Ísafold - 16.04.1913, Blaðsíða 2

Ísafold - 16.04.1913, Blaðsíða 2
118 ISAFO LD Ekkert oflof er hægt að segja um skilvinduna Diabolo, því að hún hefir alla þá kosti, sem fullkomin skilvinda þarf að hafa: er sterk, einföld, endingar- góð og ódýr, skilur sérlega vel og er hljóð í gangi, mjög auðvelt að hreinsa hana. Nákvæmur ieiðarvísir á íslenzku með fjölda af mynd- nm fylgir hverri skilvindu. Stærð I skilnr 120 lítra á klukknstnnd og kostar kr. 75 — II — 220 — ------------------------- — — 150 Sbilvindan Diabolo fær einróma lof hjá öllum þeim, sem nota hana. Aliir hagsýnir bændur ættu að kaupa Dia- bolo-skilvinduna, því að hún er af núþektum skilvindum sú bezta, en um leið sú ódýrasta. Fyrirspurnum svarað greiðlega. Nægar birgðir fyrirliggjandi. Virðingarfylst. Verzlun Jöns Þórðarsonar Reykjavíb. Ilskór (Sandalar) Reynið einhverja hinna 15 tegunda, sem allar eru fallegri og mikið' vandaðri en áður. Verðið á þeim, sem öðru, lægst hjá Lárusi G. Lúðvígssyni, f>ingf)oltsstræti 2. gufuskipaféiags, minsta kosti i orði og eg held einnig á borði, ef til þyrfti að taka. Ef hér væru ötulir forgöngumenn fyrir hönd félagsins og létu til sin taka að safna hlutum, er eg ekki í vafa um að héðan úr Borgarfirði kæmi talsvert fé til fyrir- tækisins. — Það er lika mál, sem mætti gera að metnaðar og áhuga- máli þjóðarinnar, ef þvi væri fram- fylgt með kappi og dugnaði. Flest- um er nú farið að skiljast það, að við séum helzt til lengi búnír að bindast Danmörku i verzlun og sam- göngum og að þau viðskifti hafi oft ekki verið okkur nein féþúfa eða gæfuvegur. Enda hefir það aldrei verið álitið holt, hvorki fyrir ein- staklinga eða þjóðir, að eiga undir náð annara og forsjá hvernig við- skiftum er hagað, eða samgöngur fást. Hagfeldast og happadrýgst er að hlita sinum eigin ráðum og for- sjá í þeim efnum og sækja sem minst tii annara. Hið fyrirhugaða íslenzka gufuskipafél. ætti að vera framtíðarhugsjón sú, er gagntæki þjóð- ina. Það sýndi hvort alvara er til i henni og óblandin þjóðrækni. Drengur einn hér í bæ las grein Guðmundar prófessors Hannessonar um eimskipafél. fyrirhugaða. Mundi hann þá eftir því, að hann átti 20 kr. geymdar i sparisjóðsbók. Kem- ur hann þá að máli við föður sinn um það, hvort hann megi ekki skrifa sig fyrir einum 25 króna hlut í eim- skipafélaginu; hann geti borgað þess- ar 20 kr. nú þegar, en 5 kr., sem á vanti, skuli hann með einhverju móti vinna sér inn í sumar. Föður drengsins þótti vænt um áhuga hans og sagði að það væri bezt að hann fengi að skrifa sig fyrir þessu þann daginn, er hann vrði 12 ára. Fyrir fáum dögum átti dreng- urinn afmælisdag. Þá fekk hann að skrifa sig, en þennan sama dag fekk hann svolátandi símskeyti frá afa sínum (efnalitlum presti): Guð blessi þig. Afmælisgjöf 25 kr. í eimskipnfélagi Islands. Nú hýrnaði heldur en ekki yfir drengnum, þvi að nú gat hann með Brennivín, öl, Whisky, Konjakk o. fl. er hvergi betra né ódýrara en í verzlun undirritaðs. Ríflegur afsláttur í stærri kaupum. B. H. Bjarnason. tilstyrk afa síns lyft þeirri bvrði_ sem Guðm. Hannesson ætlar efnaðri heimilunum að lyfta (50 kr.). Hve margir verða þeir 12 ára drengirnir, sem gerast hlnthafar í þessu nauðsynjafyrirtæki þjóðarinnar? Og vaxi þeir upp með slíkan áhuga lyfta þeir þá ekki undir fleiri nauð- synjafyrirtæki þjóðarinnar síðar? Aflahorfur í Noregi eru sagðar góðar, í símskeyti hing- að í gær. Lýsið er fallið í verði um 10 kr. tn. Silfurbrúðkaup áttu þau i gær, síra Friðrik J. Bergmann í Winnipeg og frú hans Guðrún (f. Thorlacius). Heillaóska- simskeyti sendu þeim ýmsir vinir þeirra hér. Maður beið bana á botnvörpungnum Jóni forseta á sunnudag, þann veg, að strengur lenti svo illa á honum, að nær tók af fótinn. Misti hann þegar meðvit- und og lézt innan skamms. Hann hét Jakob Sigurbjarnarson kvæntur maður, til heimilis á Bessa- stöðum. Fióru-útgerðin í Bergen gerir meira oss til hagn- aðar en að hækka ekki farþega- og flutningsgjöld — þrátt fyrir hækkun hinna gufuskipafélaganna. Nú aug- lýsir félagið, að hægt sé að flytja vörur frá helztu verzlunarhöfnum er- lendum, setn við notum, með Floru, fyrir lágt aukagjald. Enn fremur ætlar fél. að koma beinum fiskflutningsferðum á til Suð- ur-Spánar og Cataloníu Skógræktarmál. Álítur landsstjórnin og alþingi skógrækt hér á landi svo mikilsverða, að veita ætti nóg fé til eflingar hennar á nokkrum árum ? Eftir Koýoed-Hansen skógræktarstjóra. Ekki sé eg betur en að eg sem skógræktarstjóri eigi heimild á að leggja ofannefnda spurningu fyrír al- menning, til þess að minna á, að ekki sé nú of snemt að ihuga hana. Eg gerði mér einu sinni í hugar- lund, að það sem um skógræktar- málið hefir verið skrifað og rætt af hálfu skógræktarstjórnarinnar, myndi vekja athygli almennings á þann hátt, að bændur í ýmsum héruðum létu í ljós, hvað þeir hugsuðu um það mál, en af því varð ekki. Það sem hefir verið prentað af annara hálfu, hefir mest verið vitlausar, heift- arfullar árásir á skógræktarstjórnina. Þó hafa svo margir menn gagnvart mér haldið því fram að skógræktin sé mikilsvert mál, að eg get ekki annað en trúað því, að efling þess máls komi heim við óskir almenn- ings. En ef svo er, þá hefir hið háttvirta alþingi á síðustu árum verið þeirri ósk andvígt, þar sem það hefir gert fjárveiting skógræktar hlægilega litla. Þeir, sem vilja gera skógrækt- armálinu mein, eiga hægt með að finna stuðning hjá mörgum, því margt er tii, sem getur gert það mál illa þokkað. Það var útlendur maður, sem fyrst stakk upp á að hefja það, og nú er því stjórnað af útlendingi. Þar að auki eru flestir menn á þeirri skoðun, að það sé að eins framtíðarmál, en þetta er rangsýni, sem sennilega er gróðrar- stöðvunum við Rauðavatn, Þingvöll og Grund að kenna, þar sem þessir blettir, all-lengi að almenningsdómi, voru aðalarnar skógræktarinnar. — Já, ef vér viljum virða að vettugi skógana, sem til eru, og að eins gæta að þeim, sem ef til vill einhvern tíma geta myndast af aðfluttum plöntum, þá verðum vér lengi að bíða. Hinar áminstu gróðrarstöðvar eru að eins tilraunablettir skógrækt- arinnar, en víðlendu kjarrsvæðin eru aðalarnar hennar, og í þeim er nóg efni til að byrja á skógrækt, hvenær sem er, með því að höggva á réttan hátl og að friða. Þaðætti ekkiað vera nauðsynlegt að skrifa og tala meira um skógræktina, að eins til þess að vekja áhuga manna á henni. Menn ættu nú að skilja, að þeir geta notfært sér skóginn á annan hátt en eingöngu sem skepnu- fóður. Eg held nú líka að svo sé, og að margir einstakir menn gjarn- an myndu byrja skógræktarvinnu á sinn kostnað, ef þeir hefðu peninga til þess. Nýlega fekk eg bréf frá bónda, er bauð landssjóði 100 kr. styrk, ef hann vildi láta girða kjarrsvæði, sem hann er sameigandi að. Hann skrifar meðal annars, að hyggilegt væri að nota tilboðið, ekki að eins vegna þessa 100 kr. styrks, heldur éinnig og einkanlega vegna þess, að þetta gæti orðið upphvatning fyrir fleiri skógareigendur til að hlaupa undir bagga með landssjóði og gera hon- um kleift að friða skógarleifarnar, áður en almenningur þreytist á að bíða eftir sýnilegum árangri af skóg- ræktinni. Viðvíkjandi því, sem hingað til lefir verið birt um skógræktina af minni hálfu, þá held eg áreiðanlega að mér hafi ekki skjátlast. Eg trúi )ví fastiega, að skógræktin sé mik- ilsvert mál hér á landi, en eg er líka sannfærður um, að fjárveitingin, sem vér nú höfum til umráða er of lítil í samanburði við umsjónargjald- ið. Að því er snertir mál eins og þetta, þá ætti fjárveitingin að vera þrisvar umsjónargjaldið. í stað þess að láta mál þetta liggja hálft um hálft í eyði í guð veit hve mörg ár, ætti landsstjórnin, ef hún álítur málið mikilsvert að álykta svo: Vér skulum nú á nokkrum árum veita svo mikið fé til skógræktar, að þau skógsvæði, sem nauðsynlegt er að friða, geti orðið girt. En þegar þvi verki er lokið, þá viljum vér ekki ábyrgjast meira, þá getur verið að vér leggjum niður skóg- ræktarstjórnina í heild sinni. Á þingi 1911 var fjárveitingin til skógræktar, sem þá þegar var of lítil, ennfremur minkuð töluvert. Einkum var þetta hörmulegt vegna þess, að sá sem stuðlaði mest að því að stemma stigu fyrir framgangi þess máls, var einn af formælend- um landbúnaðarmálsins. Viðgangur skógræktarmálsins er mikið bundinn við vöxt og viðgang landbúnaðarins í heild sinni; en það er líka víst, að landbúuaðinum yrði það til mikilla hagsbóta, ef trjágróð- urinn yrði þroskameiri og algengari. Þess vegna væri eðlilegt, finst mér, að landbúnaðarmenn og skógræktar- menn styddu hvorir aðra. Eg held lika, að hr. Sigurður Sigurðsson skilji þetta mikið vel. Af hvaða ástæðu hann þá hefir gert hið gagnstæða, nenni eg ekki að hugsa um. Á sama þingi gerði hann líka tilraun til að sviftá mig stjórn sandgræðsl- unnar. Ritstjóri Suðurlands, hr. Jón Jónatansson, hefir seinna stutt að því, þar sem hann í grein í blaði sínu nr. 36, 1911 skrifar: »Skógræktarstjórinn á að annast um sandgræðslu, sem — illu heilli — var lögð í hans hendur, þegar landssjóður tók það mál að sér«. En hann segir ekki frá, hversvegna hann er svo óánægður með mig Frá annara hálfu hefi eg ekki heyrt nema lofleg ummæli af vinnu þeirri, er hefir verið framkvæmd i þjónustu sandgræðslunnar, og að menn eru ánægðir með árangurinn. Eg veit vel, að vér hefðum getað gert enn þá meiia, en það er ekki okkur að kenna, sem höfum unnið að því verki, heldur því, að fjárveitingin hefir verið svo lítil. Það vantar þakningarefni á sumum svæðum, sem eru alveg gróðurlaus. Hér á landi getum vér að eins notað hrís til þess, en dýrt er að útvega hann, þar sem sandsvæðin surn, er í hlut eiga, liggja langt frá skógunum. Sýslunefndirnar í Árnes- og Rangár- vallasýslum ættu að styðja að vinn- unni með því að flytja um 100 hestburði af hrísi að Reykjum á Skeiðum og að sandsvæðinu í Hvol- hreppi. Að minni hyggju ríður fyrst um sinn á að girða svo mörg svæði sem hægt er, því þar sem fyrirfram er dálítill gróður til, er girðing ein- göngu ágætt sandheftingarmeðal hér á landi; sönnun þess er girta svæðið við KaldaðarneS í Árnessýslu. Að því er Meðallandsáveituna snertir, þá held eg að hún myndi ekki hepnast, ef ekki frekari vinna verðnr gerð, en hr. Sigurður Sig- urðsson á ekki ódrjúgan þátt í því, þar sem hann hefir orsakað, að hinni upprunalegu fyrirætlan var breytt. Að eg hefi vanmetið aukakostnaðinn við breytinguna er minn galli, og líka að eg treysti »kunnugum« mönnum of mikið, því eg fekk loksins veður af því, að aðalvatnið hljóp ekki svo sem þeir menn fullyrtu. í haust fekk eg bréf frá bónda þar, sem skrifaði, að bændur í Meðallandinu væru á þeirri skoðun, að vinnan myndi ekki hepn- ast, uema vatnið væri tekið svo sem eg hugsaði mér fyrst og regluskorðað við Arnargljúfur, en að regluskorða vatnið þar vildu menn ekki fallast á, þegar eg var þar í vor. NI. Aths. Hr. Kofosd-Hansen hefir sjálfnr fært þessa grein í islenzkan búning, 0g er það eigi venjulegt, að útlendingar komist svo vel niðnr í máli vorn — þótt starfsmenn landsins séu. Ritst j. Thomas P. Kriig1. Thomas Krag varð 43 ára. Hann lézt úr hjartaslagi. en hafði annars verið í heilsuhæli frá því um jól. — Krag var af nafnkunnri prestaætt í Noregi. Norðtnönnum var hann harm- dauði. Telja þeir sig þar hafa mist eitt af beztu skáldu u sínum. Ýms erl. tíðindi. Landskjálftar miklir geysuðu f Austur-Indíu í miðjum marz, aðal- lega á hollenzku eyjunum Siaos, Tangi og Taiand. M. a. hrundi þropið Menelos og fórust þar rúmt hundrað manns. Stjörnarskrárbreyting Dana. íhaldsmenn í landsþingi Dana hafa komið fyrir hinni frjáls- legu stjórnarbót Berntsens-stjórnar- innar — að sinni. Var það gert með tillögu frá Frijs greifa um að skipa nefnd til þess að íhuga breyt- ingar á grundvallarlögunum. Þessi tillaga var samþykt með eins at- kvæðis mun. Ef kosningarnar i vor fara að óskum ráðuneytisins, og styðja stjórn- arskrárbreytinguna — mun í ráði að rjúja landspingið.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.