Ísafold - 16.11.1912, Síða 3
18 A.FOLD
279
ugasta orustan í öllum ófriðnum. —
Fjöldi Tyrkja hefir og verið handtek-
inn, skiftir tugum þúsunda.
Mannfallið af hálfu sambandsþjóð-
anna hefir víst líka verið ærið mikið,
en forðast frá því að segja oftast, svo
ekkert yfirlit fæst enn um það. Sam-
bandsþjóðirnar láta sér helzt nægja að
telja mannfallið lítið í samanburði við
það, sem á hafi unnist, og gæti sú
skýrsla verið nákvæmari.
Tyrkir kenna annars ófarir sínar
fyrir Búlgurum aðallega því, að Kirk-
Kilissa féll svo skjótlega í hendur
þeim. Einn af tyrknesku aðalherfor-'
ingjunum þar, egypzkur prins, Aziz
að nafni, var skotinn í Miklagarði,
fyrir ónýta og bleyðilega framgöngu,
Og auk þess 200 óbrotinna hermanna
og nokkrir aðrir herforingjar. Einn
af aðal hershöfðingjunum, Abdullah
Pasha var settur frá herstjórninni með
litilli sæmd. Er svo að sjá, sem her-
stjórnin tyrkneska vilji þó hafa ein-
hvern til þess að skella skuldinni á.
Eftir orustuna við Tchorlu ætluðu
Búlgarar að neyða her Tyrkja til nýrr-
ar orustu við sig áður en hann næði
Miklagarði, og gerði sér góðar vonir
um að það tækist. En þar eð engin
stórorusta hefir staðið um þær slóðir
siðan, má ætla að tilraunir Búlgara til
þess að afkróa Tyrki hafi ekki tekist.
Annars hörmulega látið af högum
manna i Miklagarði. Kristnir menn
lifa þar í sífeldum ótta um þáð að
verða drepnir af hermönnum eða skríl.
Tyrkir báðu stórveldin að skerast i
leikinn, en þau neituðu þvi að svo
stöddu, kváðust ekki geta miðlað mál-
um nema báðir málsaðilar vildu það,
en sambandsþjóðirnar færðust undan
öllum afskiftum stórveldanna. Tyrkir
höfðu þá í hótúnum um að flytja sol-
dán sinn og alla hirðina yfir til Litlu-
Asíu, en láta auðnu ráða hvernig færi
um Miklagarð, en það töldu þeir að
stórveldunum kæmi verst, því þá var
viðbúið að þau færu sjálf að berjast
um borgina.
En nú segir simfréttin í dag, að
Tyrkir hafi beðið um vopnahlé. Þeir
vilja með öðrum orðum fá að vita,
hverra friðarkosta sambandsþjóðirnar
vilja unna þeim. Harðir verða þeir
kostir, ef þær eiga einar að ráða, en
ekki er búist við missætti milli þeirra
út af herfanginu. Hver þjóðin um
sig mun eiga að fá sem næst því af
landi, sem hún hefir lagt undir sig.
Þá er eftir að vita hvort Tyrkir vilja
að því ganga, og þá ekki síður hvort
stórveldin og jafnvel Rúmenia vilja
sætta sig við friðarkostina. Langlík-
legast að þau bjóðist til þess að vera
vera sem hann. Hann varð laga-
embættismaður í Khöfn og lézt mið-
aldra. Einu sinni ortu þeir afmælis-
brag um hann í Khöfn, fónas Hall-
grímsson og Konráð Gíslason, gam-
anvísur, er P. M. (aðrir fráleitt)
kunnu úr 3 erindi. Hann byrjar á
orðunum:
Við eem annars lesnm lögin
með tvennum viðlögum:
Fagnrt galaði fuglinn sá,
Og
listamaðurinn lengi sér þar nndi.
Þetta var meginið af þriðja erind-
inu:
Upp f háum hamrageira
Honum skrnppu tærnar frá,
Fagnrt galaði fnglinn sá,
Hann hékk þar sona á hngra eyra
Hvergi frá eg hann stnndi,
Listamaðurinn lengi sér þar nndi.
Bragurinn var allur af afreksverk-
um Br. P., og létu þeir félagar hann
vera dálitið raupsaman.
P. M. varð sambýlismaður jónasar
á Garði, hitti hann þar fyrir 1834 og
fluttist inn til hans. Eftir Jónas buggu
þeir saman P. M. og Jón Sigurðsson.
Og hefir honum ekki verið i kot vis-
að af hamingjunni.
Af Khafnarárum sinum segir P. M.
ella hið bezta annað en af heilsunni.
Hann lá hverja þunga legu eftir aðra.
Hann gaf sig mikið að leikhússkemt-
un og söng. Hann var söngmaður
allmikill á yngri árum. Hann lét
Weyse sönglagaskáldið nafntogaða fsi
að heyra öll islenzk sönglög er
hann kunni, — sat hjá honum heilan
dag.
Hann kyntist miklum fjölda merkra
manna um æfina, leikra og lærðra, er
hann getur lauslega eða frekara, einkum
við skiftin og gæti það orðið upphaf
nýrra tiðinda.
Sjónleikurinn mikli á Balkanskaga
hefir aldrei verið eftirtektaverðari en
að þessu sinni.
Frá forsetakosningunni.
Brezk blöð frá 6. nóv. segja, að
Wilson hafi hlotið fleiri atkvæði en
nokkur forseti áður.
Þau telja flokka-afstöðuna i fulltrúa
únginu næsta munu verða:
Sérveldismenn (demókratar) 293,
Samveldismenn eiginlegir (Taftsmenn)
127, Framsóknarmenn (Progressives,
fylgismenn Roosevelts) 127 og 1 jafn-
aðarmaður.
Eftir kosninguna sendi Roosevelt
íinum nýja forseta svofelt símskeyti:
»Bandaríkjamenn hafa með miklum
atkvæðamun kjörið yður í landsins
mestu virðingarstöðu. Eg samgleðst
yður«.
Jafnframt hefir Roosevelt lýst yfir,
að hann að dæmi góðra Bandarikjaborg-
ara taki leikslokum með jafnargeði og
ánægju.
Leikfél. Reykjavikur.
Fjalla-Eyvindur
verður leikinn
meö hinum upphaflega endi
leikritsins
laugard. 16. nóv. kl. 8 síðd.
i Iðnaðarmannahúsinu.
Ýms erlend tiðindi.
Tekju- og eignaskattur Hljómleikar I
m | Bárahúsinu
Reykjavikur-annáll.
Alþýðuerindi flytur Á r n i sagn-
fræðingur F á 1 s s o n á morgun kl. 5
í Iðnaðarmannahúsinu um K r f u m á 1-
i n þ. e. málaferli þau hin geystu, er
loguðu um landið i lok 17. aldar út af
Jóni presti í Hítarnesi, þeim er sendi
Danadrotingu brauðs-umsókn í tjörguðum
kút. Koma þeir mikið við þau mál,
Möller amtmaður og Þórður biskup
Þorláksson.
Bjarni Jónsson viðskiftaráðunautur
var einn meðal farþega á Ceres síðast.
Hann verður hér fram yfir nýár.
Fisksalan til Englands. Núna í
vikunni hafa 4 íslenzku botnvörpung-
arnir selt afla sinn i Englandi: Jón
forseti fyrir 440 st.pd. (7920 kr.), Skúli
fógeti fyrir 500 st.pd. (9000 kr.) Bald-
ur fyrir 600 st.pd. (10,800 kr.) og Ing-
ólfur Arnarson fyrir 533 st.pd. (ca. 9600
kr.). Allir hafa þeir selt fyrir hátt upp
í 40,000 kr. Drjúgur skildingur!
Guðsþjónusta á morgnn:
í démkirkjunni kl. 12 gira Bj. Jónsson.
(Altarisg.).
r---------kl. 5 - Jóh. Þork.
I Frikirkjnnni messnfall.
Hljómleikum eiga bæjarbúar von á
annað kvöld og leggja þær saman krafta
sína, frú Yalborg Einarsson og jungfrú
Herdís Matthíasdóttir. Á söngskránni
eru mörg ljómandi falleg lög.
Hór er eigi völ á öðrum jafn-mentuð-
um söngkonum og má þvi gera ráð
fyrir óvenjugóðri skemtun.
austanlands, helzt afa þeira manna sem
nú liía eða langafa. Léttir annars yfir-
leitt frásögunni af æfiatriðum sinum um
það bil er hann lét af valdmannsiðju
sinni og þar með ferðalögum. Þá
segir hann af mismunandi héraðshátt-
um og búnaðar i ýmsum landsíjórð-
ungum, er hann dvaldist í langdvölum,
og margt fróðlegt.
Hann segir frá því, að á suðurferð
sinni í skóla haustið 1830, kom hann
að Skjöldólfsstöðum í [ökuldal og
gisti þar. Bóndinn þar hét Jón, gest-
risinn maður og allvel efnaður. Hann
tók P. M. vel, en segir: »Eg get
ekki gefið þér k a f f i, því að það er
hvergi til það eg veit hérna á daln-
um nema í Hofteigi hjá honum síra
Sigfúsi mínum«. Þrem árum síðar,
1833, kemur hann aftur að sama bæ
og segir þá sami bóndi við hann
»Nú get eg gefið ykkur kaffi, því nú
er það komið hér á flesta bæi í daln-
um«. — Rétt við miðja öldina, 1849,
er hann var sýslumaður á Snæfells-
nesi, höfðu þangað fluzt það ár 26
þús. pd. kaffibauna, en 6 árum síðar,
er hann skilaði af sér sýslunni, ?2
þús. pd.
\msar stökur hefir hann yfir, er
heyrt hefir i ýmsum áttum.
Ein er þessi, eftir kvenmann, Krist-
ínu Jónsdóttur prests frá Vallanesi og
gifta Þorsteini nokkrum Mikkaelssyni í
Mjóanesi, og svo er vel kveðin að hún
ætti eigi að tínast, auk þess að rétt er
að sæta færi til að færa hana rétt i
letur, en það hafa þeir ógert látið
anparhvor frændanna, P. M. eða B.
J. Th. M.:
Fýknr mjöllin feikna stinn,
Fegurð völlinn rænir,
Hylja fjöllin eóma sinn
Silungshöllina skænir.
»SilungshöIlin« stendur hjá þeim.
En það er rangmæli (bögumæli).
B. J.
Sherman varaforseti Bandarikja er
nýlega látinn. Hann varð 57 ára.
Sherman komst á þing árið 1886 og
var á síðari árum í miklum metum
meðal samveldismanna. Hann var
varalorsetaefni þeirra við nýafstaðnar
kosningar.
Rússnesk kúgun. Borgarstjórinn i
Wiborg á Finnlandi, Fa%erstr0m, var
fyrir skömmu dæmdur í 6 mánaða
varðhald af rússneskum dómstól i
Pétursborg. Sakir voru þær, að Fager-
stram og tveir aðrir bæjarstjórnarmenn
í Wiborg höfðu neitað að fylgja fram
rússneskum kúgunarlögum — í Finn-
landi. Kváðust hafa svarið eið um
að halda finsk lög og fylgja þeim
fram þar í landi, og eigi geta breytt
gegn þeim eiði með því að fylgja
fram rússneskum lögum, er réttlaus
væru, lögum samkvæmt, i Finnlandi.
Þessari vörn var að engu sint og
eigi látið þar við sitja, heldur var
Fagerstrom tekinn til Pétursborgar og
mál hans lagt undir rússneskan dóm-
stól, þrátt fyrir mótmæli Fagerstroms,
er taldi sig eiga til sakar að svara fyrir
finskum dómstólum, en öðrum eigi.
Eftir dómsúrskurðinn sagði Fager-
strom af sér embætti. Þegar hann
kom aftur til Wiborg, var honum
tekið þar með hinum mestu fagnaðar-
látum af lýðnum.
Ungverska þingiO var sett þ. 30.
okt. Búist við óspektum eins og
fyrri daginn og öflug herliðssveit þvi
fengin til að vera við setninguna,
auk 200 lögreglumanna. Andófsflokk-
urinn kom fylktu liði til þinghússins,
en hafði hægt um sig og varð eigi
úr neinum þingspjöllum það sinn.
Kristján konungur X. hefur heimsókn-
ir til annara hirða á þriðjudaginn
kemur. Hann fer þá til Stokkhólms
að heilsa upp á Gúslaf konung frænda
sinn. Alexandrina drotning verður með í
förinni. — Úr því tekur svo við hver
heimsóknin af annarri, — svo mælir
sem sé tizkan fyrir, að nýir konung-
ar »sýni sig og sjái aðra« eftir rikis-
tökuna, þegar »sorgarárinu« eftir fyrir-
rennarann er lokið.
Lögregiuspilling i New-York. I júli-
mánuði var framið morð á veitinga-
manni og spilavítisstjóra einum i New-
York, Rosenthal að nafni. Út af morð-
inu hefir gríðar-mikil rannsókn verið
gerð og komst það þá upp, að einn
af helztu lögregluforingjum borgarinn-
ar mundi hafa verið í vitorði með
morðingjunum, hefði leigt 4 bófa til
þess að fremja morðið. Þessi lögreglu-
foringi heitir Becker og hafði verið í
nöp við Rosenthal af því, að hann
hafði eigi getað haft nóg fé út úr
honum fyrir að hlífa spilavítinu.
Becker var nýlega dæmdur til lífláts
og tekinn af lífi með rafmagnsstraum-
um.
SjálfsmorO framdi einn af helztu
hershöfðingjum Rússa Tschagin aðmir-
áll fyrir skömmu. Eru leiddar margar
getur að tildrögunum til þess. Sú er
hin nýstárlegasta, að sjálfsmorðið standi
i sambandi við veikindi ríkiserfingjans
rússneska. Rikiserfinginn hafi verið
að leika sér úti á skipi aðmírálsins
Standart, en þá verið veitt banatilræði
af einum hásetanna, hafi skotið lent i
kviðnum, og af því eigi að stafa nýrna-
sjúkdómur sá er ríkiserfinginn er
haldinn af. Þetta á Tschagin að hafa
tekið sér svo nærri, að hann fekk
eigi lifað við, heldur skaut sig með
skammbyssu.
Fyrir vangá hafa þessi nöfn fallið
framan af skrá þeirii, sem birt var i
tveim síðustu blöðum ísajoláar:
Tekjur. Skattgj.
kr. kr.
Alberts Þórðarsonar dbá . . 8000 25
H. Andersen &Sön............. 5000 70
Lúðvig Andersen skraddari . 3500 35
Reinh. Anderson--------. 2500 17.50
Andrés Fjeldsted angnlæknir 4000 45
Ari Jónsson cand. jnris. . . 8500 25
Arinbjörn Sveinbjarnars.bókb. 3000 25
Ágúst Bjarnason próíessor. . 2600 19
Ágjúst Thorsteinsson kanpm. 2000 10
Árni Einarsson kanpm. . . . 2500 17.50
Ennfremur hefir láðst að geta þess,
að Björn Sigurðsson bankastjÓri er
talinn hafa eignatekjur 1000 kr., með
40 kr. skatti. Þá vantar og í skrána
Sig. Sigurðsson búfr. með 2000 kr.
tekjum og 10 kr. skatti. — Loks er
Obenhaupt umboðssali talinn hafa 4000
í stað 8000 kr. tekjur, og á þvi að
greiða i skatt 125 kr.
Vestur-Isiendinga-annáll.
Heim tii Islands segir Lögberg að
þeir Bjarni Jónsson snikkari (dbrm.) og
Jón sonur hans fari bráðlega; leggi af
stað 12. nóv. og koma þeir væntan-
lega hingað í öndv. desbr. á Botníu.
Mannalát. Jósej Helqason, bóndi í
Wild-Oak, 65 ára. Lézt úr hjartameini
þ. 9. sent. Ættaður úr N.-Þingeyjars.
Fluttist vestur 1877. Ekkja lifir og
6 börn.
Þorsteinn Þorsteinsson, Winnipeg, 84
ára. Lézt 22. okt. Ættaður úr Svarf-
aðardal; bjó þar lengi á Upsum.
Ingimar Marísson, Merid P. O. Sask.,
73 ára. Lézt 30. sept. Fæddur i Desey
í Norðurárdal; fluttist vestur árið 1900.
Átti 6 börn, þar af 2 syni hér á landi,
Ágúst trésmið og Benjamin.
Helga Ragnheiður Magnúsdóttir, hús-
freyja Péturs Árnasonar að Lundar
P. O. Man., 44 ára. Lézt n. sept.
Ættuð frá Hvassafelli í Borgarfirði.
Þórunn Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja
Sigvalda Baldvinssonar í Hallsonsbygð
i N.-Dak, 42 ára. Lézt 13. sept.
Jón Ó. Magnússon, Quill Lake bygð
Sask., sonur Odds Magnússonar frá
Haukadal i Dalasýslu, 29 ára. Lézt
9. sept.
GullbrúOkaup sitt héldu hjónin Einar
Þorvaldsson Dalmann og kona hans
Guðríður Magnúsdóttir í Selkirk þ. 4.
okt. Þau bjuggu áður á Oddastöðum
i Hnappadalssýslu, en fluttust vestur
um haf árið 1883. Gullbrúðkaups-
veizlan hafði verið mjög vegleg, sátu
hana 200 manns, brezkir og íslenzkir.
Voru þeim hjónum gefnar stórgjafir.
Segir svo frá í Heimskringlu, að
brezkum mönnum, er þarna voru við-
staddir, hafi fundist mjög til um, hve
framkoma íslendinga hafi verið prúð-
mannleg, og hve »einkar-fríðar þær
væru íslenzku stúlkurnar í Selkirk«,
sem veizluna sátu.
Annað gullbrúðkaup stóð þ. 22. sept.
Áttu það hjónin Jakob Oddsson og
Sigurbjörg Jónsdóttir að Lundi í Nýja-
íslandi. Eru þau ættuð af Tjörnesi
i Þingeyjarsýslu, en fluttust vestur
1884. Ein dóttir þeirra hjóna er gift
Ólafi Thorgeirsson prentsmiðjueiganda.
Pre8ta-vi0tökur. Með kostum og
kynjum hefir þeim verið tekið prest-
unum héðan austan hafs, er vestur
fóru í haust, þeim síra Magnúsi Jóns-
syni og cand. theol. Ásmundi Guð-
mundssyni, sem að vísu er óvigður enn.
Magnúsi og þeim hjónum voru
færðar stórgjafir af húsmunum og
prestsetrið prýtt og fágað á allar
lundir, er þau komu.
Þá hafa Vestur-íslendingar haft Jakob
Ó. Lárusson cand. theol., sem þjónað
hefir söfnuðunum i Saskatchewan eitt
ár, mjög i hávegum. Áður en hann
hvarf heim á leið aftur, voru honum
haldin hvert kveðjusamsætið á fætur
öðru og leystur út með stórgjöfum.
Tapast hefir hestur úr Hafuar-
firði, brúnskjóttur, aljárnaður með slitn-
um skaflaskeifum, mark: tvístýft aftan
hægra. Finnandi umbiðst að gjöra
Sigurjóni Jónssyni Kirkjuveg 12 í
Hafnarfirði viðvart.
sunnudaginn 17. nóv. kl. 9. e. h.
Frú Valborg Einarsson og ungfrú
Herdis Matthíasdóttir.
Nánar á götuauglýsingum.
Alþýðufræðsla
Stúdentafélagsins.
Cand. Árni Pálsson
flytur erindi
um Kríumálin
(málaferli þau hin miklu, er geysuðu
hér á landi í lok 17. aldar)
sunnud. 17. nóv. kl. 5 síðdegis ílðnó.
Inngangur 10 aurar.
Hljóðfæraflokkur
undir stjórn hr P. Bernburgs skemtir
á Hótel Reykjavík
í kveld kl. 9.
c'HiBííufyrirícstur
i c2qíqÍ
sunnudag 17. nóv. kl. 6* l/2 síðdegis.
Efni: Lögmál og náð. Guðs börn
ekki undir lögmálinu, heldur uudir náðc
inni. Hvernig? Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
Lárus Jóhannsson prédikar
í Herkastalanum mánudagskvöld 18.
nóv. kl. 872. Inngangur ókeypis.
Leiðarvísir
í sóttkveikjurannsóku, smárit eftir
Gísla Guðmundsson,
fæst nú f bókaverzlunum og kostar
2 kr. innbundin.
Lesið auglýsinguna á fylgiblaði
ritlingsins!
Sköhlífar
mikið úrval, nýkomið til
Lárusar G. Lúðvígssonar.
Hvitkál, Rauðkál, Gulrætur,
Rödbeder
Piparrót,
Selleri
kom nú með Ceres til
Jes Zimsen.
NJborin kýr
eða kýr sem komin er að burði, góð
og gallalaus, óskast keypt.
G. Zoéga kaupm.
Hangið kjöt
ágætt fæst hjá
Jes Zimsen.
Jarðarför Ingibjargar sál. Gunnarsdóttur,
mágkonu minnar, sem andaðist á Landakots-
spitala 5. þ. m., fer fram næstkomandi
þriðjudag 19. þ. m. kl. II árd. frá spitalanum.
15. nóvember 1912.
Fr. Friðriksson.
Vedrátta frá 14. nóv. til 16. nóv.
Fd. Fsd. Ld.
V.ey. 6,9 7,o 5,9
Rv. 5,3 7,8 4,3
íf. 7>° 8,3 5,4
Ak. 10, s 9,5 5,1
Gr. 3,S 6,5 1,2
Sf. 9,3 8,9 0,8
Þh. 4,7 8,1 7,5
V.ey. = Vestmanneyjar. Rv. =
Reykjavík. ís. = ísafjörður. Ak. =
Akureyri. Gr. = Grímsstaðir. Sf. =
Seyðisfjörður. Þh. = Þórshöfn á Fære.