Ísafold - 03.06.1912, Qupperneq 2
138
ISAFOLD
Er Kristján X. tók konungdóm.
Á myndinni sést uppi á svölunum lengst til vinstri Kristján konungur,
þá Knútur konungsson, þá Alexandrína drotning, og lengst til hægri konungs-
efnið sem nú er.
Friðrik konungsefni.
Minningarathðfn
háskólans.
Undir hádegið í dag streymdi hóp-
ur mikill karla og kvenna klætt sorgar-
eða -einkennisbúningi að háskólanum
— eða alþingishúsinu — hvort sem
menn vilja heldur kalla það.
Það var hátíð háskólans íslenzka,
til heiðurs við minningu Friðriks VIII.
sem fram átti að fara.
Neðrideildarsalur alþingis, hátíðar-
salur háskólans, var allur skrýddur
svörtum blæjum. Gegnt forsetastóln-
um hékk málverk af Friðriki 8., vafið
sorgarhjúp. Salurinn fyltist á skammri
stundu. Skiftist á í sætunum glitr-
andi einkennisbúningar em bættismanna,
konsúla og sjóliðsforingja af Valnum,
silkikjólar kvenfólksins og peysubún-
ingar og loks almenn borgaraleg við-
hafnarklæði annarra.
Á slaginu 12 tók rektor háskólans
sér sæti í forsetastólnum, en söngfé-
lagið 17. júní sög I. hluta kvæðaflokks
Þorst. Gíslasonar, þann er hér fer á
eftir.
Kom þú heilög himni frá
hjartaró, sem friðinn gefur,
meðan kæran minst er á
milding vorn, er dáinn sefur!
Hans var ósk að efla frið,
eyða kala bræðraþjóða.
Mildings þess svo megum við
minnast, — Friðriks konungs góða:,:
Vorrar þjóðar ást í arf
eftir göfgan föður tók hann;
en svo við sitt eigið starf
arf þann mörgum sinnum jók hann.
Munað skal, hvern hafði hann
hlut í íslands beztu vonum.
Héðan glitri’ um grafar rann
:,: góðar kveðjur yfir honurn. :,:
Úti um loftsins vídd er vor,
vor i dönskum beykilundum;
blómið grær í geislans spor;
gullið skin á eyja-sundum.
Þína, Friðrik góði, gröf
geislum vefur röðull sínum.
ísland sendir yfir höf
:,: ástarþökk að legstað þínum. ,:,
Þá fór Jón Jónsson docent hátt og
snjalt með miðhluta kvæðaflokksins,
er svo hljóðar:
Munum alþingis
íslendinga
för til fylkis sala,
þá er milli þinga
þjóða sinna
vísir bar vináttu orð.
Báru þá heim
frá bræðra landi
gestir góðar kveðjur.
Svo voru hin fyrstu
Friðriks áttunda
afskifti’ af íslands þjóð.
Fagnað var
fyrir fimm árum
sjóla í þessum sal.
Hylli’ og vináttu
hét hann íslandi,
og orði því aldrei brást.
Reið hann um héruð;
við röðulskin
sá hann sveitir lands ;
gljájökla
yfir grænum hlíðum,
opinn fjalla faðm.
Leit hann yfir land
frá Lögbergi,
stóð þar sem steinarnir tala.
Horfna gullöld
hugum leiddi,
en festi við framtíð sjón.
Alt vildi hann gera,
sem íslands hag
breytti’ í betra horf;
laga lög,
leysa’ úr þrætum;
fá því fullan rétt.
Traustust tengsl
taldi jafnrétti
þengill þjóða milli
í samvinnu’ og samúð
sátt að tryggja
var konungshugsun hans.
Guð og gæfan
gefi íslandi
oftar þess öðlings líka!
Hér skal hans minning,
þótt hjartað sé brostið,
ætíð í heiðri höfð.
Þá flutti B. M. Olsen háskólarektor
mjög hlýlegt minningarerindi um hinn
látna konung. Kvað hann íslendinga
hafa verið nefnda »þjóð endurminn-
inganna« og sæmdi þeim vel við frá*
fall konungs að taka sér i munn orð
Sigmunds Brestissonar: Grátum ekki
— munum heldur. Vér ættum að
geyma trúlega endurminninguna um
Friðrik 8. Endurminningin um látna
ástvini væri bezta huggunin í söknuðin-
um eftir þá •— svo ætti og að verða
hér. Hann rakti því næst æfiferil
konungs og mintist sérstaklega hinna
ágætu afskifta hans af íslendingum —
fyrir honum vakað öllu fremur að
skapa samúð, bræðraþel og bróðurlega
samvinnu með þjóðum þeim, er hann
átti yfir að ráða. Alþingisboðið 1906
og konungskoman 1907 verið liðir í
þeirri viðleitni.
Mintist rektor á margar innilegar
ræður konungs í vorn garð þau árin
— r. d. Kolviðarhólsræðuna.
Taldi hann störf konungs munu
bera góðan ávöxt í framtíðinni, þótt
eigi hefði hann sjálfur borið gæfu til
að sjá hann. Enn mintist rektor á
góð afskifti hins látna konungs af há-
skólastofnuninni og hið hlýlega sím-
skeyti hnns stofndag háskólans í fyrra,
17. júní. Einkunnarorð Oskars Svía-
k'önungs II. hefði verið: Heill brœðra-
pjóða. Þessi orð mætti eins vel standa
semeinkunnarorð yfir stjórnarferli Frið-
riks 8. .— að því við bættu, að hann
hefði ekki síður borið fyrir brjósti
heill þeirrar þjóðarinnar, sem minni
máttar var.
Að lokum bað rektor söfnuðinn
heiðra minningu konungs með því
að standa upp.
Eftir erindi rektors var svo sunginn
3. hluti hátíðarljóðanna:
Vega mjólkurskilvindan
er fullkomnust og bezt
°R
Vegastrokkarnir
að sama skapi.
Einkaumboðssala í
verzlun B. H. Sjarnason.
Peniilga-umslðg afarsterk fást í bókverzlun lsafoidar.
Dt --------------------
1
Viljir þú spara tíma og peninga, þá nota þu
„GIDEON MOTOREN44 í báta þína.
Einkasali
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn. Símnefni: Verzlun.
t
pr ..... ...
nO
J □
Þú, konungur himnanna háu
og hvelfingar víddanna bláu,
sem veldi’ átt um vorljóssins geima,
þar vonin og ástin á heima!
Send lifsþrótt og styrk voru landi
og ljáðu því vörn móti grandi!
Send lífsstrauma logans þíns bjarta
með ljós og með frið í hvert hjarta!
Póstkorta-album
í bókverzlun Isafoldar.
Lát óskir hins andaða rætast
um alt það, sem hér þarf að bætast!
Gef sigur hans samúðaranda
í sáttum á milli hans tanda!
Svo kveðjum vér konunginn góða.
Þú, konungur alheimsins þjóða,
legg blessun hins látna hjá líki
á lýði hans, ætt hans og ríki!
Þá var athöfninni lokið.
Sðngféí. 17. júttí.
Samsöngur i Bárubúð fösfuefaginn 7. júní k(. 9.
Jlánar á göíuaugítjsingum.
Ljábíöðin
landsfrægu, allar lengdir, koma
með »Sterling« 13. þessa mánaðar.
Verzíun B. Jf. Bjarnason.
Ensk vaðmál
Fjalla-Eyvindur í Khöfn.
Dönsk blöð láta ósköpin öll af
Fjalla-Eyvindi. Hann var leikinn
fyrsta sinni í Dagmarleikhúsinu þ. 20.
mai.
Skáldið Sven Lange, leikdómari blaðs-
ins Politiken byrjar leikdóm sinn á
þessum orðum:
Mikiljenglegt Jegurðarkvóld — hið
bezta á leikárinu. Og þessi leikdóm-
ari Dana er sá er sizt ber lof á leik-
húsin og leikritin eða fagurmælgi í
þverpokum. Lætur hann mjög af
leik frú Dybwad í hlutverki Höllu.
Skáldið hefir látið önnur verða leiks-
lok á Fjalla-Eyvindi þar í leikhúsinu
en hér var og prentuð eru i sjálfu
leikritinu.
Á leiksviðinu i'Khöfn lét hann hest
einn ráfa að kofadyrunum, er hung-
ur-þjáningar þeirra Eyvinds og Höllu
eru hvað sárastar. Taka þau þá hest-
inn og slátra, stilla hungur sitt og
blíðkast við — og svo endar leikur-
inn.
Fyrsta kvöldið sem Fjalla-Eyvindur
var leikinn, var viðstatt flest bók-
menta- og lista- stórmenni í Khöfn.
Var leiknum tekið með óvenju miklum
fögnuði, — og höfundur heimtaður
fram á leiksviðið — til þess að
»þakka honum bezta teikkvöldið á
vetrinum* eins og eitt blaðið kemst
að orði.
Kom þá Jóhann fram við hlið frú
Dybwad og var klappað lof í lófa af
mikilli ákefð.
ReykJavikur--annáII.
Hljómleikar. Á laugardagskvöldið eiga
Beykvikingar von & að heyra jungfrú
Herdisi Matthiasdóttur skálds Jochnms-
sonar syngja og leika á pianó í Bárubúð.
Jungfrúin hefir mentast i sönglistarskólan-
um i Khöfn. Hún hefir ágæta söngrödd og
fer sárstaklega vel með söngva sina. Hefir
hún efnt til hljómleika bæði á Akureyri og
Seyðisfirði og þótt vel takast. í Noregi
söng hún einnig i fyrra, er hún var á ferð
þar með föður sinum og fékk iof mikið i
blöðum þar.
Leikhúsið. í gærkveldi léku dönsku leik-
endurnir i næst siðasta sinni og var lítið
varið i leik þeirra þetta kvöldið. Ef til
vill geyma þau hið hezta, sem til er i fór-
um þeirra, til siðasta kvöldsins.
Söngfélagið 17. júnf ætlar að syngja næst-
komandi föstndag i Bárubúð. Eintóm ný
lög á söngskránni. Þetta sinni aðstoðar
frú Valborg Einarsson — syngur einsöng i
tveim lögum.
Skipafregn. Botnía kom frá útlöndum i
gær með fjölda farþega. Meðal þeirra voru:
Bjarni Jónsson frá Vogi með konu sinni,
Ásgeir Ásgeirsson etazráð með fósturdætr-
um sinum, Þorvaldur Benjamínsson verzl-
nnarmaðnr með konu sinni, Jón H. Stefáns-
son málari frá Sanðárkrók, jungfr. Sigriður
Blöndahl, stúdentarnir Sighv. Blöndahl og
Steingrimur Jónsson 0. fl. 0. fl.
Frá Vesturheimi komu: Siguröur Jó-
hannesson skáld, Gnðm Þórðarson bakari
ásamt konu sinni, Sigfús Pálsson með sinni
konu 0. fl. — Alls 18 manns frá Winnipeg,
sem dveljast hér sumarlangt eða lengur.
Sveinn Bjðrnsson
yfirdómslögmaður
fluttur í Halnarstræti 22.
Skrifstofutími 10—2 og 4—6.
Hittist venjulega sjálfur
11—12 og 4—5.
Ueinlanst mðnnum og skepnnm.
Batin’s Salgakontor, Pilestr. 1, Kðbenhavn K.
og dömuklæði
margar tegundir og margt fleira kom
með s/s Botnia í verzlun
&. SZoacja.
íj^ABOIrD er blaða bezt
íj^ABOIcD er fréttaflest
íjSÍABOIiD er lesin mest.
Nýir kaupendur fá i kaupbæti:
Fórn Abrahams (700 bls.),
Davíð skygna, hina ágætu
sögu Jónasar Lie og þar
að auki söguna
sem nú er að koma
1 bl., sérprentaða, þegar
hún er komin öll.
ísafold mun framvegis
jafnaðarlega flytja myndir af
merkum mönnum og við-
burðum.
Aldrei oftar í boði!
360 munir fyrir að eins kr. 3,60.
Fallegt, gylt nákvæmis ankergangsúr,
með viðurkendu, góðumerki »Cyklop«,
sem gengur rétt og hefir 3 ára ábyrgð,
3 ekta léreftsvasaklútar, fallegur karl-
manns hringur með eftirg. gimsteini,
prýðisfallegt kvenhálsband úr austurl.
perlum með patentlás, falleg kven-
brjóstnál (Parisarnýjung), sjáleg, lítil
peningataska úr leðri, eyrnahringir með
exta silfurkrókum og eftirg. gimstein-
um, skrautl. vasaspegil! með greiðu,
nýtízku manchetthnappar, ektagyltir;
góð vasabók, 72 enskir pennar, 20
ritáhöld og enn yfir 300 munir, ómiss-
andi á hverju heimili, ókeypis. Alt
þetta kostar að eins 3 kr. 60 au., að
úrinu með töldu, sem eitt er þess
virði. Er sent gegn póstkrófu eða
fyrirframgreiðslu.
»Wiener Zentral Versandhaus*
P. Lust, Krakau nr. 61 (Östrig).
NB. Ef beðið er um 2 sendingar,
fylgir ókeypis mjög falleg karlmanns-
úrkeðja, tvöföld, úr gulldouble. Ef var-
an ekki líkar, verða peningar endur-
sendir. — Áhætta engin!
Hattaefni og hattaskraut hefi
eg fengið með Botniu. Kristjana
Markúsdóttir.
I Ij' arveru minni bið eg herra
bókhaldara Olaf Runólfsson að veita
móttöku bréfum þeim, sem mér kunna
að berast, meðan eg er burtu; svo
veitir hann móttöku peningum þeim,
sem mér kynnu að verða sendir og
eru þeir, sem skulda mér, beðnir að
snúa sér til hans með borgun á skuld-
unum.
Reykjakvík, Laugav. 26, 3. júní 1911.
Sigurður Erlendsson.
Ritstjóri: Ólafur Björnsson.
Isafoldarprentsmiðja