Ísafold - 29.06.1912, Síða 3
ISAFOLD
159
Frá mannamótum.
Knattspyrnumótið, sem get-
ið var um í síðasta blaði, hófst í gœr-
kveldi á íþróttavellinum. Sú var til-
ætlunin upphaflega, að eigi byrjaði
það fyr en á motgun, en vegna Vest-
manneyinga, sem hingað komu til að
taka þátt í því, var það fært fram,
með því að þeir ætla sér að komast
heim á Ceres á morgun.
Knattspyrnufélögin, sem keppa á
mótinu, eru svo sem kuanugt er 3:
Fram, Knattspyrnufélag Reykjavíkur
og Knattspyrnufélag Vestmanneyiuga.
Hlutkesti réð því, að í gærkveldi keptu
Reykjavíkurfélögin.
Leikurinn hófst kl. 9. Áhorfeudur
á að gizka 4—500 — alt of fáir; og
hafa þeir setið af sér góða skemtun,
sem eigi nentu dt á íþróttavöll.
Leikdómarinn var Ólafur Rósen-
kranz leikfimiskennari. Dómarinn
verður að hlaupa fult eins mikið, ef
eigi meira en þeir sem í leiknum eru.
Var Ó. R. þarna lifandi sönnun þess,
hvað leikfimin fær áorkað um að halda
manninum fráum og fimum fram á
elliár. Því að eigi gaf Ó. R. þeim
eftir unglingunum i leiknum um hlaup.
Mundi það raunar eigi einsdæmi um
allan heim, að maður á sjötugsaldri sé
fær um að vera leikdómari i kapp-
knattspyrnu ?
Jæja, en snúum nú að leiknum
sjálfum.
Þeir Fram-menn báru íslenzka liti
í klæðaburði, bláar peysur og hvítar
brækur, en hinir voru hvitir og svartir.
Fyrri hálfleikurinn hófst og var
þegar miklu meiri sókn en vörn af
hendi Fram-manna. En þeir eru yngri
en hinir og höfðu þeir auðheyrilega
samúð áhorfenda með sér. Léku þeir
af miklum röskleik og fimi fyrri leik-
inn — og var oft ánægja að sjá,
hvernig þeir fót-fjötluðö knöttinn. En
eigi tókst þeim þó lengi framan af
að koma honum í mark. Leikurinn
barst víða um völlinn. Knötturinn
hentist um alt — nema í markið!
Þar kom þó, að Pétur Magnússon,
Fram-maður, fekk smeygt honum í
mark, og gullu þá við fagnaðaróp um
alian völlinn, einkum úr drengjahópn
um, sem þótti eigi lítið varið í að
yngri hópurinn skyldi skjöldinn bera.
Þá var mjög liðið á tímann (8/4 stund
ar) og varð eigi fleira um vinninga í
þeim leiknum.
Var nú gert 5 mfndtna hlé.
En er seiuni hálfleikurinn hóíst var
auðséð, að kapp var komið í Rvíkur-
félagið. Þeir léku nú af miklu meiri
fors en fyrri og sóttu á Fram-markið
af miklum ákafa. Mátti nú líta marg
ar brýnur harðar og leið eigi á löngu,
að Reykjavíkurfél.-menn náðu heitt-
þráðu Fram-markinu. Það var Lúðvík
Einarsson, sem mark gerði.
Nú varð »spenningurinn« við suðu-
mark. Hvor flokkurinn ætlaði að sigra?
Knöttinn i mark ei»u sinni — og
sigurinn var unninn!
En sú ánægja veittist hvorugum
flokknum. Þeir sveittust við báðir,
þutu með knöttinn af allri orlcu, sóttu
á mörkin af heljarákafa. En kom
fyrir ekki.
Aður en varði kvað við hljóðpípa
dómarans. Leiknum var lokið — án
þess úr skæri.
Félögin sátu með sinn vinninginn
hvort. »Meistarann« vantaði.
Þá var hugurinn svo mikill i hvort-
tveggju, að hrópin gullu um að halda
áfram ’/a kl.stund enn. En það þótti
eigi hlýða.
Má nú enginn að svo komnu um
það dæma, hvort félagið má sín meira
i knattspyinu. En eitt er vist, að
báðum félögunum hefir stórlega farið
fram síðan í fyrra.
Það er nú komin allmikil mynd á
knattspyrnuna, svo að ómenguð ánægja
er á að horfa með köflum.
En hví sækir fólk eigi betur þessa
ágætu kappleika? Sennilega vegna
þess, að það veit eigi hve óvenju
»spennandi« þeir eru.
Erlendis eru engir kappleikar til,
sem meiri tök eiga i almenningi.
Aðsóknin alv»g feikileg. Þar er fólk
búið að læra að meta skemtunina, sem
þeir hafa í sér fólgna. Eg vil ráða
þeim, sem sátu heima í gærkveldi að
telja eigi eftir sér sporin út á íþrótta-
völl, né aurana, sem það ko«*ar að
horfa á. Þá mun áreiðanlega eigi iðra
þess.
Svo er auðvelt að fylgjast með
leiknum, að það kemur óðara af sjálfu
sér. Mér er nær að halda, að þeir
sem fara í kvöld fyrsta sinn að
horfa á knattspyrnuna, sem verður
milli knattspyrnufélags Reykjavíkur og
Vestmanneyinga — muni eigi vilja
sitja sig úr færi að fara aftur á morgun,
þegar Fram-félagið og Vestmanney-
ingar keppa.
Lúðrafélagið skemtir með hljómleik-
um meðan á knattspyrnunni stendur.
E%o.
Siöleysisrit fcgibjargar Olafsson.
Ingibjörg Ólafsson: Nokk-
nr orð um siðferðisástandiÖ
& íslandi. Reykjavik. öefið
út á kostnaö höfundarins.
1912.
Sagt er, að þetta rit sé keypt óvenju-
lega mikið. Þar sannast máltækið:
»Fýsir eyrum ilt að heyra*.
Vér getum, í hreinskilni sagt, ekki
litið á þetta rit annan veg en sem
óþverra. Það er fult af ofstæki, skiln-
ingsleysi, ómildum dómum. Og ís-
köld þoka vanþekkingariunar liggur
yfir hugsununum.
Ef ekki vnsri sagt, að fólk flyktist
til að kaupa þetta, og ef ekki væri
farið að hæla því á prenti, þá hefði
ísafold leitt það hjá sér. Jafnframt
er eftir höf. haft, að hún ætli að
reyna að koma þessari ritsmíð sinni
út bæði á dönsku og þýzku. Allir
sjá, í hverju skyni það yrði gert: að
vekja hneyksli og hafa saman peninga;
en ekki til þess að bæta siðferði ís-
lendinga. Fyrir því lítum vér svo á,
sem rangt sé að þegja.
Fyrst er nær því helmingi ritsins
varið til þess, sem á að vera söguleg
skýrsla eða ritgjörð um siðferðisástand
íslendinga alt frá landnámstíð og fram
á vora daga. Mergurinn málsins sá,
að skírlífiskröfurnar hafi alt af verið
mjög litlar, og siðgæðið yfirleitt á lágu
stigi. Því til sönnunar eru tíndar upp
úr eldri ritum ýmsar hneykslissögur.
Vitanlega höfum vér ekki verið
englar, íslendingar, og erum það ekki
enn. Oss hefir aldrei farist og ferst
ekki að telja oss neitt betri menn en
aðra. En í dimmu vanþekkingar-
myrkri verða þeir menn að sitja, sem
gera sér í hugarlund, að siðleysið hafi
verið sérstakt einkenni á Iskndinqum
á liðnum öldum. Þeir menn vita þá
I' ekkert um önnur lönd, og hafa engin
skilyrði til þess að rita um slík efni
af neinni sanngirni »ða neinu viti
Svo er bersýnilega ástatt um höf.
þessa ritlings.
Og það er eins og alt umsnúist i
höfðinu á hönni, af áfergjunni í að
ná sér niðri á íslendingum. Hún
segist sjálf hafa tekið þátt í starflna
meðal siðspiltra kvenna í Höfn og
eins i félagi, sem vinnur gegn »hvítu
þrælasölunnic. Hún ætti því að hafa
nokkura reynslu um það, að ekki mun
alt vera verst hér. Auðsjáanlega er
það líka að vefjast fyrir henni. En
svo reynir hún að fálma sig út úr
þokunni með þeirri fullyrðing, að í
Danmörk sé fyrirlitning á siðleysinu,
en hér sé haldið hlífiskildi yfir því.
Vér ráðleggjum henni að lesa eitt-
fað, svo að hún sé fær um að tala
um málið. En að hún settist niður
við bækur Edv. Brandes og Peters
Nansens nokknra daga? Hún kynni
þá að geta ráðið í það, hvað rótgróin
þ»6si danska fyrirlitning muni vera
hjá sumu helzta fólkinu.
Um lýsing höf. á siðferðisástandinu
hér í Reykjavík skal á það bent, rétt
til dæmis, að hún talar svo sem það
sé alment, að stúlkur, einkum heldri
stúlkur, séu drykkfeldar. Allir, sem
nokkuð vita um Reykjavík, vita, að
þetta er fjarri öllum sanni.
Auðvitað gerir höf. ósköpin öll úr
því, að mörg börn fæðast hér á landi
utan hjónabands, Og eins og nærri
má geta, kemur hún ekki með neinn
samanburð í því efni við aðrar þjóðir.
Og ekki hefir hún, eins og ekki er
heldur von um slikan höfund, neinn
skilning á því, að tala barna, sem
fædd eru utan hjónabands, er mjög
ófullkominn mælikvarði á siðgæðis-
ástand þjóðanna. Allir menn, sem
nokkurri mentun, nokkuru víðsýni eru
gæddir, vita, að færa má að því alveg
óræk rök. En hér skal ekki farið út
í þá sálma.
Innan um refsingarþulurnar er sull
að ofur einfeldnislegum og hálfskop
legum hugleiðingum um hin og önn
ur sundurleit efni, svo sem um heil
ritningu og það hve kvenfólk greiði
sér ólíkt því, sem höf. gezt að.
Til dæmis að taka er á það bent
úr ritningunni, að Abraham hafi tekið
fram hjá Söru með Hagar. Afkom-
endur Uunsonarins hafi »alt frana á
þennan dag gert kristnum þjóðum
þungar búsifjarc. Þarna geti menn
séð, hvað af lauslæiinu hljótistl
Hýja Bfó
(Hötel Island)
Byrjar í kvöld kl 9.
Ágætar myndir.
Fáséðar myndir.
En það gerir minst til um slíkan
einfeldningshátt, sem menn gera ekki
annað en brosa að. Lökust er sú
ofstækis og ómannúðarstroka, sem
stendur út úr öllu guðræknis og sjálfs-
fórnarhjalinu. Hvað segja menn t. d.
um þá tillögu, að það verði leitt í
lög, »að læknar eða lögreglan aug-
lýstu nöfn þeirra stúlkna, sem lifa
ósiðlega, og veikar eru af kynferðis-
sjúkdómumc.
Getur hrottaskapur hugsunarháttar-
ins komist á öllu hærra stig?
Nöfn piltanna, sem hafa tælt þær
og sýkt, þarf ekki að auglýsa. En
nöfn stúlknanna, sem eru orðnir
aumingjar, eiga að standa í blöðunum
eða á auglýsingum á strætunum!
Og svo mikil er þokan, að stúlkan,
sem þetta skrifar, er alt af í öðru
orðinu að kvarta undan misrétti karla
og kvenna1
Þilskipaafli við Faxaflóa
á vorvertlð 1912.
HjF Sjávarborq:
Guðrún Zoéga 11,000 r 6,000
Jósephine
Fríða 14,000
ísabella 15,000
Sjana 11,000
Morning Star 14,000
Robert 17,000
Gunna. . 12,500
Elin 9,000
Th. Th.:
Guðrún Soffia 17,000
Sigríður 15,000
Guðm. Ölaýsson:
Bergþóra 12,000
HjF Stapi:
Esther 10,000
Duus:
Ása 13,000
Keflavík 11,500
Sigurfari 10,000
Milly 12,000
Sæborg 10,000
Björgvin 15,000
Hákon 11,000
Iho 11,000
Hafsteinn 15,000
Bjarnhéðiiin Porsteinsson.
fæddnr 11. febr. 1858 dáinn 29. apríl 1912.
Eg sagði það áður og endurtek enn
þau orð, meðan þetta eg skrifa:
að oft falla góðir og göfugir menn,
en gagnslitlir armingjar lifa;
við vitum þó eflaust, að allmikla þörf
vor ættjörð á hverjum þeim hefur,
er nennir að vaka við nytsamieg störf,
þvi nóg er sem letinginn sefur.
En þér varð þar aldrei um »fina rótt,
sem ómennin griðaatað finna,
og þvi er það skaði, að þú fórst svona fljótt,
sem fÚBlega nentir að vinna.
Þú fórst ekki burt til að hægja þér frá
þvi boði, sem knýr oss að starfa,
en ávöxt þú vildir af verkunum sjá,
er vel launar framgöngu þarfa.
Til þess lá ei vegur þinn vestur um haf,
að værir þú metorð að sníkja,
en þar sástu örlát hvað gæfan þér gaf,
og gott fanst þér aftur að vikja
á stöðvarnar fornu, sem mattir þú mest
og máttir því trauðlega gleyma.
Fyrst svona er komið, það sýnist nú bezt,
að BÍðasta ból áttu heima.
í fjarlæga heimsálfu sóttir þú seim,
og sanngjarnt er dáð þina að lofa, —
af rækt við þitt fósturland fyrst þú komst heim
og fær nú hér dáinn að sofa.
Nú vorgyðjan fléttar þér fríðasta kranz,
sem fegrar og prýðir þitt leiði.
og ljósálfar hlúa að laufunum hans,
svo lengi sem sól skín i heiði.
Og hafðu nú þökk fyrir dáðrikan dag
og dugnað i sérhverju verbi;
og víst ætti þjóðin nú vænlegri hag,
ef viða hér sæjust þess merki,
að menn hefðu lært það, að lifa sem þú,
og lengst vildu hafa i minni,
hve orð þin og verk voru tállaus og trú,
unz tilveru lokið var þinni. —
Jón Þórðarson.
Jafnaðarreikningur
sparisjóðs Dalasýslu 31. desbr. 1911.
A k t i v a:
kr. a. kr. a.
1. Skuldabréf fyrir
lánum:
a. gegn fasteigna-
veði .... 24850 00
b. gegnsjálfskuld-
arábyrgð. . . 32782 07
c. gegn áb.breppa-
félaga .... 5618 00
d. gegn annari tr. 175 00
----------- 68425 07
2. Útistandandi vextir áfallnir
i árslok...................... 35 35
3. Járnskápur.................. 200 00
4. í sjóði 81. desember 1911 . 5 84
Samtals kr. 63666 26
P a s s i v a: kr. a.
1. Imnlög 265 samlagsmanna . 53193 12
2. Fyrirfram greiddir vextir,
sem eigi áfalla fyr en eftir
árslok...................... 964 50
3. Til jafnaðar móti tölulið 2
Aktiva....................... 85 35
4. Til jafnaðar móti tölulið 3
Aktiva...................... 200 00
5. Skuld við íslandsbanka . . 3287 15
6. Skuld viðLandsbankaíslands 3301 70
7. Yarasjóður................. 2684 44
Samtals kr. 63666 26
geir Ásgeirsson Bjarni Jensson
p. t. form. p. t. gjaldk.
Reikning þennan, bækur, skjöl og öll
skilriki sparisjóðs Dalasýslu höfum við
undirskrifaðir yfirskoðunarmenn yfirfarið
og ekkert fundið athugavert.
P. t. Ásgarði 9. marz 1912.
Þorgils Friðriksson. Benedikt Magnúss.
Reikningur
yfir tekjur og gjöld Sparfsjóðs Dalasýslu 1911.
Tek jur:
kr. a. kr. a.
1. í sjóði frá f. á........ 68 27
2. Borgað af lánum:
P. I. Thorsteinsson & Co:
Ragnheiður..................20,000
Langanes ....... 10,000
Greta ........ 11,500
Sléttanes....................9.5°°
Björn Ólafsson..............18,000
Brydc:
Valtýr (ekki kominn).
Eiuar ÞorgUsson:
Surprise....................15,000
L. Tang:
Haraldur (ekki kominn).
Aths.
Acorn leggur upp fyrir vestan.
Himlaya sömul.
Hildur, fór ekki þennan túr.
Haffari, . . heldur ekki.
Seagull . . — —
Skarphéðinn — —
Portland, fyrir vestan.
Toiler do.
Guðrún Gufunes do.
Látinn
er hér i bænum í fyrri nótt As-
grímur Magnússon barnakennari á bezta
aldri. Lézt úr krabbameini. Hann
hafði undanfarna vetur haldið uppi
fjölsóttum barna- og unglingaskóla í
Bergstaðastræti, sem kendur var við
hann.
a. gegn fasteigna-
veði ....
b. gegnsjálfskuld-
arábyrgð . .
c. gegn ábyrgð
hreppafélaga .
d. gegn annari
tryggingn • •
Iunlög á árinu .
vextir af innlögum
4790 00
5493 93
50 00
336 00
18673 31
1986 00
4. Seldar viðskiftabækur 32 ,
5. Yextir af lánum '. . . ,
6. Tekið lán í íslandsbanka .
7. Tekið lán í Landsbanka ísl.
10668 93
20659 31
16 00
3280 63
634 59
3794 22
Samtals kr. 39121 95
Gjöld:
kr.
a.
kr.
Við Reykjavík
er til sölu með sanngjörnu verði og
góðum borgunarskilmálum timblir-
hús með áföstum skúr. Ennfremnr
heyskúr, fiskiskúr og fiskgeymsluhús.
Tún, sem gefur af sér 50 hesta af
töðu, og kálgarður, sem gefur af sér
16 tunnur af jarðarávexti, stórt fisk-
verkunarpláss. Eignin er við sjó, góð
lending. — Ritstjóri vísar á.
Sfúíka,
vandvirk, sem gæti saumað jakka með
öðrum, getur fengið vinnu strax á
saumasíofu Edinborqar.
1. Lánað út á árinu:
a. gegn fasteigna-
veði .... 9285 00
b. gegn sjálfskuld-
arábyrgð . . 7425 00
c. gegn ábyrgð
hreppafélaga . 2248 00
d. gegn annari
tryggingu . . 315 00
2. Útborgað af inn-
lögum samlagsm. 13015 81
Þar við bætast
dagvextir ... 37 21
3. Kostnaður við sjóðinn:
a. þóknuntilgjald-
19273 00
13053 02
kera .... 317 12
b. þóknun til yfir-
skoðunarroanna
og fundarhald 52 00
c. burðargj. undir
bréf 3,10,skrif-
föng 3,00,
bók 0,75 . . 6 85
375 97
Hjartans þSkk sé öllum þeim, er hlyntu
að bróðar og mág okkar, Þorfinni sál. Gunn-
srssyni i banalegu hans, og siðavt heiðruðu
útfðr hans með hluttekningu og návist sinni.
Reykjavik 26. juní 1912.
Solveig Gunnarsdóttir Páll Elnarsson.
4. Vextir:
a. af sparisjóðs-
innlögum . . 1986 00
b. af ísl. banka
láni og við-
skiftagjald . . 163 38
c. af Landsbanka
láni og við-
skiftagjald . . 162 66
5. Borgað i Islands banka
6. Borgað i Landsb. íslands .
7. í sjóði 31. des. 1911 . .
Við barnaskólann á Eyrarbakka verð-
ur 2. kennarastaða laus frá 1. okt. þ.
á. Skóiinn stendur 7 mánuði og er
ætlast til að kennarinn kenni 4—5
stundir á dag. Æskilegt er að hann
geti kent söng rg leikfimi. Laun
samkvæmt ftæðslulögunum.
Umsóknir, stílaðar til skólanefndar-
innar í Eyrarbakkaskólahéraði, sendist
undirrituðum formanni skólanefndar-
innar fyrir lok ágústmánaðar næst-
komandi.
Ciísli Skúlakon.
2312 97
100 00
4002 08
5 84
Samtals kr. 39121 95
Ásgeir Ásgeirsson
p. t. form.
Bjami Jensson
p. t. gjaldk.
Reikning þenna, bækur, skjöl og öll skil-
riki sparisjóðs Dalasýslu, höfum við undir-
skrifaðir yfirskoðunarmenn yfirfarið og
ekkert fundið athugavert.
P. t. Ásgarði 9. marz 1912.
Þorgils Friðrikss. Benedikt Magnúss.
Sökum láts Ásgríms kennara
Magnússonar held eg enga samkomu
í Bergstaðastræti 5 á morgun (sunnud.)
D. Ostlund.