr. á ári. Þetta eru aðal atriðin úr samningnum. Að öðru leyti vísum vér til greinarinnar fremst í blaðinu. Halldór .Júlíusson sýslumaður Strandamanna er á ferð hér í bænum þessa dagana. Fer aft- ur á sunnudag. Kitstjóri Ingólfs er ráðinn hr. Konráð Stejánsson cand. phil. í stað hr. Sigurðar Lýðssonar. Sigurði Guðmundssyni rithöíundi í Kaupm.höfn var boðin ritstjórn blaðs- ins, en hann hefir hafnað þeim boð- um. Landss j óðslánið. Lögrétta heldur áfram að þvæla um landssjóðslánið nýja í miðvikudags- blaðinu. Auðvitað steinþegir blaðið um það hvernig fyrverandi ráðgjafa fórst, er hann neitaði að taka við betri kjörum á 500,000 kr. lán- inu haustið 1907. En í stað þess vefur blaðið langan vef um það, hve h á i r útlánsyextirnir hafi verið um nýjár 1908 eftir að búið var að festa umrætt 500,000 kr. lán. Það kemur auðvitað ekki fremur málinu við en hitt, hverjir vextir eru í sum- ar löngu eftir að búið var að festa nýja lánið. Það er hárrétt, sem í ísafold stóð á laugardaginn, að vextir í Dan- mörku haustið 1907 voru 6—6l/2°l0. Enda staðfestir Lögrétta það sjálf með sínum eigin orðum, rétt eftir að hún er búin að segja ísafold skrökva því. í Lögréttu stendur, að vextirnir hafi ekki orðið 7°/0 fyrr, en 9. nóv. En Jrá 11. okt. 1906—8. nóv. 1907 voru peir að eins 6—61/2°/o- Var það ekki haustið 1907? Og ætli 500,000 kr. lánið hafi ekki verið fest innan 9. nóv., þótt fjárlögin væru ekki stað- fest fyrr en 16. s. m. ? Um það fara allir kunnugir nærri. Lögrétta kveður ráðgjafa hafa »neglt« sig á þessu láni í utanför forsetanna, löngu áður en nokkur heimild var fengin hjá alþingi til lántöku. Ósann- indi eru það, eins og vænta máttil Lánið var ekki fest fyrr en í apríllok, eftir að peningamálanefndin var búin að láta sitt álit í ljósi og samþykt hafði verið að ganga að vaxtakjörum þeim, er buðust. Það situr sízt á Lögréttu að bregða núv. stjórn um, að henni sé lítt sárt um íslenzka gjaldendur. Það hefði átt við fyrverandi stjórn, er hún eyddi hundruðum þúsunda í gegndarlaust óhóf við konungskomuna 1907. Sá kostnaður var 3—4 krónur á hvert mannsbarn á landinu, 15—20 kr. á hvert meðal-heimili 1 og mikið af honum hreinn óþarfi! Hvar var Lögrétta þá með vandlætingarsemi sína ? Lögrétta er svn fífldjörf að varpa því fram rakalanst, að ríandssjóður og landsmenn bíði um 200,000 kr. tjón«, við lántöku þessa. í blaðinu 18. ágúst taldi blaðið tjónið enn meira, sem sé yfir 250,000. Hvorttveggja er auðvitað hlægileg vitleysa; bygð á því, að Danir í sumar, longu ejtir að petta nýja lán var Jest, gátu fengið miklu stærra lán með betri kjörum. Ef fara á svona samanburðarleið, mætti alveg eins segja,að Islendingar hafi beðið 2 mil- jóna króna tjón vegna þess, að Eng- lendingar ef til vill einhvern tíma í haust geta fengið lán með 2 °/0 vöxt- um — eða, að íslendingar hafi grcett ógrynni fjár vegna þess, að Finnar eða Norðmenn ef til vill verða að táka lán I haust með lakari kjörum. Alt er þetta jafnfráleitt. r Lánssagan rétt sögð er svona: í vetur var peningakreppan hér óbæri- leg. Kveinið undan peningaeklunni lét fjöllunum hærra Lán v a r ð að fá viðstöðulaust. Lán, sem bauðst ut- an Danmerkur, var með þeim hætti, að þingmönnnm þótti það eigi takandi í mál. Þá var danskra banka Ieitað. Þvert tekið fyrir það af þinginu, sem og var rétt, að snúa sér til ríkissjóðs. — Eftir langa mæðu tókst að fá 3 danska banka tii að bjóða lánið með 4^/2% vöxtum. Peningamálanefndin gerði sér þessa kosti að góðu. Menn voru mjög kátir yfir því, að nú yrði ráðin bót á peningavandræðunum — allir,nema »heimastjórnar«-göfugmenn- in. Þau voru reið yfir því, að allar líkur voru til þess, að núverandi stjórn myndi takast að koma þessu nauð- synjamáli fram. Þau vonuðu í lengstu lög, í alt vor og sumar, alt fram á þann dag, er fréttin um láns-úrslitin barst heim, að bankarnir myndu rifta boðum sínum. Nú er lánið íengið, nú er leyst úr mestu peningavandræðunum, nú er lánstraust íslands viðurkent erlendis, ekki einungis í Danmörku, heldur og út um Norðurálfu. Því að skulda- bréfunum Islenzku er komið inn á lánsmarkaðina viðsvegar um Norður- álfu. Von er, að andstæðingablöð stjórn- arinnar nái ekki upp í nefið á sér fyrir vonzku! Verri grikk gat stjórnin nýja ekki gert þeim og liði þeirra, en að koma fram lánsmálinu og gufuskipamálinu þann veg, sem nú er orðið! LoMeytasamband á Islandi. Eftirfylgjandi svar til hr. A. J. John- son hefir landsímastjórinn beðið ísa- fold fyrir: í síðustu ísafold, 56. tbl., er tekin upp aðsend grein frá Ameríku : »Loft- skeytasamband á íslandi m. m.« — Efni greinarinnar sýnir, að höfundur- inn ber ekki fult skyn á málið, sem hann ræðir, og því koma fram hjá honum ýmsar villur eða misskilnin- ingur, sem mér finst ástæða til fyrir mig að sýna fram á, og því bið eg yður, herra ritstjóri, að taka í blað yðar það, sem hér fer á eftir. Með því að lesa stöðugt útlend sér- fræði tímarit, og svo með því að skrif- ast á við sérfræðinga, reynir landsíma- stjórnin að fá vitneskju um allar framfarir, einnig að því er snertir firðritun og símlaust firðtal, og gerir hún þetta bæði af áhuga á þessum vísindum, og svo til þess, að ef sá tími skyldi upp renna, að til mála geti komið fyrir oss að hagnýta þetta, að geta þá komið fram með tillögur o. fl. Eg þykist því með nokkrutn rétti geta látið álit mitt í ljósi um þetta mál. Um símlaust firðtal er það að segja, að það er enn algerlega á byrjunar og tilraunaskeiði. Mér er ekki kunnugt um, að enn hafi verið komið á neinu slíku sambandi til nytja-rekstrar yfir nokkura fjarlægð, sem teljandi sé. Enginn maður getur heldur, eins og nú stendur, sagt um það með nokk- urri vissu, hvort símlaust firðtal rnuni á ókominni tíð koma að notum í sam- kepni við firðtal með síma (talsímun), eða ekki. v Þar sem höfundurinn talar um, að Vestmannaeyjar gætu haft firðtals-satn- band við Reykjavík, og væntanlega aðrar talsímastöðvar landsins, gegn um símlausa firðtals-stöð (miðstöð) ein- hverstaðar í miðjum Landeyjum, þá sprettur þetta af misskilningi. Það er ekki auðið að flytja talið úr símlausri firðtalsstöð yfir i síma; með öðrnm orðum : Vestmannaeyjar gætu þá ekki átt beinlinis simtal eða viðræðu við aðrar stöðvar á landi en þær einar, er útbúnar væru með símlausum firð- talsáhöldum. Að útbúa hvern fiskivélarbát með simlausum firðtalsáhöldum, eins og höf leggur til, held eg, að sé nokkuð snemmbær tillaga. Nokkuð öðru máli er að gegna um símlausa firðritun, og ástæður eru til, sem mæla með því, að ísland ætti að koma á slíkri stöð, til að hafa sam- band við skip á sjó, þegar þess fer að gerast þörf og fjárhagsástandið leyfir það. Eiginlegt verksvið simlausrar firð- ritunar er fram og aftur milli skipa á sjó. Auk þess getur verið rétt að koma upp símlausu firðritunarsambandi milli staða, þar sem mjög torvelt og dýrt verður að leggja simalínu, þar sem ekki þarf á að halda nema firðrit- unarsambandi, og fyrirsjáanlegt er, að viðskiftin verða ekki mikil. Þessi skil- yrði, að þvi síðasta undanteknu, álít eg, að ekki eigi sér stað í Vest- mannaeyjum. Það er talað um, að það muni kosta 1 5,000 kr. að koma upp simlausu firð- ritunar-sambandi milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, en það mun reynast helzt til lágt reiknað. — Slíku sim- lausu firðritunar-sambandi má helzl likja við sæsíma eða landsíma með einföldum þræði, og er þó einþráðar- sími fullkomnari, þvi að með honum má fá nokkurn veginn gott firðtals- samband líka, auk firðritunar-sambands- ins, eins og sjá má á simalínunni milli Borðeyrar og ísafjarðar, og er hún notuð bæði til simritunar og sim- tals. Fjarlægðin milli Heimaeyjarog Rang- ársands er 12000—13000 metrar, og þar eru engir sérstakir torveldleikar á að leggja sæsíma. Einþráðar-sæsimi kostar um kr. i,2ometrinn með Iagn- ingu; en það verða kr. 15,000, auk landlínunnar. Sæsími með tvöföldum þræði, sem er bezta simtalsfæri, kost- ar um kr. 1,60 metrinn. En svo er það álit mitt, að i þvi máli sem hér er um að ræða, beri ekki að lita aðallega á stofnkostnsð- inn. Það, sem mest er um vert, auk þess að fá gott firðritunar-sam- band og firðtals samband, er það, að rekstrarkostnaðurinn verði sem ódýr- astur. Nú er fyrirkomulagið þannig hér á landi, að áhöldin eru svo ein- föld, sem verða má, svo að enga sér- þekkingu þarf til að þjóna talsíma- stöðunum um landið; hrepparnir taka þátt í rekstrarkostnaði stöðvanna; land* inu er skift i eftirlitssvæði, linurn,ar traustlega lagðar o. s, frv.; og með þessu móti verður allur reksturinn dýr; en það er og verður, að mínu áliti, skilyrðið fyrir því, að landsimi íslands geti staðist og þróast frarn- vegis. Það er trauðlega hugsanlegt, að auðið sé að koma á ódýrum rekstri við kerfi af símlausum firðritunar- stöðvum, því að til þjónustu þeirra þarf sérmentaða menn, og ekki held- ur með einni eða tveimur slíkum stöðv- um. Það er því misskilningur höf., er hann hyggur, að símlaust samband við Vestmannaeyjar sé bæði hentugra og ódýrara heldur en símasamband. Ráð höf. um, að láta ferðamenn útvega sér ferðasímtalsáhöld, til að nota hvar sem þeir vilja, þá er þeir ferðast fram með línunum, virðist vera vanhugsað. Oss eru áhöld þessi eng- in nýjung; en auðvitað eru þau ekki notuð hér af öðrum en línumönnum landssimans og eftirlitsmönnum, og að eins i þjónustuerindum og til línu- kannana. Að öðru leyti mun annað tæplega eiga sér stað heldur í Ame- ríku á línum til almannanota. Loks skal eg taka það fram, að reynzlan hefir sýnt, hér á l.mdi sem annarstaðar, að það sem mönnum, er viðskiftaatvinnu reka, eins og öðr- um, sem orðaviðskifti þurfa að eiga, þykir mest í varið til orðaviðskifta innanlands og nærri sér, er, ekki firð- ritunarsambandið, heldur firðtalssam- bandið. Reykjavík, 2. sept. 1909. O. Forberg. Stephan G. StepliansKon skáld varð fyrir þeirri sorg i sumar, að missa efnilegan son. Hann varð fyrir eldingu og hlaut þegar bana. Nýlofuð eru Jón Hjaltalin Sigurðsson lækn- ir Rangvellinga og Ragnheiður Gríms- dóttir Thórarensen frá Kirkjubæ á Rangárvöllum. Raðgjafinn hefir kent nokkurs lasleika í sumar og er ekki vel hress enn. Hann brá sér því upp í Kjós i gær sér til hressingar, og ætlar að dvelja þar rúma viku, hjá Þórði hreppstjóra Guðmundssyni á Hálsi. Veðrátta vikuna frá 22. til 28. Agdat 1909. Rv. íf. Bl. Ak. Gr. 1 Sf. Þh. Sunnd. 75 7.5 6,6 7,5 3,5 6.4 6,4 Mánud. 7,2 6,0 7,5 6,9 7.1 2,6 4.7 Þriðjd. 8,5 8.0, 7.9 7,4 7.5 9.3 9,0 Miðyd. 9,4 10,5 10,5 11,0 8,5 8.5 9.1 Kimtd. 10,5 8.6 11.2 10, „ 95 10.9 85 I'öatd. 9,1 7.8 8 . 11.0 8.0 11,4 10,0 Uaugd. 7,0 4,2 5,8 7,0 3,5 9,1 10,7 Bv. = Reykjavlk i íf. = laafjör&ur; Bl. = Illönduós; Ak. = Akureyri; Gr. = Orimsfltaöir; Sf. = Seyöiflfjöröur ; Þh. = Þórshötn i Kæreyjum. Guðsþ.jónustur í dótDkirkjunni á morgun: A hádegi: slra Friðrik Friðriksson. Siðdegis: sira Haraldur Nielsson. í frikirkjunni engin guðsþjónusta á morgun.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.