Ísafold - 11.02.1911, Side 1
Kenmi út tvisvar i viku. Verö Arg. (80
arkir minst) 4 kr. erlendis 5 ki ef»a l1/*
dollar; borgrist fyrir mibjan júli (erlendis
fyrir fram).
ISAFOLD
Urpsögn (skrifleg) bnndin viö Aramót, er
ógild nema komln sé til útgefanda fyrir
1. okt. eg aaapandi skuldlans. vib blabib
Afgreibsla: AnstarstrsBti 8.
XXXVIII. árg.
I. O. O. P. 922179
Bókasafn Alþ. leatrarfél. Pósthússtr. 14 5—8.
Forngripasafn opiö si. þrd. og'fmd. 12—2
íslandsbanki opinn 10—2‘/t og 51/*—7. ,
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 sbd. Alm. fnndir fsd. og sd. 81/* sibdegis.
Landakotskirkja. Gaösþj. 9*/* og 8 á helgnm
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—5
Landsbankinn 11-2 */*, S1/*-^1/*. Bankastj. viö 12-2
Landsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—3
Landsbúnaöarfélagsskrifstofan opin trá 12—2
Landsféhiröir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafniö á þrd. fmd. og ld. 12—1
Landsiminn opinn virka daga 8 árd. — 9 siðd.
helga daga 8—11 og 4—6.
Lækning ók. i læknask. þribjd. og föstd. 11—12
Náttúrngripasafn opiö l1/*—21/* á sunnudögum
Ókeypis eyrna-, nef- og hálslækning Pósthús-
stræti 14 2. og 4. fimtud. i hv. mánuöi. 2—8.
Tannlækning ók. Pósth.str.14, 1. og 3. md. 11—1
Taxafíóagufubát. Ingótfur
fer til
Borgarness 19. og 24. febr.
Garðs 13. 2i. og 28. febr.
Svarti bletturinn.1
Svo nefni eg þingmálafundina í
Reykjavik 24.—27. jan. s. 1., í heild
eða samanlagða.
í bók sögunnar um frelsisbaráttu
og sjálfstæðisþrá vora, hafa fundir
þessir sett ljóta blekklessu í stað fram-
sóknar og eggjunarorða.
Höfuðstaður landsins hefir jafnframt
atað auri ásýnd sjálfstæðismyndar ís-
lendinga, þeirrar myndar, sem að öðr-
um þjóðum snýr.
1. í sambandsmálinu
vildi svarti bletturinn — að vísu með
litlum atkvæðamun — samþykkja inn-
limunarfrumvarpið alræmda.
Hvað þá? Það, að segja við Dani:
Við viljum gefa ykkur fé — leggja á
borð konungs — svo og svo mikið
til þess að þið ráðið því einir, hvað
við annars ættum að segja við allar
aðrar þjóðir og þyrftum að semja við
önnur ríki. Við viljum láta ykkur
ráða fyrir hermálunum og vefjast með
ykkur i þeim — sem við erum þó
lausir við og ættum að geta verið
lausir við framvegis — o. s. frv.
Og þessi réttindi vor viljum við nú
gefa ykkur fúslega, og afsala þeim til
ykkar löglega, þrátt fyrir það, þó eng-
inn góður íslendingur og sannur föð-
urlandsvinur hafi viljað gera þetta —
á tíu öldum.
2. Fjárveitingu til viðskiftaráðunauts.
vill svarti bletturinn fá úr lögum
numda, með ótrúlega yfirgnæfandi
meirihluta.
Viðskiftaráðunautar eru hið eina,
sem íslendingar geta enn þá sýnt
öðrum þjóðum sem vott um sjálf-
stæði þeirra og menning út á við.
Þenna fyrsta vott framsóknar og
sjálfstæðis vill svarti bletturinn drepa
i fæðingunni. — Ekki blæs byrlega í
höfuðstaðnum fyrir skilnaði —.
Langt er siðan bændur óskuðu þess
að fá íslenzkan verzlunarerindreka
eða viðskiftaráðunaut i öðrum lönd-
um, bæði til þess að greiða fyrir við-
skiftastörfum landsmanna, og líka til
þess að auka menning vora, veg og
gengi meðal mentaþjóðanna.
Fyrsti viðskiftaráðunauturinn virðist
hafa skilið hlutverk sitt mjög vel.
Hann hefir beitt kröftum sínum til
þess fyrst og fremst að fræða aðrar
þjóðir um hag vorn og háttu, leitast
við að opna stærri heim en danska
ríkið fyrir viðskifti vor, verzlun, sam-
göngur, bókmentir, listir og vísindi.
Hann vill ekki að vér vörpum allri
vorri áhyggju á Dani og leggjum all-
ar þarfir vorar í þeirra skaut. Af
þessu mætir hann árásum frá þeirra
hálfu, og af þvi vilja dýrkendur Dana
hér fyrir alla muni' víkja honum úr
vegi. Og ekki að eins honum (B. J.),
heldur segja þeir: »Burt með alla
slíka«.
1 Mjög merkur bóndi og mætur hefir beðið
Ieafold fyrir þessa þörfu ádrepu:
Geta bændur út um landið þolað
slíka ósvífni, slíka fyrirlitning fyrir
sóma þjóðarinnar og brýnustu þörf-
um hennar?
3. Ráðherrann
sem nú er, vill svarti bletturinn um
fram alt breiða sig yfir.
Af hverju ?
Af því hann starfar með eldmóði
og stuðlar til þess að bæta hag al-
þýðu, auka atvinnu, styðja framleiðslu,
greiða samgöngur og viðskifti, útrýma
áfengi, lagfæra fjárhaginn, tryggja
peningastofnun landsins o. s. frv.
Af því hann stendur utanvið lands-
meinið — höfðingjahringinn — og
hefir stungið óþægilega á kýlinu.
Af því hann getur látið svo lítið,
að telja bændur landsins jafningja
sína — metur þá meira en sauði og
vilja þeirra og þarfir meira en ngolupyt«.
I fæstum orðum sagt.
Af því hann gerir þjóðinni gagn,
og hikar ekki við að leggja sjálfan sig
í hættu móti öllum höfðingjahringn-
um, ef þörf almennings krefur.
Hann unir ekki þvi einu, að liggja
í værð og sitja í veizlum.
Hann kann ekki að vera hugsunar-
lítil og dáðlaus rola.
Svoleiðis mun þó svarti bletturinn
vilja hafa þann er í ráðherrasætinu
situr.
Þá gætu höfðingjarnir i Reykjavik
vafið honum um fingur sér. Þá gætu
þeir einir ráðið flestu á þingum og
milli þinga.
Til pess er leikurinn gerður.
Og lægristéttar kjósendur æði marg-
ir fylgja i blindni höfðingjasveitinni,
gætandi ekki þess, að þeir með því
hjálpa böðlunum til að hýða sig.
Bændur, sem á þingi eruð, ætlið þið
að þola þetta?
Bændur og kjósendur, sem hér i
sveitunum búið, gætið þess vel hvað
þingmenn ykkar gera, og endurgjaldið
þeim að maklegleikum við næstu
kosningar.
Bóndi.
-----*■----
+
Jón Þórðarson
kaupmaður,
einn af nýtustu borgurum þessa
bæjar, fanst örendur í fjörunni út við
»Battaríið« að morgni þess 1. þ. m.
Eg get hugsað, að mörgum hafi
farið likt og mér, að þá hafi sett hljóða
þegar þeim barst þessi sorgarfregn,
því Jón sál var vinmargur mjög.
Það er því likast sem menn heyri
þrumur dynja í heiðskíru lofti þegar
mönnum berast svo óvænt og snögg-
lega andlátsfregnir kunningja sinna.
Menn trúa naumast sínum eigin eyr-
um.
Lif Jóns sál og æfiferill var fyrir
margra hluta sakir svo merkilegur, að
vel er þess vertrað geta hans ræki-
lega; en ekki er hér hægt að fara
langt út í að segja æfisögu hans, enda
hafa önnur blöð drepið á helztu at-
riðin nú eftir lát hans. Ennfremur geta
þeir sem vilja lesið æfiágrip Jóns heit-
ins í Templar 1906.
Jón sál. Þórðarson var fæddur 3.
janúar 1854 að Leirárbakka á Landi i
Rangárþingi. Hann ólst upp hjá skyld-
fólki sínu í Landmannahreppi, með
því að foreldrar hans voru efnalítil
og hlaðin ómegð. Vorið 1882 reisti
hann bú í Ártúnum í Mosfellssveit.
Árið áður hafði hann kvongast Þor-
björgu Gunnlaugsdóttur, ættaðri úr
Fljótshlíð, er lifir mann sinn.
Þeim hjónum varð ekki barna auð-
ið, en tóku til fósturs systkinabörn
sín, og arfleiddu sum þeirra. Eitt
þeirra er Þórður Lýðsson, sem nú
veitir verzluninni forstöðu.
í 6 ár bjuggu þau hjónin í Laugar-
nesi við Reykjavík, en 1891 fluttust
Reybjavík 11. febrúar 1911.
þau til bæjarins og byrjuðu þá verzlun,
sem hefir aukist og margfaldast, en
tekið ýmsum breytingum eftir því,
sem árin liðu.
Á síðustu árum var hann orðinn
með efnaðri borgurum þessa bæjar og
stóð æði framarlega í öllum framfara-
fyrirtækjum.
Það er því næsta eftirtektarvert, að
Jón. sál. kom fyrir 29 árum fótgang-
andi austan af Rangárvöllum ásamt
konu sinni og settist að í Ártúnum,
að þá áttu þau naumast annað en föt-
in sem þau stóðu í; en eftir þann
tíma hefir hann sýnt mönnum hvað
sterkur vilji megnar. Það sem hann
vann sig áfram í lífinu á hann að
þakka dugnaði sínum, ráðdeild og sér-
stakri reglusemi. Hann hefir sýnt
það í verkinu, að »hver er sinnar ham-
ingju smiður.«
Jón heitinn var frábær elju- og
starfsmaður, áhugasamur um öll fram-
faramál og var fremstur í flokki að
reyna nýjar atvinnubrautir.
Hin íslenzka verzlunarstétt hefir mist
hér ötulan samverkamann. Hann var
orðinn einn af öflugri kaupmönnum
íslenzkum, og er það skaði mikill að
hans misti svo snemma, því að ís-
lenzk verzlunarstétt er eitt af fram-
faraskilyrðum íslands, en hún hefir
átt mjög erfitt uppdráttar og má þvi
fyrir engum óhöppum verða.'
Það bagaði Jón heit mjög á seinni
árum hversu hann hafði farið á mis
við alla mentun í uppvextinum, og
hann var áreiðanlega orðinn sann-
færður um það, að orðtækið: »bók-
vitið verður ekki látið í askana*, er
hættuleg kenning og mjög villandi.
Fyrir 11 árum hætti hann við vín-
verzlun, sem hann hafði rekið áður,
og gjörðist Good-templar, og var upp
frá þvi hinn ötulasti starfsmaður regl-
unnar og styrkti hana á marga lund.
Hann var einn með þeim fyrstu
er gjörðist »Oddfellow« hér á landi,
og var, þar með lif og sál, eins og
alls staðar þar sem hann átti hlut að
máli.
fón heitinn var mjög góður stuðn-
ingsmaður frikirkjusafnaðarins hér í
Reykjavik, vann þar margt verk og
sat þar í stjórn til dauðadags.
í niðurjöfnunarnefnd Reykjavikur
sat hann um mörg ár, og svona mætti
halda áfram að telja upp mörg dæmi,
sem sýna hvilíkur starfsmaður Jón
sál. var, og hvilíkt traust menn al-
ment báru til hans.
Jón kaupmaður var sjálfstæðismað-
ur hinn bezti; hann var frjálslyndur
framfaramaður í skoðunum og fylginn
sér þótt hægt færi. Hann var með-
limur Landvarnarfélagsins á siðari ár-
um, sem fór að líkum, þvi áð hann
var islenzkur vel í öllum hugsunar-
hætti.
Hann var hæglátur og stiltur vel,
en »þéttur á velli og þéttur í lund«.
Gestrisinn var hann mjög, góður heim
að sækja og bóngóður fremur flestum
öðrum.
Allir sem þektu Jón sál. finna það
glögt, að skarð það sem orðið er við
fráfall hans verður vandfylt.
Að lokum get eg ekki stilt mig um,
að geta hér orða, sem hann sagði
einu sinni við mig, er eg átti tal við
hann; mér finst þau lýsa betur hugar-
fari hans en langar ræður.
Eg spurði hann hvers vegna hann
hafi gerzt kaupmaður og svaraði hann
á þessa leið: »Það gjörði eg sökum
þess að mig hefir altaf langað til að
láta eitthvað gott af mér leiða, og
skoðun mín var sú, að eg hefði betri
tök á að koma einhverju þörfu til
vegar í þessari stöðu*.
B. B.
8. tölublað
Þingmálafundir.
íaBorgarnesi
var þingmálafundur haldinn síðastliðinn
laugardag. Rúmir 100 kjósendur sóttu
fundinn, Sjálfur þingmaðurinn var eigi
viðstaddur — komst eigi vegna ófærðar.
í sambandsmálinu komu fram 2 til-
lögur, önnur frá Sigurði Sigurðssyni í
Arnarholti og fól í sór ánægjuyfirlýs-
ing til síöasta alþingis fyrir meðferð sam-
bandsmálsins. Hún var feld með 52
atkv, gegn 49. Önnur tillaga frá Jó-
hanni í Sveinatungu — í gagnstæða átt
var t a 1 i n samþykt með 53 atkv. gegn
52 — 1 — eins-atkv. mun. En góðir
menn, sem á fundinum voru vefengja,
að atkvæöatalan sé rétt hermd — og
fullyrða að þó nokkrir menn, sem eigi
voru á kjörskrá hafi atkvæði greitt í
sambandsmálinu — með innlimunartillög-
unni. Enda benda önnur málalok á
fundinum til þess.
StjórnarskrárbL'oytingar vildi fund-
urinn hafa ymsar, þó því aöeins, að að-
stöðu vorri í sambandsmálinu yrði hvergi
spilt.
Landsbankamálið. Jóhann í Sveina-
tungu bar upp tillögu, um að fundur-
inn teldi Kr. J. og E. Briem löglega
gæzlustjóra og krefðist, að þeim yrSi
full uppreisn veitt á þingi. Tillagan var
feld með 43 atkv. gegn 31.
Aðflutningsbannið. Samþykt áskor-
un til þings um að halda fast viS bann-
lögin — með miklum meirihluta.
Fast þingfararkaup aðhyltist fundur-
inn með öllum greiddum atkvæðum.
Ferðaáætlanirmillilandaskipanna vildi
fundurinn láta gera svo úr garði að skip
kæmu til Rvfkur frá útlöndum 14. hvern
dag.
Nýjar brýr vildi fundurinnn fá á
Hvítá og Urriðaá.
Akranesfundinum
þ. 27. jan. var sk/rt frá lauslega í ísa-
fold um daginn. Bankamálstillagan, er
samþykt var meS 96 samhlj. atkvæðum
hljóðaði svo: Fundurinn skorar
á alþingi að rannsaka ítar-
lega hið svokallaSa Lands-
bankamál og lagfæra það sem
þörf kann að vera á í þeim
e f n u m. Stjórnarskrármálið: Afnám
konungkjörinna þingmanna, skilnaöur
ríkis og kirkju með einföldum lögum,
kosningarróttur og kjörgengi kvenna,
alt samþykt með 135 samhlj. atkv. —
Tillaga um að 2/8 atkv. þurfi til /msra
fjármálaráðstafana og um fast þingfarar
kaup samþ. með 41 atkv. gegn 26.
Aðflutningsbann: Samþ. áskorun til
þings um að víkja í engu frá frá bann-
lögunum með 51 atkv. gegn 5. — Yfir-
setukonnr vildi fundurinn hafa betur
launaðar og launin greidd úr landssjóði.
Varfærni í bitlingaveitingum og af-
nám eftirlauna átti sór fylgi fundar-
manna. Landhelgislínuna vildi fund-
urin miða við y z t u a n n e s og skoraöi
á alþingi að garfa í því. Viðskiftaráðu-
nauturinn: Tillaga um að fella burtu
fjárveitingu til hans var f e 1 d með 50
atkv. gegn 20.
í Skagafirði
voru haldnir 5 þingmálafundir seinustu
janúarvikuna: á SauSárkrók, Hofsós,
Kolkuós. Reykjum og Haganessvík.
Ókleift að sk/ra nákvæmlega frá öll-
um fundunum — heldur aðeins frá úr-
slitum helztu mála.
Sambandsmálið. Tillögur sjálfstæðis-
manna, er í sór fólu þakkir til þingsins
síðasta fyrir meðferð sambandsmálsins
fengu alls á öllum fundunum 117 atkv.
en móti voru 63, — svo að s j á 1 f -
stæðissigurinn í Skagafirði má
heita mjög glæsilegur; sjálfstæð-
ismenn nærri helmingi liðfleiri.
Bankarannsóknin: Á H o f s ó s -
f u n d i n u m (50—60 kjósendur) voru
með miklum meirihluta sam-
þyktar tillögur er töldu rannsóknina á
Landsbankanum »þ a r f t verk og
réttmœttt og æsktu þess, aðbanka-
málið yrði útkljáð á þessu þingi — Á
Kolkuósfundinum (20 kjósendur 1
samþyktar samskonar tillögur með s a m-
hljóSaatkv. — Á Haganess
víkurfundinum, samþ. tillaga um
aS taka bankamálið fyrlr á þessu þingi og
útkljá það.
Á S a u ð á r k r ó k s - f u n d i n u m
samþykt tillaga um að skora á þingiS
aS taka bankamálið til alvarlegrar íhug-
unar. Á Reykjafundinum samþ.
tillaga frá Rögnvaldi í Róttarholti sam-
hljóða Lárusartillögunum reykvísku um
að skipa rannsóknarnefnd til að rann-
saka gerðir ráSherra í bankamálinn og
nokkurum öðrum málum.
Traust á ráðherra: Á H o f s ó s -
fundinum og Kolkuósfund-
i n u m var samþykt svofeld trausts-
yfirl/sing til ráðherra:
Fundurinn þakkar núverandi rdð-
herra framkomu hansi ýmsum velferð-
armdlum þjóðarinnar 0g lýsir yfir fullu
trausti d honum.
Tillagan samþ. á Hofsós meS 26 atkv.
gegn 7, á Kolkuósi með 9 gegn 3.
Á H a g a n e s v í k u r f u n d i n u m
kom engin tillaga fram. Á Sauðár-
króksfundinum og Reykjafundi var van-
trausti 1/st á ráðherra á Reykjum með
17 : 7 atkv., en á Sauðárkrók meS 27
samhlj. atkv. En þau atkv. eru svo
tilkomin, að allir sjálfstæðis-
menn, 29 talsins, gengu af
fundi, er innlimunarmenn
drápu s j ál f s t æð i s t i 11 ö gu n a
í sambandsmálinu. Notuðu inn-
limunarmenn þá tækifærið og smeltu á
vantraustsyfirl/singu, sem feld hefði
veriS, ef sjálfstæðismenn, 29 talslns,
hefðu á fundi verið.
Stjórnarskrármálið: Á öllum fund-
unum komu fram áskoranjr um stjórn-
arskrárbreytingar líkar og á öðrum þing-
málafundum og voru samþyktar þvínær
í einu hljóði. Á sumum fundunum var
sá varnagli sleginn aS veikja eigi aðstöðu
íslendinga í sambandsmálinu með stjskr.-
breytingu.
Aðfhitningsbannið: Fastheldni við
það samþykt á Hofsós með 25 : 17, á
Kolkuós með samhlj. atkvæðum, í Haga-
nesvík með 22 : 15, á Sauðárkrók meS
24 : 17. En f r e s t u n bannlaga tll
n/rrar atkvæðagreiðslu um þau samþ.
á Reykjafundi með 20 : 11 atkv.
Skattamál: Tveir fundanna, SauSár-
króks og Reykjafundur vildu láta land-
ið taka að sór tóbaksverzlun alla til að
ná upp tekjum í stað áfengistollsins.
Kolkuósfundur mælti með tolli á mun-
aðarvörum, einkum tóbaki og óáfengum
drykkjum, og lágum tolli á kaffi og
sykri.
Kvenréttindi: Á öllum fundunum
samþykt tillaga um að veita konum
fult jafnróttivið k a r 1 m e n n.
Yfirdónmrinn: Hofsósfundurinn sam-
þykti með 34 atkv. gegn 2 tillögu um
að afst/ra því með lögum að dómarar
fáist við opinber mál utan skyldustarfa
þeirra.
Konungkjörnir þingmenn : Óánægju-
yfirl/sing yfir setu þeirra á 4 regluleg-
um þingum var samþykt á Hofsós- og
Kolkuósfundinum, en yfirl/sing í gagn-
stæða átt á SauSárkróks- og Reykja-
fundi.
Færsla þingtímans : Þingfrestun til
sumars aðhyltist Kolkuósfundurinn, og
stakk upp áaðsetja þing jafn-
an 17. júní, afmælisdag Jóns
forseta, en á Sauðárkrók voru 20
atkvæði móti færslunni, en 16 með benni.
Eftirlaun, einkum eftirlaun ráöherra,
vildu tveir fundirnir afnema. Hinir
mintust eigi á þaS.
Hlutabréf í íslandsbanka: Állir
fundirnir tjáðu sig mótfallna kaupum á
hlutabréfum í íslandsbanka af landsjóðs
hálfu.
Enn var hreyft á fundunum /msum
hóraðsmálum t. d. um að rannsaka brú-
arstæði á vestur-ós Hóraðsvatna.
Austur-Barðstrondingar
hafa átt með sór í f. mán. þingmála-
fundi á 3 stöðum: í Berufirði 25. jan.
úr Reykhólahreppi og Geiradals, úr
Gufudalshreppi í Gufudal neðri s.d. og
úr Múlahreppi undir Múla á Skálmar-
nesi 20. jan.
Berufjarðarfundurinn var fulltrúafund-
ur — 10 fulltrúar, og st/rði Ólafur