Ísafold - 05.07.1913, Page 2
212
ISAFOLD
Hertaka fánans
í dönskum blöðum.
Heilmikið hefir verið ritað í dönsk
blöð um 12. júni afrekið og alt mjög
á sömu leið: að hertakan hafi verið
lösrmœt snmkv. flotareglugj. 1752.
En að öðru leyti verður blöðunum
tíðræddast um, að potturinn og pann-
an í mótmælunum hér hafi verið
Bjarni frá Vogi »Lösrivelses-maður«
og að sonur Skúla Thoroddsen hafi
skorið dannebrog niður á Stjórnar-
ráðs-stöngínni. Og svo verður nið-
urstaðan sú hjá þeitn flestum, að
þetta sé venjuleg »skilnaðar«-læti.
Htr vita allir, að hin dönsku blöð
vaða reyk. Bjarni hafði ekki for-
göngu mótmælanna, heldur þingmenn
Reykvíkinga. í mótmæla-hreyfing-
unni tóku þátt menn og konur af
öllum flokkum og stéttum.
Hér fara á eftir einstaka ummæli úr
dönsku blöðunum.
Köbenhavn. Knud Berlin ritar þar
í blaðið. Hann reynir fyrst að sanna
lögmæti hertökunnar með skírskotun
til flotareglugjörðar 8. júní 1752,
konungsbréfs 2. des. 1776 og skrá-
setningarlaganna 1895.
Því næst skrifar hann: Það er
því enginn vafi á því, að Vals-for-
inginn hefir orð laganna sín megin.
En um hitt, hvort hann hafi ekki
getað komist hjá þessu leiðinda máli,
sem einungis er vatn á mylnu ís-
lenzku þjóðernissinnanna (National-
ister), verður dómur að bíða, unz
nánari skýrsla kemur.
Politiken lítur svo á, að gert hafi
verið of mikið úr þessu máli og
víkur að því, að oft sé rétt að loka
augunum og sjá ekki það sem fram
fer. — Gefur blaðið með þessu í
skyn, að Rothe Valsforingi hefði
helzt átt að láta fánann í friði.
Nokkur blaðanna hafa fundið for-
stjóra flotamálaráðuneytisins Jöhnke
að máli og spurt um álit hans, en
hann lítið viljað láta uppi fyr en
skýrsla Rothe kæmi, telur þó lög-
mætar verið hafa athafnir hans.
Fróðlegt verður nú að vita hvað
uppi verður á teningnum þar syðra,
er málið skýrist — einnig frá vorri
hlið.
Afskifti stjórnarráðsins hér.
Vafalaust hefir stjórnin hér haldið
uppi vörn út á við fyrir tröðkuðum
rétti vorum í máli þessu. Hljóðbært
hefir þó ekkert orðið um það.
En aftur hefir Isajold borist fregn
og afrit af bréfi dags. 21. júní, sem
sent hefir verið lögreglustjórum —
sjálfsagt öllum. Það hljóðar svo:
Að gefnu tileíni er hérmeð lagt
fyrir yður, hr. lögreglustjóri, að
hafa gát á því, að mönnum í lög-
sagnar-umdæmi yðar sé engin
tálmun gerð í því að nota hið
lögákveðna ríkisflagg eins og lög
standa til og venjulegt er.
H. Haýstein.
Eggert Briem.
Betur, að stjórnin sýni sömu rögg-
semi »að gefnu tilefni* út á við og
hafi »gát á því« að íslenzkum mönn-
um verði eigi lík »tálmun gerð« og
Einari Péturssyni á Rvíkurhöfn þ.
12. júníl
f Erich v. Mendelsohn,
ungur þýzkur rithöfundur, sem
mörgum hér á landi er kunnur, lézt
18. júní í sjúkrahúsi í Helsingjaeyri.
Mendelsohn kom hingað til lands
fyrir nokkrum árum og var gefinn
mjög fyrir íslenzkar bókmentir. M.
a. þýddi hann Ojurefli á þýzku.
Hann var í þann veginn að fara til
Islands, er hann lagðist banaleguna.
Mendelsohn varð að eins 26 ára.
1
Islandsbankastjórinn
* nýi.
Eins og sjá má á skýrslu þeirri,
er ísafold hefir send verið um aðal-
fund Islandsbanka, reynist hún rétt
fregnin, sem getið var í siðasta blaði,
að háyfirdómarinn sjálfur, æðsti dóm-
ari landsins,hefir gerst nokkurs konar
undir- eða vara-bankastjóri i íslands-
banka.
ísafold fór eigi i neina launkofa
með það í siðasta blaði, hversu afar-
óviðkunnanleg og vítaverð henni
litist sú ráðstöfun, ef sönn reyndist.
Og ísafold er eigi ein um þá skoð-
un, því að hver einasti maður, sem
vér höfum heyrt á þetta mál minn-
ast, jafnvel miklir persónulegir vinir
háyfirdómarans, hafa allir lokið upp
einum munni um það, að þetta væri
óviðunandi með öllu, og að einhver
ráð yrði til þess að hafa, að kippa
þessu i lag, þ. e. kippa háyfirdóm-
aranum út úr undirtyllu bankastjóra-
farganinu — vegna vegs og virð-
ingar dómstólsins, sem hann er yfir-
maður í. En hér er eigi gott
við að gera, ef háyfirdómarinn finnur
eigi sjálfur hvöt hjá sér til þess að
draga sig í hlé, þegar hann kemst
að raun um — svo sem hann hlýtur
að gera — hvilíka gremju og óánægju
þessar tiltektir vekja hjá öllum góð-
um mönnum.
Svo mikils á yfirdómurinn ekki í
að missa af virðingu og trausti hjá
almenningi, að það megi leika sér
að því fyrir litilsháttar aukabitling
að skerða það.
Vér tölum hér að eins um þá
hliðina, er að háyfirdómarastarfinu
veit. Mörgum mun detta i hug, að
til hafi og verið nokkuð, sem heitir
Landsbankamál, og hafi óþarfi verið
af bankaráði Islandsbanka, eða meiri-
hluta þess, að minna á það og rifja
upp þann veg, sem gert hefir verið
með nýjustu bankastjóraráðningunni.
En aðalatriðið er það ekki, heldur
hitt, að vér megum ekki láta það
viðgangast, að dómarar vorir, og þá
allrasízt hinn æðsti þeirra, séu að
flækja sig inn í hin og þessi annar-
leg störf, til þess að fá aukagetu
dálitla í askinn sinn, er hinsvegar
kann að valda því, að mennirnir
geti eigi gegnt skyldustörfum sinum
í embættinu, heldur verði ógildir við
þau, svo sem margoft getur hent
dómstjórann í málum i yfirrétti,
sem snerta Islandsbanka,
Vonandi sér háyfirdómarinn þetta
og dregur sig i hlé.
Raunar væri ekki úr vegi, að al-
þingi í einhverri mynd lýsti skoðun
sinni á þessu. Og sjálfsagt virðist
oss, að þetta verði til þess að ýta
undir lagabann um vafstur dómara
i öðru en dómarastörfum.
t Steingrímur Stefánsson.
Um hann rítar Lögberg þ. 15. mai
á þessa leið:
Allrar veraldar veg er genginn víð-
kunnur landi vor, Steingrímur Stef-
ánsson, Hann andaðist 4. maí síð-
ast liðinn, eftir langa legu, í Washing-
ton D. C., þar sem hann hafði dvalið
ein 14 ár, sem einn af bókavörð-
um við bókhlöðu þingsins. Stein-
grirnur var fæddur 12. júní 1860 á
Alftanesi, varð stúdent árið 1881 og
stundaði reiknings-nám við Hafnar
háskóla í nokkur ár, en til Chicago
borgar mun hann 'nafa komið fyrir
rúmum 20 árum; gerðist þar að-
stoðarmaður við Newberry bókasafn
og fekk svo mikið orð á sig fyrir
fróðleik og þekkingu á hinum óskyld-
ustu fræðigreinum, að hann er færð-
ur til Washington, þar sem löggjafar
landsins gætu fært sér fróðleik hans
bezt í nyt. Þar giftist hann fyrir
hér um bil 8 árum ekkju frá New-
York, Mrs. Annie Fooley (fædd Miss
O’Reilly), og andaðist hún í fyrra-
vetur í desembermánuði. Steingr.
er sagður verið hafa með skörpustu
mönnum, afar viðlesinn, minnugur,
hvass til skilnings, orðfær manna
bezt í kappræðum og jafnvígur á
flestan lærdóm. Hann lét minna
til sín taka utan síns verkahrings en
vænta mátti, svo vel gefinn maður,
en til þess bar einkum, að hann
hafði engan metnað til að bera og
lét sig engu skifta álit almennings,
heldur lifði eins og honum líkaði
sjálfum bezt, hvað sem aðrir hugs-
uðu eða sögðu um það. Hann átti
fáa kunningja, en þeim var hann
hollur og tryggur og þeir honum.
Hann var í miklu áliti meðal sam-
verkamanna sinna fyrir sinar óvenju
miklu gáfur og fróðleik.
--------------------
Alþingisfáninn.
Fyrirspurn.
Hópur kvenna, iéo konur komu
sér saman um það viku áður en
alþingi átti að koma saman, að láta
búa til merki, bláa veifu með áletr-
uðum hvitum stöfum, »Alþingi« í
þeim tilgangi að háttvirt »Alþingi«
vildi nota þetta merki, þegar það
héldi fundi. Undirrituðum konum
úr hóp gefendanna var svo falið að
afhenda réttum hlutaðeigendum þessa
litlu gjöf, en það reyndist erfitt að
finna þá. Sendinefndin fór nú fyrst
til forseta sameinaðs þings, herra
bæjarfógeta Jóns Magnússonar og
tjáði hann sendinefudinni með mik-
illi varkárni, að hann sem forseti
gæti ekki veitt gjöf þessari viðtöku,
en tjáðist skyldi taka við henni sem
alþingismaður og koma henni ofan
í alþingishús. Það ómak vildum vér
ekki baka forsetanum, og héldum
því sem leið lá ofan í alþingishús
kl. 10% þingsetningardaginn. Þar
hittum vér nokkra þingmenn, á
meðal annara, annan forseta milli-
þinga. Hann sá sér heldur ekki
fært að taka á sig ábyrgð þá, sem
veifunni fylgdi.
Málið fór þvi að vandast; vér
konur höfðum í einfeldni vorri hald-
ið, að fánadagurinn 12. júní s. 1.
hefði svo að segja skapað merki
þetta; að engum íslending þyrfti að
blandast hugur um, að bláu og hvitu
litirnir séu merki þjóðernis vors, og
þess réttar sem allir íslendingar eiga
heima fyrir. En þetta reyndist ein-
ungis hugarburður.
Næsta tilraunin var sú, að senda
hinum nýkjörnu forsetum beiðni um
áheyrn að afloknum fundi þingsetn-
ingardaginn. Forsetar tóku vel í
það og kvöddu oss á sinn fund kl.
5 sama dag, Forsetar efri og neðri
deildar voru á tilsettum tíma staddir
í alþingishúsinu — vér sáum ekki
forseta sameinaðs þings — hann mun
ekki hafa viljað taka á sig þann
vanda að vera viðstaddur. Með fá-
einum orðum afhentum vér svo for-
setum efri og neðri deildar þessa
umræddu veifu, og þeir tóku vin-
samlega á móti henni og skoðuðu
hana, með þvi að vér mæltumst til
þess, að sending þessi þyrfti sem
styzt að liggja í reifunum. En nú
er kominn 5. dagur júlí mánaðar og
enn þá höfum vér hvorki heyrt né
séð neitt um örlög merkisins, og
bíðum með óþreyju eftir að fundar-
merki verði dregið á stöng alþingis-
hússins.
Rvík 5. júli 1913.
Ingibjörg H. Bjarnason
Theodóra Thoroddsen
Steinunn H. Bjarnason
Inga Lára Lárusdóttir.
-----------------------
íslandsbanki.
Svofelda skýrslu hefir Isajold feng-
ið um aðalfund Islandsbanka:
Aðalfundur bankans var haldinn 2.
þ. m. Fundarstjóri var kosinn Hall-
dór Daníelsson yfirdómari. Hér
skal getið hins helzta, er á fundin-
um gerðist.
1. Lesin upp skýrsla fulltrúaráðs
bankans um starfsemi bankans síð-
astl. ár. Umsetning bankans var
meiri það ár, en nokkru sinni áður.
2. Lagður fram reikningur bank-
ans fyrir árið 1912 og skýringar
gefnar á helztu liðum hans. — Sam-
þykt að hlutafar fái 5%% ^ hundraði
í arð af hlutafé sinu. Landssjóður
fær 9418 krónur. Varasjóður eykst
um rúm 3 3 þúsund krónur. Banka-
stjórninni var í einu hljóði gefin
kvittun fyrir reikningsskilum síðast-
liðið ár.
3. Ludv. Arntzen hæstaréttar-
málfærslumaður var í einu hljóði
endurkosinn í fullrúaráðið af hlut-
hafa hálfu.
4. Endurskoðandi var endurkos-
inn arntm. J. Havsteen með 4711
atkv. Nicolaj Bjarnason kaupxn. fékk
1140 atkv.
5. Skýrt frá að bankastjóri E.
Schou hefði sagt upp stöðu sinni
frá næsta nýári, en verið af fulltrúa-
ráðinu veitt lausn frá byrjun þessa
mánaðar sakir heilsubrests. — Þeir
Sighvatur Bjarnason og H. Tofte
yrðu frá sama tíma bankastjórar með
jöfnum völdum og jöfnum launum.
Þriðju bankastjórastöðunni yrði fyrst
um sinn haldið óveittri samkvæmt
því, er ályktað hefði verið i fyrra,
en Kr. Jónsson háyfirdómari væri
til bráðabirgða settur sem varamaður
í stjórn bankans, þó eigi nema með
1—2 kl.st. vinnu á dag.
6. Bæði formaður bankaráðsins,
ráðherra Hannes Hafstein og mættir
hluthafar þökkuðu bankastjóra Schou,
sem nú færi frá bankanum fyrir
starfsemi hans og áhuga fyrir bank-
anum frá stofnun hans.
------------------------
ReykjaYíknr-annáll.
Bifreiðin þeirra V.-íslendinganna er nú
tekin til daglegrar notknnar. Á morgnn
er t. d. búið að panta hana i tvær ]?ing-
vallaferðir. Mnn ráðlegra fyrir þá, er
æt)a sér að ná í hana ákveðinn dag að
gera viðvart i tima.
Eftirlitsmaður hafnargerðarinnar var
kjörinn á siðasta bæjarstjórnarfundi Knnd
Zimsen verkfræðingur.
Guðsþjónusta á morgnn:
1 dómkirkjunni kl. 12 sira Bj. Jónsson.
Engin siðdegismessa.
Engin messa i frikirkjunni á morgnn
(presturinn í ferð).
M. Magnús
(Júlíusson) læknir
sérfræðingur í húðsjúkdómum.
Viðtalstími 9—11 árd.
Kirkjustræti 12.
Kappleik i knattsparki þreytir Fótboita-
félag Reykjavikur við knattmenn af frakk-
neska herskipinu k). 4 á rnorgun á Iþrótta-
vellinum.
Lavoisier, frakkneska berskipið, kom í
gærmorgun að vestan.
Skipafregn. Kong Helge kom að
utan á fimtudag. Farþegi: Páll Eggert
Óiason stnd. jnr.
H ó 1 a r komu i fyrra kvöld úr strand-
ferð með fjölda farþega.
Sundpróf stúlkna var haldið i gær i
sundlaugunum. Rúmar 40 telpur úr barna-
skólannm hafa lært sund í vor hjá jungfr.
Ingibjörgu Brands. Eru þær ekki
eftirbátar karlkynsins. Þær sýndu ýrasar
sundaðferðir, syntu i kafi einar SO álnir
o. s. frv. Luku áhorfendur miklu lofsorði
á sundfimi þeirra og ágætan aga sund-
kennarans.
í bifreið.
Þá er hún farin að þjóta, bifreið
Yestur-íslendinganna, Sveins Oddsonar
og fólaga hans, um alia vegi hór í greud,
út og suður, austur og vestur.
Til Keflavíkur, austur að Ægissíðu,
austur á Þingvöll — allar þessar leið-
ir hafa verið reyndar, og gengið vel,.
þráU. fyrir hina ódæma bleytu, sem
er á? öilum vegum eftir mikia úrkomu
langa hríð undanfarið.
Mór var í gær boðið að aka í bif-
reiðinni upp að Lögbergi, og þótti mór
heldur nýstáriegt að vera »kominn upp-
að keyra« á þenna hátt á voru landi.
Eg mintist þess ósjáifrátt, að þetta var
samt ekki fyrsti bifreiðar-akstur minn
hér á iandi, því að eg var einn binna
lánsömu manna, er í Thomsens bifreið-
inni ók hór í bæ fyrir 9 árum, sæiiar
minningar. Eg var þá lfka boðinn
sem fulltrúi lsafoldar og ók þá iun að
ám með Reykjavíkurritstjóranum þá-
verandi, alþm. J. 01. En þá urðum
við að »yta á eftir« upp brekkur og
þökkuðum okkar sæla fyrir að sleppa
lífs heim aftur innan frá Elliðaám —
eftir margar og miklar ósjálfráðar biðir
bifreiðarinnar.
En í gær þurfti ekki að »ýta á eftir«,
og enginn gaus upp í manni lífshættu-
ótti. Orugglega og þægilega rann bif-
reiðin áfram — á stundum, þar sem
vegur var góður og uruferð engin, eins
og örskot, með 5 mílna eða 40 rasta
hraða á klst.; á hún þó meiri hraða
til og beitir honum stundum fyrirsig.
Það er gaman að geta farið svo fljótt
yfir landið og þurfa ekki að vera neitt
hræddur um að »ofbjóða skepnunni«.
En flýtinum hamia mjög á köflum
vondir vegir og þó einkum umferðin,
hestar „g vagnar. Fólki hór ætlar aldrei
að lærast að haga sór á veguuum eftir
settum og sjálfsögðum reglum, að aka
og ríða vinstra megin á veginum
og víkja til vinstri. Það er
því miður svo, að sjálfsagt þarf eitt-
hvert slysið til að festa lærdóminn þann
í hugum fólks.
Ekki virtust skepnur fælast bifreið-
ina, það talist gæti, og óþarfi held eg:
það hafi verið af okkar ágæta austan-
pósti, að halda fyrir augun á klárunum
meðan bifreiðin fór fram hjá!
Með þeim töfum, sem vegur og um-
ferð veldur, mun bifreiðin að jafnaði
geta farið til Þingvalla á 3 klst. og á
eitthvað dálítið lengri tíma áustur að
Olfusá, Má geta nærri, að svo fljót
ferð, í notalegu sæti, í mjúkum vagni
verði mikið notuð af Reykvíkingum, og
mundi það eigi furða mig, að þessi
eina bifreið yrði innan skamms alls
ónóg.
Nú kemur að því, að nýgerfinga-snill
ingar vorir verða að finna stutt og
fallegt íslenzkt orð yfir bifreiðarferðalag.
Of langt að segja: að aka eða fara í
bifreið, ljótt og óíslenzkulegt að »bíla«.
En úr því að við höfum fundið jafn-
ágæt orð og að hjóla og síma, þá ætti
eigi að verða skotaskuld úr því að fá
gott orð yfir að aka í bifreið.
Tillögur?
Ego.