Ísafold - 01.10.1910, Síða 3
ISAFOLD
247
Ungmennafélögin og Heimastjórnin.
Svar til lijónaleysanna.
Ógn hefir þeim orðið bumbult af
því, Guðmundi Sigurjónssyni (í ísaf.
56. nr.) og »Iðunnic (í Lögréttu), að
eg skrifaði greinarkornið í 54- tW-
ísafoldar um »Ungmennafélögin og
Heimastjórnina«. Ekki gerði eg þó
annað en draga fram í dagsljósið tvær
myndir frá síðasta þingi, nfl. fram-
komu og hugarþel ráðherrans, Björns
Jónssonar, gagtivart Ungmennafélög-
unum, og hins vegar hugsunarsemi
Heimastjórnar-þingmannanna, Jóns frá
Múla og Péturs frá Gautlöndum. Það
er gott, ef framkoma þeirra þar hefir
verið sprottin af umhyggju fyrir vel-
ferð landssjóðs, enda ekki svo lítil
fjárhæð spöruð með þessu(ll). En
mínar ályktanir byggi eg á reynslu frá
þinginu 1907. Jón alþm. frá Múla
hefir reyndar mótmælt því, að hin
skyndilega breyting, sem þá varð á
hugum sumra þingmannanna gagnvart
Ungmennafélögunum hafi stafað af
neitun þeirra að draga niður fánann.
Helgi kennari Valtýsson hefir skorað
opinberlega á hann að koma fram með
hinar sönnu og réttu ástæður, en það
hefir hann látið ógert enn. Ogámeð-
an svo standa sakir held eg minni
skoðun á þeim herrum og dreg mín-
ar ályktanir, hversu mikið _sem þau
fussa og sveia hjónaleysin í ísafold og
Lögréttu.
Þessi »Iðunn« getur líka sparað sér
allan pilsaþyt út af því, að eg sé að
gera ungmennafélögin pólitísk. Ekk-
ert orð stóð i þá átt í grein minni.
Eg veit það eins vel og hún og vissi
það löngu fyrr, því eg er eldri ung-
mennafélagi en hún, að svo má ekki
vera. Eg átti þátt í því að búa til
fyrstu lög Ungmennafélags Reykjavík-
ur, og fylgdi þeitn þar fast að mál-
um, sem ekki vildu láta Ungmenna-
félögin skifta sér af stjórnmálum. Og
það hafa þau aldrei gert. En á hinu
eiga þau enga sök, þótt einhver stjórn-
málaflokkur rísi öndverður móti einu
þeirra heitasta og hjartfólgnasta áhuga-
máli, og láti þau að einhverju leyti
gjalda þess. En það er sannfæring
min, að Ungmennafélögin hafi goldið
þess hjá ýmsum Heimastjórnarþing-
mönnunum og öðrum flokksmönn-
um, að þau báru íslenzka fánann fram
til sigurs. Og eg sé ekki, að eg geri
þeim flokk mikið rangt til með slíkri
ályktun, því það er aldrei_nema mann-
legur breyskleiki, sem fylgir bæði mér
og öðrum, að stjaka við því, sem
manni er ekki geðfelt, sérstaklega telji
maður það að einverju leyti skaðlegt.
Þá speki þurfti eg ekki að sækja í
hjónaleysin, að við ættum vini innan
Heimastjórnarflokksins, og styrktar-
menn. Það vissi eg áður. En það
raskar ekkert því, sem eg hér hefi
áður sagt um vantrú mina á þeim
flokk á þingi i styrkmáli voru.
Þau halda það, hjónaleysin, að eng-
inn Ungmennafélagi hafi þá skoðun
nema eg, að félögin gjaldi fánamáls-
ins hjá Heimastjórnarmönnum. Þeim
gott ef það er. Um það geta þau
skeggrætt sín á milli. Eg hefi ekk-
ert um það skrifað. Sagði að eins
mína skoðun. Og það vil eg segja
þeim báðum í mesta bróðerni, að ekk-
ert atkvæði hafa þau um það, hvað eg
hugsa, skrifa eða tala.
Eg ætla svo ekki að skrifast meira
á við þau um þetta mál, þótt þau
kunni aftur að fá hvöt til að ryðjast
fram á ritvöllinn, tel ekki taka þvi.
En eg ætla að kannast við faðernið á
grein minni í 54. tbl. Isafoldar, því
enginn þarf að fyrirverða sig fyrir
sannfæring sína, bygða á eigin
r e y n s 1 u, að því er maður bezt
veit.
En við félaga minn Guðm. Sigur-
jónsson vildi eg segja það að endingu,
að hann ætti ekki að taka hart á rit-
hætti mínum, hann, sem skrifaði
i vetur hina miður vel þokkuðu grein
um félagsbróður okkar og á-
gætan forgöngumann Jóhannes Jósefs-
son, þegar hann var hvergi nærstadd-
ur að svara fyrir sig.
Svo óska eg nú hjónaleysunum alls
góðs — helzt þess, að þau yrðu fyr
en seinna meira en hjónaleysi, —
eg vona, að þeim verði ekki eins
ónotalegt innvortis af þessu greinar-
korni eins og hinu fyrra.
Eyrarbakka 12. sept. 1910.
Jón Helqason.
Afengi
var flutt til landsins 1908 fyrir 554
þús. krónur.
Hvað skyldi þessi upphæð minka
mikið ef fylgt væri »mentunar«kenn-
ingu Brennivínsfélagsins ?
Hafsteinsk hagsýni.
Fyrir jooo krónur var keyptur hing-
að Jiskur Jrd Dcinmórku á landsjóðs-
kostnað sukkárið mikla 1907, til þess
að gæða gestum landsins á. Er það
eitt dæmi af mörgum um hóf og hag-
sýni i meðferð opinberra fjármuna á
Hafsteinsöldinni. (Fjallk.)
Loftskeytamálið.
Herra ritstjóril
Út af umræðum þeim er orð-
ið hafa um loftskeytamálið og eink-
um loftskeytasamband við Vestmann-
eyjar í Isafold, vildi eg mælast til þess,
að þér tækjuð í heiðrað blað yðar eft-
irfarandi bréf frá símastjóranum danska,
sem eg hefi fengið í sumar.
Bréfið er svar við fyrirspurn frá mér.
Það er dags. 14. júlí og hljóðar á þessa
leið:
Út af bréfi yðar 24. f. mán. um
loftskeytasamband við Vestmanneyjar
skal eg með ánægju láta yður í té vit-
neskju þá, sem eg hefi á því máli.
Það er rétt, að loftskeytastöðvum
fjölgar si og æ. Það er engum erfið-
leikum bundið né örðugt að senda
loftskeyti á jafnvel meira en 85 enskra
mílna færi. Framfarirnar sýna þó, að
loftskeytastöðvar þær, sem settar eru
nú að mestu leyti eru ætlaðar til sam-
bands við skip á hafi úti.
Aftur hefi eg aldrei vitað um neitt
tilfelli að loftskcyti hafi verið látin
koma í stað símasambands — enda
geta þau vitaskuld ekki bætt það upp.
Eg held raunar ekki að hægt verði
að koma upp loftskeytasambandi milli
Vestmanneyja og íslands fyrir 25000
kr. Eg býst við, að kostnaðurinn
mundi verða 30—35000 kr. Við þetta
bætist mikill reksturskostnaður eink-
um til þess að framleiða afl það
(Energi), sem óhjákvæmilegt er og sjálf-
sagt verður að nema 1,5 kilovatti á
hverri stöð. Eg þekki ekki hvernig
hagar til á þessum tveim stöðum, en
geri ráð fyrir, að dieselmotora verði að
hafa til framleiðslunnar. Um stöðva-
gæzluna er það að segja, að til þess
að gæta vélánna og hinna margbrotnu
tækja þarf að sjálfsögðu mann, sem
hefir þekkingu á því eða minsta kosti
skilyrði til að afla sér verklegrar þekk-
ingar á gæzlunni, og símastarfið er
þannig vaxið, að símamaðurinn verð-
ur að geta tekið móti merkjunum með
heyrninni einni (talsíma). — Hvort
hægt sé að útvega slika menn á hvoru-
tveggja staðnum veit eg auðvitað ekki
en það er víst vafasamt. Og hvað
sem öðru líður — verður reksturs-
kostnaðurinn undir öllum kriugumstæð-
um miklu tilfinnanlegri en ef talsíma-
samband væri.
Hin þráðlausu talskeytatæki eru ekki
ódýrari en síminn og reksturskostn-
aður ekki minni, svo að nokkru nemi
og þau eru naumast örugg. — Og
þareð, eftir bréfi yðar að dæma, er
ekki erfiðleikum bundið að leggja
sæsima ræð eg yður — eftir því sem
eg get dæmt héðan — eindregið til að
taka hann. Lagningin á sæsíma er
ekki dýrari, en reksturskostnaður miklu
minni og sambandið langt um áreið-
anlegra.
Virðingarf.
Meyer
símastjóri i Danmörku.
Reykjavík 20. sept. 1910.
O. Forberg.
------------■
Reykjavikur-annáll:
Aðkomumenn síðustu daga: sira Ólafur
Finnsson Kálfholti, Sæmundur bóndi Jóns-
son Minnivatnsleysu 0. fl.
Dánir: Yilborg Jónsdóttir, ekkja, Yest-
urgötu 21. 56 ára.
Danskt Grænlandsfar, er »Godthaab« heitir,
kom hingað i vikunni frá Augmagsalik á
austurströnd Grænlands. Skipið hrepti hafís
mikinn áleið sinni milli landa. Hingað flutti
það nokkra Dani er sigldu með »Botniu« í
fyrrakvöld. Héðan fer skipið til Juliean-
haab, sem er á vesturströnd Grænlands.
Fasteignasala. Þingl. 29. sept.
Ólafur Hróbjartsson fær uppboðsafsal fyr-
ir háseign nr. 48 A við Njálsgötu með tilh.
fyrir 2155 kr. Dags. 19. júli.
Sami selur Jóhannesi Bjarnasyni stýri-
manni sömn húseign m. tilh. fyrir 2650 kr.
Dags. 24. sept.
Stgr. Guðmundsson trésmiður selur húsfrú
Guðfinnu Jónsdóttur húseign nr. 20 við
Frakka8tíg með tilheyrandi fyrir 4200 kr.
Dags. 22. ág.
Fiskiskipin hafa verið að koma inn vikuna
sem leið. Afli er sagður að vera yfirleitt i
meðallagi eða vel það.
Guðsþjénusta á morgun i þjóðkirkjunni
kl. 12 Dómkirkjupresturinn,
, kl. 5 slra Bjarni Jónsson.
I Frikirkjunni kl. 12 Frikirkjupresturinn.
Hlutabréf íslandsbanka hafa staðið lágt
að undanförnu. Eftir þvi sem »Börsen«
skýrir frá, var nafnverð þeirra 901/,°/0 i
ágústmánuði, eða 7—8°/0 lægra en um sama
leyti i fyrra, þótt horfur séu nú betri. Ekki
verður annað séð, en verðfall þetta stafi af
bankahneykslinu á Akureyri. (Fjallk.)
Hjúskapur : Björn Sæmundsson Kárastig
6 og ym. Guðrún Jónsdóttir. Gift 23. sept.
Yfirslátrari Tómas Tómasson Bergstaoa-
stræti 11 og ym. Rannveig Jónsdóttir. Gift
24. sept.
Magnús Þórðarson bóndi á Hvammi i
Kjós og ym. Sigrún Árnadóttir. Gift 27.
sept.
Bjarni Ivarsson bóbbindari og ym. Eagn-
heiður Magnúsdóttir Blöndal (frá Yallanesi)
Gift 28. sept.
Ritstjóri Ingólfs, hr. Andrés Bj örn**son, er
nýlega kominn heim úr Norðurlandsför
sinni.
Skólar ailir eru settir -I dag nema Kenn-
araskólinn.
Veðrátta var stirð og köld fram að miðri
vikunni. Snjór hafði fallið ofan að sjó á
Vestur- og NorðurlaAdi. Siðustu dagana
hefir verið inndælisveður.
Rartöflur.
Landhagsskýrslurnar 1908 sýna að
það ár voru fluttar kartöflur til lands-
ins fyrir rúm 80 þús. krónur. »Betur
má ef duga skal« með kartöfluræktina.
Skipaferðir;
Beztu og ódírustu vindlarnir
Austri fór í hringstrandferð 23. f. m.
MeSal farþega var Kr. Magnússon fiski-
matsmaður frá ísafirði.
Sterling fór til útlanda (Hamborgar)
síðastl. laugardagskveld. Meðal farþega
voru: ráðherra Björn Jónsson til Khafn-
ar, Ólafur ritstj. Björnsson, Tary kaupm.
og frú, F. C. Möller og frú, Thaulon
stórkaupmaður, Stefán Scheving, og 30
mælingamenn danskir frá Generalstaben.
Ennfremur ungfrúrnar : Sigríður Björns-
dóttir (ráðherra) til Londön og Oxford,
Ólöf Björnsdóttir (Jenssonar), Anna
Klemenzdóttir (landritara), Hólmfríður
Halldórsdóttir, Sigr. Zoega, Jarðþrúður
Pétursdóttir, Guðlaug Sigurðardóttir (frá
Kaldaðarnesi) og Ásta Ásmundsdóttir.
Til Vestmanneyja fór með skipinu alþm.
Gunnar Ólafsson o. fl.
Botnia kom frá Vesturlandinu þ. 28.
f. m. Fjöldi farþega var með skipinu,
kaupafólk, námsfólk o. fl.
Botnia fór til Seyðisfjarðar og útlanda
í fyrrakveld.'
Meðal þeirra ’er tóku sór far með skip-
inu voru þessir: D. Thomsen kaupm.
B. M. Ólsen prófessor og Sigurður Lýðs-
son stud. jur. o. fl.
Til Vestmanneyja: Gísli J. Johnsen
konsúll og frú, Ánton Bjarnason verzl-
unarstjóri o. fl.
0
®
D*
VI
®
ao
*
I-.
®
s
s*
®
55
V
c
vi
an
®
S
Q
S
®
I
o
CP5
Hver sá, er byrjar að reykja Vindla frá Dresselhuys &
Nieuwenhuysen Oulenborg konungl. hirðsala, sem er lang-
stærsta vindlaverksmiðja í Hollandi, mun aldrei reykja aðra vindla.
Aðalumboð fyrir Danmörk og ísland hefir Handelselskabet
»1 s a f o 1 d«
Kaupmannahöfn, Reykjavík & Hamborg.
NB. Hver sá kaupmaður, er kaupir i stærri stýl, fær aukreitis
stóran og verðmikinn spegil.
Reykið ætíð Dresselhuys vindla:
Perla de vera Crus,
Golden Cross,
Torpedo,
Cesares,
Risolas,
Caravana
og fjölda önnur merki.
u
83
—N
8ð
«D
u
•iH
A
u
•>H
tc
©
—H
ic
a
a
a
o
M
Frá landsímanum.
Kong Helge er ókominn enn. Er
orðinn á eftir áætlun.
Tímakenslu í
handavinnu
veitir undirrituð stúlkum, sem þess
óska, og kennir fáséða handavinnu,
svo sem teneriffblúnda, úrdregið þráða-
verk, að ríða blúndur, útprjón o. fl.
Einnig fæst tilsögn í ensku.
Laugaveg 58, 30. sept. 1910.
Þóra J. Einarsson.
Islenzk mállrái
ætluð bæði barnaskólum og unglinga-
skólum, eftir Halldór Briem, er kom-
in á prent. Aðalútsölumaður er Sig-
urður Kristjánsson. Kostar í bandi
1 kr.
Tunnur
undir kjöt eða slátur, ódýrar í
„Liverpool“.
Lifandi blóm.
1
Skrautlegir Pálmar og smáplöntur
selst með niöursettu verði.
Stýrimannastig 9.
Nokkur herbergi
fyrir einhleypa með eða án húsgagna
til leigu. Einnig geta 2 menn fengið
húsnæði, fæði og þjónustu á sama
stað fyrir 40 kr. pr. mán. Stýri-
mannastíg 9.
Tvær vetrarstúlkur óskast á tvö
heimili nálægt Reykjavík, semjið við
Guðm. Egilsson Laugav. 40.
Dugleg og þrifin stúlka getur
fengið vist í góðu húsi. — Afgr. vísar á.
Herbergifyrir einhleypa með
forstofuinngangi til leigu nú þegar. —
Afgreiðslan ávísar.
Á Siglufjarðarlínunni eru opnaðar landsímastöðvar eins og hér segir:
2 flokks stöð á Siglufirði
3 — stöðvar á Vatnsleysu, Kolkuós
Hofsós, Felli i Sléttuhlíð og Haganesvik.
Ennfremur er opnuð 3. flokksstöð á Mýrum í Dýrafirði. Stöðin á
Eysteinseyri í Tálknafirði er lokuð frá 1. oktbr. þ. á.
Reykjavík 30. september 1910.
Til leigu
heil ibúð og einstök herbergi í mið-
bænum. Upplýsingar i Lækjagötu 6 B.
Vetrarstúlka óskast. Ritstj. vísar á.
Herbergi til leigu. í Lækjargötu 12 fæst ágætt her- bergi til leigu nú þegar. Menn snúi sér til Hjálmtýs kaupmanns Sigurðs- konar, Lækjargötu 10 B (kjallaranum).
Nokkrir menn geta fengið fæði á Laufásveg 17, og einnig herbergi.
Lítil fjölskylda eða einhleypir piltar geta fengið leigt að Hofi, 2 eða 3 stúlkur geta fengið fæði og húsnæði á sama stað. Talsími 236.
Þrifln vetrarstúlka óskast nú þegar í gott hús í kaupstað ná- lægt miðbænum. Upplýsingar 1 Vest- urgötu 18.
Dugleg og vönduð stúlka getur fengið vetrarvist á fámennu heimili frá 1. október. Ritstj. visar á. Tvö herbergi til leigu fyrir einhleypa í Stýrimannastíg 8.
2 og 2 samstæð góð herbergi með húsbúnaði til leigu frá 15. okt. í Suðurgötu 14.
Stofa til leigu fyrir einhleypan í Tjarnargötu 3.
Gott og ódýrt fæði í Iðnskólanum.
V etrarstúlka geturfengið vist hjá sira Jóni Helgasyni í Tjarnarg. 26.
2 samliggjandi herbergi og eldhús til leigu í Nýlendugötu 19.
Kjallarapláss til leigu á Bók- hlöðustíg 8.
Herbergi með húsgögnum til leigu, Grjótagötu 10.
GÓð og dugleg stúlka óskast — Ritstj. visar á.
Herbergi með götudyrainngangi, rúmi og öllum herbergjabúnaði, fæst leigt á Kárastöðum.
Fæði ágætt fæst hjá Hólmfríði Þorláksdóttur, í húsi Jóns Þorsteins- sonar við Bjargarstig.
Lítil, ódýr íbúð við Suðurgötu 11. Semjið við Sigfús fasteignasala Svein- björnsson.
Gott kjallarapláss til leigu og 1 loftherbergi, Grettisgötu 56.
StÚIka óskast í vist á fáment og barnslaust heimili hálfan daginn. — Afgreiðslan vísar á.
Hálslín, hvitt og mislitt,
Manchettskirtur hvítar og misl.
Hálsbindi og margt fleira nýkomið
i verzlun H. Andersen & Sön.
Verðskrá
sláturfélags Suðurlands.
Fyrsta slátrunartímabil í haust
(til 15. október).
1. fl. sauðir 40 pd. og þar yfir 23 a. pd.
dilkar 28 — — 23
veturg. 30 — — 23 - —
- sauðir 33-39- — 22 - —
dilkar 25-27 — 21 - —
veturg.25-29 — 21 - —
- dilkar 18-24 — 20 - —
vg. (undir)2 5 — 20 - —
- rýrara fé — — 17 - —
- rýrasta fé — 15 - —
Mör . 30 - —
Sláturverð eins og undanfarið
(án garna).
Ökeypis leikfimiskensla
Þær stúlkur sem óska eftir að fá
ókeypis tilsögn í að kenna byrjend-
um leikfimi, gefi sig fram til undir-
ritaðrar sem allra fyrst. Stúlkur, sem
ætla sér að fást við kenslustörf út
um land ganga fyrir.
Heima frá 4—5 e. m. Vonarstræti 12.
Ingibjörg Brands.
3 ofnar
góðir og litlir óskast keyptir á
Hótel Island.
Rófur og Kartöflur
í Gróðrarstöðinni fást keyptar:
Kartöflur á kr. 4.00, 100 pd.
Gulrófur á kr. 2.50, 100 pd.
Fóðurrófur á kr. 1.25, 100 pd.
Verðið miðað við afhending á staðnum.
K © 11 8 I a • Undirritaður kennir
börnum allar lögskipaðar námsgreinar, einn-
ig fullorðnum íslenzku, dönsku, reikning,
enskn (byrjendum) 0. fl. LAgt kenslugjald.
Bergstaðastræti 45. Þorst. Finnbogason.
Snennnbær kýr til söln nú þegar. Semja
má við S. Á. Gislason. Talsimi 236.
Fortepiano
til æfinga óskast til leigu yfir vetur-
inn. Tilboð sendist strax afgreiðslu
þessa blaðs.
Atvinna.
Ungur maður, sem er þaulvanur
öllutn skrifstofustörfum og bókfærslu
og hefir fyrirtaks meðmæli, óskar eft-
ir atvinnu nú þegar. Afgr. vísar á.