Ísafold - 23.02.1910, Side 4
48
ISAFOLD
Hjúkrunarfélag Rvíkur.
Það hélt ársfund sinn í Iðnaðar-
mannahúsinu þ. 7. þ. m.
Formaður félagsins gjörði grein fyir
hag þess og starfsemi á liðna árinu.
Tekjur félagsins höfðu samtals ver-
ið kr. 2272,73 (af því voru tillög fé-
lagsmanna 610 kr., greiðsla fyrir veitta
hjúkrun rúmar 600 kr., styrkur úr
bæjarsjóði 400 kr. og gjafiir einstakra
manna 90 kr. [frá h/f P. J. Thor-
steinsson & Co. 50 kr., Lund lyfsala
25 kr.]). Útgjöldin höfðu orðið sam-
tals kr. 1925,01, svo að félagið átti í
sjóði við áramótin kr. 347,72.
Starfskraftar félagsins höfðu verið
hinir sömu og að undanförnu: 3 fast-
ar hjúkrunarkonur (með 500 kr. laun-
um hver) og 1 vökukona (með 360
kr. launum). Heilsufar í bænum hefði
verið með bezta móti þetta ár, sér-
staklega að haustinu, og hjúkrunar-
dagar því nokkru færri þetta ár en
undanfarið. Þó þyrði félagið ekki að
takmarka starfskrafta sína. Aftur á
móti hvað form. alla nauðsyn bera
til þess að bæta hag hjúkrunarkvenna
félagsins. Laun þeirra væru of lítil,
41,67 kr. á mánuði, sérstaklega þegar
haft væri tillit til þess, hve viða heim-
ilisástæður væru svo, að hjúkrunar-
konan yrði að kaupa sér kost, meðan
hún væri í hjúkrun. Var rætt um
það, hver vegur væri hentugastur til
þess að bæta fjárhag félagsins svo að
það gæti bætt úr þessu og að síðustu
samþykt heimild handa stjórn félags-
ins til þess að hækka laun hjúkrunar-
kvenna upp í 50 kr. á mánuði, hve-
nær sem stjórnin sæi sér það fært.
Tala félagsmanna hafði minkað
nokkuð á liðna árinu og beindi form.
þeirri áskorun til félagsmanna að vinna
að því hver í sínum hóp, að félags-
menn mættu fjölga sem mest.
Af stjórninni voru þeir endurkosnir
Jón lektor Helgason og Sighvatur banka-
stjóri Bjarnason, en cand. jur. H. Thor-
steinsson, sem verið hefir gjaldkeri
félagsins frá byrjun, beiddist nú und-
an endurkosningu og var i hans stað
kosinn M. L. Lund lyfsali.
í fundarlok flutti spitalalæknir Sa-
mundur Bjarnkéðinsson einkarfróðlegt
erindi, þar sem hann rakti ítarlega
sögu holdsveikinnar á landi hér. —
— Félag þetta verðskuldar stuðn-
ing allra góðra manna hér i bæ, jafnt
karla og kvenna. En greiðasti veg-
urinn til að styðja það er sá, að ger-
ast meðlimur félagsins og þarf í því
Ur sveitinni.
Suðurhluta Gullbringusýslu 26. jan 1910
Héðan er fátt að frétta; heilbrigði yfir-
leitt góð. Árið sem leið var hér að mörgu
leyti heldur erfitt. Afli af sjó i flestum
veiðistöðum hér með minna móti og verð
á fiski talsvert lægra en undanfarin ár;
útlend vara í dýrara lagi. Allflestir sem
fóru burt yfir sumarið, að leita sér atvinnu
i aðra landsfjórðunga eða á þilskip, komu
með mikið minna kaup en venja hefir ver-
ið undanfarin ár, og sumir þvínær slyppir,
eða með tvær hendur tómar. Af öllu þessu
stafar mjög tilfinnanlegt peningaleysi. Gras-
vöxtur var sæmilega góður, en garðrækt
hepnaðist með bezta móti. Afli hefir ver-
ið mjög rýr það sem af er vetri, fyrir inn-
an Garðskaga, en i Höfnum og á Miðnesi
ágætis afli alt til þessa dags frá þvi menn
muna i haust, svo að 20 árin síðustu hefir
naumast verið sliknr haustafli. í Grinda-
vik hefir verið nokkur afli, en gæftir slæm-
ar. Sildarhlaup litið kom í haust i Kefla-
vik, en ís var enginn i húsinn, svo að not-
in urðu fyrir það minni, en verða hefði
mátt.
Áfengisnautn er altaf að hverfa úr sög-
unni. flér sést varla orðið drukkinn mað-
ur. Það ber við helzt, þegar Ingólfur kem-
ur frá Reykjavík. f>að er óhætt að full-
yrða, að ekki er áfengisnautn tuttugasti
hluti á við það, sem var fyrir nokkrum
árum.
Kjörfundur.
Kosning prests í annað prestsembættið við dómkirkjuna
í Reykjavík ter fram laugardaginn 26. þ. m. i Barna-
skólabyggingu Reykjavikurbæjar og byrjar kl. 11 f. h.
Prófasturinn i Kjalarnesprófastsdæmi,
Görðum [9. febrúar 1910
Jens Pálsson.
UTSALAN
á allri vefnaðarvöru með
Ingólfur, Lögrétta og Reykjavikin ganga
hér öll nndir einn nafni, sem óþverrablöð,
eg held það megi fullyrða, að þessir fáu,
sem halda þan, gjöri það eingöngu til að
sjá hvað langt þau geta gengið i mann-
orðsráni, ósannindum, rangfærslum og öðr-
um óþverraskap. ísafold hefir bér á kjálk-
anum flesta kaupendnr, líklega ekki ofsagt,
eins marga og hin öll til saman, enda talin
lang nýtasta hlaðið. Þjóðólfur þótti und-
ir ritstjórn Hannesar gætið og hógværlega
skrifað blað, og að mörgu leyti allnýtt og
þjóðlegt blað og sakna menn Hannesar frá
ritstjórn blaðsíns, því svo lítnr út sem
Þjóðólfur ætli nú freklega að sverja sig i
Heimastjórnarættina, að verða ekki um of
vandur að sannleiksþrá eða mönnum til að
skrifa í blaðið.
Ekki hef eg heyrt þess getið, að nein
smölun bafi farið hér fram til að fá menn
til að undirskrifa vantraustsyfirlýsingu til
ráðherra eða biðja nm aukaþing. Enga
hef eg heyrt hér geta þess til, að ráðherra
hafi ekki haft nógar sakið til að vikja
stjórninni frá bankanum, en flesta lýsa á-
nægju yfir framkomn hans í þvi að láta
lögin uá jafnt til þeirra, sem hátt eru sett-
ir í mannfélaginu eins og smælingjanna.
Það þykir hér henda i áttina, að ráðherra
ætli að hafa strangara eftirlit með starfs-
mönnum þess opinbera, að nú hefir á skömm-
um tima verið vikið frá fyrir vanrækslu á
starfi sinu 1 fiskimatsmanni, 2 póstmönnum
1 símamanni, 1 umboðsmanni, 'á bankastjór-
nm og höfðað sakamál móti fyrv. sýslu-
manni. Þetta þykir okkur hér henda til
þess, að ekki hafi alt verið i lagi undir
Hannesarstjórninni og gott væri það, ef
fleiri hafa ekki óhreint i pokahorninu. Þess
væri ekki vanþörf, að eytt yrði því áliti,
að ekki væri vert að ómaka sig til að kæra
embættismann, þvi ekkert væri upp úr þvi
að hafa, nema máske ofsóknir eða sektir,
fyrir að segja sannleikann um þá herra
með ekki nógu hógværum eða velvöldum
orðurn.
Eg held óhætt sé að segja, að fjöldinn
af okkur hér, svokölluðum suðurnesjabúum,
sé ráðberranum þakklátir fyrir framkomu
hans yfir höfnð og einkanl. i sambandsmál-
inu, aðflutningsbannsmálinu, samgöngumál-
inu, bankamálinu og fyrir strangara eftir-
lit með starfsmönnum þess opinbera. Yfir-
leitt virðist okkur framkoma hans vera
þjóðlegri en við höfum áður átt að venjast.
10-30° o afslætti
heldur áfram til 28. þ. m.
Notið tækifærið meðanlþað gefst.
Verzlunin Björn Kristjánsson.
Pcniilífa-umslög afarsterk fást í bókverzlun Isafoldar.
Ledig Plads.
En flink yngre, ugift Mand med en god Haandskrift og som regner
godt, kan faa Plads hos mig i Köbenhavn til Efteraaret. Den Vedkommende
maa have nöje Kendskab til alle Slags Manufakturvarer, hvormed der handles
i en Forretning paa Island — ogsaa Stoffer til Herregarderobe — og være
saavel det danske som det islandske Sprog mægtig, saaledes at han om Sotn-
meren kan deltage i Ekspetitionen paa Island og være her om Efteraaret og
Vinteren. Begyndelseslön 1500 Kr. Udförlig og snarlig Henvendelse paa
Dansk og helst med Referencer til
Cai l Höepfner, Kvæsthusgade 5, Köbenhavn.
Sjómenn!
Nlunið eftir sjófötunum í ,Liverpoor.
Þau hafa hlotið alment lof fyrir verð og gæði.
Liverpool selur ykkur bezt nesti á sjóinn t. d.:
tilliti ekki annað en snúa sér til ein-
hvers í stjórninni. Árstillagi sínu
ræður hver sjálfur. (Þó er minsta til-
lag 2 kr. á ári).
Mannalat.
Hinn 7. nóv. síðastliðinn lézt að heimili
sinu, F088Í á Síðu, hreppstjóri Magnús Þor-
láksson, Bergssonar prests á Prestabakka á
Siðu, og Kolfinnu Magnúsdóttnr frá Skaft-
árdal, 72 ára gamall. Magnús sál. var vin-
seell maður og vel látinn, enda var hann
friðsemdarmaður og óáleitinn við aðra.
Hann var hreinskilinn og einlægur vinur
vina sinna. Gestrisinn og skemtilegur heim
að sækja, spangsamnr, án þess að meiða,
og orðheppinn. Hann var hreppstjóri i 38
ár og um tima var hann sáttasemjari og i
hreppsnefnd, og gegndi hann þeim störfum
með lipurð og ósérplægni. Magnús sál.
kvæntist aldrei, en með ráðskonu sinni,
Ingigerði Jónsdóttnr, eignaðist hann ð börn,
sem öll lifa.
M. B.
Hinn 28. sept. siðastliðinn andaðist að
heimili sinu, Knararhöfn i Hvammssveit i
Dalasýslu, húsfreyja Halldóra Sigmunds-
dóttir, eftir langvarandi heiisulasleika. Hún
var fædd á Kvennahóli i Dalasýslu 30. apr.
1867. Ólst hún npp hjá foreldrnm sinnm,
Sigmundi Grimssyni og Steinunni Jónsdótt-
nr, lengst af á Skarfsstöðum i Dalasýsln,
þar til hún árið 1891 giftist barnakennara
Þorgils Priðrikssyni, og reistn þau þegar
bú í Knararhöfn með litlum efnum og hafa
húið þar siðan. Þau eignuðnst 14 börn
og lifa 12 þeirra. Halldóra sál. var mesta
valkvendi; hennar mesta yndi var að likna
bágstöddum eftir nuetti. Gestrisin var hún
og glaðlynd og viðmótsþýð við hvern sem
var, þrátt fyrir fáfækt og ýmsa erfiðleika.
Manni sinum var hún ástrík eiginkona og
blið og umhyggjusöm móðir barna sinna.
Hennar er þvi sárt saknað af öllum, sem
bana þektu, en þó einkum af börnum henn-
ar 0g manni, sem nú á fallanda fæti lam-
aður að heilsu og kröftum á sál og likama
stendur einn uppi í lifsstriðinu með 9 börn
i ómegð.
Keflavík 14. febrúar.
Yetur var hér góður til jóla, að visu
voru nokkur frost en snjólitið og heldur
stilt veður, en síðan óslitin harðindi. Snjór
er kominn svo mikill, að ekki hefir komið
jafnmikill síðustu 20 ár.
Síðast þegar róið var i Höfnum og á
Miðnesi var afla lítið, en þar eru komnir
ágætis hausthlutir. Reitingur af smáfiski
nú í Garðsjó.
Sjóstfgvél og
landstigvél
vönduð og ódýr, hefir undirritaður til
sölu. Allar skóviðgerðir fljótt afgreidd-
ar. Vönduð vinna. Lágt verð.
Björn Jónsson,
Hverfisgötu 26.
Sjömenn!
Úrval af kojuteppum;
þar á meðal vatteppi.
Mest úrval og ódýrast í
Th. Thorsteinsson
vefnaöarvöruverzlun
að Ingólfshvoli.
Viö undirrituð þökkum hér með
öllum þeim góðu mönnum, sem hafa
veitt oss hjálp á bágindatíma okkar
með því að leggja fram peninga, sem
urðu samlagt kr. 135.75, og sömu-
leiðis þökkum við hr. Ingvari Sigurðs-
syni, sem gekk með listann og sýndi
mikla alúð í þvi. Öllum þessum
hjálparmönnum biðjum við guð að
launa og hjálpa þeim, þegar neyð ber
að höndum.
Laugaveg 115.
Guðmundur Guðmundsson.
Ragnhildur Grímsdóttir.
Hörð þorskhöfuð fást keypt
hjá Þórði Guðmundssyni Klapparstíg
22 Rvík.
Osta, Pylsur, Kakao, M,íólk í dósum m. m.
Alls konar tóbak, Tóbakspípur.
Fyrirlestur í Iðnó.
Næstu 2 sunnudaga segir dr. Helgi
Péturss ferðasögu frá París og Lundún-
um. Aðgöngumiðar laugardag i bók-
verzlun ísafoldar. Nánar auglýst síðar.
Hlý íslenzk
ullarnærföt
sjósokkar, sjóvetlingar og allskonar
tóvinna úr íslenzkri ull fæst á
Baw Thorvaldsensfélagsins.
Sjómenn!
Gangið f klæðskeraverzlun
Th. Thorsteinss. & o
Þar er bezt úrval af:
Nærfatnaði Peysum
Erfiðisfatnaði Skinnhúfum
Alt mjög ódýrt.
Formannsstaðan og mótor-
istastaðan á mótorbátnum Hvítá í
Borgarfirði er laus til umsóknar. Lyst-
hafendur snúi sér til Jóns Björnsson-
ar, Borgarnesi, fyrir 20, marz þ. á.
Til leigu 14. maí 2 herbergi,
eldhús og geymslupláss í góðu húsi
við Bræðraborgarstíg. Þórarinn hjá
Zimsen gefur upplýsingar.
Innilegt hjartans þakklæti votta eg hérmeð öllum þeim mörgu, skyldum og vandalausum, sem heiðruðu jarðarför mannsins míns sálaða, Runólfs Guð- mundssonar, með nærveru sinni, og sem á margan hátt tóku þátt i sorg minni bæði með gjöfum og annari góðfúslegri hjálpsemi; þessara velgjörðasemi við mig, í minum erfiðu kringumstæðum, bið eg algóðan guð á himnum að launa fyrir mig, þegar þeim mest á liggur. Reykjavik 22. febr. 1910. Guðlaug N|. Guðmundsdóttir.
Öllum þeim hinum mörgu, sem á ýmsan hátt hafa sýnt hluttekningu við fráfall mannsins mins sáluga, sögukenn- ara Páls Melsted, votta eg hér með innilegt þakklæti mitt og stjúpdætra minna. Thora Melsted.
GÖngustafur úr hvalbeini fund-
inn. Réttur eigandi gefi sig fram
við Jónas Jónasson lögregluþjón.
Stofa mót suðri fæst til leigu nú
1. marz, eða nær sem vill þar eftir.
Forstofuinngangur frá aðalgötunni.
Húsbúnaður fæst með ef óskað er.
Á sama stað fæst loftherbergi Uka til
leigu. Upplýsingar á Vesturgötu 48.
3—4 herbergja íbúð ásamt
eldhúsi geymslu og vaskhúsi, fæst til
leigu frá 14. maí á góðuni stað í bæn-
um. Ritstj. vísar á. ____________
5—6 herbergja íbúð til leigu
frá 14. maí á ágætum stað. Upplýs-
ingar hjá Halldóri Gunnlaugssyni i
Edinborg. _______________________
Vinnukona óskast nú strax til
loka. Upplýsingar Vesturg. 22. (niðri
i norðurendanum).________________
Neðri íbúðin í húsinu nr. 7
við Grjótagötu er laus til íbúðar 14.
maí. Semjið við Magnús Ólafsson
snikkara, Grjótagötu 9.
Leikfélag Reykjavikur
Föstudag 25. febrúar, kl. 8 síðd.
Sinaaskifti.
Iðnaðarmannahúsið opnað kl. 7^/2
Ekki leikið laugardag 26. þ. m.
í j5> A B O Lf D er blaða bezt
íjE>ABOLiD er fréttaflest
ÍJsABOLD er lesin mest.
Nýir kaupendur fá í kaupbæti:
Fórn Abrahams (700 bls.),
Davíð skygna, hina ágætu
sögu Jónasar Lie og þar
að auki söguna
Elsu, sem nú er að koma
í bl., sérprentrða, þegar
hún er komin öll.
ísafold mun framvegis
jafnaðarlega fiytja myndir af
merkum mönnum og við-
burðum.
Umboðsmenn
óskast til þess að selja hvarvetna , út-
gengilega muni. Ágóðinn ætti að
geta numið alt að 300 kr. á mánuði.
Sendið tilboð til Daube & Co. Ham-
borg.
í hegningarhúsinu
fást kommóður, koffort o. fl.
n
BREIÐABLIK
TIMARIT
1 hefti 16 bls. á mán. I skraut-
kápu, gefið út í Winnipeg.
Ritstj. síra Fr. J. Bergmann.
$ Ritið er fyrirtaksvel vandað,
\ bæði að efni og frágangi; málið
/ óvenju gott. Árg. kostar hér
| 4 kr.; borgist fyrirfram.
ij Fæst hjá
IÁrna Jóhannssyni,
biskupsskrifara.
Agrisild
S/s »Uller« ankommer til Vestmanö-
erne med restladning af prima frossen,
færsk vaarsild for agn. Salget fore-
gaar fra skibsiden efter ankomst, an-
tagelig i midten af mars.
Umboðsmann
á Islandi
óskar hlutafélagið þakpappaverksmiðja
Málmeyjar að íá til að selja viður-
kendar vörur sínar: þakpappa o.fi.' —
Tilboð verða aðeins tekin til greina
frá álitlegum og áreiðanlegum firmum.
Skrifið til
Aktiebolaget
Malmö’s Takpappsfabrik
Malmö, Sverige.
10 a. bréfsefni
fást æfinlega
í bókverzlun Isafoldar.
Skrifstofa
Samábyrgðar Islands
á fiskiskipum
er í Landsbankanum, uppi á loftinu,
og verður fyrst um sinn opin hvern
virkan.dag eftir 15. þ. m. frá kl. 10
f. m. til kl. 12 á hádegi, og frá kl. 4
til 6 e. m.
Símnefni: Samábyrgðin.
Talsími nr. 198.
Reykjavík, 10. febrúar igro.
Jón Gunnarsson.
í\IT£TJÓ£\I: ÓLAEUÍ\ BJÖÍ\NS^ON