Ísafold - 08.05.1912, Síða 1
Kemui út fcvisvar í viku. Verft úrR. (HO
arkir minst) 4 kr. erlentU* 6 kt. ef>a l l/a
dollar; boigist fyrir mibjan iúli (erlendis
fyrir fram).
ISAFOLD
CppsOjth (akrifleg) bnndin vib dramót. er
óffDd nema komm sé tii útgefanda Sfyrix
1. olrt. rtg aaapandi sknldlaa? ví£ blaMb
Afgreibsla: Anstnratrsti B.
XXXIX. árg.
Reykjavífe 8. maí 1912.
30. tölublað
I. O. O. F. 932649
Alþýbufól.bókasttfn Pósthússtr. 14 kl. 5 8.
Augnlækning ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 2—3
Borgarstjóraakrifstofan opin virka daga 10 3
B vjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10 2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 5—7
Eyrna-,nef-og húlslækn. ók. Pósth.str.UA fid.2—8
tslandsbanki opinn 10—2 */» og 5x/a—7.
K.P.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 érd.—10 sbd.
Alm. fundir fid. og sd. 8 l/a sibdegis.
Landakotskirkja. öuösþj. 9 og fi á helgum
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 104/a—12 og 4—5
Landsbankinn 11-21/«, 6^/a-ö1/!. Bankastj. vib 12-2
Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlén 1—8
Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin trá 12—2
LandsféhirMr 10—2 og 5—6.
Landsokjftlasatnib hvern virkan dag 12—2
Landsiminn opinn daglangt [8—9] virka daga,
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis Þingh.str. 28 þd.og fsd. 12—1
Náttúrugripasafn opib 1 */a—24/« á sunnudögum
Stjórnarráösskrifstofurnar opnar 10—4 daglega.
Talslmi Reykjavíkur (Pósth. 8) opinn daglangt
(8—10) virka daga; helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12
Vifilsstaöahæliö. Heimsóknartimi 12—1.
Þjóömenjasafniö opiö á sd., þrd. og fmd. 12—2
Mikill landskjálftakippur.
Níu bæir austanfjalls gjörhrynja.
Nlargir stórskemmast.
Útihús hrynja mjög víða.
Manna-slys hljótast af.
A mánudaginn um miðaftan varð
hér i bæ vart við æði mikinn land-
skjálftakipp — hinn langmesta síðan
landskjálftaárið mikla 1896.
Um þenna landskjálftakipp hefir
I s a f 0 1 d aflað sér vitneskju hjá Páli
Halldórssyni, skólastjóra, því að undir
hans gæzlu er eini landskjálftamælir-
inn hér um slóðir. Skýrsla hans er
svolátandi.
Mánudav 6. maí 1912. Hreyj-
ingin byrjaði kl. 6* om 208 síðdegis
með mjög sterkum kipp úr suðurátt,
setn stóð yfir rm 408 Síðan mjög
órótt með smákippnm til kl. 6* 2im.
Fullkomin kyrð komin aftur kl.
6' ]jm Smáhreyjing kl. yl yym Síð-
an mjög rólegt.
Hér i bæ kvað svo mikið að land-
skjálftanum, að sitt af hverju lauslegt
datt ofan af hillum, t. d. i búðinni
Godthaab. A einum stað í bænum
skvettist úr glasi, sem stóð á borði
og var þó á þvi 11/4 þml. borð, og
á öðrum stað féll stytta af Jóni Sig-
urðssyni ofan af píanói o. s. frv.
Fólk varð æði hrætt hér í bæ, ekki
sízt útlendingar, sem aldrei hafa fundið
landskjálfta fyr. Hlupu menn út úr
húsum, þegar kippurinn harðnaði.
Engin slys og engar verulegar
skemdir hlutust þó af landskjálftanum
hér.
En austanfjalls hellr kveð-
ið ákaflega mikið að land-
skjálftanum og stórtjón
hlotist af.
Bæjahrun.
Isajold átti 1 morgun tal við Ólaf
ísleifsson lækni í Þjórsártúni og fekk
hjá honum nákvæmar fregnir af því.
Þessir bæir hafa gjörhrunið.
Á RangArvöllum:
Næfurholt
Haukadalur
Selsund
Hagverðarnes
Kot
Svínhagi.
Stórskemst haja og hrunið að tals-
verðu leyti bairnir Lakjarbotnar, Snjall-
steinshöjði og Snjallsteinshöjðahjáleiga.
A Landi, Rangárvöllum og í Holt-
um, Hvolhreppi og Fljótshlíð hafa
útihús skemst og hrunið mjög viða,
fallið ofan á gripi sumstaðar og drep-
ið þa eða meitt, t. d. i Næfurholti. Þar
drapst ein kýrin, en aðrar rifbrotnuðu
og skektust,
Á Landi:
Galtalækur
Vatnagarður
Leirubakki
Manntjón og meiðsl.
í Næfurholti lá kona bóndans Ófeigs
Jónssonar í rúminu og hafði barn á
stokknum fyrir framan sig. Þegar
bærinn hrundi, lenti sperrutáin á
höfði barnsins og rotaði pað til bana,
en lærbraut konuna. — Svnir bónda
meiddust og nokkuð í andliti.
Spru'gur og klettahrun
Sunnan undir Bjólfelli hefir mynd-
ast 5 álna breið jarðsprunga og jarð-
lagið sigið svo, að annar barmurinn
er 2 mannhæðum hærri en hinn.
Úr fjallinu fyrir ofan Næfurholt
féll klettur mikill og stefndi beint á
bæinn, en stöðvaðist 5—6 föðmum
fyrir ofan hann. Klettur þessi er 9
faðmar ummáls og alt að 2 mann-
hæðum.
Landskjálfta þessa hefir orðið vart
um Suðurland svo langt sem spurst
hefir, og í Vestmannaeyjum, en ekki
lengra norður og vestur á bóginn en
til Akraness.
Miðbik landskjálftans virðist vera
kringum Heklu.
Frá Titanic-slysinu.
Frá vitnaleiðslunum.
Ókenda skipið.
---- Kh. n/4 ’12.
Nefnd hefir verið skipuð af öld-
ungaráðinu í Bandarikjunum til að
rannsaka orsakirnar að Titanic-slysinu
og er hún enn að starfa.
Það hefir vitnast að 2. stýrimaður
Mordoch, sem skaut sig, þegar hann sá
hvað verða vildi, ber aðalábyrgðina á
slysinu. Honum var sagt í tæka tíð,
að ísfjallið væri í augsýn, en hann
gerði þá ekkert, og ekki fyr en um
Smith skipstjúri
á stjórnpallinum á Titanic, er hatm
hrópar í kallara sinn: S ý n i S y ð u r
sem Breta.
seinan. Þá lét hann snúa skipinu,
en það varð til þess, að hlið þess
rakst af afli á ísbjargið.
Skipverjar sáu, þegar skipið rakst
á, skip í nánd í 3. sjómílna fjarlægð.
Neyðarflugeldum var skotið, en skipið
svaraði eigi. Enginn veit hvaða skip
þetta hefir verið. Annað skip Cali-
fornian var nokkru lengra burtu, sá
flugeldana, en hafðist þó eigi að.
Skipshöfnin af Titanic hefir verið
send til Englands, en er höfð þar í
varðhaldi unz rannsókninni er lokið.
Úr ferð hins skips White-Stars-fé-
lagsins Olympic, sem er nákvæmlega
eins og Titanic, og átti að vera farin
frá Englandi vestur um haf hefir eigi
getað orðið að sinni, því að skipverj-
ar hafa gert verkfall. Þeir heimta
skipið betur ment og björgunarfæri
meiri og vandaðri.
Samskot eru nú hafin um alla Norð-
álfu til styrktar þeim, er mistu vanda-
menn sína á Titanic og mörgum
þeirra er af komust snauðir.
Ógrynni fjár hafa farið i sjóinn
með Titanic, m. a. gimsteinar fyrir
margar miljónir sterling-punda.
Ýms erlend tíðindi.
----- Kh. 29/4 ’12.
Strindberg, stórskáldið sænska ligg-
ur nú fyrir dauðanum, sárþjáður af
krabbameini í maganum. Honum er
talin engin lífsvon og búist við and-
láti hans þá og þegar. Hann er nú
að falla frá þrem bókum, er hann
Strindberg.
hafði í smíðum, en þær voru: leikrit
frá dögum Lúðvíks 14., annað leikrit
er byggja átti á kolaverkfallinu brezka
og ioks ýms atvik úr sögu Svíþjóðar
og átti sú bók að heita »Hinn sænski.
Róbínsotif.
Þrátt fyrir friðlausar þjáningar er
andi skáldsins sístarfandi enn og les
hann ógrynni af öllu tægi. Titanic-
slysið hafði fengið mjög á hann, eink-
um þá er hann las um sálminn, sem
hljóðfæraflokkurinn lék um leið og
skipið var að sökkva (»Hærra, minn
guð, til þín).
Taft og Roosevelt. Samkepnin milli
þeirra um forsetatignina er orðin gif-
urleg. Þessir fornvinir flytja nú hvor
um annan svo svæsnar skammarræð-
ur, að þess eru fá dæmi í stjórnmála-
baráttum. Hvor yfirsterkari verður, er
engnn veginn bægt að gera sér í bug-
arlund. Líklegast þykir að flokkur
þeirra bíði algerðan ósigur sakir þessa
sundurlyndis og samveldismenn (de-
mókratar) komist til valda.
Frá stríðinu. Fullyrt er nú að ítalir
muni hefja skothrið í Dardanellasundi
nú um mánaðamótin og taka þar
nokkrar tyrkneskar eyjar. Sumir segja,
að stórveldin muni þó aftra þessu. en
aðrir að Rússar gangi í lið með ítöl-
um.
Bófarnir í Paris. Bonnot drepinn.
Nú hefir lögreglunni í París tekist
eftir langa mæðu, að ná í annan aðal-
manninn í glæpaverkum þeim, sem
þar hafa gerst svo að segja daglega.
En það var ekki tekið út með sæld-
inni að ná fantinum. Fyrir nokkrum
dögum komust nokkrir lögreglumenn
að honum óvörum í húsi einu, en þá
tókst Bonnot að sleppa undan og
hafði hann áður drepið tvo lögreglu-
menn, af þeim, sem hann vildi taka
þá, en voru vopnlausir.
í gær komst lögreglan á snoðir um,
að fantarnir hefðust að i bifreiðar-
byrgi einu í smábænum Choisy le
Roi hjá París.. Þangað fór flokkur
lögreglumanna snemma í gærmorgun
og settist um byrgið. En bófarnir
svöruðu með dynjandi skothríð og
drápu og særðu nokkra af umsáturs-
mönnum. Loks settust um 100 manns
um byrgið og sprengdu af því þakið
með sprengitundri eftir 3 stunda um-
sátur. Þar var Bonnot inni fyrir stór-
særður, og annar félagi hans, dauð-
ur. Þegar umsátursmenn komust inn
ætlaði Bonnot að skjóta á þá, en aðrir
segja taka eitur. Þá skaut lögreglu-
stjórinn i París, Lepine, sjálfur kúlu i
höfuð honum og lézt Bonnot af því
von bráðar.
Fögnuðurinn er mikill i Frakklandi,
en nú er eftir að ná í höfuðpaurinn,
Garnier.
IVýr konsúll.
Ludvig Kaaber kaupm. er nýlega
orðinn konsúll Belgja hér á landi í
stað Gunnars Einarssonar, sem slept
hefir því starfi.
Heiöursmerki.
Guðmundur Finnbogason dr. phil.
hefir verið sæmdur frakknesku heið-
ursmerki — orðinn Ojficier d’uAca-
demie.
Verzlun i Skagafirði til sölu.
Þar eð eg hefi afráðið að taka við stöðu, er mér hefir boðist erlendis,
hætti eg verzlunum mínum í Hofsós og Sauðárkrók, og eru því húseignir
mínar í báðum þessum stöðum ásamt fiskhúsi í Selvík og fleiri stöðum á
Skaganum til sölu, sem og verzlunaráhöld, bátar og bryggjur. Sláturhús eru
á Sauðárkrók og Hofsós. Oll húsin eru í ágætu standi.
Nánari upplýsingar gefnar þeim er þess óska.
Sauðárkrók 1. maí 1912.
/. Popp.
Farþegar á Titanic.
1. frú Astor, 2. Hays, 3. Astor. 4. William Stead,
5. Butt, 6. Straus.
Langmerkastur þeirra manna er druknuðu var William Stead. Af öðr-
um nafnkunnum mönnum má nefna Hays, járnbrautarkónginn ameríska, Butt
aðstoðarmann Tafts forseta, en hann er sagður hafa verið skotinn til bana af
farþega, þá er hann (Butt) vildi stöðva ruðning manna að bátunum með því
að hleypa af nokkrum skotum. Hörmuleg er frásögnin um Straushjónin og
Astorhjónin frá Ameríku. Hin fyrnefndu vildu eigi skilja svo sem skýrt hefir
verið frá, og sukku þvi með skipinu. Frú Astor, sem var nýgift og var
að snúa heimleiðis úr brúðkaupsferð til Norðurálfu með manni sínum, var
komið í bát, en maður hennar mátti eigi vera með. Hann druknaði fyrir
augunum á henni.
Málverkasýning Ásgríms
M&lverkasýning Ásgríms Jóns-
sonar, í Yinaminni, opin daglega
kl. 11—6. Aðgangur 50 aura.
Kort fyrir allan sýningartimann
1,50.
Ásgrimur er sistarfandi. Hann lifir
á vegum listarinnar og hann helgar
sig henni heill og óskiftur. Meðan
við hér í borginni hrekjumst fram og
aftur fyrir straumunum, og ýmist söfn-
umst saman til gleðihátíða eða rífumst
um stjórnmálin og alla skapaða hluti,
situr Ásgrímur á eintali við iistagyðj-
una, fjarri öllum glaumi og hávaða.
í horninu á einni myndinni á sýn-
ingunni sá eg standa: »17. jiiní 1911«.
Og mér datt í hug hvort þarna mundi
nú ekki vera þarfasta og fegursta verkið,
sem unnið var hér á landi þann mikla
dag. Þá var Ásgrímur austur í Mýr-
dal og enginn, sem mundi eftir hon-
um i gleðivímunni.
En sleppum nú þessum almennu
hugleiðingum og komum heldur upp
í Vinaminni. Þar getum við séð hvað
Ásgrímur hefir unnið síðan í fyrra.
Því að einu sinni á ári opnar Ás-
grímur þar málverkasýningu, og minnir
menn á sig.
Á sýningunum undanfarin ár hefir
jafnan verið einhver ein stór og mikil-
fengleg mynd. Athyglin hefir þá leiðst
að nenni, því að þar hyggjast menn
að sjá eins og inntakið af ársstarfinu,
sjá stigið, sem listin er komin á. Við
munum t. d. eftir myndinni miklu,
þar sem gat að líta hvernig
»Heklu, sem gereyddi sveit við sveit
krýpur alt landið í lotning«
og Öræfajökulsmynd hafði hann í fyrra
stóra og áhrifamikla.
Nú er þar komin altaristafla: Fjall-
ræðan. Nokkuð hægramegin við miðja
myndina sést Kristur. Hann stendur
hátt, mænir upp úr hópnum og ber
við blátt loftið. Það er tign yfir svipn-
um og allri persónunni. En andspæn-
is honum, fremst vinstramegin situr
kona með barn ífanginu. Múgurinn
stendur eins og þéttur veggur í kring.
Öll athyglin safnast að Kristsmynd-
inni. Hann heldur hópnum saman
eins og segulafl drægi þá að sér. En
mitt í hópnum sjást tveir prestar. Þeir
mögla og gjóta hornauga til Krists.
En þeir eru auðsjáanlega magnlausir.
Friður ríkir yfir öilu. í kring eru
fjöll, íslenzk ^jöll, hamraveggur, og
hátt fjall bak við, dýrleg kirkja, með
dimmbláan himininn hvelfdan yfir.
En mjúkt sólskinið breiðir undra næm-
an og blíðan blæ yfir alt.
Með þessari altaristöflu hefir Ásgr.
breitt út fyrir okkur nýja hlið á list
sinni. Við höfum séð hana fyr þessa
hlið, en aldrei nema eins og hálf fálm-
andi. Nú alt í einu hafa öll brotin
safnast saman, alt fálmið orðið að
beinu striki, og hér er svo ávöxtur-