Ísafold - 13.11.1909, Qupperneq 2
294
ISAFOLD
Sambandsmalið
í ríkisþinginu.
Símskeytin um, að minst hafi verið
á sambandsmál vort og Dana í fólks-
þinginu núna í vikunni votta það,
að ráðuneytisumskiftin síðustu hafa að
svo stöddu engin áhrif á afstöðu Dana
i því máli.
Fyrst tekur til máls nýr þingmaður
úr liði hægrimanna, Schack höfuðsmað-
ur, sá er stýrði Heklu fyrir nokkur-
um missirum, og kveður upp úr um
það, að undir búi sjálfstæðiskröfum vor-
um alger skilnaður og annað ekki.
Það á sýnilega að vera viðvörun
um, að taka sízt mark á því, sem upp
sé tekið af vorri hálfu. Það muni
ekki vera annað en yfirdrepskapur, er
þeir, Danir, skuli vara sig á. Skilnað
viljum vér. Vér búum yfir því ódæði,
að ætla oss að brjótast undan Dön-
um.
Svar forsætisráðgjafans nýja virðist
vera af sama toga spunnið. Hann heitir
á þingflokkana alla 6 eða 7, að standa
eins og einn maður í stímabrakinu við
oss íslendinga, og bendir það sízt á
nokkura tilslökun af hans hendi.
Slíkum ummælum svipar miklu
fremur til herhvatar, til eggjana um
að hopa hvergi á hæl fyrir óróasegg-
jum þeim, íslendingum.
Hann virðist, yfirráðgjafinn, standa
alveg í sömu sporum sem millilanda-
nefndarmennirnir dönsku, sem tjáðust
mæla fyrir munn allra danskra þing-
flokka og það með, að lengra en þetta
yrði þeim með engu móti þokað.
Enda var það hið sama viðkvæði
af munni danskra þjóðmálaleiðtoga
bæði í forsetaförinni í vetur og ekki
síður í dvöl ráðgjafans ytra í sumar.
Fyrir þeim, Dönum, flestum eða
öllum vakir þetta:
Þeir kunna ekki gott að þiggja, Is-
lendingar. Vér leikum við þá, bjóðum
þeim hin mestu kostakjör, viljum
leggja svo og svo mikið fyrir þá,
gefa þeim stórfé (i^/a ndilj-)- En
þeir eru þeir gikkir, að þeir vilja ekki
við því líta, hafa alt á hornum sér og
sitönlast á meira frelsi, meira frelsi!
Þetta eru óvitar, sem vér verðum að
hafa vit fyrir. Það er bæði lagaleg
skylda og ekki síður siðferðisleg.
Schack höfuðsmaður er gegn og góð-
ur maður. Hann þótti standa mæta-
vel í stöðu sinni, er hann stýrði hér
strandvörnum. Hann var hinn vin-
' samlegasti í allri umgengni, öllum
viðskiftum við oss þá.
En vinsemdin endist það langt, er
nægileg undirgefni og auðmýkt kemur
i móti. Gæðin oss til handa er náð
og lítillæti; annað ekki. Og það eig-
um vér að kannast við. Annars erum
vér uppreisnarmenn og óróaseggir,
skilnaðarvindbelgir.
Zahle er langfrjálslyndasti flokks-
foringi og nú stjórnarforseti, sem
Danir hafa nokkurn tíma átt. Hann
er vitsmunamaðuf og sjálfsagt miklu
fremur góðgjarn en hitt. Alt um það
hefir hann ekki annað að segja um
sjálfstæðisviðureignina við oss, er hann
tekur við stjórnartaumunum, en að
hann skorar á landa sína að láta hvergi
undan síga fyrir oss. Hann víkur
engu orði að neinni miðlun, neinni
sátt eða samkomulagi.
Það, sem utanríkisráðgjafinn nýi
minnist á viðskiftaráðunautinn á sjálf-
sagt rót sína að rekja til svipaðrar
tortrygni við oss eins og skilnaðar-
talið hjá Schack höfuðsmanni. Lík-
legast má þó rekja upptök þeirrar tor-
trygni til þess, er íslenzkir minnihluta-
símritarar fluttu þá falsfrétt til Dan-
merkur í vetur, er tillagan um slika
erindreka kom fram á þingi, að þeir
ættu að vera íslenzkir konsúlar hjá
utanríkisþjóðum. Þeir vissu, minni-
hlutamenn, að það mundu Danir kalla
landráð og verða æfir við. Það horfðu
þeir ekki hót i, ef verða mætti til þess
að leggja stein í götu hins nýja ráð-
gjafa, þann, er yrði honum að falli.
Þeir gerðu sér meira að segja örugga
von um, að ráðunautafjárveitingin yrði
til þess, að fjárlögunum íslenzku yrði
synjað konungsstaðfestingar. Þeir lifðu
í þeirri von alt til siðustu forvaða, til
þeirrar stundar, er síminn bar hingað
fréttina um staðfesting fjárlaganna.
Enda hafa þeir ekki verið í annan
tíma daprari í bragði, að sagt er, en
daginn þann eða hinn næsta, nema ef
vera skyldi daginn, sem fyrstu Marconi-
skeytin bárust hingað, nú fyrir meira
en 4 árum.
Þetta er föðurlandsástin rik og
fölskvalaus i liðinu því!
Gufuskipin.
Vesta kom frá Vestfjörðum á mið
vikudaginn eftir æði langa útivist,
hafði legið marga daga á Stykkis-
hólmi og beðið Skálholts. Voru far-
þegar heldur gramir yfir töfinni þeirri.
A skipinu komu Ingólfur Jónsson verzl-
unarstjóri, Guðm. Jónasson kaupmað-
ur, Andrés Féldsteð læknir o. fl.
Vesta fór samdægurs til útlanda.
Farþegar: Pétur J. Thorsteinsson stór-
kaupmaður, Brillouin konsúll og frú
o. fl. .
Laura kom frá útlöndum miðviku-
dagskvöld. Engir farþegar.
Sterling kom frá útlöndum i fyrra
dag. Farþegar: Ólafur Dan, doktor-
inn nýi, Guðm. Sveinbjörnsson að-
stoðarmaður, Arni Einarsson verzlunar-
maður, A. Philipsen steinolíufélags-
stjóri, Jón Finnsson (prófessors), Jónas
Lárusson, Jónas Magnússon bókbind-
ari, jungfrúrnar Þóra Guðjohnsen og
•Þorbjörg Sighvatsdóttir, dönsk hjúkr-
unarkona o. fl.
Viðskiftaráðanauturinn,
hr. Bjarni Jónsson frá Vogi, er nú
í suðurför, suðuri Miðjarðarhafslöndum-
Beðið um hann sunnan af Ítalíu, til
skrafs og ráðagerða um bætt og aukin
viðskifti héðan suður þar.
Hann hafði áður ferðast allviða um
Norveg og flutt þar erindi um ísland
og islenzka þjóðarhagi, og margt starf-
að annað. Fór þaðan austur í Svi-
þjóð, til Uppsala og Stokkhólms, átti
þar tal við helztu blaðamenn ogmeiri-
háttar menn aðra. Honum var hvar-
vetna vel fagnað og mikið um hann
og erindi hans og ísland í ýmsum
blöðum, alt mjög vinsamlegt í vorn
garð.
Hljómleikar
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar þ. 13.
okt. i Kaupmannahöfn, fá allgóðan
dóm í dönskum blöðum yfirleitt. En
heldur mun það hafa spilt en hitt, að
blöðin voru áður búin að hefja Svbj.
til skýjanna. Vonaboginn því afar-
hátt spentur — meir en heppilegt
var.
Söngdómararnir dönsku segjast hafa
búist við sérkennilegum, íslenzkum
blæ yfir lögunum, skapmiklum og
hrikalegum, en ekki fundið hann. —
En öllum kemur þeim saman um, að
Sveinbjörn sé mjög smekkgóður og
vel að sér. —
Pétri Jónssyni ej hrósað mjög mikið
i öllum blöðunum — og segir eitt
þeirra, að hann hafi »vakið óhemju
fögnuð með söng sínum, enda sé rödd
hans svo hreimmikil og hressandi, að
fádæmum sæti<.
Sendiherra Bandarikjanna, dr. Mau-
rice Egan, hafði Pétur í boði hjá sér
fyrir skömmu og sýndi honum mestu
dáleika, bað hann m. a. að vera við-
staddur veizlur hjá sér við og við til
þess að syngja fyrir gesti sina.
Samakvöldið og hljómleikarnir voru,
gerðu islenzkir kaupmenn í Khöfn
boð mikið fyrir þá Sveinbjörn og
Pétur o. fl. '
Pétur mun hafa í hyggju að fram-
ast frekar í söngment — og er það
vel farið.
Ólafur Amundason
verzlunarstjóri Brydes verzlunar er
nýlega fluttur búferlum til Hafnar-
fjarðar og tekur hann við forráðum
Brydesverzlunarinnar þar, í stað Jóns
Gunnarssonar samábyrgðarstj. Ólafi
og frú hans var haldið skilnaðarsam-
sæti um daginn af kaupmönnum bæ-
jarins. Hefir Ólafur jafnan verið vin-
sæll maður.
Heið ursmerki.
Frk. Þóra Friðriksson hefir nýlega
verið sæmd frakknesku heiðursmerki
(Officier d’academie). Það stáss hefir
enginn kvenmaður vor á meðal hlotið
áður.
íslandsmkl í rlkisþinginu.
(Simfregn 10. nóv.).
Schack fólksþingsmaður hefir í þing-
ræðu sakað íslenzku Sjálfstæðismenn-
ina um skilnaðaráform, hefir ráðist á
erindrekastarfið (skipun viðskiftaráðu-
nautsins) og heimtað, að Danastjórn
taki í taumana, vill lála Zahle forsætis-
ráðgjafa taka sambandsmálið sem allra
fyrst til umræðu.
Zahle hefir sagt í þingræðu, að hann
væri hálfókunnugur íslenzkum samn-
ingaleitunum í sambandsmálinu og
ráðstefnur um það væru enn óhaldnar,
en vonaðist eftir, að allir flokkar í
danska þinginu héldu órjúfanlega
saman gagnvart íslandi. — Scavenius
(utanrikisráðgjafi) ætlar að freista að
komast að samningum við íslands-
ráðgjafann um viðskiftaráðunautinn.
Gullbrúðk aup
Melsteðshjónanna er I dag. — Þeim
hefir verið sýndur virðingarvottur af
hálfu bæjarbúa á ýmsan hátt. — Kl.
xo var leikið á lúðra, brúðkaupslög,
fyrir framan hús þeirra. A hádegi var
þeim flutt ávarp frá bæjarmönnum,
undirritað af nokkrum hundruðum
karla og kvenna — og hefði sjálfsagt
orðið enn miklu fleiri, ef timi hefði
enzt til að undirbúa það. —
Avarpið hljóðar svo:
Kœru gullbrúðhjón
Páll Melsteð og Þóra Melsteð.
Oss er það mikil gleði og sæmd að
mega ávarpa ykkur í dag, á gullbrúð-
kaupsdegi ykkar, sem um leið er af■
mælisdagur yðar, virðulcgi öldungur,
með árin níutíu og sjö að baki.
Sæmdarlifi hafið fiið lifað alla ykkar
löngu œfi, og hjúskapur ykkar verið
hin fegursta fyrirmynd öllum hjónum.
Og hvert ykkar um sig lœtur eftir fiýð-
ingarmikið og göfugt æfistarf, sem hin
islenzka þjóð geymir um áldur í heiðri
og blessun.
Oll hin islenzka fijóð fœrir ykkur i
dag hjartfólgnar fiakkir og heillaóskir.
Guð blessi œfikvöld ykkar.
Kl. 2 gengu kvennaskólastúlkurnar í
skrúðgöngu heim til þeirra og sungu
kvæði til þeirra hjóna, er ort hafði
Stgr. rektor Thorsteinsson.
Margir hafa og flutt þeim persónu-
lega hamingjuósk og enn fleiri munu
senda þeim fagnaðar-símskeyti o. s.
frv.
Gullbrúðguminn er furðu ern, svo
háaldraður maður. Hann er vitaskuld
alblindur orðinn og rúmfastur, en
minnið er óbrigðult ennþá og við-
ræðufjörið hið sama og verið hefir.
Hljómleikar.
Sigvaldi Stefánsson læknir efndi til
hljómleika i Goodtemplarahúsinu í
gærkveldi með aðstoð frk. Hólmfr.
Halldórsdóttir, Arna Thorsteinsson
ljósmyndara og Péturs Halldórssonar
bóksala.
Lögin voru vel valin — og yfir-
leitt vel leikin og sungin. — Sigvaldi
er einhver mesti listaleikari hér um
slóðir á harmonium.
Leikhusiö.
Leikarnir geta ekki byrjað um þessa
helgi eins og til stóð. En á fimtu-
daginn kemur ætlar leikfélagið að ríða
á vaðið með leiknum Jón Gláyde
(Astir og miljónir).
Ofurefli
skáldsaga Einars Hjörleifssonar er
komin í danskri þýðingu eftir Ólaf
Hansen skáld og skólakennara í Ár-
ósum. Útgáfan er hin vandaðasta
— og þýðingin kvað vera snildarlega
góð.
Iudriði Einarsson
skáld er nú skipaður skrifstofustjóri
á fjármálaskrifstofu landsins. Settur
frá því í vor.
Um mátt mannsandans
ætlar Einar Hjörleijsson að flytja þrjá
aiþýðufyrirlestra fyrir Stúdentafélagið.
Fyrsti fyrirlesturinn hefst í Iðnaðar-
mannahúsinu á morgun siðdegis kl.
5 Va-
Franska landsjoðsláns
tilboðið.
Eitthvað hefur tilrætt orðið — víð-
ar en i »heiðarlegu< málgögnunum
— um franskt tilboð um landsjóðs-
lán i fyrra vetur, og stjórninni láð,
að ekki var að því gengið, í stað þess
að eiga við dönsku bankana.
Þetta tilboð, ef tilboð skyldi kalla
— það komst aldrei lengra en að
vera ráðgert tilboð — var tveimur
annmörkum bundið, og þeim svo stór-
feldurn, i augurn þings (meirihluta-
þingmanna) og stjórnar, að ekki var
nokkurt viðlit að því að ganga.
Annar var sá, að iánið mátti ekki
minna vera en 10 milj. franka —
rúmar 7 rnilj. kr. Sá, sem lánið ætl-
aði að útvega, vildi ekki við þeirri
milligöngu líta, ef minna væri um að
tefla. Leiga af því hefði numið
300,000—400,000 kr. um árið; og
dregur landssjóð það, sem minna er,
ekki sízt eins og hann var þá stadd-
ur, eftir viðskilnað hinnar fyrri stjórn-
ar. Auk þess var að flestra dómi
engin þörf á svo stóru Iáni að svo
stöddu.
Hinn annmarkinn var þó enn meiri
háttar í sjálfum sér, auk þess sem
hann gerði lántökuna fyrir fram dauða-
dæmda.
Hann var sá, að bankarnir frönsku,
sem ætlast var til að lánið veittu,
heimtuðu danska ríkisdbyrgð fyrir því.
Þeir vildu ekki trúa oss fyrir því á
vorar spýtur. En það er hvorttveggja,
að slík ábyrgð hefði alls ekki fengist,
enda naumast nokkur meirihlutamað-
ur á þingi haft skapsmuni til að fara
fram á það. — Og lái það hver sem
vill
Litlu verður Vöggur feginn.
Danska flokks blöðin eru fram úr
hófi gleið yfir »vantraustsyfirlýsingu<
til stjórnarinnar, sem samþykt var á
héraðsfundi Vestur-ísfirðinga nýlega
með 8 atkv. gegn 5.
En minna ættu þau að láta, þvi að
ekkert mark má hafa á fundi þessum,
eftir þvi sem einn af fundarmönnum
hefir skrifað hingað. Fulltrúarnir voru
kosnir með héraðsmál ein fyrir augum,
en alls ekki »stórpólitík<, því að hana
er alls ekki venja að ræða á fundum
þessum nema þingár. Það var því ger-
ræði eitt af fundarins hálfu gagnvart
kjósendum að taka stjórnmál til á-
lyktunar, gerræði, sem var framið
vegna þess, að stjórnarandstæðingum,
með Mattías Ólafsson i fylkingarbroddi,
tókst að fá einn fulltrúann á sitt band,
á miður drengilegan hátt, ejtir að á
Jund kom, og það fulltrúann úr þeirri
sveitinni, sem öllum öðrum fremur er
stjórninni fylgjandi. Mun fulltrúi sá
hafa fengið siður en ekki hlýjar við-
tökur, er hann kom heim úr leið-
angrinum.
Stjórnarandstæðingum tókst þannig
að tjalda til 8 atkvæðum af 14 alls,
eða einu yfir helming atkv. En
fundarstjóri, sem er eindreginn stjórn-
armaður, mátti ekki greiða atkvæði.
Það er langt frá, að atkvæðagreiðsla
þessi sé nokkur bending um afstöðu
kjósendanna I þessu kjördæmi, heldur
er hún ódrengileg árás aftan að kjós-
endunum og gætum vér trúað þvi,
að þeir létu ekki bjóða sér annað
eins oftar.
Lbvarðarnir að harðna.
(Simfregn 9. nóv).
Nú er fullyrt, að lávarðarnir brezku
ætli sér þrátt fyrir alt að fella fjárlögin
í efri málstofunni. Og fari svo, má
sjálfsagt telja það mestu tíðindi, sem
nú eru að gerast í heiminum.
-----------------
Norska stjómin fallin.
(Simfregn frá Kböfn 9. nóv,).
Þingkosningarnar norsku hafa farið
svo, að stjórnin hefir beðið ósigur og
fer þegar frá, en hægrimenn taka lík-
lega við stjórnartaumunum.
Kirkjujarðarsala.
í ónefndu »heiðarlegu< málgagni hér
i bænum var nýlega minst á sölu
kirkjujarðar hér í nágrenninu, og auð-
vitað af venjulegri góðgirni(l) og sann-
leiksást(l).
Kirkjujörð þessi, Neðri-Háls í Kjós,
liggur við löggilta höfn, Maríuhöfn,
sem enn er ónotuð, þótt alllangt sé
siðan er löggilt var, — ein af 18 —
slíkum, var fyrst ekki látin föl einmitt
af þeirri ástæðu : hugsanlegt, að þar
kynni að rísa upp kauptún síðar meir,
sbr. lög 16. nóv. 1907, 2. gr. En
það kom í ljós, er rnálið var vakið
upp aftur, að sá úrskurður var ekki
réttur; málið ekki nógu vel athugað
af þeim, sem hann hafði undirbúið.
Téð lagagrein kveður svo að orði:
— Nú er kauptún, þorp eða verk-
smiðjuiðnaður fyrir á kirkjujörð, eða
sýslunefnd telur líklegt, að slíkt komi
þar upp innan skamms-------má eigi
selja jörðina án sérstakrar lagaheim-
ildar í hvert skifti.
Einmitt þetta urn atkvæði sýslu-
nefndar hafði sést yfir að athuga til
hlítar, er málið var undirbúið til af-
greiðslu.
Nú sást það, er að var gáð, að sýslu-
nefnd hafði a 11 s e k k i talið líklegt,
að kauptún o. s. frv. mundi koma
upp við Mariuhöfn innan skamms.
Hún hafði tekið einmitt það atriði til
sérstaklegrar íhugunar, og lagt til alt
um það i einu h 1 j ó ð i, að jörð-
in væri seld.
Það var því alveg ólöglegt, að synja
um sölu jarðarinnar af þeirri ástæðu.
Og aðrar ástæður fyrir því voru ekki
til.
Fyrir þvi hefði ábúandi verið bein-
urn rangindum beittur, ef honum hefði
verið lengur synjað um, að fá jörðina
keypla.
Kaupverðið, sem hann bauð fyrst,
var eitthvað fyrir ofan það, sem jörðin
hafði verið virt af þar til dómkvödd-
um mönnum. En nú hækkaði hann
það þó um 500 kr.
Enn gerði stjórnin þó eitt, áður en
salan væri samþykt, til þess að búa
sem tryggilegast um, að engis manns
réttur væri fyrir borinn í bráð né lengd.
í stað þess að láta sér nægja það
álit sýslunefndar, að ekki mundi rísa
upp kauptún o. s. frv. við Maríuhöfn
innan skamms, þá tók hún u n d a n
sölunni nægilegt land undir
v e r z 1 u n (kauptún) o. s. frv. hve nær
sem til kæmi, þótt ekki væri fyr en
eftir 100 ár, og valdi til þess lang-
hentugasta blettinn í landareigninni:
við lendingarstað þann og bryggjustúf,
sem nú eru notaðir og hafa verið
lengi. Land það á að vera eign Kirkju-
sjóðs um aldur og æfi, nema ef hann
selur það væntanlegum kaupmanni
þarna eða kaupmönnum.
Þetta mun vera nóg til þess, að
hver heilvita maður gangi fyliilega úr
skugga um, að leit muni vera á vit-
lausari aðfinslu en þeirri, er hér um
ræðir, jafnvel í »þeim heiðarlegu<.
L. H. B.
(Bréfkafli úr Snæfellsnessýsla).
Allmargir hér í sýslu fylgja með
athygli og ánægju skærum ísafoldar
við dánumennið, yfirvaldið mikla fyr-
verandi, L. H. B. lagaskólastjóra og
riddara p. p. Þykir þeim, sem ekki
þekkja manninn vel, hann vera orð-
inn deigari til mdlaferla nú, en þegar
hann var að hóta hreppsnefnd einni
hér í sýslu sakamáli fyrir það ódæði,
að skrifa beint í amtið. Hinir, sem
þekkja hina sönnu hugdirfð dánumanns
þessa, furða sig ekki svo mjög á þvi,
að hann ekki fari að fara I mál við
ísafold út af ummælum hennar, enda
hafa víst flestir fyrir satt, að þau séu
í alla staði réttmæt.. Hinsvegar furða
margir sig á, að honum skuli ekki
vera skipað að hreinsa sig af áburði
ísafoldar. Mönnum finst, að þjóðin
eigi heimtingu á, að í jafnveglegum
embættum sitji þeir menn, er að minsta