Ísafold - 05.03.1910, Page 2

Ísafold - 05.03.1910, Page 2
54 ISAFOLD Suðurpólsleitir. J'rakkinn <lr. Charcot kominn aftur. — Nýtt land fundið. að hún var gerð að próíessor við há- skólann í Paris núna í vetur. Nýlega hefir hún gert stórmerki- lega uppgötvun á frumefninu polonium, sem fundið er fyrir nokkrum árum. Hún hefir sannað, að efni þetta breyt- ist i tvö önnur frumefni, helium og blý. Með þessu hefir hún sýnt, að frumefni eru ekki óbreytileg, heldur geta orðið að öðrum efnum. Polonium hefir mikið geislamagn (radiaktivitet) og getur leyst sundur lifræn efni. Frú Curie náði í Vio milligrams af efni þessu úr mörgum smálestum af blýi. Polonium er 5000 sinnum fágætara en radíum. Hinn alkunni suðurfari dr. Jean Charcot frá Frakklandi er nýlega kom- inn á bygt ból, Punkta Arenas í Magallansundinu við Suður-Ameríku, úr för sinni í suðurhöfunum, þeirri, er hann hóf 15. ágúst 1908 frá Hávre á skipi sínu nPourquoi pasl« (Hví ekkif). Gharcot hefir áður farið könn- unarferð suður á bóginn, sem sé frá 1903 —1905, í höfin fyrir sunnan Eldland við Suður-Ameríku og þar vestur af. Vísindaárangur var mikill Kh. 21.-2.-’10 en sjálfur vill hann ekki takast þetta á hendur. Segir hann, að fyrir för- inni eigi að vera ungur og óþreyttur maður. Ferðalaginu verður hagað likt og norðurför Pearys og hundar hafð- ir með til sleðadráttar. Hyggur Peary, að það verði happasælast, — en Scott ætlar að hafa með sér litla hesta austan úr Asíu til þess að draga sleð- ana. Þessir hestar eru óvenju-liðlegir og þrautseigir. Nú verður gaman að sjá hvorir Prestskosningin hér i Reykjavík fór fram siðastliðinn laugardag. — Hluttakan í kosningunni rýr, enda þótt mikill undirróður væri siðustu dagana á undan kosningunni. Á kjörskrá voru 3241, en ekki kusu nema tæp 1250 og þar af voru rúm 30 ógild. Hlutskarpastur varð Bjarni Jónsson (frá Mýrarholti). Hann hlaut 489 atkvæði. Næstur honum varð síra Þorsteinn Briem, er fekk 404 atkv., þá sira Bjarni Hjaltested 169 atkv., síra Bjarni Þorsteinsson 124 atkv., sira Kristinn Daníelsson 17, síra Böðvar Bjarnason 10. Enginn umsækjenda hefir hlotið lögmælta atkvæðatölu, en þá mæla lögin svo fyrir, að stjórnin skuli leggja úrskurð á, hver hnossið eigi að hljóta. — Sá úrskurður er ókveð- inn upp enn. Nýr dýralæknir. Hingað til hefir dýralæknirinn hér í Reykjavík verið einasti dýralæknir landsins. Enginn annar til. Nú er bót ráðin 4 því. Ungur íslendingur einn, Sigurður Einarsson, hefir nýlega tekið dýralæknispróf i Khöfn og er hann nú af ráðherra skipaður dýra- læknir á svæði því, er Norður- og Austuramtið náði áður yfir, frá 1. apr. að telja. Hann á að hafa bústað á Akureyri. Styrktarsjóður barnakenn- ara. Sig. Jónsson barnakennari hér í Rvik var 28. f. mán. af ráð- herra skipaður i stjórnarnefnd styrkt- arsjóðs handa barnakennurum. af þeirri för, því aðjmaðurinn er hinn ótrauðasti. | fCharcot ferðast um höfin fyrir vis- indin eingöngu. Hann kærði sig ekki mjög um að komast að suðurpólnum og reyndi heldur ekki til þess. Á leiðinni þangað er enn svo margt ókannað og óþekt. Dr. Charcot hef- ir kánnað höfin og löndin af mikilli vísindanákvæmni — og fundið nýtt hafa betur. Pearysflokkurinn fer ári síðar af stað, en ætlar sér þó að verða á undan að heimsskautinu. Hvor- ir fyrir sig hafa tiltekið daginn, sem þeir ætla að standa á pólnum. Yfirráðgjafi Egiptalands myrtur. ---- Kh. 21/2 1910. Yfirráðgjafinn á Egiptalandi, Butros pasja var myrtur í gær i Kairo af Brezk stjórnmál. Baráttan gegn lávörðunum. ----- Kh. 21/s 10. Nú eru öll kurl komin til grafar í brezku kosningunum. Verður hið nýja þing þannig skipað: 274 framsóknarmenn (liberals), 273 íhaldsmenn eða sambandsmenn (Konservativs, Unionists), 82 írskir jþjóðflokksm. (Nationalists). 41 verkflokksmenn. Eftir kosningar hafa orðið smá- breytingar og sætaskifti í ráðuneytinu. Innanríkisráðgjafinn Herbert Gladstone, sonur gamla Gladstones, hefir verið gerður að landstjóra í Bandaríkjunum í Suður-Afríku. Winston Churchill verzl- unarráðgjafi hefir tekið við innanríkis- ráðuneytinu, en Buxton póstráðgjafi við verzlunarráðuneytinu. Póstráðgjafi er aftur orðinn Herbert Samuel, kansl- ari í hertogadæminu Lancaster. Redmond, foringi íra. Hinn 15. þ. m. kom nýja þingið saman. Eins og sjá má af þingmanna- tölunni, verður stjórnin að treysta á fylgi verkflokksmanna og íra, en það er örðugt að tjónka við þá, eins og getið hefir verið. Stjórnin hefir átt í miklu stappi við flokka þessa um það, hvernig haga skuli dagskránni í þinginu. Stjórnin vill koma fram fjárlögunum fyrst, til þess að ná inn þegar öllum ógreidd- um sköttum og síðan lagafrumvarpinu um frestunarrétt efri málstofunnar. En írar hafa risið upp og heimtað lávarða- lögin fyrst. Foringi þeirra, Redmond, flutti nýlega ræðu i Dublin og heimt- aði þar, að takmörkun efri málsstof- unnar yrði látin sitja fyrir öllu öðru. Því næst hefir hann krafist fyrir hönd íra tryggingar fyrir því, að frumvarp Slys á höfninni. í fyrradag hvolfdi bát hér á höfn- inni, frá skipinu Sigríður; varð á milli bifbáts og annars báts, er hann hafði í eftirdragi. Festin milli bátanna komst undir kjölinn og hvolfdi bátn- um. Sjö menn voru á bátnum, 6 komust af, einn þó mjög aðfram kom- inn, en einn druknaði eða dó áður en komist varð með hann i land. Hann hét Jón Guðmundsson, kvæntur fjölskyldumaður í Grettisgötu. Fullyrt, að þessi maður hefði bjarg- ast, ef hann hefði kunnað eitthvað til sunds. — Allir eiga að lœra að syndal Pétur J. Tborsteinsson stórkaupm, og kona hans, frú Ást- hildur, komu með Ceres um daginn, alkomin hingað til Reykjavíkur. Einar Hjörleifsson skáld var einn farþega á Ceres. Hann hefir vérið á ferðalagi um Bret- land, Frakkland, Þýzkaland og Dan- mörku. Gufuskipið Ceres kom hingað á þriðjudagsmorguninn. Var skamt fyrir sunnan land, er ó- veðrið skall á. Fram hjá Vestmann- eyjum varð hún að fara. — Meðal farþega voru Björn Guðmundsson kaupm., Jón síldarmatsmaður Berg- sveinsson, Helgi Eggerz frá Vestur- heimi, nokkrar nunnur o. s. frv. Ceres fer vestur á ísafjörð í dag og hittir Ingolf, Thorefélagsskipið, þar. Hann tekur póst og flutning úr Ceres og heldur svo norður fyrir land og austur. — » TerrafNova■ land fyrir vestan/og"sunnan jAlexand- ers I. land, svo að nú hefir hann fylt upp í eyðu þá, sem er á landabréfinu milli þess lands og Ját- varðs VII. lands. Hann hefir siglt um stórt svæði í Suðuríshafinu þar sem ekkert skip hefir komið nokkru sinni fyr. Annars hefir ekki frézt um ferðir hans nákvæmlega enn þá, annað en það, að hann hefir ratað i miklar mannraunir, skipið strandað hvað eftir annað og orðið fast i is. Landfræð- ingar biða komu hans með óþieyju og vænta mikils árangurs. Það er í ráði, að Frakkar fagni honum með mikilli viðhöfn þegar hann kemur heim. Englendingar og Ameríkumenn keppa um að ná Snðurpólnum. Scott höfuðsmaður og menn Pearys. Eins og getið hefir verið um áður, ætlar Scott höfuðsmaður að leggja af stað í suðurpólsleit á sumri komanda. Scott er Englendingur og alkunnur suðurfari. Hann komst á 82 stig og 17 minútur suðurbreiddar fyrir nokkr- um árum og hafði þá enginn jafnlangt komist áður og enginn síðan annar en Shackleton einn (88. stig og 23 mín). Hann lagði þá upp frá New Zeeland og sama ætlar hann að gera nú. Hann siglir á skipi sinu, Terra Nova, sem smiðað hefir verið til þeirrar farar eingöngu. En Scott fær hættulegan keppinaut. Pearyfélagið í Ameriku (Peary Arctic Club) hefir ákveðið að gera út menn til suðurfarar, sem leggja upp frá Suður-Ameríku ogsigla á »Roosevelt«, skipi Pearys. Peary hefir lagt á ráð- in og fðrunautar hans verða í förinn, ,~skip Scotts. ungum innlendum lyfsalaúrþjóðflokkn- um á Egipta’andi. Morðinginn skaut á ráðgjafann 3 skotum, og dó hann nokkru síðar. Morð þetta vekur al- heimsathygli og þykir líkjast mjög indversku morðunum. Morðinginn var þegar handsamaðnr. Skiptapar. Fjöldi manns druknar. ---- Khöfn. 21/2 ’IO Skömmu fyrir miðjan þennan mán- uð fórst gufuskipið »General Chanzy« í ofviðri i Miðjarðarhafinu. Skip þetta var franskt og sigldi milli Marseille og Algier. Einn maður komst af, en hinir druknuðu allir, 133 að tölu. Gufuskipið »Cambodia« frá Austur- Asiufélaginu danska fórst 15. þ. m. við Heinæs í Noregi á leið frá Frede- rikstad til Suður-Afríku. 16 menn druknuðu, en 13 komust lífs af. Úr loftinu.. Curtiss vinnur hraðflugið. ----- Kh. 21/j 1910. í flugstefnunni miklu á Los Angelos í Kalíforníu hefir Glenn Curtiss, amer- íski fluggarpurinn, nýlega flogið hrað- ast allra manna í flugvél, sem sé J/4 úr danskri mílu á 1 mínútu. Með þessum hraða flaug hann í fulla klukku- stund. Fyrir þetta hlaut hann 123 þús. franka að verðlaunum. --------------------- Balfour, foringi íhaldsmanna. til heimastjórnar fyrir írland verði borið fram i neðri málstofunni hið bráðasta. Stjórnin hefir reynt að leiða írum fyrir sjónir, að fjárlögin verði ekki rædd nema að nafninu á örstuttum tíma og samþykt með ályktunum, en írar hafa setið við sinn keip og verk- flokksmenn með Keir Hardie i broddi farar tekið í sama strenginn. Stjórnin vill vitanlega ekki láta gott mál stranda á þessu. Það komst þá í tal, að láta ræða bæði lögin, fjár- lögin og lávarðalögin, jöfnum hönd- um, á sínum fundinum hvort, en nú hefir það orðið að samkomulagi eftir því sem síðast fréttist, að deildin skeri úr þvi sjálf með atkvæðagreiðslu hvor lögin skuli afgreidd á undan. Vonandi verður því þetta smáræði ekki til fyrirstöðu. írar skiftast í tvo flokka i þinginu. Ræður Redmond fyrir öðrum, en (yBrien fyrir hinum. í Redmonds- flokki eru 69 menn, og eru þeir fúsir á að samþykkja fjárlögin til þess að klekkja á lávörðunum. O’Brien hefir undir sér 13 manns, og þeir greiða atkvæði gegn fjárlögunum, en með lávarða-drápinu. í dag flytur konungur hásætisræð- una og þá verður hægara að gera sér hugmynd um hvað stjórnin ætlar fyrir sér. Hásætisræðan vr lögð fyrir kon- ung í ríkisráði i fyrradag, og hann samþykti hana orðalaust. Annars vita menn ekki enn hvað í henni stendur. Það er sagt, að i dag eigi að fara fram atkvæðagreiðsla i neðri málstof- unni til þess að stjórnin geti kannað hug þingmanna og talið atkvæði sín í þingsalnum. Atkvæðagreiðslan kvað eiga að vera um þingsályktun þess efnis, að deildin geti greilt atkvæði um gömlu fjárlögin umræðulaust. Nýtt snjóflóð. Pjórir menn farast. (Simfregn fri Isafirði). Siðastliðið þriðjudagskvöld komsnjó- flóð í ytri Skálavík og féll á bæinn Breiðaból. í því fórust 4 manns. Fyrst hugðu menn 9 hafa farist, en 5 þeirra náðust lifandi eftir 40 tima. Þeir, sem fórust, voru: Sigurður bóndi Guðmundsson á Breiðabólj. og barn hans eitt, en kona hans og 4 börn náðust lifandi. Ennfremur fórst Ari Pétursson á Breiðabóli og kona hans Lovísa. Mannskaðaveður. Skiptjón og hrakningar. Hér gerði siðastliðið sunnudags- kvöld hvassveður á austan og er á leið nóttina varð úr afspyrnurok, svo að menn muna naumast annað eins. Á Reykjavikurhöfn sleit upp 7 skip; það voru : Egill, eign Stapafélagsins, er rak á land vestur á Seltjarnarnesi fram- undan Pálsbæ og braut mjög; Guðrúnu SoJJiu, eign Th. Thorsteinssons kon- súls rak upp undan Bollagörðum og skemdisl æði mikið. Talið tvísýnt mjög, að nokkuð verði gert úr þess- um tveim skipum. Fimm skip rak upp, án þess þau skemdust til muna. Það voru »Hafsteinn«, eignjóns Ólafs- sonar skipstjóra, »Skarphéðinn« (Mil- jónafél.), »Margrét« (Thorsteinsson konsúll), »Haraldur« (Kr. Magnússon) og »Keflavík« (Duusverzlun). Á Agli voru að eins 2 unglingar um borð. Þeir komust lifandi yfir í annað skip. Sama máli var að gegna um 7 manns, er voru um borð í Guð- rúnu Soffíu. Bifbátur, sem hlutafélagið Adda' átti, rak upp i Slippinn og brotnaði í spón. Annar bifbátur frá Viðey sökk einnig. Tjón það, sem þegar er kunnugt orðið, telja menn, að nema muni sjálf- sagt 50 þús. krónum. Það er dýr skattur og tilfinnanleg- ur, sem borga þarf fyrir hafnleysið hér í höfuðstaðnum I ----s+s---- Slíraslit. Simasamband við Seyðisfjörð hefir ekkert verið þessa viku. Símskeyti frá útlöndum engin komið. Siminn kvað vera slitinn nálægt Hofi, og skyldi þaðan senda mann til Seyðis- fjarðar í dag, bæði með skeytin héðan og til þess að sækja skeyti á Seyðis- firði. Á morgun má búast við þeim skeytum. Svar frá Guðm. Sigurjónasyni til Á. Jóhannsonar kemur í næsta blaði. Iæiðrétting. í greininni um slökkvi- liðið í Rvík í síðasta blaði hafa orðin: »sem minst er á í 3. gr.« komist aftan við 10. gr., en eiga þar alls ekki heima, heldur í byrjun næBtu greinar. Hún átti að byrja svo: Flokkstjórar, sem minst er á í 3. gr. o. s. frv.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.