Ísafold - 22.06.1910, Side 1
Kcmui út t visvar l viku. Yerð &rg. (80
arkir minst) 4 kr., eriendik 5 ki eða l1/*
dollar; borRÍst fyrir mibjan júli (erlendis
fyrir fram).
ISAFOLD
UppsÖgrn (skrifleg) bundin vift Aramót, er
óffild nema komin né til útgefanda fyrir
1. o*t. <** naupandi skuldlaas vift blaftift
▲fKreiftsla: ▲usturstreeti 8.
xxxvn. árg.
Reykjavík miðvikudaginn 22. júní 1910.
41. tölublað
l. O. O. F. 916249
Forngripasafn opift livern virkan dag 12—2
íslandsbanki opinn 10—2 V* og 51/!—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 siftd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 x/« siftdegis
Landakotskirkja. Guftsþj. 91/! og 6 á helgum
Landakotsspltali f. sjúkravitj. 10V*—12 og 4—5
Landsbankinn 11-2 V*, 6^/i-ð1/*. Bankastj. vift 12-2
Landsbókasaín 12—3 og 5—8. Útlán 1—3
Landsbúnaftarfélagsskrifstofan opin trá 12—2
Landsféhirftir 10—2 og 6—6.
Landsskjalasafnift á þrd. fmd. og ld. 12—1
Lækning ók. i lteknask. þriftjd. og föstd. 11—12
Náttúrugripasafn opift l1/*—21/* á sunnudögum
Tannlækning ók. Pósth.str. 14, 1. og 3. md. 11—1
Lárus Fjeldsted
yfirréttarmálafærslumaður
Lækjargata 2
Heima kl. n—12 og 4—5.
Faxaflóagufubáturinn Ingólfur
fer til Borgarness 27. júní, 5. 10. og
13. júlí
- - Keflavikur og Garðs 24. og 29.
júni, 8. 15. og 22. júlí
- - Voga 25. júní.
Traustsyfirlýsing
til ráðherra.
Einróma mótmæli gegn aukaþingi.
Mánudaginn 11. apríl 1910 var hald-
inn fundur af kjósendum til alþingis í
Flateyjarhreppi.
Eftir nckkrar umræður var svo lát-
andi fundarályktun samþykt með 10 at-
kvæSum gegn 5:
Fundurinn lýsir yfir fullu trausti
á þingmanni vorum, ráðgjafa íslands,
hr. Birni .Tónssyni, tjáir honum þakk-
ir fyrir starfsemi hans í landsmálum
og mótmælir aukaþingi svo sem alls
óþörfu.
Síðan var borin upp og samþykt í
e i n u h 1 j ó ð i svolátandi tiltaga :
— Fundurinn mótmælir eindregið
aukaþingi, er hann telnr aJls óþarft.
Magnús Sœbjörnsson Pdll Nikuldsson
fundarstjóri. ssrifari.
Um fund þennan skal þess getið til
skýringar, að hann var fámennur, ekki
helmingur alþingiskjósenda í Flateyjar-
hreppi, sökum þess, að sjómenn, sem eru
næstum helmingur allra alþingiskjósenda
hór í hreppi, voru komnir á haf út. Af
fundarmönnum greiddu atkvæði með
fundarályktuninni (fyrri liðnum) þessir
kjósendur :
Magnús Sæbjörnsson héraöslæknir í Flatey.
Guðmundur Bergsteinsson kaupm. i Flatey.
Jakob Þorsteinsson verzlunarstjóri i Fiatey.
Páll Nikulásson verzlunarm. í Flatey.
Jón Sigurðsson bóndi i Flatey.
Sigurður Sigurðsson bóndi i Flatey.
Ólafur Bergsveinsson bóndi í Látrum.
Eyólfur Ólafsson bóndi i Sviðnum.
Skúli Bergsveinsson bóndi í Skáleyjum.
Guðní Guðmundsson kaupm. i Flatey.
En utanfundar tjáðu þessir alþingis-
kjósendur í Flateyjarhreppi sig vera
fundarályktaninni samþykka :
Andrés Sigurðsson kennari i Flatey.
Hermann S. Jónsson skipstjóri í Flatey.
Sveínn Jónsson búsmaður í Skáleyjum.
Guðmundur Guðmundsson húsm. í Flatey.
Sveinn Einarsson búsm. i Látrum.
Jóhann G. Arason skipstjóri í Flatey.
Gunnlaugur Sveinsson skipstjóri í Flatey.
Sigurður Sigurðsson húsm. í Flatey.
Pétur Kúld Pétursson húsm. i Skáleyjum.
Einar Jónsson búsm. i Flatey.
Bjarni Jónsson Flateyingnr.
Kristján Sveinsson bóndi i Bjarneyjum.
Davíð Einarsson verzlunarm. i Flatey.
Guðjón Ingimundarson húsm. i Flatey.
Hallbjörn Bergmann húsm. i Flatey.
Jón Árnason húsm. i Flatey.
Sigurður Jónssou húsm. i Svefneyjuru.
Bogi Guðmundsson búsm. í Flatey.
Magnús Jónsson í Flatey.
Niknlás Jensson húsm. í Sviðnum.
Jón G. Arnason hóndi i Hergilsey.
Jón Ormsson hóndi i Hergilsey.
Eins og fundarskyrslan ber með sór,
voru a 11 i r á móti aukaþingskröfunni.
Flatey 6. júní 1910.
Magnús Sæbjörnsson.
Þegnskylduvinnan.
V.
(Siðasti kafli).
Hvað fyrirkomulagið á þegnskyldu-
vinnunni snertir, þá hefir Hermann
gjört að nokkru leyti grein fyrir því í
Andvara-ritgerð sinni. Hér skal því
eigi farið langt útí þá sálma, en minn-
ast aðeins á fáein atriði.
Eg hugsa mér þegnskylduvinnutím-
ann 10 vikur, og að þeim tíma sé
skift í tvö tímabil, fimm vikur hvort.
Vinnan fer fram að vorinu og sumr-
inu, og mundi hæfilegt að skifta þeim
tíma í 3—4 vinnutímabil. Sú skift-
ing yrði á þessa leið. Fyrsta tíma-
bilið frá 25. maí til 30. júní; annað
tímabilið frá 1. júlí til 5. ágúst; hið
þriðja frá þeim tíma og til 10. sept-
ember, og svo hið fjórða eftir það og
fram í miðjan október.
Þegnskylduvinnuna ættu menn helzt
framvegis að inna af hendi á aldrin-
um 18—22 ára. AUir yrðuaðminsta
kosti að hafa lokið henni þegar þeir
væru 25 ára. En sjálfráðir ættu þeir
að vera um það, hvort þeir lykju
henni af allri í einu eða skiftu henni
í tvent, eins og gert er ráð fyrir hér
að framan.
Þegnskylduvinnan ætti að hvíla á
öllum, og engin undantekning að
eiga sér þar stað, nema um þá
menn, sem eitthvað eru fatlaðir.
Enginn má geta keypt sig undan því,
að inna hana af hendi. — Hverjum
manni ætti að greiða að minsta kosti
1 kr. í fæðispeninga meðan vinnan
stendur yfir.
Stjórn landsins hefði yfirumsjón
með vinnunni. — í lok hvers árs
tilkynnir hún sýslumönnum, hve margir
eiga næstkomandi ár að inna þegn-
skylduvinnuna af hendi í hverri sýslu.
Sýslumenn jafna þeirri tölu niður á
hreppana. Niðurjöfnunin styðst vitan-
■ lega við manntalsskýrslurnar.
Þegar svo vinnan hefst, verður
liðinu skift í deildir og deildunum
aftur í minni flokka. Fyrir hverja deild
verður skipaður æfður verkstjóri, og
flokksforingi fyrir hvern flokk.
Deildarstjórarnir þurfa að vera vald-
ir menn og góðir verkstjórar. — Her-
mann stingur upp á, að byrjað sé
á því »að leggja fram fé úr landsjóði
til að útvega og undirbúa menn til að
stjórna þegnskylduvinnunni«. Hann
gjörir með þessu ráð fyrir, að nú
sem stendur sé hér fátt um menn, er
geti tekið að sér aðalverkstjórnina
nema með því að búa sig undir það.
Hermanni er það vitanlega ljóst, að
árangurinn af þegnskylduvinnunni
er eigi hvað minst kominn undir því,
að yfirmennirnir, aðalverkstjórarnir, séu
starfi sínu vaxnir og kunni það sem
þeir eiga að kenna öðrum.
Hann hefir sjálfur verið verkstjóri
og stjórnað mörgu fólki, og þekkir
þetta því af reynslunni betur en marg-
ir aðrir.
Þessir menn, sem valdir yrðu til þess
að búa sig undir að takast á hendur
verkstjórnina við þegnskylduvinnuna,
þyrftu að sjálfsögðu að fara utan og
vinna þar að vegagerð og. járnbrautar-
lagningu um tíma. Þeim væri og
nauðsynlegt að dveljast einhvern tíma
við hertamningar til þess að kynna sér
stjórnsemi og aga.
Annars væri nauðsynlegt og sjálf-
sagt að velja til þessarar farar þá menn,
sem að upplagi hafa hæfileika til að
segja fyrir eða stjórna. Náttúran verð-
ur hér sem oftar náminu rikari; en
þegar það fer saman, nám og náttúra,
má vænta þess, að árangurinn verði
góður.
Kostnaður við þegnskylduvinn-
una hyggur Hermann muni geta orðið
40,000—50,000 kr. á ári. En hann
bætir því við, að útgjöld landssjóðs
ættu ekki að aukast við þetta til muna.
þvi þegnskylduvinnan komi í staðinn
fyrir kostnað við skógrækt, sandgræðslu
vegagerð 0. fl.
Beinn kostnaður við þegnskyldu-
vinnuna er fyrst og fremst kaup þeirra
manna, er bæta þyrfti við fram yfir
það sem nú er til verkstjórnar og um-
sjónar með henni. Ennfremur fæðis-
peningar hinna þegnvinnuskyldu, og
ný áhöld og útbúnaður, er þegnskyldu-
vinnan krefðist og hefði í för með
sér.
Það mun láta nærri, að á þegn-
skylduvinnu-aldri séu nú nálægt 5000
karlmenn. Ef gert er ráð fyrir, að
þegnskylduvinnan verði int af hendi
einhverntíma á aldrinum 18—25 ára
þá koma af þessum hóp rúmir 600
menn á. hvert ár. Gera má því ráð
fyrir, að þegnskyldir menn yrðu til
jafnaðar framvegis 600—700 ár hvert.
— Allir, sem verða 18—25 ára þeg-
ar þegnskylduvinnan kemst á, ættu að
vera skyldir til að inna hanaafhendi.
Þegar á þetta er litið og fleira, er
hér kemur til greina, þykist eg sjá,
að kostnaðurinn við þegnskylduvinn-
una mundi ekki geta orðið minni en
75,000—100,000 kr. á ári.
En hvað er svo í aðra hönd. —
Fyrst og fremst vinna þessara manna,
bæði við vegagerð og skógrækt. Það
er hinn beini hagur af þegnskyldu-
vinnunni, er þjóðin nýtur, og sá hagur
ætti að vega upp á móti þessum
kostnaði og fram yfir það.
En svo er óbeini hagurinn. Hann
verður eigi talinn í krónum og aur-
um. Þessi óbeini hagur verður aðal-
lega fólginn í því, að menn læra
þarna vinnu og verkhygni, hlýðni og
stjórnsemi, stundvísi og reglusemi, hátt-
prýði í framgöngu og fleira gott.
Hér hefir enn ekki verið minst á
ýmsar hliðar á þessu máli, sem eru
mjög mikilsverðar fyrir þjóðina í heild
sinni. Þar á meðal frá lýðveldislegu
sjónarmiði; kunnugleikinn milli manna
úr fjarlægum héruðum, ei kæmist á
og rótfestist, og leitt gæti at sér margt
gott; samkepni milli manna i vinnu,
íþróttum og leikfimi; samhygð og
félagsskapur og margt fleira.
Þessi atriði, er nú voru nefnd eru
jafnvel enn meira um verð en alt,
er áður hefir verið talið. En það
bendir um leið á það, að þegnskyldu-
vinnuhugmyndin er stórmál, er mundi
hafa margbreytt áhrif á lífskjör og
hugsunarhátt þjóðarinnar, væri henni
ráðið til lykta á þann veg, er bezt
gegnir.
Eg heyri menn stundum tala um
það, að þegnskylduvinnuhugmyndin
sé fögur og góð; en að hún sé lítt
framkvæmanleg.
Ef hugmyndin er fögur og góð,
og um það kemur flestum saman, þá
virðist mér það velta á miklu að fá
henni hrundið í framkvæmd. A ekki
lífsbaráttan að keppa að því að fá
bugsjónirnar til að rætast? Hugsjóna-
iaus maður á sér enga framtið, og
hver sú þjóð, sem skortir framtíðar-
hugsjónir er dauðadæmd.
Þegnskylduvinnuhugmyndin er hug-
sjón; en vér eigum að vinna að því,
að hún rætist og komi til framkvæmda.
Gjöra hana að starfandi afli í þjóð-
félaginu. Munu þá brátt koma í ljós
verkanir hennar og áhrif á þjóðina.
Ef þegnskylduvinnan er vel undir-
búin og framkvæmd á réttan hátt er
naumast vafi á því, að hún verði til
blessunar öldum og óbornum og hrindi
þjóðinni áfram á braut menningar og
framfara.
Signrður Sigurðsson.
-----sæ------
Prót í forspjallsvísindum
fór fram þ. 20. þ. mán., 4 lækna-
efni, 2 lögfræðingar og 1 guðfræðing-
ur, tóku prófið. Einkunnir voru
þessar:
Bjarni Snæbjörnsson stud. med.; dável
Eiríkur Einarsson stud. jur.: ágætlega-f-
Guðm. Asmundss. stud. med.: dável-4-
Halldór Kristinsson stud. med.: vel
Jónas Jónasson stud. med.: dável-f-
Jónas Stephensen stud. jur.: dável
Vigfús Ingvar Sigurðsson stud. theol.:
dável.
c|farmaíanósför.
Hann beindi stafni til Bjarmalands, —
i blíðviðri dísir sungu, —
við hjáImunvölinn stóð viljinn hans
og vonirnar djörfu’ og ungu.
Þar vissi’ hann að auðœfi’ og gullsins
gnœgð
\ og gœfuna var að finna;
hann œtlaði’ að vinna þar fé og frœgð
°g fiytja til landa sinna.
Hann vildi' að þeir yrðu alfrjdls þjóð
með orðstír sem lýsti víða, —
hann langaði’ að helga þvi líf og blóð
í landsins sins hag að striða.
Hann langaði hugsjóna lýsigull
að Idta þar fegurst skina
og strengdi þess heit við heilagt full
að hefja upp œttjörð sína. —
— í árljóma blikaði Bjarmaland,
með brosandí fossahlíðum,
og vorbylgjur glaðvœrar sungu við sand
d sumarkvöldunum bliðum.
Hann stóð við siglu, er hdtt við hún
í hraðbyri þandist voðin, —
í fjarlœgð blasti við fjallabrún
af flogagulls Ijóma roðin.
í vissu breyttist hans von og þrd,
nú var hann svo landi nærri.
En þd kom sœdjúpin ókyrð á
og öldurnar risu hœrri. — —
— Þeir landar hans heima háðu þing,
þar háttur er alsiða slíkur; —
i hjartastað fengið þeir höfðu sting:
Þeir héldu’, að hann yrði ríkurl
Þeir héldu’, að hann einn myndi
frama fd
af framkvæmd til lands síns sóma.
Þeim ógnaði, ef lifa þeir yrðu að sjá
á enni hans sveiginn Ijóma.
Og að honum tókst þeim að efia seið. —
Þd orgaði Rdn og drundi
og stórsjóir beljandi skullu’ á skeið.
— Hann skildi — hann þagði' og
stundi.
Svo braut hann skip sitt við Bjarmaland
við brotsjóa föllin þungu.
Þar hneig hann i víði með viljans brand
og vonirnar sínar ungu.
— Og það eru liðin þúsund ár
frd þessum óhappadegi.
Og nútiðin skilur, hve skaðinn er sár,
þótt skildi það fortíðin eigi.
Guðm. Guðmundsson.
Samsöngur
\
þeirra frú Valborgar Einarsson og frú
Astu Einarsson í Bárubúð siðastl. mið-
vikudagskvöld fór prýðisvel fram. Var
ekki við öðru að búast en vel tækist,
þar sem bezta söngkona og bezti
pianóleikari landsins lögðu saman til
að skemta.
Söngskráin var allvel samsett; þar
voru söngvar Dyveke eftir Heise,
bezta tónskáld Dana í romance-gjörð,
og þessir hinir frægustu af söngvum
hans mjög vel sungnir af frú Val-
borgu, og undirspilið, sem er all-erfitt
og margbrotið, aðdáanlega leikið af frú
Astu; skal eg sérstaklega nefna 4.
sönginn: »Vildt suser Blæsten*.
Það er þó nokhuð liðið síðan frú
Valborg lét síðast til sín heyra, en
hljóðin eru nú engu minni en áður,
jafnvel meiri og hljómfyllri, en texta-
meðferð ekki jafn-skýr og áður að
mér virtist, en það mun frúin brátt
laga. Báruhúsið er alt of lítill
söngsalur fyrir frú V. E., söngrödd
hennar er svo mikil, að sveiflur (vi-
bration) verða þar nokkrar á röddinni,
en slíks gætir ekki þar sem rýmið er
stærra, t. d. i dómkirkjunni.
Frú Valborg söng veigamikið lag
(aríu) úr söngleiknum »Samson og
Dalilat eftir Saint-Saéns, þann hinn
sama, er hefir gjört hinn heimsfræga
»Dance macabre«, og er þessi aria eitt
af því fegursta, sem eg hefi heyrt.
Ennfremur söng hún nýtt lag, eftir
mann sinn Sigfús Einarsson, við sálm-
inn »Sjá þann hinn mikla flokk«. Lagið
er ágætt, á vel við textann og ætti
því að verða kært öllum söngvinum á
þessu landi. Frú Valborg söng fleira,
sem hér yrði of langt upp að telja,
og var það alt vel sungið.
Frú Ásta Einarsson lék að vanda
ágætlega á pianó, t. d. Grieg: Der
einsame Wanderer, Schubert: Andante
impromtu, og síðast en ekki sízt No-
vellette Schumann’s í F-dúr. í Pol-
onaise Chopins, sem frúin lék fyrst,
var leikurinn ekki eins skýr og ákveð-
inn, sem heunar er vandi, en þess
skal getið, að hljóðfærið var ekki eins
gott og þarf að vera við samsöng,
ekki sizt þar sem er leikin »solo«.
Það er vafalaust, að euginn er hér í
bæ ng á þessu landi af þeim, sem eg
hefi heyrt, fremri í smekk og fimleik
í að leika á pianó en frú Ásta Ein-
arsson.
Samsöngur þessi var mikið vel sótt-
ur, þótt ekki væri húsfyllir — en það
er lítt hugsanlegt um þetta leyti árs;
það eru venj.ulega aðeins hinir sönnu
söngvinir, sem í þessum bæ eru
»fastir stofnar* á samsöngum — hin-
ir fara í »Bíó«.
Þær munu, frúrnar, innan skamms
ætla að bregða sér til ísafjarðar og
Akureyrar og gefa þar kost á sam-
söngvum, og gæti eg trúað að aðsókn-
in yrði ekki minni á þeinr stöðum,
heldur meiri, og sennilegast frægðar-
för fyrir þær stallsystur í tónanna
ríki.
Á. Th.
Kappsundið á sunnudaginn.
Það eru ótrauðir menn og ósér-
hlífnir, íþróttamennirnir, sem standa
fyrir kappleikum hér í bæ.
Fyrirhöfnin, sem þeir leggja á sig,
er alls ekki lítil. En aldrei heyrist
neitt orð um það frá þeirra hálfu.
Hugurinn snýst allur um, að koma
íþróttunum áfram, láta kappleikana
fara vel úr hendi.
Heiður sé þeim fyrir það.
Sunnudaginn kl. 5 síðdegis var
kappsundið fyrsta á þessu sumri þreytt,
suður við Grettisskála. Sjórinn var
9 stig og allhlýtt í veðri, en sólar-
laust.
Allmikill mannfjöldi hafði brugðið
sérsuður að Skerjafirði, 5—600 manns.
Þetta í sjálfu sér, að hægt er að ýta
svo mörgu fólki svo langan veg á
reykvískan mæli, sem Ieiðin út að
Skerjafirði er, til þess að horfa á sund,
er ekki hvað sízt vottur um, að íþrótta-
áhuginn er farinn að eignast væn óð-
ul í hugum okkar.
Kappsundið þreyttu eitthvað undir
20 röskvir drengir. Var þeim skift
i 2 flokka — yngri en 18 ára og
eldri en 18 ára.
Bilið, sem kept var á, nam 50
stikum (26 föðmum). Leikar fóru
svo, að i yngri flokknum bar hæstan
hlut Asgeir Asgeirsson. Hann svam
bilið á 40 sekúndum. Næstur hon-
um var Tómas Hallgrimsson og svam
hann einnig leiðina á 40 sekúndum,
en varð seinni, er þeir þreyttu sundið
annað sinn. Þriðji fyrstur varð Er-
litigur Pálsson á 40^/2 sekúndu.
í eldri flokknum var langhraðsynd-
astur Stejdn Ólaýsson frá Fúlutjörn.
Var hann ekki meira en )6 sekúndur
á leiðinni. Hann vann og nýársbik-
arinn í vetur, og mun enginn sund*
manna hér standa honum á sporði f
hraðsundi, nema ef vera skyldi Sig-
tryggur Eiríksson skólapiltur. En hann
þreytti eigi sundið að þessu sinni
vegna próf-anna. Næstur Stefáni varð
Benedikt Guðjónsson (408/4 sek.) og
þriðji G»ðw. Kr. GuðmuncLsson (431/*
sek.j.
Dómnefnd skipuðu þeir Guðmund-
ur Björnsson landlæknir, Guðm. Sig-
urjónsson glimukappi og Matth. Ein-
arsson læknir. — Lýsti landlæknirinn
yfir leikslokum, en þessum 6 fremstu
sundmönnum voru afhent verðlauna-
skjöl skrautrituð.
Tvö skulu kappsund þreytt önnur
í sumar, annað um Grettisbikarinn
mikla 14. ágúst. Bikar sá er úr
silfri, hefir kostað 300 kr. og á jafn*
an að vera í höndum mesta sund-
manns íslands, og verður kept um
hann fyrsta sinn í sumar.
X -...-t-