Ísafold - 20.04.1912, Side 2
86
ISAFOLD
fulltrdunum og sjálfri bæjarstjórninni
þá nærgætni að mæta eigi á fundum
bæjarstjórnarinnar meðan hann væri
undir rannsókn, eins og mál hans er
vaxið. Það kom því flatt upp á mig
og fleiri borgara, í bæjarstjórninni og
utan hennar, er nefndur bæjarfulltrúi
mætti á siðasta fundi bæjarstjórnar-
innar.
Eg fór því fram á það við yður í
gær, eftir að hafa ráðgast um málið
við aðra bæjarfulltrúa, að þér skytuð
því að greindum bæjarfulltrúa, Hall-
dóri Jónssyni, að það væri ósk ýmsra
fulltrúanna, að hann sækti ekki fundi
bæjarstjórnarinnar meðan á rannsókn-
inni stæði. Mér er kunnugt um að
þér hafi gert þetta; og átti eg eigi
annars von en að bæjarfulltrúinn tæki
þessa kurteislegu og nærgætnislegu
ósk til greina.
Eg varð þvi mjög forviða, er eg í
dag var seztur í sæti mitt og ætlaði
að taka til starfa minna, að Halldór
Jónsson kom inn í fundarsalinn og
settist í sæti sitt, eins og ekkert hefði
i skorist.
Þótt að vísu séu eigi lög til að
meina fulltrúa sæti sitt í bæjarstjórn-
inni meðan hann er undir opinberri
rannsókn, grunaður um slíkt athæfi
sem hér er um að ræða, tel eg fram-
komu Halldórs Jónssonar vera broi á
virðingu þeirri, sem bæjarstjórnin hlýt-
ur að krefjast, að sér sé sýnd — auk
þess, sem hann með henni sýnir hin-
um fulltrúunum eigi all-litla ónær-
gætni.
Að svo vöxnu máli hefi eg eigi
þózt geta gert annað en að ganga af
fundinum, af því mér er þessi fram-
koma Halldórs Jónssonar svo mjög á
móti skapi og eg treystist eigi til að
taka þátt í bæjarstjórnarstörfum með
honum á meðan rannsóknin stendur
yfir.
Virðingarfylst
Sveinn Björnsson.
Til
borgarstjóra Reykjavikur.
Vér teljum víst, að kjósendur
hér í bænum og aðrir bæjarbúar telji
Sv. Bj. hafa hagað sér í þessu máli svo
sem vera bar, og að þetta verði til
þess, að H. J. af sjálfsdáðum dragi sig
í hlé, svo að eigi þurfi enn meiri
rekistefnu út úr þessu að gera.
Kolaeinkanalan í .sjálfstæö-
isfélaginu. í kvöld verður hin
mikla nýjungar-tillaga peningamála-
nefndarinnar: Einkasala á kolum til
umræðu í Sjálfstæðisfélaginu. Fund-
ur sá verður haldinn í Bárubúð og
byrjar kl. 8Va' Málshefjandi verður
Garðar kaupm. Gíslason.
PeningamálanefndarmönHunum öll-
um, sem hér eru, hefir verið boðið á
fundinn og auk þess ýmsum mönn-
um utan félags, sem láta sig þetta
mikilsverða nýmæli skifta.
Skýrsla peningamálanefndarinnar er
komin út. — Fæst i bókverzl. ísafoldar.
60 manns í s.jóinn.
Síðan á nýári hafa éo sjómenn
vorir druknað, að því er enn hefir
spurst til.
Það er mikil blóðtaka.
Og Sherlock Holmes kom upp á leik-
sviðið, sá framan i fólkið, en Leik-
félagið sifrraði ekki á honum — síður
en svo — prátt fyrir pað, að aðal-
hlutverkið, Sherlock Holmes sjálfur
(Bjarni Björnsson), var alls eigi óvið-
unandi og 2— 3 önnur hlutverk eigi
heldur. En heildarsvipurinn á leiknum
var svo hryggilegur, megnið af hlut-
verkunum svo illa leikið, að sárt var
á að horfa: Skrípaleikur, eða enginn
leikur. T. d. byrjun leiksins, þar sem
Larrabees-hjónin eru á leiksviðinu.
Aumara getuleysi hefir verið fáséð
hér í leikhúsinu. Eða þá atriðin í
gas kjallaranum — leikur bófanna þar.
Klaufaskapur og skrípalæti glímdu þar
um yfirtökin.
Og svona mætti halda áfram, en
hér skal aðeins bent á eitt atriði til
í leik þessum, sem þó eigi kemur við
leikurunum, heldur þeitn sem búið
hafa leikinn út á leiksviðið.
í fyrsta þætti fá Larrabeeshjónin
mann, sem gerir sig til af því að vera
fínasti listamaður Lundúnaborgar til
þess að brjóta upp peningaskápa — þau
fá hann til þess að gera tiiraunir við
peningaskáp á leiksviðinu. Þessi mað-
ur gengur nú að peningaskápnum og
byrjar að sarga og sarga í hinni ramm-
Erí. símfreqnir.
Kh. 2<>/4, kl. 4 árd.
\Trá ófriðitium.-; j 1§|
Floti ítala hefir skotið á Dardanella-
kastalana.
Hér er átt við 4 kastala er standa
við Dardanellasundið (milli Marmara-
hafsins og Egevska hafsins), og eru
kastalar þessir taldir lykill að Kon-
stantinópelborg. Takist ítölum þvi,
að ná þessum köstulum á sitt vald,
mun gatan greið að höfuðborg Tyrkja-
veldis.
t>rír fjeimskutmir mertn
faídir af.
---- Kh. 2ð/4 kl. 4.
Þeir William Stead, ^Astor 0% Vander-
bilt eru laldir aj.
Stead er hinn nafnkunni ritstjóri
brezka tímaritsins, Reviev of revievs,
friðarvinur og spíritisti (f. 1849). En
Astor og Vanderbilt eru einhverir
mestu auðkýfingar heimsins.
Ath. í simskeyti þvi, er ísafold fekk
í morgun, er fyrst sagt frá mann-
tjóninu á Titanic — og því næst
bætt við, að þessir menn séu
taldir af. Ekki ólíklegt samkv.
sambandinu i símsk., að þeir hafi
verið innanborðs i Titanic, og sé
átt við, að þeir hafi verið meðal
þeirra, sem druknuðu.
Titanic-fer líkiö.
Til þess að átta sig á stærð Titanic
má geta þess, að það hefir verið að
lengd um 14 stikum lengra en alt
Austurstræti. Á breidd var það 28.
stikur (hlið Alþingishússins út að
Kirkjustræti mun vera eitthvað áþekk
að breidd). Skipið var fullgert í fyrra
(19x1).
Mannskaða-samskotin.
Enn hafa ísafold borist allmikil
samskot, og mun listi yfir þau birtur
í næsta blaði.
Reykjavikur-annáll.
Aðkomumenn siðnstu viku: Síra Sigurð-
ur Gunnarsson og Sæm. Halldórsson frá
Stykkishólmi, sira Ásgeir Ásgeirsson frá
Hvammi, sira Ól. Ólafsson próf., Hjarðar-
holti, Magnús Friðriksson frá Staðarfelli.
Aflabrögð ern nú ágæt á bbtnvörpnnga og
allgóð á þilskip. Nýlega eru komnir inn
þessir botnvörpungar: Snorri goði með nm
35,000, Snorri Sturluson með ca. 30,000,
Baldur með um 55,000, Marz með 28,000,
A. G. um 25,000.
Árekstur. Frakkneskur hotnvörpungur
sigldi á annan hotnvörpung Thorsteinssons-
bræðra B a 1 d u r (skipstj. Kolb. Þorsteins-
son) á sunnudaginn. Lenti aftan á honum
og hrenglaði mikið.
Bíó-viðkoman. í siðasta hiaði var getið
um nýtt Bíó, sem ráðgert væri að setja á
laggirnar í Hótel Island. En það situr
eigi við það, heldur kvað enn von á þriðja
kvikmyndaleikhúsinu, og eru það Norðmenn,
sem að þvi standa. Hvar það fær inni, er
ókunnugt enn.
Brillouin konsúll kom bingað úr ntanför
sinni i fyrradag. Hafði farið fyrst til
Vestmanneyja, þaðan upp til Þorláksbafn-
ar og landveg þaðan.
Dánír. Daniel Jónsson skipstjóri, Grett,-
isgötu 34, rúml. 40 ára. Dó 10. april.
Steinunn Guðrún Jónsdóttir (Ásmnnds-
sonar) ym., Mjóstræti 2, 34 ára. Dó 13.
april.
Jón Ingimundarson, Holtsgötu 5, 85 ára.
Dó 12. april.
Fritz Boesen, hinn danski leikflokksfor-
maður, sem hingað kom i fyrra með leik-
arasveit, ætlar að koma hingað aftur i vor.
Hefir hann leigt Iðnaðarmannahúsið frá
11.—21. júni.
Guðsþjónusta á morgun:
í dómkirkjnnni kl. 12 sira Jóh. Þorkelsson
kl. 5 síra Bj. Jónsson.
Ekki messað í Fríkirkjunni á morgun,
en á snmardaginn fyrsta messað kl. 6 e. m.
síra Ói. Ólafsson.
Hjúskapur. Sæmundur Magnússon Pálsbæ
Rvík og Guðmundina Guðlaug Pálsdóttir.
Gift 13. apríl.
Kvöldskemtun fjölbreytt verður haldin i
kvöld kl. 8'/2 í Goodtemplarahúsinu til á-
góða fyrir mannskaðasamskotin. M. a.
fara þeir Einar Hjörleifsson og Guðm.
Magnússon með sögur, Einar Indriðason
syngur, jungfr. Marta Indriðadóttir og
Hólmfr. Halldórsdóttir leika á pianó og
margt er þar fleira til unaðar.
Lavoisier, frakkneska herskipið kom hing-
að i fyrradag.
Sífl. Hjörleifsson ritstjóri, sem hór hefir
dvalist síðan i desemher við peningamála-
nefndarstörf — fór heimleiðis til Akureyr-
ar núna i vikunni á Flóru.
Skipafregn. Strandbátarnir báðir fóru
á mánudag með fjölda farþega. Með Austra
fóru m. a. Jón Arnesen konsúll, Olgeir
Friðgeirsson verzlunarstj., Möller agent.
Með Vestra: frú Bryndís Zoega, Björn
Arnórsson o. fl. 0. fl.
Flora fór vestur og norður um land
áleiðis til Noregs á miðvikudagsmorgun.
Fari tóku sér m. a. sira Helgi P. Hjálm-
arsson, frk. Kristin Þorvaldsdóttir (til Isa-
fj.), Carl Sæmundsen agent, Páll Halldórs-
son kaupm. (frá Siglnfirði) 0. fl.
Bergenshus kom að vestan í nó‘t. Meðal
farþega: frú L. Daviðsson frá ísaf. og
Dehell oliufélagsstjóri.
Sumardagurinn fyrsti er á fimtudaginn.
Hann var áður uppáhaldsdagur mikill og
er það enn — til sveita —, en í kaupstöð-
um gætir hans lítið. Hér í bæ hefir þó
undanfarið verið gefið fri í akólum og eins
hafa bankarnir lokað. Nú hefir heyrst, að
kaupmenn ýmsir vilji fylgja dæmi bank-
anna og loka til þess að gera daginn há-
tíðlegri. En til þess þarf vitaskuld alment
samkomulag.
Sumargleði stúdenta. Stúdentar hér i
hænum ætla að fagna sumri í Hotel Reykja-
vik á miðvikudagskvöldið næstkomandi.
Efna þeir þar til veizlu, með horðhaldi,
dans og margskonar fagnaði. Full sumars-
ins signir Hannes Hafstein með ræðu, en
Þorsteinn Erlingsson með nýju kvæði. Þar
verður og sungið (tvöfaldur kvartett) og
leikið á pianó — og siðast en eigi sizt:
Einar Hjörleifsson skáld hefir lofað sinni
aðstoð. — Stjórn sumargleðinnar biður
þess getið, að þeir stúdentar, sem enn eigi
hafa trygt Bér aðgöngumiða á sumargleð-
ina geti skrifað sig á lista 0g fengið bí-
læti i bókverzlunum Isafoldar og Sigfúsar
Eymundssonar til mánudagskvölds.
Söngfélagið 17. júní. Það er jafnvel í
-ráði, að söngfélagið 17, júni fari í sumar
kringum land, ef hentugleikar leyfa, og efni
til samsöngva i stærri kaupstöðunum. Ef
úr þessu verður fer söngfélagið væntanlega
i ágústmánuði einhverntima.
Veðrátta. Frostleysa og feikimikil úr-
koma hefir verið síðustu daga.
Botnvörpungar og strandgæzlan.
Með þessari fyrirsögn er smágrein i 22.
töluhlaði Isafoldar sem gefur mér tilefni
til að rita þessar linur, þar sem mér virð-
ist hún stiluð til að álasa strandgæzlunni
þetta ár, en það finst mér með öllu órétt-
mætt.
Tíðindasmælki
handan um haf.
— Á Þvzkalandi erii nú 4296 kvik-
myndaleikhús.
— Á Filippseyjum eru tamdar slöng-
ur víða 1 húsum lausbeizlaðar, og.þykja
ötular til rottuveiða.
Það er mjög leitt að þurfa að svara
slíkum greinum, því þær eru aðeins get-
gátur, sem enginn finst höfundur að, eins
og greinin sjálf hendir á: »Flutt sú fregn«,
»sagan segir«, og að síðustu, »ef þessar
fregnir eru sannar«. Eg get verið mjög
stuttorður og læt mér að mestu nægja að
benda á þessi uppteknu orð greinarinnar,
sem dæmi um sannleiksgildi hennar. Hið
leiða er, að þeir er gefa slíkar fréttir, ekki
gefa þær skýrar og greinilegar, ef þeir eru
þess megnugir, eða þegi ella, sem hverjum
heiðvirðum manni væri miklu samboðnara.
Um ólöglega veiði botnvörpunga er komist
svo að orði, að »úi og grúi af botnvörp-
ungum«. Hér hlýtur að vera um marga
að ræða, eftir orðunum, en eftir skýrslum
að dæma, sem við gátum fengið voru aðeins
tveir grunaðir að veiðum og þó svo óglögt,
að ekki virðist hægt að handtaka greind
skip eftir kærunum. Fjöldann virðist sögu-
maður vilja hylma yfir, þar sem hann að
eins tilgreinir tvo, sé hann þá kærandinn.
Að öðrum kosti virðist manni hann vísvit-
andi fara með ósannindi.
Tilkynningu um þetta fáum við fyrst
eftir, að við höfum lagt af stað til suður-
landsins og komum hingað aftur, og önnur
kæran er dagsett sama daginn, sem við að
kvöldi komum til Eyjanna. Hér er því
visvitandi gerður úlfaldi úr mýflugu og
sizt af öllu bjóst eg við, að Vestmanney-
ingar hefðu ástæðu til að álasa strandgæzl-
unni í ár. Mér er líka nær að halda, að
þetta sé meira komið frá einstökum mönn-
um en almenningi sem virðist okkur þakk-
látur og vinveittur i viðmóti, enda hefir ekki
ástæðu til annars, þar sem alt er i strand-
gæzlunnar valdi stendur, hefir verið gert
til að verja rétt hans.
Að við þurfum að liggja á Reykjavíkur-
höfn og viðar nokkra daga og getum þvi
ekki altaf verið á ferðum, vona eg að öll-
um verði skiljanlegt, sem hugsa til þess,
að við þurfum öðrum skipum fremur að
hafa skip vort i góðu lagi, bæði nægar kola-
birgðir, vatn og hreina vél; fundum við
bezt til þess hina siðustu ferð, hversu slikt
er nauðsynlegt, þar sem við urðum að elta
tvo botnvörpunga langa lengi i stormi og
miklum sjó, þó skotið væri til annars þein a
8 kúluskotum og 3 kúlum í yfirbyggingu
annars skipsins; hendir þetta á, að hér er
um ábyrgðarmeira starf að ræða og meiri
sókn af yfirmannsins hendi en þessar óvin
veittu málpipur virðast hafa hugmynd um.
Og sizt er slikt til að örfa til sóknar, þeg-
ar hið eina sem heyrist getið um strand-
gæzluna er eingöngu álas, hversu vel sem
hún er rekin.
Þorst. Júl. Sveinsson.
Aths. ísafold hefir enn eigi átt kost á
þvi að hera leiðréttingu hr. Þ. J. Sv. und-
ir tiðindamann þann, sem hér á hlut að
máli.
------see-------
Frá Landssímanum.
Starfræksla Landssímans 1911.
Tekjur:
Simskeyti innanlands <í7082.53
til útlanda 14602./8
frá útlönd. 6830.30
--------- 48015.61
Símsamtöl .................... 68832.00
111547.61
Áframhaldsgjald............... 593634
105610.77
Talsimanotendagjald, einka-
leyfisgjald o. fl........... 8765.31
Aörar t.ekjur.................. 4033.93
Tekjur alls . . kr. 118410.01 [101768.311
Giöld:
Laun starfsmanna (hór eru
meötalin laun landssíma-
stjórans, þóknun til lands-
stöðva. laun til sendiboöa
o. fl............ 32980.17
Yiðhald simans . . . 9106.71
Eyöublöö, prent-
kostnaöur, ntföng
o. fl............. 3428.84
Önnur gjöld......... 11746.84
----------- 57262.06 [56129.09]
Tekjuafgangur . . kr. 61147.95 [45639.22]
Tölurnar, sem 1 [ ] standa, sýna áriö 1910.
— Rauður litur er talinn heillamerki-
í Kína. Fyrsta kvöldblaðið í Peking,
sem byrjar að koma út þessa dagana,
er því prentað með rauðu letri á bleik-
an pappír.
— Rakari einu í Köln, sem ákærður
var fyrir morð, róð sór bana fyrir
skömmu í varðhaldinu, með nál, er hann
hafði í hálshnýti sínu. Henni stakk hann
í hjartað, og maðurinn var örendur, þeg-
ar fangavörðurinn kom að.
I Pari's á að setja á stofn bráðlega
málfræðisskóla fyrir símastúlkur, til þess
að ráða bót á misheyrnum, sem þar ger-
ast þrásinnis, og þar af leiðandi röng-
um símasamböndum. í skólanum verð-
ur sórstök hljóðfræðisdeild, og konunutn
kent að segja sem flest með fæstum orð-
um.
— Rifrildi af segli úr herskipi Nel-
sons, »Victoria<í, sem var eitt af skip-
unum í Trafalgarorustunni, var selt fyrir
skömmu á uppboði í Lundúnum á 7
sterlingpund.
— Fjárhagsáætlun Rússlands á yfir-
standandi ári nemur hærri fjárhæð en
nokkur áætlun í nokkru ríki áður. Fjár-
hagsáætlun Englands 1910—1911 ii am
203.850.600 sterlings punda, tn nú er
Rússland einni miljón hærra.
Næsta blað kemur á miðvikudag.
Öllu kvenfólki
fara vel sjölin frá okkur,
því þau ern falleg.
Alt kvenfólk
getur keypt sjölin okkar, því
við höfum þau af Öllu
verði við allra hæfi.
Öll kvenþjóðin
er nú að verða sannfærð um
það, að við seljum hald-
beztu Sjölin, sem hér er
völ á.
Mikið úrval nýkomið.
Einnig hin viðurkendu beztu
Kasimir-sjöl.
Frönsk sjöl,
eitt af hverri teg., nokkur stykki.
Verzlunin
Björn Kristjánsson, Ryík.
r
I hinni nýju verzlun minni
á Laugaveg 44
í Reykjavík
fást keyptar alls konar vefnaðarvörur,
tilbúinn nærlatnaður, sjófatnaður,
leirvörur, glysvörur, nýlenduvörur,
ýmis konar tóbak og margt fleira.
Ait selt mjög ódýrt.
Virðingarfylst.
Marteinn Einarsson.
byggilegu hurð með þjölum og bor-
um. En hvaða efni er í hurðinni: næfui-
þunt jóðurtau eða »shirtin%* (I!) sem eins
árs barn mundi geta stungið litlafingr-
inum gegnum, án þess að reyna vit-
und á sig, enda blakti eins og strá af
vindi skekið, við minstu snertingu,
Hvernig eiga nú áheyrendur að »lifa
sig inn í« atburðina, sem eru að ger-
ast á leiksviðinu, þegar svo hrotta-
lega er syndgað móti þvi, sem gera
á þá sennilega?
Um sama leyti og leikfélagið sprakk
á eigi vandameira viðfangsefni en
Sherlock Holmes — sýndu nokkurar
stúlkur úr kvenfélaginu Hringurinn
Tvíburana, — sem óhætt má segja
um, að ekki er vandaminna leikrit að
sinu leyti.
En hvílíkur ógnamunur — á leiki
Enda þótt stúlkurnar hefðu svo örð-
uga afstöðu, að eiga sumar hverar að
sýna okkur »sprund, sem þar á bux-
um ganga« — bregða sé í karlmanns-
gerfi — var þó leikur þeirra miklu
sennilegri og eðlilegri en leikfélags-
ins. Og meðal kvennanna gægðust
fram svo góðir leikkraftar — fleiri en
einn og fleiri en tveir, að leikfélagið
á nú eigi nema einni stúlku á að
skipa, er þeim standi á sporði.
Það sýndi sig á þessum tveim leik-
sýningum: Sherlock Holmes og Tví-
burunum, að kvenfólk, sem annars
gefur sig við öllu öðru en að leika,
qcetti leiklistarinnar mun betur, en sjáljt
T.eikjélag Rvíkur, sem á að vera vörð-
ur hennar og brautryðjandi á voru
landi.
Þetta finst mér vera aðal-íhugunar-
efnið í lok þessa leikárs fyrir alla þá
sem leiklist unna og vilja henni götu
greiða.
Mér virðist það vera að koma í
Ijós, að hægt sé að hlúa betur að leik-
listar-vísinum vor á meðal en með
því að láta hann vera í hönd-
um Leikfélags Reykjavíkur einum —
minsta kosti eins og horfurnar eru í
því nú sem stendur.
Leikfélagið hejir í vetur sýnt það,
að það er eigi um það fært að keppa
í leiklistinni við viðvaninga (dilett-
anta).
Og þá virðist mér, að tilveruréttur
þess fari að verða dálítið vafasamur,
minsta kosti frá þeirra manna sjónar-
miði, sem á þetta mál líta með hags-
muni kiklistarinnar fyrir augum.
Það fer að verða umhugsunarefni
hvort horfum leiklistarinnar væri eigi
betur komið, ef Leikjélag Reykjavíkur,
sem slíkt, legðist niður, en beztu
kraftar þess tækju saman við ýmsa
karla og konur hér í bæ utan félags-
ins til þess að leika 2—3 leikrit á
vetri. Því að vafalaust er ekki svo
fátt fólk hér í bæ til, bæði konur og
karlar, líklegt fólk til að leika vel, sem
fengist til að verja tíma og kiöftum
að vetrinum í leiklistarinnar þágu —
ef eigi þyrfti að binda sig við Leik-
félag Reykjavíkur. Það er mér jafn-
vel persónulega kunnugt um. Og eng-
inn vafi er á því, að sumt fólk
hér í bæ mundi þegar vera búið að
koma þessu í framkvæmd, ef eigi
hefði hamlað leikhússleysi. Leikfélag
Reykjavíkur hefir legið á eina leik-
húsi voru eins og ormur á gulli
alla vetur. Þar hafa eigi aðrir kom-
ist að fyr en á vorin.
Þetta finst inér, að Leikfélag Reykja-
víkur ætti að íhuga hleypidómalaust.
Því ber skylda til að meta jramfarir
leiklistarinnar, meira en löngun ein-
stakra af félögum þess til að sýna
getuleysi sitt á leiksviðinu. Til þess
að vinna að framförum leiklistarinnar
er því veittur 2000 kr. styrkur úr
landssjóði og 500 kr. styrkur úr bæj-
arsjóði — en eigi til þess að »upp
fóstra« óhæfa leika og þar með spilla
smekk almennings á svo mikilsverðri
iþrótt, sem leiklistin í raun og veru
er. Ego.
Lóðartauma
og Netakúlur
hefir
verzlunin Ediuborg, Rvík
alt af nægtir af.
Dusleg og þrifin stúlka óskast í
vist nú þegar.
Frú Klingenberg, Lækjargötu 6 A.
Skúfhúfa fundin; vitja má í af-
greiðslu ísafoidar.
Stói’ stofa og svefnherbergi við
til leigu á ágætum stað í bænum frá
14. mai. — Forstofuinngangur. —
Ódýr leiga. — Ennfremur 1 herbergi
fyrir einhleypan, neðarlega í austur-
bænum. — Upplýsingar á skrifstofu
blaðsins.
Fræsölu gegnir eins og að undan-
förnu Ragnheiður Jensdóttir, Laufásv. 13.
Stúlka, dugleg og þrifin, óskast
frá 14. maí. — Kr. Biering Petersen,
Suðurgötu 10.
Gott barnarúmstæði óskast keypt.
Borgpór Jósejsson.
Góða atvinnu getur duglegur
karlmaður, verldaginn, fengið í Engey
frá miðjum maí, lengi, og eftir sam-
komulagi. — Afgreiðslan leiðbeinir.