Ísafold - 18.12.1910, Side 1
Kemvu út. fcviwvar i víku. Verft ára;. (80
arkir minst) 4 kr. eriencti* 5 k« efta, 1 l/a
dollar; borRÍsfc fyrir mi^jaxi jdli (eriendis
fyrir fram).
AFOLD
UnPHÖfni (akrifloR:) bnndin viö á.raxnót, er
ófiriid nema komln só fcil átgefanda fyrir
1. ofrfc, aanpandi sknldlna^ vib blaöib
Afyreib^lít • An»tnr?«trwst.i H,
XXXVII. árg.
Reykjavík laugardaginn 18. desember 1910
80. tölublað
SllflriQinn^rlðlllfl Landsbankans verður lokuð frá og
wpcn iqjuuqugiiu með 2l þ mán til nýárs
Öllum Öðrum bankastörfum verður gegnt þessa daga frá kl n f. h. til
kl. 21/2 e. h. (á eftirmiðdögum ekki). Þó verður hlaupareiknings og reikn-
ingsláns viðskiftum ekki sint 2 síðustu daga ársins.
Landsbankinn, 15. desember 1910.
Bankastjórnin.
I. O. O. F'. 9212169
Faxaílóagufubáturinn lngólfur
fer til Garðs 18. des.
J^ágr- Næsta blað kemur
út á miðvikudag: 21., en
á laugardag (aðfan«fadag)
kemur ekkert biað.
A þessu viljum vér vekja eftirtekt !
þeirra, er þurfa að koma að aug- j
lýsingum fyrir jólin.
Bókasafn Alþ. lesfcrftrfél. Pósfcliússfcr. 14. 5—8.
Fornsrripasafn opib s þri. og fmd. 12—2
íslftndsbanki opirm 10— 2 */* ofí 5
K F. U. M. Lfistrur-og skril'Stofft frá S árd, fcil
10 slhd. Alm. fmidir fsd. oer sd. 8*/« slMeíjifl
handftkofcslcirk,)R. flubaþj. osr R A holgum
La.ndttkot.aspltali f. sjúkravit.j. 10 V*—12 oy 4—5
Lftndsbarkinn lt-21/*, 5*/*-^/*. Bftnkastj. vift 1>2
LandshókRsafn 12—8 og: 5—8. Útlan 1—8
LHndsbúnaha.rfólíi8:3skrifstofan opin trA 12—2
Landsíéhirhir 10—2 og 5—0.
Lftndsskjalasafni?) á þrd. fmd. og ld. 12—1
Laikning ók. í læknask. þribjd. og föstd. 11—12
NAttúvugripasftfn opib 1 a/«—2*/t A sunnudögum
Ókeypis eyrna-, nef- og hAlslækning Pósthús-
sfcræti 14 2. og 4. fimtud. í hv. mánuði. 2—8.
Tannlækning ók. Pósth.str. 14, 1. og 8.md, 11—1
Lárus Fjeldsted
yíirréttarmálafærslumaður
Lækjargata 2
fleima kl. n —12 og 4—5.
Ráðgáia nútímans!
Spurningin sem nú er efst á dagskrá, er ekld hvort við
eigum að hafa faktúrutoll eða farmtoll eða nokkurn annan
toll, heldur hvað kolin vigta mikið í Edinborgar glugg-
anum Þess nær sern dregur þeim degi þegar menn verða
vissir um, hverjir hafa gizkað rétt eða nær þvi rétta, þess
ákafari verða þeir með að komast næst því rétta. —- —
Menn hafa yfirleitt tekið svo vel í þetta, að verzlunin
hefir ákveðið að bæta ennþd einum verðlaunuin við, og í
staðinn fyrir að bæta gráu ofan á svart, bætum við svörtu
ofan á grátt með því að gefa þeim sem verður næstur
þeim 81. kolin. Hve mikils virði þnð er, sem sá síðasti
fær, er okkur ómögulegt að segja nú, framtiðin getur
lej^st úr þvi, en við vonum að sá sem það hreppir, verði
ekki síður ánægður en hinir.
Til jólanna seljum við:
27.90 Frönsk sjöl á 15.00 11 50 Lilla-blúsur á 5.95
30,00 Búar á 18.00 29 50 Kápur á 20.00
7 50 Borðteppi á 5.50.
Verzlunin Edinborg, Reykjavik
Kosningarnar á Bretlandi
Fyrstu kosningafregnir.
---- Kh. 5. des. ‘10.
Eins og getið var um síðist, var
enska þingið rofið 28. f. m. og nýjar
kosningar fyrirskipaðar. Lansdowne
hafði áður látið efri málstofuna sam-
þykkja ályktun um samband deildanna
eftirleiðis. Voru þær i þá átt, að eft-
irleiðis yrði deilumál milli deildanna
borin undir almenningsatkvæði þá er
um stórmál væri að tefla, en minni
mál útkljáð af sameiginlegri nefnd,
er báðar deildir skipuðu. Þessu gátu
framsóknarmenn vitanlega engan veg-
inn gengið að og töldu þetta vera
eflingu en ekki eftirgjöf á valdi efri
málstofunnar.
Kosningabaráttan er hin harðasta
þó að úndirbúningur sé eigi langur.
íhaldsmenn hafa látið tolltillögur sín'
ar liggja milli hluta að þessu sinni og
er jafnvel búist við að þeir græði á
því. Framsóknarmenn hafa einhverju
sinni stungið upp á því við íhalds-
menn, að tollbreytingafrumvarp þeirra
(verndartollur) yrði borið undir al-
menningsatkvæði. Þessu hefir Balfour
nýlega á þingmálafundi svarað játandi
ef framsóknarmenn vilja gera slíkt
hið sama við frumvarpið um heima-
stjórn írlands. En Asquith er með
öllu mótfallinn almenningsatkvæði og
telur það ríða í bág við eðli þing-
ræðisins.
Kosningarnar hófust á laugardaginn,
var (3. þ. m.) og er þeim eigi lokið
fyr en seint í mánuðinum. A laug-
ardaginn voru kosnir 63 íhaldsmenn,
51 framsóknarmaður, 7 verkflokks-
menn og 5 Redmondssinnar. Hafa
íhaldsmenn unnið 7 sæti, en fram-
sóknarmenn 4.
Kosningar þessar náðu aðallega til
Lundúna og fleiri kjördæma á Suður-
Englandi, þar, sem íhaldsmenu eru
rótgrónastir, og er því eigi vel að
marka þó að þeim hafi aukist nokk-
urt fylgi þó að kosningar fyrstu dag-
ana virðist hinsvegar oft hafa áhrif á
síðari kosningar.
íhaldsmenn eru annars ekki jafn-
ánægðir yfir kosningunum á laugar-
daginn og þeir höfðu búist við, en ef
þeir fikra sig jafnmikið áfram blut-
fallslega við síðari kosningar, á stjórn-
in allörðugt fyrir og verður líklega
að segja af sér. Meirihluti frambjóð-
enda þeirra er sigrað hafa, er annars
ákaflega líkur og í janúarkosningunni
síðast, en kjörsóknin er ekki eins
mikil og þá, sakir þess að margir
kjósendur eru fluttir í önnur kjör-
dæmi og geta eigi greitt atkvæði og
eins sakir óveðurs.
Þá er þingið var rofið var flokka-
skipunin þannig: 274 framsóknar-
menn, 274 íhaldsmenn, 72 irskir
þjóðflokksmenn, 40 verkflokksmenn
og 8 óháðir írar.
í dag um hádegi stóðu kosningarn-
ar þannig: 65 íhaldsmenn, 52 fram-
sóknarmenn, 8 verkflokksmenn og 5
Redmondssinnar.
m \§Á M
m WM)
?/'
JionuriQur Brefa og fjoíztu sfjórnmáfagarpar.
í efstu röð, frá hægri til vinstri
Georq V. konungur, Asquith yfirráð-
gjafi, Lloyd George fjármálaráðgjafi.
í annari röð: Balfour foringi
íhaldsmanna, Lansdoume, lávarður,
Redmond, foringi irska flokksins hins
meiri.
í þriðju röð: O’Brien, foringi írska
flokksins hins minni, Rosehery lávarð-
ur og Churchill verzlunarráðgjafi.
I neðstu röð Crewe lávarður, verk-
flokksmennirnir Keir Hardie og Barness.
Georg V, hefir enn eigi látið mikið
á sér bera á konungsstóli — en allar
horfur á, að hann muni trúlega feta
í fótspor föður síns Játvarðs VII. og
gæta þjóðræðis í landinu.
Asquith yfirráðgjafi er gætinn mað-
ur, en atkvæða-foringi og fylginn sér.
Lloyd George er einhver dugmesti
og harðvítugasti maðurinn í ráðuneyt-
inu og flokknum yfirleitt, afburða
mælskumaður og kosningagarpur.
Hann lagði fyrir þingið fjármálafrum-
varp það, sem efri málstofan neitaði
að samþykkja fyr en borið væri und-
ir atkvæði þjóðarinnar með nýjum
kosningum. Þetta er grundvöllurinn
undir baráttu þá, er nú er hafin milli
málstofanna og búist er við að kosn-
ingar þær ráði til lykta, er nú standa
yfir.
Balfour, fyrv. yfirráðgjafi er fyrir
íhaldsmönnum. Hanti er ötull mað-
ur og vel máli farinn.
Lansdowne er foringi íhaldsmanna í
efri málstofunni. Frá honum var
ályktun málstofunnar í fyrra um að
bera fjármálafrumvarpið undir nýjar
kosningar. Hann bar og nýlega upp
í málstofunni, áður en þingið var
rofið, ályktun um samband deildanna
eftirleiðis svo sem getið er á öðrum
stað hér í blaðinu.
John Redmond er foringi hins stærra
flokks af Irum. Hann fylgir nú fram-
sóknarmönnum ötullega að. málum,
en mun eigi taka steininn í staðinn.
Hann heimtar sem sé heimastjórn
fyrir írland og má telja víst að Asquith
hefir eigi fylgi hans né íra nema
stjórnin styðji heimastjórnarfrumvarpið.
Landi hans OeBrien stýrir hinum
minni Iraflokki, eða 23 manna flokkn-
um. Hanli er að mörgu leyti ósam-
mála Redmond og er í sambandi við
íhaldsmenn við kosningar þessar.
Rosebery var áður yfirráðgjafi og
framsóknarmaður, en nú er hann far-
inn að hallast á hina sveifina. Hon-
um er sem sé sjálfum ait annað etl
vel við eigna- og erfðaskatt, því að
hann er ríkasti maður á Bretlandi, á
meðal annars heil borgarhverfi í
Lundúnum.
Churchill verzlunarráðgjafi gengur
næst Lloyd George að kappi og ötul-
leik. Kvenréttindakonurnar látaa reiði
sína bitna mjög á honum. Nýlega
hótuðu þær því að nema á brott
dóttur hans og skila henni eigi aftur
fyr en kvenréttindafrv. væri samþ. f
neðri málstofunni.
Crewe lávarður er helzti maður
stjórnarinnar í efri málstofunni og
heldur uppi svörum fyrir hana þar.
Keir Hardie og Barness ráða fyrir
verkmannaflokknum eða jafnaðarmönn-
um. Hinn síðastnefndi er foringi
flokksins í orði kveðnu, en Keir
Hardie er annars langfremsti maður-
inn í flokknum. Verkmannaflokkur-
inn styður stjórnina öfluglega gegn
lávörðunum og eru í félagsskap við
framsóknarmenn í kosningabaráttunni,
þingmannaframboðinu o. s. frv.