Ísafold - 22.10.1910, Blaðsíða 1
Komui tvisvar í viku. Vorö árjy. (80
arkir minst) 4 kr., orlonclib 6 ki oða l1/*
dollar; bor^ist tvrir mift.jar* j*Ul (orlondÍR
f'yri x i'rami,
ÍSAFÓLD
Crpisöffn (siíriOeR) Vmudiu vib áramót, or
óarntS noma komin sé til út^otanda fyrir
1. o*rr. ''g a£* tpundi ekuMlaaR rib blabib
Afarroíbsli*: Arí/tam^M M.
XXXVII. árg.
I. O. O. P. 9310289
Forngripasafn opib hvern virkan dag 12—2
íslandsbanki opinn 10—2 */* og 5
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 aiöti. Alm. fundir fsd. og sd. 8 ‘/i sibdegis
Landakotskirkja. Gubsþj. 91/* og 8 á helgum
Landftkotsspitali f. sjúkravitj. 10 */•—12 og 4—5
Landsbankinn H-21/*, ð1/*-**1/*. Bankastj. vib lz-X
Landsbókasaín 12—8 og 5—8. Útlán 1—3
Landsbúnaóarfélagsskrifstofan opin trá 12—2
Landsféhirðir 10—2 og 6—6.
Landsskjalasafnib á þrd. fmd. og ld. 12—1
Lækning ók. i læknask. þribjd. og föstd. 11—12
Náttúrugripasafn opiö 1 l/t—21/* á sunnudögum
Tannlækning ók. Pósth.str. 14, J. og 3. md. 11—1
Lárus Fjeldsted
yfirréttarmálafærslumaður
Lækjargata 2
Heima kl. n—12 og 4—5.
Vegamótaskólinn
byrjar 1. nóv. Tekur á móti fullorðnu fólki
og þroskuðum unglingum. Undirritaður
gefur upplýsingar og tekur móti nmsóknnm.
Kárastöðum við Skólavörðustig.
Jónas Jónsson frá Hriflu.
Heima 3—4.
Utanför ráðherra.
Osannindaþvættingur inniimunarmanna
í dönskum blöðum.
Ráðherra kom til Hafnar þ. 4. okt.
Næstu dagana á undan höfðu grímu-
klæddir rógberar meðal landa vorra
fylt dönsku blöðin með frekjulegum
ósannindum, margs konar tröllaukn-
um missögnum og ranghermum um
hann. — Heilar klausur dr innlimun-
arblöðunum höfðu verið þýddar í
dönsk blöð.
Fáir mundu hatma það, að Björn
Jónsson færi frá völdum — gott að
losna við hann . . . Hann er nú
raunar til Hafnar komipn til að segja
af sér, þorir ekki að vera lengur, er
orðinn alveg ómögulegur . . . fylgi
hans líka alveg þorrið bæði af þjóðar-
innar og þingsins hálfu . . . Svona
var tónninn í grímuskrifum íslenzku
moldvarpanna. Og í hinu veifinu:
Hann kvað ætla sér þá dirfsku að fara
fram á það við konung, að fá frestað
þingi . . . Það væri kórónan á öllu.
. . . »Blessaðir, elsku Danir, látið
hann ekki komast upp með það —
til ykkar stendur öll von hins frónska
Iímm(i)stjórnarflokks. Hjá yður leit-
um vér fulltingis. Því að í Khöfn
á að vera miðstöð íslenzkra stjórn-
mála frá voru sjónarmiði. Minnist
þess, hvað við höfum unnið til mikils
hjá ykkur — við, sem börðumst móti
sjálfstæðisviðleitni Islendinga í hitteð-
fyrra, við, sem jafnan höfum reynt að
draga háð og spé að öllu þvi, sem
gert hefir verið í sjálfstæðisáttina með
hinni íslenzku þjóð. Lítið þið bara
í frónsku blöðin undanfarið. Sjáið
þið ekki, hvernig við höfum í einu
sem öllu ráðist á Sjálfstæðisflokkinn
og foringja hans, — ekkert sparað —
hvergi skeytt því, þótt við gerðum
þjóð vorri hneisu með skrifum vorum,
— vitaskuld nafnlausum, því að það
megum við til með að gera til þess
að hljóta ekki ódrengskapar-stimpil
landa vorra. — Já, við höfum ekki
lítið á okkur lagt — og nú stendur
alt og fellur með því, hvort okkur tekst
að koma Birni Jónssyni frá völdnm.
Takist 'okkur það, er von um að
hægt verði að tvístra Sjálfstæðis-
flokknnm — og þá er nú leikur á
borði: Uppkastið fært yfir höfuð
hinni íslenzku þjóð I Er ekki til mik-
ils að vinna? Hjálpið okkur, hjálpið
okkur — til að steypa Birni Jónssyni
úr völdum I Það er vor eina björg-
unar von I Hjálpið okkurl*
Slíkar bænir hafa Innlimunarmenn
haft yfir í skriftastólnum hjá dönsku
blöðunum.
Reykjavík laug’ardaginn 22. október 1010.
67. tðlublað
Og ekki ber að neita því, að dönsku
blöðin hafa bænheyrt blessaða vinina
sína — hafa reynst þeim huggunar-
ríkir skriftafeður — hirt alt, sem til
hnjóðs mátti verða stjórninni og Sjálf-
stæðisflokknum, algerlega rannsóknar-
laust. Ekki hefir sést stafur að heita
má í nokkuru blaði af rökum Sjálf-
stæðismanna eða vörnum stjórnarinn-
ar fyrir gjörðum hennar — ekkert
annað verið borið á borð fyrir danska
blaðalesendur en einhliða, ofstækis-
fullnr minnihlutaárásir á stjórnina og
frámunalega svívirðilegar persónuárásir
á ráðgjafa.
Að þessu sinni hafði, auk margvís-
legra missagna um afsagnaráform ráð-
gjafa og heilsubilun, verið þyrlað upp
ótrúlegustu sögum af franska og enska
bankamálinu. Hin ranga þýðing Jóus
Ól. á skýrslu Einars Ben. verið enn
meir afbökuð í danskri þýðingu —
og sama máli var að gegna um frá-
sagnir Þjóðólfs af franska bankamálinu.
Til þess að hrekja þessar missagnir
einu sinni fyrir alt átti ráðgjafi viðtal
við Ritzaus Bureau og sendi það öll-
um dönskum blöðum svolátandi skýrslu:
Islandsráðherrann, hr. Björn Jónsson,
sagði svo í viðrœðu, er hann átti við
mann ýrá Ritzaus Bureau, að ekki vœri
nokkur flugujótur jyrir hvtksógum peim,
er hermdar hejði verið hir í blöðum,
að Jerð ráðherrans hingað til Khajnar
lyti að Jyrirhugaðri lausnarbeiðni aj
hans hendi Jrá embœtti.
Þá gat ráðherrann pess um íslenzkar
jjármálaráðagerðir og bankastojnunar,
er borist haja á góma nýlega, að stjórn-
in íslenzka væri allsendis Jráskilin ráða-
gerðum Jyrv. sýslumanns Einars Bene-
diktssonar um ensk verzlunarjyrirtœki
og jasteignakaup á Islandi, enda væri
pau algerlega einkahagslegs eðlis og ekki
bundin neinum leyfisveitingum né íviln-
unum jrá stjórnar hálju; bankastojnun
sú, er hr. Einar Benediktsson hejði
komið upp með og enn vari óvist um,
hvort upp kœmist, pað er ráðherrann
vissi til, ætti ekki heldur við að styðjast
neina landsstjórnar-ívilnun ýrekari en
pað, að stojnunin gæti átt von á stjórn-
arleyfi til sparisjóðsreksturs, ej jullnægt
vœri lögmæltum skilyrðum til pess.
Hins vegar hejði ráðherrann í vetur
sem hið gert sér hugleikið um mála-
leitun aj hálju Jélags nokkurs um jranskt
lán til íslenzkrar lánsstojnunar, en með
pví að ekki hejði verið gengið að vaxta-
skilmálum peim, er settir voru aj Frakka
hálju, væri löngu hætt við pað mál að
eiga.
Þessi yfirlýsing ráðherra velti blekk-
inga-spilahúsi Hafsteinsliða alveg um
koll. Nú varð að fara út í aðra
sálma. Einhver skuggavaldurinn úr
Hafsteinsherbúðunum vatt sér að blað-
I
inu Social-Demokraten og taldi þvi
trú um, að ráðuneytið danska hefði
kallað ráðgjaja til Hajnar og ejtir ósk
pess mundi hann dvelja Jyrst um sinn
2 mánuði í Khöjn.
Þessi ósannindi voru vitaskuld í þeim
tilgangi tilbúin, að geta símað þetta heim.
»Þarna sæju nú íslendingar sjálfstæði
Björns Jónssonar. Hann léti bjóða
sér það tarna, hann léti danska
ráðgjafa skipa sér að koma til Hafn-
ar og dvelja þar meðan þeir vildu svo
vera láta.«
En skamma stund varð sú höndin
högginu fegin. Aðra vatnsfötuna
fengu þeir yfir sig herrarnir — og í
þetta sinni frá danska yfirráðgjafanum
hr. Klaus Berntsen. Hann sneri sér
til Ritzaus Bureau og birti það svo-
látandi yfirlýsingu í öllum blöðum.
Út aj pví, sem staðið hefir í Social-
Demokraten, að rdðuneytið hafi kvatt
tslandsráðherra Björn Jónsson til Khajn-
ar og óskað pess, að hann yrði hér að
minsta kosti 2 mánuði. lætur Ritzaus
Bureau pess getið, að hinn íslenzki ráð-
herra hefir eigi verið hingað kvaddur
aj ráðuneytinu, og að dvöl hans hér í
Khöjn veltur eingöngu d ákvörðunum
hans sjáljs, par eð ráðuneytið hefir eigi
látið í Ijósi neinar óskir í pví ejni.
Vitaskuld hættir ekki rógburður
hinna íslenzku andófsmanna, þótt róg-
tilraunirnar sé jafnóðum hraktar og
reknar af höndum.
Það virðist vera sýki orðin á þess-
um mönnum sumum hverjum, sem
nefna sig Heimastjórnarmenn og orga
sífelt og viðstöðulaust í róglúðurinn
upp í eyru Dana.
Rógburðarrýtingur skúmaskotsdýr-
anna í andófsflokknum er jafnan á
lofti ajtan að Sjálfstæðismönnum á
dönskum vígvelli, og fyrst og fremst
i bakið á manninum, er þeir hafa
valið til forystu.
Mundi til vera meiri rætnis-iðja en
Heimastjórnarmennirnir í dularhjúpn
um iðka i dönskum blöðum
Stjórnarbyltingin
í Portúgal.
Her og floti. — Skothríð í Lissabon.
Manuel konungur landflótta.
Lýðveldi komið á og viðurkent.
Braga forseti.
---- Khöfn, ,0/10’10.
Þriðjudaginn 4. þ. m. gerðust stór-
tíðiudi í Portúgal eins og síminn
hefir sagt frá. Það var að byrja
stjórnarbylting í landinu.
Kl. i1/^ um nóttina vöknuðu íbúar
Lissabonsborgar af værum svefni við
Manuel konungur. j
21 fallbyssuskot. Allir þutu út á stræti
eða út í glugga, til þess að gá að
hvað væri á seiði. Þá sást fólksfjöldi
þjótandi i allar áttir, en lúðrablástur
kvaddi menn saman. Þetta var byrjun
byltingarinnar. Þessi 21 fallbyssuskot
Theophilo Braga jorseti.
var fyrsta merkið. Lögreglan var
þegar látin vita af þessu, og hún hugð*
ist að ráða á uppreistarjuennina, en
þeir svöruðu með sprengikúlum. Nú
var kallað á herinn til hjálpar, en
nokkrar hersveitir gengu þegar á hönd
uppreistarmanna, en aðrar voru trúar
konungi. Ur þessu varð harður bar
dagi, og létust margir menn og særð'
ust. Stórskotaliðið bjóst til að skjóta
á múginn, en þá gengu margar þús
undir í stórri fylkingu alt upp að
fallbyssukjöftunum, en hinir þorðu
eigi að hleypa af, og nú gekk stór-
skotaliðið á hönd uppreistarmönnum.
Þá var mikið nnnið. Um leið og á
þessu gekk á götunum, hóf flotinn
skothríð á konungshöllina, Necessida-
des.
Þegar Manuel konungur sá hverju
fram fór, yfirgaf hann höllina með
trúnaðarmönnum sínum. Fyrstu
fregnir sögðu hann handsamaðan af
uppreistarmönnum, en síðar er það
fullfrétt,N að hann flúði til Gibraltar
á náðir Englendinga, og er honum vel
borgið þar. Þar er og frændfólk hans
komið.
Skothríðin stóð alla nóttina og
næsta dag að miklu leyti. Allsstaðar
heyrðust ópin: Lifi lýðveldið ! Að
þessum bardaga loknum, höfðu upp-
reistarmenn unnið mikinn sigur, og nú
höfðu hersveitirnar allar gefist upp, þær
er sýnt höfðu mótþróa. Um 1000
manns höfðu látist i bardaganum af
hvorumtveggja.
Lýðveldið kemst á.
Þá er friður var orðinn að mestu
leyti, var Portúgal hrópað lýðveldi
af hyltingarmönnum, og bráðabirgða-
stjórn skipuð. Forseti hennar er Theo-
philo Braga, skáld nafnfrægt og vís-
indamaður. Stjórnin gaf þegar út á-
varp til lýðsins og hljóðar það svo:
»Þjóð Portúgalsl Þjóðin, herinn
og flotinn hefir hrópað lýðveldið.
Konungsættin Bragansa, sem á glæp-
samlegan hátt og af ásettu ráði hefir
sundrað þjóðlífsfriði landsins, er bann-
færð úr Portúgal fyrir fult og alt.
Þessir atburðir eru tákn um óhemjandi
stórlæti þjóðarinnar og hreysti lands-
ins, sem i sögum er letrað, og þeir
fylla hjarta allra ættjarðarvina með
gleði og aðdáun. Þessi dagur kemur
fullkomnum enda á þrældóm þessa
lands. Hiu brennandi þrá borgaranna
eftir frjálsu stjómarfyrirkomulagi er
nppfylt, og þetta augriablik launar oss
að fullu allar þær baráttur og niður-
lægingu, er vér höfum átt við að búa.
Látið þetta nugnablik vera vísir að
blettlausri siðferðis- og réttlætisöld.
Látið þetta eina: »Fyrir þjóðinaU
verða grundvöll að stjórnmálastefnu
vorri. Borgarar! Látið að eins eitt
áhugaefni altaka ykkur: fósturjörðina,
og eina ósk glæða ykkur: samlyndi.
Lýðveldið reiðir sig á, að þjóðin haldi
á reglu og virðingu fyrir réttinum,
fórni sér sjálfri fyrir hinu sameigin-
lega málefni: frelsinu, og vinni með
kærleika og sjálfsafneitun fyrir lýð-
veldið Portúgal.«
Síðan var send tilkynning til sendi-
herra Portúgals út um allan heim um
þessa nýju ráðabreytni á fyrirkomu-
lagi landsins.
Tildrög byltíngarinnar.
Bylting þessi mun hafa verið í und-
irbúningi mörg ár, og aðalorsökin
er hrörnun landsins i fjárhagslegu til-
liti á síðari árum, eyðslusemi kon-
uugsættarinnar, mútuveldi og spilling
meðal embættismanna, o. s. frv. Bylt-
ingin byrjaði í raun réttri 1. febr.
1908, þá er Carlos konungur (faðir
Manuels) og elzti sonur hans voru
myrtir. Rannsóknir útaf því voru
afarstrangar, og illa farið með alla
grunaða og byltingamenn yfirleitt.
Ennfremur var nýlega veginn af stjórn-
arflokksmönnum frjálslyndur þingmað-
ur, Bombarda að nafni, og þessvegna
mun byltinguna hafa borið svona brátt
að. Loks er ein ástæðan talin sú,
að Manuel konungur var í þingum
við franska söngkonu og vakti það
hneyksli mikið meðal þegna hans
Þess skal getið, að svo var að
heyra í fyrstu, sem hersveitir og lands-
lýður úti í landinu fyrir utan Lissa-
bon, mundi verða andsnúinn bylting-
unni, en nú hefir það frézt, að svo
er ekki, og fögnuðurinn er mikill
hvarvetna í landinu.
Hvað segja stórveldin?
Ekkert enn, og munu líklega
ert segja við þessu. Það
er
ekk'
meira
að segja fullyrt, að byltingarmenn hafi
verið í sambandi við England áður
en þessir atburðir gerðust, og trygt
sér hlutleysi þess. Sendiherrar ýmsra
landa i Lissabon hafa farið i heim-
sókn til nýju stjórnarinnar og þykir
það vera sama sem viðurkenning hlut-
aðeigandi landa. Frakkland hefir tjáð
sig mundu viðurkenna lýðveldið þeg-
ar fullu skipulagi sé komið á í land-
inu, og eru horfur á, að það verði mjög
bráðlega. Yfirleitt er að þvi dást,
hve friðsamlega þetta hefir tekist
til, og ekki heyrst getið um rán og
gripdeildir meðan á þessu stóð, né
persónuleg hefndarverk.
A Spáni eru margir hræddir, þeir
er konungssinnis eru, um að dæmi
Portúgalsmanna sýki frá sér. Spánn
er annað ólagsríkið þar syðra, og því
eigi fyrir áð synja, nema þar verði
bylting í líka átt von bráðar.
=*=
Friðþjófur Nansen og
fundnr Ameriku.
----- Kh. 10. okt. ‘10.
Það hefir vakið mikla eftirtekt, að
Friðþj. Nansen hefir flutt fyrirlestur
i vísindafélaginu norska um fund
Ameríku. Hann neitar að íslending-
urinn Leifur hepni hafi þangað kom-
ið, og segir söguna tóma skáldsögu.
Segir hann að vísindaleg samvizka sín
bjóði sér að tala. Staðhæfingar hans
vöktu mótmæli mikil í vísindafélaginu.
Annars heíir fyrirlesturinn ekki sést
hér í heild sinni svo ómögulegt
er að vita hvaða sannanir hann heíir
fram að flytja fyrir máli sínu.
Eftirtektarverð er flónska danskra
blaða þegar þau minnast á þetta. Þau
kalia flest Leif Eiriksson Norðmann,
en segja þó, að nýlega sé búið að
reisa honum minnisvarða á íslandi(l).
=«S=
I»rjár stóraldir
eða 360 ár verða liðin 7. nóv. n.
k. frá þeim stórviðburði, er Jón biskup
Arason og synir hans voru teknir af
iífi i Skálholti. í tilefni af þvi komu
nokkrir menn saman hér i bænum
nýlega, til að hugleiða, hvort ekki
mundu tök á þvi að minnast þeirra
feðga á viðeigandi hátt þenna dag.
Varð það úr, að 5 menn voru kosn-
ir í nefnd til að hrinda þessu áleiðis,
og eru í nefndinni: Matth. Þórðarson
fornmenjavörður, dr. Jón Þorkelsson
alþm., Klemens Jónsson landritari,
Þórh. Bjarnarson biskup, og formað-
ur Stúdentafélagsins Andrés ritstjóri
Björnsson. Svo er ísafold skýrt frá,
að hugmynd nefndarinnar sé sú, að
þenna dag, 7. nóv., verði haldin hér
í bænum almenn samkoma, og þar
fluttur fyrirlestur um Jón biskup og
syni hans og atburðinn; flutt nýort
kvæði m. fl.
Sjálfsagt verður þessu vel tekið,
því Jón biskup Arason er eitt stærsta
mikilmennið, er lifað hefir með þess-
ari þjóð. Sennilegt er, að fleiri en
Reykvíkingar vildu minnast þessa af-
mælis, og ætti það að vera frekar til
uppörfunar, að vita að höfuðstaðurinn
hefir riðið á vaðið.
Fyrirlestur
Guðm. meistara Finnbogasonar, hinn
fyrsti af fyrirlestrum hans, var svo
vel sóttur, að húsið fyltist á svip-
stundu, og stórir hópar af fólki urðu
frá að hverfa, sem ekki komust inn.
Sýndi það sig hér sem oftar, hve hús-
rúmsleysi bagar tilfinnanlega hér í höf-
uðstaðnum. ísafold byrjar aðflytjaþenna
fyrirlestur Guðm. í dag. Hinir fyrir-
lestrarnir verða ekki birtir að svo
stöddu.