Ísafold - 02.12.1911, Side 3
ISAFOLD
391
1
8
Landsins stærsta klæðaverzlun
H. Andersen & Sön
í Aðalstræti
hefir ávalt mikið úrval af alls konar
fataefnum.
stálbindi. -Þær verða ódýrari og miklu
endingarbetri en pappír.
Jacquardveýurinn er hugvitssmíði,
sem Edison dáTst einna mest
að. Á vefstól eru látnar pappa-arkir,
með kyrfilega niðurröðuðum götum,
og eftir örstutta stund er búið að vefa
»Faðir vor« með silkistöfum. Pappa-
arkirnar eru svo færðar Iítið eitt til.
Út kerour þá tnynd aj Roosevelt. Eftir
sama lögmáli og er í þessum vef —
kemur að því, að hægt verður að
leggja tvinna, hnappa og pabpír inn í
annan endann á þar til gerðri vél og
fullgerður fatnaður kemur út úr hin-
um endanum. Þessi vélavinna verður
margfalt ódýrari en vinna mannsins
af því hægt verður að framleiða þau
ósköp tiltölulega. Þess verður eigi
langt að bíða, segir Edison, að sein-
asta stúlkan saumi seinasta stingiun
i saumavél sinni. Pils og peysur,
kjólar o. s. frv. — alt verður þetta
búið til á fáum augnablikum — með
þar til gerðum vélum. — Alt, nema
ef til vill kvenhattar, segir Edison og
brosir.
Tíðræddast verður þó Edison um
peninqa — þ. e. ekki silfur eða kop-
ar, bankaseðl? ecia skuldabréf — nei
um gullið. Gulláfergjan mun fara
minkandi, gullið verður jafnalment
og járn. Engum mun detta í hug að
þiggja gull fyrir vinnu sina. Engin þjóð
mun nota gullmynt. Svona breytast
tímarnir, segir Edison, þegar svo er
komið, að hægt verður að búa til gull.
— Hugsanlegt er, að aðferðin til
að búa til gull verði fundin alveg eins
i dag eins og á morgun, segir Edi-
son. Og eitt er vist: hún verður
uppgötvuð. Aðferðin til að búa til
gull stendur í sambandi við eina hlið-
ina á breytileik JrnmeJnanna. Munur-
inn á silfri og gulli er fólgiun i því
einu, að frumeindunum er öðruvísi
raðað i gullinu en silfrinu, en þær
eru alls ekki ólíkar. Hver veit nema
radíurn eða þá eitthvert annað efni
geti verkað þannig á frutneindaröðun-
ina, að dýri málmurinn verði ódýr
og ódýri málmurinn dýr! Radíum
er dásamlegur málmur — heldur Edi-
son áfram. En vér þekkjum nærri
engin deili á þvi enn. Einn góðan
Veðurdag lásum vér i blöðunum, að
það væri fundið. Á morgun lesum
vér ef til vill um eitthvað enn dásam-
legra. Það er nú unnið að þvi utn
allan heim að komast fyrir leyndar-
dóm frumefnanna. Hver ný upp-
götvun ryður braut þeirri næstu. Ekk-
ert er ókleift, sem ekki beint fer i
bág við skynsemina. Og ekki fer
það neitt í bág við hana, að hægt sé
að búa til gull.
Og það verður sorgardagur fyrir
þá, er hafa lánað út peninga og þá eigi
síður gleðidagur fyrir hina, sem skulda.
Fátæklingar verðá ríkir, auðmennirnir
fátækir. Hugsið yður það, ef hin
tröllauknu jámbrautarfélög einn góð-
an veðurdag geta borgað upp skulda-
bréf sín með nokkrum vagnförmum
af gulli, sem kostar þau svona 25
dollara hver smálest (2000 pd.). —
Eg get ekki annað en brosað, er eg
lít á samninga um gríðarfjárhæðir,
þar sem skuldunaut er lagt á herðar
að greiða skuld sína með gulli af
sama skírleik og gullið frá Englands-
banka. Að helztu fjármálamenn heims-
ins skuli trúa svo í blindni á það, að
gullið verði hæfur verðmælir til ei-
lífðar — bendir á, að þeir séu eigi
vaxnir störfum sínum og bresti fyrir-
hyggju. — Þeir sem mest eiga af
gullinu mega búast við því, að verða
einn góðan veðurdag — slyppir og
snauðir að heita má, að eins af því
að verðmælir þeirra er orðinn óhæfur.
Og á hinn bóginn getur fátæki mað-
urinn, sem á jörð yfirhlaðna skuldum,
orðið ríkur á einni nóttu, af því að
hann getur þá borgað skuldir sínar
með hinum rauða málmi, sem fram-
leiddur verður með litlum tilkostnaði*.
Þetta og margt fleira talaði Edison
við blaðamenn Norðurálfunnar i sumar.
Fógeta-afmælið.
í dag kom út bók Jóns fónssonar
docents um Skúla fógeta, gefin út af
Sigurði Kristjánssyni. Það er mikil
bók, 402 bls., og óefað fróðleg, svo
sem aðrar bækur þessa höf.
Hér í Rvík verður á afmæli Skúla
flutt alþýðuerindi af Jóni Jónssyni. Og
um kvöldið mun standa til, að sam-
sæti verði haldið i Hótel Reykjavík.
Til minningarsjóðs þess, er getið var
i Isajold, hefir þegar gefist drjúgum;
t. d. hafa 2 verzlanir hér í bænum,
H. P. Duus og miljónarfélagið (P. J.
Th. & Co.) gefið sínar 500 kr. hvor
— og von á rausnargjöfum hjá mörg-
um öðrum kaupmönnum.
Samskot til minningarsjóðsins eru
og hafin á ísafirði, Seyðisfirði og Ak-
ureyri. í þessum kaupstöðum áeinn
ig að minnast afmælisins með sam-
komum og veizlum.
Það er sannarlega gleðilegt, hve
myndarlega hinni íslenzku, verzlunar-
stétt ætlar að farast afmælísminning
Skúla fógeta.
Bkattainálanefmlin
er nú enn af nýju sezt á rökstóla
hér í bænum. Hana skipa svo sem
kunnugt er: Ág. Flygenring, Hannes
Hafstein, Klemenz Jónsson, Magnús
Blöndahl og Sigurður Hjörleifsson. —
Sigurður er þó ókominn enn, er nú
á Seyðisfirði og bíður þar Botniu, sem
hingað á að koma 8. þ. mán.
Skattamálanefndin mun naumast
ljúka störfum sínum í þessum mán-
uði, að því er ísafold hefir haft spurn-
ir af.
Áránirnar á Landsbauka-
stjórana. í síðasta blaði sínu
flytur stjórnarblaðið Ingólfur enn eina
árásina á Landsbankastjórnina — þetta
sinni svo sem einu sinni áður fyrir
murtn Einars M. Jónassonar yfirdóms-
lögmanns. Áður hafa, svo sem menn
'nuna, verið gerðar árásir í sama blaði
út af »fölskum skýrslumc, sem Tr.
Gunnarsson ómaklega bar fram, að
bankastjórarnir hefðu gefið banka-
rannsóknarnefnd neðri deildar. ___ Á-
rásir þessar, bæði frá Tryggva og*
Einari, hafa lengi vel verið látnar af-
skiftalausar. En nú virðist svo sem
bankastjórarnir eigi geti þagað lengur
við þessum ósóma í þeirra garð, sem
sífelt er verið að ala á, þótt ástæðn-
laus sé, og teljum vér víst, að þeir
láti dómstólana gera út um þessar
afarómaklegu ásakanir.
Reykjavikur-annáll.
Hannes Hafstein fyrv. ráðherra verð-
ur fimtugur á mánudaginn. Margir
vinir hans og kunningjar ætla að halda
honum samsæti á mánudagskvöldið í
Bárubúð.
Hjúsbapnr: Þorkell Þorkelsson kenn
ari við gagnfræðaskólann á Akureyri og
jungfrú Rannveig Einarsdóttir, systir
Sig. d/ralæknis. Giftust á Akureyri
25. nóv.
ítalskur konsúll hór á landi er orð-
inn C h r. Z i m s e n afgreiðslum. Sam.
fólagsins.
Kosningin í niðurjöfnnnarnefnd fór
svo, að listi sjálfstæðismanna (A) hlaut
flest atkvæðin (390), listi heimastj.-
manna (B) þar næst (388) og listi Dags-
brúnar (C) fæst (128). Kosningu hlutu:
Guðm. Olsen (Alisti)
Kristján Kristjánsson (B)
Sigurborg Jónsdóttir (A)
Helga Torfason (B)
Árni Jónsson (C)
Ari Antonsson (A)
Jón Jóhann8son (B).
Stúdentafélagið heldur í kvöld fund
í Hotel Reykjavík. Þangað er boðið
öllum stúdentum í bænum, jafnt
innan- sem utanfólagsmönnum. Pró-
fessor Ág. Bjarnason talar þar um H á-
s k ó 1 a m á l og Matthías Þórðarson :
»Skilnaðarkveðja«. Enn fremur verður
rætt um s t ú d e n t a s j ó ð i n n, kosin
uefnd til að gera tillögur um skipulags-
skrá hans.
Væri vel, að stúdentar fjölmeutu á
þenna fund.
Dánir. Margrót Sæmundsdóttir, ætt-
uð úr Reyðarfirði, 16 ára. Dó í Vífil-
staðahæli 23. nóv.
Halldór Guðbjarnason sjóra., 58 ára.
Druknaði á Viðeyjarsundi 28. nóv.
Samúel Símonarsoti sjóm., 49 ára.
Druknaði á Viðeyjarsundi, 28. nóv.
Guðm, Guðmundsson bakari, 21. árs,
Hverfisg. 30. Dó í Vífilsstaðahæli 27.
nóv.
Anna Sigurðardóttir, gamalmenni,
Þingh.str. 23, 69 ára. Dó í Landakots-
spítala 27. nóv.
Gnðsþjónusta á morgun:
I dómkirkjunni kl. 12: síra Jóh. Þork.
kl. 5: prófessor J. H.
í fríkirkjuuni kl. 12 : síra Ól. Ól.
Staka.
(Kveðin 10. nóv. 1911).
Aldinn Björn skal okkur frá
aftur þingsins vitja.
En borðalagða barnið má
barið heima sitja.
Víðsvegar að.
íbúatalan í Kattada var fyrir 10 ár-
um 5r/4 miljón. Nú er hún orðiu 8
miljónir. Af þeim eru 2 miljónir inn-
flytjendur.
n
t Luzern í Sviss er dekrað svo óhæfl-
lega við ferðamenn, að bæjarstjórnin hef-
ir bannað allar jarðarfarir fyr en dimt
er crðið — af því að fetðamenn komist
í vont skap, þegar þeir mæti líkfylgd.
Þó er enn leyft að deyja á öllum tímum
dags, bætir þyzkt blað við, sem segir
frá þessu.
n
Stúlka ein stórrík í New York lof-
aðist í fyrra á gönguför, sem var hiu
rnesta lífshætta, upp á háan fjallstind í
Kaliforuíu. Nú ætlar hún að halda
bruðkaup sitt a þessum fjallstindi og
prestur og 100 gestir eiga að verða við
og hætta lífi sínu.
n
Hauskupa af manni, sem vísindamenn
telja 15—20,000 ára gamla hefir nýlega
fundist í jörðu nálægt Ríu. Húu kvað
vera nokkuð öðru vísi f laglnu en haus-
kúpur nútíðarmanna.
n
Kona ein í Ameríku hefir höfðað skaða-
bótamál gegn Wrightsbræðrunum, af því
að flugmaður einn, sem flaug í vél af
Wrightsgerð, braut á henni nefið í lend-
ingu. Konan metur nefið á sór 45,000
dollara.
99
Porfirio Diaz, fyrv. forseti í Mexíkó
hefir leigt sór hús á Spáni og er seztur
þar að.
U
Nogi hershöfðingi, hetjau frá Port
Arthur, er orðinn skólakennari í Tokíó.
Hann hefir tekið að sór að kenna 10
ára gömlum dreugjum til þess að sýna,
hve mikið hanu leggi upp úr fræðslu
æskulýðsins.
99
VARVETNA á hnettinum er
Sunlight-sápan notub me5
ánægju af húsmæÍJ-
runum framar allri
annari sápu. Ef þið
viljið lengja tomstundir
yðar og Ijetta vinnu
ykkar, þá skuluð þið nota Sunlight sápuna.
SUNLIGHT SÁPA
Bókarastaða
við eina af stærstu verzlunum hér i bænum er laus frá næstkomandi nýári.
Til þess að geta tekið að sér þetta starf, þarf fullkomna þekking og æfing í
tvöfaldri bókfærslu, dönsku og íslenzkri réttritun, hreina og læsilega rithönd
og þar að auki er þess krafist, að umsækjandi sé reglusamur og starfsfús.
Gott kaup er í boði, enda má sá er stöðuna fær, engin aukastörf hafa á hendi.
Eiginhandar umsókn, ásamt meðmælum og mynd, afhendist á skrif-
stofu blaðsins innan Jjögra daga, merkt „Bókari".
Haframjöl
Hveiti
gott, 13 aura pd.
gott, á aðeíns 12 aura pd.
Ingvar Pálsson
Hverfisgötu 13.
Carí Tinsen
Tióaístræti 6 TJ
Brunatryggingar. Líftryggingar.
Slysatryggingar. Veikindatryggingar.
Sjóvátryggingar.
Tíeima 3—4 og 6—7 síðd.
Nýprentað: . ,
Bólu-Hjálmars saga.
Efni til hennar hefir Simon Dala-
skald safnað, en Brynjúlfur Jónsson frá
Minna-Núpi ritað og aukið.
Aðalsala í bókaverzlun Isafoldar-
prentsmiðju. Verð i kr. 50 au.
Söngur.
Nokkrar ungar stúlkur, sem hafa
góðar söngraddir, geta fengið kvöld-
tíma í söng, gegn mjög vægri borgun.
Kristín Benediktsdóttir,
Garðastræti, Hildibrandshús.
Heima 10—12.
Hórmeð votta eg þeim heiðr-
uðu Reykvíkingum mitt hjartans þakk-
læti, fyrir þá stórmannlegu gjöf, er
þeir veittu mér, og þá innilegu hlut-
tekningu i sorg minni eftir fráfall
míns elskaða eiginmanns, Jóhanns sál.
Hanssouar. — Bið eg algóðan guð að
launa þeim velgérðir þeirra, er þeim
liggur mest á.
Reykjavík, 30. nóv. 1911.
Olajía G. Þórðardóttir.
Silf ur br j óstnál með svan á
týndist nýlega á götunni. Skilist i
hús Þorst. Erlingssonar. Góð fund-
arlaun.
Leikfél. Reijkjavíkur
Heimanmundurinn
sunnudag 3. þ. m. kl. 8 síðd.
í Iðnaðarmannahúsinu.
Isafoldar,
Austurstræti 8.
Alls konar band fljótt og vel af hendi
leyst. — Verð hvergi latgra.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum.
að sonur okkar elskulegur, Guðmundur Guð-
mundsson^'andaðist 27. nóv. Jarðarför hans
er ákveðið, að fari fram frá heimili okkar
við Hverfisgötu 30B föstudaginn 8. þ. m. og
hefst kl. II1/, f. h.
Ingveldur J. Pétursdóttir.
Guðmundur Magnússon.
Hérmeð tilkynnist vinum og ættingjum, að
Anna Sigurðardóttir. ættuð úr Helgafells-
sveit i Snæfellsnessýslu. en sem dvalið hefir
hjá okkur i mörg ár, lézt þann 27. þ. m. á
Landakotsspítalanum.
Jarðarförin fer fram frá heimili okkar
undirritaðra, Þingholtsstræti 23, þ. 6. des.
Húskveðjan byrjar kl. II1/, f. h.
Reykjavík 29. nóv. 1911.
Ragnh. og Emil Jensen.
Þakkarávarp.
Hjartans þakklæti votta eg hérmeð öllum
þeim sem heiðruðu útför míns hjartkæra eig-
inmanns, Jóns sál. Oddsson. og sýndu mér
hluttekningu i hinni miklu sorg minni, þar
sem eg er nú einstæðings ekkja Þar á
meðal vil eg.nefna nokkra af velgerðamönn-
um minum: Olaf læknir Þorsteinsson, sem
sýndi mér sina miklu hjálpsemi og sitt prúða
viðmót alla hans banalegu, sira Olaf Olafs-
son frikirkjuprest og frú hans, Jörgen Þórð-
arson kaupm. og irú hans, Þorstein Guð-
mundsson yfirfiskimatsmann og frú hans, og
konuna Valgerði Guðmundsdóttur, sem hjálp-
aði mér og vakti yfir honum síðast er min
ir kraftar voru á þrotum, og svo miklu fleiri
sem of langt væri upp að telja.
Öllum þessum velgerðamönnum minum
óska eg, að aimáttugur og algóður guð á
himnum launi fyrir mig þegar þeim liggur
mest á.
Reykjavik I. des. 1911.
Sigríður Sigurðardóttir,
Spltalastíg 4.
Hinn 29. nóvember s. I. andaðist min hjart-
kæra móðir, Sesselja Filippusdóttir að heim-
ili sínu Ósi i Steingrimsfirði hjá dóttur sinni
Mörtu og tengdasyni Gunnlaugi Magnússyni.
Þetta tilkynnist vinum og vandamönnum.
Holtsgötu 3, Reykjavik.
Sigriður Magnúsdóttir.
Hjartanlegt þakklæti færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur hluttöku við missir og jarð-
arför okkar elskaða eiginmanns og föður,
Gísla sál. Helgasonar, kaupmanns.
Reykjavík, I. des. 1911.
Ekkja og börn hins látna.
í 60 teg. nýkomnar; afmæld í
einstaka klæðnaði, og alt þeim
tilheyrandi. Munið að enginn selur
ykkur ódýrari og betri fataefni en cg.
Virðingarfylst.
Guðm. Sigurðsson.
Til sölu. Gull-dömuúr 14 karat,
Waltham herraúr, mjög vönduð, fást
fyrir x/8 verðs í bezta standi. Hjóna-
rúm úr mahogni, afaródýrt, og alveg
nýr pelsfrakki á meðalmann eða stærri.
Ritstj. ávísar.
Barna-leikföng
mikið úrval
ódýrast i verzlun
Ingvars Pálssonar
Hverfisgötu 13.