Ísafold - 03.01.1914, Side 2
2
ISAFOLD
landi og lent í ís. Skipið er lekt
Og bíður yiðgerðar-
Páll.
Is kvað nú vera nær landfastur
við Bolungarvík. Afli dágóður þeg-
ar á sjó gefur.
--------------------
Leikmót alls landsins
1914.
Það verður í Reykjavik, og ráðgert
að hefjist 17. júní.
Samband U. M. F. í. gengst fyrir
því, eins og 1911.
' Þeir einir eiga þar þátttökurétt, sem
eru í félagi, er íþróttir hefir með
höndum, þó menn úr þeim félögum
einum, sem eru i í. S. í (íþrótta-
sambandi íslands).
Leikreglum í. S. í. verður fylgt
að öllu, og leikmótið háð undir þess
yfir-umsjón.
Forstöðu- og undirbúningsnefnd er
skipuð þessum mönnum: Birni Jak-
obssyni, sem er formaður, Areboe
Clausen, Agli Guttormssyni, Guðm.
Kr. Guðmundssyni og Guðbrandi
Magnússyni.
Leikreglur allar og annað það, er
menn þurfa að vita við iþróttaiðkanir
undir leikmótið, verður sent íþrótta-
og Ungmennafélögum þegar er þau
plögg verða fullgerð. Þá verður einnig
sagt frá þvi, hvar og með hverjum
kjörum menn geti fengið nauðsynleg
íþróttatæki.
Lagt verður kapp á að fá lækkuð
fargjöld með skipum fyrir alla íþrótta-
menn, er keppa á mótinu, og að
koma.
Töluverður þróttur var í leikmót-
inu 1911. Þar voru að leikum alt
að hundrað manns, karlar og konur.
Og táp og fjör var í þessu fólki, enda
erum við íslendingar alls ekki illa
farnir líkamlega, og getum náð okk-
ur fljótt, ef við að eins viljum, náð
okkur svo, að við þar verðum í engu
eftirbátar þeirra þjóða, sem lengst
eru á veg komnar um líkamlega at-
gjörfi.
Siðan eru þrjú ár, og altaf verið
haldið í þá áttina, að fá sem flesta
til að leggja stund á hollan og fagr-
an ieik. í sumar eigum við að gera
skilagrein, láta á sjá, hvort heilræði
og hvatningar hafa orðið að tilætluð-
um notum.
Stórt spor hefir verið stigið i rétta
átt á þessum árum, Iþróttasamband
íslands stofnað I Allir íþróttavinir
verða að vinna saman, til þess að
sem mestu verði áorkað. Og því
verðnr ekki betur náð með öðru en
félagsskap. Þaðan koma svo fyrir-
mæli um það, hverjar íþróttir séu
nytsamar og hvernig eigi að fara að
um hverja þeirra. Allir fara að sömu
reglum, fara eins að, og þá kemur
samanburður á leikmótum að fullum
notum, en samanburður og samkepni
fleyta hér lengst, eins og annarstaðar.
Það mörg félög eru þegar gengin
í 1. S. 1, að sjálfsagt er 'óllutn félög-
um í það að ganga, sem iþróttir hafa
með höndum, því að reglur þess eru
strangar, mönnum innan og utan
sambandsins ekki leyft að vera sam-
an að opinberum leik.
Hingað til er eins og hálfgert hik
hafi verið á um alla ij>róttastarf-
semi í landinu. Enda eðlilegt.
Heilbrigðar skoðanir eru oftast
lengi á leiðinni, — langur tími frá
því að þær lögðu af stað, og þang-
að til að allir höfðu aðhylst þær.
Og þannig er þvi farið hér.
En úr þessu má það ekki dragast
lengi, að menn láti sér skiljast það,
að drengilegur leikur og holl líkams-
æfing eru leið, sem öllum er fær, til
þess að gera sér sterkan þátt í heil-
brigða sál og hraustan líkama: sœlla
líj!
Við höfum tvívegis sent menn á
alheimsleikmót, Ólympíuleikana.
Höldum þvi áfram.
En sé þjóðinni allri það eigi al-
vara, að láta það, sem þeir menn
áorka, vera sem sannasta mynd af
því, sem alment er heima fyrír, þá
eru það að eins ljót látalæti og
skrum.
Guðbrandur Magnusson.
Verzlunarskólinn.
í tilefni af deilum þeim, sem urðu
í Verzlunarskóla íslands milli skóla-
stjóra og pilta, hafa skólastjóranum,
hr. Ólafi G. Eyólfssyni, borist eftir-
farandi - samúðarskeyti:
Kaupm.höfn, 15. des. 9.50.
Innileg samúðarkveðja. Kær þökk
fyrir ágæta kenslu og framkomu frá
skólaárunum.
Björgólfur Stefánsson.
Guðm. Guðmundsson.
ísafjörður, 24. des. i2,45.
Um leið og við undirritaðir, fyrr-
um nemendur Verzlunarskólans,
óskum yður og fjölskyldu yðar
gleðilegra jóla og hamingju á kom-
andi ári, viljum við, út af uppþoti
því, er varð í Verzlunarskólanum
fyrir skemstu af hálfu nemenda,
ekki láta hjá liða að votta yður al-
úðarþakkir fyrir vel unnið starf við
skólann, og lýsa fullu trausti á yður
sem kennara og skólastjóra Verzlun-
arskólans. — Mætti skólinn sem lengst
njóta yðar.
ísafirði:
Jón S. Edwald Elías J. Pálsson
Guðm. Bjarnarson, Hólmavík
Stefán Sigurðsson, Aðalvík
Gísli H. Sigurðsson, Súðavik
Tómas Brandss. Sigurjón Sigurðss.
Grímur Jónsson
Sigmundur Jónsson, Þingeyri
Oddur Guðmundsson, Bolungarvik
Hnifsdal:
Þorvaldur Sigurðsson
Valdimar Vaidimarsson
Guðmundur Salómonsson.
Suðureyri: Kr. A. Kristjánsson.
Hesteyri:
Kristín Þorvaldsdóttir
Ingibjörg S. Guðbjartsdóttir.
Þakklæti
sendi eg öllum þeim, sem gáfu í
jólapotta »Hjálpræðishersins«. Inn
komu 266 krónur og 56 aurar og
voru þær í þessum myntum: 171
eineyringar, 1070 tvíeyringar, 524
fimmeyringar, 415 tíeyringar, 229
tuttugu og fimmeyringar, 23 fimtíu-
eyringar, 58 krónupeningar, 14 tveggja
krónupeningar og 4 fimmkrónuseðlar
— eftir þessu voru gjafirnar smáar
en margar — samt höfum við enn-
þá sönnun fyrir því að góður vilji
dragi stórt hlass. Eins og áður hef-
ir verið skýrt frá, voru haldnar jóla-
hátiðir fyrir milli 4—500 fullorðna
og börn og voru nokkrar krónur
gefnar í peningum til fátæklinga.
Vér látum þakklæti þiggjanda halda
áfram til þeirra sem létu gjafirnar af
hendi rakna. Gleðilegt nýar.
N. Edelbo stabskapt.
Nýárssundið.
Það var þreytt nú í fimta skifti,
kappsundið um »Nýársbikar Grettis«.
Erlingur Pálsson hafði unnið bik-
arinn tvisvar, 1912 og 1913. Þótti
það auðsætt flestum mönnum, að
hann mundi ekki heldur láta dýr-
gripinn sér úr greipum ganga í
þetta skifti, enda varð og sú raunin
á. Lagðist hann 50 stikurnar á
33 Vb sekúndum, en það er hið
hraðasta sund, sem menn vita dæmi
til hér á landi. Til samanburðar
má geta þeSs, að árið 1912 svam
Erlingur þessa vegarlengd á 37 sek-
úndum og árið 1913 á 38 */4 sek-
úndum. Stefán Ólafsson, sá er bik-
arinn vann fyrstu tvö árin, svam
50 stikurnar á 46 sekúndum árið
1910 og árið 1911 á 42 sekúndum.
Næstur Erlingi gekk Sigúrjón
Sigurðsson 45 a/5 sek., þá Stein-
grímur bróðir Erlings 4 5 8/s sek.,
þá Sigurður Gíslason 46 sek., Jón
Jónsson 57 sek. og Guðmundur
Pétursson 59 sekúndur.
Að loknu sundinu mælti dr. Helgi
Péturss nokkur orð til áhorfenda og
afhenti sigurvegaranum bikarinn til
æfinlegrar eignar, því svo hafði gef-
andi umjmælt, að sá, er bikarinn ynni
þrem sinnum í röð, skyldi réttmæt-
ur eigandi hans.
Guðjón hefir þegai heitið því að
gefa annan bikar, sem þá verður
kept um í fyrsta sinn næsta nýjárs-
dag.
Erlingur fer utan á sumri komanda
til þess að nema sundíþróttir af fær-
ustu sundmönnum Breta. Veitti al-
þingi íþróttasambandi íslands styrk i
því skyni, og er því fé sizt á glæ
kastað, sem veitt er til þess að styrkja
efnilega iþróttámenn. En af Erlingi
er mikils góðs að vænta.
Skáldalaun.
Hannes Hafstein hefir jafnan verið
einlægur og ötull stuðningsmaður
skáldanna á alþingi er um skáldalaun
hefir verið að ræða. Að líkindum
hefir honum þótt alþingi síðast skera
um of við nögl sér það, sem það
veitti í skáldalaun tveim höfuðskáld-
um vorum — og máske fleirum.
Eg hefi frétt, að hann hafi nú um
nýárið bætt þeim Einari Hjörletfssyni
og Guðmundi Magnússyni upp ná-
nasarskap þingsins. Hafi gert Einar
að meðritstjóra Lögréttu með föst-
um launum, en Guðmund að aðstoð-
armanni á 3. skrifstofu stjórnarráðs-
ins í stað Þorsteins Þorsteinssonar
cand. polit., sem tekur við forstöðu
Hagstofunnar nú uni nýárið.
Hvort satt er um Einar veil eg
eigi með vissu, en í fyrsta blaði
Lögréttu eftir nýárið eru tvær grein-
ar með undirskrift »Skalla-Gríms«
og bera þær heldur með sér að
höfundur vilji láta menn skilja, að
hann sé ekki óviðriðinn »stórskota-
lið sannleikans«, sem Einar hefir
jafnan viljað telja sig til. Enda
leynir' sér tæplega fiskurinn undir
steininum.
Hitt er áreiðanlegt, að Guðmund-
ur er settur á 3, skrifstofu stjórnar-
ráðsins. Hann kom þar nú um ný-
árið, alveg flatt upp á skrifstofu-
stjóra og landritara, að því er sagt
er. —
Það er fyrsta afleiðingin af því
að flytja Hagfræðina úr stjórnarráð-
inu.
Já, margt er gott um blessuð
skáldin — og það ekki sízt hve
ójeitnin skáldin eru, hvort sem þau
eru hátt eða lágt i mannfélagsstig-
anum.
Leirskáld.
Fundargerð
Dagana 7. og 8. nóv. 1913 var á
Flateyri í Önundarfirði haldinn 15.
þing og hóraðsmálafundur Vestur-ísa-
fjarðars/slu. Mættir voru 13 fulltrúar,
úr öllum hreppum sýslunnar. Fund-
arstjóri var kosinn: hreppstj. Guðm.
Á Eiríksson, varafundarstj. alþingism.
Matth. Ólafsson og ritari síra Böðvar
Bjarnason.
Þessi mál voru tekin fyrir:
1. Stjórnarskrármál. Svo hljóðandi
tillaga samþ. í einu hljóði: Fundurinn
aðhyllist stjórnarskrárbreytingu síðasta
þings og álítur, að þá eina eigi að
kjósa til alþingis, er lofa að greiða
henni atkvæði óbreyttri.
2. • Samgöngumál. Þessar tillögur
samþyktar:
a) Jafnframt og fundurinn skorar
á hóraðsbúa að styðja Eimskipafólag
íslands með sem ríflegustum hluta
kaupum, vill hann beina þsirri áskor-
un til hreppsnefnda og bæjarstjórna,
að íhuga, hvort þær eigi sjái hreppun-
um og bæjunum, sem sveitarfólögum,
fært að taka hluti f Eimskipafólaginu,
og 8Ó svo, þá að styðja fólagið á þann
hátt.
b. ) Fundurinn skorar á kaupmenn
landsins og kaupfólög að styðja Eim-
skipafólag íslands einnig með því að
láta það sitja fyrir flutningum þegar
að því kemur.
c. ) Fundurinn álítur, að ekki só, enn
sem komið er, heppilegt að landsjóður
leggi fó til hinnar fyrirhuguðu járn-
brautarlagningar.
3. Fiskiveiðamál. í því máli samþ.
svohljóðandi tillaga. Að gefnu tilefni
leyfir fundurinn sór að skora á þing
og stjórn að taka til rækilegrar íhug-
uuar hvernig tryggja megi seut bezt
líf sjómanna á vólarbátum og opnum
bátum, og vill benda á, að þeir einir
ættu að geta fengið leyfi til formensku,
sem að vitni tveggja valiukunnra for-
manna, sem hafa haft formensku á
hendi um ákveðinn tíma, álítast færir
um, hvað gætni og sjómenskuhæfileika
snertir, að hafa á hendi jafn-vandasam-
an og ábyrgðarmikinn starfa.
4. Stefnur og horfur. Samþykt í
einu hljóði svo hljóðandi tillaga:
Fundurinn lýsir fylgi sínu við stjórn-
málastefnu þá i sé^málum landsins,
sem kemur fram i ávarpi frá stjórn
sjálfstœðisflokksins i síðastl. okt., og
skorar á alþingiskjósendur að styðja
þau ein þingmannsefni, sem fylgja
þeirri stefnu, og tekur jafnframt
fram, að hann álítur að ekki eigi að
hreyfa sambandsmálinu, meðan ekki
vænlegri horfur en nú eru á því, að
viðunandi sambandslög fáist.
5. Tollmál og skattamál. Samþykt
svo hljóðandi tiilaga:
Futtdurinn er hiyntur skattalaga
frumvarpi skattamálanefndarinnar og
álítur yfir höfuð beina skatta eðlilegri
en óbeina.
6. Almenn lífsábyrgð: Fundurinn
skorar á stjórnina að undirbúa sem
fyrst og leggja fyrir alþingi frumvarp
til laga um stofnun almenns iífsábyrgð-
arsjóðs, og só ölium tvítugum körlum
og konum gert að skyldu að vátryggja
lif sitt fyrir hæfilega lága upphæð.
Tillagan samþykt.
7. Lánsstofnun. Svohljóðandi til-
laga samþ.: Fundurinn telur nauðsyn-
legt að næsta alþingi breyti lögum um
hina 4. veðdeild Landsbankans þannig,
að meira verði lánað út á jarðeignir en
þessi lög ákveða, samanborið við virð-
ingarverð.
8. Tóbaksnautn. Samþ. eftirfarandi
tillögur, sú fyrri með 6 atkv. mót 2,
sú síðari f einu hljóði:
a) Enda þótt fundurinn telji tóbaks-
nautn unglinga mjög skaðlega, álitur
hann sölubannsaðferðina óheppilega, tel-
ur heppilegra að auka fræðslu á skað-
semi tóbaksins.
b) Fundurinn telur æskilegt, að upp
só tekin í barnaskólum fræðsla um
skaðsemi tóbaksnautnar.
9. Vitamál. Samþ. svohljóðandi til-
laga: Fundurinn skorar á landstjórn-
ina að láta rannsaka vitastæði á svæð-
inu frá Stigahlið til Kópaness.
10. Breyting fundartíma: Fundur-
inn ályktar að flytja fundartímann til
tímabilsins frá 15. febr. til 15. marz.
Skrifsfofa
Eimskipaféíags Ísíands
Austurstræti 7.
Opin dagíega kl. 5—7.
Talsími 409.
11. Sími til Súgandafjarðar. Samþ.
svohljóðandi tillögur:
a) Fundurinn skorar á sítnastjórn-
ina að leggja símalínu til Súgandafjarð-
ar hið allra bráðasta.
b) Fundurinn skorar á sýslunefnd
Vestur-ísafjarðarsýslu, að leggja af
sýslufó til símalínu til Súgandafjarðar
það, sem símastjórnin á sínum tíma
kann að gera kröfu til, sem tillag ann-
arstaðar frá.
12. Hafnarstæði. Fundurinn skor-
ar á landstjórnina að láta mæla Súg-
andafjörð upp og ákveða hafnarstæði
þar ; samþykt.
13. Iðjuleysi og óvirðing fyrir vinnur
Fundurinn telúr æskilegt, að virðing
fyrir líkamlegri vinnu væri sem bezt
brýnd fyrir börnum og unglingum við
allar menningarstofnanir Iandsins, og
væntir að kennarafundir taki málið til
rækilegrar íhugunar. Samþykt í einu
hljóði.
14. Fánamál. Svohljóðandi tiliaga
samþykt með 11 : 2 atkv. að viðhöfðu
nafnakalli: Fundurinn skorar á auka-
þingið aðsamþykkja fánalögfyrir ísland.
15. Alþingiskosningar: Fundurinn
mótmælir harðlega því gerræði, sem
héraðsbúar hór í kjördæminu vorui
beittir við síðustu alþingiskosningar,
með þv/ að láta flytja atkvæðakassana
og telja upp atkvæði í öðru kjördæmi,
og skorar á stjórnina að láta ekki slíkt
koma fyrir aftur; en verði það endur-
tekið að ráði stjórnarinnar, þá skorar
fundurinn á þingmanninn að fytja van-
traustsyfirlýsingu til ráðherra út af
því. Tillagan samþ. í e. hlj.
16. Fræðslumál. Svo hljóðandi til-
laga samþ.: Fundurinn skorar á þing-
ið að breyta fræðslulögunum þannig,
að hver hreppur só sameiginlegt skóla-
og fræðsluhórað, þannig að allur fjár-
hagur só sameiginlegur, og að eins ein
5 manna fræðsiunefnd í hreppi, kosin
þannig, að hreppsnefnd kýs 2, en al-
mennur sveitarfundur 3.
Svo sem fundarsköp mæla fyrir, fóru
fram tvær umræður um hvert mál
og úrslita atkvæðagreiðsla að lokinni
síðari rmræðu.
Að lokinni síðari umræðu um
8. Tóbaksnautn. Samþ. svo hljóð-
andi tillaga: Fundurinn beinir þeirrr
ósk til barnakeunara landsins, að þeir,
jafnframt því með fræðslu og öðrum
ráðum að leitast við að sporna á móti
tóbaksnautn barna og ungliuga, leggi
alvarlega stund á að afnema sína eig-
in tóbaksnautn, og gefa þannig nem-
endum sitt eigið eftirdæmi.
Til að boða til næsta fundar var
kosinn hreppstj. Jóhannes Ólafsson á
Þingeyri.
Til að birta útdrátt úr fundargerð-
inni kosnir : alþingism. Matth. Ólafsson
og prófastur Þórður Ólafsson.
Fleira eigi tekið fyrir. Fundi sitið-
Guðm. A. Eiríksson. Böðvar Bjarnason,
---- -----------------------------
,Járnbrautarmálið ogminnihlutinn*
Leiðrétting.
Prentviilur hafa nokkrar orðið, er ináli
breyta:
í fyrra blaðinu : 1. d.: þorra f. þeirra
héraða, 2. d. efst tvisvar: hvar f. hver,
sama d. neðst: ritningin f. setningin, 3.
d. ofarlega: uppfylst, áður f. uppfylt
áður, 4. d. neðarl.: alt 9 f. alt að 9, 5.
d. oft f. hve mikið afl má leysa úr læð-
ing, sama d.: vera f. hlýtur að verka
mest, sama d. neðarl.: -leysið f. mjólkur-
markaðsíaptd, við tvo kafla, sem teknir
ern upp úr minnihluta álitinu, i 2. og 3-
d., vantar npptaksmerkið (»«).
í síðara blaðinu, bls. 405 3. d.: býlum
fjölgar, fleiri ækis- f. öífum fjölgar fleir.
œkissvagnar, 4. d. efst: sveium f. sveitum
sama d. neðanmáls: þeirri f. fyrri skoð-
un hans. Fallið hafa orð úr handritinu
i fyrri kaflanum, en ekki breytir það máli.
B. B.