Ísafold - 13.09.1913, Page 4
290
ISAFOLD
Misprentast
hefir í síðasta blaði í ræðu síra
Sif. Stef. í 13. \.: í nejndinni. Þess-
um orðum er ofaukið.
Takið eftir!
Feriamenn geta eins ognðundan-
förnu fengið gistingu fyrir sig og
hesta sína á Laugaveg nr. 70 Rvík,
talsimi 142. Meran snúi sér t;l Þor-
grims Guðmundssonar sania stað.
Jrtn Runólfsson les frum-
samin og þýdd kvæði í Bárubúð
kl. 9 í kveld.
Umsóknir til búnaðarfélagsins
um styrk til nautgriparækt-
arfélaga 19x4, með venjulegum
skýrslum, þurfa að vera komnar til
félagsins fyrir lok febrúarmánaðar.
Umsóknir um styrk til
búpeningssýninga 1914 þurfa
að vera komnar til búnaðarfélagsins
fyrir 15. marz. A sýningum þeim,
sem félagið styrkir, má ekki veita
verðlaun fyrir sauðfé frá öðrum bæj-
um en þeim, þar sem féð hefir verið
þrifabaðað veturinn áður. Þó þarf
það ekki að valda verðlaunnsynjun,
þótt sauðir þrevetrir og eldri hafi
verið látnir óbaðaðir.
Umsóknir um styrk til
.jarðabóta 1914 er æskilegt, að
komnar sé til búnaðarfélagsins fyrir
lok marzmánaðar.
Umsóknir um garðyrkju-
kenslu í gróðrarstöðinni i Reykja-
vík 1914 sé sendar Einari Heiga-
syni garðyrkjumanni fyrir lok jan
fiarmánaðar. Kenslutími 6 vikur, frá
byrjun maímánuðar. Nemendur fá
40 kr. námsstyrk, og auk þess nokk-
urn ferðastyrk, þeir sem langt eru að.
Umsóknir um plægingar-
kenslu o. fl. hjá Alfred Kristen-
sen i Einarsnesi 1914 sé sendar hon-
um fyrir lok marzmánaðar. Kenslu-
timi 6 vikur, frá miðjum mai. Kost-
ir sömu og áður.
Búnaðaríélag íslands.
Bldiviður.
Stórir kassar og tunnur fást með
gjafverði í
verzl. B. H. Bjarnason.
Tilkynning.
Eg hefi ákveðið að fara vestur um
haf 25. þ. mán., og mælist þvi til,
að þeir, er hafa kynnu i hyggju að
kaupa sjálfrenninga eða spyrj-
ast fyrir um þá, geii það fyrir þann
tíma.
Einnig vil eg láta þess getið, að
eg ætla mér að koma heim aftnr að
vori í (apríl eða maí) og að heimil-
isfang mitt vestan hafs væntanlega
verður Wynyard, Sask, Canada.
I fjarveru minni geta menn snúið
sér til félaga mins, Jóns Sig-
mundssonar, hann ræðurað öllu
yfir vagni minum og gefur allar
upplýsingar, er að fyrirtækjum okk-
ar lýtur.
Virðingarfylst.
Sveinn Oddsson.
Til leigu 2 samanliggjandi her-
bergi (niðri) forstofuinngangur, mj'ó%
nálægt verzlunarskólanmu. Upplýs-
ingar hjá Þorláki Magnússyni Vest-
urgötu 17.
I»ær konur eða stúlkur er ætla
að læra ljósmóðurstörf næsta vetur,
geta fengið fæði og húsnæði hjá
Guðrúnu Jónsdóttur Þingholtsstræti
25, þar sem kenslan fer fram.
Hafrahey verður selt á upp-
boði í Gróðrarstöðinni kl. 5 síðd. á
mánudaginn.
Skóverzlun
Stefáns Gunnarssonar
Austurstræti 3
selur traustan, smekklegan og ódýran
skófatnað,
gjörið því skókaup yðar hjá
Stefáni Gunnarssyni.
Vér greiðum engan toll af efnivörum vor-
um og hjá oss er því verðið lægst eftir
gæðuin. Biðjið þess vegna um BÚkkulaði
og kókódnft frá
Lögskr&ð vörnœerki.
OTDTVTO" Súkkulaði- og kókóverk—
„IJllllUlO smiðju frihafnarinnar
Búnaðarritið I-—XIII. árg.
Af því voru I. og II. árg. uppseldir fyrir 9 árum síðan. En sök-
um þess, að af flestum hinum árgöngunum voru talsverðar leifar, réðist
eg í að láta prenta upp I. og II. árg., til þess að veita mönnum kost á
að eignast ritið samstætt. Af Búnaðarriti mínu verða því til liðug 200
eintök samstæð. Verða þau til sölu í ísafoldarprentsmiðju, og kosta 13
árg. nú að eins 12 kr. Upphaflegt verð þeirra var 16.50 — Óvíst
er að þetta niðursetta verð haldist nema til næsta vors. — Samkv. pönt-
unum og meðfylgjandi 12 kr. borgun verður ritið sent frítt.
Sérstakir verða seldir eftirfarandi árgangar:
V. áður kr. 1.00 nú kr. 0.50. VI. áður kr. 1.00 nú kr. 0.35.
VII. — — 1.50 — — 0.50. VIII. - - — 1.50 — 6 d
IX. — — 1.50 — — 0.50. X. - - — 1.50 — — 0.40.
XI. — — 1.50 — — 0.40. XIII. - - — 1.50 — — I.OO.
Af sumum árgöngunum eru eigi nema nokkur eintök, sem hægt
er að hafa til sérsölu. Má þar tilnefna V. árg. og þó einkum Xlll. árg.
Þeir sem því hafa haldið Búnaðarritið, en kynni að vanta þessa árganga
í það, til þess að gera það samstætt, mættu alls eigi láta dragast að út-
vega sér þá.
Ritið: Fóðrun búpenings fæst hjá öllum bóksölum. Aðalútsölu
rnaður: Ólafur Björnsson ritstjóri.
Hermann Jónasson.
Dynamit, kvelihettur og sprengiþráður
altaf fyrirliggjandi
hjá J. Aall Hansen, Þingholtsstræti 28.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim,
er með návist sinni og á annan hátt sýndu
okkur hfuttekningu vlð fráfall og jarðarför
okkar elskuðu dóttur, Bryndísar Guðrúnar
sál. Ennfremur biðjum við góðan guð að
launa þeim, er hjálpuðu okkur í veikind-
um hennar.
Guðbj. Daðny Jónsd. Jóhannes Guðmundsson.
Bernskan II.
er nýkomin út, og er á stærð við
fyrra heftið. í þessu síðara hefti
eru 40 smásögur, allar sannar, eins
og þær hafa gerst með ísl. börnum
eða unglingum.
í kverinu eru 15 myndir auk
myndar af höfundinum framan við.
Fremst er kvæði: »Landið mitt«,
aftast er lofsöngur. — Kostar eins
og fyrra heftið 85 aura í bandi.
hakkarávarp. Hér með þökk-
um við vinum okkar hjartanlega fyr-
ir gjöfina, sem þeir sendu okkur á
sumardaginn fyrsta. Guð launi þeim
hana þegar þeim mest á liggur.
Sauðárkróki 28. ágúst 1913.
Þorvaldur Einarsson. Lára Siqjúsdóttir.
Röskur sendisveinn getur feng-
ið atvinnu í ísafoldarprentsmiðju frá
1. október næstkom. Gefi sig fram
sem fyrst.
Bernskan er langbezta barnabókin
milli stafrófskvers og Lesbókarinnar.
Likkistur,
Líkklæði,
Kransar.
Lítið á birgðir mínar áður en þér
kaupið annarsstaðar. Teppi lánuð
ókeypis í kirkjuna.
Eyv. Árnason,
trésmíðaverksmiðja, Laufásveg 2.
□:
Portland Gementfabriken
“N0RDEN“
□:
Aalborg
er viðurkend fyrir sina góðu vöru, og fræg orðin fyrir
þann óviðjafnanlega styrkleika, sem cementið hefir.
Nægar birgðir og upplýsingar hjá umboðsmanni verk-
smiðjunnar.
Ji. Benediktsson.
Tatsími 284 og 8.
Reijkjavík.
LA
Carlsberg* ölgeröarhús
mæla með
Carlsberg skattefri
alkoholfátækt, ekstraktríkt, Ijúffengt, endingargott.
Carlsberg skattefri Porter
ekstraktríkastir allra Portertegunda.
Carlsberg gosdrykkjum,
áreiðnnlega beztu gosdrykkirnir.
Dvergur,
trésmíðaverksmiðja ogtimburverzlun
(Flygenring & Co.)
Hafnarfirði. Símnefni: Dvergur. Talsími 5 og 10.
hefir jafnan fyrirliggjandi: Hurðir — Glugga — Lista og
yfir höfuð alls konar timburvörur til húsabygginga og annarra
smíða. — Húsgögn, ýmiskonar, svo sem: Rúmstæði — Pata-
skápa — Þvottaborð og önnur borð af ýmsum stærðum.
Pantanir afgreiddar á allskonar húsgögnum. —
Rennismíðar af öllum tegundum.
Miklar birgðir af sænsku timbri, cementi og pappa.
Timburverzlunin tekur að sér byggingu á húsum úr timbri og stein-
steypu, og þar sem vér höfum fengið betri kaup á timbri í þetta skifti
en alment gerist, væntum vér að geta boðið viðskiftamönnum vorum hin
allra beztu viðskifti, sem völ er á.
G. B.
Lux
er hið einasta verulega göda ljós nútímans.
Lux breytir nóttinni í dag. Leitið því úr nóttinni
í daginn og notið
Lux! Lux! Lux! Lux!
Einkasali fyrir ísland er:
Guðmundur Böðvarsson
Reykjavík.
„Skandia mótorinn“
(Lysekils Mótorinn)
er af vélfróðum mönnum viðurkendur að vera sá bezti báta- og
skipamótor, sem nú er bygður á Norðurlöndum.
„Skandia" er endingarbeztur allra mótora og hefir gengið
daglega í meir en 10 ár, án viðgerðar.
„Skandia“ gengur með ódýrustu óhreinsaðri olíu, án
vatnsinnsprautunar, tekur lítið pláss og hristir ekki bátinn.
„Skandia“ drífur bezt og gefur alt að 50% yfirkraft.
Biðjið um hinn nýja, stóra íslenzka verðlista.
Einkasali: Jakob GllimlÖgSSOIl, Köbenhavn, K.