Ísafold - 23.03.1912, Síða 1

Ísafold - 23.03.1912, Síða 1
fLomui út tvisvar l viku. Verfí &rg. (80 arkir minat) 1 kr. orlondia 5 ki, eNv 1 lt% dollar: bortfist ívrir míbjan iúll (eriondis tvrir fram) ISAFOLD Oppsöki) (skrifleí) bandin vib dramðt, u ósna nema komln sé til útgef&nda fyrlr 1. otrt. ag aaapandi akoldlaas viO blabib Afgreibala: An*tnratr»t,i 8, XXXIX. árg. Reykjavík 23. marz 1012. 19. tölublað TJðaífundur blufafél. Völundur verður haldinn faugardaginn 30. ntarz næsfk. í fjúsi 7i. T. U. 7T1. við Amtraannsstig, kl. 6 síðd. Dagskrá fundarins samkvæmt n. gr. laga íélagsins. Endurskoðaðir reikningar fyrir árið 19x1 liggja til sýnis á skrifstofu félagsins til þess tíma. Hluthafar verða innan þess tíma að sanna stjórninni hlutabréfaeign sína, til þess að geta fengið atkvæðamiða á fundinn. Sfjórnin. Takið eftir! í sambandi við auglýsingu mína um fimtungs afnlátt á veggfóðri (Betræk), tilkynnist hérmeð, að sá afsláttur er ekki gefínn lengur en til 10. apríl næstkomandi. Templarasund nr. 3. Sveinn Jónsson. Spellvirki kvenna á Englandi. ------- Khöfn 11. marz. Mannvitsbrekkur á Englandi eru miklar fyrir sér og hyggja sínum mál- stað bezt borgið með ofsa og ógangi. Margar sögur hafa farið af aðgangi þeirra, en nú á dögunum kastaði tólfunum. Pilsvargarnir flyktust saman á götunum 4. þ. m. að kvöldi dags, brutu rúður í ýmsum opinberum bygg- ingum og frömdu önnur spellvirki. Alt á þetta að vera gert til þess að styrkja kvenréttindin og mótmæla fálæti stjórnarinnar í því máli. Konurnar ætluðu að reyna að ryðjast inn i þinghúsið, en almenningi, sem annars hefir verið fremur hlyntur ólátum þeirra, ofbauð gauragangurinn og skemdirnar, og varnaði þeim inngöngu með aðstoð lögreglunnar — og lumbraði á konum þeim, er óðslegast létu. Alls voru handsamaðar þessa nótt fyrir rúðubrot og önnur spjöll 96 konur, og verða þær dæmdar til hegnarvinnu. Forstöðukonur kvenréttindahreyfingarinnar segja þetta að eins byrjun á öðru verra og boða stjórninni framvegis alls konar ófögnuð. Þetta athæfi kvenþjóðarinnar hefir orðið til þess, að nú er að rísa sterk hreyfing gegn því, að hún öðlist réttindi á við karlmenn. í Albert Hall var nýlega haldinn fundur, er 10,000 manns sótti, og voru allir ræðu- menn andvígir kvenréttindunum. Þar talaði m. a. kona ein, unfrú Viokt Markham. Hún gat þess, og bar fyrir sig hagfræðisskýrslur, að mannvits- brekkur létu vera að bjóða sig fram í bæjarstjóm, sóknar- og fátækranefndir o. s. frv., heldur gengju þær í þess stað grenjandi um stræti og gatnamót og mölvuðu rúður. Orsökin til þess væri sú, að þeim mundi finnast sveita- og bæjarstjórnarstörl allóskemtileg og óvænleg til þess að eftir þeim yrði tekið. Námuverkfallið mikla á Bretlandi. Khöfn 11. marz 1912. Verkfallið mikla á Englandi, sem hófst 1. þ. m., er mesta verkfall, sem enn hefir orðið í heiminum, og horfir til stórvandræða, ef því léttir eigi bráðlega. Af kolanámumönnum nefir 1 miljón manna lagt niður vinnu, en í öðrum vinnugreinum, sem ekki geta verið kolalausar, bætast við verkleysingjar á hver- jum degi. í dag voru þeir orðnir 600,000. Járnbrautarferðir í land- inu hafa minkað um helming og jafnvel póstflutningur hefir stórum takmarkast. Stjórnin hefir gert alt til þess að reyna að koma á sátt, en til þessa hefir alt orðið árangurslaust. Verka- menn halda fast við kröfur sínar um ákveð- ið launalágmark og láta sér þaðan hvergi þoka, en vinnuveit- endur láta hart mæta hörðu. Síðustu fregnir segja, að vinnuveit- endur séu að linast, og að verkfallinu muni létta af áður en þessi vika sé úti. Takist ekki að sætta málsaðila, verður stjórnin og þingið að skerast í leikinn og lögbjóða það, sem verkamenn krefjast. (Svo sem nú- er orðið. — R i t s t j.). Myndin sýnir námumenn í einni kolanámu, sem eru að fara í lyftivél upp á yfirborð jarðarinnar að loknu erfiði dagsins. I. O. O. F. ‘33153^ Alþýöuí'él.bókasaín Póstkússtr. 14 kl. 5—8. Augnlækning ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 2—8 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga iO—8 Ðæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7 Eyrna-,nef-og hAlslækn. ók. P0sth.str.14A fid,2—8 íslandsbanki opinn 10—2 */* °g 54/a—7. K.P.O.M. Lestrar- og skrifstofa 8 árd.—10 sbd. Alm. fundir fid. og sd. 8 */* sibdegis. Landakotskirkja. öuösþj. 9 og 8 & helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—5 Landsbankinn 11-2 l/a, öVa-B1/*. Bankastj. vib 12-2 Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—8 LandBbúnaöarfólagsskrifstofan opin frá 12—2 Landsféhiröir 10—2 og 5—6. Landsskjalasafnib hvern virkan dag 12—2 Landsiminn opinn daglangt [8—9] virka daga, helga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingh.str. 23 þd. og fsd. 12—1 Náttúrugripasafn opib 1 */a—21/* á sunnudögum Stjórnarráösskrifstofurnar opnai 10—4 daglega. Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12 Vifilsstabahæliö. Heimsóknartimi 12—1. Þjóbmenjasafnið opiö á sd., þrd. og fmd. 12—2 Jiiðurjöfnunarskrdin Í912 fæst hjá bóksölum. Verð: 25 a. Bæjarskrá Hegkjavíkur er ómissandi handbók fyrir hvern mann. Fæst hjá bóksölum. Verð kr. i.so. Manntjónið mikla á Geir. I*örf skjótrar og góðrar hjálpar handa ekkjunum og munaðar- leysingjunum. Það má nú telja fullvíst orðið, að fiskiskipið Geir hefir farist með allri skipshöfninni, 27 manns. Hér fylgir skrá yfir þá, sem druknað hafa, ásamt þeim skýrslum, sem þegar hafa fengist um hagi þeirra: 1. Sig. Þórðarsson skipstjðri, lœtnr eft- ir sig ekkjn og 4 börn i ómegð. 2. Halldór Jónsson stýrimaðnr ókvænt- nr. Heilsnlans faðir, ekkjumaður með 4 börn ófermd. 3. Sverrir Gnðmnndsson frá Harðbala i Kjós. 4. Ginðjón Magnnsson ókvæntur, aðstoð uppgefins föður og beilsnlansrar móður. 5. Guðmundur Árnason frá Bildndal i Arnarfirði. 6. Jón Jónsson frá Skógum i Arnar- firði. 7. Jóhann Gnðmundsson úr Arnarfirði. 8. Ólafnr Sigurðsson frá Langholti i Flóa. 9. Magnús Pétnrsson i Reykjavik, lætur eftir sig ekkjn og ungbarn; ennfremnr fóst- urbarn og aldraðan tengdaföður. 10. Kristján Einarsson nr Hafnariirði, lætur eftir ekkju og 8—4 ungbörn. 11. Þórður Ingimnndarson frá Tjörn á Yatnleysuströnd, lætnr eftir sig ekkjn og barn. 12. Ólafur Niknlásson úr Hafnarfirði, lætnr eftir sig ekkju og 2 börn í ómegð. 13. Guttormur Einarsson úr Hafnarfirði, lætnr eftir sig ekkju og 2 börn. 14. Gnðni Benediktsson; lætur eftir sig ekkju og 3—4 nng börn. 15. Þorvaldur Jóhannsson úr Dýrafirði, lausamaðnr, lætnr eftir sig móður, sem hann styrkti. 16. Þorkell Guðmundsson úr Hafnar- firði lætur eftir sig ekkju og 3 börn nng. 17. Böðvar Jónsson úr Hafnarfirði og 18. Halldór Böðvarsson Bonnr hans. Þeir önnuðust dóttur Böðvars, bláfátæka ekkjn með 3 ungbörnum hennar. 19. Helgi Árnason frá Eiði á Seltjarnar- nesi; lætur eftir sig heilsutæpa konu, blindan tengdaföður á áttræðisaldri og 2 syni i ómegð. 20. Sólon Einarsson úr Hafnarfirði; læt- ur eftir sig ekkju og 2—3 börn. 21. Ingvar Pétursson úr Hafnarfirði; lætur eftir sig ekkju og 2—3 börn kornung. 22. Jóhannes Jóhannesson úr Hafnarfirði annar af 2 sonum roskinna foreldra og eiga barn í ómegð. 23. Marteinn GuðlangsBon úr Hafnarfirði; lætnr eftir sig ekkjn með barni. 24. Sigurður Jónasson bóndi í Ási í Garðahreppi; lætur eftir sig ekkju og 8 eða 9 börn í ómegð og háaldrað vandabundið gamalmenni. 25. Magnús Sigurgeirsson vinnum. úr Hafnarfirði. 26. Vilmundur Jónasson úr Hafnarfirði, einkaharn og einkastoð uppgefis föðurs og og alheilsnlausrar móður. 27. Guðjón Jónsson lausam. fráBildudal. Þetta er hörmuleg skýrsla, hörmu- legt að sjá hve margir dugandi og flestalt ungir menn hafa hér farið i sjóinn. Því hörmulegra er þetta slys, sem hér áttu í hlut fyrirvinnur heilla heimila, stoðir og styttur foreldra og bágstaddra vandamanna. Þarna eru á svipstundu 14 konur, að því er þegar er kunnugt, orðnar ekkjur (ekki kunnugt um suma mennina af Vestfjörðum, hvort kvæntir eru eða eigi, en staðhæft um einn þeirra, að hann láti eftir sig ekkju og n börn). Þarna eru tugir barna í ómegð svift föðurnum. Hér er um að tefla svo mikla hörmung og eymd, að lítt tekur tali. Hvort nokkrum einstökum mönn- um verði sök gefandi á því, að svona hefir farið, hvort óvarkárni eða kæru- leysi hafi verið með í spilinu, er skip þetta var talið sjófært o. s. frv., á það vill í s a f o 1 d engan dóm leggja að svo stöddu. Það verður vafalaust rannsakað af réttum hlutaðeigendum. Enda er það í sjálfu sér ekki pað, sem mest liggur á að gert verði n ú. Það sem mest á ríður af öllu nú, það er: « að vinda að pvi bráðan bug að hjálpa ekkjunum, hjdlpa munaðarleysingjunum, hjálpa gamalmennunum, setn mist haja menn sína, jeður sína og jyrirvinnur í sjóinn. Það ríður á því að reyna að bæta eitthvað úr þeirri miklu eymd og ar- mæðu, sem heltekið hefir fjölda heim- ila við þetta sárgrætilega og sviplega manntjón, sem orðið er. í s a f o 1 d er kunnugt um, að þegar eru gerðar ráðstafanir til þess, að samskotanejnd verði stofnuð. Hafa þeir gengist fyrir því síra Jens Páls- son prófastur, Magnús sýslumaður Jónsson og síra Ólafur Ólafsson frí- kirkjuprestur. Sú nefnd mun setjast á laggirnar í næstu viku.. Útgerð skipsins 'nefir þegar gefið 2 þús. kr. til þessara samskota. í s a f o 1 d tekur og með ánægju og þökkum móti samskotum, má af- henda þau á skrifstofu hennar eða í bókaverzlun ísafoldar og munu þau samskot auglýst hér í blaðinu. En það er hægt að gera meira til hjálpar. Skemtifélög bæjarins, leikfélagið, söngfélagið o. fl. finna sjálfsagt til þeirrar mannúðarskyldu, að gera sitt til að hjálpa með því að leika og syngja til ágóða fyrir samskotin. Allir ættu að telja það óumflýjan- lega skyldu að hjálpa, þegar svo ógur- legt áfall ber að höndum. Elzta niannesk.ja á íslandi, að því er síðustu manntalsskýrslur greina, er nýlátin. Hún hét Vigdís Stígsdóttir og átti heima á Kallaðar- nesi i Mýrdal, var þar hjá syni sín- um. Hún varð nærri 99 ára (f. 24. apríl 1813). Hafði haft fótavist þang- að til í fyrravetur — þá datt hún og og meiddist eitthvað og lagðist eftir það. Herman StolL Svissinn, sem ferðast hefir hér um þvert og endilangt landið tvö undanfarin sumur, hefir verið að flytja erindi í París um ferðir sínar hing- að. Eitt af stórblöðunum í París, »Le Figaro«, sem er nýlega komið hingað flytur grein um fyrirlestur, sem hr. Stoll hefir haldið 1. þ. m. í »Land- fræðisfélaginu* i Paris fyrir troðfullu húsi og lætur blaðið hið bezta af frammistöðu hans. Blaðið getur þess, að þar hafi verið saman kominn mjög friður hópur og þar á meðal hafi verið sendiherrar ýmissa landa, greifar og barónar og annað tignarfólk. Auk tölunnar, sem hr. Stoll flutti, segir blaðið, að hann hafi sýnt mikinn fjölda lifandi mynda frá íslandi og þar að auki hafði hann fengið Mlle E. Holmstrand (húnersænsk)frá »I’Opera- Comiquet til þess að syngja ýmsa söngva og vísur islenzkar og að lok- um söng þar karlakór (20 Svíar bú- settir í París) ýms þjóðlög íslenzk. Blaðið segir, að hinn visindalegi árangur af ferðum hr. Stolls sé mik- ilsverður, með þvi að hann hafi komið hér á staði, sem enginn hafi áður kannað, og 'hann hafi ferðast hér bæði sem Jandkönnuður og lista- maður. Blaðið endar ummæli sín með þess- ari klausu: »Áheyrendurnir, sem var úrvalslið bæði karla og kvenna í París, gerði hinn bezta róm að þessari ágætu fræðslu um svo fjarlæga hluti og hinn mikli söfnuður, sem þangað hafði streymt, klappaði hr. Stoll lof í lófat. í vor hefir hr. Stoll í hyggju að ferðast um Sviss og halda þar fyrir- lestra á líkan hátt sem þenna. Megum vér sannarlega vera honum og öðrum sannorðum útlendingum þakklátir, sem fræða menningarþjóðimar um oss og landið, sem skáldið segir um: »fyrir löngu litilsvirt, langt frá öðrum þjóðumt. R. B. Ríkisráöiö og Danir. Um ríkisráðsákvæðið i stjórnarskrá vorri hefir Einar Hjörleifsson ritað ágæta grein í danska blaðið Politiken þ. I. marz s. 1. og heldur þar fram sömu skoðunum og I greinum sinum hér í blaðinu. — Verður ef til vill sagt gerr frá þessari grein síðar. — Þess má geta, að eigi höfðu nein mótmæli eða athugasemdir komið fram við grein E. H. í dönskum blöð- um alt til 11. marz hvorki, frá dr. Berlin, I. C. Christensen né öðrum. Fiskuppgrip við Noreg. Fyrir mánuði voru Norðmenn búnir að afla 12'/j miljón; en í fyrra um sama leyti ekki nema um 2 miljónir. Og nýlega var aflinn orðinn yfir 30_miljónir. Fiskaflinn þar hefir aidrei orðið neitt

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.