Ísafold - 23.09.1914, Side 1
| iiiiiiniiiniiimiiiiiilniiinitininniiinimininii
Kemur út tvisvar
í viku. Yerð árg.
4kr., erlendisökr.
eða dollar; borg-
ist fyrir miðjan júll
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
ISAFOLD
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjóri: Ólafuí Björnsson.
Talsimi 48.
Uppsögn (skrifl.)
bundin vlð áramót,
er óglld nema kom-
in só til útgefanda
fyrlr 1. oktbi. og
só kaupandi skuld-
laus við blaðið.
XLI. árg.
Reykjavik, miðvikudaginn 23. september 1914.
73. tölublað
Erí. símfregnir.
Frá Norðurálfu-ófriðnum.
London 19. sept. kl. 6 síðd.
Engin úrslit hafa enn orðið i orustunni við Aisnefljótið.
Bandamenn hafa þó haldið áfram að sækja fram á vinstra
iylkingararm óvinanna og hafa rekið af höndum sér mörg áköf
mót-áhlaup.
Miðfylking óvinanna, frá Rheims til Argonne, hefirjbúið um
sig ramlega þar sem góð er aðstaða og gerir eigi annað en verja
aig. —
Einnig gerir hægri fylkingararmur Þjóðverja eigi annað en
verjast, nálægt landamærunum.
Rússar tilkynna að framsókn Þjóðverja á framfylking Rússa í
Austur-Prússlandi, hafi verið algerlega stöðvuð á fimtudaginn af
Rennenkampf yfirliðsforingja.
Þjóðverjar hörfa undan á ýmsum stöðum.
Rússar veita enn Austurríkismönnum i Galiciu eftirför, og hafa
tekið margar fallbyssur og 5000 fanga í nánd við Jaworow.
Brezkur blaðamaður tilkynnir að óhugur mikill sé í mönnum
i Vínarborg, en fjöldi sé þó ennþá, sem trúi því fastlega að Þjóð-
verjar muni að lokum koma Austurríkismönnum til hjálpar.
Símskeyti frá Rómaborg segir að uppþot mikið hafi orðið í
Vínarborg. Grjóti var kastað á glugga hermála- og utanríkisráðu-
neytisins. Reuter.
Jaworow er bær í vestanverðri Galiciu og hefir n þús. íbúa.
London 20. sept. kl. 6. síðd.
Orustan við Aisne gevsar enn og bandamönnum veitir betur.
Vinstri fylkingararmur bandamanna hefir tekið marga fanga.
Bandamenn vinna á miðfylkingu óvinanna.
Her þýzka krónprinsins hægra megin heldur stöðugt áfram
undanhaldi sínu.
Það lítur út fyrir að Þjóðverjar séu að undirbúa að halda
aftur til Ardennes, þar sem víggirtar aðstöður hafa verið gerðar.
Rússar halda áfram að vinna á allsstaðar. Þeir hafa stöðvað
framgang Þjóðverja í Austur-Prússlandi. Hafa Þjóðverjar hörfað
undan á ýmsum stöðum.
Með ágætri hernaðarlist hefir Rússum tekist að umkringja leif-
arnar af Austurríska hernum og Rússar standa nú gegn aftur og
hliðarfylkingum Austurríkismanna.
Þeir virðast hafa afskorið Austurrikismenn frá sambandi við
hin mjög áriðandi virki Przemysl og Krakau.
R e u t e r.
London 21. sept. kl. 6 siðd.
Þýzka beitiskipið Kðnigsberg réðist á gamalt brezkt beiti-
skip, Pegasus, þ. 20. sept. við Zanzibar, á meðan verið var að
gera við vélar skipsins.
Fallbyssurnar á Pegasus höfðu ekki við hinum nýju vopnum
Königsbergs, og varð hann því algerlega óvígfær. 25 menn af
skipshöfninni féllu og 80 særðust.
Königsberg hélt eftir það suður á bóginn.
Emden, þýzkt beitiskip, tók 6 brezk skip í BengalsflÖa 10.—14.
þ. m., sökti 5 þeirra en sendi það sjötta til Calcutta með skipverja
af hinum.
Carmania, skip Cunardlínunnar, sem nú er notað sem aðstoðar-
beitiskip, sökti vopnuðu þýzku kaupfari þ. 14. þ. m. við austur-
strönd Suður-Ameriku. Halda menn að það hafi verið skipið Kap
Trafalgar eða Berlín.
Orusta stóð milli skipanna í 105 mínútur.
Þeim, sem af komust, var bjargað af kolaskipi.
Engin breyting hefir orðið á aðstöðu heranna í Frakklandi.
R e u t e r.
Beitiskipið Könitrsber$ var fullsmíðað 12.des.1905, oger 3400 smálestir
að stærð; hraði skipsins er 24 sjómílur á klukkustund. Skipverjar eru 322.
Begasus .var bygt 1897, er 2200 smálestir að stærð og hefir 224
hermenn innanborðs.
Emden var bygt 1908, er 3650 smálestir að stærð og hraði skipsins
er 24 sjómilur á kl.stundu. Skipshöfnin er 361 manns.
Kaupfarið Carmania er bygt 1905, er 19.500 smálestir að stærð.
Hraði skipsins er 19,5 sjómílur. Carmania er vanaiega í fóksflutnings-
ferðum milli Liverpool og New York.
'
■ - ■ ....
t
■ ■ ■■ . • i
‘
%
Tjaidbúoarkitkja í Winnipeg.
Þatta er vafalaust veglegasta guðshús íslenzkt. Kirkjan er 93 fet á lengd, 31 fet á breidd og
turnarnir 76 feta háir. Kirkjan var vígð þann 2. ágúst af prestunum síra Fr. J. Bergmann, Jóni
prófessori Helgasyni og síra Magnúsi Jónssyni. — Frá ferðalagi síra J. H. vestur verður sagt í næsta
blaði og skýrt nánara frá sögu Tjaldbúðarkirkju í því sambandi.
London 22. sept. kl. 5.25 síðd.
Þuð ei' opinberlega tilkynt að þýzkir köfunarbátar hafi sökt
þremur brezkum beitiskipum í Norðursjónum. Voru það skipin:
Abukir, Hogue og Cressy.
Miklum hluta skipshafnanna var bjargað af öðrum skipum.
Bandamenn höggva sér smámsaman braut inn á varnarstöðvar
Þjóðverja í Frakklandi, gegn dynjandi skothríð þýzka stórskota-
liðsins; hafa ruðst inn á svæðið hjá Mashy, — en þar eru margir
skurðir, sem hindra framgang fótgönguliðs bandamanna.
Þeir bíða mikið tjón við hvern skotgarð, sem þeir taka.
Ennfremur hefir yzti herarmur Þjóðverja haldið lítið eitt undan.
Það, að Þjóðverjar hafa yflrgefið Peronne en tekið aftur Douai,
bendir á það, að þeir óttist að verða umkringdir að vestan.
R e u t e r.
Brezku beitiskipin sem Þjóðverjar hafa sökt, voru öll af sömu stærð,
12200 smálestir og skipshafnirnar 755 manns á hverju þeirra. Cressy
var smíðað árið 1899, en hin bæði aldamótaárið. Abukir hafði 31 fall-
byssu, 2 tundurskeytabyssur og skreið 21.8 sjómílu á klukkustund.
Cressy og Hogue höfðu 29 fallbyssur hvert, 2 tundurskeytabyssur og
skriðu 22.5 og 22,1 sjómílu á klukkustund.
Peronne er bær og smákastali á Somme-héraðinu í norðaustur hluta
Frakklands. Stendur við ána Somme. Þar er járnbrautarstöð, fögur
kirkja og höll frá 16. öld. íbúar 4600.
Duai er bær i Frakklandi, norðan við ána Scarpe, umgirtur af göml-
um múr. Þar eru garðar stórir og margar og merkar byggingar. Sér-
staklega má nefna ráðhúsið, sem reist var á 15. öld i gotneskum stíl og
síðan endurbætt 1857—68 og þá gerður á það 40 stikna hár klukkuturn.
Þreföld vigjaröð var áður umhverfis bæinn, en á síðari árum hafa þau
verið lögð niður. Ibúar eru 27 þús. og reka mest iðnað og verzlun.
Þar er háskóli og stóvskotaliðsskóli, mörg merkileg söfn o. s. frv.
Skrifstofa
Eimskipafélags íslands.
Landsbankanum (uppt).
Opin daglega kl. 5—7.
Talsími 409.
Hjörtur Hjartarson yfirdóms-
lögmaður, Bókhl.stíg 10. Simi 28.
Venjul. heima 12xf2~2 og 4—51 /2.
Alþýfmfél.bóhRsafn Templaras. 3 kl. 7—9
Borgarstjóraskrifatofan opin virka daga H -8
og S—7
Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 1—7
Bœjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og ö
tslandsbanki opinn 10—2"/s og 6>/i—7.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8Ard,—10 libd.
Alm. fundir fid. og sd. 8*/« siðd.
Landakotskirkja. Oubsþj, 9 og 6 á helgum
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 11-2*/«, 6*/«—6*/«. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Útlán 1—8
Landsbúnaöarfélagsskrifstofan opin frá 13—2
Landsféhirðir 10—2 og 6—6.
Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2
Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Náttúrngripasafnib opib 1 */*—2*/« á snnnnd.
Pósthúsiö opið virka d. 9—7, snnnnd. 9—1.
Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Beykjavíknr Pósth.8 opinn daglangt
8—10 virka daga, helga daga 10—9.
Vifilstaðahœlið. Heimsóknartími 12—1
Þjóðmenjasafnið opið sd., þd. fmd. 12—2,