Ísafold - 05.09.1914, Síða 4
270
I SAFOLD
Myndir frá öfriðnum.
Fáein orð
til hr. yfirdómslögm. Kr. Linnets.
Hr. yfirdómslögtnanninum virðist
hafa sárnað við mig ofurlítið fyrir
það, að eg í niðurlagi greinar minn-
ar til síra Matth. var að blaka eitt-
livað við borðdansinum. Þetta var
auðvitað óþarfi af mér, enda vegur
nú hr. Linnet að mér í langri grein
í síðustu ísafold. Eg get verið mun
stuttorðari.
Hr. Linnet bregður mér um, að
eg hafi lesið Myers illa og bendir
sérstaklega á eina sögu, er hann líkt
og Myers telur því nær óræka sönn-
un fyrir gildi borðdansins. En eg
hygg, að hr. Linnet hafi ekki lesið
sögu þessa ofan í kjölinn. Lítum
samt á hana. Hana er að finna í
n. bindi, bls. 183—85.
Sagan er í stuttu máli þessi:
Benja nokkur setur blekmerki báð-
um megin á múrstein, brýtur hann
1 tvent, fær systur sinni annan mol-
ann, en segist sjálfur ætla að fela
hinn; svo skuli hann vísa henni á
hann, ef hann geti, þegar hann sé
dauður. Benja deyr; svo líða nokkr-
ir mánuðir þannig, að móðir hans
og systir verða einkis vísari; en þá
fara þær að láta borð dansa. Er
þá eins og Benja komi í borðfótinn
og bangi til þeirra: »Þið munuð
finna múrsteinsmolann í smástof-
unni undir tóma hawknum. Benja«.
Svona er sagan. En hvaða sönn-
unargildi hefir hún nú? Lítum á
veilurnar i henni. Þær eru margar
og þessar helztar:
1., Sagan er ekki sögð fyrr en
2j árurn eða meira eftir atburðinn,
sbr. orð systurinnar, frú Finney:
ífyrir hér um bil tuttugu og fimm
árum«. En margt getur skekst í
minni manns á skemri tíma.
2. Frú Finney er ein til frásagn-
ar um þetta, sbr. orð hennar:
»Mamma er ekki á lifi; eg er sú
eina af fjölskyldunni, sem erálifi«.
3. Frú Finney er sjálf trúaður
spiritisti og getur ekki hugsað sér
aðra skýringu en andatrúargátuna,
sbr. orð hennar: »Okkur var það
sannleikur, að andar geti alt og setji
sig í raun og veru í samband við
oss, óg ekkert nema áhrif og mátt-
ur Benja gat gefið oss þessa sönnun«.
Svo mörg eru þessi orð. En
mundi nú hr. yfirdómslögm. t. d.
þora að byggja dóm á framburði
eins manns um atvik, sem skeð hefir
fyrir 25 árum, og telja skýringu
hans á atburðinum óræka, þótt önn-
ur skýring væri hugsanleg og jafn-
vel liklegri? Líklegasta skýringin í
þessu falli er sú, að Benja hafi í lij-
anda lífi, þegar hann fól steininn,
hugsað svo ríkt til systur sinnar, að
þetta hafi pá, á þvi augnabliki,
smogið inn í undirvitund hennar og
geymst þar, þangað til hún fór að
knýja það fram með borðhreyfing-
unum.
Svona er þá þessu sönnunargagni
farið, og sama má segja um bréfið.
Öðrum dylgjum hr. Linnets þarf eg
naumast að svara, t. d. þeirri, að eg
hafi lika misskilið Flournoy. Rit-
staður sá, er hr. Linnet vitnar til,
er slitinn út úr samhengi, og á öðr-
um stöðum i bókinni (í amerísku
þýð. t. d. á bls. 193 o. v.) gefur
Fl. berlega i skyn, að sálarlíf miðl-
anna splundrist oft og einatt; en
öll bókin í heild sinni ber þess ljóst
vitni, að Fl. álítur miðlana ekki segja
annað oftast nær en rugl og mark-
leysur. Eg hygg þvi, að eg hafi
lesið þá bók betur en hr. Linnet.
Fleira í skrifi yfirdómslögm. get eg
ekki verið að eltast við.
Aqúst Bjarnason
"i—r— 1 - 11
Albert Belqakonunour.
Kitchener lávaröur
hinn nýi hermálaráðherra Breta.
Sir fohn French
yfirforingi brezka hersins áFrakklandi.
Stóraðmíráll von Tirpitz
flotamálaráðherra Þjóðverja.
j ^
Jellicoe aðmíráll yfirforingi brezka flotans. V. Ernmich yfirforingi Þjóðverjahers á Frakklandi.
GARLSBERG ðLGERDARHÚS mæla með: Carlsberg M®rk skattefri alkoholfátækt, ekstraktríkt, Ijúflengt, endingargott. Csrlsbérg skattefri Porter ekstraktríkastur allra Portertegunda. Carlsberg gosdrykkjum. áreiðanlega beztu gosdrykkirnir.
Þakpappavei JUL Herkúles-þakpappi Haldgó&ir þakpappalitir allsk. Ála rksmiðjan Do . ZACHARIAS & C Stofnað 1896. * Tals.: Miðst. 6617. gning með áby rtheasminde Triumph-þakpappi Tjörnlaus — lyktarlaus. rsrð.
Gerisf haupendur ísafolaar nú þegar
Dömu-
Herra-
Telpu-
Drengja-
Regnkápur
| stórt úrval, nýjasta tízka. |
I Brauns verzl. Rvlk u
□i
Aðalstræti 9.
IIQQI!
Hinar sameinuðu ulgerðir:
cffirone JEagarol
cJbrona <3?ilsoner
cjfírona c3?orÍer
Cæporí ^DoBGeítol
Qantraí cMalíaætraRt
eru beztu skattfriu ultegundirnar.
----Fást nú í hverri fjölbirgöaverzlun. ——
3
Dánarminning\
Hinn 16. ágúst í sumar andaðist
á sjúkrahúsinu á Akureyri yngis-
maður Guðjón Þorsteinsson, háseti
á botnvörpungnum »Snorra goða«.
Guðjón sáh var fæddur 21. maí
1893 og voru foreldrar hans Þor-
steinn Þórðarson og Margrét Sig-
urðardóttir hjón á Frostastöðum hér
í bænum, og er Þorsteinn dáinn
fyrir nærfelt 10 átum.
Það var mannskaði mikill að þess-
um unga manni, því hann var manns-
efni hið mesta; lauk hann í vor
fullnaðarprófi hinu meira á stýri-
mannaskólanum með loflegum vitnis-
burði. Öllum, sem þektu þenna
unga mann, þótti vænt um hann;
enda hefði hann orðið sér og sínum
til gagns og sóma, hefði lífið orðið
lengra. Hann lætur eftir aldraða og
mædda móður og eina systur; var
þeim, sem eðlilegt er, sár harmur
í andláti hans.
Það er þjóðarskaði í andláti hvers
ungs og efnilegs manns, og með
þessum unga manni, sem var hvers
manns hugljúfi, dóu margar fagrar
vonir. Það er ánægjulegt að sjá
unga menn taka snemma þann
ásetning, að verða nýtir menn, og
svo var um þenna, og það er sár
sjónarsviftir, þegar þeir deyja í æsku-
blómanum. Vér minnumst allir, sem
þektum, þessa unga góða manns
með virðingu og trega.
Vinir hins látna.
Tapazt hefir jarpur hestur
5 vetra. Mark: fjöður aftan vinstra,
merktur A á vinstri lend. Skilist að
Kallaðarnesi eða til Asgrims Eyþórs-
sonar, Reykjavík.
Góð kýr, sem bera á viku fyrir
vetur, er nú þegar til sölu. Semja
má við
Sigurð Sæmundsson, Hvassahrauni.
Istetar Éríir.
Eg undirritaður kaupi flestar ís-
lenzkar afurðir, svo sem: smjör,
tólg, kæfn, hangik,jöt, sauð-
skinn, leður, trosfisk o. fl. —
Þeim, sem eitthvað kynnu að skifta
við mig, mun eg veita þær upplýs-
ingar, er eg get í té látið um það,
hvar þeir geti fengið ýmsar vörur
vandaðastar og ódýrastar.
Þorsteinn Þorgilsson.
Kárastíg 14.
H.Y. Christensen & Co.
Kjöbenhavn,
Metal-og Glaskroner etc.
for
Electricitet. og Gas.
Störste danske Fabrik og Lager
HJÓLHESTAR
beztir og ódýratir hjá
Bergi Einarssyni Vitastíg 7 B
Nærsveitamenn
eru vinsamlega beðnir að vitja
Isafoldar í afgreiðsluna, þegar
þeir eru á ferð í bænum, einkum
Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem
flytja mjólk til bæjarins daglega.
Áfgreiðslan opin á hverjum virkum
degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 á
kvöldin.
Minningarritið
um Björn Jónsson, fyrra bindi með
mörgum myndum, er komið út og
fæst í bókaverzlunum. Verð: 1.50-