Ísafold - 04.09.1909, Qupperneq 3
ISAFOLD
227
STORKAUPSVERÐ
Undirritaður tekur að sér að útvega húseigendum og öðrum alls konar vörur af beztn
tegund frá útlöndum með stórkaupsverði. T. d.: Ait sem lýtur að vatns-
hitaleiðslu — baðáhöld — vatns-kloset — þvottaker — þvottaskálar — servant-
plötur — eldhúsvaska — alls konar fráræsluplpur — skolprör — vatns-
leiðslupípur og tilheyrandi sambandsstykki og krana.
Ennfremur tek eg að mér að koma fyrir áhöldum þessum eða leiðslum með haganlegu
fyrirkomulagi inn i og um hús hlutaðeigenda fyrir mjög sanngjarna þóknun.
Þar eð eg fæ dálitið meira af vatnsleiðslupipum með næsta skipi, en pantaðar voru, geta
þeir sem vilja komið og skrifað sig fyrir þvi sem þeir þurfa.
Mig er að finna á heimili minu hvern virkan dag, frá kl. 2—3 og 6—8 e. hád.
Lindargötu 20 B, við Bakkabúð. Virðingarfylst
ÓL. HJALTESTEÐ.
Erl. ritsímafréttir
til ís&foldar.
Khöfn 1. sept.
Æsingar gegn J. C. Christensen í
Kaupmanndhojn.
Eins og getið var um í símskeyti
í síðasta blaði hafði konungur neitað
að veita áheyrn mannfjölda miklum
er mótmæla vildi skipun Christensens
í ráðgjafastöðu.
Eigi að síður hefir orðið úr æsing-
um þessum og mannfjöldinu krafizt
þess, að Christensen verði stefnt fyrir
rikisdóm fyrir afskifti hans af Albertí
og málum hans.
Herupphlaup.
Nýlega varð herupphlaup í Aþenu-
borg, og hafði í för með sér stjórn-
arskifti þar í landi. Rhallys, sá er við
stjórn tók um miðjan júlimánuð fór
frá, en við völdum tók Mauromikalis.
Hin nýja stjórn hefir þegar orðið
við ýmsum kröfum um umbætur á
hernum, og gefið fjölda manna upp
sakir. Simskeytið segir heimsblöðin
flytja hrakspár út af þessum tiltektum
á Grikklandi.
Khöfn 3. sept.
Miðlun í landvarnarmálinu
Nú er fengin vissa fyrir þvi, að
þjóðþingið samþykkir miðlun þá i
landvarnarmálinu, sem getur um í
erlendu fréttunum í dag.
Markaðsskýrsla
um srnjör.
ísafold hafa borist eftirfylgjandi
skýrslur um smjörsöluna.
Herra L. Zöllner i New-castle sím-
ar 28. ágúst:
»Smjörið, sem kom hingað með
s/s Sterling síðast seldist á 106—109
shillings hundrað pundin i brutto sðlu.
I. V. Faber & Co. í New-castle
símar 31. ágúst:
»Smjörið, sem kom með Láru og
Vestu er alt selt. Bezta tegund seld-
ist á 86—91 krónu hundrað pundin, en
lakari tegundir á 7/—8) kr. hundrað
pundin. Þetta verð er fyrir smjörið
flutt á skipsfjöl hér í Reykjavík*
Ari Jónsson, þingmaður
Strandamanna, hefir verið á ferð
um kjördæmi sitt undanfarið. Hélt
þar tvö leiðarþing, í Árnesi og
Hólmavik, ætlaði að halda hið þriðja
á Prestbakka, en varð að sleppa því
vegna lasleika.
Hann er nú ráðinn aðstoðarmaður
í stjórnarráðinu (3. skrifstofu).
Síra Einar prófastur
frá Borg á Mýrum hefir legið allþungt
haldinn í Landakotsspítalanum. Um
daginn gerði Guðmundur Magnússon
á honum holskurð — og kvað hann
nú vera að ná sér.
Slys.
Einar Teitsson verzlunarmaður datt
af hestbaki fyrir skömmu og meidd-
ist mikið á höfði.
Fundur bannfjenda
í Bárubuð á mánudaginn var aug-
lýstur á öllum götuhornum hér í bæ.
En ekki varð uppskeran meiri, er
á fundinn kom, en um 30 — prjátíu
— sálir. Sumir segja cinar 27. Held-
ur er nú flokkur sá smávaxinn.
í stjórn félagsins voru kosnir:
Einar Helgason, Halldór Daníelsson,
Július Halldórsson, Magnús Einarsson,
Matthfas Einarsson, Sigurður Briem og
Sigurður Thoroddsen.
Samþykt var, að félagið skyldi
heita: Þjóðvörn.
Gufuskipasamningnrinn í
herbúðum andstæðinganna.
Sagt er aö mesta óhug hafi slegið á
»Heimastjórnar«höfSingjana, þegar frótt-
in um gufuskipasamninginn barst hing-
aö. Þeir stóöu uppi alveg úrræðalausir
fyrst í staö, því að þeir sáu enga hugs-
anlega leið til þess að ráðast á stjórn-
ina út af bonum. En »ilt er að deyja
ráðalaus«, hugsuðu þeir og gripu til
örþrifaráðanna gömlu og margreyndu:
að hlaða saman ósannindum.
Því var skrökvað, að ferðirnar
yrðu færri eftir en áður, þótt aldrei
nokkurn tíma hafi neitt líkt því eins
margar reglubundnar ferðir fengist. Því
var skrökvað, að neitað hafi verið
miklu betra tilboði frá þýzku fólagi.
En eftir því tilboði hefðu reglubundnu
ferðirnar ekki orðið fleiri, en 30. Því
var skrökvað, að ráðgjafinu íslenzki
hafi að eins samið við Thorefólag, en
samgöngumálaráðgjafinn danski (á að
vera innanríkisráðgj.) einn við Sam. fól.
Sannleikurinn er sá, að innanrikisráð
gjafinn danski og íslenzki ráðgjafinn
sömdu í f ó 1 a g i við Sam. fól. Það
er vitleysa, að íslandsráðgjafi hafi nokk-
urn tíma fengið full umráð yfir danska
styrknum. í brófi því, sem íslenzka
ráðgjafanum fyrir nokkurum árum var
veitt heimild til að ráða yfir danska
styrknuro, er það skýrt tekið fram, að
það só að eins fyrir eitt fjárhagstímabil
og að það só ekki bindandifyr-
ir framtíðina. Það var ofureðli-
legt, að innanríkisráðgjafinn danski skifti
sór ekki neitt af danska styrknum með-
an ferðirnar lágu í sömu deyfðinni ár
frá ári. En öllum er kunnugt um
ofsagremju þá, er reis upp meðal Dana
f sumar, út af nýbreytninni með Ham-
borgarferöirnar, og hve mjög Danir hótu
á stjórn sfna að hætta að styrkja ferð-
irnar til íslands. Þegar svona stóð á,
er það eiginlega mesta furða, að íslenzki
ráðgjafinn skyldi ekki missa ö 11 tök
á danska styrknum og innanríkisráð-
gjafinn einn semja við Sam. fól. Hefði
bvo farið, myndu kássuferðirnar hafa
haldizt og alt setið í sama farinu.
Nei, vesalings blöðunum mun að eilífu
verða skotaskuld úr þvf að gera gufu-
skipasamninginn að árásarefni á stjórn-
ina. Svo raiklu betri er hann,
en menn nokkurn tíma bjuggust við.
Hamborgarferðir eins marg-
ar og vill, 45 ferðir reglu-
bundnar í stað 25 áður, kæli-
rúm Í4 skipum, fslenzk skips-
höfn á mörgum skipanna,
gestaróttur Reykjavíkur sem
varnarþing annars fólags-
i n s — þetta eru svo ágæt kjör, að
allir þeir, sem ei eru gagnteknir af sí-
feldu árásahungri á núverandi stjórn,
hljóta að vera henni mjög þakklátir
fyrir það, hversu vel henni hefir tekizt
að ráða fram úr jafn-vandasömu máli,
og gufuskipamálið var orðið.
Halastjarna í októbermánuði næstk.
í heimsókn. getum vér átt von á
gesti einum ofan úr
himinhvolfinu. Það er Halleyshala-
stjarnan svonefnda. Hún er heitin
eftir Halley stjarnfræðingi, þeim er
fyrstur reiknaði út gang hennar. Seytján
sinnum hefir hún verið sén af jarðar-
búum, svo að sögur fari af. Var það
í fyrsta skifti árið 12 eftir Krist. Arið
1682 var hún rannsökuð nákvæmlega
af Halley'þeim, er áður er nefndur,
og þá var forstöðumaður í sjónarhöll-
inni í Greenwich. Síðast sáum vér
hana 1835.
Það verður þó ekki fyr en vorið
1910, að hún sést með berum aug-
um, ef henni hefir þá ekki farið aftur
i ljósmagni, en það vill oft brenna
við um halastjörnur, og menn hafa
fulla ástæðu til að ætla þetta um
Halleysstjörnuna, því að hún fer 350
mílur á mínútunni.
Eigi er það ætlun stjarnfræðinga,
að hún muni reka sig á jörðina, né
gera af sér annan usla, því að það
vill svo vel til, að hún fer yfir jarð-
brautina á þeim tíma, sem jörðin er
á alt öðrum stað — og þótt svo ólík-
lega vilji til, að spekingunum skjátlist
í tölvísinni, er hættan eigi stórkost-
leg. Það er sem sé margsannað, að
jörðin hefir farið áður gegnum hala á
halastjörnu, án þess að nokkuð hafi
orðið að. Menn ætla, að ilt muni af
hljótast, er sjálfur stjörnubúkurinn rekst
á jörðina. En stjarnfræðingarnir halda
jafnvel, að það geri ekkert til. Það
er sem sé ætlun þeirra, að halastjörnur
séu samsettar af tómum smásteinum
og að af árekstrinum hljótist ekkert
annað en glæsileg stjörnuhröp, og
stórir loftsteinar á stöku stöðum.
Einar listamaður
fer líklega alfarinn frá Kaupmanna-
höfn nú í haust. Ætlar hann sér að
setjast að í Dresden eða Miinchen á
Þýzkalandi.
Hann hefir verið grátt leikinn af
listdómurunum dönsku, einkum í
seinni tíð, og verður feginn að kom-
ast í brott frá Kaupmannahöfn.
Gufuskipið Ceres
kom í dag frá Khöfn austan og
norðan um land. Farþegar m. a. Skúli
Thoroddsen alþm. og frú Theodóra
kona hans og margir þýzkir verka-
menn, sem vinna eiga að gasstöðinni.
Reykjavíkur-annáll.
Bæjarstjórnarfundur 2. sept.
Brunábótavirðing samþ. á smiðahúsi
Sigurjóns trésm. Sigurðssonar við Lækjar-
götu 10 B 3896 kr.
Brunabótavirðingarmenn frá 1. okt.
1909 til jafnlengdar 1910, kosnir trésmið-
imir Hjörtur Hjartarson og Sigvaldi Bjarna-
son.
Lögnámi samþ. að taka lóöarræmu af
frú Sophiu Thorsteinsson til breikkunar
Laufásvegi og greiða 2/3 kr. fyrir feralin
samkv. mati dómkvaddra manna.
Meðalmeðlag á ári með óskilgetnum
börnum ákveðið 100 kr. frá 14. mai 1909
til jafnlengdar 1914.
Rotþró var bankastjóra H. Hafstein leyft
að láta gera við hús sitt hið nýja við
Tjarnargötu, með afrensli i Tjörnina fyrst
um sinn.
Slátrunarleyfi veitt kaupmanni Siggeir
Torfasyni.
Varnargarður við Lækjarósinn. Til
hans má verja alt að 300 kr.
Dánir. Guðrún Kristjánsdóttir, ógiftur
kvenmaður, 48 ára, frá Hóli í Mosvalla-
hreppi I ísafj.sl., dó i franska spitalanum
22. ágúst.
Málfríður Þorláksdóttir, ekkja, 75 ára,
Yesturgötu 20. Dó 24. ág.
Ólafur Bjarnason, tómthúsmaður i Blön-
dalsbæ, 47 ára. Dó 22. ágúst.
Fasteignasala. Þinglýsingar 26. ágúst.
Guðmundur Stefánsson næturvörður fær
uppboðsafsalsbréf fyrir húseign nr. 67 við
Laugaveg fyrir 6900 kr. Dags. 21. ág.
Landsbankinn fær uppboðsafsalsbréf fyrir
smiðahúsinu á horninu á Ægisgötu og Ný-
lendugötu með 13 vélum og hreyfivél fyrir
9000 kr. Dags. 14. mai.
Sami fær uppboðsafsalsbréf fyrir húseign
nr. 26 B við Bergstaðastræti fyrir 6500 kr.
Daga. 13. mai.
Sami fær uppboðsafsalsbréf fyrir húseign
nr. 46 við Vesturgötu fyrir 4000 kr. Dags.
13. mai.
Sami fær uppboðsafsalsbréf fyrir jörðinni
Bráðræði á Bráðræðisholti i Reykjavik,
með húsum og öðrum mannvirkjum, 6061
ferálna lóð og timburhúsi við Bræðraborg-
arstig gegnt Sauðagerði, erfðafestublettum
0. fl. fyrir 20,000 kr. Dags. 23. ágúst.
Ólafur Magnússon trésmiður selur Sig-
urði steinsmið Þorkelssyni og Þorláki Hall-
dórssyni húseign sina við Laugaveg ásamt
erfðafestulandi, svokölluðum Arabletti, fyrir
8048 kr. 13 a. Dags. 13. ág.
Þinglýsingar 2. sept.
Eyvindur Árnason trésmiður selur Stef-
áni trésm. Guðmundssyni húseign nr. 56
við Hverfisgötu, með 1725 ferálna lóð ofl.,
fyrir 11,500 kr. Dags. 7. ág.
Jónas H. Jónsson trésmiður selur Jóni
Sigurðssyni bæjarfógetafulltrúa, Jóni Reyk-
dal málara og Kristjáni Möller málara ‘/4
úr lóð við Kárastig 1, fyrir 200 kr. Dags.
26. ágúst.
Kristinn Guðmundsson, Njálsgötu 26,
selur Eyólfi Guðbrandssyni */2 þá húseign
með skúr og lóð fyrir 5250 kr. Dags. 10. ág.
8tjórnarvaldaaugl. (ágrip)
Skuldum skal lýsa i
dánarbú Einars Eirikssonar, húsmans á
Helgastöðum í Biskupstungum fyrir sýslum. i
Árnessýslu á 6 mánaða fresti frá 26. f. mán.
Fasteigna uppboð
á verzlunarhúsum Helga Thorlacius á Sauð-
árkrók 11. og 25. septbr. og 9. oktbr.; &
húseign þrb. Gisla Jónssonar söðlasmiðs,
nr. 50 B við Laugaveg, 15., 22. og 29. septbr.,
á húseign Guðmundar steinsmiðs Einars-
sonar, nr. 6 við Ingólfsstræti, 23. septbr. á
hádegi; á búseign Sigríðar E. Magnússon,
nr. 3 við Mjóstræti, sama dag kl. 1.
Harmoniumskóli
Ernst Stapfs öll 3 heftin, 1 bókverzl
'n lsafoldarprentsm.
Teiknipappír
í örkam og álaum fæ«t 1 bókverzlun
Isafoldarprentsmiðiu.
8KAND1NAVI8K
Kxportkaffi-Hurrogat
KebenhaTn. — F- Hjorth & Co
Til leiðbeiningar.
í verzlun Jöns f»örðarsonar
fæst verkaður fiskur, svo sem þorskur,
langa, keila, skata, upsi, ísa og saltað
tros, söltuð grásleppa, harðfiskur o.m.fl.
Allskonar nauðsynjavara seld með
lægsta verði.
Húsaleigu-
kvittanabækur
fást nú í
bókverzlun Isafoldar.
Skriítarkensla.
Eg undirrituð hefi í Kaupmanna-
höfn lært að kenna skrift, og tek að
mér kenslu í henni frá 15. sept.
(helzt börnum, sem eigi hafa lært fyr).
Sigríður Arnadóttir,
Bergstaðastræti 9 B.
Geymslupláss
fyrir vörur eða hey er til sölu í
Lindargötu 7.
. Gott tilboð.
2 brúkaðir Kitsonslainpar,
úti- og inni-lampi — loga sem nýir,
fást fyrir nær því hálfvirði í
verzlun B. H. Bjarnason.
Gróðrarstöðin.
Matjurtir seldar að vanda.
Sent ef keypt er til muna.
Talsími 72.
Hafrahey
selt á uppboði í Aldamótagarði
mánudaginn 6. sept. kl. 10 f. h.
Agætt
h veiti
á 14 aura pundið
nýkomið í
Thomsens Magasín.
Dugleg’ stúlka
getur nú þegar komist að hjúkrunar-
störfum við geðveikrahælið á Kleppi.
Stúlku
vantar i vetrarvist strax.
Stýrimannastlg 9.
Til þess að gera hinum heiðruðu
skiftavinum enn hægra fyrir, hefir
Magasínið látið setja
sérstakan bæjartalsima
í hverja deild, og verða talsíma-
númerin þessi:
Nr. 1 skrifstofan og þýzka konsúlatið
— 2 nýhafnardeildin
— 3 vefnaðarvörudeildin
— 291 klæðskeradeildin
— 292 bazar- og járnvörudeildin
— 293 kjallaradeildin
— 294 pakkhúsdeildin.
Virðingarfylst
Thomsens Magasín.
Þurmjólkin
sem mest var eftir spurð síðastliðin
vetur er nú aftur komin í verzlun
Jóns Þórðarsonar. Leiðarvisir á ís-
lenzku fylgir með um notkun hennar.
Hestar keyptii!
Tveir sterkir, einlitir og helzt sam-
litir hestar, viljugir og fljótir brokkarar,
5—6 vetra gamlir.
H/f Sápuhúsið.
Reiðbeizli fundið nálægt Kol-
viðarhól. Vitja má þangað.
Brúnn kvenskinnhanzki tap-
aðist í gær frá Bryde til Edinborgar.
Skilist í Vesturgötu 33, mót fundar-
launum.
Hús til sölu, nú þegar, í mið-
bænum ásamt ágætri byggingarlóð við
Tjarnargötu. Áfgreiðslan vísar á.
Næla fundin á götunum. Vitja
má í ísafoldarprentsmiðju.
Til leigu 2—3 herbergi með
eldhúsi og geymslu, Hverfisgötu 51.
Til sölu ágætur vefstóll með rak-
grind og öðru tilheyrandi, fyrir mjög
lágt verð. Á sama stað fæst vængja-
borð og barnakerra með miklum af-
slætti. Afgr. ávísar.
Til leigu 2 kjallaraherbergi með
eldhúsi og geymslu, Hverfisgötu 50.
Nysilfurbúinn baukur fund-
inn. Júlíus Jóhannsson, Litla-Seli.
Stofa og kamers með sér-inn-
gangi til leigu, Vesturgötu 35.
Tækifæriskaup. Eftir miðjan
ágúst sel eg mjög^ódýr litið brúkuð
reiðtýgi. Samúel Olafsson.
Ungur verzlunarmaðar,
ráðvandur og stundvís, óskar eftir at-
vinnu við verzlun hér í bænum; upp-
lýsingar gefur Halldór Þórðarson bók-
bindari.
200 pt. olíubrúsi er til sölu
og sorpkassi með ágætisverði. —
Upplýsingar í Njálsgötu 40 B.
Til kaups og ábúðar í næst-
komandi fardögum (1910) fæst jörðin
Ytri-Ásláksstaðir í Vatnsleysustrandar-
hreppi. Jörðin gefur af sér í meðai
grasári fóður fyrir 2 kýr, 60—80
kindur og nokkur hross. Henni fylgir
landrými mikið utan túns, góð fjöru-
beit, útræði og næg vergögn. Enn-
fremur íbúðarhús úr timbri, 2 geymslu-
hús (annað heima við, hitt við sjóinn),
heyhlaða og fénaðarhús mörg. Um
kaupin skal semja við Guðm. Guð-
mundsson í Landakoti á Vatnsleysu-
strönd fyrir 30. nóv. þ. á.
3—4 herbergi með geymslu til
leigu í Pósthússtr. 14 og 1 herbergi
fyrir einhleypa í sama stað.
Til leigu frá 1. okt. 3 herbergi
ásamt eldhúsi og geymsluplássi. Uppl.
i verzl. Lindargötu 7.
Til leigu frá 1. október stofa
með svefnherbergi í húsi Steingr. Guð-
mundss. Amtmannsstig 4.
2 herbergi og eldhús til leigu
i Grjótagötu 14.
Messufall í fríkirkjunni á morgun.
JÓN Í^ENF^ANZ, IiÆ^NI^
Lækjargötu liiB — Heima kl. 1—8 dagl.
Reynið
Boxcalf-svertuna Sun; þér brúkið
ekki aðra skósvertu úr þvi.
Hvarvetna á íslandi hjá kaupmðnn-
um.
Buehs litarverksmiðja,
Kaupmannahöfn.
Toiletpappír
hvergi ódýrari eu 1 bókverzlun Isa-
foldarprentsmiðiu.
Námsstúlkur
geta fengið fæði og húsnæði á kom-
andi vetri í Café Uppsölum (Aðal-
stræti 18).
Hólmýr. Rósenkranz. Þórunn Finnsd.