Ísafold - 05.09.1914, Page 3
IS AFO LD
269
Taurullurnar
Erí. símfregnir.
Fréttastofa brezku stjórnarinnar tilkynnir að 7 þýzkir tundur-
spillar og tundurbátar hafi komið til Kiel skemdir.
Það er gert ráð fyrir að öðrum hafi verið sökt í nánd við
handhægu
2 gerðir hvor annari betri. Beztar
og ódýrastar i
verzl. B. H. Bjarnason.
Skeyta-hjal. í öndverðura ófriðn-
um var tíðrætt um það meðal ýmsra
málsmetandi manna hór í bæ, aS reyna
að fá ítarlegar fróttir af ófriðnum frá
hinni heimsfrægu fróttastofu í London,
Keuters Bureau. Var þá fyrir-
hugað, aS prívatmenn nokkrir, blöðin
og stjórnin bæru sameiginlega kostn-
aðinn. Ætlaði ritstjóri ísafoldar að
gangast fyrir þessu og orðfærði þetta
bæði við stjórnina og ritstjóra Lög-
róttu og Vísis. En ýms vandkvæði
voru þá á að koma þessu í kring
og stóð málið svo, er ritstj. ísafoldar
fór í langferð. Aftur brutu ýmsir
menn hór í bænum upp á því við rit-
stjóra Morgunblaösins nokkru síðar, að
stofna skeytafólag í sambandi við íaaf.
og Morgunbl. og var sótt um styrk, 600
kr. hjá stjórnarráðinu til skeytasend-
inga fyrir þetta fólag — og þær veitt-
ar.
Nokkrum dögnm síðar báru ritstjór-
ar Lögróttu og Vísis sig upp við
ráöherra; vildu þeir einnig fá
Keuterskeytin. Um þaS leyti kom
ritstj. ísafoldar heim og tjáði ráðherra
honum, að hann hefði ætíð ætlast til
þess, að 600 kr. styrkur stjórnarráðs-
ins næði til allra fróttablaSanna. Lof-
aði þá ritstj. ísaf., af því hann hafði
upphafl. verið í samningum þessum,
að reyna að koma á samkomulagi út
af þessu. En það kom brátt í ljós,
að samvinna var óhugsanleg við dagbl.
Vísi frá hálfu Morgunbl., svo mikið
hafði kveðið að brauðníði og margs-
konar óknyttum í Vísi, aðall. eftir ritstj.
skiftin, sem þar urðu um mánaðamótin.
Lét ritstj. ísaf. því uppi við ráðherra,
að heppilegra mundi að skifta styrk
stjórnarráðsina milli Reutersskeytafó-
lagsins og hins skeytafólagsins, er í
sambandi stendur við Vísi og fær skeyti
frá fróttastofu einni í London, er heit-
ir Central News.
Þetta gerði og ráðlierra í fyrradag
Og mætti þá ætla, að þeir sem munaði
þessi ósköp í JandssjóSsstyrkinn, hefðu
látið sór vel líka og málinu þar með
lokiö.
En eftir á spinnur hinn langþunni
náungi í Vísi meiri háttar naglaskap-
arvef um skeytalaumuspil af
hendi ísaf. og Morgunbl., s k e y t a -
prang landsjóðs o. s. frv., öfga-
slúður út í ioftið. Hugsi hann sór
að iengja lífdaga Vísis með slíku hátta-
lagi, skjátlast honum illa. Kollsigl-
ingin kemur fyr en varir, ef líku hátta-
iagi heldur áfram.
Ánnars ætlar ísafold ekki að fara
að deila neitt — nú fremur en áður
— við þenna Vísis-náunga; svo hjart-
anlega er henni sama hvað hann seglr
og skrifar. Að eins er það leitt, vegna
góðra vandamanna hans, ef framhaldið
á ritmenskubraut hans verður það, er
byrjunartiltektir hans spá um.
Prá Noröuráifu-óíriðnum.
London 2. sept. kl. 6 síðd.
Engar fregnir eru enn komuar um úrslit stóror-
ustunnar í Frabklandi, en r»jódverjar gjöra sitt ít-
rasta til þess að eins fari og við S e d a n, þennan
sama dag tyrir 44 árum.
Enu sem komið er virðist Þjóðverjum hafa mis-
tekist að komast fram lijá vinstra fylkingararmi
bandamanna, eða brjótast geguum fi*amfylkingar
þeirra.
Zeppelins loftskip flaug aftur yfir Antwerpeu kl.
3 í morgun, kastaði sprengibúlum og olli miklum
skemdum á 10 húsum. Setuliðið tók á móti því með
dynjandi fallbyssuskothríð.
Rússar tilkynna að þeir fari sigri hrósandi til
Lemberg. Þeir unnu mikinn sigur við Guelalipa.
í»ar höfðu Austurríkismenn tekið sér stöðu, sem var
álitin ótakaudi.
Rússar hafa grafið 4800 Austurríkismenn.
R e u t e r.
London 3. sept. kl. 8. siðd.
Hugir allra manna beinast nú að Parísarborg.
Eftir einni fregn að dæma eiga Þjóðverjar að cins 30
mílur brezkar ettir til höfuðborgarinnar.
Sagt er að mikill fjöldi fólks flýi borgina. Halda
flestir þeirra til Bordeaux, og þangað er horfinn
Poincaré forseti og ráðuneyti hans. Stiórnin segii*
að þetta sé hyggilegast til þess að geta stjórnað öllu
landinu.
I»að er eigi búist við að Þjóðverjar geri áhlaup á
París þegar í stað.
I»að er tilkynt að orustan í Galiciu, milli Austur-
rikismanna og Rússa, hafi staðið í 7 daga, og urðu
úrslit hennar þau, að 200 þús. Austurríkismenn voru
reknir á flótta fyrir framan Lemberg. Rússar tóku
þar 150 fallbyssur af Austurríkismönnum.
Rússar tilkynna að setuliðið í Königsberg hafi
gert útrás, en hún mistekist.
Rússar eru komnir langt iun í Austur-Prússland
og hafa eyðilagt samgöngufæri fyrir Pjóðverjum.
Bretar auka her sinn stöðugt.
Kanadamenn hafa 100 þús. manns undir vopnum,
sem þeir ætla að senda til Bretlands.
Mælt er að Lichnowsky, sendiberra Pjóðverja i
London, hafi fallið í ónáð hjá keisaranum vegna þess
að hann hafi talið honum trú um að England mundi
ekki grípa til vopna.
R e u t e r.
HlA&ÍPÍ Edinborg 4._
fvgÍKonsúl [Breta, rjhr. tAsg. Sigurðssym kaupm., barst 1 gær svo-
ilióðándiHéinkaikeyti: . Hf-i'
■*- -- . jí,______________—^saaLmBamaaastaa.
- - .. v ■ v- . ■ .. iiÉiúinatffftfci ði *
llíL Þjóðverjar nálgast Parisarborg|
Engmijúrslitaorusta heflrg enn orðið. Það er álitið^að undan-
aldið sé í samræmi við fyrirætlanir bandamanna.j
Þjóðverjar hafa mist afarmargaAnenn. Bandamenn|einnig.:
Rússar hafa unnið stóra sigra yfir Austurríkismönnum.jj Þaðan
tá búast við stórtíðindum innan skams.
Floti Þjóðverja er aðgerðarlaus.
Sænskar ófriðarfréttir.
Sænsk blöð frá 26. og 27. ágúst
segja svo frá úrslitum 4 daga orust-
tmnar á Frakklandi, að Þjóðverjar
hafi unnið algerðan sigur á banda-
tnannahernum, rofið fylkingarnar, og
standi þeim opin leiðin til Paris —
eftir orustqna.
London 4. sept. kl. 6 síðd.
Rússar náðu Lemberg eftir 7 daga orustu. Þar er sagt að þeir
hafi tekið 70 þús. fanga og 200 fallbyssur.
Það virðist svo sem lið bandamanna hafi ekki síðan á mið-
vikudag, háð ourstur við óvininina, sem er sagt að séu með herinn í
nánd við Compiegne og Senlis (skamt frá París).
Þjóðverjar skutu á Malines í tvær klukkustundir á miðviku-
daginn. Mikill hluti dómkirkjunnar eyðilagðist, en frægum mál-
verkum var bjargað.
Alt mannfall Breta síðan ófriðurinn hófst er 10,345 mannB, þar
með taldir þeir sem vanta.
Kielarskurðinn.
Asquith ávarpaði mikinn fjölda borgara í Guild Hall og fekk
mikilfenglegar viðtökur. Hann lofaði mjög hina fögru föðurlands-
ást nýlendumanna. Flanri sagði viðvíkjandi aðstöðu bandaheranna,
að hvert sem litið væri, þá væri fullkomin ástæða til að vera
stæltur og öruggur.
Reuter.
Frakkneska spákonan
um stríðið.
Aður hefir verið sagt af hinni
forspáu frakknesku konu, frú Thébes,
hér í blaðinu. Hún hefir árlega
gefið út almanak hin síðari ár og
sagt þar fyrir ýmsa atburði á kom-
andi ári og þótt ganga mjög eftir
því, sem kerling hefir spáð.
í almanaki því, er sú gamla gaf
út í desember síðastliðnum, þylur hún
margt um atburði ársins 1914, sem
sumpart er komið fram og sumpart
virðist vera að koma fram.
M. a. spáir frú Théber:
Eftir morgunroða-árið 1913 kem-
ur eldinga- og þrumuárið, sem kunna
mun frá að segja mörgum hetju-
dáðum.
Arið 1914 verður fagurt sólskins-
ár, heitt ár, vorið gott og meira
jafnvægi milli árstíða en verið hefir
undanfarin ár. Og fegurst verður
árið um það leyti sem hörmulegustu
atburðirnir gerasj.
í Parisarborg verður sakamál haf-
ið, er valda mun miklum æsingum
og jafnvel götuóeirðum.
I Frakklandi verða voða neðan-
jarðarbyltingar sem París mun stafa
mest tjón af.
Um Þýzkaland segir spákonan:
Um forlög Þýzkalands er mjög
ískyggilegt útlit. Þar er alt í hættu
og á hverfanda hveli. Eg segi það
og endurtek, að Þýzkaland er það
landið, sem hættast er við bylting-
um og breytingum á allan hátt.
Keisarinn cr sá maðurinn, sem
örvar illra forlaqa munu mest beinast
að. Örninn, sem lyftir vœnqjum sín-
um á hjálmi hans, er eiqi neinn si%-
urörn.
Einkum virðist mér ólánið yfir
Suður-Þjóðverjum. Þar verður mann-
tjónið, sem af stríðinu leiðir, mest.
Austurriki spáir hún öllu illu:
»Óhamingjusama Austurríki! Eitt
sinn virtist lánið blasa við þér, en
nú er eitthvað annað uppi á ten-
ingnum. Þú hefðir átt að eiga meira
af mannúð og réttlæti og minna af
ágirnd. — Sorgaratburður sá í keis-
araættinni, sem eg hefi margsagt
fyrir, virðist nú á döfinni«.
Um Belqlu segir spákonan m. a.
að alt virðist benda til þess að dag-
ar þess ríkis sé taldir.
Enqlandi spáir hún miklum vand-
ræðum, er stafi af ófriði innan og
utanlands.
Hún heldur að Rússum og Aust-
urrikismönnum muni ef til vill lenda
saman út af Balkanatburðunum og
þar verði hinn ferlegasti hildarleikur
háður, svo sé þjóðernishatrið rikt
þar í milli. Spáir hún þvi, að
Germanir verði undir i þeirri viður-
eign.
Það mætti halda áfram upp að
telja spádóma þessarar konu, því að
hún skamtar öllum ríkjum heims
eitthvað, en hér skal staðar numið
að þessu sinni. Getur hver og einn
borið saman hina raunverulegu at-
burði, sem þegar eru orðnir og spá-
dómana — og sést þá, að eigi er
forsagnarandinn alveg dauður vor á
meðal.
ReykjaYikttr-aBPálL
Landakotsskólinn var settur 1.
sept. Nemendur þar eru 110.
Messur: í fríkirkjunni á morgnn
kl. 12 síra Jóh. Þork., kl. 5síraBj.J.
Haraldnr prófessor Níelsson fór
í morgun í ferðalag upp á Myrar og
verður aS heiman þangað til um miðj-
an mánuðinn. Hann prédikar því
ekki í fríkirkjunni á morgun.
Njörðnr hefir nýlega selt afla sinn
í Fleetwood fyrir 590 sterlingspund
eða nál. 10600 kr.
Skipafregn:
Sterling fór utan (til Danmerk-
ur) í fyrrakvöld, farþegalaus og flutn-
ingslítill.
C e r e s fór á miðvikudagskvöldið til
Danmerkur.
Bifreiðarnar eru erm á ferðinni
þrátt fyrir 1/tt hagstæða veðuráttu.
Sveinn Oddsson er eigi lengur í þjón-
ustu bifreiðafélagsins, en hefir sjálfur
2 bifreiðar, aðra flutningsbifreið, sem
fer austur tvisvar í viku mánudag og
föstudag, en er ella jafnan til taks til
vöruflutninga, ef um er beðið.
Veðráttan. Frá því fyrir mánaða-
mót hefir verið látlaus rigning. í
sveitum verður ástandið voðalegt í
haust ef eigi kemur bráður bati, helm-
ingur heys enn úti.
....... *>ó<»
Skúli fógeti.
Skipið, sem bjargaði skipverjunum
af Skúla fógeta, var botnvöpungur
frá North Shields, sem heitir Lottie
Least.
Tundurduflið lenti á bóg skipsins
og kom þegar gat á búkinn og inn
féll sjór. í Iwetaklefanum sváfu 6
manns. Tveim þeirra gátu skipstjór-
inn (Kr. Kristjánsson) og stýrimaður-
inn (Bergur Pálsson) bjargað, dregið
þá upp úr klefanum. Hinir hafa
annaðhvort druknað eða dáið af
völdum tundursprengingarinnar.
Lampar
og
Lampaáhöld
er að vanda langódýrast í
verzlun
B. H. Bjarnason.