Ísafold - 02.04.1910, Side 2
74
IS AFOLD
Fatnaður a*lur’ innri sem ytri? kvenna> karla og
; — mjög fjölbreyttar Vefnaðarvörur.
Sumarvörurnar koma i tæka tið
verða mjög smekklegar, vandaðar og ódýrar í verzl
jurtareitina, t. d. i Flóanum, þegar
áveitan þar er komin í lag —.
Algengast verður jafnan, að bænd-
ur hafi stórt land, heyskap dreifðan
og nokkra hesta.
Þetta getur ekki breyzt til muna
þó járnbr. kæmi. Hestarnir verða
altaf fleiri að tiltölu en i öðrum lönd-
um. Reiðhestar vegna strjálbýlis —
til mannfunda, kirkjuferða, fjallsafna
0. s. frv. — en ækishestar og áburð-
arhestar vegna heyflutninga, áburðar-
ins og jarðyrkjunnar. Menn þurfa
að hafa sem mest not af hestunum,
svo þeir verði ekki ómagar á búi.
Þeir yrðu því áreiðanlega látnir taka
fram hjá hraðlestinni. Líklega svo
stórkostlega að hún gæti ekkert gert
með köflum — fyrir afbrýði.
Upplendi Reykjavíkur.
Þ. Kr. segir, að það sé fyrst og
fremst sambandið milli Rvíkur og
upplendis hennar sem réttmætir braut-
inac. Hér er komið að fjöreggi járnbr.-
málsins. Það er Rvík, sem landið á
að lúta, »upplendi« hennar a. m. k.
Þó menn vilji sýna höfuðstað lands-
ins hæfilega virðing og tillátssemi,
vilja þó ekki allir lúta jafnlágt fyrir
vilja hans.
Hvað er svo þetta upplendi Rvíkur,
sem réttmætir járnbr. ? Þ. e. Mos-
fellssveitin og efri hluti Seltjarnarnes-
hrepps, alt til háfjalla, frá Esjunni
suður fyrir Vifilsfell. Ekkert meira.
Árnessýslu alla og meirihluta Rang-
árv.s., má kalla upplendi Eyrarb. og
Stokkse. Kauptúnin þau, eru arfbor-
in afkvæmi þess upplendis. Og ber
þeim — kaupstöðum og upplendi —
bæði réttindi og skyldur hvert við
annað.
í járnbrautargreininni i seinasta blaði
sjöttu málsgrein að neðan i öðrum dálki
hefir misprentast »járn og steinoliu<, á að
vera »járn og steiniíwii*.
Jarðræktarfélag Rvíkur.
Mikilsverð hugvekja.
Jarðræktarfélag Reykjavíkur hélt
ársfund sinn miðvikudagskvöldið var.
Þar voru rædd ýms félagsmál, lagð-
ir fram reikningar og tekin ákvörðun
um hver verðlaun skulu greidd fyrir
jarðabætur þetta ár o. s. frv.
Félagið á nú í sjóði kr. ijj8.oo.
Öll stjórnin var endurkosin i einu
hljóði ásamt endurskoðendum reikn-
inga.
Formaðurinn (Einar Helgason garð-
yrkjum.) skýrði frá því, að mönuum
hefði farið aftur í jarðræktinni síðustu
ár. Einkum hefði verið lítið unnið
að jarðabótum árið 1908. Því ekki
þaðl Þá höfðu menn annað að gjöra
heldur en hugsa um það að láta jörð-
ina fæða sig! Þá lifðu menn á þús-
undunum eða miljónunum, sem svifu
fyrir hugskotum manna, þegar var
verið að selja lóðarskikana (alt var
gert að byggingalóðum) og húskof-
ana mörgum sinnum, suma hverja fyrir
verð, sem aOs ekki gat náð nokkurri
áttl
Nú súpa menn seyðið af fjármála-
speki sinni og hyggindum I
Ekki var formaðurinn frá því, að
hnignun þessi í jarðræktinni væri
um að kenna því hversu bæjarstjórnin
hefði verið treg til þess, að láta menn
fá útmælda bletti til ræktunar. En
nú hefir hún gert iðrun og yfirbót
og það er vel farið.
Á fundinum flutti hr. binar Helga-
son garðyrkjumaður langt erindi og
mjög lærdómsríkt um kartöflurækt.
Erindi þetta verður birt í búnaðar-
blaðinu Freyr, og gefst þeim kostur
á, sem vilja kynnast þessu þarfa máli
að fá allar nauðsynlegar upplýsingar
þar. En drepið skal stuttlega á
erindið.
Ræðumaður gat þess, að nú væri lið-
in 1V2 öld síðan fyrst fluttust kartöfl-
ur til landsins og þó erum vér ekki
komnir lengra áleiðis en það, að 1906
fluttust inn 1943 tunnur af átkartöfl-
um til bæjarins. Árið 1907 var kart-
öfluuppskeran hér í bænum 608 tunn-
ur. Á þessu má sjá að kartöflurækt-
in má og ætti að fjórfaldast til þess
að Reykvíkingar gætu fætt sjálfa sig.
Hr. Einar sagði, að hér á suður-
landi þyrfti kartöflurækt aldrei að
bregðast ef rétt væri að farið. Hér
í sjálfum bænum væri jarðvegurinn ekki
sem heppilegastur til ræktunar,— þó hef-
ir reynslan raunar sýnt, að margir
blettir hér gefa góða uppskeru. En hægt
mundi að finnaágætastaði fyrir kartöflu-
akra á Seltjarnarnesi, uppi í Mosfells-
sveit og eins og flestum er kunnugt
uppi á Akranesi.
Að lokum eggjaði ræðumaður alla
viðstadda lögeggjan að gefa þessu
máli góðan gaum og reka af sér
ómenskuorðið því nú væri mál til
komið, að áhugasamir framfaramenn
legðust á eitt til þess að hrinda mál-
inu sem fyrst í framkvæmd. »Marg-
ar hendur vinna létt verk« og þeir
sem treysta hver öðrum ættu að
mynda félag með sér og reyna; það
veitti þó altaf atvinnu, en það væri
mikilsvert nú í atvinnuleysinu.
Vér kunnum hinum áhugasama
jarðræktarfrömuði miklar þakkir fyrir
upphvatningarorð hans; þau eru orð
í tíma töluð og vonandi geta þau
vakið einhverja af svefni framtaksleys-
isins. Oft er þörf, en nú er nauðsyn,
er alt ætlar að kafna i barlómssón
og örvinglan. Það sem oss vanhagar
allra mest um er áhugi og kjarkur.
b. b.
Prestastefna.
Hún verður háð þetta árið norður
á Hólum i Hjaltadal, 3 dagana næstu
á undan biskupsvigslunni. En hún fer
fram 10. júlí.
Biskupsvígslan syðra býst biskup
Þórhallur við, að fari fram i júnímánuði.
Skipaferðir.
Botnia fór héðan á páskadagskvöld.
Far tóku sór með henni: Einar Bone-
diktss'on, Pétur Á. Ólafsson konsúll, N.
Ottensson bóksali frá Winnipeg, skip-
verja flestir af Láru, franskir skipbrots-
menn af skipi, er strandaði á Stapavík
við Hóraðsflóa þ. 4. marz.
Prospero fór f gær vestur og norður
urn land til útlanda. Farþegar: Jón H.
ísleifsson stud. polyt., Hannes Hafstin
bankastjóri (til Akureyrar) o. fl.
Sterling kom til Khafnar í fyrradag
eftir óvenju-fljóta ferð, tæpa 6 sólar-
hringa.
Flateyrarlæknishérað hefir verið veitt
31. f. mán. settum héraðslækni í Höfða-
hverfishóraði Halldóri Stefáns-
syni. Auk hans sóttu settur héraðs-
læknir í Flateyrarhéraði Guðm. T. Hall-
grímsson og cand. x lækaisfræði Guð-
mundur Guðfinnsson.
Bókafregnír. Fyrsta hefti af Skírni
þetta ár er komið út. Nýr ritstjóri er
tekinn við: dr. phil. Björn Bjarna-
s o n frá Viðfirði. — Björn Ólsen pró-
fessor skrifar um »Silfurverð og vað-
málsverð«, sérstaklega á landnámstíð ís
lands; Ágúst Bjarnason um »Siðspeki
Epiktets«; Sæmundur Bjarnhóðinsson:
»Ágrip af sögu holdsveikinnar á ís-
landi«. Enn er þar nýsmíð eftir Jóh.
skáld Sigurjónsson, smásaga, er heitir:
»Góður fengur«. Og loks greinar eftir
Andrós Björnsson (Loftfarir), Stefán Stef-
ánsson (Gláma), Davíð Östlund (Hug-
sjónir Edisons) og Þorst. Gíslason (Frá
útlöndum).
D u 1 m á 1 beita 3 sögur eftir danska
skáldkonu, Ingeborg Marie Sick, sem hr.
Árni Jóhannsson bankaritari hefir þýtt
og von er á áður langt líður á bóka-
markaðinn.
Traustsyfirlýsing til ráðgjafa. Undir
transtsyfirlýsingnna úr Barðastrandarhreppi
vantar eitt nafnið. Það er: cand. Sig-
urður Pálsson, Anðshangi.
Innlimnn Finnlands fyrir dyrum.
Simfregn frá Khöfn.
Yfirráðgjafi Rússa, Stolypin, hefir ný-
lega lagt fyrir þingið, dúmuna, frum-
varp um réttarstöðu Finnlands. Þetta
frumvarp felur í sér algera innlimun
Finnlands i rússneska ríkið. Megn
asta gremja yfir þessu meðal frjáls-
huga manna um allan heim.
Menelik Abessynínkeisari dauður.
Simfregn frá Khöfn.
Menelik keisari var 66 ára að aldri.
Hann varð keisari árið 1889 fyrir til-
styrk ítala, gerði uppreisn móti fyrir-
rennara sínum og drap hann. Seinna
lenti hann f skærum við Itali út af
því, að honum þótti þeir of ráðríkir
gagnvart sér og landi sínu. Varð úr
ófriður 1895 —1896 og höfðu ítalir
miður, og fekk þá Menelik viðurkent
fielsi landsins. — Hann efldi i ýmsu
framfarir þar í landi, kom á verzlun-
arsamböndum við Norðurálfulöndin.
Hann þótti vitur maður og dugandi,
en nokkuð grár í skapi.
Sá heitir Ligg Manu, er við völd-
um tekur í Abessyníu, og er hann
bróðursonur Meneliks.
—-—---------
Skógræktarstarfið og
ungmennafélögin.
í 3. tbl. ísafoldar ritar »Ó s k a r«
ungrueunafólagi all-langa grein, er aö
nxestu fjallar um ungmennafólögin og
ræktunarfyrirtæki þeirra. Er eigi nema
gott eitt um grein þessa að segjá, þótt
eigi geti eg verið henni samdóma 1 öllu,
og enda þótt eg telji miklu róttara að
ræða »ungmennamál« sem rækilegast
innan fólaga og í blaði U. M. F. í.
sem nú er nýkomið á legg, en gera þau
sem allra minst að opinberu umræðu
efni í stærri blöðunum. Og allra sízt
ættum vér þar að hreyfa athugasemd-
um þeirra manna, er hvorki skilja né
geta skilið starf og stefnu ungmenna-
fólaganna — eður hreyfa nokkuru þv/,
er virst gæti benda á samtakaleysi eða
misskilning á meðal vor innbyrðis. Það
getur hæglega orðið óvinum vorum —
ef nokkurir eru — vopn í höndum, og
væri þá illa farið, ef vór legðum þau
til sjálfir. —
Ó s k a r hefir talið nauðsyn að leið-
rótta »stóryrði« m/n, er eg setti á síð-
ustu blaðsíðu »skógræktarpésans« litla,
er eg samdi og gaf út Z fyrra vetur,
og má vel vera að svo sé, þótt eigi sjái
nauðsyn þess að birta það í einu fjöl-
lesnasta blaði landsins, þar sem bækl-
ingur minn var e i n g ö n g u saminn
banda ungm.fólögum og sendur þeim.
— Það er sannleiksgildi orða
þeirra, er eg vildi, að ungm.félögin gerðu
að »herópi« s/nu í skógræktarmálinu:
»ísland skógi vaxíð milli fjalls og fjöru
á þessari öld«. Telur Óskar þetta
ókleyft með öllu, og kveður sór það
kunnugt, að þau orð sín sóu fjarri sanni
en m/n.------Vil eg nú leyfa mér
að gera athugasemd tiokkura við þessi
orð hans, sem bæði eru sprottin af mis-
skilningi og vanhugsun, og geta óefað
unnið skógræktarstarfi ungmennafélag-
anna meira tjón heldur en stóryrðin m/n.
Það er þá fyrst, að eg hefi ætíð talið
»h e r ó p« vera h v a t a r o r ð til að
örfa og efla framsóknarhug manna, en
eigi spakmæli nó spádóma, og þv/ síður,
að þau só staðhæfingar. Orð þessi geta
þv/ alls eigi neitt um það, hvort hægt
só að »klæða« ísland milli fjalls og fjöru
á einni öld. Þarf þv/ eigi að hrekja
sannanagildi þeirra í þá átt. — En aft-
ur á móti er full ástæða til að athuga
nokkuð nánar þau orð Óskars, að
eigi só hægt að gera ísland skógi vaxið
milli fjalls og fjóru á þessari öld.
Sannfæring mín er sú, að þetta s é
h æ g t, og eg hyggst hafa meiri sann-
anagögn í höndum fyrir þessu, en Ósk-
ar hefir fyrir sínu máli.
Skógi vaxið milli fjalls og fjöru t e 1
e g ísland, þegar skógrækt er komin á
þann rekspöl / flestöllum sveitum, að
skógarsvæði stækka með ári hverju í
heimahögum og úthögum hvers bæjar.
M. ö. o. þegar 1/fvænleg skógrækt er
alment hafin / hverri sveit landsins,
hvort sem hún er álnar há eða tífalt
meira. Og þegar þekking almennings
er komin á það þroskastig 1 þessum
efnum, að þeir kunna að meta og hirða
skóga s/na. Þegar svo er komið, vinria
skógar landsins meira að útbreiðslu sinni
sjálfir, en öll ungm.fólög landsins gætu
gert.
Á því, hvað fært só, og hvað eigi /
þessum efnum, þykist eg hafa þekking
og reynslu á móti allflestum ungmenna-
fólögum vorum, enda er mór alls eigi
fyrir það þakkandi. í liðug 10 ár hefi
eg haft kynni — oft náin — af skóg-
rækt með það fyrir augum að hagnýta
þá þekkingu og reynslu hér heima. Eg
hefi séð börn og unglinga klæða heilar
fjallahl/ðar blómlegum skógi, sóð dali
fyllast skógiáö—10 árum, sóð skóg-
1 a u s a r sveitir verða að skógir
sveitum, sóð stórvaxna skóga, þar
sem engin voru tró til fyrir 25—30 ár-
um. Þessi dæmi eru að v/su öll útlend,
en þó frá landi með engu minna, held-
ur margfalt meira vetrarríki en á ís-
landi.
En hvern veg snýr þessu við hór á
landi. Hvað segir reynslan? Henni er
þó að miklum mun betur treystandi en
okkur Ó s k a r i báðum! —
Eg hefi hvergi sóö og heyrt jafn-
margar og mikilvægar sannanir fyrir
lífsskilyrðum skóga hór á landi í einu
á borð bornar eins og í erindi einu
hjá hr. skógræktarstjóra K o f o e d-
H a n s e n — bæði í erindinu sjálfu og
i öllum þeim á g æ t u m y n du m
af fsl. skógum, er hann hafði tekið
og lót sýna (í skuggamyndum): Á
mannsaldri hafa t. d. reynitró orðið
fullvaxta (f alm. norrænni merk-
ingu) á bersvæði norðanlands. í Hall-
ormsstaðaskógi á Austurlandi hefir kjarr-
ið vaxið yfir höfuð skógarins á
7—8 árum, s/ðan skógurinn var friðað-
ur. í Skaftafellssýslum hefir ofbeldi
veðurs og vatna og ágangur gripa og
manna eigi getað unnið á sumum skóg-
leifunum. — Mætti telja ótal dæmi á
þessa leið.
— — í Hafnarfirði hefir reynitró orð-
ið fullvaxta — að húsabaki — á 20—
30 árum og eru greinar þess mannbær-
ar upp / topp. Eru þar og mörg blóm-
leg reynitró í garði, þó ung sóu. Reyni-
trón á Akureyri eru alkunn. — í gróðr-
arstöðinni á Akureyri hefir birki og
reyni vaxið svo mjög sum ár, sem þeg-
ar bezt lætur á Norðurlöndum. — Hjá
mór uxu nokkur ísl. reynitró, er eg
gróðursetti seint / vor — 14—16 þuml.
á ca. 2 mánuðum og tv/beit þó sauðfó
sumar greinar þeirra. E p 1 a t r ó blómg-
uðust jafnvel á fyrsta ári (á íslandi;
voru 5—6 ára gömul).
Sannanir þessar verða eigi kraktar,
Skilyrðin eru til. Og þau alls
eigi óvænleg. Það vantar alls ekkert
nema almennan skilning og áhuga.
Þekkinguna böfum vór nú þegar
hjá skógræktarstjóra lands-
ins og skógfræðingum vorum.
Ungmennafólögin eiga að vekja áhuga um
land alt á þv/ að hagnýta sér þessa þekk
ingu. Þá er starfinu borgið. — Og
eigi get eg skilið, að þurfa skuli meira
en heila öld til að vekja starfandi
á h u g a / þessu máli / hverri sveit
landsins, þar eð »stóryrði« mín og ann
ara ungmennafélaga hafa þegar gert
það f fjöldamörgum sveitum
á liðugum 3 árum. Skógræktar-
starf það, sem ungm.fólög vor snm
hver hafa þegar unnið, er eflaust meira
en 2000 kr. virði, verkið eitt, og áhug-
inn og framt/ðarvonirnar ó m e t a n 1 e g.
Er þetta þó alt unnið algerlega
styrklaust, enn sem korr.ið er,
og nú / vor ætlar fjöldi félaga að hefjast
handa / skógræktarmálinu.
Ráð mitt er nú það, að vór Óskar
og aðrir ungm.fólagar skerpum held-
u r hvatarorðin en drögum eigi
úr þeim, s v o þ a u verði framveg-
is að verki t. d. / heila öld. — Brýna
skal deigt járn, ef b/ta skal, og er því
óþarfi að deyfa eggjarnar / upphafi orr-
ustunnar. — Sjá þá barnabörn vor,
hvorr afa þeirra mælti þau orð, er
»næm voru sanni«. — Höfum vór ann-
að bjtra að gera en metast um það
»he!la öld fyrirfram«.------
Annars glöddu mig mjög allar bend-
ingar og hvatarorð Óskars, og eign-
ist eg bæ eða býli, mun eg byrja heima
eins og hann! — En nú eiga ungm.-
fólagar vorir að hafa kynst og lært
skógrækt í f é 1 a g i n u sínu, á ð u r en
þeir eignast bæ eða bú; og takist það,
eins og bezt má veiða, mun »skógur«
við hvern sveitabæ á nægta mannsaldri.
Skilyrðin eru til þess, hverjar sem efnd-
irnar verða. —
Æskulýður íslands á að hefja hátt
framsóknarmerkið og fylgja þv/; og vór,
sem eigunx því láni að fagna að» vera með«
í ungmennastarfi þv/, senx nú er hafið,,
e i g u m að blása í áhugans heitu glæð-
ur, svo þær verði að björtum loga.
Verðum vór því að fara gætilega með
eldinn, að vór slökkvum hann eigi.
En vór eigum að treysta oss á við
hverja aðra þjóð, sem við lík kjör á að
búa. Það hefi eg gert í skógræktarmál-
inu. Annað ekki. Og það geri eg enn!
Helgi Valtýsson.
Af Laurustrandinu
er fréttalítið. — Sagt, að Geir
mundi hafa tekist að ná henni út, ef
veðrið hefði verið bærilegt.
Uppboð fer fram á skipsskrokknum
innan skamms. L. Kaaber kaupm hefir
verið beðinn að vera umboðsmaður
vátryggingarfélagsins, en hann falið
það starf Gotfredsen skipstjóra, sem
er eftir nyðra við annan mann.
Reykjavikur-annáll.
Aðkomumenn þessa vikn: síra Bjarni Si-
monarson prófastur frá Brjánslæk. Signrð-
nr Jónsson bóndi frá Yztafelli.
Alþýðuerindi, fróðlegt og skemtilegt flntti
Jón Jónsson sagnfræðingur á sunnudaginn
var, 1 af 5. Hann sagði i þetta sinni af
Eggert Ólafssyni, vorboðannm og vekjar-
annm í dögnn endurreisnartímabils þess bér
á landi, er segja má, að hafi byrjað um
miðja 18. öld. — Ætlar Jón sér að segja
söguna alt fram á þúsundárahátið landsins.
Dáinn: Pálmar Ásgrímsson, vm. frá Græn-
hóli í Ölfusi, 35 ára, dó i Landakotsspitala
29. marz.
Ragnhildur Grimsdóttir, gift kona, 48
ára, á Laugaveg 115, Dó 25. marz.
Þuriður Hafliðadóttir, gift kona í Berg-
staðastræti 26 B. Dó i Landakotsspitala
30. marz.
Fasteignasala. Þingl. 31. marz.
Engilbert Gíslason málari selnr Sveini
Jónssyni trésmið (Bókhl.st. 10) lóðarspildn
við Laufásveg, 30 áln. meðfram veginnm
og 44 ál. á breidd, fyrir 1320 kr. Dags.
14. marz.
Guðmundur Gamalíelsson bókbindari sel-
ur alþm. Magnúsi Blöndahl húseign nr. 8
við Lindargötu með tilheyrandi fyrir 8500
kr- Dags. 4. marz.
Jóbann Jóhannesson kaupmaður selur
Kristjáni konsúl Þorgrímssyni húseign nr.
38 við Laugaveg m. tilh. fyrir 19000 kr.
Dags. 28. febr.
Jón Bjarnason málari selur Jóhanni kaup-
manni Jóhannessyni byggingarlóð við Skóla-
vörðustig, 300 ferálnir, fyrir 600 kr. Dags.
20. marz.
Jón Reykdal málari selur Sveini Jónssyni
trésmið (Bókhl.st. 10) lóð úr Holtastaða-
bletti, 30 ál. meðfram Laufásvegi og 44
ál. á br., fyrir 1320 kr. Dags. 14. marz.
Kri8tófer Sigurðsson járnsm. selur Jó-
hannesi Lárussyni trésmið ca. 44 ferálna
lóð við Skólavörðustíg 4 C, Dags. 10 marz.
Sturla kaupm. Jónsson selur Þorleifi Guð-
mundssyni frá Háeyri Sauðagerði m. tilh.
Dags. 23. febr.
Sveinn Jónsson trésmiður, Bókhl.st. 10,
selur þeim Br. Björnssyni tannlækni, Lárusi
G. Lúðvígssyni skósmið, Pétri Þ. J. Gunn-
arssyni hótelstjóra og Steingr. Guðmunds-
syni trésmið 2546 ferálna lóð norðan af
Holtastaðabletti, með Láufásvegi og Berg-
staðastr. Dags. 20. marz.
Guðsþjónusta á morgun.
í Þjóðk.: kl. 12 sira Fr. Fr.
kl. 5 dómkirkjuprestur.
í Frikirkj.; Hádegismessa.
Hjónaefni: Ragnar Levi tóbakssali og
ym. Margrét Stefánsdóttir.
Málverkasýning. Fyrir beiðni margra
hér í bæ, befir Ásgr. Jónsson myndasýn-
ingu sina opna enn í 3 daga, á morgun,
mánudag og þriðjndag. Engiun má sitja
sig úr færi.
Skólahátfð. Skólapiltar efndu til árlegr-
ar skólahátiðar sinnar i gær i Hotel Reykja-
vlk.
Snjóasamt óvenju um Suðurland, og sama
er sagt um allar jarðir.
Veikindi. Enn gengur i bænum allmegn
kvefsótt, en þó i rénum. — Jón Jensson
yfirdómari hefir legið fárveikur um tima,
en kvað nú vera á batavegi.