Ísafold - 24.01.1914, Síða 3
I S A F 0 L D
25
Bréf til Húnvetninga.
Méð nýárspóstinum barst mér
áskorun frá nokkrum góðum mönn-
um í Húnavatnssýslu um að gefa kost
á mér til þingmensku við næstu
kosningar.
Það er ekki í fyrsta sinn sem þessu
hefir verið hreyft við mig bæði af
Húnvetningum og mönnum úr öðr-
um héruðum. Þessir menn hafa verið
sannfærðir um að eg yrði góður
þingmaður, en sjálfnr heii eg talið það
vafasamt og viljað vera laus við veg
þann og vanda. Eg hefi haft um
nóg annað að hugsa og hvorki þing-
mannsupphefðin né þingmannskaupið
hefir verið mér hin minsta freisting.
Mér er það full-ljóst að þingmenska
hlyti að kosta mig mikla vinnu og
tímatöf, að minsta kosti fyrstu árin.
Eg hefi eitt sinn reynt að kyuna mér
ýms landsmál til bráðabirgða og lýst
stuttlega áliti mínu i »Norðurlandi«
1905 (Tveir fyrirlestrar um íslenzk
stjórnmál) og auk þess í »Aftureld-
ing«. Sjálfstæðismálið eitt kostaði
mig lestur fjölda bóka bæði útlendra
og islenzkra, ferð til útlanda og ferð
til Reykjavíkur þó litt komi þetta
fram i því sem eg ritaði, því þá
hugsaði eg eingöngu um að skrifa
svo einfalt og alþýðlega, að hver
maður gæti skilið sem fyrirhafnar-
minst. Árangur þessa varð sá, að
sú skoðun á sjálfstæðismálinu sem
eg stóð þá einn uppi með, svo telja
mætti, varð á örstuttum tíma drotn-
andi i landinu og fylgja henni nú
að miklu leyti öll blöð og allir flokkar.
— Eg get ekki neitað því að mér
finst frjálslegast og mest að minu
skapi, að vera öllum óháður, geta
talað og skrifað hvað sem mér sýn-
ist án þess að þurfa að taka tillit
til »háttvirtra kjósenda«, samflokks-
manna, andstæðinga og hver veit
hvers. Eigi að síður hefi eg hugsað
mér að verða við þessum tilmælum
áskorenda minna og bjóða mig fram
til þingmenskn i Húnavatnssýslu við
næstu kosningar. — Mér þykir hálf-
ódrengilegt að finna ýmislegtað gjörð
um þingmanna vorra og þora hvergi
að koma nærri sjálfur. Þá þykir
mér ekki vonlaust um að eg kynni
að geta hrundið nokkrum góðum
málum áleiðis ef eg sæti á þingi eða
orðið þrándur í götu annara sem var-
hugaverð væru, þó engu skuli eg um
það spá hvort mér tækist þetta fram-
ar öðrum þingmannaefnum, sem i
boði verða. Nokkru skiftir það og
í þessu máli, að eg kysi fremur að
vera fulltrúi Húnvetninga á þingi en
flestra annara héraða. Eg er þar
fæddur og uppalinn og helztu áhuga-
mál min lúta að sveitalífi og sveita-
búskap.
En af því sem eg hefi drepið á
hér að ofan vona eg að öllum sé það
Ijóst, að eg er jafngóður vinur Hún-
vetninga hvort sem þeir kjósa mig
eða kjósa mig ekki. Hins vegar þakka
eg áskorendum minum og stuðnings-
mönnum traust þeirra og velvilja i
minn garð.
Því miður hittist nú svo illa á, að
eg tel litlar líkur til þess að eg geti
komið norður fyrir kosningar og átt
tal við kjósendur. Eg er hér bund-
inn í báða skó við skyldustörf mín,
ekki sizt i þetta sinn er eg hefi á
hendi kenslu á Háskólanum bæði
fyrir mig sjálfan og að nokkru leyti
fyrir Guðmund Magnússon. Eg hefi
jafnvel sárlitlar tómstundir til ritstarfa
svo mikils er ekki að vænta frá minni
hendi fyrst um sinn. Eg verð að
mestu leyti að láta mér nægja að
vísa til þess sem eg hefi ritað und-
anfarin ár um landsmál i »Norð-
urlandi«, »ísafold«, »Iugólfi«, »Bún-
aðarritinu* og »í afturelding«.
Ajstaða mín til jlokkanna er í stuttu
máli þessi: Eg vil ekki ganga að-
uppkastinu 1908 þó í boði væri,
þaðan afsiður »grútnum« svo nefnda.
Fyrirhyggjulitlar stjórnarbreytingar
eru mér móti skapi og sem stendur
tel eg heppilegast að Hannes Haf-
stein skipi ráðherrasætið, hvað sem
síðar kann að verða. Þyki þetta tví-
ræð afstaða, svara eg þvi, að það eru
flokkarnir sem eru blendnir, en ekki eg.
Hvað stjórnarskrárbuytinguna snert.
ir, þá býst eg við að eg fylgist með
fjöldanum og samþykki hana, þó
ekki komi mér til hugar að nein
gullöld renni upp við þennan kosn-
ingarétt og kjörgengi allra manna.
Þessi alda gengur nú viða yfir lönd
og mun ekki veiða móti henni stað-
ið, hvort sem hún leiðir til góðs eða
ills, en úr því sker reynslan ein.
Eigi að síður sé eg ekki að þing-
ið geti samþykt stjórnarskrárbreyting-
una fyrirvara- og athugasemdalaust.
Því veldur konungsúrskurðurinn frá
20. okt. um ríkisráðssetu ráðherrans.
Með honum er beint stefnt að því
að festa sérmál vor öll til eilífs nóns
í ríkisráðinu danska, og hvenær vér
losnum þaðan er lagt algerlega á vald
danska ríkisþingsins. Þetta stefnir
glögt og ótvirætt í innlimunaráttina
og sannast nú það sem landvarnar
menn spáðu, að auðveldara yrði að
koma ráðherra vorum inn í ríkisráð-
ið en út úr því aftur. Eg tel það
vafasamt að þessi huútur verði nokkru
sinni leystur til fulls fyr en höggið
er á hann.
Nokkuð hefir verið um það rætt
hvort vér ættum að leita frekari samn-
inga við Dani um sjálfstæðismál vort
eða hverfa algerlega frá þeim fyrst
um sinn. Þetta er fánýt deila. Það
eru vissulega engin líkindi til þess
að samið verði um þetta mál næstu
árin, en hvort vér viljum semja, ef
til kæmi, fer eingöngu eftir því, sem
í boði er. Vera mætti, að þeir sem
ekki vilja semja um innlimun væru
fúsir til að semja um fullan skilnað.
Þó það sé bæði skylt og sjálfsagt
að hafa ákveðna stefnu í sjálfstæðis-
máli voru gagnvart Danmörku þá
fer því fjærri að sjálfstæði vort og
þjóðarþrif sé að mestu komin undir
endalausu þrefi eða samningabraski
um þau mál. Enn grúfir nakin fá-
tæktin yfir landinu, enn býr fjöldi
manna í lökum hreysum við lélegan
kost, enn eru sveitir vorar að mestu
í órækt og lítilli hirðingu, býlin strjál
og sjórinn ekki notaður til hálfs.
Ennþá er verzlunin að miklu leyti
útlend og samgöngur við önnur lönd
algerlega í höndum útlendinga. Þetta
þyrfti að breytast til batnaðar ef
mögulegt væri. Að pessu parj pjóð
og ping að vinna; orðin nægja ekki.
— Eg hef þá gömlu trú að af öll-
um vorum velferðarmálum skifti
sveitabúskapur mestu máli, þó gullið
sé stundum fljótieknara úr sjónum.
Eg hef lýst hugmyndum mínum um
þetta mál ú »Noréurl.« 1910 (Rækt-
unarmálið og framtíðarhorfur sveit-
anna) og verð að vísa til þess, sem
þar er sagt.
Hvað fjármál vor snertir skal eg
aðeins geta þessa:
Eg vil ekki auka skatta og álögu-
byrði fram úr því sem hún er nú
Eg hygg hana fullháa. Eg vil, að
þingið sníði sér svo stakk eftir vexti,
að tekjur landsins nægi fyrst um
sinn til allra' útgjalda án þess að
nokkur tekjuhalli komi til mála.
Lardslánum er eg yfirleitt mót-
fallinn og álít að með þeim- getum
vér hæglega snúið oss hengingaról
úr dönsku eða erlendu skuldafé. Þó
geta þau auðvitað verið réttmæt,
sérstaklega til arðsamra fyrirtækja, ef
einsjnn gróði er i aðra hönd.
í stuttu bréfi verða ekkí landsmál
vor rakin og nú brestur mig tima
til þess að skrifa langt mál.
Eg hef aðeins bent á örfá atriði,
sem eg hélt að kjósendum i Húna-
vatnssýslu yrði fyrst fyrir að spyrja
um, í þeirri von að litið sé betra
en ekki neitt.
Með óskum góðs árs og allrar
blessunar fyrir mína gömlu sýslu.
Guðm. Hannesson.
Eftirmæli.
Þann 29. okt. uíðastl., andaftist að
heimili sinu Diíki i Sæmundarhlið, hús-
f reyjan Steinunn Steinsdóttir.
Banamein hennar var krabbamein i lifr-
inni.
Steinnn sái var fædd að Stórn-gröf á
Lsngbolti 29. des. 1857, dóttir Steins
Yigfóssonar góðknnns hónda í Stórn-gröf.
Steinnn sái. ólst npp í Stóru-Gröf hjá
foreidrum sinnm, ásamt sex alsystrum sín-
um, var hún yngst þeirra. Þann 20. febr.
giftist hún Olafi Sæmundssyni, sem nú lif-
ir konu sina, hálfbróðir cand. theol. Giunn-
ars heit. Sæmundssonar. En Sæmuudur,
faðir þeirra bræðra, var hróðir Magnúsar
trésm. Arnasonar i Reykjavik.
Þau Steinunn heit. og Ólafur byrjuðu
búskap í Stóru-Gröf, en flnttust litln
seinna að Dúki, og hjuggu þar siðan.
Þeim hjónum varð auðið tlu barna.
Sjö af þeim lifa — þrir drengir og fjór-
ar stúlkur.
Búskapurinn gekk nokkuð erfitt, lengst
af. Ómegðin var mikil, en efnin líti).
Og jörðin ekki kostamikií, en farBæl.
Það duldist engum sem til þekti, að
Steinun sál. hafði erft mikið af búhneigð
og dugnaði foreldra sinna. Bústarfa gætti
hún með mestu árvekni og kjarki. Lagði
alt í 8Ölurnar fyrir hagsæld heimilisins.
Og aldrei féll henni verk úr hendi.
Þótt efnin væru ekki mikil, var henni
það fagnaðarefni, að geta miðlað mörg-
um þeim, sem þurfandi vorn, því gest-
risni og greiðasemi margskonar sýndu þau
hjón, langt yfir efni fram.
Steinunn heitin var vel greind kona, frið
sýnum, svipurinn hreinn og góðlegur.
Ekki há vexti, en svaraði sér vel. Bjart-
sýn var hún til hinstu stundar, lundhrein
og hataði alla flærð og alt smjaður.
Hins eama krafðist hún og af þeim, sem
hún festi vináttu sina.
Þeim sem þektu Steinunni sál. mun
seint gleymast það starf, sem hún leysti
af hendi. Og henni er það nóg, að vin-
irnir minnast hennar með þeim hlýleik,
og þeirri virðingu, sem hún öðlaðist í
lifinu. Og öðrum ætti það að vera ljóst,
hversu mikil áhyrgð hvilir á herðum
þeirrar konu, sem er önnur aðalstoð und-
ir efnasnauðu, en ómegðarriku heimili, og
bjargar þvi, svo alt fer vei. Heiður sé
þeim sem það gerir, því það starf verð-
ur ekki metið til peninga. Og hörnum
og manni hinnar látnu, mun aldrei gleym-
ast ástriki móðurinnar og hin innilega
hlutdeiid konunnar i heimilisstarfinu.
Þau hafa mikið mist. Og þeim er sökn-
uðurinn sárastur.
M. J.
ReykjaYíkpr-annálI.
Aðkomumenn: Gisli Jónsson verzl. stj.
og Þórður Pálsson læknir Borgarnesi,
frú Anna Klemenzdóttir frá Hesti, Jón
Snæbjörnsson og Björn Ólsen kaupmenn
frá Patreksfirði.
Bæjarstjórnarkosningin. A fundilðnaðar-
mannafélagsins i gærkvóldi var samþykt
að hafa engan sérstakan lista af félags-
ins hálfu við bæjarstjórnarkosníngarnar
með því að einn listi væri kominn fram,
með Pétri Hjaltested úrsmið efstum.
Eimskipafélagsfundurinn var einhver hin
ánægjulegasta samkoma bér i hæ, sem
sögur greina. Ahuginn svo óvenju
mikill. alvara eigi siður.
Aður en stofnfundi lauk sungu allir
fundarmenn með undirspili frikirkju-organ-
istans hr. Jóns Páissonar Eldgamla ísa-
fold. Kvæði ti) Eimskipafélagsins var
liaft yfir og margt annað lýsti þvi, hve
djúptæk er samúðin með þessu mikla
framsóknarspori voru.
Eurðulegt þó hversu fá samfagnaðar-
skeyti báruet ut.an úr sveitum lands.
Þvi var og tekið eftir, að sumir kaup-
manna gátu eigi fengið sig til þess að
veifa fánum stofnfundardaginn, auk Lokk-
nrra danskr.a verzlanna t. d, Geir gamli
Zoega.
Fisksalan. Ingólfur Arnarson hefir ný-
lega sélt afla sinn fyrir 6000 kr.
Messur á morgun: I dómkirkjunni kl.
12 síra Bj. Jónsson, kl. 5 sira Jóh. Þork.
I frikirkjnnni kl, 5 (ekki kl. 12) sira
Ól. Ólafsson
Nielsen skipstjóri á Sterling er mælt,
að verða muni útgerðarstjóri Eimskipafé-
lags Islands. Öllum sem til Nielsens
þekkja, mun lika vel að eiga von á svo
hæfum manni i þá vandasömu stöðu.
Sjálfstæðismenn halda fnnd i kvöld kl. 8‘/2
i húsi K. P. U. M. og ræða bæjarstjórnar-
og alþingis-kosningar. Þangað ættu allir
Sjálfstæðismeno að sækja, sem þvi geta
komið við.
Skipafregnir: Ceres kom hingað á þriðju-
dagsmorgun 20. þ. m. Meðal farþega
voru: Björn Guðmundsson kaupm., Guðm.
Oddgeirsson hankaritari, Chouillou kaupm.
með frú Binni. Ennfremur Helgi Helga-
son tónskáld, er vestur fór til Ameríku
fyrir 12 árum, og Páll Bergsson.
Frá Yestmannaeyjum kom Gnnnar Egil-
son cand.
Sterling kom hingað snemma i morg-
un. Meðal farþega voru : kaupm. Arent
Claessen, Hallgr. Benediktsson og Þórður
Bjarnason, Halldór Gunnlögsson verzlunar-
maður, Bookles útgerðarm. o. fl.
.... —■ ■ ■
Skitifaxi.
Mánaðarrit U. M. F. I. Ritstjóri
Jónas Jónson frá Hriflu. 16 stór-
ar síður í senn. Flytur myndir.
Verð 2 kr.
Með þessu ári er Skinfaxi stækk
aður um helming, verður 16 síður í
stað 8, en kemur einu sinni eins og
áður.
Blaðinu fylgir árlega rit um eitt-
hvert nytsamt og hugðnæmt efni.
Þetta ár verður ritið Þjóðfélagsfræði
eftir Einar prófessor Arnórsson, bók
sem allir þurfa að eiga, og kosta
mundi með bókhlöðuverði bróður
partinn af verði Skinfaxa.
Grenslast hefir verið um álit Skin
faxa hjá nokkurum málsmetandi og
nafnkunnum kaupendum hans, og
birtist það hér til þess, að þeit er
eigi þekkja hann af eigin reynd,
megi fremur ráða í hvert blaðið er.
Guðm. Bjórnsson landlæknir segir:
Eg hefi lesið Skinfaxa að und-
anförnu og álít, að hann sé í þann
veginn að komast í tölu þörfustu
blaða landsins.
Það ungur nemur, gamall temur.
Ef unglingarnir venjast allskonar
samvinnu og samtökum, sér til
gagns og gamans, temja sér fagrar
og hollar íþróttir, leita sér frama í
því, hver um sig, að halda uppi
heiðri ættstöðva sinna, og setja sér
allir það markmið, að meta jafnan
sóma og gagn fósturjarðarinnar fram
yfir sína stundarhagsmnni — ef
æskulýðurinn snýr aliur á þessa leið,
þá á þjóðin gott í vændum, meira
en menn vita, því af> þá mun hán
losast við sína verstu lesti, þau sjálf-
skaparvítin, sem jafnan hafa staðið
henni mest fyrir þrifum.
Að þessu vinnur Skinfaxi. Og
þess vegna á hann skilið að öðlast
vinsældir allra ungra manna.
Þess vil eg geta, að blaðið hefir
ekki æfinlega — að minni hyggju
— verið nógu fjörugt og fjölskrúð-
ugt, oft greinalangt um of og frétta-
fátt, og stundum ekki nógu hóg-
vært og geðstilt.
En alt stendur til bóta. Og nú
á að stækka Skinfaxa, til þess að
hann kornist betur yfir það, sem
hann ætlar sér — að glæða alls-
konar hollan unglingafélagsskap, efla
hverskonar íþróttir og ireysta trygða-
böndin milli æskulýðsins og ætt-
jarðarinnar, svo að þess sjáist engin
hörmuleg merki á komandi tímum,
að þjóðin hafi bara matarást á land-
inu, og flýi strax úr landi, ef eitt-
hvað ber út af og alt gengur ekki
að óskum.
Þetta eru mín kynni af Skinfaxa,
og þess vegna óska eg honum gæfu
og gengis.
Guðmundur prófessor Hannesson:
Mér líkar Skinfaxi ágætlega, þó
ekki sé eg samdómn öllu sem í hon-
um stendur. Sitt litla rúm notar
hann ef til vill betur en nokkurt
hinna blaðanna til þess að flytja ný-
mæli, vekja og fræða.
Dr. phil. Guðm. Finnbogason:
Eg les Skinfaxa altaf með ánægju,
og það eins þegar eg er honum að
einhverju leyti ósammála, því að hann
fer sinna ferða, er vel ritaður og
kemur viða við. Og hann er bjart-
sýnn og heilbrigður.
Skinfaxi vill ná sem mestri út-
breiðslu, enda þarf þess með — jafn-
ódýr! í þvi skyni heitir hann 5
verðlaunum þeim útsölumönnum,
er útvega honum flesta nýja kaup-
endur á árinu. Verðlaunin verða af-
hent í Reykjavik lokadag leikmótsins
(24. júní), og bundin því skilyrði, að
útsölumaður sé þá skuldlaus. Verð-
launin eru þessi:
1. íslendingasögurnar, í bandi.
2. Málverk eftir J. Kjarval, í ramma
3. Mynd Ásgríms af Öræfajöki, í
ramma.
4. Hrannir, í skrautbandi.
5. Hnfblik í skrautbandi.
Útsölumenn allir fá 40 aura (20%)
af hverju eintaki sem þeir selja.
Utanáskrift blaðsins:
S k i n f a x i Reykjavik.
Skinfaxi verður ekki verri hér eftir
en hingað til.
F. h. útgefanda..
Guðbrandur Magnússon.
Olíuíatnaöur,
áreiðanlega sá vandaðasti, sem völ
er á, allar tegundir, þar á meðal
„trawlara“-stiikkar,
í verzlun
G. Zoega.
Þakkarorö. Innilegar hjartans
þakkir votta eg hér með öllum þeim,
sem sýndu dóttur minni, Guðnýju,
hluttekningu og styrktu hatta með
fégjöfum, er hún síðastliðið sumar
snögglega misti heilsuna og varð að
leita sér læknittga i sjúkrahúsi í
Reykjavik. Vtl eg einkum beina
þessu þakklæti mínu til allra þeirra
er þá voru i Svendborg í Hafnar-
firði, bæði yfirmanna og verkafólks,
svo og til tveggja stúlkna hér í
hreppi, er gengust fyrir samskotum
handa dóttur minni. — Þessum og
öllum öðrnm, er styrkt hafa okkur
mæðgurnar i þessum raunnum okk-
ar, bið eg góðan guð að launa veitt-
ar velgjörðir þeirra.
Lambhúsum í Garði, 20. jan. 1914.
Agnes Eiríksdóttir.
Skófatnaður
fandaður og fallegur,
ódýrastur í skóverzlun
Jóns Stefánssonar
Laugaveg 14
öllum þeim, sem glöddu
okkur og studdu á síðastliðnu ári,
ekki sízt Kvenjélagi Lágajellssóknar,
sem auk annars gjörði barnahópnum
okkar jólin enn bjartari og áttægju-
legri en ella hefði orðið, flytjum
við okkar hugheilasta þakklæti.
Veglyndi velgjörðatmanna okkar
er eitt dæmi þess, að kristilegur
kæileiksandi er ekki með öllu horfinn
þjóð vorri. Láti hann sem víðast
á sér bera1
Helgadal, 19. jan. 1914.
tngibjórg Jónsdóttir. Jón Jónsson.
Ensk vaðmáí
oq cfömukfæði
er áreiðanlega bezt að kaupa
í verzlun
G. Zoega.
Jörð til sölu.
Til kaups og ábúðarar fæst i
næstu fardögum (1914) jörðin Hólar
í Biskupstungum. í meðal ári er hey-
skapur á jörð þessari 140 hestar af
töðu og 300 hestar af kjarngóðu
útheyi, mestmegnis í nánd við túnið.
2 innstæðukúgildi fylgja jörðinni.
Jarðarhús í fremur góðu standi. Um
kaup ber að semja við Þórð Þórðar-
son í Hraunkoti í Hafnarfirði fyrir lok
marzmánaðar n. k.
Þessar prentvillur hafa slæðst
inn í grein Gunnl. Kristmundssonar
»Um sandfok«: Á bls. 13. í 3.
dálki, 7. línu að ofan: Uppblásnir
eða fyrir uppblásin, og í 5. dálki 28.
1. a. o. reykmökkur í stað ry/miökkur.
Vatnsstígvél & Sjóstígvél
kosta kr. 18.50.
Trollarastígvél 35.00.
Efni og vinna vönduð.
Jón Stefánsson, Laugaveg 14.
Stubbasirts
fyrirtaks fallegt og vænt,
sokkar, vetliugar, naukin
og- moleskinn í verkmannaföt
%
og margt fleira nýtt
í verzlun
«§?. Zo'ácjG.
Steinbítsriklingur er í óskil-
um hjá lögreglunni. Þorv. Björns-
son yfirlögregluþjónn.