Ísafold - 16.12.1909, Page 2

Ísafold - 16.12.1909, Page 2
334 ISAFOLD Dönsk blöð og bankafarganið. Blöð þau dönsk, sem hingað eru komin — tala yfirleitt með mikilli ró um bankafarganið. Þetta, sem minnihlutinn hefir látið sima sér um það, að dönsk blöð teldu ákærurnar á bankastjórnina »smá- vægileg formsatriðic o. s. frv. — er alt tekið úr smágrein einni í Ekstra- blaðinu — blaði sem minnihlutinn hingað til hefir sízt talið neina véfrétt þ. e. meðan blaðið var að segja H. H. sannleikann. Nú er það orðið gott blað, þegar minnihlutinn heldur sig geta notað það til árása á ráð- gjafann, sem nú er. — Þessi grein i Ekstrablaðinu er auðsjáanlega rituð í flýti — líklega eftir glóðvolga sam- ræðu við Jón Svb. eða Boga — og tnondi oss ekki bregða í brún, þótt Ekstrablaðið væri n ú farið að taka alt ððruvísi í strenginn. Þá er og Berlingur með smá-ilsku- slettur. En á því skyldi enginn mað- ur mark taka, þvi að maður sá, er afskifti hefir af íslandsmálum í því blaði, hr. Sven Poulsen, er ekkert annað en bergmál af Boga Melsted og Sigfúsi Blöndal bókaverði. Því má ekki taka meira mark á orðum og tillögum Berliftgs en t. d. Lögr. eða Rvíkur. Önnur blöð mæla á eina lund, að enn sé bankastjórnarskiftin ekki full- skýrð — og sé þvi sjálfsagt að biða átekta. Sum þeirra, t. d. Socialdemokr. segja, að alllengi hafi verið kunnugt um skeytingarleysi og óreglu i stjórn bankans og því hafi þessi stjórnarráð- stöfun ekki komið á óvart. Einastórlygi hefirRitzaus Bureau verið notað til að bera út um öll Norðurlönd — og það er, að mótmælafund- ur hafl verið haldinn og tekið þátt í honum 7000 manns og þar verið sam- þykt vantraustsyfirlýsing til ráðgjafans. Auðvitað er það ekki Ritzaus Bureau, sem ábyrgð- ina ber á þessari lygi, heldur hinn ljósfælni tíðindamaður þess hér í Reykjavík. Mikil er sú ófeilni, að þora að sima svo bera lygi sem þetta til annarra landa og vita þó, að jafn- skjótt, sem upp kemst, muni hún verða rekin öfug ofan í sögumann. — í þessu atriði, sem og mörgum öðrum I bankarimmunni, kemur það ótvíræðlega fram, að æsingin og of- stækið hefir algerlega rekið skynsemd alla á dyr — hjá minnihlutanum. Frönsk stjórnmál. Nýtt skattafrumvarp. Sanuar fjárhagsbœtur. Barátta gegn klerkavaldinu. Trúkenslulausir skólar. ---- Kh. »/u Á Frakklandi hefir fátt gerst sögu- legt síðan stjórnarskiftin urðu þar í sumar og Artistide Briand komst til valda. En núna á dögunum gerðist sá at- burður, er nærri reið stjórninni að fullu. Cochery f)ármálaráðgjafi lagði fyrir þingið ný fjárlög með miklum nýmælum. Hann vill leggja á þjóð- ina nýja skatta marga og mikla. Fjár- lagahaliinn á Frakklandi er nú um 200 miljónir króna og fjármálaráð- gjafinn vill jafna hann, svo að um munar. Halli þessi hefir verið að vaxa smámsaman núna lengi og ekkert verið við gert annað en að taka ný og ný ríkislán. Gat því hag- ur rikisins sýnst nógu glæsilegur á pappímum, þó að honum færi hnign- andi ár frá ári í raun og veru. Þessu gat Cochery ekki unað; hann vildi búa til »ærlegtc fjárlagafrumvarp. Það gerðí hann með þvl að gera ráð fyrir nýjum skattaálögum, sem mest- megnis eru fólgnar í gjaldhækkun á vínanda og dýrum vín- og tóbaksteg- undum. Lendir þetta því á almennri neyzluvöru, en þó búið svo um, að mest kemur í hlut efnaðri stéttanna. t 10°l0afsl- gefur verzlunin Óðar en Cochery hafði lagt fram frumvarpið, varð gustur mikill í þing- inu. íhaldsmönnum þótti auðvitað of nærri gengið sér og auðvaldinu, en jafnaðarmenn pg yzti armur ger- bótamanna sagði frumvarpið óhæfilegt fyrir lægri stéttirnar, einkum vegna vinandaskattsins. Umræður urðu hin- ar snörpustu í þinginu. fafnaðarmenn og margir með þeim vildu ná fénu með nýjum tekjusköttum eingöngu, en það taldi Cochery óframkvæman- legt, og stóð fastur á sínu máli. Hann bauð Briand að leggja niður ráðgjafaembættið heldur en að frum- varpið yrði stjórninni að falli. Það þáði þó Briand ekki, heldur gerði hann frumvarpið að sínu máli og alls ráðuneytisius. Urðu nú enn harðar sviftingar, en .þó kom svo, að Cochery tjáði sig fúsan til að semja um einstök atriði laganna og hliðra dálítið til, ef frum- varpið yrði samþykt í aðalatriðum. Mun því þruma þessi gegn ráðuneyt- inu riðin hjá. Biskupar og kardínálar á Frakklandi hafa tekið sig saman um það nýlega af: Veínaðarvörum, öllum tegundum. Fatnaði, ytri sem innri, handa k o n u m, körlum og börnum. Jölagjafir heBtugar handa ungum og gömlum, smekklegar en mjfig ódýrar i Dagsbrún. fflB&BU&fcBriand yfirráðqjafi vmmmmmmmm-________________„____ að hefja öfluga baráttu gegn yfirgangi stjórnar og löggjafa, sem þeir kalla. Hafa þéir sent umburðarbréf í því skyni út á meðal presta til þess að eggja þá til framgöngu, og er til þess tekið, hve svæsið þetta bréf sé að orðalagi. Briand var sá, er mestu réði um skilnað ríkis og kirkju á Frakklandi eins og menn muna. Hann er svar- inn fjandmaður klerkavaldsins. Við fjárlagaumræðurnar mintist hann á þessi nýju heróp klerkanna og kvað stjórnina mundu taka þessu ómjúk- lega. Hann sagði pað helzta dhuga- mál stjórnarinnar að ajnema trúar- kenslu i óllum skólurn á Frakklandi og um það ættu kjósendur aðallega að segja álit sitt við kosningar þær, er nú fara í hönd. Eftir þessi ummæli óx stjórninni styrkur í þinginu, en þó eru margir smeikir við, að kjósendur taki fleiri mál til greina við atkvæðagreiðsluna og óvíst nema stjórnin biði ósigur út af þessarri nýju skattalöggjöf. Verðlauna-gjöf ágæta hefir hr. Richard Braun eig- andi verzlunarinnar Hamborg nýlega gefið Skautafélaginu. Það er mjög vandaður silfurbikar og forkunnar fagur, hálf alin á hæð. Hann á að nota ásamt drykkjarhorni þvi, er Th. Thorsteinsson konsúll gaf fyrir skömmu, til verðlauna við kapphlaup þau, er Skautafélagið ætlar að efna til í janúarmánuði næstkomandi (líklega 22. og 23. jan.). — Bikarinn verður sýndur í glugga Braunsverzlunar á sunnudaginn. Jóhann Sigurjónsson skáld, er nýfarinn frá Höfn til Nor- egs og ætlar hann sér að dvelja þar um tíma. Goðar vörur. Smekklegar vörur. Nýjar vörur. Odýrar vörur. í Dagsbrún. Símskeyti E. H. um ólagið í Landsbankanum Þann 27. nóv. síðastl. sagði eg í Isajold efni úr símskeyti, sem eg hafði sent »Politiken« tveim dögum áður, og eg tók það þar fram, að eg hefði »ekki minst á Eirík Briem né Kristján Jónsson einu orði«. Blaðið Reykjavík leitast við að sýna, að þetta sé ósannindi, og kemur, í því skyni að sanna sitt mál, með part úr símskeyti, sem stóð í Politiken 26. nóvember síðastliðinn. Til þess að taka af allan vafa og girða fyrir frekari stælur um þetta efni, set eg hér staðfest eftirrit af símskeyti minu: 25/n '09 kl. oo46. Politiken Kjöbenhavn Knn endel TJndersögelsernes Resultater otfentliggjort Mangfoldige Ulovligheder op- dagede Exempelvis Aarsregnskab ndeciseret 5 sidste Aar Vexelkjöb stor Udstrækning foretagne underordnede Funktionærer Mange Selvskyldnerlaan vanrögtede og Ugyldighed bevirkende Formfejl Utrolig Tilsynsefter- ladenhed Sparekassen uopgjort uafstivet mange Aar Direktörernes personlige Hæder- lighed uomtvistet Bankens Solvens sikker. Hjörleifsson Rétt eftirrit af frumskeytinu staÖfestir Lára Blöndal simritari. Þó aðritstj. »Reykjavikur« telji mig ekki »heiðursmann« í síðasta blaði sínu, og hafi fyrir skömmu gefið í skyn, að eg sé ekki einu sinni »mað- ur«, þá virðist mér að vel væri til fundið af houum að sýna sig sjálfan svo mikinn mann, að láta þess getið í blaði sinu, að hann hafi haft mig fyrir rangri sök. Einar Hjórleijsson. OYöndnð yerzlnnarsamkepni. Hæstiréttur hefir nýlega dæmt A. T. Möller & Co. í Khöfn til þess að greiða Salomon Davidsen stórkaupm. 10,000 kr. í skaðabætur auk máls- kostnaðar fyrir útskit á fiskfarmi, er Davidsen sendi til sölu suður á Spán fyrir nokkrum árnm. A. T. Möller hafði í bréfi til umboðsmanns sins í Barcelona úthúðað fiskinum mjög, sagt hann miklu, miklu verri en hann var og bréfið hafði að dómi hæsta- réttar verið þannig orðað, að um- boðsmaðurinn gat ekki skilið það öðruvisi en, að hann ætti að breiða út niðið um fiskfarminn. Dómur þessi hefir vakið mikla eftirtekt í Danmörku. Blöðin hafa farið mjög hörðum orðum um þetta athæfi A. T. Möllers — talið svo- lagaða samkepnisaðferð með öllu óhæfa og Danmörku til mikils vansa í út- lendinga augum. Vonandi, að íslenzkir kaupmenn »dependeri ekki af Dönum« i þessu efni — og éj pottur væri einhver- staðar brotinn, að þeir þá láti annars víti sér að varnaði verða framvegis. Sjúkdómur Björnsons. ----Kh. 27. nóv. Hann fluttist nýlega fárveikur til Parísarborgar frá búgarði sinum í Noregi, Alastað; ætlaði hann að leita sér heilsubótar í Frakklandi. En þeg- ar þangað kom bráðversnaði honum og var hann talinn af í marga daga. Var búist við andlátsfregninni á hverri stundu. En nú er honum ofurlitið að skána aftur og læknar hafa von um, að þetta líði frá. Sjúkdómurinn er æðakölkun og andarteppa. Fær hann tíð aðsvif, en er fullhress á milli. -9S6- Kröyer málari dáinn. --- Kh. 27. nóv. Frægasti málari Dana og jafnframt allra Norðurlanda lézt nýlega á Skagen á Jótlandi, s8 ára að aldri. Kröyer málari Hann mun vera frægasti maður Dana nú á dögum, nema ef vera skyldi Georg Brandes. Cook og skjöl hans. ---- Kh. 27. nóv. Dr. Cook er orðinn mjög tauga- veiklaður vegna svefnleysis og strit- vinnu að þvi að undirbúa sendingu á skýrslu sinni til háskólans í Khöfn. Það mun og eiga. drjúgan þátt í las- leika hans, hversu illgirnislega er á hann ráðist bæði á fundum og í blöð- um. Hann er orðinn grindhoraður og sýnist 10 árum -eldri en þegar hann kom frá Grænlandi. Skrifari hans, Lonsdale, lagði af stað frá New- York nýlega og var sagt að hann hefði plöggin meðferðis, en nú skýra blöð frá því, að þau hafi verið send áður með gufuskipi og komið til Khafnar löngu á undan Lonsdale. Málflutn- ingsmaður Cooks hefir lýst yfir því, að skjölin liggi vel geymd í peninga- skáp skipr þessa, en að Lonsdale Jiafi verið látinn taka með sér óhemjufar- angur til þess að villa um fyrir mót- stöðumönnunum. Áhangendur Cooks eru sem sé í engum vafa um, að vin- ir Pearys muni reyna að sjá sér færi til þess, að komast yfir skýrslurnar og tortima þeim. Hamborgarferðir Thorefélags eru áætlaðar sern hér segir: Frá Hamborg 1. apríl, 4. maí, 19. sept. og 12. nóv. En frá Reykjavík aftur 20. maí, 19. júní, 23. sept. og 21. oktbr. Ferðirnar frá Hamborg fer allar Kong Helge; en til Hamborgar frá Reykjavík ýmist hann, Sterling (2) eða Ingólfur. Alt af komið við í Leith báðar leiðir. Olíufelagið Standard Oil Company dauðadæmt. MikiUvarðandi dómur. Klekt á verzl unarhringunuin. Sambandsdómurinn í St. Paul í Minnesota í Bandaríkjunum hefir ný- lega kveðið upp merkilegan og athuga- verðan dóm yfir olíufélaginu mikla, Standard Oil Company, sem nú hefir læst klónum svo að segja um allan heim. Sambaudsdómurinn hefir úrskurð- að. að jélagið sé ólöglegt, og að pað skuli leggjast niður. Koosevelt fyrv. Bandaríkjaforseti lét höfða má gegn félaginu fyrir ári síð- an fyrir brot gegn »Tiust«-lögunum. Það hefir sannast, að félagið hefir bæði girt íyrir alla samkepni milli fé'.aga þeirra, er það átti að hafa umsjón með, og það, seni verra er, drepið samkepni milli ríkja og alþjóðafélaga, en slíkt er með öllu óleyfilegt. Þessi dómsúrskurður er talinn ein- hver hinu mesti og mikilsverðasti dóm- ur, sem kveðinn hefir verið upp í nokkru máli, og þess skal getið, að allir dómendur voru þar á einu máli. Dómurinn vakti svo mikla athygli á Kaupmannasamkundunni í New York, að hlutir olíufélagsins lækkuðu sam- stundis í verði um 12 >/20/(l og alt komst þar á ringulreið. Ekki ætlar þó félagið að sætta sig við dóm þenna að óreyndu. Það ætlar að áfrýja honum til hæstaréttar Banda- rikjanna. Margir eru smeikir um, að félagið vinni málið þar, því að svo hefir jafnan farið áður, að stórfélög þessi hafa orðið ofan á að lokum, og kenna menn því um, að þau ráði mestu um skipun dómendanna og rnúti þeim siðan til þess að dæma sér i vil. En staðfesti hæstiréttur dóminn, þá mega auðmennirnir fara að vara sig, og detti Standard Oil úr sögunrii, þá fer að koma velta á fleiri. — Takist að ryðja trustunum um koll, mun þungu fargi létt af mann- kyninu. Félög þessi eru að verða meiru ráðandi en nokkrir einvaldar hafa nokkru sinni verið. Þau eru að ná svo að segja öllum heiminum á vald sitt. Heimsmarkaðinum ráða þau, samkepnina riða þau niður vægðarlaust, (líkt og Lárus ætlaði að gera við frum- varpsandstæðinga), fleiri og fleiri at- vinnugreinar sölsa þau undir sig og altaf versnar eftir því sem lengra liður. Þeim eru að kenna peninga- vandræði þau, sem alt ætla að drepa í heiminum nú á síðustu árum, þó að þar komi raunar ýmislegt fleira til greina, eins og t. d. herbúnaður og ófriðarkostnaður þjóðanna, sem látnir að sitja fyrir öllu nú, og alt verður eru lúta, það er miðar til þjóðþrifa. Trustarnir eru þó geigvænlegastir ajls. Það er því vonandi, að úr þessu verði annað og meira en traustabrestir. Hæstiréttur Bandarikjanna á mikið og þakklátt verk fyrir höndum, og það er óskandi, að dómendur reki nú af sér slyðruorðið. Þó finst sumum það ekki góðs viti, að hæstiréttur hefir nýlega ónýtt dóm, sem dómstóllinn í Utah dæmdi nýlega. Voru þar tveir aðrir trustar, Union-Pacific — kolafé- lagið og Union Pacific — járnbrautar- félagið, dæmdir sekir í brotum gegn trustalögunum. Þenna dóm hefir hæstiréttur ógilt og mælist það ekki \el fyrir. Hitt þykir þó bót í máli, að ný rannsókn er fyrirskipuð gegn auðfélögum. Thorefélagsferðirnar næsta ár verða 36 milli landa, auk Hamborgarferðanna 4. Og margt af þessum ferðum, tólf eða fleiri, eru jafnframt strandferðir. Hún kom um daginn með Sterling, hin nýja áætlun um árið 1910. Skipin eru öll hin sömu sem ver- ið hafa i förum hér við land frá Thorefélagi, auk Austra og Vestra. Ekki er hægt að sjá að svo stöddu, hversu Thoreferðirnar eiga inn í ferð- ir Sam.félags, með því að þ e s s ferða- áætlun mun vera enn ókomin út. Mannslát. Dáinn er í nótt hér í bænum, Pétur Pétursson, áður lögregluþjónn og bæjargjaldkeri, — 67 ára að aldri.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.